Tíminn - 13.05.1939, Blaðsíða 4
mh
220
t:
\IV, langardagiim 13. mai 1939
Yfir landamærin
1. Koromúnistar i Rvík hafa látið
liðsmenn sína í landssímanum gera til-
raunauppreist. Neita þeir að hlýða
boði yfirmanna sinna um að nákvæm-
lega sé talinn vinnutími þeirra. Segjast
þeír muni sjálfir telja vinnustundir
sinar, og ekki hlýða fyrirmælum yfir-
boðara sinna.
2. Ef verkamenn í Rússlandi gerðu
þessháttar uppsteit móti ríkisvaldinu,
myndu yfirmenn Guðm. Péturssonar
þar í landi senda slíka menn til betr-
unar, ýmist í Síberíu eða tll htmna-
ríkis.
3. Hér á íslandi myndi eðlilegast að
skipta starfsfólkinu í símanum í tvo
hópa. Láta þá, sem eru íslendingar og
bæði vilja hlýða lögum landsins og
vinna dagsverk sitt, halda áfram að
starfa fyrir þjóðina, en leyfa Héðni og
Einari Olgeirssyni að taka í rússneska
verzlunarfélagið og olíuverzlunina það
af fólkinu, sem vill skammta sér sjálft
vinnutímann, en láta aðra borga sér.
x+y.
Aðalfundui* F. U. F.
(Framh. af 2. síðu)
betri í framtíðinni. Af hinum
einstöku þáttum starfseminnar
þetta byrjunarár hefir bókaút-
gáfan verið umfangsmest, að
fráskildu þjóðmálanámskeiðinu
í vetur, er nær þrjátíu piltar úr
flestum kjördæmum landsins
sóttu og sátu á í röskan mánuð.
Fjórða bindið af ritgerðasafni
Jónasar Jónssonar kom út um
CrH BÆIVUM
Messur á morgun:
í dómkirkjimni kl. 11, séra Garðar
Svavarsson. — í fríkirkjunni kl. 5, séra
Árni Sigurðsson. í Laugarnesskóla er
engin messa. í Hafnarfjarðarkirkju
kl. 2, séra Garðar Þorsteinsson.
Safnaðarfundur
verður haldinn í dómkirkjunni kl. 5
á morgun.
Leikfélag Reykjavfkur
hefir nú sýnt gamanleikinn Tengda-
pabba fimm sinnum við mjög góða að-
sókn og sérstaklega góðar viðtökur. Nú
fer félagið að hætta störfum að þessu
sinni og er því þeim, sem ætla sér að
sjá þenna leik, ráðlagt að gera það sem
fyrst. Nokkrir aðgöngumiðar verða
seldir á kr. 1.50.
Verðlag á silfurrefaskinnum.
Viðvíkjandi grein í síðasta tölublaði
Tímans, um verðlag á silfurrefaskinn-
um, þar sem gefið var yfirlit um sölu
refaskinna á heimsmarkaðinum og
söluhorfur, skal tekið fram, að þar er
alstaðar miðað við norskar krónur,
enda jafnan getið hinna norsku heim-
ilda. Meginhluti greinarinnar var þýð-
ing á köflum úr ársskýrslu norska
landbúnaðarins. 100 kr. norskar jafn-
gilda kr. 135.84 íslenzkum.
Togarínn ,,Rán“ G. K. 507
er tll sölii nú þegar.
Skipinu fylgja nót og bátar til síldveiða. — Skipið með til-
heyrandi veiðarfærum selst í því ástandi, sem það nú er í á
Hafnarfjarðarhöfn.
Tilboð með tilgreindu kaupverði og greiðsluskilmálum send-
ist undirrituðum eða Útvegsbanka íslands fyrir kl. 12 á hádegi
þriðjudag 16. þ. m.
Nánari upplýsingar gefa undirritaðÍT.
Hafnarfirði, 12. maí 1939.
í skilanefnd H.f. Rán.
Björn Jóhannesson. Þorleffur Jónsson.
Júlíns Sigurðsson.
Tílkynnín
frá Fiskímálanefnd
Hjúskapur.
Ungfrú Borghildur Hannesdóttir,
Laugaveg 33 B og Jón Bjarnason bóndi
í Auðsholti í Biskupstungum, voru gef-
in saman í hjónaband í gær af séra
Garðari Svavarssyni.
Fisklmálanefnd hefir ákveðið að leyfa
ekki fyrst um sinn til n. k. áramóta út-
flutning á ísvörðum fiski með erlend-
áramótin í óvenjulega stóru
upplagi, um 2100 eintökum. Nú
er bókin þó með öllu uppseld.
Senn verður byrjað að vinna að
útgáfu næsta bindis, sem mun
hafa inni að halda greinar frá
ungmennafélagsárum Jónasar
og kemur væntanlega út síðari
hluta sumars. Loks byrjar sam-
bandið sennilega útgáfu á sögu
Framsóknarflokksins, er Jónas
Jónsson ritar. — Verður sag-
an gefin út í heftum og getur
skeð að hið fyrsta komi út í
haust. Einhvern næstu daga
mun verða búinn til prentunar
ritlingur, sem S. U. F. gefur út.
Mun hann fjalla um fjármál
ríkisins og gjaldeyrismálin síð-
astliðin fjögur ár.
Nánari ákvarðanir um bóka-
útgáfu og smáritaútgáfu sam-
bandsins, og aðrar framkvæmd-
ir, verða að sjálfsögðu teknar á
aðalfundi stjórnarinnar á Ak-
ureyri.
Sveitaþœttir
(Framh. af 3. síðu)
ara staðreynda. Ekki til þess að
ofmetnast, heldur vegna þess,
að engin kynslóð má slíta í öllu
tengslin við fortíð sína. Hér er
sameiginlegur arfur þjóðarinn-
ar allrar. Það er þó eigi sízt
sveitafólksins að taka við þess-
um arfi, varðveita hann og á-
vaxta. Hann hefir verið kjarni
menningar þess. —
íbúum sveitanna ber þess
vegna skylda til þess aff gera sér
sem glegg'sta grein fyrir viff-
horfi menningarlífs síns, hvert
hefir stefnt og hvert stefnir.
Framhald.
Vtnnið ötullega fyrir
Tímunn.
Ferffafélag íslands
ráðgerir að fara tvær skemmtiferðir
á morgun, aðra austur að Sogi og Þing-
vallavatni og hina í Krísuvík um
Grindavík og Ögmundarhraun.
um fiskiskipum til Bretlands.
Fískímálaneind.
Svikur Mussolini
Hitler
Lærið að symla.
(Framh. af 1. síðu)
hertekið Albaníu til að undir-
búa sameiginlega sókn ítala og
Þjóðverja á Balkanskaganum.
Getur satt verið. En hitt er held-
ur ekki ósennilegt: Mussolini
hafði beðið um Tunis, Korsika,
Djibouti og Nizza, en fengið ein-
dregið afsvar. Þjóðin þurfti að
fá einhverja uppörfun fyrir all-
ar þær byrðar, sem hann hafði
lagt á herðar henni. Hvað gat
hann þá annað gert en tekið
Albaniu, ef hann ætlaði að kom-
ast hjá beinni styrjöld við Breta
og Frakka en þóknast samt þjóð-
inni?
Það er vissulega erfit að spá
nokkru um það, hvorn veginn
Mussolini velur, þegar til úr-
slitanna kemur. En þrátt fyrir
allt hefir maður það á tilfinn-
ingunni, að Berlínar-Rómar-
öxullinn hvilir ekkert á helgari
eða óhagganlegri grundvelli en
bresk-ítalski sáttmálinn.
Til viðbótar þessari grein
Churchill má geta þess, að ítalir
reyna nú sitt ítrasta til ag koma
í veg fyrir að Danzigdeilan leiði
til styrjaldar. Þeir vilja auð-
sjáanlega komast hjá því í
lengstu lög að standa við hlið
Þjóðverja í styrjöld. Þegar
Chamberlain kom til Róm í vet-
ur var honum fagnað miklu
meira af mannfjöldanum en
nokkrum þýzkum stjórnmála-
manni, sem þangað hefir kom-
ið.
Siradnámskeið í Sundliölliiini
hefjast að nýju miðvikudaginn 17. þ. m. Þátttakendur gefi sig
fram á mánudag og þriðjudag kl. 9—11 f. h. og 2—4 e. h. — Uppl.
á sömu tímum í síma 4059.
Sundliöll Reykjavíkur.
Tilkynning:
Hér með tilkynnist að við undirritaðir höfum keypt klæða-
verzlun og saumastofu G. Bjarnason & Fjeldsted, Aðalstræti 6,
ásamt vörubirgðum og firmanafni.
Við munum starfrækja ofangreint firma á sama grundvelli og
fyrri eigendur hafa gert, og leggja áherzlu á að hafa eingöngu 1.
flokks vörur og vinnu á boðstólum.
Virðingarfyllst.
G. Bjarnason & Fjeldsted, e. m.
Axel Ólafsson. Bjarni Guðmundsson.
Kristján Sighvatsson.
SAMKVÆMT ofanskráðu hefi ég flutt saumastofu mína af
Hverfisgötu 8—10 í Aðalstræti 6, og vænti þess, að mínir heiðr-
uðu viðskiptavinir snúi sér þangað.
Virðingarfyllst.
Bjarni Guðmundsson.
34
William McLeod. Raine:
Flóttamaöurinn frí Texas
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
hafði brett upp skálmarnar á samfest-
ingnum, sem var henni of stór. Rautt
hrokkið hárið var bundið í hnút í hnakk-
anum. Það var tæpast hægt að kalla
hár hennar rautt, það var miklu frekar
koparlitt, að honum fannst.
Það vax ekki mikið um snyrtiáhöld eða
annað slíkt þarna, en þó hafði henni
tekizt að láta sig líta þolanlega út.
— Ertu að baka kökur, spurði hún.
Hvað get ég gert. Lofaðu mér eitthvað
að hjálpa þér. Hún þefaði af kaffinu
með áfergju.
— Legðu á borðið, sagði hann. Hann
var tortrygginn gagnvart þessum snöggu
veðrabrigðum. Hann gat þess til, að nú
ætlaði hún að reyna við hann blíðu í
stað vonzku.
Hann glotti oft ósjálfrátt meðan á
máltíðinni stóð. Hún lék og henni tókst
það fremur vel. Það var ekki hægt að
neita því að hún var fögur. Ertnislegt
andlit hennar var breytilegt og fjörlegar
hreyfingarnar minntu hann á yndis-
þokka villidýranna. Hann vissi ekki al-
mennilega hver tilgangur hennar var, en
hann fann að vinátta hennar var upp-
gerð.
Þó var það ekki alveg rétt. Hún var að
eðlisfari góðlynd, nema þegar henni var
gert eitthvað sérstakt á móti. Það var
ekki liðin klukkustund síðan hún slapp
úr greipum dauðans og nú var hún örugg
í hlýjum kofanum og hafði nægtir mat-
ar. Hún var ung og heilbrigð og henni
var það óblandin sæla að svala hungrinu.
Kökurnar voru ljúffengar, fleskið bragð-
gott og kaffið heitt. Þessi harði, erfiði
maður, sem sat gegnt henni, dró ósjálf-
rátt að sér athygli hennar, þótt hann
væri óvinur.
Skegg hans og tryllt, en þreytulegt út-
litið hafði blekkt hana. Hann var yngri
en hún hélt í fyrstu, líklega ekki yfir
þrítugt. Eirðarleysið var rist á karl-
mannlegt andlitið, en sér til mikillar
undrunar sá hún hvergi merki um var-
mennsku. Biturt og tortryggið bros hans
kom henni á óvart. Þetta virtist ekki
koma vel heim við hégómlegt sjálfsálit
og varmennsku Clem Oaklands.
Molly notaði iðuglega orðið „við“
meðan á máltíðinni stóð. Þau voru fé-
lagar í æfintýrinu. Áður en þau luku
máltíðinni sagði hún meðal annars:
— Við erum hér, við getum ekki að
því gert. að þýðir ekkert að vera að rífast,
við skulum semja vopnahlé, unz við losn-
um héðan. Finnst þér ekki að við ættum
að vinna saman?
— Engin skot framar og engar hníf-
stungur? Rödd hans var hæðin og hann
reyndi ekki að leyna því. Á það að vera
upphaf að langri og innilegri vináttu?
„Tengdapabbi44
Sænskur gamanleikur í 4 þátt-
um eftir Gustaf af Geijerstam.
Sýning á morgun kl. 8.
NB. Nokkrir affgöngumiffar
seldir á affeins 1.50.
Affeins örfáar sýningar eftir.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un. —
Iþróttir
(Framh. af 3. síðu)
Um miðjan ágúst verður hið
árlega meistaramót háð.
Hinn 27. ágúst verður háð í-
þróttamót, sem ekki hefir verið
haldið hér áður. Nefnist það
öldungamót og verður keppt í
tveimur aldursflokkum. í fyrri
flokknum verða menn á aldrin-
um 32—40 ára og í síðari flokkn-
um eldri en 40 ára.
Allsherj armót verður ekki háð
í sumar. Fer það ekki fram nema
annaðhvort ár.
55. blað
~ ~ NÝJA BÍÓ*0—~
Fyrirmyiidar-
eiginmaður.
(Der Mustergatte).
Óvenju fjörug og skemti-
leg þýzk kvikmynd, er
byggist á hinu víðfræga
leikriti: Græna lyftan eft-
ir Avery Hopvood.
Aðalhlutv. leika hinir
gamalkunnu þýzku skop-
leikarar:
HEINZ RÚHMANN,
LENY MARENBACH,
HANS SÖHNKER,
WARNER FUETTERER.
Auglýsiné
um verðlagsákvæði.
Verðlagsnefnd hefir, samkvæmt heimild í lögum nr. 70, 31.
des. 1937 sett eftirfarandi verðlagsákvæði:
Álagning á eftirtaldar vörur má eigi vera hærri en hér segir:
BÚSÁHÖLD.
Leir- og postulínsvörur:
Diskar, bollapör, kaffistell, testell, matarstell, kaffikönnur,
tekönnur, rjómakönnur, sykurkör, mjólkurkönnur, skálar,
steikarföt, kartöfluföt, sósukönnur, desertdiskar, niðursuðu-
glös og vatnsglös. (úr gleri).
1. íheildsölu 27%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 47%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 64%.
Emailleruð inataráliöld og búsáhöld:
Pottar, katlar, skaftpottar, þvottaföt, kaffikönnur, tepottar,
matarskálar, dískar, ausur, fiskspaðar, mál, mjólkurfötur,
skolpfötur, náttpottar og fægiskúffur.
1. í heildsölu 18%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 45%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 55%.
Alumín- og emaiUeruð suðuáhöld
fyrir rafmagnseldavélar:
1. í heildsölu 15%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 30%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 40%.
Önniir aluniín-, bús- og mataráhöld:
1. í heildsölu 20%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 40%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 55%.
Borðbúnaður o. fl.:
Borðhnífar, gafflar, matskeiðar, teskeiðar, búrhnifar og
brauðhnífar.
1. í heildsölu 18%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 40%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 55%.
Ýms eldhúsáhöld og búsáhöld:
Svo sem: Kaffikvarnir, pönnur (járn), vöfflujárn, kola-
ausur, þvottabalar og fötur, kökuform, bollabakkar (úr
öðru en silfri eða pletti), eldhúsvogir og gormvogir.
1. í heildsölu 18%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 40%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 55%.
Þvottavindur og kjötkvarnir:
1. í heildsölu 15%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 30%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 40%.
HANDYERKFÆRI
allskonar, til heimilisnotkunar og iðnaðar, svo sem: Sagir
og sagarblöð, hamrar, axir, þjalir, skrúflyklar, naglbítar,
hjólsveifar, hófjárn, sporjárn, rörtengur, heflar og hefil-
tennur, glerskerar, vasahnífar, skæri o. s. frv.
1. í heildsölu 18%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 40%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 50%.
YMSAR JÁRYVÖRUR:
Hurðarhandföng, lamir, skrár, hengilásar og smekklásar:
1. í heildsölu 18%.
2. í smásölu:
a) Þegar keypt er af innlendum heildsölubirgðum 40%.
b) Þegar keypt er beint frá útlöndum 55%.
Brot gegn þessum verfflagsákvæffum varffa allt aff 10000 króna
sektum, auk þess sem ólöglegur hagnaffur er upptækur.
Þetta birtist hér meff öllum sem hlut eiga að máli.
Viðskiptamálaráðuneytið, 11. maí 1939.
EYSTEINN JÓNSSON
Torfi Jóhannssoii.
Hin heimsfræga litskreytta
æfintýrakvikmynd
Mjallhvít
og
dvergarnir sjö
eftir snillinginn
WALT DISNEY
sýnd í kvöld kl. 7 og 9.