Tíminn - 25.03.1939, Side 4
146
TÍMIM, laugardagiim 25. marz 1939
36. blað
ZMZOXj^.1^
Á heimsstyrjaldarárunum
mun enginn maður hafa gegnt
vandasamara og abyrgðarmeira
starfi en Lloyd George. Fyrstu
árin vann hann að því að byggja
upp vopnaframleiðslu Breta, er
var í miklum ólestri, og þrjú
seinustu árin var hann forsœtis-
ráðherra. Um það er líka yfírleitt
ekki deilt lengur, að sigur
Bandamanna sé engum einum
manni meira að þakka en hon-
um.
Menn hafa oft undrað sig á
því, að Lloyd George skyldi geta
leyst jafn mikla vinnu af hönd-
um og hann gerði á þessum ár-
um, án þess að skemma heilsu
sína, bœði likamlega og andlega.
En hann hefir haldið fullu fjöri
og starfskröftum fram á þennan
dag. Ræður hans í þinginu eru
enn magnaðar þeim kynngikrafti
sem gat honum mestrar aðdáun-
ar í gamla daga. Blaðagreinar
hans bera enn sömu merkin um
þann skarpa skilning og frjóa
ímyndunarafl, sem gert hafa
hann að einum merlcilegasta og
sérstœðasta stjórnmálamanni
Breta.
Fyrir nokkrum árum lagði am-
eriski blaðamaðurinn Webb Mil-
ler þá spurningu fyrir hann,
hvernig honum hefði tekizt að
varðveita heilsu sína og starfs-
fjör á styrjaldarárunum. Lloyd
George svaraði á þessa leið:
„Strax og ég fann veruléga til
þreytu, lagði ég mig i stundar-
fjórðung eða svo, alveg sama á
hvaða tíma dagsins það var.
Smámsama^i vandist ég á það,
að geta sofnað nœr tafarlaust
og ég lagðist fyrir og svaf i 15
—20 mín. Þegar ég vaknaði, fann
ég aldrei til þreytu.“
•f* v *1*
„Eg held,“ hélt Lloyd George
áfram, „að menn geti með nœgi-
legri viljafestu, vanið sig á það
að sofna hvenœr sem þá lystir.
Það er erfitt í byrjun. Það er
eins og að þjálfa hest í hindr-
unarhlaup. í fyrstu er ekki hægt
að koma honum yfir hindranirn-
ar, en það lánast með nœgilegri
þrautseigju. Eftir að hafa gert
nokkrar tilraunir, heppnaðist
mér þetta fullkomlega og ég
vaknaði eftir 15—20 mínútna
svefn sem fullhvíldur maður.
Eg hœtti oft þýðingarmiklum
störfum í miðjum kliðúm, til að
geta fengið mér slíka hvíld.
Auk þess fann ég það upp,
að maður getur unnið bug á á-
hyggjum með söng. Þegar á-
hyggjurnar og ófbyrgðartilfinn-
ingin ætluðu að koma mér i
slœmt skap, hœtti ég venjulega
að vinna og söng sálmalög frá
Wales i nokkrar mínútur. Eg lét
iðulega þýðingarmiklar sendi-
nefndir og erlenda erindreka
bíða, meðan ég söng, til að geta
tekið á móti þeim í góðu skapi.
Fyndi ég þess merki, að ég vœri
að ofþreytast eða verða eitthvað
lasinn, háttaði ég tafarlaust og
hélt kyrru fyrir, unz ég fann, að
ég var orðinn góður aftur.“
* * *
Giftur maður er þolinmóðasta
húsdýrið. — Romon Cajal.
Menn þreytast aldrei á vond-
um konum. — Oscar Wilde.
ÚR BÆIVUM
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir gamanleikinn „Húrra krakki“
á morgun kl. 3 og kl. 8 í síðasta sinn.
Að fyrri sýningunni verða nokkrir
bekkir seldir fyrir börn. Þetta verður
síðasta tækifærið til þess að sjá þenn-
an bráðskemmtilega leik.
M.-A.-kvartettinn
syngur í Gamla Bíó á morgun,
sunnudaginn 26. þ. m., kl. 3. e. h. í síð-
asta sínn og með breyttri söngskrá.
Vegna mikillar aðsóknar eru síðustu
forvöð að fá aðgöngumiða, en þeir eru
seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og Bókaverzlun ísafoldar-
prentsmiðju.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, séra Sigurjón
Þ. Árnason, kl. 2, barnaguðsþjónusta,
séra Friðrik Hallgrímsson, kl. 5, séra
Bjarni Jónsson. — í fríkirkjunni kl. 2,
séra Árni Sigurðsson. — í Laugarnes-
skóla kl. 5, séra Garðar Svavarson, kl.
10, barnaguðsþjónusta. — í Skerja-
fjarðarskóla kl. 10, barnaguðsþjónusta.
í sambandi
við grein um smjörsamlög, sem
Sveinn Tryggvason mjólkurfræðingur
skrifaði nýlega hér í blaðið, skal þess
getið, að Búnaðarþingið skoraði á Al-
þingi að styrkja slíka starfsemi.
Togararnir
Gyllir og Belgaum komu í fyrrinótt
af ufsaveiðum, Gyllir með 90 smálestir,
en Belgaum með um 130 smálestir.
Gestir i bænum:
Kristján Jónsson frá Garðsstöðum,
Jón Hannesson bóndi í Deildartungu,
Þorbjörn Pétursson trésmiður á Drag-
hálsi í Svínadal.
Emkeimileg
framkoma.
(Framh. af 1. síðu '
borðinu við Mussolini og honum
veitt aukin fríðindi.
Þá hafa kommúnistablöðin
nýlega lokið lofsorði á aðra
framkvæmd, sem sýni djörf-
ungu Rússastjórnar. Hún hefir
kvatt fulltrúa sinn úr hlutleysis-
nefndinni, sem átti að hindra
vopnaflutningana til Spánar.
Rússneska stjórnin hefir sýnt að
hún vill ekki lengur taka þátt
í slíkum blekkingaleik, sögðu
kommúnistablöðin. En þau
gleymdu að geta þess um leið,
að Rússar kvöddu ekki fulltrúa
sinn heim fyr en Franco hafði
með aðstoð ítalsks herliðs og
þýzkra flugvéla náð allri Kata-
loníu á vald sitt.
í langri ræðu, sem Stalin flutti
nýlega á flokksþingi kommún-
ista, réðist hann með mikilli
grimmd gegn utanríkismála-
stefnu lýðræðisríkjanna, en lét
ekkert hnjóðsyrði falla í garð
Þýzkalands. Þykir það sýna þess
glögg merki, hversu mikinn beig
Rússar hafa af Þjóðverjum og
að sá ótti valdi hinni óákveðnu
afstöðu þeirra.
Sömu einkenni hafa komið
fram í sambandi við innlimun
Tékkoslovakíu í Þýzkaland. Það
var ekki fyr en eftir að Bretar,
Frakkar og Bandaríkjamenn
höfðu sent harðorð mótmæli, að
Til þess að njóta velgengni,
þarf að hafa kosti, sem eru virt-
ir, og ókosti, sem menn óttast.
— J. Joubert.
Jónas Sveinsson
læknir
og „prentvillan“.
(Framh. af 3. síðu)
e. 12 dögum áður) kemst Jónas
þannig að orði:
.... „Enda er grænmetis-
framleiðsla okkar langt of lítil
við það sem hún þyrfti að vera,
mjólk sú, er almenningur neyt-
ir C-bætiefnasnauð ...." (let-
urbreyting gerð hér).
Hér verður að ætla að prent-
villu-leiðréttingu verði tæpast
við komið til að samrýma fyrr-
nefnd tvenn ummæli. En Jónas
á að sjálfsögðu þarna aðrar út-
göngudyr, sem eru þær, að lýsa
því nú yfir, að hann viti ekki
hvað orðið „snauður“ þýðir. En
þetta sýnist líka vera einasta
opna leiðin fyrir hann út úr ó-
göngunum, sem aðgæzluleysi
hans, eða aðrir eiginleikar, hafa
komið honum í, því ólíklegt
verður að telja, að lyf, þó kröft-
ugt væri, hjálpi þarna nokkuð.
„Vísindamennska" Jónasar
Sveinssonar virðist og að vera
nokkuð á annan veg, en al-
menningur hingað til hefir gert
sér hugmynd um, að ætti sér
stað hjá öðrum fræðimönnum.
Svo sem kunnugt er, var það
fyrst í Þjóðviljanum 16. desem-
ber síðastliðinn, að Jónas hóf
árásir sínar á neyzlumjólk bæj-
arbúa. Og svo sem að framan
er greint, var það 4. þ. m. að
Jónas lét þann „vísdórn" frá sér
fara, að mjólk sú, sem almenn-
ingur neytti, væri C-bætiefna-
snauð.
í Morgunblaðinu 16. þ. m.
reynir Jónas að skjóta sér undir
rannsóknir á 2 sýnishornum,
sem Sigurður Pétursson gerla-
fræðingur lét gera 13. maí síð-
astliðinn, eða fyrir rúmum 10
mánuðum, og þá eftir að kýr,
allan þann vetur, höfðu verið
fóðraðar á hröktu heyi, því ann-
að hey mun varla hafa verið til
hér á Suður- og Suðvesturlandi
eftir rigningasumarið 1937.
Hvað skyldu þeir annars vera
margir þessir „við læknar“ og
„fleiri læknar“, sem standa að
slíkri „vísindamennsku" með
Jónasi, eftir því sem ráða má af
skrifum hans. Það gæti virzt
svo, sem það væri ekki þýðing-
arlaust fyrir almenning að fá
einhverja vitneskju um hverjir
þeir eru, sé þá ekki, hvað þetta
snertir, einnig um aðgæzluleysi
að ræða hjá Jónasi.
f lok greinar sinnar frá 16. þ.
rússneska stjórnin lét nokkuð til
sín heyra.
Bendir ýmislegt í þá átt, að
rússneska stjórnin muni treg til
þess, að taka þátt í samtökum
gegn Þýzkalandi og geri sér
jafnvel von um, að Þjóðverjar
eftirláti Rússum Ukrainu, ef
þeir fái frjálsar hendur í Rú-
meníu. Meðal ýmsra erlendra
stjórnmálamanna, einkum 1
Englandi, verður sú skoðun líka
stöðugt meira og meira áber-
andi, að möguleikinn fyrir auk-
inni samvinnu Þýzkalands og
Sovét-Rússlands sé miklu meiri
en flesta grunar.
310 Andreas Poltzer:
En meðal annarra orða: Hvað er að
frétta af ungfrú Holm?
— Hún hefir verið á heimili afa síns
síðan í gær. Það fer að líða að lokunum
hjá Kingsley lávarði — læknarnir sögðu
mér það. Hann virðist skilja sjálfur, að
hann eigi skammt eftir ólifað, og hann
beiddist þess, að fá að sjá barnabarn
sitt.
— Ungfrú Holm verður ein af ríkustu
Englands þegar hún erfir afa sinn og öll
auðæfi Wenks-systkinanna, sem Meller
og Duffy voru að reyna að klófesta, sagði
sir William og varð mjög undrandi þegar
Whinstone fulltrúi greip fram í:
— Já .... því miöur!
ELLEFTI KAFLI.
Það var nokkrum vikum seinna.
Whinstone og Hurst blaðamaður sátu
saman á ofurlítilli vínstofu í Pall Mall.
— Já, herra yfirfulltrúi, þér efnduð
orð yðar. Ég var fyrsti blaðamaðurinn,
sem fékk að vita um hina einstæðu af-
hjúpum Duffy og bófa hans! Það var
sannast að segja ótrúlegt fyrirbrigði. Að-
alfulltrúi í Scotland Yard lifir tvöföldu
lífi og er glæpamaður jafnramt því, sem
hann er lögreglumaður. Slíkt heyrir
maður annars ekki nema i lögregluskáld-
sögum. Hann er hinn ókunni foringi inn-
Patricia 311
brotsþjófa, fjárþvingara, ópíumssmygl-
ara, meistari í því að dulbúa sig og myrð-
ir menn með köldu blóði, þegar því er að
skipta! Bófinn Meller-Ortega var auð-
sjáanlega myrtur í Old Mans Club — sem
var aðal bækistöð Duffys — vegna þess
að Meller hefir líklega verið fyrsti mað-
urinn, sem af bréfum, er hann hefir stol-
ið frá Kingsley lávarði meðan hann var
einkaritari hans, hefir komist að þvi, hve
æfintýralegan arf Patricia Holm átti í
vændum.
Móðir mennar var frænka Wenk-systr-
anna, sem fyrir nokkrum árum dóu í New
York án þess að láta eftir sig börn. Hún
var eini erfingi þeirra. Arfleiðsluskrá
þessara gömlu, sérvitru kerlinga var
þannig orðuð, að eiginmaður erfingjans
hafði svo að segja ótakmörkuð umráð
yfir arfinum, og á þessu byggði Meller
áform sitt. En Duffy, sem með einhverju
móti hefir komizt að þessu sama og heyrt
um aríinn, varð þrándur í götu fyrir
honum — og hann var voldugri. Fyrst
stal Duffy skjölum ungfrú Holm, en
Meller bætti sér upp þennan ósigur og lét
krók koma á móti bragði. En þegar Duffy
sá, að áform hans viðvíkjandi fjársjóðn-
um á Kokoseyjunum strandaði — upp-
drátturinn af eyjunni var týndur og ar-
inhilluþjófnaðirnir, sem hann hafði lát-
ið John Plane fremja, voru tilgangslausir
m„ er Jónas með einhverskonar
tilmæli um aðkallandi rann-
sóknir á íslenzku mjólkinni. Við
því er að sjálfsögðu ekkert nema
gott að segja, að mjólkin sé
rannsökuð, sérstaklega ef það
gæti einnig orðið til þess, að
menn, á borð við Jónas Sveins-
son, hyrfu þá um leið af því
sjónarsviði. Slíkar rannsóknir
eiga ekki og mega ekki vera í
höndum manna, sem lítið ann-
að virðast að hafa þar til brunns
að bera en fáfræði eða aðgæzlu-
leysi.
Sveinbjörn Högnason.
“GAMLA BÍÓ''
Sjómaður í
landgöngulcyfi
Bráðskemmtileg sænsk
gamanmynd, með fjörug-
um söngvum eftir Jaques
Armand. Aðalhlutverkin
leika sænski gamanleikar-
inn
ADOLF JAHR,
BIRGIT ROSENGREN
og
ELEONOR de FLOER.
1NÝJA BÍÓ
UPPREISNEV
I PESHAWAR
(The Drum)
Stórfengleg og íburðar-
mikil kvikmynd frá United
Artists er gerist í Indlandi.
Aðalhlutv. leika: Roger
Livesey, Valerie Hobson og
indverski drengurinn Sabu
Öll myndin er tekin í eðli-
legum litum.
Aukamynd:
HÆNSNA RUMBA
— Börn fá ekki aðgang. —
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍEVR
i>Húrra-krakki!«
Gamanleikur í 3 þáttum eftir
ARNOLD & BACH.
Staðfært af Emil Thoroddsen.
Aðalhlutverkið leikur:
HARALDUR Á. SIGURÐSSON.
Tvær sýningar á morgnn.
Kl. 3 og kl. 8.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Niðursnðnverksmiðja. — Kjiignagcrð.
Reykhús. — Frystihús.
Síðasta sinn.
Að f y r r i sýningunni verða
nokkrir bekkir seldir fyrir börn.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un. —
TRÚLOFUNARHRINGANA,
sem æfilöng gæfa fylgir, selur
SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Sent
gegn póstkröfu hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mál.
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4. Reykjavík.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
milli þeirra og Englendinga, þar
sem Englendingar hefðu borið
hærra hlut. Hér er í fordæma-
lausu ábyrgðarleysi að því stefnt
að tefla íslenzku þjóðinni í
vanda, sem af getur stafað
hætta, meiri og fyrr en nokkurn
varir.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. síðu)
„íslandsviku" i stærstu borgum Þýzka-
lands og sýna þar myndir sínar. ■—
Mariell Wehrli varð á, ferðum sínum
hér gagnhrifin af fegurð landsins og
alúð og gestrisni fólksins. Fannst henni
svo mikið til um litabrigði lofts og láðs
hér á íslandi, að hún taldi að engir
staðir aðrir kæmust til jafns við ísland
að litafegurð.
Ánægjuleg
kvöldstund
Ég fór í Iðnó á miðvikudags-
kvöldið til að sjá íþróttasýningu
K. R.
Þar sýndu 6 ungir piltar og 12
ungar stúlkur fimi sina og
leikni. Var það allt með ágætum.
Hjá piltunum kom fram hinn
karlmannlegi þróttur, vöðva-
stæling og fjaðurmagn, en hjá
stúlkunum hin kvenlega mýkt
og heillandi fegurð í öllum
hreyfingum . Var jafnvægis-
valdið hjá þeim afburðagott.
Sýning þessi var leikendunum
til hins mesta sóma, að ó-
gleymdum kennaranum, Bene-
dikt Jakobssyni, sem leiddi nem-
endurna með markvissu, en þó
jafnframt hlédrægri stjórn, þar
sem hann gætti þess vandlega
að skyggja aldrei á leikfólkið og
draga athygli að sér.
Það má nú geta nærri að til
þess að ná slíku valdi yfir vöðv-
um sínum og vilja, sem þarna
kom í ljós, þarf mikið á sig að
leggja. Slík leikni fæst ekki fyr-
irhafnarlaust. Þetta unga fólk
hefir heimtað allt af sjálfu sér
og í því er sigur þess fólginn.
Með sínu eigin viljaþreki hefir
það lyft sér á hærra stig and-
legs og líkamlegs þroska og gef-
ið bjartar vonir um sterka og
heilbrigða framtíðar þjóð.
Mér er sagt, að þessar ungu
stúlkur, sem þarna leystu svo
glæsilega af hendi margvíslegar
þrekraunir, fari nú á næstu
dögum erlendis til að sýna þar
leikni sína.
Víð þær vil ég segja þetta:
Þökk fyrir kvöldið, og heill fylgi
ykkur, ungu djörfu íslands
dætur.
E. Á.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Ostnr og smjör frá Mjólkurbúl Flóamaima.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
í dag og næstu daga hefir H.f. Raftækjaverk-
smiðjan sýningu í sýningarskálanum í Austur-
stræti, á RAFHA-eldavélum og rafmagnsofnum.
Aðalfnndur
í Ferðafélagi íslands verður haldinn að Hótel Borg
fimmtudaginn 30. þ. m. kl. 20.15.
Fundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Síðan dansað til klukkan eitt.
Aðeins félagsmenn hafa rétt til að sitja fundinn.
Félagsskírteini gildir sem aðgöngumiði.
STJÓRNIN.
Flskimjöl til manneldis!
Kaupmenn og kaupfélög, gefið viðskiptamönnum yðar kost
á að fá hina ljúffengu fiskrétti. — Nákvæmar matarforskriftir
fylgja hverjum pakka. — Allar nánari upplýsingar veitir fé-
lagið. — Pantanir afgr. hvert á land sem er.
H. f. FISKUR
Skjaldborg við Tryggvagötu. Reykjavík. — Sími 5472.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörllkili.
f heUdsölu hjá
Samband ísl.samvinnufélaga
Slmi 1686.