Tíminn - 19.08.1939, Blaðsíða 4
380
TÍMIM, langardagiim 19. ágwst 1939
95. blað
Yfir landamærin
1. Kommúnistar biðla nú ákaft til
heildsalanna í blaði sínu. Á föstudag-
inn skora þeir á alla þá Sjálfstœðis-
menn, sem „hafi pólitíska skoðun og
pólitískan manndóm" að hlíta ekki
lengur leiðsögn forystumanna, sem
vilja að flokkurinn styðji þjóðstjórn-
ina, því með slíku sé verið að „afneita
trúnni á sigurvonir sínar, málstað sinn
og möguleika til að stjórna landinu"
Það verður fróðlegt að sjá, hvort
heildsalavaldið snýst nú eins og við
liðsbón kommúnista og á Norðfirði og í
Hafnarfirði síðastliðinn vetur.
2. Mbl. heldur því fram, að það sé
Framsóknarflokknum að kenna, að
fátœkraframfærslan hafi aukizt í
Reykjavík. Eins og fyrri daginn getur
blaðið ekki fært minnstu rök fyrir máli
sínu, enda er það ekki hægt. Fram-
sóknarflokkurinn er eini flokkurinn,
sem hefir barizt fyrir því, að beina
fjármagninu til sveitanna og smærri
kauptúnanna og draga þannig úr að-
streyminu til Reykjavíkur. Hann hefir
í fjölmörg ár bent á úrræði til að
stórminnka fátækrakostnaðinn í Rvík
og hann væri langtum minni nú,
ef þau úrræði hefði verið hagnýtt.
íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjórninni
hefir aldrei viljað fallast á þau og
getur því fyrst og fremst sjálfum sér
um kennt, hvernig komið er í þessum
efnum.
3. Mbl. er sífellt að klifa á hinni
miklu eyðslu ríkissjóðs í launagreiðsl-
um. Vafalaust má ná einhverjum
sparnaði á því sviði og verður það líka
án efa gert. En með því eru ekki
læknaðir höfuðágallar launagreiðsl-
anna, því hjá ýmsum hálfopinberum
fyrirtækjum eins og Eimskipafél. og
Fisksölusamlaginu er miklu hærri laun
en hjá ríkinu. Sömuleiðis hjá Reykja-
víkurbæ. Þessum stofnunum ráða í-
haldsmenn. Þá eru launagreiðslurnar
miklu hærri hjá ýmsum einkafyrir-
tækjum en ríkinu. Alþingi getur ekki
takmarkað launagreiðslur þar, nema
með sköttum. Þessvegna eru skatt-
arnir bezti hemillinn á hverskonar
eyðslusemi í launagreiðslum. Mbl. sýn-
ir bezt tvískinnung sinn og alvöruleysi
i þessu máli með því að heimta jafn-
hliða minni eyðslusemi í launagreiðsl-
um og lækkun skatta!
x+y.
MOLAR
Japönsku hershöfðingjarnir vilja
ólmir gera hernaðarbandalag við Þjóð-
vrja og Ítalí. Forystumaður þeirra í
þeim efnum er Seishiro Itagaki, núver-
andi hermálaráðherra. Hann er kom-
inn af fátœkum bœndaœttum eins og
flestir herforingjar Japana, var orðinn
liðsforíngi 19 ára gamall, en hershöfð-
ingi varð hann fyrir sjö árum. Hann
er nú 54 ára.
ötulasti stuðningsmaður hans er
vafalaust Kenji Doihara hershöfðingi,
sem er á svipuðum aldri og hefir stund-
um verið nefndur „Lawrence Japans",
því hann þykir hafa verið nœstum
eins snjall að vinna Kínverja til fylgis
við Jdpani og Lawrence að vinna Araba
til fylgis við Breta. En vinnubrögð
hans hafa verið allt önnur. Hann hef-
ir einkum beitt svikum og mútum.
Talið er að hann hafi þúsundir njósn-
ara í þjónustu sinni og sé langsam-
lega áhrifamesti maður Japana á
meginlandi Asíu.
Hins vegar hefir hann getið sér litla
herfrœgð og er því ólíkur Lawrence í
þeim efnum.
Frœg er sagan um viðskipti hans og
kínverska hershöfðingjans Han Fu-chu,
sem stjómaði her l Norður-Kína áður
en Japanir lögðu landið undir sig.
Doihara liafði látið narra hann til
leynistöðva sinna í Tsinan og hótaði
honum, að hann slyppi ekki lifandi í
<JR BÆNUM
Messur á morgun:
Messa í dómkirkjuni kl. 10, Sigur-
björn Á Gíslason, cand. theol. — í frí-
kirkjunni kl. 5, séra Árni Sigurðsson
predikar. — í fríkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 2, séra Jón Auðuns predikar.
Landnám templara
við Elliðavatn verður vígt á morgun.
Bifreiðaferðir verða frá Vörubílastöð-
inni og Bifreiðastöð Reykjavíkur.
Hestamannafélagrið Fákur
efnir til skemmtiferðar á morgun.
Hefir svo verið ákveðið, að lagt verði
af stað frá íshúsinu við Fríkirkjuveg
klukkan 9 í fyrramálið.
Gestir í bænum.
Júlíus Ólafsson bóndi í Miðjanesi í
Reykhólasveit, Gunnar Þórðarson
bóndi í Grænumýrartungu.
Knattspyrnumenn
úr öðrum flokki Knattspyrnufélags
Reykjavíkur, fjórtán að tölu, fara utan
á mánudaginn. Hefir íþróttaráð Fær-
eyja boðið þeim þangað til lands til
knattspyrnukeppni í Tórshavn og
Trongisvági. Heim eru þeir væntanlegir
aftur 3. september.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af séra Ófeigi Vigfússyni í Fells-
múla ungfrú Sigríður Arinbjarnardótt-
ir frá Hvammstanga og Guðmundur
Daníelsson rithöfundur frá Guttorms-
haga.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. síðu)
heys. Annan slátt sló hann 29. júní
og gaf hann þá af sér 16 hestburði. í
þriðja slætti, 1. ágúst fengust 12 hest-
burðir. Enn er jafnvel útlit til að slá
megi blettinn í sumar og yrði það þá
fjórði slátturinn. Eftir annað slátt voru
borin 60 kg. af tilbúnum áburði á blett-
inn,
t r t
Tólf starfsmenn frá Kaupfélagi Hér-
aðsbúa fóru snemma þessa mánaðar
í skemmtiför inn að Vatnajökli. Var
ekið á bifreið alla leið, þar til um einn
kílómetri var ófarinn til jökulsins. Frá
Reyðarfirði var farið um Norðurlands-
veg að Rangalóni, þaðan Jökuldals-
heiði að Brú og inn Fiskidal til Lauga-
valla og þaðan ekið eftir greiðfærum
sandölum um 50 kílómetra leið inn að
jöklinum. Ferðin tók þrjá daga. Far-
arstjóri var Þorsteinn Jónsson kaup-
félagsstjóri.
burtu, ef hann gengi ekki á hönd
Japana.
Han Fu-chu tók þessu mjög rólega,
leit á úrið sitt og sagði:
— Nú er klukkan 11.25. Áður en ég
kom hingað gaf ég fyrirskipun um, að
drepa alla Japani í borginni, ef ég
vceri ekki kominn aftur kl. 12. —
Síðan 'stóð hann upp, gekk út úr
fundarsalnum og enginn hreyfði hönd
né fót til að stöðva hann.
* * *
Hér birist yfirlit um lögfestan há-
markshraða bifreiða í nokkrum lönd-
um:
í borgum: Albanía 10 km., Búlgaría
15, Danmörk 40, Þýzkaland 60, England
40, Finnland 12, Holland 20, Júgóslavia
15, Lettland 40, Lithauen 35, Luxem-
berg 20, Noregur 35, Pólland 40, Bœ-
heimur 40, Rúmenía 20, Svíþjóð 35,
Spánn 12, Tyrkland 20, Ungverjaland
40.
Á þjóðvegum: Albania 40 km., Dan-
mörk 60, Þýzkaland 100, Finnland 70,
Júgóslavía 50, Lettland 70, Lithauen 70,
Noregur 60, Portúgal 40.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
þeim aftur með lipurð, og bif-
reiðastjórinn ekur með tilliti til
þess, að hann hefir lifandi dýr
á ökutæki sínu, er hér sóma-
samlega að skepnunum búið.
Hitt ætti svo hverjum bónda að
vera metnaðaratriði að líða ekki,
að skepnur sínar séu fluttar
nema með bíl, er hefir góðan og
til þess gerðan útþúnað og hver
bílstjóri ætti heiðurs síns vegna
að kosta kapps um, að vera í
engu lakar búinn til flutning-
anna heldur en gert hefir -verið
að lágmarkskröfu. Sízt af öllu
má undirburður á bifreiðapöll-
unum vera lélegur eða af skorn-
um skammti. En að sjálfsögðu
ættu bændur ávallt að athuga
það vel frá hugsmunasjónar-
miði, hvort ekki sé þeim hag-
felldara að reka fé sitt til slátr-
unar heldur en að flytja á bif-
reiðum.
Matvælarannsóknir
(Framh. af 1. síðu)
ir tekið upp matarreglur dr.
Saiki og neytir þessa ódýra
fæðis.
Margir verksmiðjueigendur
hafa látið taka upp þetta nýja
mataræði við verksmiðjur sínar
og eru tengdar við það vonir um
stórfelldar launalækkanir, sem
síðar geta haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir keppinauta Japana
á heimsmarkaðinum.
Rannsóknir virðast staðfesta
það fullkomlega, að þetta nýja
„24 aura mataræði“ sé hollara
og fjörefnaríkara en það fæði,
sem japanskur verkalýður býr
við um þessar mundir. Það er
m. a. miðað við það, að veita
hverjum einstakling 3000 hita-
einingar á dag.
Allir réttir dr. Saiki eru búnir
til úr innlendum fæðutegund-
um. Með því að taka upp „24
aura mataræðið“ er talið að Jap-
anir séu orðnir fullkomlega
sjálfbjarga í þessum efnum og
þurfa ekki hér eftir að óttast
hungursneyð, ef til þess skyldi
koma að Bandarikjamenn og
Bretar setji þá í viðskiptabann.
Hagnýtið berín
(Framh. af 1. siðu)
nota þann vinnukraft til þess-
ara hluta. Einkum þyrfti að
skipuleggja það, að börn og ung-
lingar úr Reykjavík og öðrum
stærri bæjum gætu á ódýran
hátt komizt í berjamó til berja-
tínslu.
2. Félagið beinir því til land-
eigenda, sem ekki hafa tök á að
nota berjalönd sín sjálfir, að
leyfa öðrum að nytja þau, gegn
mjög vægu gjaldi, eða helzt
engu.
3. Því er beint til kaupmanna
og kaupfélaga, að taka ber til
sölu og greiða sem bezt fyrir
heppilegum og góðum viðskipt-
um milli þeirra, sem vilja selja
ber, og neytendanna.
4. Þá er því beint til verk-
smiðja og annarra, sem búa til
sultur, saft eða aðrar svipaðar
vörur, að nota ber til þess eftir
því sem ástæður leyfa.
Samgöngeimál
Borgfiröinga.
(Framh. af 2. síðu)
lögur: Laxfoss verði leystur und-
an skyldum þeim, að þurfa að
annast Breiðafjarðarferðir. Lax-
foss verði látinn fara alla daga
til Borgarness, vor, sumar og
haust og þrisvar í viku að vetr-
inum. Og til Akraness fari hann
á hverjum degi allt árið þegar
fært er að lenda þar og oft tvis-
var á dag eftir þörfum. Far-
gjöld til Borgarness frá Reykja-
vík verði 5 kr. aðra leiðina en
7—8 kr. fram og til baka. Far-
gjöld til Akraness verði kr. 2.50
aðra leiðina, en 3.50—4.00 kr.
fram og til baka. Mótorbátur á
stærð við þann, er nú annast
mest flutninga milli Akraness
og Reykjavíkur, verði svo hafður
til vöruflutninga frá Reykjavík
til beggja nesjanna eftir því
sem þörf krefur. En i framtíð-
inni ber að keppa að því, að fá
stærra og hraðskreiðara skip
en Laxfoss, því að það er eins
og áður hefir verið sagt með
réttu, að það er varla forsvar-
anlegt að hafa á þessari fjöl-
förnu og sívaxandi farþegaleið
minna og seinskreiðara skip
heldur en Laxfoss er.
„Það stekkur enginn lengra
en hann hugsar", sagði einn af
vitrustu mönnum þessa lands.
Borgfirðingar og aðrir aðilar
hafa stórbætt samgöngurnar
milli Borgarfjarðar og höfuð-
staðarins. Og þeir ætla sér að
gera það enn betur. Þeir gera
það líka, hvað sem öllum skrum-
auglýsingum og yfirgangi gróða-
fíkinna einstaklinga líður, sem
kunna að ná í svipinn þeim tök-
um á einstökum stjórnendum
landsins, er til skaða má verða
almenningi í landinu.
Að samgöngur við BoTgarfjörð
séu góðar, er ekki eingöngu
hagsmunir Borgfirðinga heldur
líka stórmikils hluta allra lands-
manna. V. G.
íþróttir.
(Framh. af 3. síðu)
asta drengjamótið, þar sem Sig-
urður og Anton geta keppt, því
þátttakendur mega ekki vera
eldri en 18 ára, en Janus er
yngri en þeir. Janus er frá Ós-
koti í Mosfellssveit.
Drengjamótið er eitt af at-
hyglisverðustu iþróttamótunum.
Af því má mikið dæma um
framtíðina. Það vekur áhuga
meðal þeirra ungu, en það skipt-
ir miklu máli, að þeir, sem ætla
að komast langt í einhverri i-
þróttagrein, byrji ungir. Hins-
vegar er mjög óhyggilegt að
unglingar æfi margar íþrótta-
greinar í einu. Það getur endað
í fúski, og ekki sé lögð nægileg
áherzla á þær íþróttagreinar',
sem bezt falla hlutaðeigandi
keppanda.
Á drengjamótið þyrftu að
koma keppendur utan af landi
og ættu ungmennafélögin að
sinna því máli. Ab.
Björn Kristjáiisson.
(Framh. af 3. síðu)
þegna í sama landi. En að leiks-
lokum gátu báðir aðilar litið
hleypidómalaust og með skiln-
ingi á málstaðinn í heild sinni.
Og við fráfall þessa aldraða bar-
áttumanns mun mörgum göml-
um andstæðingum verða hug-
stætt að minnast þess í sögu
hans, hversu fátækt og harð-
rétti í æsku verður oft undir-
staða mikils þroska, þar sem í
hlut eiga eljusamir hæfileika-
menn með mikla starfsþrá og
sterkan vilja. Björn Kristjáns-
son hafði þessa kosti. Saga hans
sýnir, að enn er unnt að vinna
merkilega sigra á íslandi fyrir
æskumenn.sem hafa þrek og dug
til að horfast í augu við harða
llfsbaráttu og mikla erfiðleika.
J. J.
„Brúarfoss(<
fer á mánudagskvöld 21. ágúst
um Vestmannaeyjar, Norðfjörð
og Seyðisfjörð, til Grimsby og
Kaupmannahafnar.
‘""“■"■GAMLA bÍÓ—
Segðu sannleík-
ann Nícole!
Bráðskemmtileg og smell-
in amerísk gamanmynd.
Aðalhlutverkið leikur hin
fjöruga franska leikkona
•°~-°-NÝJA BÍÓ—
MILJÓN
f BOÐI
(I’ll give a million!)
Bráðsmellin a m e r í s k
skemmtimynd frá Fox, er
sýnir á frumlega fyndinn
hátt sögu um miljónamær-
ing, sem leiddist auðæfin
go gerðist flakkari.
194 William McLeod Ranie: Flóttamaðurinn frá Texas 195
— Gefst þú ætíð upp ef einhver fer
þess á leit við þig, spurði Clint háðslega.
— Ég hélt að þú værir álitinn bardaga-
maður.
— Ég er bara hæglátur og löghlýðinn
borgari, sem blöðin hafa ófrægt, svar-
aði Taylor í sama tón. — Þau gera
skaðræðisgrip úr skikkanlegum manni,
eins og þið þekkið.
— Og hengja hann, bætti Bob við
þrjózkulega.
Hann gat ekki gleymt Walsh. Sýslu-
maðurinn hafði verið hetja í hans aug-
um og þessi þorpari hafði ef til vill
myrt hann, eða að minnsta kosti reynt
að gera það.
Taylor leit á Bob. Augu hans urðu
hörkuleg og hann beit saman tönnun-
um. Hann ætlaði ekki að segja meira,
úr því að þeir hugsuðu þaning. Þeir
máttu halda hvað þeir vildu.
XX. KAFLI.
Fréttirnar, sem Dug Peters færði,
voru reiðarslag fyrir Molly. Hún símaði
eftir lækni meðan faðir hennar fór eft-
ir þeim særða. Síðan bjó hún svo um,
að sjúklingurinn yrði lagður í hennar
eigið herbergi og tók til umbúðir. At-
burðurinn var samt rothögg fyrir hana,
þó hún framkvæmdi þetta allt.
Hún var í raun og veru sek um það,
sem skeð hafði. Hún ákærði sjálfa sig
í sífellu. Þetta hefði aldrei skeð ef hún
hefði ekki sleppt þessum Barnett laus-
um. En hún var svo áköf, þóttist alltaf
vita miklu meira en allir aðrir og vildi
hafa allt eftir sínu eigin höfði. Hún
hafði til fullnustu skilið að fanginn var
stórhættulegur glæpamaður, sakaður
um morð, en samt hafði hún frelsað
hann af persónulegum ástæðum.
Molly missti kjarkinn þegar hún sá
Walsh. Lífið virtist vera að fjara út
hjá honum. Það gat slokknað á hverri
stundu. Hún óskaöi þess svo innilega að
læknirinn vildi flýta sér, en hún vissi að
hans var ekki von fyrr en eftir nokkrar
klukkustundir.
Þegar búið var að búa um Steve, bað
hún og bað, heitt og innilega.
Hún sat við rúmið og horfði á hann.
Augnalok hans tóku að hreyfast og svo
opnaði hann augun. Hann horfði á Molly
og það brá fyrir brosi í brúnum augun-
um. Varir hans bærðust og hún laut
niður að honum, til að reyna að greina
hvað hann segði.
— Ég náði honum ekki í þetta sinn,
hvíslaði hann veikum rómi. — Ég gekk
í gildru eins og barn.
— Þú mátt ekki tala, Steve, sagði
hún blíðlega.
— Nei. Aðeins-------ég ætla að sigra.
DANIELLE DARRIEUX,
sem kölluð hefir verið „feg-
ursta leikkona Evrópu“.
DOUGLAS FAIRBANKS
yngri og
MISCHA AUER.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Iimrltun í slcólann hefst niánudaginn 4.
september kl. 7 síðdegfs í skrifstofu skólans,
cn þriðjudaginn 22. ágóst hefst á sama stað
innritun í undirkáningsdeild undir inntöku i
skólann og undirbúning undir bekkjapróf.
Skólagjald greiðist við innritun.
Fyrirspurnum viövíkjandi skólanum,
svarar Bagnar Þórarinsson á skrifstofu Tré-
smiðafélags Beykjavíkur þar til innritun
hefst.
SKÓLASTJÓRm.
2O°|0 3O°|0 45°|0
O S T A R
frá Mjólkursamlagí Eyfirdínga
alltaf fyrirliggjandi
í heildsölu.
Samband ísLsamvínnufélaga
Sími 1080.
| THE WORLD'S GOOD NEWS §
® wili come to your home every day through »
| THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR |
{X An International Daily Neivspaper &
It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor
W does not exploit crime or sensation; neither does it Ignore them, ir
>x but deals correctively with them Features for busy men and all the $
w family, including the Weekly Kfagazine Section. w
W The Christian Science Publishing Society $
(w One. Norway Street, Boston. Massachusetts
«) Please enter my subscripÝion to The Christian Science Monitor for $
W a period of rtw
(I) 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 $
(M Wednesday issue. including Magazine Section •. 1 year $2.60. 6 issues 25c
Address_______________________________ W
áX Sample Copv on Request W
&ssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss®
r
U rvalsnl^erOir
Jónasar Jónssonar
Samband ungra Framsóknarmanna gefur á þessu ári
út nýtt bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónssonar og verð-
ur það álíka stórt og það, er kom í fyrra vetur, Merkir
samtíðarmenn. Verð þess verður og hið sama, fimm krón-
ur óbundið, en 7.50 í snotru shirtingsbandi. Verður band-
ið þrennskonar, brúnt, grænt og rautt.
Eins og kunnugt er og áður hefir verið skýrt frá hér
í blaðinu, verða í hinu nýja bindi greinar frá æskuárum
Jónasar og birtust flestar þeirra í Skinfaxa, ungmenna-
félagsblaðinu, á sínum tíma. Þessar greinar voru þá und-
anfari almennrar æskulýðsvakningar í landinu og jafn-
framt túlkun á þeim skoðunum, sem ungt fólk ól í brjósti,
en ekki höfðu áður fallið í einn farveg.
„Merkir samtíðamenn“ var gefin út í upplagi er nam
2100 eintökum og seldist þó með öllu á hálfu ári. Þótt
upplag bindisins, sem kemur út í haust, verði nokkru
stærra, má eiga það víst, að það selzt alveg upp á mjög
skömmum tíma. Þess vegna þurfa menn að gerast áskrif-
endur hið allra fyrsta.
Útsölu á bókunum og áskriftasöfnun verður hagað á
sama hátt og áður, þannig að bókaútgáfan hefir um-
boðsmenn í öllum sveitum og kauptúnum, sem taka á
móti áskriftum og áskriftagjaldi, ef borgað er fyrirfram.
En ef menn óska þess geta þeir sent pöntun sína til Jóns
Helgasonar, pósthólf 961, Reykjavík, eða hringt í síma
2353. Einnig munu áskriftarlistar liggja frammi á af-
greiðslu Tímans í Reykjavík.
Aðalhlutv. leika:
WARMER BAXTER,
MARJORIE WEAVER
og
PETER LORRE.