Tíminn - 15.04.1939, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐVR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTOEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
23. árg.
<TF
Reykjavík, laugardagiim 15. apríl 1939
RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1d.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIDSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h. f.
Símar 3948 og 3720.
44. blað
Gengislækkunin og verðlagið
Þrátt fyrir nokkra hækknn er verð
á kolum og kornvörum svipað og
í ársbyrjun 1938. - Margar vörur
hafa ekki hækkað í verði
Víðtal við formann verðlagsncfndar.
Enski aðstoðarverzlunarráðherrann, HucLson, hefir nýlokið ferðalagi til Balkan-
ríkjanna, Póllands, Rússlands, Finnlands og Sviþjóðar og var erindi hans að
rœða um verzlunarmál við ríkisstjórnir þessara landa. Talið er þó, að almenn
stjórmnál hafi víða borið á góma, einkum í Moskva. Það vakti nokkra athygli,
að þegar Hudson fór að heiman, jylgdi Maisky sendiherra Rússa í London,
honum á járnbrautarstöðina. Er myndin tekin af þeim þar. Hudson er til hœgri.
Stefnubreyting' Breta
Tíminn hefir snúið sér til
formanns verðlagsnefndar,
Guðjóns F. Teitssonar, og
fengið hjá honum upplýs-
ingar um áhrif gengislækk-
unarinnar á verðlag í land-
inu og ráðstafanir verðlags-
nefndar í því sambandi.
Fer frásögn Guðjóns hér á
eftir:
Blöð þau, sem andvíg eru
gengislækkuninni, skrifa nú
margt um þá auknu dýrtíð í
landinu, sem þegar sé orðin af-
leiðing gengisbreytingarinnar.
Bentu þau þegar á verðhækkun
á kolum, kornvörum og helztu
þungamatvörum. En vegna þess
hve álagning er víðast lág á
þessum vörum, og erlent inn-
kaupsverð tiltölulega mikill
hluti af söluverði þeirra hér,
var það fyrirfram vitað, að verð-
felling krónunnar hlyti strax
að hafa áhrif á verð þessara
vara.
Á blöðum þessum er helzt að
skilja, að samskonar verðhækk-
un hafi einnig átt sér stað á öll-
um öðrum sviðum, og er þetta
vitanlega gert til þess að gera
fólk órólegt og kvíðið um það,
að gengislækkunin geti ekki
komið að þeim notum sem til
var ætlazt.
Ég ætla mér ekki að dæma um
það, hvaða áhrif gengislækkun-
in kann að hafa á hag lands
og þjóðar, en vegna starfs mins
í verðlagsnefnd, og þar af leið-
andi kunnugleika mínum á
verðlagi í landinu, finnst mér
hlýða að vekja athygli almenn-
ings á því, að verðbreytingar
þær, sem enn hafa orðið vegna
gengisbreytingarinnar, eru ekki
nærri eins alvarlegs eðlis eins og
áðurnefnd blaðaskrif gætu gef-
ið tilefni til að halda.
Ég vil þá fyrst minnast á nú-
verandi verð þeirra helztu nauð-
synjavara, sem hækkað hafa í
verði vegna gengisbreytingar-
innar.
Fyrst skal nefna kolin. Þau
kosta nú í Reykjavík kr. 58.00
smálestin, en á árinu 1937 kost-
aði sama tegund kola kr. 60.00
smálestin, og fyrra hluta árs
1938 kostuðu þau kr. 58.00 smá-
lestin. Þá kostar nú hveiti eftir
verðhækkunina 5—6 aurum
minna hvert kg. en í ársbyrjun
1938 og rúgmjöl og haframjöl
NEFNDASKIPUN
Samkvæmt gengislögunum
skal skipa tvær nefndir, aðra til
að fylgjast með framfærslu-
kostnaði í Reykjavík, en hina til
að hafa eftirlit með því, að
húsaleiga hækki ekki. í fyrri
nefndina tilnefnir Alþýðusam-
band íslands einn mann og
Vinnuveitendafélag íslands
einn. Ríkisstjórnin skipar tvo
menn í síðari nefndina. Hæsti-
réttur tilnefnir formenn beggja
nefndanna.
Hæstiréttur hefir nú tilnefnt
Björn Árnason endurskoöanda
í fyrri nefndina, Vinnuveit-
endafélagið Kjartan Thors
framkvæmdastjóra og Alþýðu-
sambandið Jón Blöndal hag-
fræðing.
í síðari nefndina hefir Hæsti-
réttur tilnefnt ísleif Árnason
prófessor. Ríkisstjórnin hefir
enn ekki lokið sinni tilnefningu.
er einnig sumstaðar á landinu,
m. a. á Akureyri, ódýrara nú en
þá, enda þótt þau hafi hækkað
í verði eftir gengisbreytinguna.
Ég skýri frá þessu til þess að
sýna, að fólk horfir ekki fram á
alveg nýja og óþekkta erfið-
leika, vegna dýrleika á áður-
nefndum nauðsynjavörum, því
eins og öllum er kunnugt, er
kaupgjald yfirleitt hærra nú, en
var á þeim tíma, sem við er
miðað.
En úr þvi að taldar hafa verið
upp vörur, sem hækkað hafa í
verði vegna gengisbreytingar-
innar og látið skina í það, að
flestar aðrar nauðsynjavörur
væru farnar sömu leið, þykir
mér viðeigandi að rifja upp
hvaða nauðsynjavörur eru enn
með óbreyttu verði. Skulu hér
taldar nokkrar: Brauð, mjólk,
kjöt, fiskur, smjör, smjörlíki,
ostar, brennt og malað kaffi,
kaffibætir, skófatnaður, vinnu-
föt, sjóklæði o. s. frv. Skal það að
vísu viðurkennt í sambandi við
þessa upptalningu, að hún er
aðallega byggð á upplýsingum
héðan úr Reykjavík, og sum-
part frá Akureyri, þar eð að-
staða hefir í fljótu bragði ekki
leyft að fylgjast eins með verð-
laginu um land allt.
Ef spurt er um það, hvað verð-
lagsnefnd hafi gert til að fylgj-
ast með verðlagi í landinu og
halda því í skefjum, vil ég benda
á það, að vegna almennrar óá-
nægju út af dýrleik á vefnað-
arvörum, búsáhöldum og bygg-
ingarvörum, hóf verðlagsnefnd-
in á síðastliðnu hausti rannsókn
á verzlunarálagningu á vörum
þessum um land allt, og lyktaði
þeirri rannsókn .með því, að
nefndin ákvað í febr. s.l. að setja
hámarksálagningu á flestar
helztu tegundir vefnaðarvara.
hefix hámarksálagningunni nú
í nýkomnu riti Búnaðarsambands
Vestfjarða birtist skýrsla um kartöflu-
framleiðsluna á Vestfjörðum árin 1921
—1937. Samkvsemt henni var hún að
meðaltali 14,2 kg. á mann árin 1921—25,
1926—30 19,9 kg. og 1931—37 32.9 kg.
Hefir hún því vaxið talsvert á undan-
förnum árum, þó vafalaust geti hún
aukizt mikið enn. Minnst var hún í
ísafjarðarkaupstað 0,7 kg. á mann, í
Árneshreppi 6.4 kg., Suðureyrarhreppi
8,8 kg. og Grunnavíkurhreppi 9,1 kg.
Mest var hún í Ketildalahreppi 137,6
kg. á mann, Mýrahreppi 134,5 kg. á
mann og Rauðasandshreppi 105 kg. á
mann. Tölur þessar miðast við meðal-
framleiðslu áranna 1931—37.
t t t
Samkvæmt skýrslum Búnaðarsam-
bands Vestfjarða, hafa safnþrær og
áburðarhús verið byggð á félagssvæð-
inu á árunum 1935—38 yfir áburð und-
an sem næst 480—490 kúm. Rúma þau
alls 4840 teningsmetra áburðar. Auk
hins TÍflega ríkisstyrks, sem veittur er
til bygginga áburðarhúsa og safnþróa,
hefir búnaðarsambandið styrkt slíkar
framkvæmdir nokkuð, í því skyni að
stuðla sem mest að því, að áburðar-
hirðingin komizt í sæmilegt lag. Aukin
eftirtekja af túnum og öðru ræktar-
landi fylgir alstaðar I spor bættrar
áburðarhirðingar, og þar sem góðar
safnþrær eru, má oft að miklu eða
verið breytt með hliðsjón af
gengisbreytingunni.
Athugunum verðlagsnefndar
að því er snertir verðlag á bygg-
ingarvörum og búsáhöldum, má
nú heita lokið, og hafa þegar
verið sett verðlagsákvæði varð-
andi nokkrar tegundir bygging-
arvara. En í næstu viku má
vænta verðlagsákvæða um búsá-
höld og flestar aðrar tegundir
byggingarvara.
Það er almennt viðurkennt,
að verðlagsákvæði þau, sem gilt
hafa um vefnaðarvörurnar, hafi
orðið til verulegra hagsbóta fyr-
ir neytendur í landinu, og tel ég
að vænta megi hins sama að því
er snertir sett eða væntanlegt
verðlagsákvæði fyrir búsáhöld
og byggingarvörur. Virðist það
koma sér vel fyrir neytendur í
landinu, að fá þessar aðgjörðir
nú, þegar gengisbreytingin kem-
ur til framkvæmda.
Að því er snertir aðrar að-
gerðir verðlagsnefndar til þess
að spyrna á móti því, að óeðli-
leg dýrtíð geti skapazt við
gengisbreytinguna, vil ég geta
þess, að nefndin hefir eftir
föngum staðið í sambandi við
ýmsar helztu verzlanir, verk-
smiðjur og iðnaðarfyrirtæki, til
þess að fylgjast með því að verð-
breytingar væru ekki gerðar
nema nauðsyn og sanngirni
mælti með slíku.
Ég skal viðurkenna það, að
ég hefi borið nokkurn kvíðboga
fyrir því, að ýms innlend verk-
smiðju og iðnaðarfyrirtæki, sem
að undanförnu hafa vaxið upp
í skjóli innflutningshaftanna,
og sum hver hagnast óeðlilega
á háu verði, mundu enn reyna
að hækka verð sitt og ágóða í
sambandi við gengisbreyting-
una. En svo virðist, sem þetta
muni ekki ætla að valda veru-
legum árekstrum á milli verð-
lagsnefndar og iðnaðarfyrir-
tækjanna, því fæst af þeim hafa
enn hækkað verð sitt í nokkru,
og sum hafa beinlínis lýst því
yfir við nefndina, að þau ætli
sér alls ekki að hækka verðið
vegna gengisbreytingarinnar.
Má segja að slíkt lýsi lofsverðum
skilningi á því vandamáli, sem
reynt hefir verið að leysa með
gengislækkuninni.
öllu leyti spara kaup á útlendum á-
burði.
r t r
Samkvæmt upplýsingum, sem Tím-
inn hefir aflað sér, bæði hjá athugul-
um alþýðumönnum og fræðimönnum,
sem við slík mál fást, hefir lóan komið
nokkuð fyrr að þessu sinni heldur en
oft áður, t. d. í fyrra. Venjulega verður
hennar fyrst vart suðvestanlands dag-
ana 10.—14. april, en að þessu sinni
sást hún fyrst 7. og 8. apríl. Skógar-
þröstur, sem ávallt kemur allra far-
fugla fyrstur, sást nú fyrst í lok marz-
mánaðar og er það um svipað leyti og
venjulega. Komutími hans er ávallt
um þau mánaðamót. Næstu daga má
vænta þess, að vart verði við hrossa-
gauk og stelk. Mun þegar hafa orðið
lítilsháttar vart við hrossagaukinn,
en þar sem þess eru dæmi, að ein-
stakir fuglar hafist hér við allan vet-
urinn, er erfitt að komast að raun um
hvort um slíka eftirlegufugla er að
ræða eða nýkomna. Um mánaðamótin
maí og júní koma venjulega mariuerla,
sandlóa og spói og þúfutittlingar fyrstu
dagana í maí. Krían kemur 9.—12.
maí. Ofurlítið er þetta misjafnt eftir
landshlutum og getur jafnvel munað
hálfum mánuði, og er það, sem hér er
sagt, miðað við Suðvesturland. Flestir
farfuglanna koma hingað frá írlandi
og taka fyrst land við suðausturströnd-
ina og eru þar því fyrr á ferð en hér,
Hinn 31. marz 1939 mun jafn-
an verða talinn merkur dagur í
sögu enska heimsveldisins.
Chamberlain forsætisráðherra
gaf þá í neðri málstofu þings-
ins yfirlýsingu, sem braut full-
komlega i bága við fyrri utan-
ríkismálastefnu stjórnarinnar
og þær reglur, sem enskir stjórn-
málamenn höfðu fylgt um alda-
langt skeið.
Yfirlýsing Chamberlains var í
stuttu máli sú, að Bretland
myndi koma Póllandi til hjálp-
ar, ef það teldi sig þurfa að
grípa til vopna, sökum yfir-
gangs erlendra rikja. Með nýrri
yfirlýsingu 13. þ. m. hefir Cham-
berlain heitið Rúmeníu og
Grikklandi svipaðri hjálp Breta.
Fram til þessa tíma hafa það
verið forystumönnum Bretlands
óskráð lög, að takast helzt engar
slíkar skuldbindingar á hendur
á meginlandi Evrópu og a. m. k.
ekki í Austur-Evrópu. Ef Eng-
lendingar hefðu lýst yfir slíkum
stuðningi við Frakka fyrir 1914
telja margir, að Þjóðverjar
myndi síður hafa byrjað styrj-
öldina. Vegna þessarar utanrik-
ismálastefnu Breta hefir Þjóða-
bandalagið líka orðið máttlaust,
því þeir hafa ekki viljað takast
en verður aftur á mótl seinna vart á
Vestfjörðum og víðar.
r r t
Nokkra daga um páskana var tals-
vert af fiski á grunnmiðum við Reykja-
vík, inn á sundum, undan Kjalarnesi
og í Galtarvíkurdjúpi. Var þá talsvert
um loðnugöngu í Hvalfirði og á þessum
slóðum. Nú hefir þessi fiskur horfið
aftur. Sækja hreyfilbátar úr Reykjavík
vestur á Svið og hefir afli þeirra verið
fremur tregur síðustu dagana.
t r t
Bjarni Pétursson á Borðeyri við
Hrútafjörð skrifar Tímanum á þessa
leið: — Fyrir fimm árum gekk hér yfir
allrismikil kommúnistaalda og stjórn-
uðu kommúnistar hér verklýðsfélagi
með tilheyrandi verkföllum og gaura-
gangi. Fyrir fjórum árum var stjórn
þessa félags tekin úr höndum þeirra.
Síðan hefir dregið æ meir úr fylgi
þeirra og hafa þeir samt beitt fyrir
sig manni, sem óefað myndi hafa
álit, áhrif og mannaforráð, ef hann
hefði ekki gengið á hönd kommún-
istum. Á siðasta aðalfundi, 12. marz,
urðu úrslit kosninga þau, að þrír
Framsóknarmenn, Rögnvaldur Helga-
son, Bjarni Pétursson og Bjarni Þor-
steinsson, voru kosnir í stjóm. Komm-
únistinn fékk 1 atkvæði, er kosin var
aðalstjórn, en 2 við kosningu vara-
stjórnar, en Framsóknarmenn 16 af
23 fáanlegum.
þá ábyrgð á hendur að heita
öðrum ríkjum hjálp fyrirfram
ef á þau væri ráðizt. Einkum
hefir Chamberlain og nánustu
fylgismenn hans verið eindregið
fylgjandi þessari stefnu, en aðrir
leiðtogar íhaldsflokksins eins og
Eden og Churchill hafa horfið
frá henni fyrir nokkru, ásamt
jafnaðarmönnum og frjálslynda
flokknum. Yfirgangur einræðis-
ríkjanna hefir nú sýnt Cham-
berlain, að þessi einangrunar-
stefna var fyrst og fremst vatn
á myllu einræðisherranna og
engu hættuminni fyrir Bretland
í framtíðinni en smáríkin, sem
svipt hafa verið sjálfstæði sínu
undanfarna mánuði.
Fyrst Bretar hafa nú horfið að
nýrri utanríkismálastefnu má
telja víst, að þeir láti ekki stað-
ar numið við loforð þau, sem þeir
hafa gefið Pólverjum, Rúmenum
og Grikkjum. Vafalaust munu
þeir tryggja sér gagnkvæman
stuðning þessara þjóða. Milli
Bretlands og Frakklands hefir
um nokkurt skeið verið sam-
komulag um gagnkvæma hjálp I
ófriði og Frakkland hefir gefið
Pólverjum, Rúmenum og Grikkj-
um samkonar loforð og Bretland.
Er ekki ósennilegt að milli þess-
ara fimm ríkja verði myndað
einskonar varnarbandalag og
öðrum ríkjum, sem svipað er á-
statt um, boðin þátttaka. Verður
Sovét-Rússlandi vafalaust veitt
aðstaða til að gerast meðlimur
þess og hefir Halifax lávarður
lýst yfir því, að það muni ekki
verða sök Breta, ef Rússland
skorast undan samvinnu við
Breta og Frakka um þessi mál.
Einnig mun leitað stuðnings
Bandaríkjanna, sem mun þó
tæpast að svo stöddu takast
neinar bindandi skuldbindingar
á herðar.
Heppnist það, að koma slíku
bandalagi í framkvæmd, verður
það raunverulega arftaki Þjóða-
bandalagsins eins og því var ætl-
að að verða af helztu forvígis-
mönnum þess, en að vísu á
þrengri grundvelli. Hefðu Bret-
ar fyrr beitt sér fyrir því, að
Þjóðabandalagið yrði byggt á
þeim grundvelli, að allir með-
limir þess hjálpuðu því ríki, sem
yrði fyrir árás, myndi yfirgang-
ur einræðisherranna hafa orð-
ið minni. Reynslan hefir full-
komlega sannað réttmæti þeirr-
ar baráttu, sem enskir stjórnar-
andstæðingar hafa háð seinustu
árin fyrir eflingu Þjóðabanda-
lagsins.
Um það verður engu spáð að
svo stöddu, hvort slík samtök nú
nægi til að halda einræðisherr-
unum í skefjum og geti komið
í veg fyrir heimsstyrjöld. Hinir
auðunnu sigrar einræðisherr-
anna hafa aukið ofmetnað
þeirra og sennilega hafa þeir
(Framh. á 4. síðu)
A víðavangi
Vísir skýrir frá því í gær, að
á fimmtudagskvöldið hafi verið
haldinn fundur í Varðarfélag-
inu í Reykjavík. Segir blaðið, að
þar hafi verið „nokkur hiti í
fundarmönnum". Þá skýrir
blaðið frá því, að samþykkt hafi
verið að „gera það að ófrávíkj-
anlegu skilyrði fyrir þjóðstjórn",
sem vitað er, að ekki getur orð-
ið samkomulag um! Virðist því
sjónarmið Gísla vélstjóra hafa
orðið ofan á á félagsfundi þess-
um, enda er hann nefndur þar
meðal aðal-ræðumanna. En
ekki er þaö alveg víst, að Barða-
strandarsýsla eða formennska
flokksins verði eins laust fyrir
og Gísli þessi heldur, þó að hann
og hans nótar fái fram sinn
vilja um kosningar í sumar!
* * *
Þjóðviljinn er mjög hneyksl-
aður út af því, að nokkur skuli
halda, að kommúnistum detti í
hug að brjóta lög eða hvetja til
lögbrota og óhlýðni við laga-
fyrirmæli. En hverjir stóðu fyr-
ir árásum á lögregluna í Reykja-
vík fyrir nokkrum árum? Hverj-
ir hótuðu því í vetur, að úrskurði
Félagsdóms skyldi ekki verða
hlýtt? — Hugarfarsbreyting er
að vísu möguleg. En það þarf
meira en nokkrar vikur eða
nokkra daga til þess að ofbeldis-
flokkur geti öðlazt tiltrú meðal
þeirra manna, sem virða lög og
rétt.
* * *
Tímanum hefir borizt fyrir-
spurn um það, hvort nokkuð sé
hæft í því, að bæjarstjórnin í
Reykjavík hafi samþykkt nýja
launaskrá fyrir starfsmenn bæj -
arins daginn áður en gengislög-
in komu í gildi og sé þar um
ýmsar hækkanir að ræða, sem
ekki hefðu verið heimilar eftir
gildistöku laganna. Blaðið vísar
þessari fyrirspurn áfram til
réttra hlutaðeigenda.
* * *
■ Útlitið í umheiminum verður
nú svartara með degi hverjum.
Víðsvegar úr álfunni berast
fregnir um liðssamdrátt á landi
og sjó. Ný hernaðarbandalög
eru gerð í skyndingu og stór-
þjóðirnar hafa í hótunum hver
við aðra. Jafnvel hin friðsömu
norrænu ríki veita þessa dag-
ana of fjár til að búa sig undir
styrjöld. En hér á landi er það
aðaláhugamál ýmsra stjórn-
málamanna, er sig nefna svo, að
stofna til kosninga á næsta
sumri. Mætti þá svo fara, að
flestir þeir menn, sem líklegir
eru til að ráða fram úr þeim
vandræðum, sem styrjöld skap-
ar landinu, væru önnum kafnir
í kosningabaráttu, þegar þeirra
er mest þörfin, og ekkert þing
til, sem tekið geti ákvarðanir,
sem óhjákvæmilegar geta orðið
vegna slíks ástands. Sumum
hættir til að gleyma því, að
þegar þjóðin er í nauðum stödd,
eru til sameiginleg hagsmuna-
mál fyrir alla íslendinga.
* * *
Mbl. í dag segir réttilega um
þetta mál: „— Má enginn góð-
ur Sjálfstæðismaður einblína á
sína fyrri andstæðinga, heldur
er skylda hans að yfirvega
vandlega, hvað hann og hans
flokkur geta lagt til málanna á
þeim örlagaríku tímum, sem
við nú lifum á.“
* * *
Þjóðviljinn í dag er að reyna
að klóra í bakkann og segir, að
„breytt viðhorf“ muni valda því,
að 60 miljóna lán Héðins reynist
ekki fáanlegt í Ameriku. Telur
blaðið fram tvær ástæður, er
valdið geti: Hernám Albaníu og
gengislækkun íslenzku krón-
unnar. Ekki er sjáanlegt, hvaða
áhrif ástandið í Albaníu getur á
þetta haft, nema rétt sé sú á-
gizkun, að hér hafi verið Balk-
an-menn að verki! Og varla eru
aðstandendur Þjóðviljans svo
einfaldir, að þeir haldi, að erlend
stórlán séu veitt í íslenzkum
krónum. Annars ætti Þjóðviljinn
ekki að stuðla að því að hlegið
verði meira að Héðni en orðið er
fyrir viðreisnar-„plön“ hans.
A. KROSSGÖTUM
Kartöflurækt á Vestfjörðum. — Áburðarhirðing Vestfirðinga. — Koma far-
fuglanna. — Afli á hreyfilbáta úr Reykjavík. — Verklýðs- og smábændafélag
Hrútfirðinga.