Tíminn - 16.11.1939, Side 1

Tíminn - 16.11.1939, Side 1
RITSTJÓRAR: GlSLI GUÐMUNDSSON (á,bm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÖRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. 23. árg. I Reykjavík, fimmtudaglim 16. nóv. 1939 Hvernig hefir skozka holdaféð reynzt? Kynblendíngarnir eru vænni og kjötbetrí, en mörminni Mynd þessi var tekin af Georg Bretakonungi og Chamberlain forsœtisráð- herra nokkrum dögum áöur en styrjöldin hófst, enda eru þeir auðsjáan- lega í bezta skapi. Rússar herða tauga- stríðíð gegn Finnum Árið 1932 voru 25 kindur af skozku fjárkyni, svo- nefndu Boarder Leicester- kyni, fluttar hingað til lands í því skyni að nota hrúta af þessum fjárstofni handa íslenzkum ám í von um vænni dilka og betra kjöt. Voru þessar kindur alls. 25,18 ær og 7 hrútar. Flestar þessara kinda voru fluttar að Halldórsstöðum í Laxárdal í Suður-Þingeyjar- sýslu og hafa siðan að mestu verið þar í umsjá Hallgríms bónda Þorbergssonar. Þó var sinn hrúturinn sendur á hvorn stað, að Hólum í Hjaltadal og Hvanneyri. Kindur þær, sem komu að Halldórsstöðum í fyrstunni voru því 18 ær og 5 hrútar. Voru skozkir hrútar lánaðir á ýmsa bæi í sýslunni, þeim er gera vildu tilraun um einblendings- rækt. Sumir þessara hrúta dráp- ust úr lungnapest. Nú hefir dá- lítill fjárstofn af þessu enska kyni verið fluttur að Bjarna- stöðum í Bárðardal og eru þar nú 7 ær. Tíðindamaður Tímans hefir átt símtal við Hallgrím Þor- V I |) i » g : Fulltrúar Sjálfstæðis ilokksíns meðmæltír frumv. um hlutarút- gerðarfélog Nokkur ný píngmál Undanfarna daga hafa litlar umræður verið í deildum og flest málin, sem verið hafa á dagskrá, afgreidd umræðulaust. Síðan þingið kom saman, hafa nefndir unnið að athugun ýmsra mála og eru nokkur nefndarálit komin fram. M. a. hefir sjávarútvegsnefnd neðri deildar skilað áliti um frv. til laga um hlutaútgerðarfélög, sem þrír Framsóknarmenn fluttu á vetrarþinginu. Fulltrú- :ar Framsóknarflokksins og ;Sjálfstæðisflokksins mæla með frumvarpinu, en Finnur Jónsson mun vera andvígur því. Þessi frv. hafa verið lögð fram: Gísli Sveinsson, Thor Thors, Jón Pálmason og Garðar Þor- steinsson flytja frv. um afnám 17. greinar jarðræktarlaganna. Þingmenn Rangæinga, Árnes- inga, Borgfirðínga og Gull- bringu- og Kjósarsýslu flytja frv. um heimild fyrir Sláturfé- lag Suðurlands til að innkalla hlutabréf sín. í greinargerðinni segir, að allmikil brögð séu að því, að bréf þau, sem gefin eru út fyrir eign þeirri, sem mönn- um safnast í stofnsjóði félags- ins, glatist. Félagið ætli því að breyta þessu þannig, að i stað þess að gefa út bréf fyrir stofn- fjáreigninni, verði eign félags- manna í stofnsjóði færð inn í bækur, en bréfin innkölluð með ákveðnum fyrirvara. Er frv. flutt til að auðvelda þessa breytingu. Skúli Guðmundsson flytur frv. um að niður falli löggilding verzlunarstaðar viðReykjatanga. Gæti heimild þeirra laga orðið Reykjaskóla til óhagræðis, „enda er ekki fyrirsjáanleg þörf fyrir verzlunarrekstur á þessum stað“, segir í greinar- gerðinni. bergsson nýlega og fer hér á eftir frásögn hans um reynslu þá, sem fengin er af einblend- ingsræktinni: — Yfirleitt hefir reyndin orðið sú, að einblendingsdilk- arnir reynast betur heldur en hreinkynja íslenzkir dilkar. Skrokkarnir af þeim hafa reynzt ívið þyngri og nemur það 2—3 pundum til jafnaðaT. Auk þess flokkast kjöt af þeim mun bet- ur, er ávallt í fyrsta flokki. Gærurnar eru og þyngri. Loks þykir hið skozk-kynjaða fé öllu hraustara og vanhaldaminna heldur en hið hreinkynjaða þingeyska heimafé. Einnig verð- ur að gæta þess við samanburð, að ensku hrútarnir eru venju- lega notaðir handa lélegri hlut- anum af ánum, þeim sem fyrir- hugað er að farga lömbunum undan. Hinsvegar eru einblend- ingsdilkarnir mörminni og slát- ur úr þeim ekki jafn útgengi- legt sem íslenzkum dilkum. Alls mun nú búið að selja um 70 skozk-kynjaða hrúta frá Halldórsstöðum, mest 1 Eyja- fjörð og Þingeyj arsýslu. Aðal- lega hafa þetta verið lambhrút- ar. Kynblendingar koma á ári hverju til slátrunar svo hund- ruðum og þúsundum skiptir, einkum til Húsavíkur og Akur- eyrar. í fyrra lét kjötmatsmaður i London uppi það álit, að kjöt af hinum íslenzku einblendings- dilkum væri mun betra og út- gengilegra á enskum markaði heldur en annað íslenzkt dilka- kjöt. Af hreinkynja Boarder Lei- cester-fé eru nú 26 ær settar á vetur á Halldórsstöðum, 5 lamb- gimbrar og 5 hrútar. Auk þess eru, sem áður er sagt, fáeinar kindur að Bjarnastöðum i Bárð- ardal. Nokkurs uggs gætir um Refasýning var haldin hér i Reykja- vík í gœr, og voru á henni sýnd 173 dýr. Er það svipuð aðsókn og í fyrra, en þó öllu meiri. Af dýrum þeim, er sýnd voru, hlutu 33 silfurrefir fyrstu verðlaun, 36 önnur verðlaun, og 42 þriðju verðlaun. Af blárefum fengu 6 fyrstu verðlaun, 8 önnur verðlaun og 13 þriðju verðlaun. Auk þessa voru heiðursverðlaun veitt. Bezt af fullorðn- um refum var talið dýr, eign Loðdýra- rœktarfélags Andakilshrepps og hlaut hann silfurbikar, auk þeirrar viður- kenningar. Silfurbikar þessi var gefinn af skinnakaupastofnun i London, fyrir meðalgöngu Einars Farestveit. Af gren- lægjum þótti bezt dýr eign hlutafé- lagsins Silfurfox á Hvammstanga. Bezti yrðlingur af kvendýrum var eign sama félags. Bezti yrðlingur, refur, var frá Saltvík, eign Stefáns Thorarensen. Af- kvæmasýning var og haldin. Heiðurs- verðlaun fyrir afkvæmi hlutu refahjón, eign Loðdýraræktarfélags Andakíls- hrepps, er sýnd voru með fimm yrð- lingum. Blárefapar úr loðdýrabúinu í Álfsnesi var sýnt með tólf afkvæmum, og hlaut það sérstaka viðurkenningu fyi'ir frjósemi. Af refasýningu þessari þótti sýnt, að refastofninn hefir enn farið batnandi þetta síðasta ár. Voru dómar um dýrin nú mun strangari en áður hefir verið. Dómarar voru O. Aur- dal og H. J. Hólmjárn loðdýraræktar- ráðunautur. Sýningarstjóri var Tryggvi Guðmundsson bústjóri á Kleppi. ! t t Á mánudaginn hófst á vegum Bún- aðarfélags íslands námskeið fyrir eft- Áróður Rússa á Íslandí Þeir hafa sent hingað skeyti fyrir 160 pús.kr. síðan í ársbyrjun 1938 Alþýðublaðið birtir í gær upp- lýsingar, sem sanna mjög greinilega hið nána samband milli íslenzku kommúnistafor- ingjanna og Alþjóðasambands kommúnista í Moskva. Fer frásögn Alþýðublaðsins hér á eftir: „Þær upplýsingar, sem Al- þýðublaðið hefir komizt yfir, sýna, að síðan í ársbyrjun 1938 hefir hér um bil helmingur allra þeirra símskeyta, sem hingað hafa komið frá útlöndum, verið frá Rússlancji, til Þjóðviljans og til Kommúnistaflokksins (síðar Sameiningarflokks alþýðu-soc- ialistaflokksins)og samtals hafa Rússar á þessum tveimur árum varið til þessara skeytasendinga um 75 þús. gullfrönkum eða um 160 þús. kr. Árið 1938 komu hingað sím- skeyti frá útlöndum upp á sam- tals 292.929 orð, og nam skeyta- kostnaðurinn 58.158 gullfrönk- um eða 123.812 íslenzkum krón- um. Þar af voru 117.938 orð frá Rússlandi einu og kostnaðurinn af sendingu þeirra 44.668 gull- frankar eða 95.092 íslenzkar krónur. Þrjá fyrstu ársfjórðunga yf- irstandandi árs hafa komið hingað símskeyti frá útlöndum upp á samtals 181.635 orð fyrir 40.824 gullfranka eða 86.910 is- lenzkar kr. Þar af frá Rússlandi 78.302 orð fyrir samtals 29.657 franka eða 63.136 íslenzkar kr. Meginið af þessum ótrúlegu skeytasendingum frá Rússlandi hefir verið til Þjóðviljans, en nokkuð til Kommúnistaflokks- ins sjálfs, eða til þeirra manna innan hans, sem halda uppi sambandinu við Rússland, en síðan í fyrrahaust, þegar „sam- einingin“ við Héðin fór fram og flokkurinn lýsti því yfir, að hann væri genginn úr alþjóða- sambandi kommúnista, hefir því sambandi verið haldið uppi af einstökum mönnum á bak við flokkinn og stjórn hans. irlitsmenn fóðurbirgðafélaga. Eru slík námskeið haldin öðru hvoru, en þó ekki árlega, Að þessu sinni sækja nám- skeiðið 30—40 manns úr flestum sýsl- um landsins. Á það að standa yfir í þrjár vikur. Helztu kennarar á nám- skeiðínu eru Páll Zóphóníasson, Gunn- ar Árnason og Halldór Pálsson, en auk þess eru daglega fluttir fyrirlestrar af ýmsum öðrum. t r r Samkvæmt fregnum frá Akureyri, hefír starfræksla nýju rafstöðvarinnar við Laxá í Þingeyjarsýslu truflazt af völdum kraps, Var það á laugardags- kvöld, sem aðrennsli að stöðinni stöðv- aðist af þessum sökum. Var allmikil snjókoma þar nyrðra á föstudag og laugardag. Hlóðst krapið í ána ofan við stíflugarðinn, þar til vatnsþunginn ruddi því fram í uppistöðulónið og hindraði vatnsrennsli í leiðslurnar. Á sunnudag var snúið að því að hreinsa krapið burt og koma vatnsrennslinu í eðlilegt horf. Erfitt var þó að komast með verkamenn austur yfir Vaðlaheiði því að þungfært var sökum snjóalaga. Gat stöðin eigi tekið til starfa fyrr en síðdegis á mánudag. Á meðan Laxár- stöðin var óstarfhæf, bjargaðist Akur- eyrarbær við rafmagn frá gömlu stöð- inni við Glerá. t t t í Vestmannaeyjum er til sjóður, sem ætlaður er til að reisa minnismerki um drukknaða sjómenn og hrapaða menn í Vestmannaeyjum og viðhalda því. Nýlega sótti stjórn sjóðs þessa um það til bæjarstjórnarinnar 1 Vestmanna- Finnsku samningamennirnir, sem verið höfðu í Moskva, komu til Helsingfors í fyrradag. Var tekið á móti þeim á járnbraut- arstöðinni af miklum mann- fjölda og kom hin sterka ætt- jarðarást Finna greinilega fram í þeirn virðulegu móttökum, sem samningamennirnir fengu. Tanner fjármálaráðherra lét svo ummælt við blaðamenn nokkru síðar, að hann gerði sér vonir um, að samningaumleit- anir gætu haldið áfram. Hann sagði, að hvorki Stalin eða Molo- toff hefðu hreyft hótunum í eyjum, að fá eins stóran blett og unnt væri úr svonefndu Stakagerðistúni, í miðjum Vestmannaeyjabæ, til þess að reisa þar kapellu fyrir fé sjóðsins, til minningar um drukknaða og hrapaða Vestmannaeyinga. Þetta hefir eigi enn fengið endanlega afgreiðslu, en verður til lykta ráðið innan skamms. t r t Aö undanförnu hefír nokkuð orðið vart við sjaldséða fugla í Vestmanna- eyjum, sem þangað hefir hrakið eða flækzt hafa þangað á annan hátt. Hafa þar sézt gráþrestir, bláhrafn og fleiri fáséðlr fuglar. Uglur hefir og orðið vart við í Eyjum i haust. r t t Mjög hart norðanveður geisaði norð- an lands fyrri hluta þessarar viku. — Þriðjudagsnótt siðastliðna slitnaði flutningaskip Kaupfélags Eyfirðinga, Snæfell, úr festum við bæjarbryggjuna á Sigiufirði og rak á grunn, Var verið að skipa fiski til útflutnings í Snæ- fell og munu 30—40 smálestir hafa verið komnar í skipið, er það slitnaði frá bryggjunni. Með morgunflóðinu losnaði skipið af grunni að nýju og var reynt að koma því út á fjörðinn, en varð eigi auðið vegna ofviðris. Rak það nú upp að bryggjum, sem munu nokkuð hafa brotnað. í gær tókst að ná skipinu og reyndist það óskemmt, enda enginn leki kominn að því. Skips- höfnin var í skipinu meðan á þessum hrakningi stóð. Kafari hefir verið feng- inn frá Akureyri, til þess að athuga botn skipsins. samræðunum og ekki sett fram úrslitakosti. í sambandi við þessi ummæli Tanners er vakin athygli á því, að þótt slíkar hótanir hafi ekki komið fram í viðræðunum, hafi viðbúnaður Rússa bent til þess, að þeir hefðu í huga að láta vopnin skera úr málum, ef sam- komulag næðist ekki, og hafi Finnar því talið sér nauðsyn- legt að vígbúast. Þótt Tanner hafi látið þá von í ljós, að samningaumleitan- írnar gætu haldið áfram, eru menn yfirleitt orðnir vonlausir um friðsamlegt samkomulag. Veldur því einkum tvennt: í fyrsta lagi hinn aukni áróður rússneskra blaða og útvarps gegn Finnum og í öðru lagi, að kröfur Rússa á hendur Finnum ganga miklu lengra en upphaf- lega var kunnugt. Það er nú upplýst, að Rússar heimta allt Kyrjálanesið og auk þess finnsk landsvæði við íshafið, en þar eru þær hafnir Finnlands, sem eru íslausar allt árið, því finnska flóann og botneska fló- ann leggur venjulega á vetrum. Auk þess halda Rússar fast við kröfu sína um flotastöð við inn- siglinguna inn I finnska flóann. Það þykir sennilegt, að Rúss- ar ætli að hátta vinnubrögðum sínum þannig, að þreyta Finna með langvarandi taugastríði. Hinn stöðugi áróður á smátt og smátt að brjóta mótstöðu- þrótt þeirra á bak aftur og hinn mikli kostnaður, sem fylgir hin- um auknu landvörnum, á að lama fjárhagslega getu þeirra. En fari svo að Finnar láti ekki undan, þrátt fyrir þessa andlegu (Framh. á 4. síöu) Aðrar fréttir. Samkomulag hefir náðst milli vinnuveitendasambandsins og Alþýðusambandsins í Danmörku um kaupgjald á næsta ári fyrir vinnugreinar, sem ná til 350 þús. verkamanna. Aðalatriði samninganna er það, að kaup- gjaldið hækkar í hlutfalli við dýrtíðina með vissum millibil- um. Verkamenn hafa samþykkt samninginn með 205 þús. atkv. gegn 60 þús. atkv. og atvinnu rekendur með 565:37 atkv. (Framh. á 4. siöu) (Framli. á 4. síöul Refasýningin í Reykjavík. — Námskeið á vegum Búnaðarfélagsins. — Raf- stöðin við Laxá stöðvast. — Minnismerki um drukknaða sjómenn í Eyjum. — Sjaldséðir fuglar. — Flutningaskipið Snæfell RITSTJÓRNARSKRIFSTOF UR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA. OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Síxni 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. 133. blað A viðavangi Jóhann Sæmundsson læknir hefir nýlega flutt í útvarpið tvo athyglisverða fyrirlestra um næringargildi og verðlag ýmissa fæðutegunda. M. a. komst hann að þeirri niðurstöðu að bræð- ingurinn, lýsi og tólg til helm- inga, væri bætiefnaríkasta og ódýrasta viðbitið. Með því að neyta bræðings fengist t. d. 53 næringareiningar fyrir eyri, en með neyzlu smjörlíkis fengjust 34 næringareiningar fyrir eyri. Er það þjóðinni vissulega til hreinnar vanvirðu, að bezta og ódýrasta viðbitið skuli sama og ekkert notað meðan flutt eru inn hráefni í smjörlíki fyrir tugi þúsunda kr. Ætti það að vera verkefni húsmæðranna í land- inu að bæta úr þessu. Með því spara þær bæði útgjöld heim- ilanna og þjóðarinnar í heild, jafnhliða því, sem heimilisfólk- inu er tryggt betra fæði. * * * Fyrir Alþing hefir verið lagt frumvarp um breytingu á lög- um um rithöfundarétt og prent- frelsi. Er það flutt að undirlagi Bandalags ísl. listamanna og er tilgangur þess, að tryggja þess- um félagsskap inngöngu í Al- þjóðasamband rithöfunda (Bernarsambandið). Hér skal enginn dómur á það lagður, hvort þátttaka í Bernarsam- bandinu myndi verða íslenzk- um listamönnum til hagsbóta, en ekki hafa verið tilgreind nein dæmi, sem benda til þess að þeir hafi beðið tjón af því að vera utan sambandsins. Hins- vegar myndi þetta frumvarp, ef samþykkt yrði, torvelda þýðing- ar á íslenzku úr erlendu máli, því bókaútgefendur hér myndu þurfa að greiða hinum erlendu höfundum verulegt fé fyrir að mega gefa út rit þeirra. Sama máli gegnir vitanlega um þýð- ingar blaðagreina. Ríkisútvarp- ið myndi einnig þurfa að borga fyrir leyfi til að mega útvarpa erlendum tónlögum, þar sem samþykktir Bernarsambandsins ná einnig til tónverka. Þegar þetta er athugað hlýtur mönnum að verða Ijóst, að bókmenntum og tónmennt þjóðarinnar gæti orðið býsna vafasamur hagur af samþykkt þessa frumvarps og ættu þingmenn að kynna sér þessi atriði til hlítar áður en málið fer lengra. * * * Fjórir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins í neðri deild flytja frv. um afnám 17. gr. jarðræktar- laganna. Eins og formaður Búnaðarfélags íslands hefir ný- lega skýrt frá hér í blaðinu er nefnd, sem búnaðarþingið kaus, að athuga þessi mál. Virðist í alla staði eðlilegast að búnaðar- félagsskapurinn fái í friði að leita að lausn þessa viðkvæma deilumáls og reynt sé að forð- ast deilur á meðan. Það er næg- ur tími til þess að gera þetta mál aftur að pólitísku deilu- máli, ef búnaðarfélagsskapnum misheppnast að ná samkomu- lagi um það. Virðist hér koma fram nákvæmlega sama við- leitnin og hjá Sigurði Kristjáns- syni, þegar hann bar fram frv. um að afnema skattaundan- þágu samvinnufélaganna, sem íhaldsmönnum datt þó ekki í hug að hrófla við á stjórnarár- um sínum 1924—27. Það er við- leitnin til að spilla samstarfi flokkanna, koma af stað deilum milli þeirra, sem tefja og tor- velda afgreiðslu sjálfra dægur- málanna. Það er eins og þess- um mönnum skiljist ekki, að samstarf flokkanna byggist á því, að þeir haldi sérstefnumál- um sínum, sem mest til hliðar, en beiti sér aðallega að lausn dægurmálanna, sem hæglega ætti að geta náðst samkomulag um. Meðan þingmenn Sjálfstæð- isflokksins skilja ekki þetta ein- faldasta undirstöðuatriði flokka- samvinnu á styrj aldartímum er engin furða þótt blöð þeirra séu alltaf öðru hvoru að ympra á friðslitum og kosningum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.