Tíminn - 17.01.1939, Qupperneq 4
28
TfMireV, þrlgjMdaglmit 17. jamiar 1939
7. I»Iað
Einn þekktasti blaðamaður,
sem nú er uppi, er Vladimir
Poliakoff.
Það er talið, að enginn blaða-
maður hafi jafngóð sambönd og
hann í utanríkismálaráðuneyt-
um þeirra ríkja, sem mest áhrif
hafa. Hann ferðast mikið en not-
ar þó símann ennþá meira. Það
er talið, að enginn blaðamaður
hafi á siðastl. ári haft jafnháan
símareikning og hann.
Poliakoff skrifar aðallega í
enska, kveldblaðið „Evening
Standard“, sem mun vera fjöl-
lesnasta kveldblað í heimi.
Greinar hans birtast einnig í
„New York Tímes". Hann gefur
líka út eígið blað „Diplomatic
Letters", sem kemur út í 72 ein-
tökum. Kaupendurnir eru ein-
göngu ráðherrar og sendiherrar.
Sézt gleggst á því, hversu mikils
álit hans og þekking er metin í
þessum efnum.
Poliakoff hefir iðulega orðið
manna fyrstur með ýmsar mik-
ilsverðar fréttir. Hann var t. d.
fyrstur til að birta aðalefni
brezk-ítalska-samningsins. Nýt-
ur hann mikilla vinsœlda hjá
einrœðisherrunum, enda hallast
hann á sveif með þeim.
Hann er kominn af Gyðingum
i aðra œttina, en Rússum l hina.
Poliakoff einkennir greínar
sinar með rithöfundarnafninu
Augur. Þetta nafn varð til af
slysni. Fyrstu grein sína skrifaði
hann í Fortnightly Review árið
1924. Hann setti undir hana dul-
nefnið Argus, en setjarinn mislas
það og setti Augur. Poliakoff
lét þar við setja og nafnið Augur
er nú orðið heimsfrœgt.
* * *
Einn frœgasti leynilögreglu-
söguhöfundur, sem uppi hefir
verið, var Edgar Wallace. Hann
var óvenjulega afkastamikill og
skipta leynilögreglusögur hans
mörgum tugum. Eina þeirra
frœgustu „The Devil Man“ skrif-
aði hann frá því á föstudags-
morgni og þangað til á mánu-
dagsmorgun. Hann svaf aðeins
örfáar klukkustundir aðfaranótt
sunnudagsins. Á þessum 70 klst.
hafði hann unnið sér inn um 100
þús. kr. Hann gat því sofnað
rólegur á eftir, enda segir sagan,
að hann hafi sofið nœstum sam-
fleytt í tvo sólarhringa.
* * *
Mælingar norska hersins á ný-
líðum virðast leiða í Ijós, að með-
alhœð karlmanna í Noregi sé
mun meiri nú en um aldamót.
Árið 1900 var meðalhœð nýlið-
anna 170 cm., 1910 var hún 171
cm„ 1920 171.43 cm„ 1930 172.83
cm„ 1935 173.43 cm. og 1936
173.74 cm.
Meðalhœðin er jafnan meiri
í borgum en sveitum. Árið 1936
var meðalhæð nýliðanna úr
borgum 174.32 cm. og i sveítum
173.56 cm.
tH BÆIVUM
Fermingarbörn
Dómkirkjusafnaðarins,
sem fermast eiga á þessu ári — vor
og haust — eru beðin að koma í Dóm-
kirkjuna til viðtals við prestana í þess-
ari viku, sem hér segir: til séra Sigur-
jóns Árnasonar fimmtudag kl. 4, til
séra Fr. Hallgrímssonar fimmtudag kl.
5, til séra Garðars Svavarssonar föstu-
dag kl. 4 og til séra Bjarna Jónssonar
föstudag kl. 5.
Gestir í bænum.
Þormóður Eyjólfsson ræðismaður á
Siglufirði, Jón Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri á Siglufirði, Sveinbjöm
Högnason prestur á Breiðabólstað,
Lúðvík Nordal læknir á Eyrarbakka,
Ólafur Þorláksson á Hrauni í Ölfusi,
Stefán Reykjalín, Akureyri, Hjörtur
Gíslason bifreiðarstjóri, Akureyri, Þor-
steinn Hannesson, Siglufirði, Jóhann
Valdemarsson bóndi, Möðruvöllum í
Eyjafirði, Árni Bjarnarson bóndi á
Mógili á Svalbarðsströnd.
Skattstofan
vill vekja athygli manna á því, að
frestur sá, sem gefinn er til skattfram-
tals, rennur út í lok þessa mánaðar.
Fyrir þann tíma eiga menn að hafa
fyllt út skattskýrslur sínar og komið
þeim á skattstofuna.
Á víðavangi.
(Framh. a1 1. síöu)
ríður? Og ef svo er, geta þeir
þá ætlast til, að lýðræðissinn-
aðir menn taki Sjálfstæðis-
flokkinn langt fram yfir sveit
Héðins Valdimarssonar og Ein-
ars Olgeirssonar?
* * *
En þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins þurfa, ef vel á að vera,
að hreinsa sig af fleiru en yfir-
lýsingum Knúts Arngrímssonar.
Einn af trúnaðarmönnum
flokksins, Gunnar Thoroddsen,
hefir nú látið frá sér fara á
prenti stórhneykslanleg ummæli
um, að íslendingar verði að
haga innanlandsmálum sínum
að vilja tiltekins erlends ríkis.
Lengra hefir ekki verið gengið,
jafnvel ekki af hálfu Kommún-
ista.
Emile Vandervelde,,
sem andaðist um áramótin. Hann var
lengi aðalforingi jafnaðarmanna í
Belgíu og um skeið forseti Alþjóða-
sambands jafnaðarmanna.
Eímskípaiél. íslands
25 ára
(Framh. af 1. síðu)
Eimskipaíélagi íslands alla slna
orku. Hann hefir ráðið mestu
um allar skipasmíðar félagsins
og auk þess um smíði Esju og
Ægis. Hlutdeild hans í stofnun
og starfi félagsins er um leið
mikill þáttur í viðreisnarstarfi
íslendinga.
Þriðji höfuðleiðtogi Eimskipa-
félagsins er núverandi forstjóri
þess, Guðmundur Vilhjálmsson.
Hann tók við stjórn félagsins á
hættulegum tíma, í byrjun yf-
irstandandi heimskreppu. En
félaginu hefir farnazt ágætlega
undir stjórn hans. Hann hefir
trúlega fylgt stefnu hins fyrsta
forstjóra, að skoða sig í einu
árvakran og athugulan trúnað-
armann félagsins og um leið
stuðningsmann hins íslenzka
þjóðfélags. Guðmundur Vil-
hjálmsson er enn ungur mað-
ur og munu vinir hans og fé-
lagsins vænta þess, að hann eigi
eftir að vinna marga sigra í
starfi sínu. Ameríkuskipið er
eitt af þeim aðkallandi
fremdarverkum, sem bíða fé-
lagsins, þegar lokið er skila-
grein um hinn fyrsta aldar-
fjórðung. J. J.
Rómarför
Chamberlains
fFramh. al 1. síðu)
sumar, hefir nýlega lýst því yfir,
að Englendingar yrðu að hafa
ákveðnari stefnu í utanríkismál-
um, því vonin um samkomulag
við einræðisríkin léki vissulega
á veikum þræði. En Astor-fjöl-
skyldan, sem líka ræður yfir
„Times“, hefir stutt utanríkis-
málastefnu Chamberlains mjög
öfluglega.
Rómarför Chamberlains var
tilraun frá hans hendi til að
sýna, að stefna hans hefði enn
ekki beðið fullkomið skipbrot.
Hún var farin í því trausti að
hægt yrði að ná einhverju því
samkomulagi við Mussolini, sem
yrði til þess að vinna upp hið
glataða traust á Munchen-stefn-
unni.
En för hans virðist hafa borið
gagnstæðan árangur. Hún virðist
þvert á móti hafa sannað skoðun
þeirra, er hafa vantreyst stefnu
Chamberlains og verið andvígir
undanlátsseminni við einræðis-
ríkin. En bíði stefna Chamber-
lains ósigur, er það vegna þess,
að einræðisherrarnir setja sér
það mark, að styrjöld verður
ekki umflúin. Hversu ófram-
kvæmanlega, sem menn telja
stefnu Chamberlains, má ekki
gleyma því, að hún leiðir það
bezt í ljós, að sökin er einræðis-
herranna, ef til styrjaldar kem-
ur. —
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
Hljómsveit Reykjavíkur.
Meyjaskemman
verður leikin annað kvöld
kl. 8%.
Venjulegt leikhiísverð
Engin alþýðusýning verður
haldin, en nokkur sæti verða
seld fyrir 2 krónur.
Aðgöngumiðar verða seldir í
dag kl. 4—7 og eftir kl. 1 á
morgun i Iðnó. — Sími 3191.
„Goðafoss"
fer á miðvikudagskvöld vestur
og norður.
,,BrúarSoss“
fer á miðvikudagskvöld til
Breiðafjarðar og Vestfjarða.
Skipið fer héðan 24. janúar
til Leith og Kaupmannahafnar.
Hreinar
léreftstnsknr
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
Dómur hæstaréttar
I ,,mjólkurmálinu“
(Framli. af 1. síðu)
einnig má telja sannað, eins og
í héraðsdóminum getur, að
mjólk oftnefndrar samsölu
hafi að sumu leyti verið ábóta-
vant á þessum tíma, og rekja
má minnkaða mjólkursölu að
nokkru leyti til þess, þá þykir
hæfilegt að telja aðaláfrýjend-
um til ábyrgðar í þessu máli
helming þess tjóns, sem af
minnkaðri mjólkursölu hefir
leitt frá því að „boycottið"
hófst til 15. marz 1935, er mál
þetta var lagt til sátta. í þessu
sambandi skal þess getið, að
hér fyrir dómi hafa verið lögð
fram gögn, er sýna það, að við
athugun, er fram fór í október
1935, kom í Ijós, að gerilhreins-
un mjólkur Mjólkursamsölunn-
ar, eða að minnsta kosti nokk-
urs hluta mjólkurinnar, var á-
bótavant. En þar sem ekki er
vitað, hvenær þessir gallar á
gerilhreinsuninni byrjuðu, og
aðiljum máls þessa virðist hafa
verið ókunnugt um, að þeir
væru fyrir hendi veturinn 1935,
er „boycottið“ stóð yfir, þá gat
þetta ekki haft nein áhrif á
gerðir þeirra á þeim tíma, og
skiptir því ekki máli í þessu
sambandi. (Leturbr. Tímans).
Gagnáfrýjandi hefir sýnt
fram á, að mjólkursala Mjólk-
ursamsölunnar hefir minnkað
sem næst um 4200 krónur frá
því að „boycottið“ hófst, 25.
febr. s. á. Samkvæmt því, er áð-
ur segir um ábyrgð aðaláfrýj-
enda á tjóninu, og með hlið
sjón af því, að upplýst er, að
unnar voru mjólkurafurðir úr
mjólk þeirri, er ekki seldist,
þykir hluti sá, sem aðaláfrýj-
endum ber að greiða, hæfilega
ákveðinn 1400 krónur með vöxt-
um eins og krafizt er, og er á-
byrgð þeirra á greiðslu fjárhæð-
ar þessarar solidarisk. Svo ber
þeim og að greiða gagnáfrýj-
anda málskostnað, og þykir
hann eftir niðurstöðu málsins
hæfilega ákveðinn 400 krónur
samtals fyrir báðum réttum.
Því dæmist rétt vera:
Aðaláfrýjendur, Jón Kjart-
ansson, Valtýr Stefánsson, Páll
Steingrímsson, Ragnhildur Pét-
ursdóttir og Guðrún Jónasson,
greiði in solidum gagnáfrýj-
anda, Sveinbirni Högnasyni f.
h. Mjólkursamsölunnar kr.
1400,00 með 5% ársvöxtum frá
21. marz 1935 til greiðsludags
og samtals kr. 400,00 í máls-
kostnað í héraði og fyrir hæsta-
rétti.
Dóminum ber að fullnægja að
viðlagðri aðför að lögum.“
194
Andreas Poltzer:
Patricia
195
ingum í glæparannsóknadeildina.
Gesturinn þakkaði fyrir hjálpina og
hélt áfram leiðina, sem henni hafði verið
vísað til. Hún fann ekki undir eins her-
bergið, sem hún var að leita að, og sneri
sér því að manni einum, lágum í lofti,
sem kom á móti henni.
— Afsakið þér, lögregluþjónn, hvar er
farið inn til Whinstone fulltrúa?
Jafnvel þótt maðurinn sem hún hitti
væri bæði ofursti og staðgengill lögreglu-
stjórans sjálfs, tók hann henni ávarpið
ekki illa upp, en sýndi henni leiðina.
Eftir mínútu var hún komin að mark-
inu. Fulltrúnn spratt upp forviða, undir
eins og honum varð litið á gestinn.
— Ungfrú Violet, það var fallega gert
af yður að líta inn til mín, það verð ég
að segja, kallaði hann brosandi, og allt
í einu bærðist ný von í honum.
Hann ruddi blaðahrúgu af stól og bauð
Violet sæti.
— Herra fulltrúi, fyrst verð ég að biðja
yður um að senda einhvern út á götuna
að bifreið, sem stendur þar og ökumæl-
irinn sýnir sjö shillinga og níu pence,
ef það hefir þá ekki hækkað síðan ég
fór. Viljið þér gera svo vel að sjá um
greiðslu á þessari upphæð fyrir mig... .7
Whinstone sendi mann út til þess að
gera út um þetta mál, og sneri sér á ný
að gestinum.
— Þér hafið fengið yður dálitla öku-
ferð, ungfrú Violet, sagði hann í spaugi.
En Volet kom ekki spaug í hug þessa
stundina. Hún var að brjóta heilan um,
hvernig hún gæti gert aðdragandann að
atvikinu sem áhrifamestan. Allt í einu
datt henni í hug atvik, sem hún hafði
séð í kvikmynd og afréð að taka það til
fyrirmyndar.
Hún spratt upp af stólnum, æddi að
fulltrúanum, sem ekki vissi hvaðan á
sig stóð veðrið og hvíslaði:
— Hreyfið yður ekki, ef yður er annt
um líf yðar!
Whinstone varð svo forviða, að honum
varð orðfall. Hann stirðnaði og varð að
saltstólpa.
En nú varð Violet í vandræðum, því
að hún gat ekki fundið viðeigandi sam-
band milli þessarar byrjunar og frá-
sagnar sinnar. Það má ef til vill segja
henni það til málsbóta, að þetta kvik-
myndaatriði var úr gamalli mynd, frá
því löngu áður en talmyndirnar komu
til sögunnar.
— En hvað þér gerðuð mig hræddan!
sagði fulltrúinn og reyndi leikarahæfi-
leika sína eins og hann gat.
— Var það ekki? sagði Violet brosandi.
Hún hafði náð sér á réttan kjöl aftur.
— Þetta mun vera nýr samkvæmis-
leikur? spurði Whinstone.
»:»n»»m«GAMLA Bíó»»»»«t»»|
Hrói Höttur
frá E1 Dorado
Stórfengleg og áhrifamikil
Metro Goldwin Mayer-
kvikmynd.
Aðalhlutv. leika:
WARNER BAXTER,
ANN LORING Og
MARGO.
Þetta er kvikmynd, sem
snertir hjarta hvers eins er
sér hana.
Börn fá ekki aðgang.
nýja BíóúKaöMaanj
Prmsinn
og betlarinn.
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros, samkv. hinni
heimsfrægu sögu með
sama nafni, eftir hinn
dáða ameríska ritsnilling
MARK TWAIN.
Aðalhlutv. leika:
ERRAL FIYNN
og tvíburabræðurnir
BILLY og
BOBBY MAUCH
Börn yngri en 12 ára fá
ekki aðgang.
KJKKt
Tekið upp í dag
Nýtt og Sjölbreytt úrval ai
Karlmaimafataefnum
og
V erksmið j uútsalan
(n cfjiin - Idiiim
Aðalstræti.
Bilreiiarifgeimir -
ViOlækjaralgevaar.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
Jainvel ungt Sólk
eyknr vellíðan sína með því að nota
hárvötn og ílmvötn
Við framleiðum:
EAIJ DE PORTTJGAL
EAU DE DUIMIVE
EAU DE COLOGNE
BAYRHUM
ÍSVATN
Verðið í smásölu er frá kr. 1,10 til kr. 14,00, eftir
stærð. —
Þá höfum við hafið framleiðslu á
ILMVÖTNUM
úr hinum beztu erlendu efnum, og eru nokkur
merki þegar komin á markaðinn. — --
Auk þess höfum við einkainnflutning á erlendum ilmvötn-
um og hárvötnum, og snúa verzlanir sér því til okkar, þeg-
ar þær þurfa á þessum vörum að halda.-
Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bökunardropa þá,
sem vér seljum. Þeir eru búnir til með réttum hætti úr
r é 11 u m efnum. — Fást allsstaðar.--
ÁSengisverzl. ríkísins.
Bókavínír og bókasöfn X
Nú er tækifæri að auka bókasöfn sín fyrir lítið gjald, með
því að panta hinar ódýru bækur hjá H.f. Acta. — Ekkert
heimili ætti að vera án bókasafns. — Pantanir má gera hjá
öllum bóksölum landsins eða beint af lager, hjá skilanefndar-
manni H.f. Acta liqv.,
Jóni I»órðarsyni,
(Pósthólf 552) REYKJAVÍK
Bókaverðskrá send ókeypis þeim er þess óska.