Tíminn - 22.08.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Hndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
lU'ykjavík. þriðjudagiiw 22. ágiísi 1939
Lögreglan í Reykjavik
Víðial vid dómsmálarádherra um
yfirsjónir lögregluþjónanna og fyr-
irhugaðar endurbætur í lögreglu-
málunum
Undanfarna daga hefir
verið ritað talsvert í dagblöð
bæjarins um lögregluna í
Reykjavík og henni borin
ýms óregla á brýn. Hóf Al-
þýðublaðið þessar umræður
og skýrði frá yfirsjónum
nokkurra lögregluþjóna.
Síðar skýrði blaðið frá því,
að menn úr öllum stjórn-
málaflokkum hafi hjálpazt
til að koma í veg fyrir, að
hinir brotlegu lögregluþjón-
ar fengu nægilega harða
refsingu og hafi lögreglu-
stjóri tekið vægilega á af-
brotunum í samráði við rík-
isstjórnina. Taldi blaðið
þetta illa farið og Morgun-
blaðið tók síðar í sama
streng, þar sem það krafð-
ist að öll „slík samábyrgð
kunningsskaparins yrði að
hverfa.“
Tíminn hefir vegna þessa
skrifa blaðanna talið rétt að
afla um málið ítarlegri upplýs-
inga, einkum um afskipti ríkis-
stjórnarinnar og þær fyrirætlan-
ir, sem hún hefir í sambandi við
það.
Hefir blaðið fyrir nokkru átt
viðtal um málið við Hermann
Jónasson dómsmálaráðherra og
fer það hér á eftir:
— Ég vil fyrst af öllu taka það
fram, segir ráðherrann, að þess-
ar ásakanir um óreglu snerta
ekki nema lítinn hluta lögregl-
unnar. Mér er það kunnugt af
margra ára reynslu, að megin-
kjarni lögreglunnar er prýðilega
starfshæft lið og verðskuldar
ekki slíka gagnrýni.
Hins vegar þarf það ekki að
valda neinni furðu, þótt ein-
hverjir ágallar komi í ljós. Fyrir
fáum árum var lögreglan fá-
menn og því auðvelt að fylgj-
ast með starfi og háttum lög-
regluþjónanna. En eftir að þeim
hefir verið fjölgað og stundum
bætt við mörgum nýliðum í einu,
hlaut sú hætta að vaxa, að ein-
hverjir lögregluþj ónar fremdu
yfirsjónir, og þá jafnframt hefir
aukizt þörf fyrir sérstaka vinnu-
aðferð til að fylgjast með starfi
þeirra og háttum.
í fjölmennum lögregluliðum
erlendis gætir þessara yfirsjóna
mikið.Þess vegna eru hafðar sér-
stakar vinnuaðferðir til að fylgj-
ast með starfi lögregluþjónanna
og reyna að koma í veg fyrir
misfellur. Þessar vinnuaðferðir
til að halda uppi aga í lögreglu-
liði, hafa aldrei verið upp tekn-
ar hér í Reykjavík, nema að litlu
leyti. Þær yfirsjónir, sem lög-
regluþjónarnir kunna að fremja,
koma tæplega til eyrna lögxeglu-
stjórans eða annarra yfirmanna
í lögreglunni, nema frá almenn-
ingi, sem verður var við þær og
oftast lætur þó ógert að kvarta,
eða lögregluþjónunum, sem
hliðra sér hjá að kæra félaga
sína.
Á seinni árum hefir það vakið
nokkurt umtal meðal almenn-
ings, einkanlega hér í Reykjavík,
að sumir lögregluþjónarnir væru
ekki eins reglusamir og ákjósan-
legt væri og hefir þetta umtal
haft við nokkur rök að styðjast.
Það sem lögreglunni er ábóta-
vant liggur líka sjaldan í láginni.
Það er ekki öllum vel við lög-
regluna og sá andi hefir ríkt
hér í landi, að bera ekki alltof
mikinn kærleika til löggæzlunn-
ar. Þessi orðrómur fékk byr í
seglin í vetur, þegar lögreglu-
þjónn, sem að vísu var ekki í
einkennisbúningi og heldur ekki
í þjónustu, var mjög drukkinn
á skemmtisamkomu hér í bæn-
um. Þegar mál hans var rann-
sakað, kom í ljós yfirsjón ann-
ars lögregluþjóns s. 1. haust og
hins þriðja, sem var enn eldri.
En yfirsjónir þessara tveggja
lögregluþjóna virtust ekki hafa
komið til vitundar lögreglu-
stjóra fyrr en drykkjuskapur
þessa lögregluþjóns, sem ölvaður
var á samkomunni, gaf tilefni
til athugunar. í sambandi við
þetta varð einnig kunnugt um
fleiri yfirsjónir miklu eldri, sem
nokkrar höfðu áður komizt til
vitundar lögreglustjóra og hann
refsað fyrir með agarefsingum
innan lögreglunnar, áminning-
um um bindindisheit og hótun
um brottrekstur, ef óreglan end-
urtæki sig. Hinum þremur lög-
regluþjónum var refsað á þann
Héradssamkoma
vid Þrastalund
Ungir Framsóknarmenn í Ár-
nessýslu og Framsóknarmenn í
Reykjavík hafa ákveðið að efna
til sameiginlegrar, almennrar
samkomu við Þrastalund fyrsta
sunnudag í septembermánuði.
Fyrirkomulag samkomunnar
hefir enn ekki verið ráðið til
fullnustu í hinum smærri drátt-
um, en þar munu fara fram
ræðuhöld, söngur, dans, ef til vill
einhverjar greinir íþrótta og
fleiri skemmtiatriði.
Þess er vænst, að fólk úr öll-
um sveitum Árnessýslu og úr
Reykjavík fjölmenni á þessa
síðsumarhátíð Framsóknar-
manna.
Dagskrá samkomunnar verður
að öðru leyti auglýst síðar.
hátt, að þeir voru sviptir kaupi
tiltekinn tíma, fyrirskipað að
ganga í bindindisfélag og vinna
bindindisheit, en jafnframt var
þeim skýrt frá því, að ef yfir-
sjónir þeirra endurtæki sig, yrðu
þeir reknir fyrirvaralaust.
Áður en þetta var gert, var
leitað upplýsinga hjá Sveini
Björnssyni, sendiherra, um
hvaða reglum væri fylgt á Norð-
urlöndum, aðallega í Danmörku,
ef slík agabrot lögregluþjóna
ættu sér stað og svaraði hann
þannig:
„Svar gærskeyti Fyrsta skipti
sekt allt að hálfsmánaðarlaun-
um plús fyrirlag ganga í bind-
indisfélag og hótun afsetningu
við ítrekun. Annað skipti ef
sama brot sama hækkandi sekt.
Þriðjá brot skilyrðislaus afsetn-
ing. íslandsgesandt.“
Lögregluþjónunum þremur
hefir því verið refsað alveg í
samræmi við þær refsingar, sem
gilda á Norðurlöndum um hlið-
stæð brot. Ég fæ því ekki séð, að
þau ummæli séu réttlát, að það
hafi verið fyrir beiðni manna
úr öllum flokkum, eins og fram
hefir komið í blöðunum, að það
hafi verið hilmað yfir brot þess-
ara þriggja lögregluþjóna.
Ýmsir álíta að það hefði átt
að reka lögregluþjónana fyrir
yfirsjónir þeirra, og ég skal alls
ekki neita því, að það sé rétt-
mætt að vikja lögregluþjóni úr
stöðu fyrir slíkar yfirsjónir, en
hins verður að gæta, að það hefði
verið mjög vafasamt réttlæti að
taka fyrirvaralaust þessa þrjá
menn og refsa þeim með öðrum
hætti fyrir yfirsjónir sínar held-
ur en refsað hafði verið undan-
farin ár fyrir svipuð brot. Það
er grundvallaratriði allra refsi-
reglna, hvort sem það eru al-
mennar refsingar eða agarefs-
ingar, að ekki séu teknar upp
fyrirvaralaust nýjar refsiaðferð-
ir, nema að um það séu sett lög
eða reglur fyrirfram. Annað
virðist ranglæti, en ekki réttlæti.
— Haldið þér að setja þurfi
lögregluþj ónum strangari aga-
refsingar hér en annarsstaðar,
m. a. fyrir þá sök að íslendingar
virðast fara ver með áfengi en
flestar aðrar þjóðir?
(Framh. á 4. síöu)
96. blað
Hitler.
Stalin.
Samningar Rússa og Þjóðverja
Þjóðverjar magnast í Danzigdeílunni
Horfur í alþjóðamálum hafa
farið stórum versnandi seinustu
dagana og bendir margt til, að
hin verstu tíðindi séu í vændum.
Fyrir nokkru síðan virtist
samningaumleitunum Breta og
Frakka við Rússa verið komið
það langt, að von bráðar myndi
nást fullkomið samkomulag. Var
haft til marks um það, að stjórn-
ir Frakklands og Englands sendu
hernaðarsérfræðinga til Moskva
til að ræða við rússnesku her-
stjórnina um væntanlega hern-
aðarsamvinnu í styrjöld.
Um tíma virtist þetta hafa
sefandi áhrif á Þjóðverja og á-
rásir þýzkra blaða á Pólverja
voru ekki eins hatramar og þær
höfðu áður verið.
En seinustu dagana hefir sótt
í sama horfið aftur. Þýzku blöð-
in birta nú daglega langa frétta-
bálka um níðingsverk, sem Pól-
verjar vinni á Þjóðverjum í Pól-
landi og hina hörmulegu aðbúð,
sem þýzkir menn sæti þar.
Minna þessi skrif í einu og öllu
á skrif þýzku blaðanna um
Tékkoslóvakíu í fyrra. Jafnframt
þessu hafa þau hert á kröfunum
um innlimun Danzig í Þýzka-
land. í Danzig miðar styrjaldar-
viðbúnaðinum áfram með geysi-
hraða og æsingarnar í garð Pól-
verja aukast. Forráðamenn naz-
ista þar láta svo ummælt, að
þess sé nú skammt að bíða, að
A.
Berjatínsla í grennd við
Flugsýning í Eyjafirði. -
Berjavöxtur mun víðast vera stórum
meiri í ár heldur en að undanförnu,
einkum að því er bláber snertir. Að
undanförnu, sérstaklega um helgar,
hefir verið æði mannmargt í berjalönd-
um í grennd við Reykjavík og hafa
flestir komið heim með góðan feng.
Ýmsar verzlanir hér í Reykjavík vilja
kaupa ber fyrir gott verð. Meðal annars
auglýsir kaupfélagið eftir bláberjum og
krækiberjum. Mun það ætla berin bæði
til sölu og til saftgerðar. Samkvæmt
því, er Jens Figved, framkvæmdarstjóri
félagsins, hefir sagt Tímanum, berst
því mun minna af berjum heldur en
það hefir þörf fyrir til daglegrar út-
sölu, hvað þá til vinnslu. Mun jafnvel
í ráði, að kaupfélagið skipuleggi ódýrar
berjaferðir héðan úr bænum, til þess
að afla sér þess magns af berjum, sem
það hefir þörf fyrir. Verðlag á berjun-
um mun vera svo ríflegt, að hver, sem
sinnir tínslu af kappi, má vera full-
sæmdur af því kaupi, er hann getur
þannig unnið sér fyrir.Ferðir úr bænum
í berjalandið eru hinsvegar nokkuð
dýrar, ef um enga skipulagningu eða
samtök er að ræða, sérstaklega ef dag-
lega þarf að fara heiman og heim.
r r r
Kaupfélag Eyfirðinga hefir tvö und-
anfarin sumur keypt bláber í allstórum
stíl, einkum í hitteðfyrra. Lætur það
vinna saft og sultur úr berjunum í
efnagerð, sem það starfrækir í sam-
bandi við smjörlíkisgerðina. Danskur
maður, sem veitir efnagerðinni for-
stöðu, telur að úr íslenzku berjunum
Reykjavík. — Berjakaup Kaupfélags Eyfirðinga. —
- Hundar drepa fé. — Aflabrögð á verstöðvunum í
Vestfirðingafjórðungi. ---------------
fáist mun betri vörur heldur en unnt
er að framleiða úr öðrum ávöxtum eða
efnum. í ár er kaupfélagið búið að
kaupa á aðra smálest af bláberjum í
þessu skyni, en vill kaupa alls 4—5
smálestir í sumar. Mest af þessum berj-
um berst félagið úr Svarfaðardal, en
einnig víðar að. Hefir það um þessar
mundir keypt berin á 1,30 hvert kíló-
gramm.
r r r
Flugsýning, hin fyrsta norðan lands,
fór fram síðastliðinn sunnudag í
grennd við Grund í Eyjafirði á svo-
nefndum Melgerðismelum. Um sex
hundrúð manns sótti flugsýninguna.
Veður var miður heppilegt, vindur af
suðri til talsverðs baga.
r r r
Eins og frá var skýrt hér í blaðinu
á sínum tíma, drápu hundar allmargar
kindur i Geldinganesi í sumar. Nú ný-
lega fannst lamb í grennd við Hafnar-
fjörð, er bar mikla áverka eftir hunda,
að því er bezt varð séð. Liggur jafnvel
grunur á, að víðar séu hér um slóðir
talsverð brögð að því, að illa vandir
hundar hlaupi í og elti sauðfé í hagan-
um og rífi til skemmda og ef til vill
drepi einstakar kindur. Þar sem svo er
í raun og veru, er það ófögnuður mikill
og óþarft við að búa.
r r r
í seinasta tölublaði Ægis birtist ítar-
leg greinargerð um fiskafla í verstöðv-
unum í Vestfirðingafjórðungi að af-
stöðnu aðalþorskveiðitímabilinu. Er
aflamagnið miðað við fullverkaðan fisk
og tala fiskibáta við það, er flest var.
Samkvæmt yfirliti þessu voru veíði-
brögðin, sem hér greinir: í Stein-
grímsfirði voru 160 smál. fiskjar komn.
ar á land í júnílok, 48 smál. á sama
tíma I fyrra. 15—16 vélbátar gengu
þaðan til fiskjar i vor og 4—5 árabátar.
— Á Hornströndum, Hesteyri og í Að-
alvík nam fiskaflinn 120 smál, í fyrra
115 smál. með svipaðri tölu fiskbáta
nú og þá. 3 vélbátar frá Grunnuvík
öfluðu um 30 smál. — í byrjun júlí-
mánaðar höfðu 4 velbátar úr Ögur-
nesi og Ögurvík aflað 35 smál. — Úr
Álftafirði gengu um skeið 4 vélbátar
og 4 hreyfilbátar og höfðu aflað 159
smál. í lok júnímánaðar, en þar feng-
ust 132 smál. til sama tíma í fyrra. —
Frá ísafirði gengu í vetur, þegar flestír
voru, 15 vélbátar stærri en 12 rúm-
lestir, 3 smærri vélbátar og 8—9 opnir
vélbátar. Ennfremur einn togari. Alls
nam aflinn í ísafjarðarkaupstað 1767
smál. í byrjun júlímánaðar, en 1035 á
sama tíma í fyrra. — Úr Hnífsdal
gengu um hríð 5 vélbátar og síðar 5—6
hreyfilbátar. Úr Arnardal gengu nokkr-
ir smábátar. Alls nam aflinn 270 smál.,
en í fyrra 248. — 19 vélbátar gengu
lengst af úr Bolungavík, auk nokkurra
aðkomubáta, sem lögðu þar upp afla
sinn. í júlíbyrjun nam afiinn 610 smál.,
en 530 í fyrra. — 6 vélbátar gengu á
vetrarvertíð frá Suðureyri og í vor
allmargt smábáta. Afli í júlíbyrjun
talinn 217 smál., í fyrra 161%. — Frá
Flateyri gengu 6 vélbátar og 10—11
(Framh. á 4. síðu)
Danzig sameinist Þýzkalandi.
Það virðist nú sýnilegt, vegna
hversu Þjóðverjar hafa tayrjað á
nýjan leik með svæsnar árásir
á Pólverja og auknar kröfur á
hendur þeim. Síðastl. sunnudag
var tilkynnt að undirritaður
hefði verið nýr viðskiptasamn-
ingur milli Rússa og Þjóðverja,
þar sem gert er ráð fyrir stór-
auknum viðskiptum milli land-
anna og að Þjóðverjar láni Rúss-
um 200 milj. marka til vöru-
kaupa í Þýzkalandi. Mörg þýzk
blöð og rússneska stjórnarblað-
ið „Pravda“, segja að þessi
samningur muni ekki aðeins
auka viðskiptin milli landanna,
heldur muni hann einnig geta
eflt samvinnu þeirra á stjórn-
málasviðinu.
Þessi spá blaðanna virðist
hafa verið byggð á fullkominni
vitneskju,því að seint í gærkveldi
var tilkynnt í Berlín, að Rússar
og Þjóðverjar myndu gera með
sér hlutleysissamning og færi
Ribbentrop utanríkisráðherra til
Moskva um miðja vikuna til að
undirrita samninginn.
Með þessu virðast Þjóðverjar
líta svo á, að þeir hafi tryggt sér
hlutleysi Rússa i Danzigdeilunni
og er því skiljanlegt, hvers vegna
þeir hafa aukið áróður sinn í
þeim málum seinustu dagana.
Enn er ekki séð, hvaða áhrif
þessir samningar kunna að hafa
meðal Breta og Frakka, en rik-
isstjórnir beggja hafa ítrekað
stuðning sinn við Pólverja mjög
greinilega seinustu dagana og
blöðin í þessum löndum taka
mjög fast í sama streng.
Þjóðverjar virðast nú komnir
það langt í kröfum sínum um
Danzig, að héðan af geti þeir
ekki snúið aftur, nema með því
að baka stjórn Hitlers mikils á-
litshnekkis. Það má því telja víst.
að þeir reyni að innlima Danzig
með einhverjum hætti og treysti
því, að þeim verði það kleyft með
hlutleysí Rússa.
Síldveiðin
Mjög góður afli síldar hefir
verið fyrir Norðurlandi nú um
helgina. Á vestanveröu síldar-
svæðinu tók síldar að verða vart
á laugardagskvöldið, en á aðal-
veiðislóðunum varð flugvélin
Örn vör mikillar síldar á
sunnudagsmorgun. Flaug hún
frá Akureyri klukkan 6 árdegis
á sunnudagsmorgun og sá mikl-
ar síldartorfur við Gjögur og allt
austur fyrir Flatey, en hvergi
skip. Voru þá send út skeyti og
tilkynningar um síldarfundinn
og um hádegi voru 40—50 skip
komin til veiða við Flatey.
Áætlað er, að 20—25 þúsund
tunnur síldar hafi verið saltað
ar á Siglufirði á sunnudaginn og
auk þess var saltað þar nokkuð
í gær og mikið í nótt, líklega
12—15 þúsund tunnur. Komu í
gærkvöldi skip til allra söltunar-
stöðva í Siglufirði og var alstað-
ar saltað sleitulaust í alla nótt
Á víðavangi
Áburðarnýtingu íslenzkubænd-
anna hefir lengst af verið á-
bótavant. Og enn brestur víða
á um meðferðina á húsdýraá-
burðinum og nægjanlega nýtni
á þeim áburðarefnum, sem til
fallast, þrátt fyrir allt það rækt-
unarstarf, er innt hefir verið af
höndum hina tvo síðustu ára-
tugi, og þann ræktunarhug, sem
er í landsmönnum. Hefir Tím-
inn áður farið nokkrum orðum
um öll þau býsn áburðarverð-
mæta, sem farið hafa forgörð-
um með fiskislógi því, sem fleygt
hefir verið í fiskiþorpum og ver-
stöðvum og sumstaðar þykir
ekki svara kostnaði að notfæra
sér enn þann dag í dag. Öðrum
sjávarþorpum hefir slógið gefið
ógrynni góðra jurta og hvers
kyns jarðargróða.
* * *
Hér í blaðinu var einnig fyrir
skömmu sagt frá bónda einum
vestfirzkum, sem aldrei kaupir
eða notar tilbúinn áburð á tún
sitt, og er þó natinn jarðræktar-
maður og hefir eigi síður öðrum
bændum gagn af hinni ræktuðu
jörð. Og hann er mörgum fremri
um áburðarhirðingu og áburðar-
nýtingu heima fyrir. Sjálfsagt
eru það slíkir menn, sem ættu
að vera annnarra fyrirmynd.
Bændur landsins eiga tvímæla-
laust að nota sem allra bezt
allt, sem heima er að fá og til
áburðar getur orðið, og kaupa
ekki tilbúinn áburð nema það sé
óumflýjanlegt, þrátt fyrir hina
ítrustu hagnýtingu húsdýraá-
burðarins.
* * *
Margir bændur hafa á sein-
ustu árum byggt sérstakar safn-
þrær fyrir kúaþvagið og telja
það einum rómi einhverja þá
nytsömustu og hyggilegustu
framkvæmd, sem þeir hefðu get-
að ráðizt í. Þvagið er einhver sá
kjarnmesti áburður, sem hægt
er að fá. Athugulir bændur
telja sig með þessum hætti fá
að jafnaði þvag undan hverri
kú, sem að áburðargildi er til
jafns við nær tvo poka af salt-
pétri. Bygging safnþrónna er
hins vegar nokkuð kostnaðar-
söm, þótt það þurfi engum
manni að vaxa í augum móts
við gagnið, sem þær gera. Þær
verða að vera úr góðri og galla-
lausri steinsteypu, járnbentri,
vel niðurgrafnar og grunnlagðar,
svo að engin hætta sé á að þær
missigi eða skemmist af völdum
frosts. Það þarf að fást hæfileg-
ur halli í þróna úr fjósinu, svo
að þvagið geti runnið sjálfkrafa
gegn um leiðsluna og fjósflórinn
þarf að vera steyptur. Ennfrem-
ur krefjast safnþrærnar nokkurs
útbúnaðar, forardælu og á-
burðardreifara. En þegar á það
er litið, hve miklum og dýr-
mætum áburðarefnum, sem
annars verða að litlu eða engu
í haugstæðum og haughúsum, er
bjargað á þennan hátt, er alveg
augljóst, að bygging safnþróar
er sú framkvæmd, sem víða ætti
að sitja í fyrirrúmi á bændabýl-
um landsins. Safnþrærnar eru
enda styrktar ríflega samkvæmt
j arðræktarlögunum.
•
frá því klukkan 10—11 í gær-
kvöldi.
Síld virðist nú vera á öllu
svæðinu frá Rauðunúpum að
Skaga.
í gærkvöldi syrti að með norð-
vestan átt, en veiðiveður hélzt
þó í nótt. Sjómenn óttast ekki,
að norðanáttin muni fjarlægja
síldina, heldur telja jafnvel að
hún haldist betur að landi vegna
hafáttarinnar.
Samkvæmt skýrslum Fiskifé-
lagsins nam síldin, sem söltuð
hafði verið, síðastliðinn laugar-
dag 106,458 tunnum. Á sama
tíma höfðu 190,994 tunnur verið
saltaðar í fyrra.
Bræðslusíldaraflinn var á
laugardaginn orðinn 841,114
hektólítrar, en var 1,3.03,542
hektólítrar á samatíma s.l. ár.