Tíminn - 18.04.1939, Qupperneq 4
180
Itoykjavík, þrigjndagiim 18. apríl 1939
45. blað
tR BÆNUM
Tíminn
kemur næst út á laugardaginn.
Rausnargjöf til Hallgrímskirkju.
Maður, sem ekki vill láta nafns síns
getið, hefir nýlega afhent séra Sigur-
jóni Guðjónssyni, sóknarpresti að
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, þrjú
hundruð króna gjöf, er renni í bygg-
ingarsjóð Hallgrímskirkju.
H. Nilsson-Ehle prófessor,
forstöðumaður tilraunastöðvarinnar í
Svalöf 1 Svíþjóð, kemur hingað í boði
háskólans 1. maí. Hann er mjög þekkt-
ur erfðafræðingur og hefir miklu áork-
að við jurtakynbætur. Hefir uppskera
ýmis jarðargróða stóraukizt að magni
Of gæðum fyrir starf hans. Prófessor-
inn mun flytja hér nokkra fyrirlestra
í byrjun maímánaðar og verða þeir um
sænskar kvnbætur á landbúnaðarjurt-
um og hinn fjárhagslega ávinning af
þeim, kynbætur á trjám og ættbrigða-
rannsóknir á korntegundum.
Gísli Þorkelsson,
sonur Þorkels Þorkelssonar veður-
stofustjóra, lauk í vetur námi í verk-
smiðjuverkfræði við fjöllistaháskólann í
Kaupmannahöfn. Valdi hann lakk-
iðnað sem sérgrein og fór að náminu
loknu til Þýzkalands og kynnti sér þar
málningariðnað. Gísli hefir nú tekið
við stjórn málningarverksmiðjunnar
Hörpu. í viðtali við blaðið hefir hann
sagt, að verksmiðjan muni gera sér far
um að fylgjast vel með því, hvernig
framleiðsla hennar reynist, með tilliti
til þess að geta framleitt vörur, sem
henta erlendu loftslagi.
Golfklúbbur íslands
hefir ákveðið að efna til happdrættis
til þess að afla sér fjár til að brjóta
land kringum golfskálann í Öskjuhlíð-
inni. Með því að ryðja þarna burtu
stórgrýti og rækta tún, skapast jafn-
framt möguleikar fyrir því að iðka
þarna skíðaferðir, þegar snjór er.
Vinningurinn í happdrættinu er 7
manna Chrysler bíll.Er nú verið að seija
happdrættismiðana og verður dregið
á sunnudaginn.
Skemtisamkoma
Framsóknarmanna
í Oddfellowhúsinu í gærkvöldi fór
hið bezta fram. Sóttu hana 150 manns.
Voru þar fluttar margar stuttar ræður,
sungið og síðan dansað fram á nótt.
Ræðumenn voru Jónas Jónsson, Her-
mann Jónasson, Eysteinn Jónsson,
Skúli Guðmundsson, Einar Árnason á
Eyrarlandi, Guðbrandur Magnússon,
Runólfur Sveinsson á Hvanneyri og
Ólafur Sigurðsson á Hellulandi. Vigfús
Guðmundsson stjórnaði samkomimni.
Útvarpsþulurinn,
Ragnheiður Hafstein, hefir látið af
störfum við ríkisútvarpið.
Gestir í bænum:
Bjarni Árnason hreppstjóri í Grænu-
hlíð í Ketildalahreppi, Þóroddur Lýðs-
son verzlunarmaður á Borðeyri við
Hrútafjörð, Ólafur Sigurðsson fiski-
ræktarráðunautur á Hellulandi, Run-
ólfur Sveinsson skólastjóri á Hvann-
eyri, Bjarni Gíslason gjaldkeri, Siglu-
firði, Jón Tómasson bóndi í Hrúta-
tungu.
10 ÁRA ABYRGÐ!
Hér á landi og í Danmörku er
fengin 35 ára reynsla fyrir hin^
um óviðjafnanlegu „HAMLET“
reiðhjólum. — Ending í heilan
mannsaldur er öruggasta trygg-
ingin fyrir gæðunum. — Tek 10
ára ábyrgð á „HAMLET“ reið-
hjólunum. — Allt til reiðhjóla
bezt og ódýrast.
SIGURÞÓR
HAFNARSTRÆTI 4. RVÍK.
Útbreiðlð TÍMAIVA
Annáll — Afmæli
(Framh. af 3. síðu)
búskap, á þriðja tug ára. Guð-
rún er af góðu bændafólki kom-
in, dóttir Kristbjargar Jóns-
dóttur frá Norðtungu og Sig-
tryggs Snorrasonar, er lengi
bjuggu að Þórisstöðum í Svína-
dal. Sjálf er Guðrún hin mesta
rausnarkona, veglynd og veitul,
framúrskarandi starfsmann-
eskja og í öllu hin sanna fyrir-
mynd dugmikilla og atorku-
samra húsmæðra.
Ingveldur Sigurffardóttir hús-
freyja að Heggsstöðum í Kol-
beinsstaðahreppi átti áttræðis-
afmæli 2. apríl síðastliðinn. Hún
var gift Guðmundi Hálfdánar-
syni, er látinn er fyrir nokkru.
Bjuggu þau lengi í Hraundal, en
fluttust að Heggsstöðum fyrir
þrjátíu árum. Fyrir nær tveim
áratugum tók Albert sonur
þeirra við búsforráðum og hefir
Ingveldur verið ráðskona hjá
honum síðan. Ingveldur er
höfðinglunduð kona, myndar-
leg í framgöngu og þótti fríð
sýnum. Enn er hún kvik á fæti,
les gleraugnalaust og les mikið.
Samstjórn
þriggja. flokka
(Framh. af 3. síðu)
mannfólkinu. Það er byltingar-
áróðurinn. Hér eru nokkrir kom-
múnistar, sem drekka í sig sjúka
byltingarhneigð úr eymd og ör-
vinglan blásnauðra Berlínarbúa,
eftir að hörmungar stríðsins
höfðu herjað landið. Við hlið
þessara hálfniðurbrotnu pilta
frá Berlín, kemur svo olíukarl,
sem græðir drjúgan skilding á
íslenzkri útgerð árlega, og lang-
ar til að vera forráðamaður í
landsmálum, en kann illa að
segja á léleg spil. Þessir forráða-
menn eggja nokkuð af verkalýð
landsins til uppreistar og lög-
bxota.
Fyrir rúmlega ári síðan sendu
þessir uppþotsmenn sveit komm-
únista neðan frá Akureyri upp
að Glerá, til að banna ráðsettu,
duglegu og löghlýðnu verkafólki
að vinna úr íslenzkri ull og
skinnum skjólklæði á landsfólk-
ið. Upphlaupsmenn kommúnista
hindruðu fólkið frá að vinna í
meir en mánuð. Jafnhliða þessu
hótuðu dólgar þessir að stöðva
kælivélar við frystihús Kaupfé-
lags Eyfirðinga, og eyðileggja
þannig alla kjötframleiðslu ey-
firzkra bænda frá því ári.
Þjóðfélagið var of veikt til að
geta varið fólkið, sem vildi vinna
að framleiðslu sinni. Og þannig
hefir reynslan orðið oftar en í
þetta sinn. Oíbeldishópar kom-
múnista hafa vaðið uppi, venju-
lega í sambandi við olíukarlinn,
og kúgað framleiðendur til lands
og sjávar, þar til framleiðslan
sligaðist undan byrðunum, og
breyting á skráningu krónunnar
var óhjákvæmilegt sjálfbjargar-
atriði.
íslenzka ríkið getur ekki stað-
izt, nema að hafa framkvæmda-
vald. Það er ekki hægt að una
því, fyrir borgara í frjálsu landi,
að hnefarétturinn ráði um úrslit
MOLAH,
Skúli Guðmundsson sagði frá
því í rœðu í Oddfellow-húsinu í
gœrkvöldi, að ýmsir hefðu komið
til sín til þess að samhryggjast
sér, aðrir til að samgleðjast
sér vegna brottfarar sinnar úr
ríkisstjórninni. Einum þessara
manna svaraði Skúli á þessa
leið:
Ég sat eitt ár, en sumir voru skemur,
því sætið það er regni og vindum háð.
En ég er fús að þoka fyrir þremur,
sem þrá að komast wpv í Stjórnarráð.
Verkefni
nýju stjórnarinnar.
(Framh. af 1. síðu)
eingöngu frá sjónarmiði al-
menns réttlætis og alþjóðar-
heilla, — en án tilits til krafna
frá félagsheildum, stéttum eða
einstaklingum, framar því sem
þetta sjónarmið markar. —
Ef þessari reglu verður fylgt í
samstarfinu, þá hygg ég að það
verði þjóðinni til blessunar, —
og ég vil vona að svo verði.
hinna þýðingarmestu mála. Þá
er þjóðfélagið ekki lengur lög-
bundið. Þá er það rekald, sem
berst með bárum ofbeldis-
straumanna.
Fyrsta atriðið í þessu sjálf-
bjargarmáli þjóðarinnar er að
lýðræðisflokkarnir standi saman.
Verkamenn úr Alþyðu-, Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokknum,
verða að vinna saman í verklýðs-
samtökunum, móti hinu sjúka,
útlenda ofbeldi. Og mannfélagið
þarf að sýna þessum verka-
mönnum á sjó og landi í verki,
að þeir séu einn armurinn í
þeim þríhyrningi, sem bjargar
framtíð lands og þjóðar.
En í áframhaldi af samtökum
hinna löghlýðnu borgara, kemur
svo efling ríkisvaldsins, þar sem
þess þarf með. Það á ekki að vera
unnt fyrir fáeina ofstopamenn,
að taka síldarverksmiðjur ríkis-
ins eða önnur stórfyrirtæki al-
mennings, og loka þeim, aðeins
af því að skipun hefir komið til
óróabelgj anna frá erlendum
valdhöfum, um að reyna að
eyðileggja og sundurlima hið
íslenzka ríki.
Það mun vafalaust ekki verða
stefna hinnar nýju stjórnar, að
setja andstæðinga sína í fanga-
búðir, við nauðungarvinnu, eins
og tíðkast í þeim löndum, sem
hinar byltingakenndu málpípur
erlends valds, tóku sér til fyrir-
myndar. En hitt mega þeir menn
skilja, sem hyggja sig þess um-
komna, að eyðileggja fjárhag og
frelsi þjóðarinnar, að til eru
mildari leiðir til að koma þess-
um afvegaleiddu sálum í örugga
höfn, heldur en þær, sem notað-
ar eru í einræðislöndum álfunn-
ar. —
VII.
Ég hefi í þessari grein leitazt
við að benda samherjum mínum
i Framsóknarflokknum og öðr-
um, er lesa Tímann, á að flokk-
urinn hefir tekið upp fordæmið
frá 1917, að sameina alla lýð-
E.§. Lyra
fer héffan fimmtudaginn 20. þ.
m. kl. 7 síffd. til Bergen um Vest-
mannaeyjar og Thorshavn.
Tilkynningar um vörur komi
fyrir kl. 3 á miffvikudag.
Farsefflar sækist fyrir sama
tíma.
P. Smith & Co.
M.s. ,Laxfoss‘
fer til Breiffafjarffar laugardag-
inn 22. þ. mán.
Viffkomustaffir þeir sömu og
vanalega.
Flutningi veitt móttaka föstu-
daginn 21. þ. m.
Aeytið
hinna eggjahvítu auffugu fisk-
rétta:
Fiskiliuff,
Fiskibollur,
Fiskigratíu,
Fiskibúðingar,
Fiskisúpur.
Allt úr einum pakka af mann-
eldismjöli. Fæst í öllum mat-
vöruverzlunum.
Heildsölubirgöir hjá
Sími 5472.
Símnefni: FISKUR.
Vimttð ötullega fyrir
Tímann.
ræðisflokka í samstjórn til að
leysa hin aðkallandi og miklu
vandamál aðþjóðar. Það er jafnt
ytri og innri hætta, sem gerir
slíkt samstarf nauðsynlegt. Von-
andi tekst þetta samstarf svo
vel, að áður en langt um líður
þurfi engin innflutningshöft,
svo að kaupfélög og kaupmenn
geti keppt um hlutina, eftir þvi
sem efni standa til, og að allar
þær mörgu stéttir, sem nú um
stund standa hlið við hlið um
hin sameiginlegu málefni þjóð-
arinnar, geti aftur í önnur tutt-
ugu ár haft aðstöðu til að glíma
við hin mismunandi viðhorf um
innanlandsmálin.
J. J.
Úr bænum
Sjúkrastyrkur.
Laugardaginn 8. apríl var í fyrsta
sinni úthlutað styrk úr sjóði þeim, sem
hjónin á Rauðará, þau Vilhjálmur
Bjarnarson og kona hans gáfu Vífils-
staðahæli til minningar um son sinn
Björn, en hann var einmitt fæddur
þennan dag. Úr sjóðnum skal árlega
veittur styrkur á afmælisdegi Bjarnar,
til eins fátæks sjúklings, sem á hælinu
dvelur.
Umdæmisstúkan nr. 1
hélt þing sitt í Hafnarfirði dagana
1. og 2. apríl. Sátu það 120 fulltrúar frá
22 undirstúkum, 2 þingstúkmn og 10
barnastúkum. Var byrjað á því að veita
stig og tóku 12 trúnaðarstig og 23 um-
dæmisstúkustig. Starfsemin á undan-
förnu ári var aðallega fólgin í reglu-
boðun og útbreiðslustarfsemi og hefir
sá árangur náðzt, að 7 undirstúkur og
2 bamastúkur risu upp á árinu í þessu
umdæmi. Fullorðnum félögum regl-
unnar í þessu umdæmi hefir fjölgað
um nær 900 manns, og er það sú lang-
mesta fjölgun, sem orðið hefir á síðari
árum. Þorleifur Guðmundsson hefir í
fimm ár samfleytt verið umdæmis-
templar og hefir félögum reglunnar
fjölgað um 2000 á þeim tíma. Þakkaði
þingið honum vel unnin störf, en hann
baðst undan endurkosningu. Var í hans
stað kjörinn umboðstemplar Guðgeir
Jónsson bókbindari. Fulltrúar til stór-
stúku voru kosnir Þorleifur Guðmunds-
son, Guðgeir Jónsson, Jóh. Ögm. Odds-
son, Sigurgeir Gíslason, Sigfús Sigur-
hjartarson, Sveinn Jónsson og Stígur
Sæland. — Á þinginu var samþykkt að
skora á alþingi að lögfesta framkomið
frumvarp um héraðabönn, er þeir
Bjami Bjarnason, Pétur Ottesen og
Finnur Jónsson flytja. Skorað var á
stúkurnar að fylgjast sem bezt með
því hvernig áfengisvarnanefndir starfa,
skorað á ríkisstjórnina að takmarka
áfengisinnflutninginn, og beint þeim
tilmælum til stórstúkunnar, að hún
skipi svo málum, að unnt verði að ráða
tvo regluboða & þessu ári.
'GAMLA BÍÓ
Þegar lífið er
leikur.
(Mad about Music)
Bráðskemmtileg og hríf-
andi amerísk söngvakvik-
mynd.
Aðalhlutv. leikur hin
yndislega 16 ára söng-
stjarna:
DEANNA DURBIN,
er allir muna úr söng-
mvndinni, „100 menn og
ein stúlka".
NÝJA BÍÓ~—'—"
Djarft teflt
Mr. Moto!
Óvenjulega spennandi og vel
samin amerísk leynilögreglu-
mynd frá Fox. Aðalhlutverkið,
hinn slynga leynilögreglumann,
Mr. Moto, leikur hinn heims-
frægi „karakter“-leikari:
PETER LORRE
Aukamyndir: Talmyndafréttir
og Uppeldi afburðahesta. Amer-
ísk fræðimynd, sem allir hesta-
eigendur og hestavinir hafa gagn
og gaman af að sjá.
26 Lettice Vlpha Cooper:
með miklu fasi. Hún hafði verið á göngu. úti í
garðinum. Til þess hafði hún fengið leyfi, gegn
því skilyrði, að hún kæmi ekki í námunda við
annað fólk.
— Sefurðu, spurði hún. Ég heyrði á mæli
hennar, að henni var mikið niðri fyrir. Ég
fiskaði dálitlar fréttir handa þér, bætti hún
við. — Filippía, — það var ungfrú Radleigh —
ætlar að fara að gifta sig. Gettu hverjum?
Ég þurfti ekki að geta. Ég vissi hver það
myndi vera. Mér fannst sem einhver hefði
hrint mér fram af háum hömrum. Ég hrapaði
niður, niður. Ég held, að ég hafi snúið mér
til veggjar.
— Það er Clare, vinur þinn, sagðl hún þá.
Ertu ekki glöð? Hann hefir giftuna með sér.
Nú þarf hann ekki að leggja of mikið að sér
framvegis. Nú getur hann málað eins og honum
sýnist. Auðvitað er hún dálítið eldri en hann,
en hann þarf einhvern til að hafa vit fyrir sér!
Ég svaraði engu. Ég skyldi ekki fyllilega það
sem gerzt hafði. Hún varð óttaslegin og spurði
mig, hvort ég væri veik. Ég lézt hafa höfuðverk,
og við svo búið fór hún burt frá mér.
Hún hætti skyndilega að tala. Við þögðum
báðar. Hún minntist ekki meira á þetta kvöld.
Ég sá, að henni var það ofurefli. Hinum dýpsta
sársauka sinnar glötuðu ástar mun hún aldrei
fá lýst með orðum.
Það leið löng stund, þar til hún hóf máls á
ný, og nú var rödd hennar sljó:
— Ég sá þau saman, þegar við vorum laus
Málarinn 27
úr sóttkvínni. Hann var sárfeiminn við mig
og vissi ekki hvað hann átti af sér að gera.
Hún var jafn hreykin af honum og hún hefði
keypt nýjan bíl og kynnti hann öllum og
kallaði hann yndið sitt. Ég sagði frú Halliday,
að ég vildi fara heim með næstu skipsferð.
Hún varð steinhissa, en þá sagði ég henni, að
móðir mín væri orðin veik aftur. Þá leyfði hún
mér auðvitað heimförina orðalaust.
Kvöldið áður en ég lagði af stað, sagði ég
henni alla söguna um peningastuldinn. Ég gat
ekki farið án þess. Ég sagðist hafa tekið þá til
þess að lána manni, sem var í peningavandræð-
um og hét að senda henni þá undir eins og ég
væri komin heim. Hún var ákaflega góð við
mig. Hún leit undrandi á mig og sagði:
— Elsku stúlkan min! Hvers vegna baðstu
mig ekki um þá?
Ég grét, en hún tók utan um mig og sagði,
að ég hefði hjálpað til að bjarga lífi Hönnu
litlu og ég skyldi ekki vera svona örvingluð.
Samt sem áður sá ég, að hún hlaut að fá ými-
gust á mér. Hún horfði einkennilega á mig og
ég held, að hún hafði.fagnað því, að ég var
að fara heim. Hún spurði mig, í svipuðum róm
og hún væri að bjóða mér góða nótt, hvort ég
væri í peningaþröng og hvort ég vildi þiggja
hjá sér dálítið lán. Það hefði ég ekki viljað,
þótt ég hefði soltið, en ég þakkaði samt boð
hennar. Hún sagði, að ég hefði breytt heimsku-
lega, en ég skyldi samt ekki láta hugfallast og
hún vissi, að ég væri sárhrygg. En það var ég
Börn fá ekki affgang.
Karlakórínn Fóstbræður
heldur samsöngva í Gamla Bíó 18. og 19. apríl kl. 7,15.
Söngstjóri JÓN HALLDÓRSSON.
Einsöngvari DANÍEL ÞORKELSSON.
Við hljóðfærið GUNNAR MÖLLER.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlunum ísafoldarprentsmiðju
og Eymundsen. — Uppselt að fyrsta samsöngnum.
Tilkynnin
um síldarlofoið til síldarverksm. ríkísíns.
Þeir, sem vilja lofa síld til vinnslu í Síldarverksmiðjur ríkis-
ins á næstkomandi sumri, skulu fyrir 1. maí n. k. hafa sent stjóm
verksmiffjanna símleiðis effa skriflega tilkynningu um þaff. Út-
gerffarmaffur skal tilkynna hvaða skip hann ætlar að nota til
veiffanna, einnig hvort hann vill skuldbinda sig til þess aff af-
henda verksmiffjunni alla bræffslusíldarveiffi skips síns eða skipa,
effa affeins hluta veiffinnar, effa alla síldveiffi skips effa skipa. Þau
skip, sem afhenda verksmiffjunum alla veiði sina, effa . alla
bræffslusíldarveiði sína, ganga aff jafnaffi fyrir þeim skipum meff
samninga og afgreiffslu, sem aðeins hafa veriff skuldbundin til
aff afhenda hluta af bræffslusíldarveiffi sinni, effa hafa enga
samninga gert fyrirfram.
Verffi meira framboff á síld, en stjórn verksmiffjanna telur
sýnilegt aff verksmiffjurnar geti unniff úr, hefir stjórnin óbundnar
hendur til aff ákveða af hve mörgum skipum verksmiðjurnar
taka síld til vinnslu. Ef um framboff á síld til vinnslu er aff ræffa
frá öffrum en eigendum veiffiskipa, skal sá, er býffur síldina fram
til vinnslu, láta skilríki fylgja fyrir því, aff hann hafi umráffa-
rétt á skipinu yfir síldveiffitimann.
Stjórn verksmiöjanna tilkynnir fyrir 15. maí n. k. þeim, sem
boffiff hafa fram síld til vinnslu í verksmiffjurnar, hvort hægt
verffi að veita síldinni móttöku og skulu þá allir þeir, sem lofaff
hafa síld til verksmiðjanna og stjórnin hefir ákveffið aff taka
síld af, hafa innan 5. júní n. k. gert samning viff stjórn verk-
smiffjanna um afhendingu síldarinnar. Aff öðrum kosti er verk-
smiffjunum ekki skylt aff taka á móti lofaffri síld.
Siglufirði, 14. apríl 1939.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisíns.
Stúdentafélag Reykjavíkur.
Dansleik og sumarfagnað
heldur Stúdentafélag Reykjavíkur að Hótel Borg annað kvöld.
Frjálst borðhald frá kl. 7*4. (Borð pantist á hótelinu).
Ýms skemmtíatriði. — Sumri fagnað kl. 12.
Aðgöngumiðar seldir á morgun hjá Sigf. Eymundsen og við
innganginn.
Hátíðarbúningur. Stjórnin.
Skípsilak til sölu.
Flakið af b.v. „HANNESI RÁÐHERRA" er til sölu í því á-
standi sem það er nú.
Fatnaður, veiðarfæri og veiðarfæraefni er ekki selt með
skipinu, og er það áskilið, að það sem kann að bjargast af slíku,
verði skilað á land, að kostnaðarlausu fyrir seljendur.
Tilboð sendist á skrifstofu Samtryggingar íslenzkra botn-
vörpunga fyrir kl. 2 e. h. föstudag þ. 21. þ. m.
Seljendur áskilja sér rétt til að hafna öllum tilboðum.
Samtryggíng íslenzkra botnvörpunga.
AAKRANESI
eru til sölu 2 íbúðarhús. Þar eru góðir möguleikar fyrir iðnað-
armenn að setjast að. — Einnig hefi ég verið beðinn að selja
sumarbústað í Þingvallasveit, auk f j ö 1 d a annarra fasteigna
bæði hér í Reykjavík og annarsstaðar.
Ólafur Þorgrímsson,
lögfræðingur. Austurstræti 14. Sími: 5332.