Tíminn - 06.06.1939, Síða 3
64. Mað
TÍMIM, j>rlgjwdagmn 6. júní 1939
255
A N N A L L
Afmæll.
Péíur Zophóníasson átti sex-
tugsafmæli 31. maí. Hann er
maður mjög kunnur sem ætt-
fræðingur og taflmaður og síð-
ast en ekki sízt sem forystumað-
ur í félagsskap templara og
þrautseigur baráttumaður á
sviði bindindismálanna. Vinir
Péturs héldu honum samsæti
um kvöldið í Oddfellowhúsinu
og færðu honum ýmsar gjafir til
minningar um þenna dag.
Benedikt Björnsson bóndi í
Krossholti í Kolbeinsstaða-
hreppi varð 90 ára 22. þ. m. —
Milli 40—50 manns, innan og
utan sveitar, heimsóttu hann
þennan dag. Sveitungar og ná-
grannar færðu gamla mannin-
um ágrafinn, vandaðan göngu-
staf að gjöf, en konu hans, Höllu
Guðmundsdóttur, sem er 82 ára,
stoppaðan hægindastól. — Þau
hjón tóku með afbrigðum vel á
móti gestahópnum og veittu af
mikilli rausn og prýði. Gamli
Benedikt skálaði drjúgum við
gesti sína og sá lítt á. Stóð hóf
þetta fram undir morgun. Samt
risu gömlu hjónin árla úr rekkju
næsta dag og tóku enn á móti
nokkrum gestum. Aðalræður
fluttu þeir Kr. H. Breiðdal á
Jörfa, er um leið afhenti Bene-
dikt stafinn og Gísli Þórðarson
hreppstjóri í Mýrdal, er afhenti
Höllu stólinn að gjöf frá ná-
grannakonum hennar. Auk þess
töluðu þeir Jón Hallvarðsson
sýslumaður, Jóhann Hjörleifs-
son verkstjóri í Reykjavík og
Magnús Sigurðsson bóndi Mikla-
holti. — Bæði eru þau hjón ern
vel og búa sjálfstæðu búi, að
vísu með aðstoð tveggja barna
sinna, sem eru ógift.
Dánardægur.
Broplaug Sölvadóttir á Arn-
heiðarstöðum í Fljótsdal andað-
ist hinn 5. maí síðastliðinn á
sjúkrahúsi í Reykjavík, að af-
stöðnum uppskurði. Hún var
dóttir Sölva heitins Vigfússonar
hreppstjóra og Sigríðar Sigfús-
dóttur húsfreyju að Arnheiðar-
stöðum. Droplaug var rösklega
fertug að aldri, fædd 16. febrúar
1898.
Jón Kristjánsson bóndi í
Glaumbæ í Reykjadal varð ör-
endur 20. mai á túninu í Glaum-
bæ, tæplega 71 árs að aldri. Var
hjartaslag banamein hans. —
Hann var fæddur í Úlfsbæ i
Bárðardal, sonur hjónanna þar,
Elínar Jónsdóttur og Kristjáns
Jónssonar. Var hann á sínum
yngri árum einn meðal frum-
kvöðlanna að því að teknar
voru upp eftirleitir á öræfunum
suður af Bárðardal. •— Jón gift-
ist eyfirzkri konu, Lilju Björns-
dóttur, og byrjuðu þau búskap
sinn í Landamótsseli í Köldu-
kinn, en fluttu að Glaumbæ um
aldamótin og hafa búið þar í
nær 40 ár. Lifir Lilja mann sinn,
ásamt þrem börnum, er þau
eignuðust. Eru það Fanney hús-
freyja í Hvarfi í Bárðardal, El-
in húsfreyja í Skógarseli í
Reykjadal og Kristján bóndi í
Glaumbæ. Jón verður jarðsett-
ur í dag að Einarsstöðum.
voru greidd full 966 þúsundir at-
kvæða, en að eins rúm 85 þús-
und atkvæði á móti. Frá þessu
sjónarmiði er niðurstaðan frá-
leit, en þó næsta eðlileg. Gald-
urinn er blátt áfram sá, að slík
atkvæðagreiðsla verður alger-
lega af hinum persónulega á-
huga og vígsgengi, sem svo
miklu ræður í almennum kjör-
dæmakosningum, og rekur jafn-
vel hvern einasta kjósanda að
kjörborðinu í sumum sveitum.
Frá almennu sjónarmiði, mætti
það og virðast dálítið viðsjál
lífsspeki, að gera letinni jafnt
undir höfði og „framtakinu“. Og
fyrir því er þessi atkvæða-
greiðsla svo lærdómsrík.
Hér á landi hefir raunin af
þjóðaratkvæðagreiðslu orðið lík,
nema síður sé, og má af því sjá,
hve frámunalegt glapræði það
var, að sinna kröfum Dana um
að 75% af kjósendum þyrfti til
að slíta sambandinu við þá. En
væntanlega sýnir þessi hrakför
þeirra þeim, hve óbilgjarnt á-
kvæðið er, og að þeim verði því
Ijúft að losa dálítið um hnapp-
helduna áður en étur inn í bein
og fótinn grefur undan hross-
inu.
ÍÞRÓTTIR
Knattspyruau
20°lo 30°lo 45°|
O S T A E
Gula bandið
er bezta og ódýrasta sinJörlíkiS.
Keppni í fyrsta flokki knatt-
spyrnufélaganna í Reykjavík og
Reykj avíkurmót meistaraflokk-
anna hafa staðið yfir undan-
farna daga.
Þann 1. þ. m. keppti fyrsti
flokkur K. R. og Fram. Vann K.
R. leikinn með 8:0. Hefir K. R.
allsterkt lið í fyrsta flokki, enda
hafði það yfirhöndina í leiknum
til enda.
Þann 2. þ. m. keppti Víkingur
og Fram í meistaraflokki. Úrslit
urðu þau, að Víkingur vann með
2:0. Leikurinn var nokkuð jafn,
en Framörum mistókst oft illa,
fyrir framan markið, eins og vill
brenna við hjá félögunum yfir-
leitt.
Síðastliðið laugardagskvöld,
fór fram úrslitakappleikur
Reykjavíkurmótsins milli Vals
og K. R. Var það að mörgu leyti
góður leikur, með mörgum
snjöllum upphlaupum, sem, því
miður, enduðu flest í ráðaleysi
leikmanna, þegar upp að marki
kom og átti að fara að skjóta
á markið.
Leikurinn endaði með sigri
Vals 2:1. Er Valur vel að sigri
þessum kominn, því tvímæla-
laust er hann sterkasta félagið
hér í Reykjavík.
Til gamans má geta þess, að
á síðustu þrem árum, hefir
meistaraflokkur Vals leikið 33
leiki. Þar af hefir hann unnið
22, gert jafntefli á 10 og tapað
1.
Stigafjöldi meistaraflokkanna
eftir mótið, er þá þess:
Valur.............5 stig
K. R..............3 ”
Víkingur..........3 ”
Fram ............1 ”
Síðastliðinn sunnudag kepptu
Fram og Víkingur í I. fl. og vann
Víkingur leikinn með 2:1.
í gærkvöldi sigldi Fram til
Danmerkur með 20 manna lið.
Er félaginu boðið þangað af
Dansk Boldspil Union, i tilefni
af 50 ára afmæli þess. Mun Fram
keppa 4 leiki í Danmörku, á þess-
um stöðum: Sorö, Odense,
Rönne, og Tömles. Fararstjóri er
Brynjólfur Jóhannesson leikari.
Vonandi er, að Fram gangi vel
í þessari utanför sinni, og komi
heim meö heilt lið og heila sigra.
§nðln
fer vestur og norður miðviku-
dag 7. þ. m. kl. 9 síðdegis.
Aukahafnir: Búðir, Staðarfell og
Bolungarvík.
Tekið á móti flutningi til há-
degis. — Pantaðir farseðlar
óskast sóttir sem fyrst.
frá Mjólkursamlagi Eyfirðinga
alltaf fyrirliggjandi
í heildsölu.
Samband ísl. samvinnuiélaga
1 heildsölu h|á
Samband ísl.samvlnnufélaga
Slmi 1686.
Sími 1080.
Hraðferðir B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. —
M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á
Bifreiðastöð íslands, sími 1540.
Blfreiðastöð Akureyrar.
IÚTBREIÐIÐ TÍMANNA
I V É ■ ■
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. S0NNENCHEIN.
ÍSSS5ÍS55ÍS55555Í5555555555555555555555S555545555555555555555545S55554555555555
Sígurður Olason &
Egíll Sígurgeírsson
Málllutningsskrifstofa
Austurstræti 3. — Símí 1712
TAPAZT hefir mósóttur hestur
óafrakaður og ójárnaður. Mark:
fjöður fr. hægra; fjöður aftan
vinstra. Sá, er verða kynni hests-
ins var, er beðinn að gera að-
vart í síma að Hrafnkelsstöðum
í Mýrasýslu.
Ágætt orgel
til sölu.
Upplýsingar Haðarstíg 20. —
Sími 5190.
Kaupendur Tímans
eru vinsamlega beðnir að láta
afgreiðsluna vita um breytingar
á heimilisföngum, til að fyrir-
byggja töf á blaðinu til þeirra.
Til auglýsenda!
Tíminn er gefinn út í
fleiri eintökum en nokk-
urt annað blað á íslandi.
Gildi almennra auglýs-
inga er í hlutfalli við
þann fjölda manna er les
þær. Tíminn er öruggasta
boðleiðin til flestra neyt-
endanna í landinu. —
Þeir, sem vilja kynna vör-
ur sínar sem flestum
auglýsa þær þessvegna í
Tímanum —
72
Willíam. McLeod. Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
69
Útbreiðið TÍMAXN
WWWMWWS*
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
Happdrætti
Háskóla íslands
í 4. til 10. flokkí eru
4300 vínníngar
samtals 918 þúsund krónur.
Enn er tækifæri að
kaupa miða
um, sem er hérna í hesthúsinu? spurði
Prescott grimmdarlega.
Taylor leit á húsbóndann.
— Það er heil saga, út af fyrir sig,
sagði hann blátt áfram. Ég býst ekki
við að ég fari að segja hana núna, herra
minn. Ég vil aðeins minna á það, að þó
maður ríði hesti merktum C. O., þarf
hann ekki endilega að vera einn af
mönnum Clem Oakland’s. Ef köttur ætti
kettlinga í ofni, væru þeir þá orðnir að
kökum, eða hvað?
— Slíkt þvaður þýðir ekkert við mig,
lagsmaður, hreytti Prescott út úr sér.
Annað hvort ertu einn af mönnum Clem
Oakland’s, eða þú ert það ekki. Hvort er
heldur? Ef þú þarft ekkert að fela, hvers
vegna kemur þú ekki til dyranna eins
og þú ert klæddur?
Svipurinn á andliti Taylors harðnaði.
— Ég verð að játa það, Prescott, að ég
skil þig ekki fyllilega, sagði hann og lág
röddin líktist næstum urri. Ert þú guð
almáttugur þessa héraðs, eða hvað?
Þarf ég að þylja upp ættartölu mína og
sýna vegabréf? Ég hefi þegar sagt þér,
að ég þekki ekki þennan Oakland. Hvers
vegna þarf ég alltaf að vera að endur-
taka það?
— Þú hefir ekki sagt mér, hvernig á
þvi stendur, að þú reiðst hesti hans.
— Það er aðeins hálfur sannleikur,
vel og þú hvaða vandræðamenn Clem og
hans piltar eru. Mitt ráð er að láta hann
ganga í snöruna og hengja sig sjálfan.
Einhvern daginn — og það áður en langt
um líður — mun honum verða á sú
skyssa, sem dugir, og þá skulum við losa
landið við hann.
— Þú veizt ekki hvað þú ert að segja,
drengur minn. Þessi mannskratti er ekki
síður refur en úlfur. Ef ég berst ekki
verður úti um bú mitt innan tveggja ára,
svo að annarhvor okkar vei'ður að víkja.
Taylor kom inn i stofuna, en stanzaði
á þrepskildinum. — Einkamál, herrar
mínir, sagði hann spyrjandi, eins og
hann vildi bjóðast til að fara, ef svo
væri.
Búgarðseigandinn skaut fram hök-
unni, um leið og hann sagði hranalega:
— Nei, herra minn. Ég var aðeins að
segja Walsh hvar ég stend gagnvart
Oakland og fólki hans.
— Ég er smeykur um að ég þekki það
ekki, svaraði Taylor.
— Einmitt það, sagði Prescott og það
var bæði auðséð og auðheyrt, að hann
trúði ekki. — Það er ekkert leyndardóms-
fullt við mína skoðun og hana mega allir
heyra. Ég held því fram, að Clem sé lyg-
ari, þjófur og morðingi og að þeir
þrælar, sem honum fylgja, séu rétt-
lausir hundingjar.