Tíminn - 11.10.1938, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.10.1938, Blaðsíða 3
51. blatS. TÍMIMV. frrigjndaginn 11. okt. 1938 303 B Æ K U R Ársrit Skógrœktarfélagsins 1938. Þýðing Guðmundar Hannes- sonar á bók norska rithöfund- arins Christian Gjerlöff, Skóg- urinn og æskulýðurinn, fyllir nær ársrit Skógræktarfélagsins að þessu sinni. Bókin hefst á lýsingu þess, hvernig gróðurmoldin myndast og skógarnir rísa upp, eftir að fimbulvetur ísaldarinnar er liðinn hjá í hinum norðlægu löndum. Fylkingar bari'skóga og laufskóga brjótast fram og setj- ast að, jafnt út við sjó sem upp til fjalla. í skjóli þessara skóga reistu mennirnir hús sín og heimili. Skógurinn veitti þeim flest sem þeir þörfnuðust, við til húsagerða og smíða, eldsneyti, tágar í körfur, börk til að mala saman við kornið á harðindaár- um og þekja húsin með, vendi til að ala upp þjóðina með o. s. frv. En skógurinn hefir oft sætt illri meðferð. Úti í löndum má finna þess mörg dæmi, að menn_ ingarriki hafi liðið undir lok með skóginum, t. a. m. Gyðingaland. Þar sem Libanon-skógar voru áður, eru nú auðnarlönd. Jafn- vel í hinu skógríka landi, Noregi, eru skógai'nir víða eyddir. Þar sem skógurinn er horfinn, eru vesælustu hlutar landsins. Þann- ig leiðir höfundurinn rök að blessun þeirri, sem fylgi skógun- um. Síðustu kaflarnir fjalla um friðun skjólskóganna og nýrækt- ina í Noregi. Skólabörnin og æskulýðsfélögin hafa tekið að sér trjáplöntun, margar milljón- ir plantna á ári hverju. Oft hefir mistekizt að velja þær trjáteg- undir, sem hentuðu bezt og margt farið í handaskolum, en árangurinn er samt sem áður einsær. Á 40 árum hafa iðnar barnahendur gróðursett 40 millj. trjáa. Þessi bók er hin eindregnasta skírskotun til hlýhugar, sem ís- lenzk æska ber í brjósti til fóst- urjarðarinnar. Margt er það að vísu, sem þar er sagt, er ekki á við hér á landi, en hin rika hvatning til ungra og gamalla, um að græða skóginn á ný, er máske hvergi tímabærari en hér á landi. Ný tónverk. Serenaði tíl Reykjavíkur. Lag eftir Sigvalda Kaldalóns, við kvæði eftir Tómas Snorrason. Förumannaflokkar þeysa. Lag fyrir karlakór eftir Kai'l Run- ólfsson, við kvæði eftir Davíð Stefánsson. Nú sigla svörtu skipin. Lag fyrir karlakór eftir Karl Run- ólfsson, við kvæði eftir Davíð Stefánsson. Hljómboðar II. Lög eftir Þór- arinn Jónsson frá Hánefsstöð- um, við 26 kvæði eftir ýmsa höf- unda. ÍÞRÓTTIR Svtfflug. í kvöld kl. 8.30 verður út_ breiðslufundur fyrir svifflug- íþróttina í Oddfellowhúsinu. Þar verður sýnd ágæt kvikmynd frá flugdeginum á Sandskeiðinu í sumar og einnig frá svifflugæf- ingum við Vífilsfell. Eru rúm tvö ár síðan Svifflugfélagið var stofnað hér í Reykjavík. Eru í félaginu 30 virkir félagar. Hafa þeir unnið ósleitilega. Eiga þeir nú tvær svifflugur sem þeir hafa smíðað sjálfir, þriðju sviffluguna keyptu þeir af leiðangursmönn- unum þýzku. Þá hafa þeir kom- izt yfir, tvo bíla, sem þeir nota til flutninga á tækjum og mönnum á æfingastað, og loks er að nefna flugskýlið á Sandskeiðinu, sem er mikið hús og vandað, keypt austur við Sog, en flutt og reist í tómstundum af félagsmönnum sjálfum. Telur Agnar flugmaður, að um Norðurlönd að minnsta kosti, hafi hvergi náðzt annar eins árangur á jafnskömmum tíma og hjá þessu félagi. 21 hafa lokið A-prófi, 8 B-prófi, 5 C- prófi, 2 Meira-C, og þrír hafa staðizt próf við að stýra svif- flugu, sem dregin er á loft af vélflugu. Til þess að koma öllu þessu til vegar, hafa félagarnir orðið að leggja fram 35 kr. inntökugjald og 8 kr. mánaðargjöld. Höfðu þeir hver um sig orðið að leggja fram 135 kr. í peningum og 60 klst. í vinnu við flugtækjasmíði, áður en flugæfingar gátu hafizt. Nú verður inntökugjaldið fært niður í 10 kr. og mánaðargjaldið í 5 kr. og geta nýir þátttakendur strax komizt að við verklegar flugæfingar, sakir þess, hve flugtækin nú eru orðin mörg. Svifflug er talið í fremstu röð íþrótta um holl uppeldisáhrif. Tóbak og áfengi eiga ekki sam- leið með þeim, sem ætla sér „upp í loftið“. Þá þroskar það þolgæði, varfærni og ályktunar- gáfu. En er jafnframt hagnýtt á þann hátt, að þaðan yrðu valdir menn til vélflugnáms. Auk félagsins hér í bænum er starfandi svifflugfélag á Akur- eyri. Hafa félagsmenn þess byggt sér svifflugu og munu nokkrir þeirra vera talsvert langt á veg komnir. í stærri kaupstöðum og víðar þar sem þéttbýlt er, ætti að vera hægt að æfa svifflug. Efniviður í svifflugu er tiltölulega lítill og myndi flugmálaráðunauturinn fús að veita nánari upplýsingar og leiðbeiningar þessu viðkom- andi, mönnum, er þess kynnu að óska. w Sigurður Olason & Egill Sígurgeírsson Málllutningsskrífstofa Austurstrætí 3. — Sími 1712. (Q)|taupfélaqi& (Qkaupféiaqié Verðlisti Pöntunarverð: Hveiti 1. fl. 0.42 kgr. Kremkex 2.50 kgr. Sykurvatn, 1/1 fl. 1.48 fl. Rúgmjöl, danskt 0.25 kgr. Kex Salon 2.20 kgr. Sykurvatn, 1/2 fl. 0.88 fl. Hrisgrjón 0.36 kgr. Salt 0.12 kgr. Edik, 1/2 fl. 0.48 fl. Hrísmjöl 0.38 kgr. Kakao 2.20 kgr. Kryddbréf 0.18 br. Haframjöl, gróft 0.42 kgr. Kaffi, óbrennt 1.90 kgr. Maccarónur, 250 gr. 0.50 pk. Haframjöl, fínt 0.52 kgr. Kaffi, br. & malaff 0.80 pk. Rommbúðingur 0.42 pk. Haframjöl, pk. 1 kgr. 0.75 pk. Smjörlíki 1.30 kgr. Vanillebúðingur 0.18 pk. Sagogrjón 0.58 kgr. Mjólkurostur 30% 2.20 kgr. Tip Top þvottaduft 0.43 pk. Baunir 0.70 kgr. Lyftiduft 2.00 kgr. Perla þvottaduft 0.45 pk. Kartöflumjöl 0.42 kgr. Flórsykur 0.75 kgr. Sódi 0.25 kgr. Melis 0.55 kgr. Kókosmjöl 1.80 kgr. Krystalsápa 0.95 kgr. Strausykur 0.45 kgr. Bökunardropar, 30 gr. 0.60 gl. Stangasápa 0.57 st. Kandís 0.77 kgr. Sósulitur 0.60 gl. Toilettpappfr 0.23 rúll. Matarkex 1.90 kgr. Tómatsósa 1.40 fl. Verö i heilum lekkjnm Hveiti, 1. fl. 18.50 50 kgr. Hrísgrjón 16.25 50 kgr. Hænsnamjöl 14.75 50 kgr. Rúgmjöl, pólskt 10.00 50 kgr. Haframjöl 20.50 50 kgr. Síldarmjöl 24.50 100 kgr. Bl. hænsnakorn 14.50 50 kgr. a 1. KRON selur ekki aðelns 10 tegundir á lágu verði(pöntiiuarverði)lield- ur allar. 3. KRON bindur yður ekki við að kaupa ákveðið niagn, þér ráðið sjálf hve mikið ]»ér kaupið. 3. KRON endurgreiðir þann tekjuafgang er verða kann af rekstrinum. 4. KRON hefir lækkað verðlagið á matvöru í Reykjavík, svo að matvör- ur eru hér ódýrari en í öðrum höfuðborgum Norðurlanda. Verzlið þar sem ódýrast er O^kaupféiaqiá Kauptu KELVIN-DIESEL, og þú verffur efnaffur eins og Skoti. Tilkynning: nm l»íislsiOaski|ili Þeir, sem hafa flutt búferlum og hafa innanstokksmuni sína hrunatryggða, eða eru líftryggðir hjá oss, eru hér- með áminntir um að tilkynna oss bú- staðaskipti sin nú þegar. Sjóvátryqqi Eimskip 3. hæð. aqislands Sími 1700. duga skal, og mest þar sem bezt- ir eru möguleikarnir og mest á að vinna. í þremur síðustu ár- göngum Búnaðarritsins hefir ekki komið nein grein um garð- yrkju og engm tilraunaskýrsla um þá hluti. í Frey hafa á árun_ um 1936—38 komið 9—10 grein- ar um garðyrkju, þótt það sé betra en ekkert, er það ekki mikið á þeim árum sem ætluniri var að aukning garðyrkjunnar væri mál málanna á sviði jarð- ræktarinnar. Engri verklegri kennslu í garðyrkju hefir verið haldið uppi er sé svo háreist að menn læri að nota sjálfsögðustu hestaverkfæri við ræktunina. Menn verða að hafa hugfast, að það er allt annað að rækta lítinn garð til heimilisnota og yndis- arðs, heldur en að framleiða svo um muni til sölu og fjárhags- hagnaðar. Þessi ummæli verða ef til vill skoðuð sem ádeila, en ég spyr: Ef sett er mark eins og það að efla kartöfluræktunina og spara við það svo nemur hundruðum þúsunda í gjaldeyri, verður þá ekki líka að horfast í augu við veruleikann og sinna þeim að- gerðum sem nauðsynlegar eru svo eitthvað þokist að markinu. Mest ríður á að efla ræktunina í nærsýslum Reykjavíkur og ef bændur þar eru það tornæmari á eigin hag en þeir í Hornafirði, verður að ganga harðara að um „kennsluna“. Nú í haust þarf að gera alvöru af því að afla yf- irlits yfir kartöfluræktunarskil- yrðin á Suðvesturlandi. í vetur þarf að undirbúa aukna ræktun í þeim sveitum, sem bezt hafa skilyrðin og á komandi vori verður að le).ðbeina mönnum með ræktunina langt um betur og ötullegar en gert hefir verið undanfarið. Þetta mætti vera aðalverk héraðsráðunautanna í haust, vetur og vor, og veitti ekki af að meiri starfskröftum væri beint að því verki. Áríðandi er að bændur um land allt taki frá útsæði í haust til næsta vors, allir þeir sem fengið hafa þá uppskeru að hún sé hæf sem útsæði. Er betra að treysta á fremsta hlunn með heimafengið útsæði, því sjúk- dóma hefir lítið orðið vart í sumar, heldur en að verða ein- göngu að nota útlent útsæði næsta vor. Geymið eigin útsæði og kaupið jafnvel heldur matar- kartöflur í vetur, ef á þarf að halda. 7. okt. 1938. Árni G. Eylands. Kopar keyptur í Landssmiffjunni. Septembermánnður (Framhald af 2. síðu.) mjög undarleg, því að þeir stungu ekki upp á neinum manni sjálfir, en greiddu at- kvæði gegn báðum þeim bæjar- stjóraefnum, er í boði voru. Má bví segja, að fleiri en kommún- istar sýni ábyrgðarleysi í þorp- unum austanlands. Þessu yfirliti um viðburði síð- astliðins mánaðar verður ekki lokið án þess, að minnst sé frá- falls eins hins merkasta manns í íslenzkri bændastétt, hugvits- og atorkumannsins Bj arna Run- ólfssonar í Hólmi í Landbroti í Vestur-Skaptafellssýslu. Hann andaðist 4. sept. og aðeins 47 ára gamall og var til grafar borinn í heimagrafreit á bæ sín- um þann 18. sept. Um Bjarna sál. og hin þjóðkunnu störf hans hefir Helgi Lárusson frá Kirkjubæjarklaustri ritað ítar- lega hér í blaðið. Bjarni í Hólmi átti sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins og var einn af beztu og áhugasömustu liðsmönnum flokksins. En einn- ig meðal stjórnmálaandstæð- inga hans innan héraðs og ut- an er nú talið skarð fyrir skildi, þar sem hann var. 44 ______________ Andreas Poltzer: elskandahlutverkið en sagði kuldalega: — Þér verðið að giftast mér. Við getum látið ástæðuna liggja á milli hluta, í bili. En ef þér talið öllu skynsamlega, skal ég lofa yður einu: Þér skulið fá allt, sem nokkur kona getur óskað sér og liægt er að fá fyrir peninga. Patricia heyrði varla hvað hann sagði. Hugsun hennar var í uppnámi. Meðvit- undin um hættuna, sem hún var stödd í, skerpti hugvitsgáfu hennar. Meller sá allt í einu, sér til mikillar furðu, að stúlk- an brosti hæðilega. — Nú eigið þér um það bil fimm mín- útur eftir af umhugsunartímanum, til að ákveða yður, sagði hún. — Ákveða hvað? spurði Meller forviða. — Ákveða það að fylgja mér út úr hlið- inu og sleppa mér með kurteisri afsökun fyrir það grófa gaman, sem þér hafið haft í frammi við mig í kvöld. — Mér veitist ofur hægt að stilla mig um það, sagði Meller hæðilega. Patricia leit á úrið sitt. — Eftir fjórar mínútur umkringir lög- reglan húsið. Flýtið þér yður, herra Mel- ler! — Þér reynið að blekkja mig, Patricia, en það tekst ekki. Haldið þér, að ég sé það barn að trúa yður? _— Eins og yður þóknast, Meller. Ég Patrieía 41 — Ungfrú Holm! Klukkan kortér yfir ellefu, eða eftir nálægt tuttugu og fimm mínútur, verðum við gefin saman 1 hjónaband! Á ýmsu hafði Patricia átt von, en þessi rólegu ummæli gengu þó fram af henni. — Ég sé, að orð mín vekja undrun hjá yður, hélt Meller áfram, án þess að breyta svip. Ég hefði gjarnan viljað gefa yður dálítið lengri frest til þess að venj- ast tilhugsuninni, en því miður eru ýms- ar knýjandi ástæður til þess, að hjóna- bandið verður að fara fram fyrir mið- nætti.... Patricia hafði náð sér svo aftur eftir skelfinguna, að hún gat þó komið upp orði. Hún stillti sig eins og hún gat, er hún sagði: — Ég geri ráð fyrir að þér séuð að gera að gamni yðar. En það er grátt gaman, herra Meller — ef þér heitið þá þvi nafni! — Já, það vill svo til, að það er rétta nafnið mitt. Og ég myndi aldrei leyfa mér að hafa svo alvarlegt mál í flimting- um. Eftir kortér kemur maður hingað. Hann er prestur og framkvæmir athöfn- ina. Öll nauðsynleg skjöl eru til reiðu. Leyfisbréfið og skírnarvottorð yðar, ung_ frú Holm! Ég hefi leyft mér að taka af- rit af því án yðar vitundar....

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.