Tíminn - 13.07.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu I D.
SÍMAR: 4373 Og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árjg.
Reykjavík, fimmtudaginn 13. júlí 1939
80. blað
Islenzk kona verður
próiessor við háskól-
ann í New-York
Mrs. Dora S. Lewis, er undan-
farin tvö ár hefir skipað stöðu
í Seattle, sem umsjónarmaður
borgarinnar með menntun í
heimilishagfræði, hefir nýverið
hlotið kjör sem prófessor við
New York háskóla. Tekur hún
við stöðunni þar á komandi
hausti, sem prófessor í uppeld-
ismálum og formaður þeirrar
deildar, sem fjallar um stofn-
un heimila og heimilishagfræði.
Er þetta því fullkomið pró-
fessors embætti að viðbættri
deildarstjórn við þennan mikla
háskóla. Er talsvert á 3ja hundr-
að kennara í uppeldismála-
deildinni einni við þessa um-
fangsmiklu menntastofnun, en
tala nemenda, er innritazt hafa
fyrir lengri eða skemmri nám-
skeið á þessu ári um fjörutíu
og þrjú þúsund. Er þetta því ein
Frá œðarvarpinu á Mýrurn í Dýrafirði.
W
Dúntekja hefír minnkað
á síðari árum
Nauðsynlegt að gerðar séu ráðstafanír,
sem stuðla að aukningu hennar
Afstaða Baodaríkjanna
til Evrópustyrjaldar
Átökín í þíngfinu um hlutleysislögín
Mrs. Dora S. Lewis.
af risavöxnustu menntastofn-
unum Bandaríkjanna, sem nýt-
ur einnig hins mesta álits. Er
því ekki lítill heiður að hljóta
þar prófessorsembætti, án þess
að sækja um stöðuna, einungis
vegna þess að hlutaðeigandi
hefir orðið þjóðkunn á sviði
þeirrar fræðimennsku, er hún
stundar og fyrir persónulega
glæsimennsku í hvívetna.
Mrs. Dora S. Lewis er fædd að
Milton í Norður-Dakota og er
dóttir Sumarliða gullsmiðs Sum-
arliðasonar, er andaðist vestur
við Kyrrahaf 1927, og seinni
konu hans, Helgu Kristjáns-
dóttur, sem enn er á lífi og ern.
Hafa þær mæðgur átt heimili
saman nú síðustu árin. Heimili
þeirra Sumarliða og Helgu hafði
það til að bera af gáfum og
mannkostum, að traustur
grundvöllur var þar lagður til
manngildis. í barnæsku fluttist
Dora með foreldrum sínum vest-
ur að Kyrrahafi. Var heimili
þeirra fyrst í Seattle og síðan í
nánd við Olympia í Washington-
ríki. Naut Dora þar venjulegrar
barna- og miðskólamenntunar.
Sýndi hún snemma bæði gáfur
og kapp við námið. Að loknu
námi við kennaraskóla stundaði
hún kennslu á barnaskólum í
fimm ár. Ung giftist hún efni-
légum innlendum búfræðing
(Framh. á 4. síðuj
Æðarvarp hefir jafnan
verið talið með nytsömustu
hlunni,ndum hér á landi og
er það enn í dag. Eftirspurn
eftir æðardún héðan er mik-
il erlendis og verðið hátt.
Er engin hætta á því, að
ekki sé hægt að fá góðan
markað fyrir íslenzka æðar-
dúninn, þótt framleiðslan
margfaldaðist.
Möguleikar til þess að auka
dúnframleiðsluna eru miklir, en
á síðari árum hefir lítið verið
gert til að hagnýta þá og á sum-
um stöðum gengur varpið til
baka, sökum hirðuleysis. Sýna
hagskýrslur seinustu ára að dún-
tekjan fer heldur minnkandi.
Þannig var meðalframleiðsla ár-
anna 1926—30 talin 4007 kg., en
ekki nema 3234 kg. árin 1931—
35. Árið 1936, en yngri skýrslur
eru enn ekki til, nam öll dún-
framleiðslan 3.011 kg. Sam-
kvæmt útflutningsskýrslum nam
útflutningur æðardúns 1937 2360
kg. og fékkst fyrir hann 148 þús.
kr., en 1938 nam útflutningurinn
ekki nema 1928 kg. og seldist
hann fyrir 119 þús. kr. Geta má
þess, að 1938 nam útflutningur
refaskinna ekki nema 63 þús. kr.
og 1938 58 þús. kr. Æðardúnninn
gefur því enn meiri gjaldeyris-
tekjur en refaskinnin og þarf þó
vissulega minna fyrir honum að
hafa.
Það andvaraleysi, sem ríkt
hefir um dúnframleiðsluna, má
ekki haldast áfram eins og verið
heflr. Það þarf að vinna að
aukningu varpsins, þar sem það
er nú, og reyna að koma því upp
á fleiri stöðum. Okkur íslend-
ingum hættir til, að kunna ekki
að meta nægilega þau hlunnindi,
sem við höfum átt, og látum þau
gleymast meðan við erum að
baslast við að taka upp ýmsar
aðfluttar, fyrirhafnarmeiri og
arðminni atvinnugreinar. Þann-
ig hefir t. d. lax- og silungsveið-
in verið vanrækt til skamms
tíma, en nú höfum við loks skilið
hversu óhagfellt það hefir verið,
og hefir því víða verið hafizt
myndarlega handa, til að ráða
bót á þvi. Dúntekjuna þarf að
taka svipuðum tökum og er alveg
(Framh. á 4. síðu)
Það er flestra dómur, að
þátttaka Bandaríkjanna í
heimsstyrjöldinni seinustu hafi
ráðið úrslitum hennar.
Það er því ekki að undra, þótt
mörgum sé það mikið áhyggju-
efni, hver afstaða Bandaríkj-
anna verður í næstu heimsstyrj-
öld.
Á þingi Bandaríkjanna eru
nú hörð átök um hlutleysislögin
svokölluðu og munu úrslit þeirra
gefa það nokkurnveginn til
kynna, hvaða afstöðu megi
vænta af Bandaríkjunum til
Evrópustyrj aldar.
Hlutleysislögin voru sett árið
1936. Höfuðatriði þeirra eru tvö.
í fyrsta lagi banna þau alla
vopna- og skotfæraflutninga til
ríkja, sem eiga í ófriði. í öðru
lagi ákveða þau, að því aðeins
megi selja aðrar vörur til ann-
arra landa, að kaupandi greiði
þær skilvíslega og annist flutn-
inginn sjálfur. Með lögunum átti
þannig að tryggja fullkomið
hlutleysi Bandaríkjanna í styrj-
öld.
Það hefir oft verið sýnt fram
á, að síðari ákvæði hlutleysis-
laganna væru hagfelldari fyrir
Breta og Frakka en andstæðinga
þeirra, ef til styrjaldar kæmi i
Evrópu. Bretar og Frakkar gætu
þá keypt og flutt forðavörur frá
Bandaríkjunum, en slikt væri
ógerlegt fyrir Þjóðverja og ítali,
sem hefðu minni kaupmátt og
myndu heldur ekki geta haldið
uppi siglingum til Bandaríkj-
anna, sökum siglingabanns
enska flotans.
Þegar hlutleysislögin voru sett,
má fullyrða, að þau hafi verið í
fyllsta samræmi við almennings-
álitið í Bandaríkjunum.
En síðan hefir margt gerzt.
Yfirgangur fasistaríkjanna hefir
farið vaxandi. Japanir hafa haf-
ið innrás sína í Kína og Þjóð-
verjar hafa slegið eign sinni á
Austurríki og Tékkoslóvakíu.
Þetta hefir haft mikil áhrif á al-
menningsálitið í Bandaríkjunum
og skapað sterka andúð gegn
f asistaríkj unum.
Kunnugur maður hefir nýlega
látið svo um mælt, að það væri
_A.
Dýraverndunarfélag íslands. — Frá Kaupfélagi Borgfirðinga. — Bæjarhúsin
í Glaumbæ í Skagafirði. — Kynningarmót ungmennafélaga í Austur-Húna-
---------- vatnssýslu. ----------
Dýraverndunarfélag íslands á aldar-
fjórðungsstarfs að minnast í dag. Var
það stofnað 13. júlí 1914 og voru stofn-
endur 37. Hinn fyrsti formaður fé-
lagsins var Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri. Núverandi formaður þess
er Þórarinn Kristjánsson hafnarstjóri.
Verkefni félagsins hafa frá upphafi
til þessa dags verið þau, að beita sér
fyrir aukinni mannúð í garð dýranna.
Hefir það reynt að ná þessu takmarki,
bæði með nýjum lagaboðum og eftirliti
og með því að hafa áhrif á hugarfar
fólks. Meðal þess, sem þakka má fé-
laginu að talsverðu leyti, er að nú er
fyrir alllöngu lögð niður hin sóðalega
og siðlausa aðferð við slátrun sauð-
fjár, hálsskurðurinn, og að lög hafa
verið sett um geldingu húsdýra. Af
öðrum verkefnum þess má nefna eftir-
lit með fóðurásetningi, meðferð vagn-
hesta í kaupstöðum landsins, aðbúnaði
að útflutningshrossum, flutningi fén-
aðar á bifreiðum og mörgu fleiru. Eftir
því, sem árin hafa liðið, hafa þessi
verkefni nokkuð breytzt eins og annað
í þjóðfélaginu, en ávallt hefir verið
ærið að starfa að og svo mun verða
enn um langa hrið. Dýraverndunar-
félag íslands á hug allra góðra manna
í landinu.
t t r
Kaupfélag Borgfirðinga tók í fyrra
upp þá nýbreytni, að bjóða húsmæðr-
um á félagssvæðinu í tveggja daga
skemmtiför austur í Árnessýslu, þeim
að öllu að kostnaðarlausu. Póru konur
úr sjö hreppum, Reykholtsdal, Hálsa-
sveit, Hvítársíðu, Þverárhlíð, Borgar-
hreppi, Álftaneshreppi og Hraun-
hreppi slíka ferð í fyrrasumar. Nú í
sumar hafa konur úr öðrum sjö sveit-
um, Lundarreykjadal, Skorradal,
Andakíl, Stafholtstungum, Norðurár-
dal, Kolbeinsstaðahreppi og Eyja-
hreppi orðið þessa aðnjótandi. Var
farið í tveim hópum seinustu dagana í
júnimánuði. Hafa alls um 300 konur
tekið þátt í þessum hópferðum og
næsta ár er fyrirhugað að gefa félags-
konum í Borgarnesi kost hins sama.
Konurnar hafa verið sóttar hver í
sitt byggðarlag á fleiri eða færri staði,
eftir því sem til hagar um vegi og
legu byggðarinnar. Hefir ferðum
venjulega verið svo hagað, að farið
hefir verið fyrir Hvalfjörð um Kjós,
Kjalarnes og Mosfellsdal til Þingvalla.
Þaðan suður Grafning að Sogsfossum
og í Þrastaskóg og að Laugarvatni.
Prá Laugarvatni hefir verið farið að
Gullfossi og stundum að Geysi og síðan
heimleiðis. Oftast hefir verið komið
að Reykjum í Mosfellssveit í annarri
hvorri leiðinni.
t r t
Enskur aðalsmaður, Mark Watson
að nafni, sem dvalið hefir í Skaga-
firði tvö undanfarin sumur og ferð-
azt talsvert hér á landi, hefir gefið
ríflega íjárupphæð til að standast
kostnað af viðgerð og viðhaldi á bæj-
arhúsunum í Glaumbæ í Skagafirði.
En í Glaumbæ eru húsakynni mjög
gömul, sum að talið er yfir hundrað
ára, og fyrir margra hluta sakir hin
merkilegustu. Er gjöf Englendingsins
miðuð við það, að halda þeim að öllu
leyti í sama stíl og með sama fyrir-
komulagi og þau eru nú. Er um þess-
ar mundir verið að endurbyggja bað-
stofuna og fleiri viðgerðir á að fram-
kvæma á bæjarhúsunum þar í sumar,
eftir því sem tími og fé vinnst til. Eng-
lendingurinn, sem féð lagði að mörk-
um, er væntanlegur hingað til lands
í septembermánuði. Bæjarhúsin eru nú
og hér eftir í vörzlu fornminjavarð-
arins.
t t t
Samband ungmennafélaganna í
Austur-Húnavatnssýslu gekkst fyrir
kynningarmóti æskufólks á sambands-
svæðinu á sunnudaginn var. Tóku þátt
í því um hundrað manns frá sex fé-
lögum af sjö, sem í sambandinu eru.
Mætzt var á Hnjúkshnjúk að afliðandi
hádegi. Komu þeir, sem langt áttu að
sækja, á bifreiðum, en aðrir ríðandi.
Nokkur þoka var, svo að útsýnis yfir
byggðina naut ekki sem skyldi. Fólk
skemmti sér við ræðuhöld og söng.
Flutti Bjarni Jónasson kennari í
Blöndudalshólum erindi um upphaf
ungmennafélagsskaparins á íslandi og
CORDELL HULL,
utanrikisráðherra Bandaríkjanna. —
Hann hefir barizt mjög ákveðið fyrir
afnámi hlutleysislaganna.
tvennt, sem allur meginþorri
Ameríkumanna ætti sameigin-
legt. Annað væri andúðin gegn
fasistaríkjunum. Hitt væri mót-
staðan gegn þátttöku Banda-
ríkjanna í næstu heimsstyrjöld.
Roosevelt hefir reynt að sam-
eina þetta hvorttveggja í utan-
ríkismálastefnu sinni.
Hann hefir iðulega lýst yfir
því, að hann væri því algerlega
mótfallinn að Bandaríkin sendu
nokkurntíma aftur her til að
falla á vígvöllunum í Evrópu. En
hinsvegar ættu Bandaríkjamenn
að láta sig ástandið þar miklu
skipta. Þeir mættu ekki gera
neitt það eða iáta eitthvað það
ógert, sem gæti hvatt yfirgangs-
ríkin þar til aukins ójafnaðar.
En slíkt væri í raun og veru gert
með hlutleysislögunum, þar sem
þau væru látin ná jafnt til frið-
sömu ríkjanna og árásarríkj-
anna. Þess vegna ætti að nema
þau úr gildi. Með því væru
Bandaríkin að veita fasistarikj-
unum áminningu, sem gæti
hjálpað til að draga úr yfirgangi
þeirra. Fasistaríkin yrðu ófúsari
til að hefja styrjöld, ef þeim
væri ljóst fyriTfram, að Bretar
og Frakkar gætu keypt vopn og
vörur í Bandaríkjunum. Sá
stuðningur, sem lýðræðisþjóð-
um Evrópu væri veittur á þann
hátt, gæti líka hæglega ráðið
úrslitum styrjaldarinnar.
Stjórnin hefir því lagt til við
þingið, að hlutleysislögin yrðu
numin úr gildi.
Þessi tillaga stjórnarinnar
hefir sætt mikilli mótspyrnu.
Eftir harðar umræður samþykkti
fulltrúadeildin með 200 : 188 at-
kvæðum, að láta vopnasölubann-
ið gilda áfram, en gerði þá breyt-
ingu, að leyfilegt væri að selja
flugvélar og ýms tæki, sem ekki
teljast beint til vopna, en eru þó
aðallega notuð í styrjöld. Öld-
ungadeildin fékk lögin síðan til
meðferðar og hefir nefnd sú, sem
fékk þau til athugunar, lagt til
að afgreiðslu þeirra yrði frestað
til hausts, en deildin tekur sér
sumarfrí í næstu mánaðarlok.
Roosevelt og ráðherrar hans
hafa beitt sér mjög harðlega
gegn þessum drætti á málinu.
Hefir forsetinn látið svo um
mælt, að meðferð þingsins á lög-
unum geti tæplega haft önnur
áhrif en að hvetja fasistaríkin
til aukins yfirgangs. Reynir
stjórnin því eftir megni að fá
málið endanlega afgreitt áður
en sumarleyfi þingsins hefst.
Enn verður því ekki sagt,
hvernig þessu máli lýkur. Þótt
stjórninni hafi ekki tekizt að
vinna nema hálfan sigur í full-
trúadeildinni, gefa úrslitin þar
eigi að síður glöggt til kynna,
hversu miklar breytingar hafa
orðið á afstöðunni til þessa máls
siðan' 1936, þegar lögin höfðu
nær óskift fylgi þingsins.
í byrjun heimsstyrjaldarinnar
seinustu lét amerískur stjórn-
(Framh. á 4. siðu)
A víðavangi
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra er nýkominn heim úr
ferðalagi um Strandasýslu. Hélt
hann leiðarþing á fimm stöðum,
Bæ, Stóra-Fjarðarhorni, Hólma-
vík, Kaldrananesi og Árnesi. —
Fundirnir voru allsstaðar vel
sóttir, nema á Stóra-Fjarðar-
horni, en þar er líka venjulega
lítil fundarsókn. Á hinum stöð-
unum var fundarsóknin svipuð
og á framboðsfundunum og er
hún venjulegast mjög mikil, því
Strandamenn hafa mikinn á-
huga fyrir landsmálum. Máli
ráðherrans var allsstaðar vel
tekið og andstaða gegn honum
eða ríkisstjórninni kom hvergi
fram.
* * *
Piltur, sem hefir fallið fyrir
forsætisráðherranum í Stranda-
sýslu, reynir að halda þvi fram,
að forsætisráðherra hafi haft
„tvær tungur“ á fundum, stund-
um hefði hann farið hóflegum
orðum um Sjálfstæðisflokkinn,
en stundum deilt þunglega á
hann fyrir samningamakk við
kommúnista. Einkum hafi hann
gert það síðarnefnda á Kald-
rananesfundinum. Þar hafi
hann reynt að svívirða Sjálf-
stæðisflokkinn á hinn „herfileg-
asta hátt“ fyrir samvinnu
flokksins við kommúnista á
Norðfirði og í Hafnarfirði. Þetta
hafi ráðherrann gert sökum
þess, að hann hafi haldið að
enginn sjálfstæðismaður væri
viðstaddur. í raun og veru þarf
ekki að svara þessu hér, því ráð-
herrann hefir þegar gert það
bezt með því, að kaupa nokkur
eintök af Vísi og senda þau
mönnum í Strandasýslu, svo þeir
geti með eigin augum dæmt um
þann fréttaflutning utan úr
sveitum, sem Reykvíkingar fá í
íhaldsblöðunum. Rétt þykir
samt að benda Vísi á það, að
ráðherrann hefir aldrei farið í
launkofa með skoðun sina um
leynimakk kommúnista og nokk-
urs hluta Sjálfstæðisflokksins
um aukinn vinnuófrið í landinu.
Er skemmst í þeim efnum að
minna á ræðu ráðherrans, sem
hann flutti í seinustu útvarps-
umræðum og síðan var birt hér
í blaðinu. Þar gerði hann mjög
skýra grein fyrir þessu atriði og
með því að lesa ræðuna getur
Vísi sannfært sig um, að ráð-
herrann hefir ekki verið að
laumast til að segja kjósendum
sínum eitthvað um Sjálfstæðis-
flokkinn, sem hann hafi ekki
þorað að segja annarsstaðar.
* * *
Eysteinn Jónsson viðskipta-
málaráðherra kom heim í gær-
kvöldi eftir nær fjögra vikna
ferðalag um kjördæmi sitt, Suð-
ur Múlasýslu. Hélt hann þar alls
12 leiðarþing, ásamt hinum
þingmanni kjördæmisins, Ing-
vari Pálmasyni. Voru þau yfir-
leitt vel sótt og andstaða kom
hvergi fram, nema hvað Arnór
Sigurjónsson var látinn tala
fyrir kommúnista á sumum
leiðarþingum í kauptúnunum.
Auk þessa mætti Eysteinn á
flokkshátíðum Framsóknar-
manna á Hrafnagili og Hall-
ormsstað og flutti ræður.
* * *
Vísir læzt vera mjög vondur
yfir því, að Eysteinn Jónsson
hafi talað um það á Hrafna-
gilshátíðinni, að kommúnistar
hafi reynt að ná samvinnu við
verri helming Sjálfstæðisflokks-
ins. Þetta er ekki annað en það,
sem öllum er kunnugt. Hins-
vegar væri ekki ófróðlegt, ef Vís-
ir vildi birta sumar þær ræður,
sem fluttar voru á nýloknum
flokkssamkomum Sjálfstæðis-
manna í Eyjafirði. Þar var m.
a. hiklaust gefið í skyn, að
Framsóknarflokkurinn hafi leit-
að á náðir Sjálfstæðismanna,
þegar hann hafi verið búinn að
koma öllu í rústir. Það sýnir
vel, hvernig sumir Sjálfstæðis-
menn túlka málin á einkasam-
komum sínum og hversu heilir
I (Framh. á 4. síðu)