Tíminn - 29.06.1939, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.06.1939, Blaðsíða 4
296 TÍllIW. fiinmtmlagiim 29. júní 1939 74. blat? CASTROL olia er OIU1 „örvaltón neim «6 ^aoUa.se™ iglandi. á fyrst og íreJnS^ na aa C.W «> »'v*e 'ra” , tarandi g««a »e“nar' 06 ftTENT CASTBOl. e> ,að ...kreilis-. smjjaS. PðTENT CASTROEs verdraae.n • pru sem sé tryggöir þess- Uostir eru seu> ari oliu einni með ^ heimseinkaleyfum á ■ tilbúningi hennar, og A P þeir lengju endingar- M A •írviabil vélarinnar g§ M dregur ur 1. strokksliti 2. oliunotkun 3. söfnun úrgangsefna VEG FYRfR kemur 4. sora- og sót-söfnun 5. bulluitringasótun b. olíusíustíHun. sumnn nvLOZL^iR, Chiang Kai Shek, leiðtogi Kínverja, hefir enn einu sinni ákveðið að skipta um aðseturs- stað fyrir kínversku stjórnina. Fyrir valinu hefir orðið Chengtu, sem er 320 km. lengra inni i landinu en núverandi höfuðborg Klnaveldis, Chungking, sem Ja- panir hafa lagt aö mestu leyti í rústir með loftárásum. Chengtu er 1600 km. í vestur- átt frá Shanghai. Þangað liggja engar járnbrautir, en sl. ár unnu um 700 þús. Kínverjar að þvi að leggja þaðan 3200 km. langan bílveg yfír Turkestan og alla leið til rússnesku landamœranna. Eftir þessum vegi eru nú flutt hergögn í stórum stíl. Hefir það átt mikinn þátt í því, að Chiang Kai Shek hefir valið Chengtu fyrir höfuðborg. Chengtu hefir um 600 þúsund íbúa. Hún var áður ein af þrem- ur höfuðborgum kínversku keis- aranna, og þótti bera af öðrum kínverskum borgum i smekklegri gatnagerð og byggingum. Chengtu er höfuðborg Saech- wanfylkisins. Það er fólksflest og auðugast af hinum 18 fylkjum Kínaveldis. Stœrð þess er um 460 þús. ferkm. og fólksfjöldinn er um 60 millj. Silkirækt er mikil og uppskera þrisvar til fjórum sinnum á ári. Eru rœktaðar á víxl flestar matjurtir, sem nöfn- um tjáir að nefna, og hafa ibúar fylkisins aldrei þurft að sœkja matvœli til annarra fylkja. Þarf Chiang Kai Shek því trauðla að óttast matvœlaskort, á meðan hann hefir Saechwanfylkið á valdi sínu. * * * Nýlega varð uppvíst um sér- kennilega tilraun til tollsvika l Belgíu.Fyrir nokkrum mánuðum keypti spönsk frú gamla höll skammt frá frönsku landamœr- unum. Skömmu síðar urðu menn varir við ýmsar kynlegar heimsóknir þangað og fór lög- reglan því að gefa frúnni og vinum hennar gœtur. Við nánari athugun kom í Ijós, að búið var að grafa úr höllinni göng undir frönsku landamœrin og var byrjað að flytja eftir þeim alls- konar smyglvarning milli land- anna. Hafði þó verið ákveðið að nota þau í stœrri stíl í framtíð- inni. A Hallgrímskirkja að vera mínnísvarði eða menningartæki ? (Framh. af 2. siðu) hún stendur í, fjallahring Hval- fjarðarins og hinar breytilegu hlíðar, að gróðri og svip, sem nær henni liggja. Á táknríkan hátt getur og bygging hennar sam- ræmzt hinum söguríku minjum Saurbæjar, þótt hún eingöngu væri byggð sem sóknarkirkja hinnar fámennu sóknar. Væri þá engri krónu sóað vegna vafa- samra og ímyndaðra áhrifa, sem dýr og ofbyggð kirkja að Saur- bæ á að hafa á þroska og við- hald kristninnar í landinu. Jónas Þorvaldsson. <JR B/EIVITM Loðdýraræktarfélag íslands hélt aðalfund sinn í Reykjavík síð- astliðinn þriðjudag. Stóð hann frá kl. 9 að kvöldi til kl. 3 að nóttu. Sóttu hann um 40 manns, er fóru með 140 atkvæði. Á fundinum var samþykkt fjárhags- áætlun næsta árs, ákveðið að halda áfram sýningum og merkingum með líku fyrirkomulagi og síðastliðið ár, annast sölu skinna fyrir þá félagsmenn, er þess óska, og gefa út blað, sem komi út annan hvern mánuð og sé tvær ark- ir að stærð í Skírnisbroti. Var kosin fimm manna útgáfustjórn, skipúð H. J. Hólmjám, Metúsalem Stefánssyni, Páli Þormar, Hannesi Pálssyni á XJnd- irfelli og Sigurði Amalds. Lagt var fyrir stjórnina að efna til tilrauna um fóðrun og hirðing refa og skorað á hana að koma á fót hér í bænum út- sölu á loðskinnum. Úr stjóminni áttu að ganga að þessu sinni H. J. Hólm- járn, formaður, og Tryggvi Guðmunds- son ráðsmaður á Kleppi. Voru báðir endurkosnir. Endurskoðendur reikn- inga voru kosnir Björn Konráðsson ráðsmaður á Vífilsstöðum og Jón Páls- son dýralæknir. Aðalfundur Læknafélags íslands var settur á þriðjudaginn og gert er ráð fyrir að honum ljúki í kvöld með veizlufagnaði að Hótel Borg. Á fundinum hafa verið fluttir allmarg- ir fyrirlestrar um læknisfræðileg efni. í gær fóru fram umræður um matar- hæfisrannsóknirnar, sem nú em hafn- ar. Flutti Júlíus Sigurjónsson erindi um málið í upphafi umræðnanna. Stjórn Læknafélagsins var kosin og hlutu þeir Magnús Pétursson bæjar- læknir, Páll Sigurðsson læknir og Maggi Júl. Magnús yfirlæknir allir endurkosningu. Aðalfundur S. í. S. hefst í Reykholti á morgun. Er margt kaupfélagsstjóra og annarra fulltrúa frá samvinnufélögunum, sem sækja ætla aðalfundinn, gestkomandi í bænum. Para þeir upp í Borgarfjörð síðdegis í dag. Prestastefnunni lauk í gær. Tók hún allmörg mál til umræðu og athugunar, m. a. sálma- bókarmálið, kirkjusönginn, málefni Strandarkirkju og loks kristilega starf- semi meðal æskulýðsins, sem var að- allega mál prestastefnunnar. Presta- stefnan kaus nefnd manna til þess að vinna að æskulýðsmálunum, og hlutu kosningu Ásmundur Guðmundsson prófessor, Ingimar Jónsson skólastjóri, Þorsteinn Briem prófastur á Akranesi og Hálfdán Helgason prestur að Mos- felli, auk Sigurgeirs Sigurðssonar biskups, sem einnig starfar í nefnd- inni. í ályktun um sálmabókarmálið var komizt svo að orði, að „kominn væri tími til að hefja undirbúning að endurskoðun sálmabókarinnar", en því máli að öðru leyti vísað til kirkjuráðs. Prestastefnunni lauk með samveru- stund presta í Oddfellowhúsinu. Gestir í bænum. Einar Ámason alþingismaður á Eyr- arlandi, Egill Egilsson kaupfélagsstjóri í Bæ á Rauðasandi, Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði, Guð- röður Jónsson kaupfélagsstjóri í Nes- kaupstað i Norðfirði, Jón Þorvarðsson prófastur í Vík í Mýrdal, Jón Gunn- arsson kaupfélagsstjóri á Seyðisfirði, Hannes Pálsson bóndi á Undirfelli, Jó- hannes Davíðsson bóndi í Neðri-Hjarð- ardal. Kennarastéttíu (Framh. af 3. síðu) unnar í uppeldismálum þjóSar- innar hefir okkar kjarngóða mál innibundið í skammaryrð- inu: Götustrákur. Er það ekki einmitt með þessu móti, sem við búum til einskonar andlega og líkamlega hvítvoðunga, er okk- ur virðist helzt til mikið bera á seinustu árin. En nú er að nota sér þá 110 William McLeod Raine: Flóttamaöurinn frá Texas 111 hafði náð honum áður en hann var seztur upp. — Ef hann er dáinn---------- — Það er hann ekki, sjáðu. Hann hreyfir augnalokin. Ég verð að koma í veg fyrir að hann hrópi á hjálp. Taylor dróg upp vasaklút, braut hann saman, stakk upp í sýslumanninn og batt svo yfir með snæri, til frekara öryggis. Taylor stóð upp, er hann hafði bund- ið hendur og fætur sýslumannsins og fór í skó slna og jakka. — Hvert héðan, spurði hann Molly. Hún nam staðar áður en hún var komin til dyranna, því að sýslumaður- inn hafði opnað augun og horfði á hana. — Ég skal láta leysa þig svo fljótt sem ég þori, sagði hún og stakk vasa- klút undir höfuð hans, þar sem blóðið vætlaði gegn um hrokkið hárið. Síðan gekk hún á undan Taylor fram í ganginn og niður stigann. XIII. KAFLI. Hinn frelsaði fangi fylgdi Molly eftir að húsabaki. Hann fann til óumræði- legrar gleði. Hún hafði bjargað honum og það gladdi hann. Frelsið sjálft var Hún nam staðar. — Hér er hesturinn þinn, sagði hún stilltri og kaldri röddu. — Þú ættir að fara til Sjömílnakofans. Þar er enginn minna gleðiefni. núna og þar getur þú fundið mat. Eftir það---------- — get ég farið fjandans til, mína eigin leið, gxeip hann fram í. — Fyrri mér, svaraði hún. í augum hennar brann reiðin í hans garð, þar sem hún stóð frammi fyrir honum, svo ung og lifandi. í stjörnu- skininu sá hann brjóst hennar bifast og vissi að hún hélt tilfinningum sín- um í skefjum. Hann gat sér þessa til, að hún hataði sjálfa sig fyrir það, sem hún hafði gert fyrir hann, því að með því hefði hún ef til vill komið honum til að halda, að fyrir því lægju aðrar á- stæður en lúkning skuldarinnar, sem henni fannst að hún yrði að greiða. — Nú getur þú fyrirlitið mig, þar sem þú heíir komizt að því að ég er vondur, sagði hann illilega. — Það mundi víst ekki þýða neitt að segja þér, að ég hafi lent í slæmri klípu, en sé ekki eins vondur og ég virðist? Þú mundir vita að ég væri að ljúga? — Þýðingarlaust, sagði hún reiðilega. — Ég veit hvað þú ert, og guði sé lof fyrir að ég þarf aldrei að sjá þig aftur. Það lá við að hún hrópaði þetta upp, en það var alls ekkí líkt neinni lofgjörð. OLÍUYERZLUI ÍILMDÍ % Einkaumsboðsmenn á Islandi fyrir: ú> C. C. WAKEFIELD & CO. a/s DROTT-LJÓSAVÉLA- SAMSTÆÐUR ýmsar stærðir Moíor A.-B FREMSTUR allra er Sænski nýtízku hráolíu- mótorinn, sem er settur í gang kaldur. Pytliagoras "-—-GMLá BÍÓ— Síðasti maður um horð. Stórfengleg og afar spenn- andi amerísk kvikmynd, er lýsir hinu viðburðaríka og hættulega starfi manna í strandgæzluflota Banda- ríkjanna. Aðalhlutverkin leika: Victor McLaglen, Preston Foster og Ida Lupino. í Norrtelje NÝJA 1 Menn eru ekki dýrlingar Ensk kvikmynd frá United Artists, gerð undir stjórn kvikmyndasnillingsins Al- exondar Korda. Aðalhlutverkin leika: Miriam Hopkins, Gertrude Lawrence, Sebastian Shaw o. fl. — Aukamynd: MICKEY SEM VAGNSTJÖ Mickey sem vagnstjóri. Mickey Mouse teiknimynd. stofnsett 1898. foýr til motora til hverskonar notkunar. AÐALUMBOÐSMAÐUR FYRIR ÍSLAND: EINAR EINARSSON GRINDAVIK. reynslu, sem fengin er, og hina miklu og mörgu góðu starfs- krafta, sem vaxið hafa upp með- al kennarastéttarinnar. Nú þarf aðeins nægan áhuga, góð samtök og' starf. Ég get fullvissað ykkur, góðir kennarar, um það, að stjórn fræðslumálanna hefir mikinn áhuga á þessum málum. Ég veit, að þið kennarar hafið það einnig. Ég heiti á kennara- stétt landsins til góðs samstarfs innbyrðis og við fræðslumála- stjórn landsins. Framfarirnar hafa verið mikl- ar, þrátt fyrir erfiðar aðstæður oft á undanförnum áratugum. Við höfum nú alla möguleika til þess, með þeirri reynslu, sem við höfum að baki, og með þeim kennslukröftum, sem þjóðin nú á, að láta framfarirnar verða bæði meiri og betri á næstu ár- um, ef við störfum vel saman og erum einhuga að verki. Og ég get sagt það, alveg hik- laust, að ég er bjartsýnn á fram- tíðina í þessum málum. Að svo mæltu lýsi ég yfir, að uppeldis- málaþing Sambands íslenzkra barnakennara er sett. Vestmannadagurinn á Þíngvöllum (Framh. af 1. síðu) ungfrú Kristjana Pétursdóttir (Halldórssonar borgarstjóra) Miss Ameríka og ungfrú Gerður Jónasdóttir (Jónssonar alþm.) Miss Kanada. Þennan sama dag halda ís- lendingar vestan hafs hátíðlegt 50 ára afmæli hins árlega þjóð- hátíðardags síns að Gimli. Mun Thor Thors alþm. flytja þar kveðju frá Austur-íslendingum. Orðsending til Tímamanna. Tíminn biður Tímamenn, hvar sem er á landinu, að senda við og við fréttabréf úr byggðarlög- um sínum. Ekki hvað sízt væri kær að fá slík bréf úr byggð- arlögum, sem annars er sjaldan getið um í fréttaflutningi blaða og útvarps. í öllum slíkum bréfum verður að skýra greinilega og ítarlega frá hverju einu, sem um er rit- að, og vanda alla frásögu, svo að hvergi skeiki þar réttu máli né um misskilning geti orðið að ræða, og ókunnugir geti gert sér það skýrt í hugarlund, sem ver- ið er að lýsa. Loks er mjög þýð- ingarmikið, að allar fréttir, sem bréfin herma frá, séu sem allra nýjastar. Hið sama gildir um dánarfregnir og afmælisfregnir, sem eru blaðinu sendar. þegar er um langt liðið, þótt Minni háttar fréttir, t. d. um samkomur og fundi, félagsaf- mæli og fleira, er lítilsvirði, þegar er um langt liðið,, þótt fréttnæmt sé um það leyti, sem það gerist. í slíkum fréttabréfum getur verið gott að miða frásögnina við það, sem gæti orðið öðrum héruðum til fyrirmyndar og eftirbreytni. Nnmardvol barna a Arn b| argarlæk Tekið á móti pöntunum, svo og allar upplýsingar í síma 1439 alla daga til hádegis. — Arðurtílhluthaía Á aðalfundi félagsins þ. 24. þ. m. var samþykkt að greiða 4% — fjóra af hundraði — í arð til hlut- liafa fyrir árið 1938. Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu fé- lagsins í Reykjavík, og á afgreiðslum félagsins út um land. H.í. Eimskípaíélag Islands Alríkisstefnan eftir INGVAR SIGURÐSSON. Hinn hvíti kynstofn verður að þekkja sína guðlegu köllun og þora að fylgja henni. Hann verður að skilja það, að til þess eru honum gefnar gáfur, vit, þroski og kraftur framar öllum öðrum kynstofnum jarðarinnar, að hann er fæddur til þess að taka yfir- stjórn mannkynsins í sínar hendur og skapa sjálft Alríki kærleik- ans, frelsisins og réttlætisins á þessari jörð, til heilla og hamingju fyrir allt mannkyn bæði í nútíð og um alla framtíð. RANGÆINGAFÉLAGIÐ efnir til skemmtiferðar í Þjórsárdal sunnudaginn 2. júlí Allar upplýsingar á B.S.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.