Tíminn - 10.01.1939, Blaðsíða 4
TtMINN, þrlgjHdagiiw 10. janúar 1939
4. blað
16
Tilkynning
frá Sjúkrasamlagi Rcykjavíkur.
1. Dagpeningatrygging Sjúkrasamlagsins fellur-niður sem
skyldutrygging frá næstu áramótum, og frá þeim tíma verða dag-
peningar ekki greiddir samlagsmönnum, samkvæmt þeim regl-
um, sem gilt hafa um dagpeningatryggingu samlagsins, öðrum en
þeim, sem þegar hafa lagt fram læknisvottorð um að þeir hafi
áður verið orðnir óvinnufærir sökum veikinda eða slysa og þannig
öðlast rétt til dagpeningagreiðslu áður en tryggingarreglunum
var breytt.
Frá 1. janúar s.l. verður hinsvegar, samkvæmt 30. gr. alþýðu-
tryggingarlaganna frá 31. des. 1937, 4. tölulið, samlagsmönnum
á aldrinum 16—55 ára, gerður kostur á, gegn sérstöku iðgjaldi, að
tryggja sér dagpeningagreiðslu, er þeir verða óvinnufærir, sam-
kvæmt reglum, sem um það eru settar í samþykkt samlagsins og
nú hafa öðlast gildi. Samkvæmt þeim reglum eiga samlagsmenn
kost á að tryggja sér dagpeninga að liðinni einni viku eða lengri
tíma (biðtíma) frá því er þeir kunna að verða óvinnufærir, og fer
upphæð iðgjaldsins þá að nokkru eftir lengd biðtímans, eins og
áður, auk þess sem aldur hins tryggða kemur einnig til greina í því
sambandi. Reiknast iðgjöldin samkvæmt eftirfarandi töflu er
sýnir:
Mánabariðgjöld
fyrir 10 kr. bætur á sjúkraviku frá og með
Aldur: 2. vika: 3. vika: 4. viku: 5. viku: 9. viku: 14. viku
16—19 1,40 1,05 0,85 0,65 0,25 0,05
20—24 1,50 1,15 0,85 0,65 0,20 0,05
25—29 1,75 1,25 0,90 0,65 0,20 0,05
30—34 1,85 1,30 0,95 0,65 0,20 0,05
35—39 1,90 1,35 1,00 0,70 0,20 0,05
40—44 1,95 1,45 1,05 0,80 0,25 0,05
45—49 2,15 1,60 1,20 0,90 0,25 0,05
50—54 2,45 1,85 1,35 1,00 0,30 0,10
55 2,60 1,95 1,45 1,10 0,35 0,10
Fyrir 20 kr. bætur á sjúkraviku greðiist tvöfalt iðgjald. Fyrir
30 kr. bætur á sjúkraviku greiðist þrefalt iðgjald.
2. Ljós- og Röntgenlækningar: Frá 1. janúar s. 1. eiga sam-
lagsmenn kost á, í viðeigandi tilfellum, eftir ráði heimilislæknis,
að fá Ijósböff (kvarzljós og kolbogaljós) og yfirborffs-röntgengeisl-
anir, á Röntgendeild Landspítalans að % hlutum á kostnað
Sjúkrasamlagsins, en leita þarf þó samþykkis trúnaðarlæknis
samlagsins í hverju einstöku tilfelli.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Tilkynning
um iramvísun rcíkninga
Sjúkrasamlag Reykjavíkur beinir þeirri áskorun til þeirra
manna og stofnana, sem eiga reikninga á samlagið frá síðast-
liðnu ári, að sýna þá til greiðslu fyrir 25. þ. m. í afgreiðslunni,
Austurstræti 10.
Sjákrasamlag Reykjavíkur.
Á nýársdag var Thomas Moo-
ney, sem stundum hefir verið
nefndur „Dreyfus Bandaríkj-
anna“, náðaður. Hann hefir set-
ið í fangelsi í 22 ár og 4 mánuði.
Mooney var verkamannafor-
ingi í San Francisco. Verkalýðs-
samtökin áttu þá litlu fylgi að
fagna i Bandaríkjunum. Á
krófugöngu, sem hernaðarsinnar
í öorginni héldu, var sprengju
varpað á mannfjöldann og létu
níu menn lifið. Lögreglan fann
ekki sökudólginn, en vegna
stjórnmálaafskipta og andúðar
gegn stríði féll grunurinn á
á Mooney og samstarfsmann
hans, Warren Billings.
Við réttarhöldin gat Mooney
fœrt óhrekjandi rök fyrir því,
m. a. með Ijósmynd, að hann
hefði verið staddur annarsstaðar
en þar sem þessi atburður varð
og gœti því ekki verið valdur að
honum. Eigi að siður voru þeir
Billings báðir dæmdir til heng-
ingar. Dómurinn var uppkveðinn
22. júlí 1916. Síðar var honum
breytt í œfilangt fangelsi.
Leið svo nokkur timi. Verka-
lýðssamtökin og mannúðarfélög
víðsvegar um heim tóku að sér
að sanna sakleysi þeirra félaga
og krefjast sýknunar þerria.
Aðalvitnin gegn þeim játuðu að
þeim hefði verið borgað fyrir að
sverja rangan eið. Margir af
lcviðdómurunum, sem höfðu
dæmt þá, viðurkenndu sakleysi
þeirra, þegar þeir höfðu fengið
nánari upplýsingar. En ýms
œðstu yfirvöldin þrjóskuðust
stöðugt. Fyrir sjö árum var þeim
boðin náðun, en sakleysi þeirra
var ekki viðurkennt. Billings
þáði slíka lausn, en Mooney ekki.
Viðurkenning á því, að hann
hefði verið ranglega dœmdur,
var honum fyrir öllu.
Móðir hans ferðaðist meðan
hún lifði viða um heim til að
vinna fyrir málstað sonarins.
Þegar hún dó 1924, var honum
neitað að vera við jarðarförina.
í fangelsinu var Mooney fyrir-
myndarfangi, hjálpfús, hlýðinn
og samvinnugóður.
Náðun sina á hann því að
þakka, að demókratar unnu
landstjórakosninguna i Kali-
forniu í haust, en republikanar
hafa stjórnað þar samfleytt í 45
ár. Þeim hefir fundizt náðun
Mooney einskonar niðurlœging
fyrir stjórn sína og því verið
henni andvígir. Mooney-málið
var eitt helzta átakamálið i
kosningunum í haust.
5fí * *
Nýjasti dansinn og sá, sem
nýtur einna mestra vinsœlda í
Bandríkjunum nú, heitir „Ele-
anor Glide“ í höfuðið á frú
Roosevelt, sem hefir mikinn á-
huga fyrir dansi.
* * *
Á veturna fara margir efna-
menn í Englandi til Sviss og
stunda þar skíða- og skauta-
íþrótt. Það er talið, að skáld-
sagnahöfundurinn Arthur Con-
an Doyle hafi verið frumkvöðull
þess, að þessi ferðalög ruddu sér
til rúms.
ÚR R/EIVUM
Félag ungra Framsóknarmanna
í Revkjavík heldur umræðufund í
Sambandshúsinu á fimmtudagskvöldið.
Fundurinn hefst kl. 8,15. Valdimar Jó-
hannsson kennari segir frá ferð um
Norðurland. Guðmundur V. Hálmars-
son tftlar um hina fyrirhuguðu leikvelli
í Nauthólsvíkurlandi. Þórarinn Þórar-
insson flytur framsöguræðu um afstöðu
Framsóknarmanna til annarra stjórn-
málaflokka. í fundarbyrjun fer fram
inntaka nýrra félaga. Menn eru á-
minntir um að mæta stundvislega.
Viffskiptaskráin,
ný útgáfa, er nú í undirbúningi í
Steindórsprent. Nær hún yfir flestalla
kaupstaði landsins og er aukin og end-
urbætt. Menn, sem kynnu að vilja
láta skrá ný atvinnu- eða kaupsýslu-
fyrirtæki, ættu að tilkynna það, sem
fyrst í Steindórsprent, Aðalstræti 4.
Gamla Bíó
sýnir nú ameríska mynd: Konungur
sjóræningjanna. Myndin byggist á
hinni viðburðaríku sögu víkingsins
Jean Lafitte, sem var uppi um alda-
mótin 1800 og hafði talsverða þýðingu
í styrjöld Bandaríkjanna og Englands
1812—14. Aðalhlutverkið er mjög vel
leikið af Fredric March.
Verðlag á kartöflum
(Fravih. af 2. síðu)
manna er mun meiri 2—3 síð-
astliðin ár en hún hefir áður
verið. Eigi að síður væri æski-
legt, að hún gæti aukizt til mik-
illa muna, og að lækkandi vexð-
lag gæti stutt að þeirri aukn-
ingu. Mun það mark nást betur
með öðrum aðgerðum en hinum
fávíslegu ummælum hr. S. K.
um Gr. R. og hvernig hún hafi
leikið hann og aðra.
Margt er það, sem þyrfti að
lækka í verði hér á landi —
um það verða víst allir sam-
mála, — en eitt er það, sem ég
tel mest um vert aff lækki ríf-
lega í verffi, — það er álits-
gengi þeirrar „þingmennsku"
og „þjóðmálastarfsemi“, að
hampa með drýldni, og án þess
að vilja vita hið rétta, jafn
ranghverfum fullyrðingum eins
og hr. S. K. gerir um Gr. R.,
þótt í stuttu máli sé. Það er
sama hvert málefnið er, slík
málafylgja þyrfti að lækka svo
1 verði, að enginn vildi við henni
líta. Mætti þá segja um álit
þeirra, er henni beita: Lítið var
en lokið er.
5. janúar 1939.
Árni G. Eylands.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
bæði „samhentur“ og „vel
brynjaður“, þrátt fyrir nöfnin
tvö og formennina tvo. Þá segir
hann, að Framsóknarflokkur-
inn hafi „sópað til sín yfirráð-
um síldarverksmiðjanna". Er
það undarlega að orði komizt,
þar sem Framsóknarflokkurinn
er, eins og allir vita í minna-
hluta í verksmiðjustjórninni og
hefir þar því engu meiri „yfir-
ráð“ en áður var. Önnur æfin-
týri, sem H. V. segir þarna um
Framsóknarflokkinn, eru af
líkum toga spunnin.
Útbrciðið TÍ M AIVN
IJpphit. með rafmagni
(Framli. af 1. síðu)
mörgum bæjum Noregs hafa
hafizt handa til að hrinda þessu
máli áleiðis, en mest hefir þó
verið unnið að því í Oslo.
Telur hann^að upphitun með
rafmagni geti haft hina mestu
þýðingu fyrir þjóðarbúskapinn
t. d. ef styrjöld bæri fljótlega
að höndum.
Hljómsveit Reykjavíkur.
Meyjaskemman
verður lcikin annað
kvöld klukkan 8V2
Affgöngumiffar verffa seldir í
dag kl. 4—7 og eftir kl. 1 á
morgun f Iðnó. — Sími 3191.
182 Andreas Póltzer:
hafði fyrst haldið, að stúlkan ætti ekk-
ert afdrep þarna í húsinu í Upper Harley
Street. Nú komst hann að þeirri niður-
stöðu, að svo hlyti að vera; annars hefði
hún verið komin á háaloftið fyrir löngu.
Þegar hálftími var liðinn fór Whin-
stone að brjóta heilann um hvort það
væri eiginlega til nokkurs að híma þarna
lengur. Hann tók ákvörðun. Stóð upp,
fór ofan af loftinu og niður á neðstu hæð
á s'tigaganginum. Hann kveikti á eldspítu
og sá á hurðinni hjá sér litið spjald með
nefninu Alice Bradford. Whinstone vissi
að stúlkan bjó ein þarna í lítilli íbúð.
Hann hikaði við sem snöggvast — klukk.
an var orðin fjögur að morgni — en svo
hringdi hann bjöllunni. Hann heyrði vel
kliðinn í bjöllunni fyrir innan, en ekki
nokkra lifandi sál.
Hann hringdi í annað sinn og nokkuð
lengi. Hann var að því kominn að hrósa
happi og fara á vörð aftur upp á loft,
þegar hann heyrði þrusk fyrir innan
dyrnar. Og rétt á eftir var var spurt með
syfjulegri og að því er virtist ofurlítið
smeikri kvenrödd:
— Hver er þar?
Þetta var rödd Alice Bradford, það var
enginn vafi á þvl. Whinstone laumaðist
á burt án þess að svara.
Eftir eina mínútu var hann kominn
út á götu. Hann gekk á ská til hliðar og
Patrícia 183
horfði upp í glugga Alice Bradford. En
hann sá ekkert ljós, og þetta voru einu
mistökin hjá Alice Bradford. Því að
Whinstone ályktaði sem svo, og það með
réttu, að manneskja, sem vakin er upp
klukkan fjögur um nótt, kveikir fyrst og
fremst ljósið. Svefndrunginn í rödd
hennar villti honum ekki sýn.
FIMMTI KAPÍTULI,
Hr. Penepol Meager, eigandi verzlun-
arinnar „Fjárhirzla Indlands“ var ekki í
sem beztu skapi. Loftið í fjárhirzlunni
var eins og þrumuveður væri í aðsigi, og
Bill sendisveinn, sem tók eftir fyrstu ein-
kennum hins væntanlega óveðurs, sat
um tækifæri til að komast á burt af
hættusvæðinu.
Penelop Meager hafði heyrt á tal
stráksins og Violet, og af því að þyrk-
ingslegur húsbóndinn var að leita að
átyllu til að bera eld að púðurtunnu
sinna þrauthrelldu skapsmuna, færði
hann sig nær þeim.
— Ég get svarið yður, ungfrú Violet, að
það er ekki dropi eftir af honum! sagði
strákurinn.
— Um hvað ertu að tala? tók Pene-
lop Meager fram í samræðuna.
Bill lét ekki rödd húsbóndans blekkja
sig, þó hún virtist stillileg. Til vonar og
vara færði hann sig nokkur skref undan
Lelðréttiiig.
í Moladálki Timans er fyrir
skemmstu birt vísa ein, er ég á
að hafa gert fyrir nokkrum ár-
um. Þótt vísan sé birt að mér for-
spurðum, mun ekki tjá að fást
um það. Þeir, sem hafa þann á-
vanda, að kasta þeim fram við
tækifæri, vita aldrei hvar þær
lenda og mega vera við því búnir
að þær séu ýmist hentar á lofti
eða hirtar, ef þær liggja á glám-
bekk og sá eigi fund, sem finnur.
Nú vill svo til, að vísa þessi á sér
stallsystur, mjög samrýmdar.
Munu þær hafa verið á næstu
grösum er hún var klófest og
sett í hold. Vilja þær nú umfram
allt vera henni til samlætis og
að eitt gangi yfir þær allar, ef
kostur væri. Ekki er ég að bera
þær fram á bænarörmum af
neinu kappi, en hér eru þær
samt, hvort sem þær þykja hús-
hæfar:
Hrós um dáið héraðslið
hamast sá að skrifa
sem er ávallt flla við
alla þá, er lifa.
Þann ég heyrði herrans þjón
háa speki boða,
er ég leit, sem fjandans flón
fara sér beint að voða.
Konungur
sjóræningjanna.
Stórkostleg og afarspenn-
andi kvikmynd, gerð af
Cecil B. de Mille.
íl Aðalhlutverkin leika:
FREDRIC MARCH og
í? FRANSISCA CAAL.
Börn fá ekki aðgang.
NÝJA BÍÓ *
Ranða akurliljan
snýr aftur.
Stórfengleg kvikmynd frá
United Artists, er byggist á
síðari hluta hinnar heims-
frægu sögu
Rauffa akurliljan
eftir barónsfrú Orczy.
Aðalhlutv. leika:
BARRY BARNES,
SOPHINE STEWART
o. fl.
Leikurinnþ fer fram í
i; Englandi og París á dögum
frönsku stjórnarbyltingaT-
innar.
Bifreiðarafgevmar --
Viðtækjarafgevmar.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
Trésmídaiélag’ Reykjavíkur
Þeir félagsmenn, sem kynni að óska styrks úr tryggingar-
sjóði félagsins, sendi um það skriflega beiðni, sem afhendist í
skrifstofu félagsins í Kirkjuhvoli fyrir 20. þ. mán.
Stjórnin.
Jafnvel ungt fólk
eykur vellíðan sína með því að nota
hárvötn og ílmvötn
Yið framleiðum:
EAU DE PORTUGAL
EAU DE QIIMAE
EAU DE COLOGNE
RAYRHUM
ÍSVATN
Verðið í smásölu er frá kr. 1,10 til kr. 14,00, eftir
stærð. —
Þá höfum við hafiff framleiffslu á
ILMVÖTAUM
úr hinum beztu erlendu efnum, og eru nokkur
merki þegar komin á markaffinn.---
Auk þess höfum við einkainnflutning á erlendum ilmvötn-
um og hárvötnum, og snúa verzlanir sér því til okkar, þeg-
ar þær þurfa á þessum vörum að halda.-—
Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bökunardropa þá,
sem vér seljum. Þeir eru búnir til með réttum hætti úr
r é 11 u m efnum. — Fást allsstaffar.---
Áfeng-isverzl. ríkisins.
..SíiOin**
vestur og norffur föstudag 13.
þessa mán.
Flutningi óskast skilaff á miff-
vikudag og pantaffir farseðlar
sóttri degi fyrir burtferff.
Á sín mæti mikilsverð
maðurinn ræðuprúður,
bara’ að öll hans orð og gerð
er sem skothent klúður.
Þeir svo kjarngott kennimanns
kveðjuoffur segja,
tU að lifa í lofi hans
langar marga að deyja.
Indriði á Fjalli.
Ódýrar bækur. Fágætar bækur
fást í Fornbókasölunni á
Laugavegi 18. Mikið úrval.
Benjamín Sigvaldason.