Tíminn - 27.06.1939, Page 2
290
TÍMmN, jirigjntlaginn 27. jiiní 1939
73. hlað
ígtminn
Þriðjudaginn 27. jiíní.
Samkeppni kaupfé-
laga og kaupmanna
Nmjor — smjörliki
Eftir Svein Tryggvason
Eins og mönnum mun lcunn-
ugt, hefir smjörið um langan
aldur verið eitt aðal feitmeti
hins menntaða heims. Sennilegt
þykir að Norðurlandabúar hafi
byrjað fyrstir að neyta smjörs-
ins. Einnig er þaö kunnugt, að
mjólkin inniheldur ekki nema
lítið af þessu feitmeti eða um
3%. Það hefir því frá upphafi
verið dýr fæða, hálfgerður rík-
ismanna matur. Þetta hefir orð-
ið þess valdandi, að menn hafa
reynt að finna upp allskonar
fæðutegundir, er gerðu sama
gagn og smjörið, en væru mun
ódýrari.
Árangur þessarar uppfinding-
arstarfsemi er svo smjörlíkið.
Smjörlíkið er upprunalega
fundið upp af frönskum manni,
fyrir rúmlega 60 árum síðan.
Það er samblöndun af ýmsum
feititegundum, aðallega kókos-
feiti, jarðhnotuolíu o. fl. Enda
þótt ekki hafi skort áhuga
smjörlíkisframleiðenda á því að
bæta vörugæðin og gera smjör-
líkið sem líkast smjöri, þá virð-
ast flestir sammála um að mik-
ill gæðamunur sé á þessum
tveim fæðutegundum.
Fyrir nokkrum árum var gildi
lega bundin við innflutning fyrri
ára. Þegar þessari kröfu, sem
hefði stöðvað heilbrigðan vöxt
kaupfélaganna um lengri tíma,
var ekki fullnægt, snerust þeir
gegn innflutningshöftunum. —
Virðist mega marka af því, að
kaupmenn hefðu sætt sig við
innflutningshöítin, ef þau hefðu
veriö látin stöðva vöxt kaupfé-
laganna, en hafi snúizt gegn
höftunum, sökum þess, að þau
tryggja, að svo miklu leyti sem
hægt er, heilbrigða samkeppni
milli kaupfélaga og kaupmanna.
Morgunblaðið gerir þessi mál
að umtalsefni síðastl. föstudag
og segir þar m. a.: „Þegar sú
stund kemur, að fært þykir að
afnema höftin, er „höfðatölu-
regla“ Framsóknarmanna að
sjálfsögðu hrunin til grunna.“
Þetta er eins mikill misskiln-
ingur hjá blaðinu og framast er
hægt að hugsa sér. Þá fyrst nýt-
ur „höfðatölureglan“ sín til fulls,
þegar innflutningurinn er orð-
inn frjáls. Vilji neytendanna
ræður því þá fullkomlega,
hvernig innflutningurinn skipt-
ist milli kaupfélaga og kaup-
manna. Kaupfélögin þurfa þá
ekki að eiga á hættu, að missa
mikið af nýjum viðskiptamönn-
um, sökum þess að þau geti ekki
fullnægt eftirspurn þeirra. Þess-
vegna óska samvinnumenn
einskis framar en að viðskipta-
örðugleikarnir hverfi, svo hægt
verði að gefa innflutninginn
frjálsan og höfðatölureglan —
reglan um rétt neytendanna til
að vera lóðin á vogaskálinni í
samkeppni kaupfélaga og kaup-
manna — geti notið sín til fulln-
ustu.
fæðutegunda metið eftir því hve
margar hitaeiningar (kaloríur)
1 kg. af fæðunni innihéldi. Síð-
ari tíma matvælarannsóknir
hafa leitt í ljós, að slíkt er ófull-
nægjandi mælikvarði. Fjörefna-
innihald og samsetning næring-
arefnanna að öðru leyti eru og
veigamikið atriði. Það er þetta,
sem smjörið hefir að bjóða um-
fram hið venjulega smjörlíki.
Um víða veröld hafa skapazt
allharðar deilur um þessar tvær
fæðutegundir. Hér á landi hefir
lítið farið fyrir slíkum deilum,
en þó er það svo, að dag hvern
heyja þessar fæðutegundir þög-
ula verzlunarbaráttu í hillum
matsölubúða vorra.
Samkvæmt áliti og tillögum
skipulagsnefndar atvinnuveg-
anna, var árið 1935 framleitt hér
á landi 1400 smál. af smjörlíki.
Sama ár framleiddu mjólkur-
búin um 115 smál. af smjöri.
Smjörlíkisframleiðslan mun
að vísu ekkert hafa aukizt síð-
an, en smjörframleiðslan hefir
sennilega því nær tvöfaldazt.
Inn i landið er nú flutt hráefni
í smjörlíki fyrir tæpa 1 milj.
króna. Út úr landinu er flutt
mjólkurfeiti í ostum fyrir því
nær ekkert verð, miðað við það,
er fengist fyrir feitina á inn-
lendum markaði 1 smjöri. Nokk-
ur blómleg býli þessa lands
leggjast i eyði á ári hverju af
því að ábúendur þeirra koma
ekki auga á arðvænlega fram-
leiðslu. Læknar og aðrir heil-
brigðisverðir gefa þær upplýs-
ingar, að mikill hluti þjóðarinn-
ar þjáist af næringarsjúkdóm-
um.
Þetta er ástand, sem þarf að
lagast!
Enginn verður ásakaður fyrir
slíkt ástand, því að það er líkt
og meinsemd, sem byrjað hefir
á meinlausan hátt; svo einn dag
verða menn varir við sársauka
og þá kemur meinsemdin í ljós.
Hér liggur falið óbrotið land til
handa mönnum til lands og til
sjávar. Ef land þetta er brotið á
réttan hátt mun það auka á
heilbrigði og bættan fjárhag
þjóðarinnar. Það má ekki leng-
ur svo til ganga, að menn hristi
höfuð og segi: „Þessar smjör-
prédikanir koma mér ekkert
við“. Ekki aðeins forvígismenn
þjóðarinnar verða að skilja
nauðsyn máls þessa, heldur hver
og einn þegn þjóðfélagsins.
Bændur verða að skilja, að það
er óhollur búskapur, að senda
hina hollu og góðu mjólkurfeiti
úr landinu, en kaupa síðan kó-
kosfeiti og ýmsar feitiblöndur
inn í landið í staðinn.
Kaupstaðamenn verða að
skilja, að það er vafasamt hvort
ódýrara er að smyrja brauð sitt
með smjörlíki og þurfa til upp-
bótar að kaupa pylsur og alls-
konar ofanálegg, eða notfæra
sér hið gamla og góða innlenda
feitmeti — smjörið.
(Framh. á 3. síðu)
OI r a u s n
Vatnsaflið og jarðhitinn eru
mikilsverð náttúrugæði, sem
ýmsar þjóðir mættu öfunda
okkur af. Enda miklu til kostað
til þess að virkja þessi gæði, og
þá eins og gengur ef til vill helzt
til mikill stórhugur i ráðagerð-
um, því öll meiriháttar útbygg-
ing á orku, hlýtur að hafa ekki
aðeins stofnkostnaðinn í för með
sér, heldur einnig reksturskostn-
að og jafnvel reksturstap fyrst í
stað, meðan verið er að koma
því fyrir sig, að nytja hina út-
byggðu orku.
Verður þetta glöggt til dæmis
í sambandi við Sogsvirkjunina.
Sogstöðin er reist fyrir erlent
lán, sem hrökk fyrir stofnkostn-
aði. En sé tekið tillit til kaupa á
ýmiskonar rafmagnstækjum og
rafsuðuáhöldum, sem hlutu að
fljóta í spor þessarar miklu
orkuvirkjunar, þá sér hver mað-
ur í hendi sér, sem út í þetta
hugsar, að fyrst i stað muni þessi
framkvæmd meir en lítið auka
gj aldeyrisþörfina, umfram það,
sem hún léttir hana með spör-
uðum kaupum eða með nýsköp-
un útflutningsverðmæta.
Einstaklingar og þjóðir eru
undir þá sök seldir, að hversu
álitleg íræði, sem þeir eiga völ,
þá er því aðeins fært að ráðast
í þau, að nægilegt bolmagn sé
fyrir hendi, ekki aðeins til þess
að koma því á stofn, heldur
einnig til þess að starfrækja það
þangað til að rekstursafkoman
er tryggð. Að öðrum kosti fer
allt í strand, og menn eiga á
hættu að komast í þrot. Þessar
staðreyndir virðast ekki vera
mönnum nægilega Ijósar.
Og þó hafa erfiðleikar undan-
farinna' ára kennt öllum al-
menningi mikið um lögmál við-
skiptalífsins.
Þeir hafa m. a. látið mönnum
skiljast, að það takmarkast af
útflutningsvörunum, magni
þeirra og verömæti, hvað við
getum keypt frá öðrum löndum,
eftir að við höfum lokið greiðsl-
um á umsömdum afborgunum
og vöxtum af því fé, sem við
höfum tekið að láni frá öðrum
þjóðum, greitt erlendan náms-
kostnað, halla á ferðakostnaði,
farmgjöldum o. s. frv.
Og svo lítið hefir magn og
verðmæti útflutningsins verið
nú um sinn, að við erum ekki
enn komnir úr vanskilaskuldum
þeim sem söfnuðust, þegar verst
áraði í þessum efnum, þrátt fyr-
ir innflutningstakmarkanir ann-
arsvegar og virðingarverða við-
leitni hinsvegar um að auka og
bæta útflutningsvörurnar.
Meðan svona stendur, verður
að gæta varnaðar við að ráðast
í tilkostnað, hversu æskilegur
sem hann annars kynni að
vera i sjálfu sér, sem þyngt geti
greiðsluþörf til annara landa.
Hitaveita Reykjavíkur er fyr-
irtæki sem sjálfsagt er að ráðast
í, jafnvel þótt fyrst í stað kynni
að þyngja á um gjaldeyri, sakir
þeirrar hættu sem yfir vofir um
aðkaup á eldsneyti ef til ófriðar
kæmi.
Björn á Núpí sextugur
í dag er gestkvæmt á Núpi
vestra. Fjölmenni er þar þó ekki.
Það eru hugirnir, sem halda að
Núpi til skólastjórans þar,
Björns Guðmundssonar. Einkum
munu þar fara Vestfirðingar, en
hópinn þennan fylla menn víðs-
vegar að af landinu.
Björn skólastjóri er fæddur á
Næfranesi í Dýrafirði 26. júní
1879. 1906 lauk Björn kennara-
'prófi við Flensborgarskólann.
Var hann næsta vetur barna-
kennari heima i sveit sinni. Fór
hann síðan utan og var erlendis
1907—08. Stuttu eftir nýár 1907
tók unglingaskóli séra Sigtryggs
Guðlaugssonar til starfa. Fyrstu
tvö árin eftir að Björn kom úr
utanför sinni, var hann kenn-
ari við ungmennaskólann, og
einnig barnakennari, en síðan
helgaði hann sig eingöngu ung-
lingakennslunni. 1918—19 var
Núpsskóli ekki starfræktur
vegna stríðsvandræðanna. Var
Björn þá skólastjóri á Akranesi.
Þaðan hélt hann aftur vestur
og var kennari skólans á Núpi
til 1924—25, að hann fór náms-
för til útlanda. Eftir heimkom-
una hefir hann verið óslitið
starfsmaður Núpsskóla, kennari
til 1929, og síðan skólastjóri.
Lífsstarf Björns er þríþætt.
Fyrst er skólamaðurinn. Björn
fór úr skóla með spár kennara
sinna um glæsilega framtíð.
Þess varð og þegar vart, að hann
var hinn ágætasti kennari, og
minnast nemendur hans kennslu
hans og handleiðslu fyrstu
starfsár hans með óblandinni
ánægju og hlýju. Það sýndi sig
þegar að Björn var ekki aðeins
fræðarinn, gerði glaðværðin
skólastofuna hlýja og bjarta.
Og það sem mest var um vert:
Kennarinn snart hina innstu
og viðkvæmustu strengi hinna
ungu sálna, strengi, sem enn
hljóma sérkennilegum hreim og
einkennandi fyrir nemendur
Björns á Núpi. Kunnugir munu
vita, að tilviljun ein hefir ekki
ráðið hvern séra Sigtryggur valdi
sér að samstarfsmanni við hinn
nýja skóla sinn. Vitnisburður
hínna elztu og yngstu nemenda
Björns fer mjög í eina átt, að
hann sé góður kennari. Nú á
síðari árum hefir reynt á hæfni
hans til skólastjórnar. Skóla-
En til dæmis kaup á dýru far-
þegaskipi, með fyrirsjáanlegum
taprekstri, jafnvel þótt fylli sína
fengi af fólki á skemmtiferða-
lögum, meðan þeirra þá nýtur
við, er fyrirtæki sem telja verð-
ur ógætilegt, og sízt til þess fall-
ið að auka okkur álit hjá erlend-
um lánardrottnum, eins og á
stendur, og þá allra sízt þeim,
sem einkum hafa orðið fyrir
vanskilum af okkar hálfu á
undanförnum árum, og búa við
þau enn.
Slíkar framkvæmdir hljóta að
teljast ofrausn, og verða til þar
sem skortir yfírlit um þjóðarhag.
G. M.
stjórastarf við heimavistarskóla
unglinga er vandasamt, og gerir
alhliða kröfur. Fullnægir Björn
þeim mörgum með prýði. Hann
er eindreginn bindindismaður,
og verða nemendur hans þar
fyrir sterkum áhrifum. Trú-
hneigður er hann einnig og gæt-
ir þess í starfi hans sem kenn-
ara og skólastjóra.
Björn á Núpi hefir mjög látið
til sín taka félagsmál. Lengi hef-
ir hann verið í Reglunni og
gegnt þar ábyrgðarstörfum.
Einkum hefir þó ungmennafé-
lagsskapurinn verið honum
hjartfólginn. Mjög lengi var
hann formaður U. M. F. Mýra-
hrepps, og enn er hann forseti
Héraðssambands U. M. F. V. Um
tíma var hann ritstjóri Skin-
faxa. Björn er fæddur félagsleg-
ur leiðtogi. Hann er glæsimenni,
framkoman hressileg og blátt
áfram og hin alúðlegasta, lundin
viðkvæm og næm fyrir góðu og
fögru, og áhuginn mikill fyrir að
fá þar einhverju framgengt.
Ræðumaður er Björn góður.
einkum er flutningurinn með á-
gætum. Á honum veltur og mest.
því að oftast er tilgangurinn aö
hvetja og glæða góðleik áheyr-
endanna og örva þá til að taka
sér fram í manndómi. Menning-
arbragur vestfirskra ungmenna -
félaga er mjög runninn frá Birni
á Núpi. Hefir hans víða gætt
innan félagsska.parins. Björn var
forseti bezta sambandsþings U.
M. F. í., sem háð hefir verið hin
síðari ár, og þökkuðu ýmsir þaö
að verulegu leyti forystu Björus.
Björn Guðmundsson er skóla-
maður góður og félagslegur lelð-
togi, en hann er einnig þegn
þjóðfélags síns, sé miðað við
þrengra svið, í bezta lagi. Áhuga-
samur er hann um þjóðmál, og
hefir hann verið frá upphafi
Framsóknarflokksins, eindreg-
inn fylgismaður hans. Hugsjónir
flokksins, þær sem hófu hann til
vegs og valda með þjóðinni, eru
hjartans mál Björns, sterkur
þáttur i lífsskoðun hans. Það er
enginn lítilmannlegur hags-
munakeimur að tali Björns um
stjórnmál. Það byggist heldur
ekki á löngun til persónulegrar
(Framh. á 3. síöu)
Eíríkur Eiríksson forsetí U.M.F.I.
Starf ogf stefna
ungmennafélagfanna
íhaldsblöðin halda enn áfram
að tönnlast á þeim marghröktu
fullyrðingum, að innflutnings-
höftin séu fyrst og fremst sett
vegna kaupfélaganna. Þau tala
með stórum og digurbarkalegum
orðum um misbeitingu haftanna
kaupfélögunum í vil, en forðast
þó jafnframt eins og brennt
barn eldinn, að nefna eitt ein-
asta dæmi máli sínu til sönnun-
ar. Með því sýna þau gleggst,
hversu algerlega þau fara með
staðlaust fleipur.
Það má furðanlegt heita, að
til skuli vera svo þverlyndir og ó-
bilgj arnir menn, að þeir skuli
halda fram sömu ósannindunum
ár eftir ár, þótt þau hafi marg-
sinnis verið leiðrétt og öllum
landsmönnum, er nokkuð fylgj-
ast með málum, sé því orðið
löngu kunnugt um tilhæfuleysi
þeirra. Slíkt gagnar vissulega
ekki þeim málstað, sem þessir
menn þykjast styðja. Jafn ótrú-
legt má lika telja það, að til
skuli vera ritstjórar við tiltölu-
lega fjöllesin fréttablöð, sem
láta eins og þeim sé með öllu ó-
kunnugt um viðskiptaöröugleika
undanfarinna ára og það þá
jafnframt, að þessir örðugleikar
einir eru orsök innflutningshaft-
anna og hafa gert þau óhjá-
kvæmileg.
Það einkennilega kemur
stundum fram í skrifum íhalds-
blaðanna, að þau láta eins og
samvinnumenn séu hlynntir
höftum á innflutningnum og
vildu halda þeim, þótt ástandið
batnaði. Þetta er í fullkominni
og beinni mótsögn við það, sem
samvinnumenn hafa haldið
fram og barizt fyrir frá fyrstu
tíð. Þeir hafa jafnan óskað eftir
frjálsri samkeppni við kaup-
mennina. Reynslan hefir líka
hvarvetna sýnt, að samvinnu-
menn hafa ekki þurft að óttast
slíka samkeppni. Sá rétti skiln-
ingur neytendanna, að þeim
væri hagkvæmara og hollara að
vera í kaupfélagi en verzla við
kaupmenn, hefir aukizt með ári
hverju og birzt í hraðfara vexti
kaupfélaganna.
Innflutningshöftin, sem hér
hafa verið á undanförnum árum,
hafa á ýmsan hátt gert aðstöðu
kaupfélaganna í þessari sam-
keppni, örðugri en áður. Má í
því sambandi m. a. geta þess, að
kaupfélögin hafa fengið minni
innflutning á ýmsum vörum en
þeim hefir borið samkvæmt fé-
lagsmannatölu sinni. En þrátt
fyrir þennan ágalla og ýmsa
fleiri, sem gert hafa aðstöðu
kaupfélaganna lakari, hafa sam-
vínnumenn ekki viljað snúast
gegn höftunum, heldur stutt
þau, því þeir hafa séð og viður-
kennt hina þjóðhagslegu nauð-
syn þeirra, meðan viðskiptaörð-
ugleikarnir héldust.
Það sést líka gleggst á afstöðu
samvinnumanna til haftanna,
að þeir óska einskis frekar en
frjálsrar samkeppni milli kaup-
félaga og kaupmanna. Þessvegna
hafa þeir lagt megináherzlu á
það, að höftunum væri beitt
þannig, að innflutningur til
kaupmanna og kaupfélaga ykist
eða minnkaði eftir vilja neyt-
enda. Ef neytendur óskuðu frek-
ar að verzla við kaupmenn og
gengu úr kaupfélögunum, á inn-
flutningur kaupfélaganna að
minnka. Æski neytendur hins-
vegar að skipta við kaupfélögin
og ganga í þau, ber þeim aukinn
innflutningur. Þetta fyrirkomu-
lag haftanna, sem stundum er
nefnt höfðatölureglan, er eina
færa leiðin til að tryggja nokk-
urnveginn frjálsa samkeppni
milli kaupfélaga og kaupmanna
meðan höftin haldast.
Afstaða kaupmanna til haft-
anna lýsir öðru viðhorfi til
frjálsrar samkeppni milli kaup-
félaga og kaupmanna. Þeir hafa
krafizt þess, að innflutnings-
höftunum yrði beitt þannig, að
raunverulega hætti öll sam-
keppni milli þessara aðila, en
hvor um sig fengi einskonar ein-
okun á verzluninni við þá neyt-
endur, sem þeir hefðu áður skipt
við. Krafa þeirra hefir verið sú,
að ínnflutningsleyfi yrðu alger-
NIÐURLAG
„Án ungmennafélaga væri
enginn skóli á Laugum, Laugar-
vatni, Reykholti og Reykjum“,
segir í blaði Framsóknarflokks-
ins, Tímanum, 1937.
Og þetta er einnig dægurmál.
Ungmennafélögin í Eyjafirði
eiga nú ríflegan alþýðuskólasjóð,
félögin vestra styrkja stöðugt
Núpsskólann og þannig mætti
lengi telja.
Nú er tími til kominn og er
það stefnumál ungmennafélaga,
að hugsjón sr. Jakobs Lárusson-
ar, fyi’sta skólastjóra Laugar-
vatnsskólans, rætist, er hann
segir: „Ég hugsa mér að lokum
skólana sem miðstöð ungmenna-
starfsemi þeirrar, sem við erum
með í og hundrað annara ung-
menna úti um land. — Þeir sem
í skólana hefðu gengið, ættu að
verða nokkurskonar æðar, er
flyttu frá hjartanu, skólunum,
lifandi strauma allskonar þjóð-
lífsgæða út um líkama þjóðar-
innar“.
Við ungmennafélagar viljum
enn sem fyrr styrkja héraðsskól-
ana sem við getum frekast og
væntum hins bezta af forráða-
mönnum þeirra hugsjónum okk-
ar og félagsskap til viðgangs.
Við höfum þegar tekið að
senda menn í skólana, ekki í sér-
félagslegu áróðursskyni, ekki til
þess að eyðileggja hollan félags-
skap, er þar kann að vera fyrir,
heldur til þess að vinna að því að
alþýðumenningar-hugsjón sr.
Jakobs Lárussonar og Guðm.
Hjaltasonar rætist um sveitafé-
lög og sveitaskóla, er vinni í eina
átt.
Er rætt er um menningarstarf
ungmennafélaga, ber að nefna
útgáfu-starfsemi þeirra. Þar er
fyrst að nefna Skinfaxa, tlmarit
félaganna. Hafa áhrif hans oft
verið mjög mikil, og þó einkum,
er Jónas Jónsson fyrv. ráðherra
var ritstjóri hans. Varð Jónas
landskunnur fyrir skrif sín þar
og blaðið frægt. Um skeið valt
á ýmsu fyrir Skinfaxa. Nú kemur
hann út tvisvar sinnum á ári í
3500 eintaka upplagi. Er hann
vandaður að efni og allur frá-
gangur hínn snyrtilegasti. Ein-
stök héraðasambönd gefa út
einskonar tímarit eða ársrit svo
sem Héraðssamband Eyjafjarð-
ar. Sérstaklega ber að geta hér
um nýútkomið rit frá Ung-
mennasambandi Borgarfjarðar.
Heitir það Svanir og er hið
snotrasta að efni og frágangi. Er
tilætlunin að halda útgáfu rits
þessa áfram ár hvert. Ber ritið
vott hins fagra héraðs og holla
félagsskapar, er þróast þar undir
merkjum ungmennafélagsskap-
arins. Er það mikið rit að vöxt-
um, um 28 arkir í stóru broti,
enda er útgáfukostnaður á 9.
þúsund króna, enda þótt mikill
hluti vinnunnar við samningu
ritsins væri gefinn. Allir eru á
einu máli um að ritið sé vel úr
garði gert hvað ytra útlit snertir
og sagnfræðingar hafa yfirleitt
látið ánægju sína í ljósi yfir efni
þess. Er þetta öllum ungmenna-
félögum og vinveittum mönnum
félagsskapnum, fagnaðarefni er
þess er gætt að gangi sala ritsins
illa er útilokuð flest starfsemi
Ungmennafélags íslands á
næstu árum.
IV. grein stefnuskrár Ung-
mennafélags íslands fjallar um
atvinnumál. Hefir sú grein vakið
nokkrar deilur innan félaganna,
en flestir menn nú á einu máli
um að hún eigi mikinn rétt á sér
svo sem hún er framkvæmd. Síð-
astliðið sumar starfaði Haukur
Jörundsson kennari á Hvanneyri
á vegum sambandsins. Leið-
beindi hann unglingum í ræktun
í Árnes- og Rangárvallasýslum.
Nutum við til þessarar starfsemi
styrks frá Búnaðarfélagi íslands
og S. í. S. Einnig ber að geta um
verulegan stuðning, er Ingimar
Sigurðsson, formaður hins ís-
lenzka garðyrkjufélags, veitti
okkur við þessa starfsemi.
Árangur mun hafa orðið nokkur
af þessari starfsemi og er hún þó
enn mjög á tilraunastigi. Vegna
fjárskorts verður þetta ekki rek-
ið með þeim krafti sem skyldi.
Er fjárhagur sambandsins, svo
sem ráða hefir mátt af framan-
sögðu bágborinn og eru tekjur
sambandsins raunverulega að-
eins nokkur ríkissjóðsstyrkur. —
Þó mun Haukur^ Jörundsson
starfa í sumar nokkuð á okkar
vegum um Borgarfjörð og ef til
vill víðar. í vetur sendum við
ungan búfræðing til Svíþjóðar
til þess að kynna sér fram-
kvæmdir búnaðar- og ræktunar-
sambanda æskulýðsins í Svíþjóð.
Mun hann dvelja í Svíþjóð um 5
mánaða tíma á tilraunabúi. Ekki
er útilokað, að við getum á
næsta ári sent mann utan í sama
skyni, þótt ekkert verði um það
fullyrt að svo stöddu. Er sendí-
maður okkar hefir dvalið er-
lendis, mun hann verða að ein-
hverju leyti starfsmaður okkar í
ræktunarmálum unglinga í sveit
og anharsstaðar er staðhættir
leyfa. Menn hafa almennt látið í
ljósi ánægju sína yfir þessari
viðleitni Ungmennafélags ís-
lands og treystum við stuðningi
ýmsra góðra manna í þessum
málum. Teljum við, að hér sé að
því stefnt að auka áhuga sveita-
æskunnar fyrir mold heimahag-
anna og möguleikum hennar. Og
ennfremur viljum við með þessu
beina athygli atvinnulaúsrar
æsku á mölinni að nægu og þjóð-
hollu verkefni. Margt er enn á
reiki fyrir okkur um fram-
kvæmdir þessar, en við væntum
mikils samstarfs og ráða frá
Búnaðarfélagi íslands, sem þeg-
ar hefir styrkt þetta og gæti hér
hafizt nýr þáttur í starfsemi
þessa merka félagsskapar.
í 5. grein stefnuskrár Ung-
mennafélags íslands er rætt um
skógrækt. Er hér eitt hinna
gömlu verkefni félaganna. Var
skógræktaráhuginn mikill fram-
an af, en mun hafa dofnað er
fram í sótti og hinar fyrstu til-
raunir þóttu bera misjafnan
árangur. Nú er talsverð stund
lögö á þetta viðfangsefni í félög-
unum. Nýlega var t. d. stofnað
Skógræktarfélag Mýra- og Borg-
arf j arðarsýslu fyrir forgöngu
ungmennafélaganna þar um