Tíminn - 23.05.1939, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.05.1939, Blaðsíða 4
232 TjmgjN, jtrigjndagiim 23. maí 1939 58. blað Gula bandið er bezta og ódýrasta smförlíkMB. 1 heildsölu hjá Samband ial. samvinnufélaga SfndlMW. Fatapressun Reykjavíkur (Ingimundur Jónsson) Hafnarstræti 17. Sími 2742. Kemisk fatahreinsun og gufupressun. Hattahreinsun. Kemisk-hreinsar allan kven- og karlmannafatnaff, gardinur, portiera o. m. fl. — „Trikotel“ allra bezta hreinsunar-efni. — Sækjum! Aðeins fyrsta flokks vinna! Sendum! Fyrverandi f a g' m a ð u r efnalaugarinnar „Glæsir“ sér um alla vinnu. Fyrir nokkru vakti ferðalag G af encu utanríkismálaráð- herra Rúmena mikið umtal í blöðum álfunnar. Hefir hann m. a. farið til Berlínar, London, Parísar og Róm og rœtt við helztu stjórnmálamenn á þess- um stöðum. Gafencu varð utanríkismála- ráðherra í vetur. Hefir þar bœtzt við nýr maður á sjónarsvið stjórnmálanna í álfunni og er yfirleitt talið að mikils megi af honum vœnta. Gafencu er 47 ára gamall. Hann er skozkur í aðra ættina. Föðurafi hans var Skoti, sem í- lendist í Rúmeníu og giftist þar rússneskri konu. Á uppvaxtar- árum sínum dvaldi Gafencu í Sviss, en lagaprófi lauk hann við háskólann í París. Á heimsstyrj- aldarárunum gekk hann í rúm- enska flugherinn og hlaut œðsta virðingarmerki hersins fyrir hreystilega framkomu. Eftir styrjöldina hefir hann einkum stundað blaðamennsku og er af flestum talinn einn slyngasti og ritfœrasti blaðamaður Rúmena. Hafa blöð þau, sem hann hefir stjómað, unnið sér miklar vin- sœldir og aflað honum mikils fjár. Gafencu er glœsimenni í sjón og framgöngu og málagarpur mikill. Enn er of snemmt að fella dóm um hann sem stjórnmálamann. Það var hans ráð, að Rúmenar svöruðu þeirri fyrirspurn þýzku stjórnarinnar, hvort þær óttuð- ust árás frá Þjóðverjum, á þann hátt, að þýzka stjórnin vissi sjálf bezt um áform sín í þeim efnum. Leiðrétting Tímanum hefir fyrir nokkru borizt leiðrétting frá form. Friðarvinafélags- ins þess efnis, að félagið hafi ekki sótt sjálft um leyfi til að flytja inn Gyð- ingabörn, heldur hafi það aðeins mælt með beiðni frk. Katrínar Thoroddsen. Hafi því félaginu þess vegna ekki borið að fullnægja neinum skilyrðum til þess að innflutningsleyfið fengizt, og inn- flutningurinn því ekki strandað á neinni vanrækslu hjá því. Þetta mun vera að nokkru leyti rétt. í bréfi, sem Friðarvinafélagið skrifar stjórnarráðinu 12. des. síðastl, segir, „að Katrín Thoroddsen hafi farið þess á leit að taka nokkur börn af Gyðinga- ættum", og hafi hún tjáð félagsstjórn- inni, að dómsmálaráðherra „óskaði eftir að beiðni um þetta kæmi frá Frið- arvinafélaginu“ og segist stjórn félags- ins þar með verða „við þessari beiðni". í bréfi, sém Friðarvinafélagið skrifar stjómarráðinu seinna, sést líka að það telur sig meira en meðmælanda með beiðni frk. Katrínar, þar sem það geng- ur eftir svari fyrir hennar hönd. Það er með öllu rangt, að dómsmála- ráðherra hafi óskað eftir slíkri beiðni frá Friðarvinafélaginu, enda var engin ástæða til afskipta þess af málinu. Hefir frk. Katrín farið þar með ósatt mál, þegar hún óskaði eftir milligöngu félagsins. En þetta bréf Friðarvinafé- lagsins er sú eina formlega „beiðni“, sem stjórnarráðinu hefir borizt um inn- flutning Gyðingabama og stafar af því sá misskilningur, sem kom fram í Tím- anum, að félagið hafi sótt um innflutn- ingsleyfin fyrir sig. Leiðréttist það hér með og þá jafnframt það, að félaginu hafi staðið næst að uppfylla þau skil- yrði fyrir innflutningsleyfunum, sem sjá mátti á svarbréfi forsætisráðherra að hann taldi nauðsynleg, en það var trve-ging fyrir útflutningi barnanna til ÍJR BÆIVUM Leikfélagið sýnir Tengdapabba í síðasta sinn á morgun. Nokkrir aðgöngumiðar verða seldir á kr. 1.50. Aðgöngumiðasala frá kl. 4—7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. Meistaramót í sundknattleik, úrslitakeppni, fer fram í sundhöllinni á miðvikudagskvöldið. Keppa A-lið Sundfélagsins Ægis og sveit Glímufé- lagsins Armanns. Auk þess fer fram keppni í fleiri greinum sundíþrótta. Prestaskiptin. Séra Sigurjón Þ. Árnason, sem hefir starfað hér í Reykjavík í vetur, er nú farinn til Vestmannaeyja aftur. Séra Halldór Kolbeins, sem þjónaði í Vest- mannaeyjum í vetur, er nýfarinn vestur í nrestakall sitt í Súgandafirði. Aðventa, saga Gunnars Gunnarssonar, kom út í dag í íslenzkri þýðingu eftir Magnús Ásgeirsson. Bókin kom fyrst út á dönsku haustið 1937 og hefir þegar verið þýdd á mörg tungumál. Hraðferðir milli Akureyrar og Reykjavíkur eru nú hafnar með bifreiðum. Voru nokkrir skaflar mokaðir á Öxnadalsheiði í sl. viku og er síðan sæmilega góður vegur mestalla leiðina til Akureyrar. Bifreiða- stöð Akureyrar annast þessar ferðir þrisvar í viku, og 1. júní hefjast dagleg- ar ferðir frá þeirri stöð, ýmist um Borgames eða Akranes. Einnig mun þá Bifreiðastöð Steindórs hafa ferðir norður, eins og venjulega, um mitt sumarið. Happdrætti Kolviðameslaugar. Þeir, sem fengið hafa vinninga í happdrætti Kolviðamesslaugar, eru á- minntir um að vitja þeirra fyrir 15. júní, ella verða munirnir seldir og and- virðið látið ganga til sundlaugarinnar. Gestir í bænum: Þorleifur Jónsson bóndi á Hólum í Hornafirði, Pétur Sigfússon kaupfé- lagsstjóri á Borðeyri, Halldór Sigurðs- son, starfsmaður í kaupfélaginu í Borg- arnesi. Maður bíður bana Á laugardaginn vildi það það hörmulega slys til, að tóft- arveggur hrundi yfir mann að Staðarbakka í Miðfirði, Ingvar Guðmundsson að nafni. Var hann að rífa tóft á tún- inu á Staðarbakka, ásamt bróð- ur sínum. Hrundi þá einn vegg- urinn og féll yfir Ingvar. Var fljótt brugðið við að moka ofan af Ingvari og jafnframt símað eftri lækninum á Hvamms- tanga. Þegar Ingvar náðist upp úr rústinni, var hann andaður og taldi læknirinn banamein hans köfnun. Ingvar var rösklega tvítugur að aldri. annars lands innan tiltekins tíma. Voru það samskonar skilyrði og giltu þá ann- ars staðar á Norðurlöndum. Eins og málið stóð, var það hlutverk frk. Kat- rínar en ekki Friðarvinafélagsins, að reyna að fullnægja þessu skilyrði. Framanritað bréf Friðarvinafélagsins ber það með sér, að frk. Katrín hefir sótt um leyfi til að flytja inn nokkur börn, en ekki aðeins eift, eins og hún hefir viljað vera láta í skrifum sínum. Er það eitt af mörgum ósannindum hennar í þessu máli. Annars vísast til fyrri skrifa Tímans um þetta mál. Þess skal aðeins getið, að frk. Katrínu mun enn ekki hafa fundizt það nógu fín mannúð, að taka íslenzkt barn til fósturs, fyrst hún gat ekki fullnægt svipuðum skilyrðum og nú munu gilda annars staðar á Norður- löndum fyrir innflutningi Gyðinga- barna. „Frjáls verzlun“. (Framh. af 2. síðu) ýðgisleg. Hún minnti á ófrelsi dönsku einokunartímanna, þar sem hver heimilisfaðir varð, að viðlagðri mikilli hegningu, að verzla á tiltekinni höfn við til- tekinn kaupmann. Hér var um að ræða hreinan og beinan við- skiptafjötur í nýjum stíl. Hinn frjálsi íslenzki borgari mátti sig hvergi hræra í við- skiptalegum efnum. Sonur, sem tók við af föður, varð að fara í sömu búð og foreldrarnir, jafn- vel þó að honum væru skiptin þar þvert um geð. Engin önnur verzlun gat tekið við slíkum manni, því að innflutningur hvers árs var nákvæmlega mið- aður við það „sem einu sinni var“. Eins og íslendingar eru gerð- ir, þá una þeir ekki þvílíkri kúgun. Þeir vildu mega nota þá einu „frjálsu verzlun", sem hægt var að framkvæma i land- inu, og það var að flytja sig frá verzlun, sem þeim var ekki að skapi, i sitt félag, í verzlun, sem þeir áttu sjálfir, og rekin var til að veita þeim sannvirði. Ég hygg að mörgum, sem réð- ust á höfðatöluregluna síðan 1934 hafi ekki verið ljóst á hve sterkum rökum hún var byggð. Höfðatölureglan var hið eina sýnilega tákn frjálsrar verzlun- ar í landinu. Hún var hin eina sönnun fyrir frelsi borgaranna í viðskiptareglunni. Og hún var eina úrræði hins venjulega borgara til að verjast óeðlilegri álagningu í skjóli haftanna. Hvenær sem einhverjum heim- ilisföður fannst sér vera stór- lega misboðið með vöruverði í búðinni, þá gat hann gerzt sinn eigin kaupmaður, með því að ganga í kaupfélag, og fá nauð- synjavörur til heimilisins eftir höfðatölureglunni — og með sannvirði, mitt í höftum og dýr- tíð. Pramh. J. J. Deilan um Danzig (Framh. af 1. síðu) háttað, er ekki ofsögum sagt, að þeir, sem ráði Danzig, geti ráð- ið yfir atvinnulífi Pólverja. Hinsvegar eru tiltölulega lítil viðskipti milli Danzig og Þýzka- lands. Þess vegna munu Pólverjar ekki sleppa tilkalli til núverandi réttinda sinna í borginni. Þau eru óhjákvæmileg fyrir atvinnu- legt sjálfstæði landsins. Deilan um Danzig snýst því raunveru- lega um það, hvort Pólverjar eigi að halda atvinnulegu sjálf- stæði sínu eða eiga það undir geðþótta Þjóðverja. LEIKFÍLAG REYKJAVÍKUR „Tengdapabbi" Sænskur gamanleikur í 4 þátt- um eftir Gustaf af Geijerstam. Sýning á morgun kl. 8. — Síðasta sinn. — NB. Nokkrir aðgöngumiðar seldir á aðeins 1.50. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag og eftir kl. 1 á morg- un. — Meytið hinna eggjahvítu-auðugu fiski- rétta: Fiskibuff, Fiskibollur, Fiskigratin, Fiskibúðingar, Fiskisúpur. Allt úr einum pakka af mann- eldismjöli. Fæst í öllum mat- vöruverzlunum. Heildsölubirgðir hjá ÞÉR ættuð að reyna kolin og koksið frá Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar. Símar 1360 og 1933. GAMLA EÍÓ-0***0-*0* Mexikanskar nætur Bráðskemmtileg amerísk söngmynd, er gerist meðal hinna' lífsglöðu og dans- andi íbúa Mexicóríkis. Aðalhlutverkin leika hin fagra: DOROTHY LAMOUR, „Hot“-söngstjarnan, og RAY MILLAND. NÝJA Bíó— LJÓNA- B8ÖF»1\GFV\ Æfintýrarík og spennandi kvikmynd er gerist í Afríku, gerð eftir Edgar Rice Burr- oughs, höfund hinn heims- frægu Tarzan-sagna. tTLAGIM fjörug og spennandi amer- ísk Cowboy-mynd leikin af konungi allra Cowboy- kappa Ken Maynard og undrahestinum Tarzan. 46 William McLeod Raine: Það væri afleitt, því að hún hataði hann bæði persónulega og af gömlum vana. En hún varð að segja honum það, vegna sjálfrar sín. Lokkur úr liðuðu hárinu hafði fallið fram yfir ennið, fyrir augun. Hún var mjölug um hendurnar og varð því að færa hann í samt lag með handarbak- inu, um leið og hún leit til mannsins og hóf máls, en var þó hálf feimin: — Þarna með hnífinn — þegar ég skar þig. Ég var bara með hann af til- viljun í hendinni, þegar ég hljóp af stað til hestsins. Ég var nýbúin að skera mér víðitág. Þegar þú greipst í mig varð ég hrædd og stakk í ofboði. Það var ekki af því að ég ætlaði að særa þig. Hún sagði þetta lágt og eðlilega, hann gat tekið það sem afsökun, ef hann vildi. Hann starði hörðum augunum í augu henni. — Og riffillinn þinn? Ég býst við að það hafi bara viljað svo til að þú hélzt á honum, að það hafi bara viljað svo til að skotið hljóp af í áttina til mín? Þetta napra svar gerði hana orðlausa. Hún hafði snöggvast alveg gleymt riffl- inum og hafði því ekkert svar á reiðum höndum. En hann hafði tekið þetta svo sem hún væri að réttlæta sig og það var nóg. Þetta særði stærilæti hennar og hún kom upp um reiði sína, með því að Flóttamaðurinn frá Texas 47 grípa andann á lofti. — Ég held að þú sért andstyggileg- asti maður, sem ég hefi nokkurntíma kynnzt, hrópaði hún. — Ég skal aldrei tala við þig oftar og guði sé lof fyrir að ég er laus við þig undir eins og vinir mínir koma. Þú verður þá aftur meðal þess fólks, sem þú getur notað eins og gólfþurkur. Vertu samt ekki of viss um, að þú þurf- ir aldrei að tala við mig aftur, því ein- hverntíma mun ég spyrja þig einnar eða tveggja spurninga, um blýkúluna, sem þú sendir mér. — Þetta þorir þú að segja eftir allt það, sem þú hefir gert okkur? Ó, þú verðskuldaðir að vera skotinn tuttugu sinnum! — Þetta eina sinn hefði verið nóg, ef þú hefðir bara verið hæfnari, sagði hann í sama hæðnistón og vant var. — Þú ert of veikgerð til að vera dugleg til slíks, til þess þarf sterkar taugar. Þú hefðir átt að vera kyrr á brúninni og halda áfram að skjóta á mig, en í þess stað verður þú hrædd og hleypur. Vegna þess fékkst þú hýðinguna, sem kemur þér til að gretta þig í hvert sinn, er þú sezt niður. Nei, góða mín, þeir, sem ætla að drepa, verða að vera óskiptir við það. — Ég reyndi aldrei að drepa þig, slapp út úr henni. Börn fá ekki aðgang. Búín að opna Yeitingaskála minn við HYítárbrú. Theodóra Sveínsdótiír. Tilkynning Vegna rýmkunar innflutnings á nokkrum kornvörutegund- um sjáum við okkur fært að lækka verð á eftirtöldum vörum: Hveíti, Haframjöií, Hrísgrjónum. Spyrjiö um verft í búöum okkar. Félag matvörukaupmanna í Reykjavík. lYý bók: A Ð V E N T A eftir GUNNAR GUNNARSSON, kom út í dag, í íslenzkri þýðingu eftir Magnús Ásgeirsson. Bókin er gefln út í tilefni af fimmtugsafmæli skáldsins. Aðventa lýsir vetrarferðalagi manns, sem enn er á lífi og margir kannast við. Erlendis fékk þessi bók svo góðar viðtökur, að í Danmörku einni hefir hún verið prentuð í mörg þúsund eintökum, og auk þess verið þýdd á fjölda- mörg tungumál. — Verð kr. 4.00 heft og kr. 6.00 í bandi. — Fæst hjá öllum bóksölum. BÓKAVERZLLN IlflílMSKKIMÍU H.F. LAUGAVEGI 38. — SÍMI 5055. Graiið grær — Gleymið ekkl að tryggja ykkur g ó ð a sláttuljái í tæka tíð. Eylandsljáírnir irá Brusletto reynast bezt. Þeir eru haudslegnir og hertir í viðarkolum. Samband ísLsamvinnuíélaga Sími 1080. Viilzkjinfiomir. ACCUMULATOREN-FABRIK, DR. TH. S0NNENCHEIN. f ÚTBREIÐIÐ TÍMANNf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.