Tíminn - 19.08.1939, Qupperneq 4

Tíminn - 19.08.1939, Qupperneq 4
380 TÍMIM, langardagiim 19. ágwst 1939 95. blað Yfir landamærin 1. Kommúnistar biðla nú ákaft til heildsalanna í blaði sínu. Á föstudag- inn skora þeir á alla þá Sjálfstœðis- menn, sem „hafi pólitíska skoðun og pólitískan manndóm" að hlíta ekki lengur leiðsögn forystumanna, sem vilja að flokkurinn styðji þjóðstjórn- ina, því með slíku sé verið að „afneita trúnni á sigurvonir sínar, málstað sinn og möguleika til að stjórna landinu" Það verður fróðlegt að sjá, hvort heildsalavaldið snýst nú eins og við liðsbón kommúnista og á Norðfirði og í Hafnarfirði síðastliðinn vetur. 2. Mbl. heldur því fram, að það sé Framsóknarflokknum að kenna, að fátœkraframfærslan hafi aukizt í Reykjavík. Eins og fyrri daginn getur blaðið ekki fært minnstu rök fyrir máli sínu, enda er það ekki hægt. Fram- sóknarflokkurinn er eini flokkurinn, sem hefir barizt fyrir því, að beina fjármagninu til sveitanna og smærri kauptúnanna og draga þannig úr að- streyminu til Reykjavíkur. Hann hefir í fjölmörg ár bent á úrræði til að stórminnka fátækrakostnaðinn í Rvík og hann væri langtum minni nú, ef þau úrræði hefði verið hagnýtt. íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjórninni hefir aldrei viljað fallast á þau og getur því fyrst og fremst sjálfum sér um kennt, hvernig komið er í þessum efnum. 3. Mbl. er sífellt að klifa á hinni miklu eyðslu ríkissjóðs í launagreiðsl- um. Vafalaust má ná einhverjum sparnaði á því sviði og verður það líka án efa gert. En með því eru ekki læknaðir höfuðágallar launagreiðsl- anna, því hjá ýmsum hálfopinberum fyrirtækjum eins og Eimskipafél. og Fisksölusamlaginu er miklu hærri laun en hjá ríkinu. Sömuleiðis hjá Reykja- víkurbæ. Þessum stofnunum ráða í- haldsmenn. Þá eru launagreiðslurnar miklu hærri hjá ýmsum einkafyrir- tækjum en ríkinu. Alþingi getur ekki takmarkað launagreiðslur þar, nema með sköttum. Þessvegna eru skatt- arnir bezti hemillinn á hverskonar eyðslusemi í launagreiðslum. Mbl. sýn- ir bezt tvískinnung sinn og alvöruleysi i þessu máli með því að heimta jafn- hliða minni eyðslusemi í launagreiðsl- um og lækkun skatta! x+y. MOLAR Japönsku hershöfðingjarnir vilja ólmir gera hernaðarbandalag við Þjóð- vrja og Ítalí. Forystumaður þeirra í þeim efnum er Seishiro Itagaki, núver- andi hermálaráðherra. Hann er kom- inn af fátœkum bœndaœttum eins og flestir herforingjar Japana, var orðinn liðsforíngi 19 ára gamall, en hershöfð- ingi varð hann fyrir sjö árum. Hann er nú 54 ára. ötulasti stuðningsmaður hans er vafalaust Kenji Doihara hershöfðingi, sem er á svipuðum aldri og hefir stund- um verið nefndur „Lawrence Japans", því hann þykir hafa verið nœstum eins snjall að vinna Kínverja til fylgis við Jdpani og Lawrence að vinna Araba til fylgis við Breta. En vinnubrögð hans hafa verið allt önnur. Hann hef- ir einkum beitt svikum og mútum. Talið er að hann hafi þúsundir njósn- ara í þjónustu sinni og sé langsam- lega áhrifamesti maður Japana á meginlandi Asíu. Hins vegar hefir hann getið sér litla herfrœgð og er því ólíkur Lawrence í þeim efnum. Frœg er sagan um viðskipti hans og kínverska hershöfðingjans Han Fu-chu, sem stjómaði her l Norður-Kína áður en Japanir lögðu landið undir sig. Doihara liafði látið narra hann til leynistöðva sinna í Tsinan og hótaði honum, að hann slyppi ekki lifandi í <JR BÆNUM Messur á morgun: Messa í dómkirkjuni kl. 10, Sigur- björn Á Gíslason, cand. theol. — í frí- kirkjunni kl. 5, séra Árni Sigurðsson predikar. — í fríkirkjunni í Hafnar- firði kl. 2, séra Jón Auðuns predikar. Landnám templara við Elliðavatn verður vígt á morgun. Bifreiðaferðir verða frá Vörubílastöð- inni og Bifreiðastöð Reykjavíkur. Hestamannafélagrið Fákur efnir til skemmtiferðar á morgun. Hefir svo verið ákveðið, að lagt verði af stað frá íshúsinu við Fríkirkjuveg klukkan 9 í fyrramálið. Gestir í bænum. Júlíus Ólafsson bóndi í Miðjanesi í Reykhólasveit, Gunnar Þórðarson bóndi í Grænumýrartungu. Knattspyrnumenn úr öðrum flokki Knattspyrnufélags Reykjavíkur, fjórtán að tölu, fara utan á mánudaginn. Hefir íþróttaráð Fær- eyja boðið þeim þangað til lands til knattspyrnukeppni í Tórshavn og Trongisvági. Heim eru þeir væntanlegir aftur 3. september. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjóna- band af séra Ófeigi Vigfússyni í Fells- múla ungfrú Sigríður Arinbjarnardótt- ir frá Hvammstanga og Guðmundur Daníelsson rithöfundur frá Guttorms- haga. Á krossgötnm. (Framh. af 1. síðu) heys. Annan slátt sló hann 29. júní og gaf hann þá af sér 16 hestburði. í þriðja slætti, 1. ágúst fengust 12 hest- burðir. Enn er jafnvel útlit til að slá megi blettinn í sumar og yrði það þá fjórði slátturinn. Eftir annað slátt voru borin 60 kg. af tilbúnum áburði á blett- inn, t r t Tólf starfsmenn frá Kaupfélagi Hér- aðsbúa fóru snemma þessa mánaðar í skemmtiför inn að Vatnajökli. Var ekið á bifreið alla leið, þar til um einn kílómetri var ófarinn til jökulsins. Frá Reyðarfirði var farið um Norðurlands- veg að Rangalóni, þaðan Jökuldals- heiði að Brú og inn Fiskidal til Lauga- valla og þaðan ekið eftir greiðfærum sandölum um 50 kílómetra leið inn að jöklinum. Ferðin tók þrjá daga. Far- arstjóri var Þorsteinn Jónsson kaup- félagsstjóri. burtu, ef hann gengi ekki á hönd Japana. Han Fu-chu tók þessu mjög rólega, leit á úrið sitt og sagði: — Nú er klukkan 11.25. Áður en ég kom hingað gaf ég fyrirskipun um, að drepa alla Japani í borginni, ef ég vceri ekki kominn aftur kl. 12. — Síðan 'stóð hann upp, gekk út úr fundarsalnum og enginn hreyfði hönd né fót til að stöðva hann. * * * Hér birist yfirlit um lögfestan há- markshraða bifreiða í nokkrum lönd- um: í borgum: Albanía 10 km., Búlgaría 15, Danmörk 40, Þýzkaland 60, England 40, Finnland 12, Holland 20, Júgóslavia 15, Lettland 40, Lithauen 35, Luxem- berg 20, Noregur 35, Pólland 40, Bœ- heimur 40, Rúmenía 20, Svíþjóð 35, Spánn 12, Tyrkland 20, Ungverjaland 40. Á þjóðvegum: Albania 40 km., Dan- mörk 60, Þýzkaland 100, Finnland 70, Júgóslavía 50, Lettland 70, Lithauen 70, Noregur 60, Portúgal 40. Á víðavangi. (Framh. af 1. síðu) þeim aftur með lipurð, og bif- reiðastjórinn ekur með tilliti til þess, að hann hefir lifandi dýr á ökutæki sínu, er hér sóma- samlega að skepnunum búið. Hitt ætti svo hverjum bónda að vera metnaðaratriði að líða ekki, að skepnur sínar séu fluttar nema með bíl, er hefir góðan og til þess gerðan útþúnað og hver bílstjóri ætti heiðurs síns vegna að kosta kapps um, að vera í engu lakar búinn til flutning- anna heldur en gert hefir -verið að lágmarkskröfu. Sízt af öllu má undirburður á bifreiðapöll- unum vera lélegur eða af skorn- um skammti. En að sjálfsögðu ættu bændur ávallt að athuga það vel frá hugsmunasjónar- miði, hvort ekki sé þeim hag- felldara að reka fé sitt til slátr- unar heldur en að flytja á bif- reiðum. Matvælarannsóknir (Framh. af 1. síðu) ir tekið upp matarreglur dr. Saiki og neytir þessa ódýra fæðis. Margir verksmiðjueigendur hafa látið taka upp þetta nýja mataræði við verksmiðjur sínar og eru tengdar við það vonir um stórfelldar launalækkanir, sem síðar geta haft alvarlegar afleið- ingar fyrir keppinauta Japana á heimsmarkaðinum. Rannsóknir virðast staðfesta það fullkomlega, að þetta nýja „24 aura mataræði“ sé hollara og fjörefnaríkara en það fæði, sem japanskur verkalýður býr við um þessar mundir. Það er m. a. miðað við það, að veita hverjum einstakling 3000 hita- einingar á dag. Allir réttir dr. Saiki eru búnir til úr innlendum fæðutegund- um. Með því að taka upp „24 aura mataræðið“ er talið að Jap- anir séu orðnir fullkomlega sjálfbjarga í þessum efnum og þurfa ekki hér eftir að óttast hungursneyð, ef til þess skyldi koma að Bandarikjamenn og Bretar setji þá í viðskiptabann. Hagnýtið berín (Framh. af 1. siðu) nota þann vinnukraft til þess- ara hluta. Einkum þyrfti að skipuleggja það, að börn og ung- lingar úr Reykjavík og öðrum stærri bæjum gætu á ódýran hátt komizt í berjamó til berja- tínslu. 2. Félagið beinir því til land- eigenda, sem ekki hafa tök á að nota berjalönd sín sjálfir, að leyfa öðrum að nytja þau, gegn mjög vægu gjaldi, eða helzt engu. 3. Því er beint til kaupmanna og kaupfélaga, að taka ber til sölu og greiða sem bezt fyrir heppilegum og góðum viðskipt- um milli þeirra, sem vilja selja ber, og neytendanna. 4. Þá er því beint til verk- smiðja og annarra, sem búa til sultur, saft eða aðrar svipaðar vörur, að nota ber til þess eftir því sem ástæður leyfa. Samgöngeimál Borgfiröinga. (Framh. af 2. síðu) lögur: Laxfoss verði leystur und- an skyldum þeim, að þurfa að annast Breiðafjarðarferðir. Lax- foss verði látinn fara alla daga til Borgarness, vor, sumar og haust og þrisvar í viku að vetr- inum. Og til Akraness fari hann á hverjum degi allt árið þegar fært er að lenda þar og oft tvis- var á dag eftir þörfum. Far- gjöld til Borgarness frá Reykja- vík verði 5 kr. aðra leiðina en 7—8 kr. fram og til baka. Far- gjöld til Akraness verði kr. 2.50 aðra leiðina, en 3.50—4.00 kr. fram og til baka. Mótorbátur á stærð við þann, er nú annast mest flutninga milli Akraness og Reykjavíkur, verði svo hafður til vöruflutninga frá Reykjavík til beggja nesjanna eftir því sem þörf krefur. En i framtíð- inni ber að keppa að því, að fá stærra og hraðskreiðara skip en Laxfoss, því að það er eins og áður hefir verið sagt með réttu, að það er varla forsvar- anlegt að hafa á þessari fjöl- förnu og sívaxandi farþegaleið minna og seinskreiðara skip heldur en Laxfoss er. „Það stekkur enginn lengra en hann hugsar", sagði einn af vitrustu mönnum þessa lands. Borgfirðingar og aðrir aðilar hafa stórbætt samgöngurnar milli Borgarfjarðar og höfuð- staðarins. Og þeir ætla sér að gera það enn betur. Þeir gera það líka, hvað sem öllum skrum- auglýsingum og yfirgangi gróða- fíkinna einstaklinga líður, sem kunna að ná í svipinn þeim tök- um á einstökum stjórnendum landsins, er til skaða má verða almenningi í landinu. Að samgöngur við BoTgarfjörð séu góðar, er ekki eingöngu hagsmunir Borgfirðinga heldur líka stórmikils hluta allra lands- manna. V. G. íþróttir. (Framh. af 3. síðu) asta drengjamótið, þar sem Sig- urður og Anton geta keppt, því þátttakendur mega ekki vera eldri en 18 ára, en Janus er yngri en þeir. Janus er frá Ós- koti í Mosfellssveit. Drengjamótið er eitt af at- hyglisverðustu iþróttamótunum. Af því má mikið dæma um framtíðina. Það vekur áhuga meðal þeirra ungu, en það skipt- ir miklu máli, að þeir, sem ætla að komast langt í einhverri i- þróttagrein, byrji ungir. Hins- vegar er mjög óhyggilegt að unglingar æfi margar íþrótta- greinar í einu. Það getur endað í fúski, og ekki sé lögð nægileg áherzla á þær íþróttagreinar', sem bezt falla hlutaðeigandi keppanda. Á drengjamótið þyrftu að koma keppendur utan af landi og ættu ungmennafélögin að sinna því máli. Ab. Björn Kristjáiisson. (Framh. af 3. síðu) þegna í sama landi. En að leiks- lokum gátu báðir aðilar litið hleypidómalaust og með skiln- ingi á málstaðinn í heild sinni. Og við fráfall þessa aldraða bar- áttumanns mun mörgum göml- um andstæðingum verða hug- stætt að minnast þess í sögu hans, hversu fátækt og harð- rétti í æsku verður oft undir- staða mikils þroska, þar sem í hlut eiga eljusamir hæfileika- menn með mikla starfsþrá og sterkan vilja. Björn Kristjáns- son hafði þessa kosti. Saga hans sýnir, að enn er unnt að vinna merkilega sigra á íslandi fyrir æskumenn.sem hafa þrek og dug til að horfast í augu við harða llfsbaráttu og mikla erfiðleika. J. J. „Brúarfoss(< fer á mánudagskvöld 21. ágúst um Vestmannaeyjar, Norðfjörð og Seyðisfjörð, til Grimsby og Kaupmannahafnar. ‘""“■"■GAMLA bÍÓ— Segðu sannleík- ann Nícole! Bráðskemmtileg og smell- in amerísk gamanmynd. Aðalhlutverkið leikur hin fjöruga franska leikkona •°~-°-NÝJA BÍÓ— MILJÓN f BOÐI (I’ll give a million!) Bráðsmellin a m e r í s k skemmtimynd frá Fox, er sýnir á frumlega fyndinn hátt sögu um miljónamær- ing, sem leiddist auðæfin go gerðist flakkari. 194 William McLeod Ranie: Flóttamaðurinn frá Texas 195 — Gefst þú ætíð upp ef einhver fer þess á leit við þig, spurði Clint háðslega. — Ég hélt að þú værir álitinn bardaga- maður. — Ég er bara hæglátur og löghlýðinn borgari, sem blöðin hafa ófrægt, svar- aði Taylor í sama tón. — Þau gera skaðræðisgrip úr skikkanlegum manni, eins og þið þekkið. — Og hengja hann, bætti Bob við þrjózkulega. Hann gat ekki gleymt Walsh. Sýslu- maðurinn hafði verið hetja í hans aug- um og þessi þorpari hafði ef til vill myrt hann, eða að minnsta kosti reynt að gera það. Taylor leit á Bob. Augu hans urðu hörkuleg og hann beit saman tönnun- um. Hann ætlaði ekki að segja meira, úr því að þeir hugsuðu þaning. Þeir máttu halda hvað þeir vildu. XX. KAFLI. Fréttirnar, sem Dug Peters færði, voru reiðarslag fyrir Molly. Hún símaði eftir lækni meðan faðir hennar fór eft- ir þeim særða. Síðan bjó hún svo um, að sjúklingurinn yrði lagður í hennar eigið herbergi og tók til umbúðir. At- burðurinn var samt rothögg fyrir hana, þó hún framkvæmdi þetta allt. Hún var í raun og veru sek um það, sem skeð hafði. Hún ákærði sjálfa sig í sífellu. Þetta hefði aldrei skeð ef hún hefði ekki sleppt þessum Barnett laus- um. En hún var svo áköf, þóttist alltaf vita miklu meira en allir aðrir og vildi hafa allt eftir sínu eigin höfði. Hún hafði til fullnustu skilið að fanginn var stórhættulegur glæpamaður, sakaður um morð, en samt hafði hún frelsað hann af persónulegum ástæðum. Molly missti kjarkinn þegar hún sá Walsh. Lífið virtist vera að fjara út hjá honum. Það gat slokknað á hverri stundu. Hún óskaöi þess svo innilega að læknirinn vildi flýta sér, en hún vissi að hans var ekki von fyrr en eftir nokkrar klukkustundir. Þegar búið var að búa um Steve, bað hún og bað, heitt og innilega. Hún sat við rúmið og horfði á hann. Augnalok hans tóku að hreyfast og svo opnaði hann augun. Hann horfði á Molly og það brá fyrir brosi í brúnum augun- um. Varir hans bærðust og hún laut niður að honum, til að reyna að greina hvað hann segði. — Ég náði honum ekki í þetta sinn, hvíslaði hann veikum rómi. — Ég gekk í gildru eins og barn. — Þú mátt ekki tala, Steve, sagði hún blíðlega. — Nei. Aðeins-------ég ætla að sigra. DANIELLE DARRIEUX, sem kölluð hefir verið „feg- ursta leikkona Evrópu“. DOUGLAS FAIRBANKS yngri og MISCHA AUER. Iðnskólinn í Reykjavík. Iimrltun í slcólann hefst niánudaginn 4. september kl. 7 síðdegfs í skrifstofu skólans, cn þriðjudaginn 22. ágóst hefst á sama stað innritun í undirkáningsdeild undir inntöku i skólann og undirbúning undir bekkjapróf. Skólagjald greiðist við innritun. Fyrirspurnum viövíkjandi skólanum, svarar Bagnar Þórarinsson á skrifstofu Tré- smiðafélags Beykjavíkur þar til innritun hefst. SKÓLASTJÓRm. 2O°|0 3O°|0 45°|0 O S T A R frá Mjólkursamlagí Eyfirdínga alltaf fyrirliggjandi í heildsölu. Samband ísLsamvínnufélaga Sími 1080. | THE WORLD'S GOOD NEWS § ® wili come to your home every day through » | THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR | {X An International Daily Neivspaper & It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monltor W does not exploit crime or sensation; neither does it Ignore them, ir >x but deals correctively with them Features for busy men and all the $ w family, including the Weekly Kfagazine Section. w W The Christian Science Publishing Society $ (w One. Norway Street, Boston. Massachusetts «) Please enter my subscripÝion to The Christian Science Monitor for $ W a period of rtw (I) 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 $ (M Wednesday issue. including Magazine Section •. 1 year $2.60. 6 issues 25c Address_______________________________ W áX Sample Copv on Request W &ssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss® r U rvalsnl^erOir Jónasar Jónssonar Samband ungra Framsóknarmanna gefur á þessu ári út nýtt bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónssonar og verð- ur það álíka stórt og það, er kom í fyrra vetur, Merkir samtíðarmenn. Verð þess verður og hið sama, fimm krón- ur óbundið, en 7.50 í snotru shirtingsbandi. Verður band- ið þrennskonar, brúnt, grænt og rautt. Eins og kunnugt er og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, verða í hinu nýja bindi greinar frá æskuárum Jónasar og birtust flestar þeirra í Skinfaxa, ungmenna- félagsblaðinu, á sínum tíma. Þessar greinar voru þá und- anfari almennrar æskulýðsvakningar í landinu og jafn- framt túlkun á þeim skoðunum, sem ungt fólk ól í brjósti, en ekki höfðu áður fallið í einn farveg. „Merkir samtíðamenn“ var gefin út í upplagi er nam 2100 eintökum og seldist þó með öllu á hálfu ári. Þótt upplag bindisins, sem kemur út í haust, verði nokkru stærra, má eiga það víst, að það selzt alveg upp á mjög skömmum tíma. Þess vegna þurfa menn að gerast áskrif- endur hið allra fyrsta. Útsölu á bókunum og áskriftasöfnun verður hagað á sama hátt og áður, þannig að bókaútgáfan hefir um- boðsmenn í öllum sveitum og kauptúnum, sem taka á móti áskriftum og áskriftagjaldi, ef borgað er fyrirfram. En ef menn óska þess geta þeir sent pöntun sína til Jóns Helgasonar, pósthólf 961, Reykjavík, eða hringt í síma 2353. Einnig munu áskriftarlistar liggja frammi á af- greiðslu Tímans í Reykjavík. Aðalhlutv. leika: WARMER BAXTER, MARJORIE WEAVER og PETER LORRE.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.