Tíminn - 02.03.1939, Page 4
106
TlMM, fimmtudaginn 2. marz 1939
26. blað
MOLAR
í gœr (1. marz) hófst kosn-
ing á nýjum páfa í Róm. Sjö-
tíu og tveir kardinálar hafa
rétt til að taka þátt i kosning-
unni og má búast við, að lang-
flestir þeirra mœti.
Báfakosningarnar eru tví-
mælalaust leynilegustu kosning-
ar í heimi. Þegar kosningaat-
höfnin hefst eru allar dyr, sem
liggja að þeim stofum, þar sem
kardinálarnir eru samankomnír,
lokaðar og innsiglaðar. Ritara
sina, einkalœkna og rakara fá
þeir þó að hafa á nœstu grösum,
svo þeir geta náð til þeirra, ef á
þarf að halda, en þessir þjónar
þeirra verða einnig að vera í
lokuðum og innsigluðum stofum
meðan kosningin fer fram. Mat-
urinn er réttur inn til kardinál-
anna á þann hátt, að þeir geta
ekki náð til að tala við þá, sem
það gera.
Það hefir oft komið fyrir, að
kosningin hafi staðið i margra
daga. Til þess að verða löglega
kjörinn páfi þarf % atkvœða. En
flokkadráttur er oft mikill um
kosninguna. Fer því iðulega svo,
að margar atkvœðagreiðslur fara
fram, án þess að nokkur nái
löglegri kosningu. Þar sem ekki
mega fara fram nema tvœr
atkvœðagreiðslur á dag, að
morgni og að kvöldi, getur
kosningin staðið yfir í marga
daga. Atkvœðagreiðslan er alltaf
skrifleg.
Kjörmiðarnir eru alltaf
brenndir að lokinni talningu.
Reykurinn, sem kemur úr skor-
steininum, þar sem kardinálarn-
ir halda til, er eina merkið, sem
almenningur fær um það, hvern-
ig kosningin gengur. Sé reykur-
inn þykkur, þýðir það, að at-
kvœðagreiðslan hafi orðið ólög-
mœt, þvi þá er hálmi blandað
saman við seðlana. Sé reykurinn
hinsvegar þunnur og bláleitur,
er það merki þess, að atkvœða-
greiðslan hafi orðið lögmæt, því
þá er seðlunum brennt einum.
Kardinálarnir mega ekki segja
frá því, um hverja hafi verið
kosið. Almenningur fœr engin
önnur tiðindi frá kosningunni
en þau, að þessi maður hafi verið
kosinn páfi, en það er leyndar-
mál, sem kardinálarnir fara með
í gröfina, hversu mikil átök það
hefir kostað.
* * *
Finnar eru eina þjóðin, sem
hafa greitt Bandaríkjamönnum
skiZvíslega hernaðarlánin, sem
þeir fengu í heimsstyrjöldinni.
Amerísk auðkona, Mrs. Malcolm
McLeod, hefir orðið svo hrifin
af þessu, að hún hefir ákveðið
að gefa finnska ríkinu vandað
safn af enskum bókum.
EKremar
léreftstuskur
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1 D.
ím BÆNUM
Model-svifflugfélagið
hefir opnað sýningu í Þjóðleikhús-
inu og sýnir þar smiðisgripi eftir ýmsa
félagsmenn. Eru þeir flestir á aldrin-
um 10—15 ára. Á sýningunni eru nær
þrjátíu líkön. Sýningin verður opin
daglega í hálfan mánuð kl. 1—10 dag-
lega.
Framsóknarskemmtun
var haldin að Hótel Borg á þriðju-
dagskvöldið. Hófst hún með Pram-
sóknarvist. Síðan fluttu Jónas Jóns-
son, Hermann Jónasson forsætisráðh.
og Eysteinn Jónsson stuttar ræður.
Loks var danzað til klukkan tvö. Sam-
koman var mjög fjölmenn.
Karlakór Reykjavíkur
heldur samsöng í Gamla Bíó í kvöld.
Hefst kl. 7. Þetta er síðasta söng-
skemmtun kórsins að sinni.
Skátafélögin I Reykjavík
hafa ákveðið að hefjast handa um
húsbyggingu fyrir félagsskapinn. Hafa
þau að undanförnu átt við mikil hús-
næðisvandræði að búa, svo að hamlað
hefir stundum eðlilegri starfsemi. Þó
hafa skátar orðið að leggja mikið fé
af mörkum í húsaleigu. í hinum fyrir-
huguöu húsakynnum eiga bæði kven-
skátar og drengir að geta fengið við-
unandi húsnæði. Á það að vera til æf-
inga og fundarhalda fyrir alla skáta-
flokka í bænum, jafnhliða því, sem þar
sé hægt að starfrækja foringjaskóla
fyrir stúlkur og drengi og láta skátum
utan af landi í té herbergi til fundar-
halda, þegar svo ber undir. Þar er
einnig ætlað rúm fyrir lestrarsal,
vinnustofur og skátaverzlun. Skátamir
hafa þegar stofnað húsbyggingarsjóð
og byrjað á fjársöfnun fyrir hann.
Hafa þeir efnt til happdrættis um
sumarbústað, er þeir eiga upp í Mos-
fellssveit og virtur er á 9000 kr. Á að
draga í þessu happdrætti 1. júní í vor.
Vænta skátarnir þess, að þeir geti haf-
ið húsbyggingu þegar á næsta ári.
Prjónastofan Iðunn
á fimm ára starfsafmæli þessa dag-
ana og hefir blaðamönnum verið boðið
að skoða vaming þann, sem þar er
unninn, vinnustofur og vinnuvélar. Á
síðastliðnu ári voru á prjónastofunni
búnar til um 4000 flíkur úr íslenzku
efni eingöngu, auk þess, sem unnið var
úr útlendu efni. Eigandi og forstöðu-
kona prjónastofunnar er Viktoría
Bjarnadóttir.
Tollalöpgíöfm
endurbæti
(Framh. af 1. síOu)
afkastað miklu starfi fyrir
nefndina um ýmiskonar út-
reikninga, en það er stud. polit
Torfi Ásgeirsson. Að sjálfsögðu
hefir og nefndin notið enn fleiri
aðstoðarmanna, en í því efni
vísast til skýrslu nefndarinnar.
Afgreiði Alþingi það, er nú
situr, löggjöf um aðflutnings-
gj öld á grundvelli þeim, sem hér
hefir verið lagður, er gert ráð
fyrir að gildistakan eigi sér stað
um næstu áramót.
Þægile^ bújörð
óskast til leigu eða kaups í nær-
sveitum Reykjavíkur eða Ölfusi.
Þeir sem vilja sinna þessu, sendi
tilboð sín til afgreiðslu þessa
blaðs fyrir 12 marz, merkt:
B Ú J Ö R Ð.
Jarðariörín á Akra-
nesí
Jarðarför Bjarna Ólafssonar
skipstjóra og Tómasar Jóh. Þor-
valdssonar, fór fram hér í gær,
28. febr., og hófst kl. 12 á hádegi
á heimili Tómasar. Flutti þar
húskveðju séra Friðrik Friðriks-
son. Því næst var Tómas borinn
af félögum sínum niður að
Borg, heimili Bjarna, og stóðu
hásetar af línuveiðaranum Ólafi
Bjarnasyni heiðursvörð við kist-
una meðan flutt var húskveðja
yfir Bjarna. Þorsteinn Briem
prófastur flutti hana. Oddur
Sveinsson frá Akri flutti þar
kveðjuljóð til Bjarna, ort af séra
Friðrik Friðrikssyni. Því 'næst
voru kisturnar bornar frá Borg
til kirkjunnar. Skiptust á um
það skipstjórar á Akranesi, há-
setar af línuveiðaranum Ólafi
Bj arnasyni og hreppsnef nd
Ytri-Akraneshrepps, en skip-
stjórar úr Reykjavík báru
Bjarna í kirkju, en nánustu
vandamenn Tómas. Um 30
skipstjórar á Akranesi stóðu
heiðursvörð við kistuna í kirkj-
unni meðan á athöfninni stóð.
Ræður í kirjunni flutti Þor-
steinn Briem og minntist hann
jafnframt þeirra tveggja háseta,
er drukknuðu með Bjarna, en
ekki hafa fundizt. Að ræðum
prófasts loknum,minntist Oddur
Sveinsson frá Akri, bróðir Jóns
heitins Sveinssonar, hinna látnu
félaga og flutti þakkar- og
kveðjuorð frá hinum látna
bróður sínum til hans velgerða-
fólks og las því næst upp kveðju
og þakkarljóð til Bjarna Ólafs-
sonar, frá bróður hans, Odd-
geiri Ólafssyni, en ort af
Sumarliða Halldórssyni. Út úr
kirkju báru skipstjórar á Akra-
nesi kistuna.
Er athöfninni í kirjunni var
lokið, var haldið upp að Görðum
til grafreits Akraness. Voru
kisturnar fluttar á bifreið, er
Bjarni Ólafsson & Co áttu, en
skipstjórar á Akranesi gengu
skrúðgöngu fyrir líkfylgdinni
með tvo fána í broddi fylkingar.
Er upp að Görðum kom, stóðu
skipstjórar á Akranesi í röðum
beggja megin sáluhliðsins, en
kisturnar voru bornar inn í
kirkjugarðinn af skipverjum af
Ólafi Bjarnasyni.
Tómas var jarðsettur við hlið
móður sinnar, sem látin er fyrir
nokkru, en lík Bjarna var lagt
í grafhvelfingu, er móðir
Bjarna, sem andaðist fyrir
nokkrum árum, var látin í, en
hvelfing þessi var upphaflega
ætluð móður og stjúpföður
Bjarna.
Við grafhvelfinguna flutti
Enok Helgason rafvirki frá
HafnaTfirði kveðjuorð til Bjarna
en hann hefði verið háseti hjá
honum, er hann var ungur og
hélt vináttu við hann æ siðan.
Fjöldi kransa bárust og silfur-
skildir frá skipverjum á Ólafi
Bjarnasyni á báðar kisturnar
og skjöldur frá skipstjórafélag-
inu Hafþór á Akranesi á kistu
Bjarna.
Margt fólk kom úr Reykjavík
270 Andreas Poltzer:
ennþá eftir svæfingartilraunina, en var
i hálfgerðri leiðslu.
Hann fjarlægðist nokkur skref og
sneri siðan við og sagði.
— Whinstone fulltrúi kemur víst og
heimsækir yður áður en klukkutíminn er
úti, hugsa ég, sagði hann og hoppaði svo
inn í bílinn og ók af stað. En svo stað-
næmdist hann aftur við fyrsta síma-
turninn sem varð á leið hans. Hann fékk
samband við Scotland Yard og spurði
eftir Whinstone fulltrúa.
Whinstone kom í símann og eigandl
litla bílsins sagði honum hvað gerzt
hafði hjá Patriciu.
Whinstone tók fram í undir eins eítir
fyrstu setninguna, sem hann sagði:
— Hver er það, sem ég tala við?
Maðurinn virtist ekki hafa tekið eftir
spurningunni, því að hann hélt áfram
að segja frá. Whinstone tók ekki fram
1 aftur. Þegar ungi maðurinn hafði lokið
máli sínu, sagði Whinstone á nýjan leik:
— Það kemur ekki málinu við, hver
ég er. En þér þekkið víst Söru Moore,
gömlu herfuna? Reynið þér að ná í hana
og hún getur sagt yður, ef þér biðjið
hana vel, hver það var, sem bað hana og
Langa Jimmy að stela ungfrú Holm.
Með þessum orðum hringdi ungi mað-
urinn og sleit sambandinu. En þó að
hann hefði gert sér upp málróm, þóttist
Patricia 271
Whinstone hafa þekkt röddina.
Hann hringdi þegar í stað til matsölu
frú Croys. Húsmóðirin svaraði spurn-
ingum hans með því, að Patricia hefði
komið heim fyrir stundarfjórðungi og
hefði undir eins farið að hátta.
Með þvi að manninn Whinstone lang-
aði mikið til að heimsækja Patriciu,
komst fulltrúinn Whinstone að þeirri
niðurstöðu, að það væri óhjákvæmlegt
að fara og taka skýrslu af ungfrú Holm
undr eins.
Það varð merkileg skýrsla. Ef leyni-
vitni hefði verið viðstatt, myndi það
hafa kallað skýrsluna ástarjátning.
NÍUNDI KAFLI
Violet var í öngum sínum þegar Patri-
cia kom til hennar. Því að viðhafnar-
kjóll Violet var ekki kominn aftur úr
efnalauginni, en þangað hafði hún sent
hann vegna útreiðar sem hann hafði
fengið í veizlu Piperscu prinsessu. Gest-
irnir höfðu nefnilega fengið lúðu í sinn-
epssósu og sinnep setur miður fallega
bletti á kjóla úr bleikrauðu gervisilki.
En nú þurfti Violet endilega að nota
kjólinn sinn í kvöld, enda þótt hún væri
hvorki boðin til Piperscu prinsessu eða
hertogafrúarinnar af Marlborough.
En sannast að segja var staðurinn,
Manneldisrannsóknír
(Framh. af 3. síðu)
að safna shkum drögum og
framkvæma slíkar rannsóknir,
að draga megi nokkrar ályktan-
ir af um þau vandamál, sem ég
áður gat um. Að órannsökuðu
máli finnst mér að freista mætti
þessa.
Ég er svo bjartsýnn úr fjarsk-
anum, að trúa því, að læknar
og stjórnmálamenn og allir
heima séu þess fúsir að taka
höndum saman um að hefja
rannsóknir á manneldinu á ís-
landi. Örugg þekking á því sviði
er grundvöllurinn undir allri
velmegun þjóðarinnar.
Kaupmannahöfn í febrúar 1939.
Bíóttnnnrnitna
Sjóræningjar
Suðurhafsins
Spennandi og æfintýrarík
amerísk kvikmynd, sam-
kvæmt skáldsögunni „Ebb
Tide“ eftir Robert Louis
Stevenson.
Aðalhlutv. leika:
OSCAR HOMOLKA,
FRACES FARMER,
RAY MILLARD, ::
LLOYD NOLAN. H
Kvikmyndin er öll tekin ♦♦
með eðlilegum litum! H
nýja bíó tmnnMnnta
Saga Borgar-
ættarínnar
Kvikmynd eftir sögu
Gunnars Gunnarssonar,
tekin á íslandi árið 1919 af
Nordisk Films-Compani.
Leikin af íslenzkum og
tt dönskum leikurum.
:nnt
EINN vínníngur gctur gerbreytt lífskjörum yðar
EINN vinníngur getur gcrt yður sjálfstæðan efnalega
EINN vinníngur getur gert yður fært að
Reísa bú
Eignast skip
Setja á stofn atvinnufyrirtæki
EINN vínníngur getur skapað yður framtíðaratvinnu
Happdrætti Háskóla íslands
og nærsveitunum til að vera við
jarðarförina. Þetta mun vera
fjölmennasta jarðarför, sem
farið hefir fram á Akranesi
síðan það bygðist. Var áætlað
að um eitt þúsund manns hafi
fylgt þeim félögum til grafar.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
Múla 7200, Þórður nokkur Al-
bertsson 12 þús. o. s. frv. Jón
Ólafsson skýrði þá frá því að
tveir af sendimönnum S. í. F.
hefðu fengið í ferðakostnað 5
sterlingspund (110 kr.) á dag í
þriggja mánaða ferðalagi til
Suðurlanda. Svona upphæðir
þyrfti að geta orðið samkomu-
lag um að lækka um leið og út-
veginum er hjálpað.
* * *
Blaðtetur Jóns í Dal er með
ónot út af því, að rætt hafi
verið um samstarf milli þriggja
stærstu flokkanna. Bágt á sá,
sem enginn talar við!
Hvað vekur meiri ánægju á
heimilinu en fallegur, vel
klæddur drengur?
Kaupið þess vegna hin óvið-
jafnanlegu matrosaföt frá
okkur. Fyrirliggjandi í blá-
um og brúnum litum.
Ennfremur viljum við vekja
athygli almennings á að við
vefum saman slysagöt á alls-
konar fatnaði (Kunststopn-
ing). Afgreiðum gegn póst-
kröfu um allt land.
Laugaveg 10
Goðafoss
fer annað kvöld 3. marz,
um Vestmannaeyjar til
Hull og Hamborgar
Reykjavík.
Sími 1249.
Símnefni: Sláturfélag.
JVIðursuðuverksmiðja. - Bjúgnagerð.
Reykhús. — Frystiliiis.
Farseðlar óskast sóttir fyr-
ir hádegi á morgun.
SÖNGKENNSLA.
Get bætt við nokkrum fleiri
nemendum.
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Símar: 4860 og 2562. Þórsg. 7A
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Ostar og smjör frá Mjólkurbúi Flóamanna.
Vinnið ötullega fyrir
Tímunn.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.