Tíminn - 03.06.1939, Síða 4
252
TÍMEVN, laugardaginn 3. jjiimí 1939
63. lílað
tJR BÆNUIU
Eru íslenzkar stúlkur
Norrænt æskulýðsmót
verður haldið að Laugarvatni 26. júní
til 4. júlí. Hafa 40 útlendingar tilkynnt
þátttöku í því. Samskonar mót hafa
áður verið haldin á öllum hinum Norð-
urlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
.n. móti þessu verða fluttir fyrirlestrar
um íslenzkt atvinnulíf, stjómmál,
verzlunarmál og ýms menningarmál.
Verða meðal fyrirlesaranna Hermann
Jónasson, Jónas Jónsson, Sigurður Nor_
dal og Stefán Jóhann Stefánsson. —
Skemmtiferðir verða farnar um ná-
grennið, m. a. til Þingvalla og að Gull-
fossi og Geysi. Þeir íslendingar, er hafa
í hyggju að sækja mótið, þurfa að
senda umsóknir sínar til Guðlaugs
Rósinkranz fyrir 10. júní.
Árnesingamót.
Árnesingafélagið í Reykjavík hefir
ákveðið að halda Árnesingamót fyrir
Árnesinga austan fjalls og vestan á
Þingvöllum 24. og 25. júni næstk.
Gamlir peningasefflar.
Landsbankinn hefir ákveðið að draga
inn alla gamla peningaseðla, sem eru
í umferð. Eiga þeir að vera komnir í
bankann fyrir 1. júlí í ár. Nýjasta
prentunin á aðeins að vera i umferð
áfram.
K. F. U. M.
Almenn samkoma annað kvöld kl.
8%. Gunnar Sigurjónsson cand. theol.
talar. Allir velkomnir.
Bátaskýli Ármanns.
Ármenningar allir, sem geta komið
því við, eru vinsamlega beðnir að koma
til vinnu við bátaskýli Ármanns í Naut-
hólsvík í dag frá kl. 2—4 e. h. og á
morgun frá kl. 8—12 árd. Ef nægur
mannskapur kemur verður hægt að
ljúka við að reisa. Fjölmennið þess-
vegna.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni klukkan 11, séra
Bjarni Jónsson, klukkan 5 séra Friðrik
Hallgrímsson. — í fríkirkjunni kl. 5,
séra Árni Sigurðsson. — í fríkirkjunni
í Hafnarfirði kl. 2, séra Jón Auðuns.
MOLAR
Nú er sá tími kominn, að
vegavinna stendur sem hœst.
Oft er glatt á hjalla meðal vega-
vinnumanna að afloknu dags-
verkinu, ekki hvað slzt á fjöll-
um uppi. Til þess bendir llka
þessi landfleyga vísa, sem ort er
undir sllkum kringumstœðum og
að öðru leyti skýrir sig sjálf:
Oft á hausti svannar sungu
sœtt í moll og dúr
í Vaðlaheiðar-vegamanna-
verkfœrageymsluskúr.
að falla fyrir sjávarhamra?
(Framh. af 3. síðu)
VI.
Það væri með öllu fráleitt, ef
einhverjar af þeim ungu stúlk-
um, sem hér eiga hlut að máli,
vildu halda því fram, að kynn-
ing þeirra við útlendu sjóliðana
væri algert einkamál þeirra.
Þessu er ekki svo háttað. Þessi
kynning er einhver frjóasta
uppspretta háskalegra og afleið-
ingaríkra sjúkdóma. Viðvan-
ingar þeir, sem hér eiga hlut að
máli, hafa orðið og verða árlega
sýkilberar í landi. Veikindi
sjálfra stúlknanna, og veikind-
in, sem breiðast út frá þeim,
verða almenn mannfélagsmein.
Fyrir utan hörmungar fólksins
sjálfs, sem veikist, kosta þessar
lækningar ríkissjóð of fjár á
hverju ári.
En þó að veikindahættan sé
mikil, þá er þó mannorðshætt-
an meiri. Það er óþolandi til-
hugsun fyrir íslendnga, sem eru
að reyna að verða og vera frjáls
menningarþjóð, að vita mikinn
fjölda af þeim ungu konum,
sem eiga að verða góðar hús-
mæður og öruggir borgarar í
hinu litla, íslenzka ríki, koma
þannig fram, að þær verði sjálf-
um sér og þjóð sinni til opin-
berrar stórminnkunar og háð-
ungar. Því að það mega þessar
ungu reynslulausu konur vita,
að lítið gagna þeim lánaðar
tízkufjaðrir frá París eða Holly-
wood, ef vírðing þeirra er glötuð.
VII.
Ég er þó enganveginn bölsýnn
um framtíðina í þessu efni. Sú
var tíðin, að við kunnum ekki
að stýra skipi, gera vegi, brýr
eða varanleg hús. í þessum efn-
um gekk okkur ekki heimska til,
heldur kunnáttuleysi. Við lærð-
um þessi verk og mörg önnur
vandasöm störf. Ég álít, að hið
sama muni gerast í þessu efni.
íslenzkt kvenfólk er engir skyn-
skiptingar. Almennt er álitið af
dómbærum mönnum, að íslenzk-
ar konur standi öllu framar
samlendum karlmönnum, og
ekki sízt um skapgerð. Ég er
einn af þeim, sem hallast að
þessari skoðun. Og út frá þeim
sjónarhætti lít ég á þá taum-
lausu niðurlægingu allmargra
íslenzkra kvenna eins og sjúk-
dóm, sem megi lækna, eins og
ryð á góðu stáli, sem liggur laust
á góðmálminum. Hér sé fyrst
um að kenna lélegu uppeldi og
samtíðaráhrifum.
Mjög margir foreldrar, einkum
í bæjunum, sinna börnum sín-
um of lítið. Heimilin eru í hálf-
gildings upplausn. Þar er hvorki
festa eða friður. Síminn, út-
varpið, kvikmyndahúsin, gatan,
lélegir dansleikar og bjánalegir
eldhúsrómanar eru máttugir
þættir í bráðabirgðauppeldi því
sem nokkuð mikill hluti ís-
lenzkrar æsku á við að búa.
Þegar meinsemdin er fundin,
þá er oft hægt að lækna sjúk-
leikann. Höfuðstaðarbúum og
öðrum, sem hafa við sama böl
að búa í þessum efnum, verður
að vera ljóst, að uppeldið þarf
að breytast og batna. Heimilin
og skólarnir þurfa að verða
æsku landsins miklu meiri
styrkur heldur en nú gerist. En
hér í bænum verður vafalaust
gripið til skjótra úrræða til að
breyta háskalegri tízku. Mér
þykir sennilegt, að öll aðalblöð
landsins muni standa saman
um að vara við hættunni. Ég
hefi ástæðu til að halda, að bæði
ríkisvaldið, kirkjan og margir
góðir læknar muni vinna í ein-
ingu að því að hreinsa ryðblett-
inn af stálinu. Á þennan hátt
skapast á tiltölulega skömmum
tíma nýtt almenningsálit, þann-
ið, að engin heiðvirð, íslenzk
stúlka lætur sjá sig með ó-
kenndum útlendum sjóliðum.
Hér verður því miður, eins og í
öðrum hafnarbæjum, nokkrar
konur, sem drekka og slarka
hvar sem er, og með hverjum
sem er. En staða þeirra er ekki
svo glæsileg, að hún muni freista
ungra kvenna, ef málið hefir
verið skýrt opinberlega, svo sem
vænta má að verði eftir pólska
atburðinn á fimmtudaginn var.
Voldug bylgja heilbrigðs al-
mannadóms mun rísa í landinu
og verða varnarveggur ungum
konum móti hinum niðurlægj-
andi kynnum við erlenda menn.
En að baki þessa almennings-
álits er eitt úrræði enn, borið
fram af tækni nútímans. Það
eru hinar litlu og léttu kvik-
myndavélar, með litfilmum. Ef
lögreglan hefir slíkar vélar í
höndum sér, og tekur smáfilmur
niður á bryggju, á götunum, inni
í portum, í kirkjugörðunum og
holtunum kringum bæinn, þá
skapast strax dýrmætt mynda-
safn, m. a. fyrir læknana, sem
fá, við að skoða slíkar kvik-
myndir, gagnlegar bendingar
um útbreiðsluskilyrði sjúkdóma.
En þessar myndir mundu hafa
aðra þýðingu. Þær myndu verða
öflug viðvörun fyrir hinar ó-
gætnu ungu konur. Þær myndu
vilja margt annað fremur, en að
lögreglan gæti sýnt litfilmu af
fallegu Hollywood-fötunum, vel
máluðu andlitunum, og útlend-
um sjóliða í einkennisbúningi
sínum. Litfilman í höndum
lögreglunnar er síðasta varnar-
línan í þessu viðkvæma máli.
Ef feður og mæður, kennarar,
prestar, blöð og ríkisvöld megna
ekki að skapa heilbrigðar venjur
um skipti við útlendinga, þá
verður gripið til litfilmunnar.
Með henni má hreinsa götur og
torg, eins og vélbyssa sópar and-
stæðum hermönnum af ber-
svæði.
Sá menningarvanmáttur, sem
hér hefir verið lýst, er ósam-
rýnanlegur við þær kröfur, sem
íslenzka þjóðin alveg réttilega
gerir til sjálfrar sín. Hér er um
að ræða þýðingarmikið sjálf-
stæðismál, sem of lengi hefir
verið vanrækt. En nú er sóknin
hafin, og verður ekki stöðvuð
fyrr en fullur sigur er unninn
fyrir íslenzkan metnað og
manndóm. Sorgarsagan um
sextán ára stúlkurnar og
drukk'nu, pólsku sjómennina á
að hljóma um allt land og vekja
menn til heitrar sóknar móti
öllum þeim öflum, sem um langa
stund hafa freistað efnilegra,
ungra kvenna út á hálan ís
skyndikynningar við erlenda
sjóliða. J. J.
Bezta smurningsolían á sauma-
vélar, ritvélar og aðrar smærri
vélar
P F A F F
Skólavörðustíg 1. Sími 3723
Fréttabréf til Tímans.
Tímanum er mjög kærkomið
að menn úti á landi skrifi blað-
inu fréttabréf öðru hvoru, þar
sem skilmerkilega er sagt frá
ýmsum nýmælum, framförum
og umbótum, einkum því er
varðar atvinnulífið. Allar upp-
lýsingar þurfa að vera sem
fyllstar og gleggstar, svo að ó-
kunnugir geti fyllilega áttað sig
á atburðum, fyrirtækjum og
staðháttum, sem lýst er.
Mörgum mun ef til vill finn-
ast fátt til frásagnar úr fá-
mennum og strjálum byggðum.
En þó mun mála sannast, að i
hverju byggðarlagi gerist nokk-
uð það, sem tiðindum sæti, sé
vel að gætt.
Skrifstofa
Framsóknarflokkslns
“““"“GAMLA eí5—o—o^o.
Dr. Yogami frá
Lonclon
„VARGÚLFURINN“
Óvenjuleg og hroðalega
spennandi amerísk kvik-
mynd um þjóðsöguna, að
menn geti breytzt í „varg-
úlf“-veru, sem er að hálfu
leyti maður og að hálfu
leyti blóðþyrstur úlfur.
Aðalhlutv. leika:
WARNER OLAND,
HENRY HULL og
VALERIE HOBSON.
Börn fá ekki aðgang.
NÝJA BÍÓ*°~<>~<>~
Það var hún,
sem byrjaði.
F y r s t a flokks amerísk
skemmtimynd frá Warner
Bros, hlaðin af fyndni og
fjöri, fallegri músik og
skemmtilegum leik.
Aðalhlutverkið leikur
eftirlætisleikari allra kvik-
myndavina:
ERROL FLYNN
og hin fagra
JOAN BLONDELL.
Lögtak.
Eftir beiðni Sjóvátryggingarfélags íslands
og að undangengnum úrskurði verður lögtak
látið fara fram fyrir ógreiddum brunabóta-
gjöldum með gjalddaga 1. apríl s. 1., virðingar-
kostnaði, dráttarvöxtum, að átta dögum liðn-
um frá birtingu þessarar auglýsingar.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 31. maí 1939
Björn Þórðarson.
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRSSTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Newspaper
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor
does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them,
but deals correctively with them Features for busy men and all the
family, including the Weekly Magazine Section.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street. Boston. Massachusetts
Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for
a period of
1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday issue. including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 25o
Name_____________________________________________
Address__________________________________________
Samþle Coþy on Request
Á næstkomandi hausti hefi ég til sölu 80—90 silfurrefa-
unga, frá loðdýrabúinu á Gunnarshólma. Ungarnir eru fæddir
snemma í marz og april; 30 undan 1. verðlauna alsilfurrefum.
l Einnig hefi ég, ef óskað er, reynd karldýr eins og tveggja ára,
alsilfur að lit. Sömuleiðis eru til sölu nokkur minnkatríó.
Talið við mig um verðtilboð áður en fest eru kaup annars-
staðar.
Gumiar S. Slgiirðsson „Von“, sími 4448.
62 Wílliam McLeod Raine:
Jane nam staðar í svefnherberginu við
hliðina, og bar þar fram spurningarn-
ar.
— Hver er þessi maður, Molly?
— Hann segist heita Taylor, en ég
trúi því ekki.
— Hvers vegna trúir þú því ekki?
— Hann svo gott sem sagði mér að
það væri ekki satt.
— Hvers vegna segir hann það þá?
— Ég býst við að hann vilji ekki
segja sitt rétta nafn. Stafirnir hans
eru W. B.
— Hvernig veiztu það?
— Ég sá það í hattinum hans.
— Hann talar eins og maður frá Suð-
urríkjunum, dálítið drafandi.
— Já.
— Veiztu ekkert um hann?
— Hvað viltu vita, frænka? Ef þig
langar mikið til að vita eitthvað um
hann, þá getum við yfirheyrt hann.
— Hvernig gæti annað átt sér stað,
en að mig langaði til að vita eitthvað
um hann? Ungfrú Macmillan talaði í
skipunarróm. — Ég heyri að hann hafi
bjargað lífi frænku minnar og verið
síðan eínn með henni þrjá daga og þrjár
nætur í eyðikofa, eða það skildist mér á
Frank, þegar hann kom. Ef þetta er
ekki rétt, þá bið ég þig að leiðrétta það.
— Þetta er alveg sat.
Flóttamaöurinn frá Texas 63
— Ég býst varla við að þið hafið
bæði verið mállaus allan þann tíma.
Hver er hann? Hvaðan kemur hann?
Hvernig kom hann fram gagnvart þér?
— Ég veit ekki hver hann er eða hvað-
an hann kemur. Ég býst við að hann sé
einn af mönnum Clem Oaklands. Hvað
framkomu hans við míg snertir, þá var
hún afleit.
— Hvernig þá, var hann vondur við
þig?
— Hann er ruddi.
— Þú átt við-------?
— Nei, ég á alls ekki við neitt slíkt.
Molly var að bera sápu á þvottaklút og
var ákaflega eyðslusöm á hana. — Hvað
það snertir var rét eins og pabbi hefði
verið með mér, þú getur dregið andan
léttara þess vegna.
— Þetta nægir Molly. Ég sé ekki hvað
þú hefir út á hann að setja, úr því hann
bjargaði lífi þínu og kom fram við þig
eins og prúðmenni.
— Sagði ég að framkoma hans hefði
verið þannig, sagði Molly og hló napurt.
— Hann sagði mér rétt strax eftir að
fundum okkar bar saman, að hann væri
ekkert prúðmenni. Hann hefði getað
sparað sér það ómak, því að ég hafði
þegar orðið þess vör.
— Segðu mér hreint út hvað þú átt
við. Móðgaði hann þig?
í Reykjavík
er á Lindargötu 1D
Framsóknarmenn utan af
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið því við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Til auglýsenda.
Tíminn er gefinn út í fleiri eintökum
en nokkurt annað blað á íslandi. Gildi
almennra auglýsinga er í hlutfalli við
þann fjölda manna, er les þœr. Tíminn er
öruggasta boðleiðin til flestra neytend-
anna í landinu. — Þeir, sem vilja kynna
vörur sínar sem flestum, auglýsa þœr
þess vegna í Tímanum. —
Muuið lirslitakappleikinn
milli
K.R. Og Vals
i kvöld kl. 8,30