Tíminn - 03.06.1939, Page 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1d.
Síml 2323.
PRENTSM3ÐJAN EDDA h. í.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjjavík, laugardagiim 3. júní 1939
63. blað
Ungmennaíélðgum geíið merkilegt iordæmi
Guiubaðstoia Ungmennaiél. Reynís í Mýr-
dal heiir hlotið miklar vinsældirogaðsókn
Mynd' þessi er tekin, þegar þýzk-ítalski hernaðarsáttmálinn var und-
irritaður. Á myndinni sjást, jrá vinstri: v. Mackensen sendiherra Þjóðverja
í Róm, Ribbentrop utanríkisráðherra Þjóðverja, Ciano utanríkisráðherra
ítala og Attolico sendiherra ítala í Berlín.
Hernaðarsáttmáli ítala og Þjóðverja
UngmennafélagiÖ Reynir
í Mýrdal reisti síðastl. sum-
ar gufubaðstofu við barna-
skóla sveitarinnar. Var bað-
stofubyggingunni lokið í
fyrrahaust og hafa ung-
mennafélagar í sveitinni
notað baðstofuna vikulega
í vetur, auk þess sem hún
hefir verið notuð af skóla-
börnum. Þessi framkvæmd
æskufólksins í Reynishverfi
er mjög athyglisverð og gæti
verið ungu fólki í öðrum
byggðarlögum til fyrir-
myndar.
Baðstofa þessi er byggð úr
steinsteypu, með tvöföldum
veggjum og reiðingstorfi á milli,
5,4 m. X 4 m. að stærð.
Heitu uppsprettuvatni er
þarna ekki til að dreifa, og er
gufubaðinu þannig komið fyrir,
að steinar eru hitaðir og síðan
stökkt á þá heitu vatni. Mynd-
ast við það mikil gufa. Þessi að-
ferð er alþekkt á Norðurlönd-
um, einkum í Finnlandi og Sví-
þjóð. Þar sem jarðhiti er til
staðar, er afar auðvelt að veita
sér gufuböð, með þeim hætti, að
byggja skýli yfir laug eða hver.
Um tuttugu pund af kolum
nægja til þess, að tuttugu manns
geti tekið sér bað. Hins vegar er
útbúnaður ofnsins.sem vatnið er
hitað í, svo fullkominn, að hægt
er að nota hitaminna eldsneyti
en kol. Er mótak þarna nær-
tækt, ef að því yrði horfið að
nota mó.
Kostnaður við byggingu gufu-
baðstofu þessarar, mun nema
um 2000 krónum, ef með er talin
sú vinna, er innt var af hendi
við bygginguna. Reyndar var
vinnukrafturinn að mestu lát-
inn í té, án þess að greiðsla
kæmi fyrir. Rikissjóður mun
Þessi mynd er aj ofninum, sem
Haukur Magnússon smíðaði úr strand-
járni, og blásaranum í gufubaðstof-
unni.
• Tvö slys
í fyrradag vildi það slys til á
Skagaströnd, að tré féll í höfuð-
ið á 16 ára gömlum pilti, syni
Ólafs Lárussonar, fyrrverandi
kaupfélagsstjóra, Árna að nafni.
Beið hann bana af. Skeði slysið
við höfnina, þar sem verið var að
vinna við hafnargerðina.
í Vestmannaeyjum hrapaði
unglingspiltur, Aubert Herman-
sen að nafni, norskur í föður-
ætt, til dauðs í björgum á aust-
anverðri Heimaey. Fannst hann
í svonefndri Haugaurð á mið-
vikudaginn var. Hafði hann far-
ið að heiman um hádegi á
þriðjudag, og taldi læknir, sem
framkvæmdi líkskoðun, að
drengurinn myndi hafa andazt
á þriðjudaginn.
Lík rcknr.
Á fimmtudagskvöldið rak lík
Jóns Sveinssonar, er drukknaði
1 lendingunni í Teigavör í vetur,
upp við Heimakletta á Akranesi,
skammt utan við hafnargarðinn.
Líkið veröur jarðsett á þriðju-
daginn kemur.
Forgöngumaður um þessa ný-
ung var Haukur Magnússon frá
Reynisdal. Vakti hann fyrst
máls á þessu í ungmennafélag-
inu, barðist mest fyrir fram-
kvæmdunum, og hefir sjálfur
unnið ýms vandasömustu verk-
in. Meðal annars smíðaði hann
ofninn úr járni úr strönduðum
skipum. Sýnir það bæði hagleik
hans og ráðdeild.
Eins og áður er sagt, er al-
mennur baðdagur í baðstofunni
einu sinni í viku. Bæði eldri og
yngri notfæra sér böðin, jafn-
vel fólk á áttræðisaldri. Telur
bóndi, sem þjáist af gigtveiki,
sig hafa sótt þangað talsverða
meinabót. Getur fólk af tólf
bæjum sótt böðin með hægu
móti, því að stutt er milli bæja
í Reynishverfinu.
í bréfi, sem Haukur hefir
skrifað vini sínum, segir hann
meðal annars:
„Mig hefir lengi dreymt um
það, að æskufólk þessa fagra
byggðarlags starfaði sameinað
að því að skapa sér þau menn-
ingarskilyrði, sem gæti veitt
því hollt veganesti á lífsleið-
inni. Að í þessu byggðarlagi risi
upp sá æskulýður, sem væri
hafa styrkt framkvæmd þessa
með 400 krónum.
Samkvæmt upplýsingum, er Tíminn
hefir fengið hjá Gunnari Guðjónssyni
skipamiðlara, byrjar hvalveiðafélagið
Kópur, er starfrækir stöðina á Suður-
eyri í Tálknafirði, hvalveiðar fyrir
Vesturlandi innan skamms. Hefir fé-
lagið tekið þrjú norsk hvalveiðaskip á
leigu og eru þau væntanleg hingað til
lands nú eftir helgina. Skipshafnimar
verða skipaðar bæði íslenzkum og
norskum mönnum. Veiðitíminn varir
sennilega fram í miðjan september-
mánuð, en þá gengur hvalurinn til
hafs aftur. Venjulega veiðist hvalurinn
60—100 kílómetra vestan við land. Er
eingöngu um reyðarhvali og búrhveli
að ræða. Við hvalstöðina á Suðureyri
unnu í fyrrasumar um fimmtíu manns,
allt isl. karlmenn og sennilega álíka
margir í ár. Eru fyrstu verkamennirn-
ir að fara vestur. Á Suðureyri eru hval-
irnir teknir til vinnslu. Spikið af þeim
er brætt og rengi og kjöt skorið og
selt. Hefir rengið verið selt innan lands
en kjötið flutt út og selt til refafóðurs
í Noregi og það bezta úr því til mann-
eldis. Er mikið af góðu hvalkjöti notað
til manneldis í Osló og víðar í Noregi.
í sumar verður gerð tilraun með að
selja úrvals hvalkjöt til manneldis hér.
Það af hvalnum, sem eftir verður að
skurðinum loknum, er siðan brætt eða
malað. í fyrra sumar veiddu hvalveiða-
skipin þrjú, hin sömu og í ár, alls 147
hvali.
starfsfús og starfsglaður, sem
reisti býlin og ræktaði landið,
og sem í tómstundum sínum
kæmi saman og ræddi áhuga-
mál sín, iðkaði leikfimi og í-
þróttir."
Gufuböð eru mjög holl. Forn-
menn þekktu nytsemi þeirra og
er oft getið um þau í íslendinga-
sögunum. Þegar niðurlægingar-
tímabil þjóðarinnar hófst,
lögðust þau niður eins og margt
fleira, sem var gagnlegt. Á síð-
ari árum hafa þau verið tekin
upp við alþýðuskólana, þar sem
hveravatn er notað til upphit-
unar. í Reykjavík er ein gufu-
baðstofa til afnota fyrir almenn-
ing — í húsi Jóns Þorsteinsson-
ar, en vafalaust verður þeim
fjölgað í bænum, þegar hita-
veitan kemur til sögunnar. í
kaupstöðum og kauptúnum
ættu íþróttafélögin að beita sér
fyrir gufuböðum, en í sveitun-
um er það verkefni ungmenna-
félaganna. Ungmennafélagið
Reynir hefir riðið mjög myndar-
lega á vaðið í þeim efnum og
sýnt, að hægt er að koma upp
gufubaðstofu með tiltölulega
litlum kostnaði, ef nægur áhugi
er fyrir hendi. Á það miklar
þakkir skilið fyrir þetta fordæmi
sitt og vonandi verður það tek-
ið til eftirbreytni sem víðast
um landið. Einkum virðist þörf
fyrir gufubaðstofur í sveitum,
þar sem menn eiga óvíða kost á
hentugum inniböðum.
Samvinnufélag á Sandi á Snæfells-
nesi hefir átt tvo vélbáta í smíðum hér
í Reykjavík. Eru nú bátarnir fullgerðir
og komnir vestur. Heita báðir Njörður.
Hinn síðari lagði af stað frá Reykja-
vík á miðvikudagskvöld. Kom hann eigi
til Sands fyrri en í gærmorgun og voru
menn jafnvel teknir að óttast um hann,
því að dimmviðri var og sjór úfinn.
Reyndist sá ótti þó ástæðulaus og var
allt í bezta lagi, er báturinn kom til
Sands. Hafði báturinn villzt af réttri
leið vegna dimmviðrisins, en síðan leg_
ið og biðið átekta.
t t t
Vélskipið Dagný frá Siglufirði, sem
að undanförnu hefir verið að leita
sildar, fékk 450 mál í fyrradag í herpi-
nót við Langanes. Hefir síld sést vaða
við Langanes undanfarna daga.að sögn.
t t f
Sjómannadagurinn er á morgun. Auk
skrúðgöngu, er hefst frá stýrimanna-
skólanum klukkan tæplega 1, lúðra-
blásturs, söngs og ræðuhalda við Leifs-
styttuna, fara þennan dag fram
íþróttasýningar. Meðal annars verður
keppni milli sjómanna í knattspyrnu og
reipdrætti á íþróttavellinum. Á höfn-
inni fer fram kappróður milli skips-
hafna, stakkasund og björgunarsund. í
markaðsskálanum verður opin sýning,
þar sem fólk getur kynnt sér feril og
Mánudaginn 22. f. m. var und-
irritaður í Berlín hernaðarsátt-
máli milli Ítalíu og Þýzkalands.
Sáttmálinn var undirritaður af
utanríkisráðherrum landanna.
Sáttmáli þessi er í sjö grein-
um. í fyrstu og annari grein
segir, að samningsaðilar skuli
hafa samráð um allt það, sem
snertir sameiginlega hagsmuni
þeirra og ástandið í Evrópu yf-
irleitt. Lendi annar samningsað-
ilinn í deilum eða reynt sé að
ganga á hlut hans, skal hinn að-
ilinn veita honum alla þá að-
stoð, sem hann megnar, á frið-
samlegan hátt.
í þriðju grein segir: Ef annar
aðilinn lendir, gegn ósk sinni og
vilja, í styrjöld við annað eða
önnur ríki, skal hinn aðilinn
tafarlaust koma honum til
hjálpar og veita honum alla þá
hernaðarlega aðstoð, sem hann
megnar.
í fjórðu grein segir, að til
þess að samningsaðilar geti með
litlum fyrirvara fullnægt á-
kvæðum þriðju greinar, skulu
þeir auka samvinnu sína í víg-
búnaðarmálum og viðskiptaleg-
um ófriðarráðstöfunum. Jafn-
framt skulu þeir fyrirfram koma
sér saman um, hvernig fram-
kvæmdum skuli háttað í hverju
einstöku tilfelli.
í hinum greinunum eru þau á-
kvæði merkilegust, að hvorugt
ríkið megi semja um vopnahlé
eða frið í styrjöld, nema með
þróun íslenzkrar sjómennsku, og þær
breytingar, sem veiðitækin hafa tekið.
Um kvöldið verða skemmtisamkomur
að Hótel Borg og Oddfellow.
t t r
Kaupfélág Árnesinga hefir nú komið
á fót mjög fullkomnu rafknúnu véla-
verkstæði að Selfossi. Er því ætlað að
annast viðgerðir á bifreiðum, báta-
hreyflum og landbúnaðarverkfærum.
Einnig mun það annast smíðar á
ýmsum óbrotnari tækjum, sem notuð
eru við landbúnað. Þegar þessi fram-
kvæmd er komin i verk, verður mönn-
um ljós hver þörf var á slíkri fram-
kvæmd, en hún er í hlutfalli við víðáttu
Suðurlandsundirlendisins, og hina
„hafnlausu" strönd, ennfremur við hina
breyttu búnaðarhætti, sem nú krefjast
æ fleiri vélrænna hjálpartækja og dag-
legra samgangna, sem aldrei mega
niður falla, hverju sem viðrar. Má
telja líklegt, að bændur eigi eftir að
sannfærast um að úrræði samvinnunn.
ar verði þeim eigi lítil hagsbót einnig
á þessu sviði. Þessu nýja vélaverkstæði,
sem Kaupfélag Árnesinga hefir látið
reisa, var valinn staður rétt við Ölfus-
ána, ofan vert við Tryggvaskála. Er
það bæði rúmgott og búið ágætum
tækjum. Kaupfélagið hefir með þessu
ráðist í merkilega nýjung, sem áreið-
anlega á fyrir sér að dafna vel og af-
kasta þýðingarmiklu starfi fyrir bænd-
ur á Suðurlandi.
samþykki hins, og að samningur
þessi skuli gilda til 10 ára.
í þýzkum blöðum hefir verið
ritað mikið um þennan sáttmála
og hann talinn verðugt svar
gegn einangrunarstefnu Breta.
ítölsk blöð hafa hinsvegar ver-
ið mjög fáorð um sáttmálann.
Utan Ítalíu og Þýzkalands eru
blöðin yfirleitt sammála um, að
ítalir hafi gert þennan samning
nauðugir, enda geri hann Ítalíu
að einskonar hjálendu Þýzka-
lands, ef úr framkvæmd hans
verður. Sérstaklega munu Þjóð-
verjar samkvæmt fjórðu grein-
inni gera kröfur um ýmsar við-.
skiptalegar ráðstafanir í Ítalíu,
sem fullnægi ófriðarundirbún-
ingi landanna. Er í þessu sam-
bandi minnst á það, að háttsett-
ir þýzkir herforingjar hafa dval-
ið á ítaliu undanfarið.
í Bretlandi og Frakklandi
hefir sáttmáli þessi vakið litla
athygli, þó einkennilegt megi
virðast. Hefir það vafalaust
verið tilgangur Hitlers að láta
þennan sáttmála skjóta Bretum
og Frökkum skelk í bringu. Eitt
enska blaðið, „Daily Express",
segir að í heimsstyrjöldinni hafi
undirskrift Ítalíu verið öðru-
megin, en herinn hinumegin.
Hitler er þetta ljóst, segir blaðið,
en markmið hans er að reyna að
hræða okkur til nýrrar undan-
látssemi. Slíkt bragð hefir
heppnazt einu sinni, en það
heppnast ekki aftur. Annað
enskt blað, „News Chronicle“,
segir, að afleiðingar sáttmál-
ans geti vel orðið þær, að ít-
alía reyni miklu frekar en áður
að aftra Þjóðverjum frá því að
hefja styrjöld, þvi engin af
stórþjóðunum sé eins illa undir
styrjöld búin og ítalir.
Ýms blöð vekja athygli á þvi,
að ákvæði þriðju greinarinnar
séu ekki það ákveðin, að ítalir
séu nauðbeygðir til að fylgja
Þjóðverjum, án tillits til þess,
hvernig styrjöld ber að höndum.
Virðast flestir blaðadómarnir á
þá leið, að þessi sáttmáli sé að-
allega til að sýnast og hann
hafi ekki haft þau áhrif í þeim
efnum, sem Hitler hafi ætlazt
til. Hinsvegar telja mörg þeirra
líklegt, að ítalir fylgi Þjóðverj-
um í styrjöld, en það sé þó eng-
anveginn öruggt, þrátt fyrir
þennan samning.
Herskyldulögin
og stjórnarandstaðan
í Englandi
Herskyldulögin og stjórnarand-
stæðingar í Englandi.
Bæði verklýðssamtökin og
jafnaðarmannaflokkurinn í
Englandi hafa ákveðið að veita
herskyldulögum stjórnarinnar
engan mótþróa utan þingsins.
Á ráðstefnu, sem verkalýðsfé-
lögin héldu nýlega, var felld til-
laga um að hafna allri sam-
vinnu við ríkisstjórnina, í mót-
mælaskyni. Fulltrúarnir, sem
fylgdu henni, höfðu bætt við sig
232.000 atkvæðum, en þeir, sem
voru á móti, 3.817.000 atkvæð-
Á víðavangi
Kommúnistar halda áfram að
auglýsa ofbeldi sitt í verkalýðs-
málum. Nú í vikunni hafa þeir
byrjað óvenjulegt verkfall hér
í bænum. Stjórn Dagsbrúnar
hefir bannað öllum ófaglærðum
verkamönnum að vinna við
byggingar. Gerir hún þá kröfu,
að múrarar og trésmiðir greiði
kaup þessara manna til skrif-
stofu Dagsbrúnar og annist hún
síðan útborgun þess fyrir 1% af
upphæðinni. Hækkar verka-
kaupið sem þessu nemur,en eng-
inn eyrir af hækkuninni renn-
ur til verkamanna sjálfra, held-
ur í sjóð Dagsbrúnar, sem kom-
múnistar hafa stundum notað
eins og flokkssjóð sinn, m. a. til
að styrkja blaðaútgáfu sína.
Hafa múrarar og trésmiðir vit-
anlega ekki viljað fallast á þetta
og hefir stjórn Dagsbrúnar því
látið stöðva vinnuna.
* * *
Meðal verkamanna þeirra, sem
þannig hafa verið neyddir til að
hætta vinnu, ríkir hin mesta
gremja yfir þessu tiltæki komm-
únista. Margir þeirra eru fjol-
skyldumenn, sem hafa mikla
þörf fyrir vinnu, og verkfallið
er ekki á neinn hátt gert til að
bæta kaup þeirra og kjör, enda
hafa þeir ekki óskað neinna
breytinga. Kommúnistar eru að-
eins að reyna með þessu, hversu
langt þeim sé fært að ganga i
því, að beita verkalýðsfélögun-
um til að framkvæma ýms of-
beldisverk. Mætti það furðulegt
heita, ef þetta verkfall hjálpaði
ekki verkamönnum til að skilja,
hversu mikil hætta það er, bæði
fyrir þá sjálfa og samtök þeirra,
að láta kommúnista fara með
stjórn verkalýðsfélaganna.
* * *
Meðal sjúklinga á hressingar-
hælinu í Kópavogi hefir það
komið til tals, að þeir reyndu að
koma upp refabúi og önnuðust
sjálfir hirðingu refanna. Er það
létt verk og gæti vel komið þeim
að einhverju haldi, að kunna
slíka vinnu eftir að þeir fara af
hælinu. Er þetta mál, sem gefa
ætti fullan gaum. Þarf að vinna
að því eftir megni, að þeir sjúk-
lingar, sem ná aftur fullri heilsu,
geti fengið létta vinnu, a. m. k.
til að byrja með, og helzt þyrftu
þeir að geta notað hælisvistina
til að búa sig á einhvern hátt
undir slík störf. Nokkur byrjun
er hafin á þessu á Vífilstöðum
með því að láta sjúklinga, sem
lagt geta á sig nokkra vinnu,
fá garðlönd til ræktunar. Verð-
ur vafalaust haldið þar frekar
áfram á þessari braut.
* * *
Félagsdómur hefir nýlega
kveðið upp úrskurð í máli, sem
Alþýðusambandið höfðaði fyrir
sjómenn 1 Keflavík gegn útgerð-
armanni þar. Tildrög málsins
voru þau, að i kaupsamningun-
um er sjómönnum heitið á-
kveðnu verði fyrir hvert skip-
pund. Töldu sjómenn, að þetta
væri hlutaráðning og ættu þeir
því að fá uppbót samkv. gengis-
lækkunarlögum. Félagsdómur
leit svo á, að hér væri um fast
kaup, en ekki hlutaráðningu að
ræða, og hafnaði því kröfu sjó-
manna.
um. Tillaga um allsherjarverk-
fall í mótmælaskyni var felld
með 4.172 þús. atkvæðum gegn
425 þús. atkvæðum.
Á þingi enska jafnaðar-
mannaflokksins, sem stendur
yfir þessa dagana, hefir verið
samþykkt með yfirgnæfandi
meirahluta atkvæða, að veita
herskyldulögunum ekki mót-
stöðu utan þingsins.
Sýna þessar ákvarðanir vel á-
byrgðartilfinningu verkamanna
í Englandi, þar sem vitanlegt er
að þeir eru herskyldulögunum
mjög andvígir. En þeim er jafn-
framt ljóst, að miklar deilur um
þessi mál myndi veikja aðstöðu
þjóðarinnar út á við og sam-
heldni þjóðarinnar á þessum
tímum telja þeir skipta meira
máli en allt annað.
Á mynd þessari sjást sjálfboð aliðar við vinnu við byggingu gufu-
baðstofunnar. Eins og sjá má hér á myndinni létu stúlkurnar ekki sitt eftir
liggja um að vinna að byggingunni.
A KROSSGÖTTJM
Hvalveiðarnar að hefjast. — Síld við Langanes. — Samvinnufélagabátarnir á
Sandi. — Sjómannadagurinn á morgun. — Vélaverkstæði Kaupfél. Árnesinga.