Tíminn - 13.07.1939, Side 4

Tíminn - 13.07.1939, Side 4
320 TtMINN, fimmtiidagiim 13. júlí 1939 80. blað “““■•“"GAMLA EÍÓ* Með kveðjju frá Mister FIow! Spennandi og afar skemti- leg frönsk sakamálakvik- mynd, gerð af sömu snilld og glæsileik, er einkennt hefir franskar myndir undanfa'rið. Aðalhlutv. leika: EDWIGE FEUILLÉRE, FERNAND GRAVEY og LOUIS JOUVET. NÝJA BÍÓ- Slíkt tekur engiii með sér. Amerísk stórmynd frá Col- umbia film. Snilldarvel samin og ágætlega leikin af sjö frægum leikurum: LIONAL BARRYMORE, JEAN ARTHUR, JAMES STEWARD, EDWARD ARNOLD, MISCHA AUER, ANN MILLER, DONALD MEEK. Sjáið þessa mynd, hún veitir óvenjulega góða og eftirminnilega skemmtun. Tllkynning. Þeir, sem gera vilja tilboð í að byggja prestsseturshús í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, geta fengið teikningu og útboðslýsingu hjá undirrituðum, meðan upplag endist. .-UBT- Hásameistari ríkisins, Arnarhváli. LAX lækkað vn*() Sláturfélag Suðurlands. ByyyinfiarféUig verkatnanna: Skráning félaga Skráning þeirra, sem ætla að gerast meðlimir í hinu nýstofnaða Byggingarfélagi verkamanna í Reykjavík fer fram í Iðnó föstudaginn 14. þ. m. frá kl. 6 e. h. til kl. 9 að kvöldi. — Stofngjald og fyrsta árgjald, samtals 15 krónur, greið- ist við skráningu. STJOMIN. AftFA I' i I iii a ii bregst aldrei í sumarfríinu. Hún uppfyllir ströng- ustu kröfur yðar. Hana nota þúsundir manna um allan heim. Algengar stærðir fyrirliggjandi. Carl Ólaissoii AM ATÖR VINNU STOF A, Lækjargötu 8. - Sími 2152. Athugist! MuniÖ nýja staðinn — Lœkjargötu 8. (JR BÆNUM Sumarsýning á íslenzkum málverkum hefir nýlega verið opnuð í Túngötu 6. Eru þar til sýnis og sölu 30—40 málverk eftir tíu málara. Verður sýningin opin kl. 10— 9 daglega. Þegar sýningin var opnuð, seldist undir eins eitt málverk eftir Finn Jónson. Tvö skemmtiferðasklp, bseði þýzk, Milwaukee og General von Steuben, koma hingað á laugar- daginn. Athugasemd. í grein um Jón Pétursson frá Stöp- um, í síðasta blaði, féll niður í prent- un nafn Vigdísar dóttur hans, sem er gíft og búsett í Reykjavík. Ármenningar þeir, sem sœkja Lingade-mótið, fara utan með Lyru í kvöld, áleiðis til Stokkhólms. Eru það úrvals fimleika- flokkur karla, alls 13, og úrvals fim- leikaflokkur kvenna, alls 17 stúlkur. Auk þes er fimleikakennarinn, Jón Þorsteinsson, er stjórnar báðum flokk- unum, og kona hans, Jens Guðbjörns- son, formaður Glímufélagsíns Ármann, og kona hans, Sigurjón Pétursson for- stjóri og nokkrir fleiri, alls nær 40 manns. V*ldur örtröð haígnun gróðars á Islandi? (Framh. af 3. síöu) hægt verður hér að byggja verk- smiðjur til pappa- og pappírs- gerðar. Skógarkj arrið og mel- gresið ætti að leggja til efni í þann iðnað. Margt er nú af vel- vilja gert og áhuga, en sú hugs- un þarf að festast enn þá betur í hugum manna, að bjargast við það, sem íslenzkt er og framleitt er í landinu sjálfu. Þjóðin þarf að tengjast taugum við landið, líf bæði dýra og jurta og gróðr- armagn moldarinnar er undir- staða framleiðslunnar. III. „Syndgaðu eigi, systir, framar, sæt er náðin, lögmál beizkt, og manneskjurnar miskunnsamar miðlungi við holdið breyzkt. Þín er bókuð synd á sandinn, sjást ei lengur orðaskil, blés á letrið bróðurandinn, bókstafirnir fuku til“. G. Th. Það eru viðurkennd sannindi, að mennt og menning þjóðanna færí saman og gróður og ræktun landanna. Það fer því illa saman, gróð- urlaust og blásið land og mennt- uð og mönnuð þjóð. Lítið land og vel ræktað sýnir þroskaðan anda bóndans, en illa hírtur fénaður og rányrkju- búskapur .sýnir það gagnstæða. Fyrir nokkrum árum voru í beitarsveit á Suðurlandi sauðar- föll af 3—4 vetra sauðum 20—25 kg. Nú sýnir reynslan, að hægt er að fá á sömu stöðum 15-—20 kg. þunga dilkakroppa. Meðferð- in er breytt og arðurinn hefir aukizt. Lík dæmi má nefna úr fjósinu, kýrnytin hefir sum- staðar aukizt úr 2000 lítrum í 3000 lítra meðal ársnyt, við bætta meðferð. Þar sem áður voru notaðir 15 til 18 hestar til heimilisþarfa, eru nú notaðir 5—6 hestar, sem þó eru bæði traustari og sæl- legri. Á öðrum stöðum stendur allt við sama, búféð er margt og gengur í heimahögum allt sum- arið. Á haustnóttum er landið graslaust og rótnagað, en þar eiga skepnurnar að ganga yfir veturinn. Landið fer í flag, þar sem er sendið valllendi og blæs oft upp. Fénaður gengur á túni og slægjum og tínir þar upp græn- gresisnálina á vorin. Hann er illa framgenginn og lífsafkom- an ótrygg. Túnið beið hnekki af beitinni og úr slægjunum valdi fénaðurinn beztu stráin. Á flæði- engjum flaut oft úr munni skepnanna grasið, þegar þær voru að bíta. Grasið, sem þann- ig flaut frá fénaði, myndaði sumstaðar hrannir við flóðmálið í áveitulónunum. Búskapurinn hefir verið tek- inn lausatökum og oft vantað vinnu og hirðu við hin stóru lönd jarðanna. Bændur hafa margir verið einyrkjar og orðið þreyttir á þessum erfiða búskap. Lönd smærri býlanna hafa legið undir ágangi frá stærri býlun- um. Löndin hafa verið ógirt og fénaður hefir því gengið ýmist í högum eða gengið yfir engjar. Það hefir helzt verið slegið, sem loðnast hefir verið og fénaður minnst bitið. Heyin reynzt mis- jöfn og skepnum ónóg til fóðurs, sem von er, því að fénaður hefir verið búinn að velja það bezta úr þeim áður en slegið var. — Spurningin er, hvað eigi að gera til þess að ráða bót á þessu og bæta afkomu bændanna. Það verður að taka búskapinn fastari tökum. Landinu á að skipta miili býlanna. Heima- löndin verður að girða í sundur, þ. e. milli býla og haglendi frá slægjulandi. Fénaður á býlun- um verður að takmarkast við stærð og frjósemi lands hvers býlis. Takmarka verður búfjár- eignina, eftir landgæðum og landstærð. Tvennt verður að fylgjast að við það mat, þ. e. hvað landið getur framfleytt og hvað þarf mikið land til þess að fullnægja fénaðinum. Á sumrum á fénað- ur ganga á afréttum, t. d. sauð- fé og stóðhross. Það má segja að það sé skoplegt að vera að fást við skógrækt og varnir gegn uppblæstri og sandfoki og vita það, að örtröð fénaðarins eyði- leggur skógana og kemur land- inu í örtröð, svo það blæs upp go verður örfoka eða sandkafið. Eins og málið horfir nú við, þá á að friða allt það land, sem hægt er að friða og er með skógar- leifum. Það á að takmarka beit á öllu því iandi, sem hætt er við að blási upp eða verði fyrir sandfoki. Þá er unnið í sam- starfi við náttúruna. Rányrkjan verður að takmarkast og rækt- un landsins að aukast. Skólamenn líta alvöruaugum til uppvaxandi kynslóðar í hin- um stærri kaupstöðum lands- ins. Þórhallur biskup Bjarnarson sagði, að það væri mikils um það vert að koma krökkunum á gras. Hann sá það að vonum, sá góði og skyggni maður, hve mik- ils virði gróður landsins er fyr- ir þá, sem þar alast upp og eiga að lifa. Læri æskulýðurinn að elska og efla gróður landsins og hina lifandi náttúru þess, meðal íslenzk kona verðnr prófessor við háskól- ann í IVew York. (Framh. af 1. síðu) Lee Claire Lewis, er gekk í her Bandaríkjanna í ófriðnum mikla og féll á Frakklandi skömmu áð- ur en vopnahléið komst á 11. nóv. 1918. Hélt hin unga ekkja þá áfram menntaferli sínum og útskrifaðist frá Washington State College sem Bachelor of Science 1920. Meistarastig (M. A.) ávann hún sér við Columbia háskóla 1926. Síðan var hún heiðruð með því að hljóta Laura Spelman Fellowship (náms- styrkur veittur yfirburða náms- fólki) 1933—1934 til eins árs. Skiptist það nám milli þriggja háskóla, Columbia University, University of Cincinnati og University of Minnesota. Laut námið að uppeldisfræði, sál- fræði barna og skipulagning menntamála. Við allt þetta nám gat hún sér hinn glæsileg- asta orðstír. Þess er þegar getið að í fimm ár var hún barnaskólakennari. Síðan var hún önnur fimm ár kennari í Home Economics (heimilis hagfræði) og Dean of Women við State Normal School í Cheney, Washington. Þar næst var hún í tvö ár við University of Hawaii, einnig þar Dean of Women og kennari í Home Eco- nomics. Þaðan fór hún aftur til Washingtonrikis og skipaði í fimm ár stöðu sem State Super- visor of Home Economics í menntamáladeild ríkisins. Þá var hún kvödd til að starfa fyrir alríkis menntamáladeildina í Washington, D.C., sem Federal Agent, Home Economics, og hafði hún þá umsjón á starfi í ellefu ríkjum. Sagði hún upp stöðunni eftir tvö ár og hvarf aftur til Seattle til stöðu þeirr- ar, er hún nú skipar. Lýkur hún hér starfi um miðjan júní, en áður en hún tekur við embætti í New York 1. sept. í haust, veitir hún forystu fyrir hönd mennta- máladeildar Bandaríkjanna námskeiði (Study Conference) við Cornell háskólann í Ithaca, New York, fyrir City Supervisors of Home Economics víðsvegar að um allt landið. Er þetta að- eins að höggva á aðalatriðum í hinu víðfeðma starfi þessarar mikilhæfu konu. Sýnir það glöggt, að hún er í fremstu röð í öllu landinu á því sviði, er starf hennar liggur. Sumarið 1934 ferðaðist Mrs. Lewis til íslands. Bar hún landi og lýð söguna hið bezta. (Úr Lögbergi, nokkuð stytt). jurta og dýra, þá vona ég, að henni sé ekki hætta búin af vöntun bætiefna. Þorskalýsið, nýmjólkin og íslenzkar ætijurt- ir gefa vonandi þann þrótt í blóð og merg, sem þörf er á, ef fólk- ið hefir þekkingu og framtak til þess að notfæra sér frjómagn íslenzkrar gróðrarmoldar á rétt- an hátt. Þá gleymast þær synd- ir, sem framdar hafa verið á liðnum tímum. Verði ísland ræktað og viði vaxið milli fjalls og fjöru sem fyrst. Gunnl. Kristmundsson. Diintekja heffr minnkað á síðari árum (Framh. af 1. síðu) fullvíst, að nást myndi góður árangur. Þess eru mörg dæmi, að dún- tekjan hafi verið aukin á ýmsum stöðum með heppilegum vinnu- brögðum og á öðrum stöðum hefir verið komið á varpi, þar sem það var ekkert áður. Jafn- framt því, sem unnið yrði að slíku, þyrfti að gera öflugri ráð- stafanir til að útrýma vargi. Varpið á Mýrum í Dýrafirði. Tíminn birtir að þessu sinni mynd af æðarvarpinu á Mýrum í Dýrafirði, en það hefir aukizt mjög á síðari árum fyrir góða umhirðu. Fer hér á eftir nánari frásögn um varpið, sem blaðið fékk hjá Jóhannesi bónda Dav- iðssyni í Neðri-Hjarðardal, þegar hann var hér á ferðinni fyrir skömmu: Árið 1905 verpti ein æðarkolla á svonefndum Mýramel á Mýr- um. Var lítt um varpið skeytt á næstu árum og fugladráp mik- ið í firðinum. Varpið óx þó smám saman og vorið 1937 urpu þarna um 1000 kollur. Þá flutti fólk að Mýrum, er kunni að hirða varplönd og jókst varpið á næstu árum mun meira en áður. Mest hefir þó varpið aukizt í tíð núverandi bónda og eiganda jarðarinnar, Gísla Vagnssonar, eða um rétt 5 kg. á ári. Árið 1935 urpu þarna um 1250 æðarkoll- ur, er gáfu 25 kg. af dún, en 1939 um 2300—2400 æðarkollur, og er dúnninn áætlaður um 45 kg. Fyrir tveim árum síðan var tún og varpland afgirt og heldur girðingin tæfu frá varpinu, en hún laumaðist stundum í það áður. En til varnar gegn örnum, svartbaki og hrafni, dugir girð- ingin ekki. Vitað er um þrjá fullorðna erni í Dýrafirði. Hafa þeir aðset- ur inni í' fjarðarbotni. Heim- sækja þeir varpið nú árlega og valda oft usla. Talið er að ern- irnir hafi drepið 22 lömb í Dýrafirði í fyrra og eru dæmi þess að örn hafi fengið sér eina tvílembinga í máltíð. Eina full- orðna kind léku þeir svo illa, að ekki varð hægt að lækna hana. Þykir þeim, sem verða fyrir hinum þungu búsifjum arnarins, súrt í broti að þola slík spell- virki bótalaust og mega ekki verja lífsbjörg sína fyrir vargi. Gísli á Mýrum segir, að ernirnir hætti að sjást þar ytra, þegar koliurnar eru komnar úr varp- inu með ungana og inn í fjarð- arbotninn og muni æðarfugiinn þá vera aðalfæða þeirra. Svartbakur gerir einnig usla. Geta má þess til gamans, að tveir svartbakar verptu fast við aðalvarpið i vor og tók Gísli egg hans og lét hann hafa æð- aregg í staðinn. Fóstraði hann þau. Æðarkollur lögðust jafnan á eggin, er hann brá sér frá þeim, en hann hrakti þær strax burtu, þegar hann kom aftur. Er ungarnir komu út hjá svart- baksmömmu, tóku æðarkollurn- ar þá af henni. Munu þær hafa treyst sér til að fóstra þá betur úr því. Gísli á Mýrum álítur að hefj- ast beri handa með eyðingu vargs úr varplöndum og verð- launa dráp svartbaka og hrafna. Eigi einkum að framkvæma það dráp i veiðistöðvum á vetrum, en þangað safnast að vonum mesti fjöldi þeirra. Góðviðrið síðustu árin hjálpar til að færri fuglar farast úr harðrétti en oft áður. Telur Gísli að til mála geti komið, að skattleggja dún- inn til að mæta kostnaðinum við eyðinguna. Færeyskir sjómenn segja, að Færeyingar verðiauni hrafna- dráp og sé orðið mjög lítið af fugiavargi þar. Dúnninn er nú í mjög góðu verði. Þarf að gera allt til þess, sem unnt er, að auka dúntekj- una, útrýma vargi, hafa gott auga með æðarfuglaskyttum, hlynna vel að varplöndum og reyna að koma á varpi, þar sem skilyrði eru til þess, en það mun vera víðar en menn almennt hyggja. — Á krossgötnm. (Framh. af 1. siðu) Kristján Sigurðsson kennari á Brúsa- stöðum talaði um sögustaði í Vatnsdal. Að svo búnu var haldið út í Vatnsdals- hóla, en þar hafði ungmennafélag í Afstaða Bandaríkj- anna til Evrópnstyrj- aldar. (Framh. af 1. síðu) málamaður svo um mælt, að England þyrfti að bíða nokkra ósigra til að tryggja sér hjálp Bandaríkjanna. Þá fyrst myndi þeim Bandaríkjamönnum renna blóðið til skyldunnar. Þetta reyndist rétt þá og ef til vill þarf það að verða þannig aftur. En víst er það, að ættartengslin milli Englands og Bandaríkj- anna hafa stöðugt komið gieggra og gleggra í ljós eftir því, sem á- standið í Evrópu hefir orðið ó- friðvænlegra. Sveinsstaðahreppnum efnt til útisam- komu. Kynningarmót sem þetta, þar sem hver og einn var kynntur með nafni, er alger nýlunda. Þótti það vel gefast. Á víðavangi. (Framh. af 1. síðu) þeir eru í stjórnarsamvinnunni. Annars ætti Vísir ekki að vera að tala um heilindi í þeim efn- um, Afstaða hans, bæði fyrir og eftir að stjórnarsamvinna flokk- anna hófst, hefir ekki verið með þeim hætti, að honum farist siíkt. Gerið svo vel aff líta á hin nýju innlendu fataefni. Verulega vandaffar tegundir. Klæðaverzlun GUÐM. B. \IK \R Laugavegi 17. Sími 3245. 134 William McLeod Raine: — Ég var á leið til Picket Wire. — Ætlastu til að ég trúi því, ha? Þú hefir sennilega ætlað að skila aftur hest- inum, sem þú stalst, eða ætlaðirðu ekki að segja það? — Klárnum, sem annar maður stal, herra Oakland. Taylor lagði hægri fót- inn fram yfir hnakkkúluna og lét hana hanga niður með bógnum, til að sitja sér hægar meðan hann talaði. — Steve Walsh sýslumaður tók fastan manninn, sem stal honum. Hann náði honum á Quarter Circle XY. — Á Quarter Circle XY, ha? — Já. Þar býr svolamenni, sem heitir Prescott. Það gerði byl á mig allt í einu og ég varð að skríða til bæjar, undan veðrinu. — Haltu áfram, þér gengur bara vel, sagði Oakland háðslega. — Ég býst við að ég verði að koma til dyranna eins og ég er klæddur, góðir hálsar. Ég hafði orðið að taka til fót- anna, vegna smáóhappa í Ten Sleep í Wyoming, og lögreglan var að svipast eftir mér. Þessi nasvísi sýslumaður ykk- ar þekkti míg og tók mig höndum. — Hvaða óhapp verstu að tala um, spurði Oakland. Taylor hikaði eins og menn gera, er þeir verða að segja meira en þeir óska. — Nú ég — satt að segja varð ég að Flóttamaðurinn frá Texas 135 skjóta mann þar og forða mér. ÞaÖ vildi svo óheppilega til, að þetta var lög- reglufulltrúi, svo það varð fjölmennt á slóð minni. — Hvað hafðir þú gert? — Því var haldið fram, að ég hefði rænt póststofu, en það var enginn fót- ur fyrir því, þeir tóku mig fyrir annan. — Ég býst við því, já! Hvaða póst- stofa var þetta? — Póststofan í Basin. — Og Walsh sá svo, eftir að hann hafði handtekið þig, hvað þú varst góð- ur borgari, svo að hann sleppti þér lausum, sagði Oakland glottandi. Taylor glotti sauðarlega. — Ekki var það nú tilfellið. Hann gætti sín ekki sem bezt, svo sem tvær sekúndur, og þá tal- aði ég til hans með byssuskeptinu. Síð- an tók ég skammbyssuna hans, þennan klár og hvarf svo út í myrkrið. Snöggvast brá fyrir ánægjuglampa i járnköldum augum Oaklands. Hann vonaði að þessi saga um hrakfarir Walsh væri rétt. Maðurinn sagði hik- laust frá þessu, en hann gat verið hrað- lýginn. Hann var í hörmulegri klípu og myndi auðvitað segja hvað sem var, ef það gæti hjálpað honum. — Ég trúi ekki einu orði af þessu bulli þínu, sagði Oakland tortrygginn. — Þú veizt, lagsmaður, hvað við gerum við

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.