Tíminn - 07.09.1939, Page 4
412
TÍMIM, limmtndagiim 7. sept. 1939
103. blað
Yfír landamærin
1. Kommúnistablaðið veit ekki með
hvaða móti því tekst bezt að breiða
yfir vináttusamning Hitlers.og Stalins
og draga athyglina frá því, að hann sé
valdur að hinu nýbyrjaða Evrópustríði.
Seinustu dagana hefir þessi viðleitni
blaðsins helzt beinzt að því, að gera
kröfur um þvingunarráðstafanir gegn
Þjóðverjum þeim, sem dvelja hér á
landi, og síðan æpir það til lesendanna:
Þið getið séð á þessu, hvort ég er ekki
á móti nazismanum! En sennilega
munu þeir ekki verða margir, sem
blekkjast af þessum látum blaðsins,
meðan það ver samninginn, sem komið
hefir morðtólum nazismans í gang, og
dásamar harðstjórana í Moskva, sem
senda nazistunum hráefni til þess að
þeir geti haldið loftárásunum og blóð-
baðinu áfram. x-y.
Forðagæzlan
(Framh. af 3. síöu)
ef fénaður er sjálffær, sem kall-
að er, en hinn miðar við afurða-
þol eða afurðagetu. Það sýnist
þó í rauninni augljóst mál, að
hyggilegra sé t. d. að hafa tvær
kýr, sem mjólka 3000 1. hver, en
þrjár, sem ekki mjólka meira en
2000 1. hver. Mjólkurmagn er
sama í báðum tilfellum, en þrjár
kýrnar þurfa auðvitað þriðjungi
meira til eigin lífs. En þarna er
oft rangt að farið. Kýrnar eru
máske fóðraðar svo, að ekki sjái
á þeim, og þykir þá allt í lagi,
sem má gott telja hjá öðru
verra, en afurðafóðrið, sem
skepnan þyrfti, vantar að miklu
leyti og arðurinn því lítill móts
við það, sem vera mætti. Frh.
Forðagæzlumaður.
Frá styrjjöldinní
(Framh. af 1. síöu)
þýzku landamærin á nokkrum
stöðum á milli Rín og Mosel.
Segja útvarpsstöðvar í Sviss og
Luxemburg, að hann sæki í átt-
ina til Saarbrlicken, sem er
skammt frá landamærunum, og
séu ákafar orustur á þessum
slóðum. Þýzkar útvarpsstöðvar
segja hinsvegar að allt sé með
kyrrum kjörum við landamærin.
Enskar flugvélar flugu í þriðja
sinn yfir Þýzkaland í fyrrakvöld
og vörpuðu niður bréfum, án
þess að verða fyrir árásum
þýzkra flugvéla.
Þýzkar flugvélar gerðu til-
raunir til árása á enskar borgir
í gærmorgun, en voru hraktar
til baka i tæka tíð.
Ensk herskip hafa sökkt tveim
þýzkum skipum, öðru 4600 smál.
og hinu 6000 smál. Var annað
við Brazilíustrendur og hitt á
leiðinni til Hollands. Englend-
ingar björguðu báðum skips-
höfnunum áður en skipunum
var sökkt. Þjóðverjar hafa sökkt
2600 smál. ensku skipi og bjarg-
aði norskt skip áhöfninni.
Lettneskt skip hefir rekizt á
tundurdufl skammt frá Kaup-
mannahöfn og sokkið, en Dan-
ir hafa lagt tundurduflum á
þessum slóðum.
Það er upplýst, að það var
ensk flugvél, sem varpaði
sprengjum yfir Esbjerg. Enska
stjórnin hefir beðið afsökunar
og sagt, að um misgáning hafi
verið að ræða.
tTR BÆMJM
Tónlistarfélagið
fÍNkluíð.
mun innan skamms tíma byrja vetr-
arstarfsemi sína og verða hinir fyrstu
hljómleikar þess í Gamla Bíó í kvöld.
Mun þá Ungverjinn Emil Telmányi,
sem er heimsfrægur listamaður, leika
á fiðlu við undirleik konu sinnar. Tel-
mányi hefir áður komið hingað til
lands og haldið hljómleika. Einnig
mun Hljómsveit Reykjavíkur njóta að-
stoðar hans við næstu tónleika sina.
Tónlistarfélagið hefir samið við karla-
kórinn Káta félaga um aðstoð við
flutning kórverka í vetur. Að mestu
leyti hefir verið ákveðið, hvernig haga
skuli vetrarstarfsemi félagsins og er
meðal annars fyrirhugað, að í febrúar-
mánuði verði tónleikar, þar sem ein-
göngu verðá flutt íslenzk tónverk. Óp-
erettu ætlar félagið að sýna í vetur,
Brosandi land, eftir tónskáldið Lehar.
Haraldur Björnson og von Urbantsch-
itsch undirbúa þá óperettusýningu. Er
þess vænzt, að hún geti hafizt í febrú-
Opnum í dag fískbúð á Sólvallagötu 9. Eng-
ínn sími fyrst um sinn. — Komið og kaupið.
Jón & Steíngrímur.
Fjallagröi.
Við seljum í heildsölu ágæt, hreinsuð f jallagrös
Samband ísl.samvínnuíélaga
GAML BÍÓ**°"“—°’
Ástmey
ræningjans
Gullfalleg og hrífandi
stórmynd, eftir óperu Puc-
cinis „The girl of the gol-
den West“.
Aðalhlutverk leikur og
syngur:
JEANETTE MC DONALD
og
NELSON EDDY.
r—NÝJA Bíó—o——
Víctoría mikla
Englands-
drottníng
Söguleg stórmynd, sem
er mikilfengleg lýsing á
hinni löngu og viðburða-
ríku stjórnaræfi Viktoríu
drottningar, og jafnframt
lýsir hún einhverri aðdá- ■.
unarverðustu ástarsögu j
veraldarinnar. |
armánuði.
Verðlækkun á tómötum.
Nú þessa dagana hefir verið auglýst
talsverð verðlækkun á tómötum. Eru
þeir nú ódýrir, enda mikið keyptir dag-
lega.
Sími 1080.
Höfum tíl sölu nokkur tonn af
Ellilaun.
Umsóknum um ellilaun á þessu ári sé skilað
Tvö erlend skip
hafa enn leitað hafnar hér í Reykja-
vík. Er annað þýzkt vöruflutningaskip
og var í förum til Ástralíu með marg-
víslegan varning. Um það leyti, sem
styrjöldin brauzt út var skipinu siglt
af leið, beint norður um haf og kom
það hingað í gær eftir átta daga ferð.
Hitt skipið er einnig vöruflutningaskip
og er norskt. Það hefir meðferðis járn-
málm, sem það skyldi flytja frá Ný-
fundnalandi til Englands.
Bræðslusíldarverðið
hefir verið hækkað samkvæmt á-
kvörðun stjórnar síldarverksmiðjanna
og verður það hér eftir kr. 8.20 fyrir
hvert mál síldar. Áður var það kr. 6.70
hvert mál. Ástæðan til þessarar verð-
hækkunar, er hækkandi verðlag á af-
urðum þeim, er úr bræðslusíldinni fást,
síldarmjöli og lýsi.
Akstur
einkabifreiða
(Framh. af 1. síðu)
hennar sé sýnd. Bifreiðinni skal
einnig fylgja bók, sem af-
greiöslumaður sá, er afhendir
benzínið, skal skrifa i, hvenær
hann afhendir benzinið • og
hversu mikið.
Þá eru í reglugerðinni ákvæði,
sem takmarka meiri sölu til
þessara bifreiða í einu, en geym-
ir þeirra getur tekið, og bann
við því, að tæma hann á annan
hátt en með eðlilegri eyðsiu.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
í greinargerð, sem fylgir reglu-
gerðinni, segir að benzinbirgðir
þær, sem nú eru í landinu, ættu
að nægja fram í febrúar, miðaö
við venjulega notkun.
Einkabifreiðarnar eru taldar
um 520.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. siðu)
mestu flutningana hefir haft og
verið brautryðjandinn á þessari
leið, en ekki verði haldið áfram
að styðja hinn aðilann til ó-
þarfrar og óréttmætrar sam-
keppni.
Dvöl
HafiS þér tekiS þátt
í verSlaunasamkeppni
Dvalar? Vita nágrann-
ar yðar um að í Dvöl er stærsta og
merkasta safn af úrvalssögum, sem til
til á íslenzku? Eigið þér Dvöl alla í
bókaskápnum yðar? En lestrarfélagið?
Eignist Dvöl! — Adr.: Dvöl, Reykjavík.
sérlega odýrn
skepnnfóðri.
Þarf að takast fyrir mánaðamótín sept. — okt.
•lón & Steingriiiiur
Sími 1240.
Anglýiing
varðamli framkvæmd bráðablrgðareglu-
gerðar, dags. 1. sept. 1939 um sölu og
dreifing á nokkrum vörutegundum.
1. gr.
Ef svo stendur á, að smásöluverzlun hefir eigi
fyrirliggjandi einhverja af vörutegundum þeim,
sem taldar eru- í 1. gr. bráðabirgðareglugerðar,
dags. 1. sept. 1939, handa föstum viðskiptamanni
sínum, en hann getur eigi fengið vöruna keypta
hjá öðrum vegna ákvæða 3. gr. bráðabirgðareglu-
gerðar um sölu og dreifing á nokkrum nauðsynja-
vörum, gefur smásöluverzlunin kaupanda vottorð
um það, að hann sé venjulegur viðskiptamaður
hennar, og lætur þess jafnframt getið, að hann
hafi eigi þá vörutegund fyrirliggjandi, sem óskað
er eftir. Kaupandi getur þá fengið vöru þessa
keypta hjá öðrum gegn afhendingu þessa vottorðs.
Gildir þetta vottorð aðeins fyrir eina úttekt, og
lætur smásöluverzlun sú, er afhendir vöruna það
fylgja söluskýrslu sinni.
2. gr.
Ákvæði þessi öðlast þegar gildi.
í ríkisstjórn íslands, 5. sept. 1939.
Eysteiim Jónsson. Ólafur Tliors.
Jakob MöIIer. Hermann Jónasson.
Ávarp forsætisráð-
hingað á skrifstofuna fyrir lok þessa mán~
aöar.
Eyðublöð fyrir umsóknir í ofangreinda átt
fást hér á skrifstofunni, og einnig í Good-
templarahúsinu, þar sem umsækjendum,
þeim, er þess óska, verður veitt aðstoð til að
fylla út eyðublöðin frá kl. 2—5 e. h. hvern
virkan dag.
Nýir umsækjendur verða að láta fæðingar-
vottorð fylgja umsókn sinni.
Borgarstjórínn í Reykjavík, 5. september 1939
Pétur Halldorssoii.
Örorkubætur.
Umsóknum um örorkubætur á þessu ári sé
skilað hingað á skrifstofuna fyrir lok þessa
mánaöar.
Eyðublöð fyrir umsóknir í ofangreinda átt
fást hér á skrifstofunni, og einnig í Good-
templarahúsinu, þar sem umsækjendum,
þeim er þess óska, verður veitt aðstoð til að
fylla út eyðublöðin frá kl. 2—5 hvern virkan
dag.
Nýir umsækjendur um örorkubætur verða að
láta fœöingarvottorð svo og vottorö héraös-
lœknis um heilsufar sitt, fylgja umsókn sinni.
En þeir umsækjendur, sem lögðu fram vott-
orð héraðslæknis um heilsufar sitt með um-
sóknum sínum 1938, eiga að láta héraðslækni
athuga heilsufar sitt nú.
Allir umsækjendur verða sjálfir að borga
kostnað þann, sem læknisskoðunin kann að
hafa í för með sér.
herra
226
William McLeocL Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
227
(Framh. af 1. síðu)
Borgarstjórínn í Reykjavík, 5. september 1939 .
með áratugunum. Hann og Oakland
höfðu öðru hvoru tekið höndum sam-
an um ýmislegt smávegis, en oftast bar
Mosley lítið úr býtum.
Mosley stóð í dyrunum að kofa sínum
og horfði á reiðmennina nálgast. Hann
var lítill vexti, með frammjótt, slægð-
arlegt andlit. Það var síður en svo að
hann byði mennina velkomna, þegar
hann komst að raun um að þeir höfðu í
hyggju að láta sér dveljast.
Oakland þótti það samt alls ekki mið-
ur, hann hafði ánægju af því að troða
öðrum um tær.
— Okkur er ekki fagnað, Ed, fremur
en við værum rándýr, sagði Clem háðs-
lega. — En hér erum við komnir og hér
verðum við fyrst um sinn. Að svo mæltu
steig Clem af baki, en fór mjög varlega
með særða fótinn.
Mosley horfði á, er hann kom haltr-
andi heim að kofanum og spurði:
— Hvað er að þér?
— Það beit mig úlfur.
— Úlfur?
— Heyrðir þú ekki til mín, sagði
Clem. — Ef þú hefir ánægju af að vita
það, þá ætla ég að hengja bjórinn af
honum á hlöðugaflinn minn einhvern
daginn. Taktu við klárnum mínum,
Jess!
Flamigan og Mosley fóru með hestana
og Flamigan sagði, á leiðinni, frá því
sem skeð hafði.
— Clem ber sig engu betur en froskur
á steikarpönnu, sagði Mosley.
Flamigan hló. — Þú hefðir átt að
heyra til hans áðan, þegar lokan slapp
frá spariorðasafninu hans. Þá var hann
í essinu sínu. Svona okkar á milli sagt,
Jess, þá get ég með ólíkt meiri þolin-
mæði vitað af kúlu í lærinu á Clem, en
ef hún væri til dæmis í lærinu á mér
sjálfum.
Mosley hló líka. — Sama segi ég. Ég
gæti jafnvel reynt að vera glaður, þó
ég vissi hann í einhverjum örðugleik-
um.
Clem lá aftur á bak upp í rúmi, þegar
þeir komu aftur inn í kofann, en á
gólfinu lá brennivínsflaska.
— Gefðu mér eitthvað að éta, Jess,
skipaði hann. — Þú ferð af stað til borg-
arinnar, Ed., og sækir læknir handa
mér. Þú þarft ekkert að segja hver hafi
meiðst. Ég kæri mig ekkert um að allir
geti lesið í Tincup Courier, að einhver
skálkur hafi leikið á Clem Oakland og
skotið hann.
— Já, undir eins og ég hefi fengið
eitthvað í svanginn, sagði Flamigan.
Oakland varð ygldur á svipinn.
— Svö þú ætlar að sitja hér í mak-
indum og svelgja sælgæti, meðan ég
Pétur IIallilórsson.
Þá minntist hann ýmsra til-
tölulegra nýrra iðngreina, sem
ynni úr íslenzkum hráefnum,
sem gæti orðiö þjóðinni mikill
styrkur á styrjaldartímum.
„Þjóðin verður þó að sjálf-
sögðu,“ sagði ráðherrann, „að
neita sér um margt, sem áður
hefir verið flutt til landsins og
talið nauðsynlegt. Má líka á það
minna, að við höfum á undan-
förnum árum notað margskonar
erlendan óþarfa, sem kostað hef-
ir mikiö fé, en hefir verið heilsu
og velferð þjóðarinnar til ógagns.
Við eigum nú að mynda sterk
samtök um það, að neita okkur
um þennan varning, og munum
þá komast að raun um það inn-
an skamms, að við söknum ekki
neins, en það sé bæði fjármun-
um okkar og heilsu til gagns.“
Um störf ríkisstjórnarinnar
fórust honum svo orð að lokum:
„Það eru margar ráðstafanir,
sem gera þarf, og það skiptir
miklu máli, að þjóðin starfi að
því einhuga að búa sig undir að
lifa sem mest af afurðum lands-
ins sjálfs, og að því mun kröft-
um þjóðarinnar verða einbeitt.
í þeim efnum rísa mörg við-
fangsefni, sem nokkuð hafa
verið rannsökuð og eru mörg til
athugunar. Ég fer ekki inn á
þessi viðfangsefni hér. Það er
unnið að þeim sleitulaust og
verður í blöðum og útvarpi rætt
um þau mál við þjóðina jafnóð-
um og við sjáum hverju fram
vindur, undirbúningi lokið og
fullnaðarákvarðanir teknar.
Við íslendingar þurfum að
sýna samheldni í því, og fyrir
því mun rikisstjórnin beita sér,
— að eitt gangi yfir okkur öll í
þessu landi. Og þessvegna skipt-
ir það miklu máli, að allir ís-
lendingar geri sitt ítrasta til þess
að sjá um að lögum og fyrir-
mælum, er stjórnin gefur út í
þessu og öðru skyni, sé fram-
fylgt til hins ítrasta. Ríkisstjórn-
in væntir þess, að enginn ís-
lendingur sýni þá vöntun á
þegnskap, að reyna að safna að
sér birgðum af vörum meðan
flestir íslendingar kunna að
þurfa að neita sér um margt.
Það er lítt skiljanlegt, að nokkur
íslendingur uni sér vel í slíkum
allsnægtum.
Við íslendingar getum einnig
á þessum tímum glaöst yfir því,
að hafa fyrir nokkru lagt nið-
ur harðvítugar innlendis deilur
og í þess stað hafið samstarf.
Það er mikils virði á þeim tím-
um, sem nú ganga yfir heim-
inn, að þjóðin sé einhuga og
samhent. Og því má ekki gleyma,
að málgögn flokkanna hafa átt
mikinn þátt í því, ekki sízt síð-
ustu vikurnar, að styðja að sam-
heldni og eindrægni. Ríkis-
stjórnin mun gera sér far um
að standa í sem nánustu sam-
bandi við þjóðina um þær ráð-
stafanir, sem gera þarf á þess-
um óvenjulegu tímum, og hún
telur sig geta vænzt öruggs
stuðnings yfirgnæfandi meira-
hluta þjóðarinnar í stöxfum sín-
um.