Tíminn - 27.04.1939, Blaðsíða 4
192
TÍMM, fijnmtodagiim 27. apríl 1939
48. blað
Eitt stœrsta verzlunarhúsið i
London hefir undanfarið látið
afhenda viðskiptamönnum sín-
um auglýsingaspjald, sem þykír
einstætt í sinní röð. Þar eru til-
greind ummœli ýmsra helztu
stjórnmálamanna Breta fyrr á
öldum og eru þau sett fram á
eftírfarandi hátt:
„Allir höfðu þeir rangrt fyrir
sér.
William Pitt sagði: Við þekkj-
um naumast til annars en hruns
og örvœntingar.
Wilberforce sagði í byrjun 18.
aldar: Ég þori ekki að gifta míg.
Framtlðin er svo ískyggileg.
Grey lávarður sagði 1819, að
„allt vœri á hraðri leið til ger-
byltingar“.
Hertoginn af Wellington sagði
skömmu fyrir andlát sitt 1851:
Ég þakka Guði fyrir, að hann
lætur mig ekki lifa þá hörm-
ungatíma, sem nú eru í vœndum.
Disraeli sagði 1849: „Iðnaður,
verzlun og landbúnaður eiga sér
ekki lengur viðreisnar von —
heimurínn er í kaldakoli.
Shaftesbury lávarður sagði
1849: Ekkert getur bjargað
enska heimsveldinu frá skips-
broti.
Við sigruðumst á erfiðleikun-
um þá og við munum einnig gera
það í þetta sinn. Engin ástœða
til örvœntingar, góðir viðskipta-
vinir!“
* * *
Þegar Hitler flutti rœðu sína
i Wilhelmshaven á dögunum, þar
sem áheyrendur voru nálœgt
100 þús., stóð hann á bak við
skothelt gler. Hafa ráðstafanir
tU að vernda líf hans fyrir morð-
tilraunum verið mjög auknar
upp á síðkastið.
* * *
í einu fjölfarnasta hverfi New
York gerðist það fyrir skömmu,
að þrír glœpamenn frömdu ráns-
tilraun í veitingahúsi einu. Lög-
reglan stóð þá að verkinu og
flúðí einn þeirra inn í ibúð til
gamalla hjóna og bjóst þar til
varnar. Reyndi lögreglan o.ð
flœma hann þaðan með tára-
gasbyssum og tóku um 90 lög-
regluþjónar þátt í þeirri víchir-
eign. Lét hann gömlu hjónin
jafnan standa fyrir framan sig
og ógnaði lógreglumönnunum
með hlaðinni byssu, ef þeir œtl-
uðu að gera tilraun til innrásar.
Eftir að þessi leikur hafði staðið
í tvœr klukkustundir, var prest-
ur fenginn til að tala um fyrir
honum og bar það þann árangur,
að hann gaf sig lögreglunni á
vald. Þóttu þetta svo fátíð enda-
lok á viðureign milli lögreglu og
glœpamanna, að amerísku blöð-
in hafa helgað fáum atburðum
meira rúm í seinni tíð.
* * *
Á forslðu seinasta heftis Vöku
voru myndir af Ásgeirí Ásgeirs-
syni, Jóni Pálmasyni og Jónasí
Jónssyni. Jón Pálmason var í
miðíð. í tilefni af því komst eft-
irfarandi vísa á kreik á Alþingi:
Þeir vaka allir yfir þjóðarhnossi,
eins og hœfir landsins beztu sonum.
Jón Pálmason er ímynd Krists á krossi,
en hvor er iðrandi af rœningjonum?
tJR BÆNUM
Framsóknarfélögin í Reykjavík
í Reykjavík halda sameiginlegan
fund í Kaupþingssalnum í kvöld og
hefst hann klukkan 8,30. Verður þar
rœtt um stjómmálaástandið í land-
inu og samvinnuheimili í Reykjavík,
sjá auglýsingu í blaðinu í dag.
Alþingi.
Fundir stóðu yfir allan daginn í gær
og fram á nótt. Seinast var til umræðu
þingsályktunin um frestun þingsins
og var hún samþykkt með 34 : 4 atkv.
Nokkrir þingmenn voru fjarverandi.
Þegar tillagan hafði verið samþykkt,
var fundi slitið og kemur þingið ekki
saman til fundar aftur fyrr en í haust.
Hjónabönd.
Þann 21. apríl voru gefin saman í
hjónaband í dómkirkjunni í Reykja-
vík Þuriður Jónsdóttir og Valdemar
Sörensen og Guðrún Jónsdóttir og
Grímur Grímsson. Brúðirnar eru báðar
dætur Jóns Gunnlaugssonar frá Kiðja-
bergi í Grímsnesi.
Fjölmennið
á fund Framsóknarfélaganna í kvöld.
Leikfélag Reykjavíkur
hefir í kvöld frumsýningu á sænskum
gamanleik, sem heitir Tengdapabbi.
Ármenningar
halda skemmtifund í Oddfellowhús-
inu í kvöld. Hefst kl. 9.
Guðspekifélagið.
Reykjavikurstúkan heldur fund ann-
að kvöld, 28. þ. m., klukkan 9 síðdegis.
Magnús Gíslason flytur erindi um listir.
Gestir í bænum.
Kristján Breiðdal bóndi á Jörfa í
Kolbeinsstaðahreppi, Bjarni Magnús-
son á Brekku á Hvalfjarðarströnd.
Avarp norrænna
verkfræðinga
Síðastliðið sumar var haldið
almennt norrænt verkfræðinga-
mót í Oslo — Det 2net nor-
diske Ingeniörmöte — í Osló
1938.
Mótið var haldið 13.—15. júní.
Þátttakendur voru um 1600, þar
af 600 konur. Frá íslandi voru 9
þátttakendur.
Á mótinu voru rædd ýms verk-
fræðileg málefni og skiptust
fundarmenn í 11 deildir eftir
sérnámi og starfssviðum.
Mótið fór hið bezta fram og
var norskum verkfræðingum til
sóma.
Útdráttur úr fyrirlestxum og
skýrslur um mótið hafa nú ver-
ið birtar í einni heild, og er það
allmikið rit.
Þar með hefir Den Norske
Ingeniörforening lokið störfum
sínum við þetta mót og í tilefni
af því ákveðið að birta á öllum
Norðurlöndum eftirfarandi
fundarályktun, sem gerð var á
lokafundí mótsins:
„Annað mót norrænna verk-
fræðinga ályktar um leið og það
lýkur störfum, að beina eindreg-
ið þeim tilmælum til stjórnar-
valda og til verkfræðilegra
stofnana og iðnaðarfyrirtækja
á Norðurlöndum, að styrkja og
auka enn meira en verið hefir
visindalegar rannsóknir á verk-
fræðilegum sviðum til eflingar
iðnaðar og þjóðhagslegra fram-
fara á Norðurlöndum.
Vér erum þess fullvissir, að
samvinna i þessum málum muni
íslandskvikmynd
S. I. S.
(Framh. af 1. síðu)
kvikmyndar í skála okkar á
heimssýningunni. Bauðst þá
Sambandið til þess að gefa rík-
inu afnot landbúnaðarþáttar í
slíka mynd gegn þvi auðvitað að
Sambandið ætti einkarétt að
þessum þætti að heimssýning-
unni lokinni. — En nú er mynd-
in á leiðinni heim og verður
bráðum endanlega gengið frá
henni og hún skeytt saman í
heildarmynd. —
— En veldur það þá ekki baga-
legum árekstri að Dam sjóliðs-
höfuðsmaður hefir þegar að
nokkru leyti farið inn á sama
svið við kvikmyndatöku sína,
auk þess, sem boðað hefir verið,
að hann ætli að bæta í hana
ýmsu, er einmitt snertir land-
búnaðinn? —
— Því miður getið þér rétt til
um það og virðist þó að hjá því
hefði auöveldlega mátt komast.
Hefði það óneitanlega verið
skemmtilegra, að Sambandinu,
sem svo drengilega varð við,
þegar til þess var leitað fyrir
hönd ríkisins, hefði ekki verið
að óþörfu sköpuð mjög tilfinn-
anleg samkeppni, með því að
hleypa erlendu myndatökufé-
lagi, öflugu að fé og viðskipta-
samböndum, hingað til sams-
konar kvikmyndatöku og vitan-
legt var, að Sambandið hafði
þegar efnt til, og eyðileggja með
því erlendan markað fyrir mynd
þess. En hans hefði Sambandið
sannarlega átt að fá að njóta
fyi’ir stórhug sinn. Og verst er
þó, ef tekin er til þess mynd,
sem þeir hérlendir menn, er vit
hafa á, geta ekki verið ánægðir
með. —
— Finnst yður þá lítið til um
íslandsmynd Dam’s? —
— Þér megið ekki misskilja
mig í því sambandi. Ýmislegt er
ljómandi fallegt i mynd hans,
og alls óvíst, að erlendur maður
gerði slíka kvikmynd betur úr
i
verða til gagnkvæmra hagsbóta
og mikilsvarðandi fyrir framtíð
Norðurlanda."
í fulltrúaráði annars móts
norrænna verkfræðinga:
Aage W. Owe
formaður
í Den norske Ingeniörforening,
forseti fulltrúaráðsins.
K. Höjgaard
formaður
í Dansk Ingeniörforening.
Fundarstj óri
sameiginlegra funda.
Jalmar Castrén
formaður
i Suomalaisten Teknikkojen
Seura.
Erik von Schantz
formaður
í Tekniska Föreningen
í Finnlandi.
F. R. Þorvaldsson
formaður
í Verkfræðingafélagi íslands.
Sten Westerberg
formaður
í Svenska Teknologföreningen.
Bjarne Bassöe
skrifstofustj. mótsins.
6
William McLeod Raine:
heift. Ólin vafðist um granna limi ung-
lingsins, sem var í bláum samfesting.
Hann reyndi af fremsta megni að losa
sig, og sparkaði í örvæntingu í fótleggi
mótstöðumannsins. Svipuhöggin dundu
á grönnum líkamanum og ollu ógurleg-
um sársauka. Það var ómögulegt að losa
takið um handlegginn.
Maðurinn með svipuna hlustaði á
stunur fórnardýrsins og sá það titra af
ótta, en viknaði ekki hót. En þegar stoltið
og hugrekkið yfirgaf þenna granna mót-
stöðumann hans og hann rak upp sker-
andi óp, þá hætti svipumaðurinn sam-
stundis.
Hann hrökk við, sleppti takinu og gekk
skref aftur á bak. Þetta kvalaóp sagði
honum, að hann hefði verið að berja
kvenmann. Hann starði hissa á hana.
Hún greip andann á lofti. En hún var
ennþá hin ótrauða skjaldmey, og þótt
útlit hennar lýsti óumræðilegum sárs-
auka, þá lýsti augnatillitið reiði, hatri
og jafnvel ögrun. Augun í litlu, af-
skræmdu andlitinu, skutu eldingum.
Hver skrattinn, varð manninum að
orði.
Hún reyndi að nota sér undrun hans
og þaut í áttina til hestsins, en maðurinn
var henni of viðbragðsfljótur. Þegar hún
var að stökkva í hnakkinn, þreif hann í
hana og dróg hana niður aftur. Hún
Flóttamaðurinn frá Texas 7
kastaði sér á hann og reyndi að bregða
honum. Hún kom fætinum fyrir fætur
hans, en var ekki nógu sterk til að fella
hann. Sporinn á öðru stígvéli hans fest-
ist á viðartág, svo þau féllu bæöi. Hann
varð undir, en honum veittiát létt að
bylta henni, þvi að hann var svo miklu
sterkari. Áður en hann gat gripið um
handleggi hennar, hafði hún barið hnef-
anum aftur og aftur í tvísærða öxl hans.
— Bölvaður villikötturinn þinn, æpti
hann.
Hún reyndi að losa sig eftir fremsta
megni, en hann lét kné fylgja kviði. Hon-
um fanst hann vera að berjast við villi-
dýr.
Allt í einu hætti hún að brjótast um.
— Slepptu mér, sagði hún skipandi
röddu.
Ekki fyrr en þú segir mér, hvers vegna
þú skauzt á mig og stakkst mig með
hnífnum, svaraði hann.
— Slepptu mér, sagði hún aftur, og þó
röddin væri skipandi, þá heyrðist honum
hún titra af ótta. Þú ættir að sleppa
mér, annars....
Hún þagnaði allt í einu, og hann braut
heilann um, hvað hún hefði ætlað að
segja. Það gat verið, að í hinum ótöluðu
orðum væri að finna skýringu þess, að
hún hafði ætlað að drepa hann.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
„Tengdapabbí"
Sænskur gamanleikur í 4 þátt-
um eftir Gustaf Geijerstam.
Frumsýning í kvöld
kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
'GAMLA BÍÓ*
Saklausa skrif-
stofustiilkan
(Easy Living)
Afar fjörug og bráð-
skemmtileg amerísk gam-
anmynd, eftir
VERA CASPARY
Aðalhlutv. leika: hin
fagra og fjöruga
JEAN ARTHUR og
RAY MILLAND.
Aukamynd:
TALMYNDAFRÉTTIR.
■NÝJA BÍÓ *
Amerísk
skyndifrægð
(Nothing Sacred)
Amerísk skemmtimynd frá
United Artists, þar sem ó-
spart er dregið dár að því
hvernig máttur auglýsing-
anna getur á svipstundu
gert menn að nokkurskon-
ar þjóðarhetjum í Ame-
ríku.
Aðalhlutv. leika:
CAROLE LOMBARD og
FREDRIC MARCH.
Aukamynd
Mickey í sumarfríi
Mickey Mouse teiknimynd.
HAIVGIM J0T
er meðal þjóðrétta íslendinga. En það á ekki saman nema nafnið.
Lélegt hangikjöt er illur matur og óhollur, á sama hátt og gott
hangikjöt er eitthvert mesta sælgæti, er getur.
Enginn ágreiningur er lengur um, að hangikjöt það, er vér höf-
um á boðstólum, sé betur verkað og vænna en nokkurt annað
hangikjöt, sem hér fæst. Það gengur undir nafninu
Hólsf jallaliaiagikjöt
og fæst árið um kring í öllum vandlátustu verzlunum í Reykja-
vík og nágrenni.
Samband ísl. samvinnuiélag'a
Síml 1989.
garði en hann. En þarna hefir
verið að þarflausu stofnað til
leiðinlegrar samkeppni við Sam-
bandið, undir þeim atvikum, að
það átti allt annað skilið. í öðru
lagi verður ekki séð af því ýtar-
lega viðtali við hr. Dam, sem
birtist í einu dagblaðanna, né
öðru, sem um mynd hans hefir
verið skrifað, að hún verði eign
íslands né því til ráðstöfunar á
nokkurn hátt, heldur í höndum
erlendra manna. En slíkt er í
rauninni óhafandi. Og í þriðja
lagi er ekki hægt að neita því að
myndin ber víða vott um megn-
an ókunnugleika. En auðvitað
er þar ekki Dam sjóliðshöfuðs-
manni séfttaklega um að kenna.
Hann hefir allt þetta í góðu
skyni gert og er kunnáttumaður
um myndatöku. En þgð er áður
sýnt, sem hér hefir enn komið í
ljós, að það er ekkert vit í því að
ætlast til þess af útlendingum,
hversu færir sem þeir kunna að
vera við myndatöku, í sjálfu sér,
að þeir geri kvikmynd, svo að
líkur séu til að við megum fylli-
lega við una, að sýnd sé sem
kynningarmynd af atvinnulífi
okkar og menningu. Við verðum
sjálfir að takast á hendur ná-
kvæma yfirumsjón með þessum
störfum, enda ættum við betur
að vera til þess færir en nokkrir
erlendir menn. Og það á, meira
að segja, ekki eftirlitslaust að
hleypa nokkrum útlendingi með
kvikmyndavél hér á land.
Tilkynning frá bókaútgáfu
S. U. F.
Þeir umboðsmenn bókaútgáfu
Sambands ungra Framsóknar-
manna, sem enn hafa ekki gert
skil, eru vinsamlega beðnir að
gera það hið allra fyrsta, með-
fram með hliðsjón af því, að
verið er að ganga frá reikning-
um útgáfunnar.
Leiðrétting.
Pétur á Oddsstöðum er Siggeirsson,
en ekki Sigurgeirsson, eins og mis-
prentazt hefir í síðasta blaði.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
Hellulandi samþykkt tillaga þess efnis,
að skora á Búnaðarsamband Skagfirð-
inga, að láta rækta og geyma kartöfl-
ur til útsáðssölu.
Á viðavangi.
(Framh. af 1. siðu)
hafa sparnað og gætilega fjár-
málastjórn og Skúli Guðmunds-
son sagði, að hinn nýi fjármála-
ráðherra mætti vara sig á því,
ef hann teldi ekkert athugavert
við fjárveitingar eða ábyrgðir,
ef þær væru 50 þús. kr. eða
minni. Verður þetta tæplega
talið vel byrjað hjá hinum nýja
fjármálaráðherra og má geta
þess að Ólafur Thors tók gagn-
stæða afstöðu.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Namefgilegiir
fiimlur
í Kaupþingssalnum I kvöld kl. 8.39.
FUNDAREFNI:
1. STJÓRNMÁLIN. Þessir menn flytja stuttar inngangsræður:
Jónas Jónsson, Hermann Jónasson, Þórarinn Þórarinsson,
Kjartan Guðjónsson, Skúli Guðmundsson, Eysteinn Jónsson.
Síðan frjálsar umræður.
2. SAMVINNUMANNA HEIMILI í HÖFUÐSTAÐNUM. Frum-
mælandi Vigfús Guðmundsson.
3. ÖNNUR MAL.
Mmtið stundvíslega!
Stjórnir félaganna.
SKIPAUTCERÐ
Súðin
austur um til Sigluf jarðar iaug-
ardag 29. þ. m. ki. 9 s. d.
Flutningi sé skilaff fyrir há-
degi á morgun.
Pantaffir farsefflar óskast
einnig sóttir ekki síðar en á
morgun.
- Kaup og sala -
Ullarefni og silki,
(margar tegundir), BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomið.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
Fréttabréf til Tímans.
Tímanum er mjög kærkomið
að menn úti á landi skrifi blað-
inu fréttabréf öðru hvoru, þar
sem skilmerkilega er sagt frá
ýmsum nýmælum, framförum
og umbótum, einkum því er
varðar atvinnulífið. Allar upp-
lýsingar þurfa að vera sem
fyllstar og gleggstar, svo að ó-
kunnugir geti fyllilega áttað sig
á atburðum, fyrirtækjum og
staðháttum, sem lýst er.
Nú hlakka ég til aff fá kaffi-
sopa meff Freyjukaffibætis-
dufti, því þá veit ég aff kaff-
ið hressir mig
Hafiff þér athugað þaff, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT