Tíminn - 24.08.1939, Qupperneq 4
388
TtMPflV, fimmtiidagmii 24. ágúst 1939
9T. blað
Yfir landamærín
1. Kommúnistablaðið veit enn ekki,
hvernig það á að bera í bætifláka
fyrir samherja sina í Moskva, vegna
samninga þeirra við Þjóðverja. í gær
gaf blaðið þá skýringu, að samningur-
inn væri gerður til að tryggja friðinn
í heiminum, en í dag að Rússar hafi
gert hann til að hefna sln á Chamber-
lain!
2. í kommúnlstablaðinu í dag birtist
löng grein, þar sem kvartað er undan
áhugaleysi flokksmanna og þeir ásak-
aðir fyrir að láta falla niður fundi „í
stjórnum, liðum, nefndum og hópum“.
Kommúnistar hafa það fyrirkomulag
að skipta félögum sínum í deildir og
þær eru síðan leystar upp í stjórnir,
nefndir, áhugalið og leshópa svo allir
geti gegnt einhverju embætti. Er það
ekki nema að vonum að menn þreytist
á hinum sífellda skrípaleik kommún-
ista að þeir fari að týna tölunni, sem
tfR BÆNUM
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Margrét Jóhannesdóttir,
Björnssonar frá Hofsstöðum, og Ólafur
Bjarnason, stud. med. frá Akranesi.
Berjaferðir
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrenn-
is hefir skipulagt berjaferðir fyrir al-
menning og eiga þeir, sem vilja taka
þátt í þeim, að tilkynna það á skrif-
stofu félagsins i síma 1727, þar sem
fullnægjandi upplýsingar fást um
berjaferðirnar. Verður bæði um að
ræða stuttar ferðir í nágrennið og um
lengri ferðir til sérstaklega góðra berja-
svæða, þar sem ætlazt er til að dvalið
verði í nokkra daga. Þátttakendur í
lengri ferðunum verða útveguð tjöld
eða dvöl á sveitabæ, ef þeir óska þess.
Þeir, sem óska þess, mega greiða far-
gjöld með berjum, en öll fargjöld verða
mjög lág. Þessi framtakssemi kaupfé-
lagsins til þess að koma i veg fyrir, að
Þcgnskylduvlnnan
(Framh. af 3. síðuj
grasvöxtur og grasgæði á engj-
um manna verður ekki örvuð
með nýjum áveitum og skóg-
ræktaráformin mega bíða eins
og þau hafa reyndar alltaf beð-
ið hingað til.
Margir munu sennilega líta á
þegnskyldukvöðina sem nýjar á-
lögur. Að vissu leyti má það til
sanns vegar færa. En hún yrði
fyrst og fremst trygging þess, að
nauðsynlegustu umbótunum í
landinu þurfi aldrei að linna
þótt harðni í ári. Og hún yrði
tvímælalaust hin boðna hönd
gervallrar þjóðarinnar til þess
að hlynna að framleiðslunni og
búa í haginn fyrir þá, er henni
sinna. Hún yrði landvarnarkvöð,
Stefánsljós
í Skagafírði
(Fravih. af 3. siðu)
ans, og í þeirri stofnun, þar sem
andi hans á að svífa yfir vötn-
unum verður að lifa eftir for-
dæmi meistarans sjálfs.
En aðstaðan í Varmahlíð er
betri en svo, að tæmdar verði
allar orkulindir til þeirra við-
fangsefna, sem nú hefir verið
greint frá. Heita vatnið og gufan
nægir til að hita margar og stór-
ar byggingar, en auk þess til
garðræktar og gróðurhúsa. Mun
þess varla langt að bíða að stór-
felld garðrækt hefjist í Varma-
hlíð til margháttaðra umbóta
fyrir haustið. Því auðveldara er
þetta sökum þess, að rafmagns-
skilyrði eru góð í Varmahlíð.
Víðimýraráin, sem kemur upp á
Stóra-Vatnsskarði og rennur
fram hjá litla býlinu, þar sem
Stephan G. Stephansson las ís-
lendingasögur og ljóð skáldanna
í hjásetunni, getur með litlum
kostnaði runnið fram hjá
Reykjarhóli og niður hvamminn
meðfram skólabyggingunni. Þar
er fallhæð til að gera góða raf-
stöð til daglegra nauðsynja í
Varmahlíð. Enginn getur nú sagt
um með vissu hverja þýðingu
rafmagnið kunni að fá í sam-
bandi við vetrarræktun í ís-
lenzkum gróðurhúsum.
VI.
Fyrir ári síðan var ég um
þetta leyti árs að skoða
yndislega kirkju vestur á Kyrra-
hafsströnd. í hliðargöngum
kirkjunnar var fullt af litsterk-
um, angandi blómum. Lífsloftið
og sólarhitinn streymdi inn um
opna glugga og dásamlega lit-
sterkar, ilmandi jurtir, vöfðu sig
um súlur kirkjunnar. Mér datt
þá í hug, að ef til vill kæmi sá
dagur, að Skagfirðingar eignuð-
ust aðra höfuðkirkju og að hún
yrði í Varmahlíð við hlið skól-
ans, og að í henni mætti, ef til
vill, við hita hins kalda lands
frá hverum og raforkuverum,
láta þróast á öllum tímum árs
angandi, litfögur blóm til minn-
ingar um skáldið úr Skagafirði,
sem hvarf ungur í fjarlægð og
gerði þar mikinn veg æskuhér-
aðsins og landsins alls. En
þessir draumar tilheyra ókomn-
um árum. Vafalaust munu
margir menn spyrja: Hvernig
geta Skagfirðingar reist þvílíkt
höfuðból á erfiðum tímum? Það
er auðvelt, ef viljinn er nógur
og trúin á framtíð lands og
þj óðar.
Hin nýja Varmahlíð á að rísa
eins og klaustrin á miðöldun-
um. Munkarnir og áhugasamir
trúmenn reistu þau. Varmahlíð-
arfélagið mun safna peningum
með föstu skipulagi um nokk-
urra ára skeið. Ríkið mun veita
nokkurt fé. Og æskan vinnur
að fyrirtækinu. Hvern vetur og
vor steypa ungir menn steina í
bygginguna og nema um leið
byggingariðju, sem þeir þurfa
að nota hver um sig. Ungu stúlk-
urnar nema vefnað, en gera
um leið nauðsynlega dúka fyrir
hið mikla sameiginlega heimili
héraðsins. Þannig mun Varma-
hlíð rísa, fyrir sameiginlegt á-
tak þúsund áhugasamra karla
og kvenna, bæði heima í Skaga-
firði og annarsstaðar. Og á
þennan hátt munu allir hinir
eldri héraðsskólar fá þann við-
bótarstyrk, sem þá skortir nú til
að geta leyst aðkallandi vanda-
söm hlutverk.
Inn í miðri Washington, höf-
uðborg Bandaríkjanna, rís 500
feta há súla, einföld að gerð og
hvít að lit. Umhverfis þessa
súlu eru fagrir skemmtigarðar,
og lítið tilbúið stöðuvatn. Hvíta
súlan endyrspeglast á kyrrum
sumardögum í blálygnu vatn-
inu. Hún gnæfir yfir öll hús í
bænum og sést víða að úr
grenndinni.
Bandaríkjamenn hafa reist
þennan einfalda en tígulega
minnisvarða um George Was-
hington, hinn sigursæla og
giftudrjúga foringja þjóðarinn-
ar í frelsisstríðinu.
Mér finnst, að mjög vel færi
á því, að efst á hinum mikla
sjónarhól, ofan við Varmahlíð,
væri reistur minnisvarði Step-
hans G. Stephanssonar, og að
það ætti að vera fagurgerður,
hvítur viti með ljósi, sem sæist
um allt héraðið. Sá viti ætti að
heita Stefánsljós. íslendingar
munu ekki um stærð og dýr-
leika etja kappi um minnis-
láta hafa sig að slíkum ginningarfífl-
um til langframa.
3. Skringilegar hugleiðingar í rit-
stjórnargrein Mbl. í morgun. Annað
veifið lœzt blaðið vera eindregið fylgj-
andi þjóðstjórninni og gera sitt ítrasta
til að samkomulag geti náðst um
vandamálin. Hitt veifið hvetur blaðið
til þess, að fast sé haldið fram stefnu
flokksins og „undirbúinn fullkominn
sígur: Meirihluti Sjálfstæðismanna
meðal þjóðarinnar og á þingi“. Blaðið
lýsir þvi síðan yfir, að fullkomin eining
ríki í flokknum, en ekki virðist betur
séð en að þessi grein sé skrifuð til að
þóknast tveimur andstæðum örmum í
flokknum og þessvegna hafi hún orðið
stefnulaust rugl. x—y.
Síldarverksmíðju-
málið á Sígluiirði
(Fravih. af 1. síðu)
inn hefir ekki talið sér kleift að
lána þau hundruð þúsunda kr.,
sem þurfa til slíkrar fram-
kvæmdar.
Ofstopinn í þessu „Rauðku“-
máli er runninn undan rifjum
þeirra, sem hafa ætlað sér að
hafa pólitískan ávinning af yf-
irráðum hins nýja atvinnufyr-
irtækis á Siglufirði.
Útgerðarmenn og sjómenn
hafa áreiðanlega engan brenn-
andi áhuga fyrir því, að síldar-
bræðslurnar séu reknar á vegum
kommúnistanna þar.
Þeir hafa hinsvegar áhuga
fyrír því, að bræðsluafköstin séu
aukin á hinn ódýrasta og hag-
kvæmasta hátt. Fyrir því hafa
Framsóknarmenn líka barizt.
Hlutleysissamníngur-
ínn milli Rússa og
Þjóðverja
(Framh. af 1. síðu)
Sú stefna Þjóðverja, að undir-
oka Pólverja, er miklu eldri en
nazisminn. Bismarck gerði sitt
itrasta til þess, að Pólverjar í
Rússlandi fengju ekki sjálfstjórn
og hann lét vinna mjök mark-
visst að útrýmingu pólsks þjóð-
ernis í þeim héruðum Póllands,
er lágu undir þýzka rikið. Hann
taldi aukið sjálfforræði Pólverja
hættu fyrir Þjóðverja. „Sjálf-
stætt Pólland samrýmist ekki
hagsmunum Þýzkalands" lét
Búlow fursti einu sinni ummælt.
Núverandi valdhafar Þýzkalands
virðast hafa erft þessar skoð-
anir. Blað Görings, „National
öll þau ógrynni berja, sem sprottiö hafa
í ár, rotni niður, er hin lofsverðasta.
Vonandi notar fólk sér þetta tækifæri,
er kaupfélagið veitir því.
Félagsbókbandið
hefir nýlega keypt Amtmannshúsið
við Ingólfsstræti, látið breyta því inn-
an og utan, til dæmis látið setja múr-
húð utan á það með hrafntinnu og
skeljasandi, svo að það hefir alveg
breytt um svip. Nú hefir Pélagsbók-
bandið flutt þangað vinnustofur sínar,
sem til þessa hafa verið í húsi Félags-
prentsmiðjunnar.
Zeitung", hefir nýlega látið orð
falla á þá leið, að skipting Pól-
lands 1772 hefði verið ómetan-
legur greiði við evrópiska menn-
ingu og Pólverja, sem ekki
hafi verið færir um að stjórna
sér sjálfir. Biaðið gaf síðan í
skyn, að það myndi ekki verða
síður nú.
Hlutleysissamningurinn við
Rússa hefir tvímælalaust aukið
landvinningahug Þjóðverja á
þessu sviði.
Ensku og frönsku ríkisstjórn-
irnar hafa endurtekið fyrri yfir-
lýsingar sínar um stuðning við
Pólland og almenningur í þess-
um löndum styður þær eindreg-
ið. Margvíslegar hernaðarráð-
stafanir hafa verið gerðar í
Englandi og Frakklandi sein-
ustu dagana og bera þær þess
merki, að þessar þjóðir séu und-
ir allt búnar.
Þótt undarlegt megi telja,
virðast friðarvonir margra nú
helzt tengdar við Mussolini. Það
er kunnugt, að ítalir óska ekki
eftir stríði og hefir verið tals-
verður orðasveimur um það, að
Mussolini hafi haft hug á að
gangast fyrir fiipmveldaráð-
stefnu um Danzigmálið og
mættu þar fulltrúar frá Þýzka-
landi, Ítalíu, Englandi, Frakk-
landi og Póllandi.
Orðsending til
Tíinamanna.
Tíminn biður Tímamenn, hvar
sem er á landinu, að senda við
og við fréttabréf úr byggðarlög-
um sínum. Ekki hvað sízt væri
kært að fá slík bréf úr byggð-
arlögum, sem annars er sjaldan
getið um í fréttaflutningi blaða
og útvarps.
í öllum slíkum bréfum verður
að skýra greinilega og ítarlega
frá hverju einu, sem um er rit-
að, og vanda alla frásögu, svo
sem hvíldi á unga fólkinu, og
miðaði að því að gera landið
betra í að búa og fólkiö hæfari
börn sinnar fósturjarðar. Og hún
yrði innt af höndum á hinn upp-
runalegasta hátt, meö starfsorku
hvers og eins.
Slík skylduvinna til almenn-
ingsheilla mun að vissu leyti ekki
standa fjarri skapferli íslend-
inga. Á hliðstæðan hátt, aðeins
utan við ramma nokkurrar lög-
gjafar, hefir allmikið af menn-
ingartáknum á seinni árum ver-
ið komið upp. Fjölmörg skóla-
hús, samkomuhús og fjallaskál-
ar hafa verið reistir í sjálfboða-
vinnu, oftast af fólki, sem þess
utan var æ og ávallt önnum kaf-
ið við erfiðisstörf í eigin þágu.
Á sama hátt hefir í mörgum
byggðarlögum tíðkazt frjáls, en
skipuleg og undandráttarlaus
samhjálp manna á meðal. Þeir
hafa byggt hver annars hús og
unnið saman að öllum veiga-
meiri framkvæmdum. Þessi
vinna hefir ekki verið greidd
með peningum, ekki með nein-
um gjaldmiðli, heldur samskon-
ar sjálfboðaliðastarfi, þegar
stundir liðu.
Þegnskylduvinnan verður
bundin ströngum lagaákvæðum,
af því að andi samhjálparinnar
er ekki nógu voldugur til þess
að drottna án lagasetningar í
heilu landi, þótt hann geti gegn-
sýrt fólk í einu sveitarfélagi. En
hugsjónin, sem til grundvallar
liggur, er í aðalatriðum hin
sama, þótt þar séu fleiri öfl að
verki. Framhald.
J. H.
að hvergi skeiki þar réttu máli
né um misskilning geti orðið að
ræða, og ókunnugir geti gert sér
það skýrt í hugarlund, sem ver-
ið er að lýsa. Loks er mjög þýð-
ingarmikið, að allar fréttir, sem
bréfin herma frá, séu sem allra
nýjastar. Hið sama gildir um
dánarfregnir og afmælisfregnir,
sem eru blaðinu sendar.
Minni háttar fréttir, t. d. um
samkomur og fundi, félagsaf-
mæli og fleira, er lítils virði,
þegar er um langt liðið, þótt
fréttnæmt sé um það leyti, sem
það gerist.
í slíkum fréttabréfum getur
verið gott að miða frásögnina
við það, sem gæti orðið öðrum
héruðum til fyrirmyndar og
eftirbreytni.
202 WiUiam McLeod Raine:
ekki frjálsar hendur. Slepptu Slim, hann
er særður í þessum handlegg.
Molly fannst hún finna hitann af hatri
kúrekanna. Steve var vinsæll og þessi
maður hafði skotið á hann úr launsátri.
Ef faðir hennar hefði gefið merki til,
hefðu þeir þegjandi og hljóðalaust hengt
þennan náunga í einhverju trjánna.
Kúrekarnir fóru með fangann til skál-
ans. Clint fól Peters umsjá með honum,
en fór sjálfur inn í íbúðarhúsið. Molly
kom á móti honum í fordyrinu.
— Hvernig hefir Steve það, spurði
hann.
— Wagner læknir segir að hann sé á
góðri leið. Ég þori varla að vona það, en
mér finnst að honum sé að batna.
— Húrra fyrir honum! Við höfum
sannarlega ekki efni á að missa hann,
það er ekki nema einn af þúsundi, sem
er eins og hann.
— Já, pabbi. Eruð þið Bob ekki upp-
gefnir?
— Nei, en ég býst við að við sofum
lengi, ef við byrjum á því. Við vöktum til
skiptis yfir honum.
— Barðist hann nokkuð þegar þið tók-
uð hann?
— Ekki vitund, gafst upp eins og lamb.
— Þú sagðir að hann væri særður í
handleggnum?
— Það skeði í bardaganum við Steve.
Flóttamaðurinn frá Texas 203
Clint gat ekki orða bundist lengur um
þetta allt saman. — Ég skil ekki þennan
Barnett. Hann gefst upp undir eins og
maður nálgast hann, en ég er þó viss um
að hann er enginn aukvisi. Þú sást áðan
hvernig piltarnir ruku upp, eða var það
ekki? Hann deplaði ekki einu sinni aug-
unum. Hann glotti bara að þeim, þegar
þeir voru að heimta að hengja hann.
Hvernig stendur á að hann er svona
meir eins og kítti aðra stundina, en harð-
ur sem stál hina?
— Ég veit það ekki. Hvað ætlar þú
annars að gera við hann?
— Ég síma til Tincup og segi Owen
Martin að sækja hann. Því fyr, sem ég er
laus við hann, þess fegnari verð ég. Hvað
er langt til kveldverðar, ég er að hugsa
um að fá mér bað á meðan?
— Nálægt þrem stundarfjórðungum,
en ég skal gá.
Prescott stanzaði og leit við, áður en
hann gekk inn í herbergi sitt.
— Þú skalt biðja Wagner að líta á
handlegginn á honum, sagði hann.
— Já.
Molly var fegin að faðir hennar hafði
stungið upp á þessu. Hún hafði ætlað
að biðja læknirinn að gera þetta, en
henni þótti skemmtilegra að þurfa að-
eins að skila því til hans.
— Ég vissi ekki að hann var særður,
k.——GAML., bíó***0*"0—0*
Lcyndardómur
lyklaima sjö.
Afar spennandi sakamála-
mynd, eftir samnefndri
leynilögreglusögu Earl Derr
Biggers.
Aðalhlutverk:
GENE RAYMOND og
MARGARET CALLOHAN
Aukamynd:
Síðustu æfintýri hins
heimsfræga villidýraveiði-
manns Frank Buck í frum-
skógum Indlands.
NÝJA BÍÓ—'—
Frjálslynd
æska
Hrífandi fögur og skemmti-
leg amerísk kvikmynd frá
COLUMBIA FILM, um
glaða og frjálslynda æsku.
Aaðalhlutverkin leika:
GARY GRANT,
KATHERINE HEPBURN,
DORIS NOLAN,
LEW AYRES.
SAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA***
Tilkynning
frá Byggíngarsamvínnufélagí Reykjavíkur
Eitt af húsum félagsins er til sölu í haust.
Þeir félagsmenn, sem óska að kaupa hús
þetta gefi sig fram við formann félagsins
Guðlaug Rósinkranz eða gjaldkera þess
Elías Halldórsson í Útvegsbankanum fyrir
5. september.
Jafnvel ungi fólk
eykur vcllíðan sína nicð fiví að nota
og ílmvöfn
Við framleiðnm:
EAIJ QE PORTLGAL
EAU DE QUIMIVE
EAU DE COLOGNE
RAYRHUM
ÍSVATA
Verðið í smásölu er frá kr. 1,10 til kr. 14,00, eftir
stærð. —
Þá höfum við hafið framleiðslu á
ILMVÖTAUM
úr hinum beztu erlendu efnum, og eru nokkur
merki þegar komin á markaðinn.-
Auk þess höfum við einkainnflutning á erlendum ilmvötn-
um og hárvötnum, og snúa verzlanir sér því til okkar, þeg-
ar þær þurfa á þessum vörum að halda.-
Loks viljum vér minna húsmæðurnar á bökunardropa þá,
sem vér seljum. Þeir eru búnir til með réttum hætti úi
r é 11 u m efnum. — Fást allsstaðar.-
w
Afiengisverzl. ríkísins.
merki sín við stórþjóðir heims-
ins. En viti við Varmahlíð í
Skagafirði væri að vísu ekki
gerður fyrir sjófarendur. Hann
væri reistur til hvatningar fyrir
alla æsku landsins. Skin hans
ætti að minna unga íslendinga
á, hve mikils má af þeim vænta.
Enginn þeirra á við meiri fátækt
og harðrétti að búa en Kletta-
fjallaskáldið, sem fæddist og óx
upp á fjallabýli, í hinum mestu
harðindum. Hann fær enga
skólagöngu. Enga aðstoð frá
mannfélaginu, nema þá, sem
hin vanrækta dreifbýlismenn-
ing gat gefið. Um tvítugt verður
hann að hörfa úr landi. Hann
nemur land þrem sinnum. Hann
er alla æfi fátækur, sívinnandi
einyrki. En samhliða daglegu
striti einyrkjans notar hann
hvert augnablik til sjálfnáms
og sjálfsræktunar. Hann verður
hámenntaður maður, og höfuð-
skáld lítillar þjóðar og stórþjóð-
ar. Vitsmunir hans og snilld
endurskína í ljóðum hans með-
an íslenzk tunga er töluð og
lesin. Hin forna íslenzka menn-
ing á engan glæsilegri fulltrúa
en Stephan G. Stephansson.
Hann er og verður um langa
stund þungvægasta sönnunin
um mátt dreifbýlismenningar
íslendinga. Þess vegna fer vel á
því, að Stephan G. Stephans-
son verði í andlegum efnum
verndari þeirrar stofnunar í
„Gullfioss(<
fer á föstudagskvöld 25. ágúst til
Breiðafjarðar og Vestfjarða.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
HE S TAR
til afsláttar og gamlar kýr
keypt gegn staðgreiðslu.
STEFÁN THORARENSEN lyfsali
Reykjavík
ættbyggð hans, sem verður
stofnsett til að starfa í anda
hans að margþættu landnámi.
Og það Ijós, sem brennur dag
og nótt, og lýsa á um allan
Skagafjörð, á að bera nafn hins
mikla skálds og tákna sýnilega,
í heimi efnisins, hið andlega
Ijósmagn, sem um ókomnar ald-
ir leggur frá ljóðum Stephans G.
Stephanssonar í hverja byggð og
hvert heimili, þar sem íslenzk
menning hefir skilyrði til að lifa.
J. J.