Tíminn - 06.04.1940, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.04.1940, Blaðsíða 2
150 TÍMEVIV, langardaglim 6. april 1940 38. blað Endnrbætur á verðlagslögiiMini Eftir Guðjón F. Teitsson form. verðlagsnefndar verið sent boð þangað, að allir þingmenn væru velkomnir. Komu margir þeirra og nokkrir fleiri ráðsettir menn. Á hinn bóginn höfðu sýnendur þessa leiks illan bifur á Jóni Pálssyni gjaldkera og sumum helztu leik- urum félagsins, eins og t. d. frú Soffíu Guðlaugsdóttur og Har- aldi Björnssyni. Var af hálfu manna, sem stóðu fyrir þessari sýningu, reynt að halda þessum þrem gestum frá að koma inn, þó að fullt væri af unglingum, | óviðkomandi starfi félagsins. Ég þóttist vita, að leiknum yrði breytt, og hafði því óskað eftir, þegar mér var boðið, að Jón Pálsson gjaldkeri yrði feng- inn til að koma, svo að óhlut- drægur maður gæti borið um, hversu þessi sýning var í sam- anburði við frumsýninguna. Þegar sýningin byrjaði kom í ljós,að enginn af betri eðafremri leikendum félagsins var á leik- sviðinu, heldur ýmiskonar lausa- fólk. Verður að telja það tekju- megin hjá félaginu sem heild. Fyrsti þáttur gerist í stjórnar- ráðinu. Eru þar nokkrir starfs- menn til sýnis, sem gera ekki neitt, en voru aðallega önnum kafnir við að undirbúa stefnu- mót á skemmtistað uppi í sveit. Fyrra leikkvöldið var sá staður í leikritinu kallaöur hóruhús, en saurlífisbæli á fimmtudags- kvöldið. Allt starfsfólkið í þess- ari stjórnardeild, frá skrifstofu- stjóra og til vélritunarstúlkunn- ar, bjó sig kappsamlega undir ástamót á þessum tilgreinda stað. Einhleypt fólk og gift fólk myndaði ný sambönd alla vega eftir hendinni, með þeim létt- leik og umbúðarleysi, sem er algengur í dýraríkinu, þar sem skepnur hlíta ekki varanlegri sambúð. Þegar fólkið úr stjórnarráðinu er komið á þennan stað, sem leikendurnir tákna ýmist með orðinu hóruhús eða saurlífis- bæli, er þeim fagnaðeinsogværi forstaðan sú, sem gestirnir búast við. Veitingastjórinn þekkir full- vel, að gestirnir koma undir fölskum nöfnum. Skrifstofu- stjóri í stj órnarráðinu stelur þannig nafni eins undirmanns síns, 'enda var kona þess manns þá fylgikona hansogþau fásama herbergi. í framkvæmdinni verða erfiðleikar með sambúð fólks á þessum stað. Giftu menn- irnir rekast á konur sínar í ó- tilhlýðilegri aðstöðu við aðra menn og hið sama sáu konur um menn sína. Óánægður undir- maður kom með lögreglumann úr höfuöborginni til að sjá at- ferli félaga sinna. Lögreglu- þjónninn kom dauðadrukkinn á staðinn og hegðaði sér eins og fífl. Þetta sómafólk úr stjórnar- ráðinu hitti á skemmtistaðnum roskinn piparsvein af Vest- urlandi. Honum hafði orð- ið illt til kvenna heima fyrir, en heyrt að konur væru leiðitamar til ásta á þessum stað. Sá hann (Framh. á 3. siðu) Fyrir skömmu var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um verðlag, sem felur í sér viðauka og endurbætur á fyrri lögum um þetta efni, eftir því sem reynsl- an hefir sýnt að þörf er á. Frumvarp þetta hefir orð- ið til þess, að kaupmanna- blöðin Vísir og Frjáls verzlun hafa birt andmæli gegn því, og jafnframt notað tækifærið til árásar á verðlagsnefnd og fram- kvæmd verðeftirlitsins eins og það hefir verið að undanförnu. Þau nýmæli samkvæmt frum- varpinu, sem nefnd blöð eru fyrst og fremst óánægð með eru þessi: 1. Að verðlagsnefnd á að fá heimild til að ákveða taxta fyrir viðgerðir, smíði, saumaskap o. s. frv., ef slíkir taxtar koma fram í sambandi við sölu á vörum, og byggjast að nokkru leyti á á- lagningu á efnivörur og vinnu- laun.' 2. Með bráðabirgðalögum dags. 6. okt. 1939 var bannað, nema með samþykki verðlagsnefndar, að hækka hundraðshluta álagn- ingar á vörum umfram það, sem tíðkaðist fyrir 1. sept. 1939. í hinu nýja frumvarpi var því bætt við, að ennfremur bæri að haga verðlagningunni þannig, að nettóágóðinn yrði ekki vegna verðhækkunar vörunnar meiri að upphæð en tíðkaðist á áður- nefndum tíma við sölu á sama vörumagni, að viðbættu hæfi- legu álagi vegna aukinnar á- hættu og kostnaðar við sölu eða framleiðslu vörunnar, og er það þessi viðbót, sem óánægjuna hefir vakið. Nefnd blöð taka það fram í öðru orðinu, að þau séu ekki á móti verðeftirliti, og segja jafn- vel, að það sé nauðsynlegt og sjálfsagt. í hinu orðinu er að heyra, að þau telji verzlunar- stéttina svo góða og grandvara yfirleitt, að hverskonar eftirlit eða takmarkanir við hana beri nánast að skoða sem ofsókn. Göngum út frá, að einhver al- vara liggi á bak við það tal blað- anna, að eitthvert eftirlit sé nauðsynlegt. Geta blöðin þá ekki verið sammála mér um það, að slíku eftirliti eigi fyrst og fremst að beina að þeirri tegund verzl- unar og viðskipta, sem mest snerta afkomu almennings í landinu. Töluvert af þessum nauðsynj- um fara nú í gegnum hendur innlendra iðnaðarmanna, sem margir hverjir hafa stóran at- vinnurekstur og verzlun með þessar vörur. Sýnist mér vera sjálfsagt, að verðlagsnefnd hafi fullan rétt til afskipta af verð- lagi þessa iðnaðar, ef ástæða þykir til. En í áliti því, sem Verzlunarráð íslands og Lands- samband iðnaðarmanna hafa sameiginlega sent Alþingi út af framangreindu frumvarpi, og sem prentaður er kafli út í Vísi 30. f. m., er það talið algerlega óviðeigandi, að verðlagsnefnd hafi heimild til að skipta sér af þessum hlutum. Er talað um, að í frumvarpinu sé verið að fara inn á þá braut, að taka eina stétt, iðnaðarmennina, út úr, og láta verðlagsnefnd skammta þeim kaup. En ég vil aðeins benda á það í þessu sambandi, að segja má, að öll verðlagsákvæði, sem miða að því að halda niðri verðlagi á vörum, byggist á því að tak- marka kaup. Kaupmaðurinn tekur kaup sitt í ágóða verzlun- arinnar, og sé ágóðinn minnk- aður með verðlagsákvæðum, er það skerðing á kaupi kaup- mannsins. Það hefir hvergi verið véfengt, að réttlátt hafi verið að tak- marka eitthvað álagningu á vefnaðarvörum, þ. e., það hefir þótt réttlátt að takmarka kaup eða hagnað verzlunareigenda í þessari verzlunargrein. Nú verður það með ári hverju meira og meira af innflutnings- leyfum fyrir vefnaðarvöru, sem ganga til iðnfyrirtækja, en að sama skapi minnkar hlutur verzlana. Innflutningsleyfin hafa lengi verið svo takmörkuð á þessari vöru, að heita máiiað allt hafi selzt jafnóðum. Þýðir þetta það, að maður, sem hefir áður keypt skyrtuefni í verzlun, og látið sauma úr heima hjá sér, verður nú að kaupa skyrtuna tilbúna, ef verzlunin hefir misst innflutningsleyfi sitt yfir til iðn- fyrirtækisins. Það er því sýnt, að sú vefnað- arvara, sem iðnaðarfyrirtækin selja, er alveg jafn brýn nauð- synjavara og hin, sem seld er í verzlunum, og það væri meira en lítil gloppa á verðeftirlitinu, ef það ætti ekki að ná til þessa iðn- aðar. Einnig væri það hróplegt ranglæti gagnvart verzlunum, ef álagningin væri skorin niður hjá þeim, en iðnaðarfyrirtæki, sem verzluðu með hliðstæðar vörur, mættu leggja á eftir vild. Vísir hefir það úr áðurnefndu áliti Verzlunarráðsins og Lands- sambands iðnaðarmanna, að ekkert það hafi komið fram í starfi verðlagsnefndar, sem gefi tilefni til þeirra breytinga á gild- andi lögum, sem farið er fram á í nefndu frumvarpi. Þessu vil ég mótmæla. Ýmislegt hefir komið fram við starf verðlags- nefndar, sem gefur tilefni til breytingar á lögunum. Skal ég nefna dæmi um þetta. Klæðskerar hafa verið taldir háðir gildandi hámarksálagn- ingu á vefnaðarvörum á þann hátt, að dúkarnir í fötin liggja frammi í búðum þeirra með ákveðnu verði, sem verður að vera innan takmarka hámarks- álagningarinnar. Menn vita, hve þeir þurfa mikið efni í fötin, og er þá dæmið auðreikn- að, hvað fötin kosta tilbúin, því saumalaun og tillegg hefir verið reiknað með ákveðnum taxta. Fram til 30. marz 1939 var taxti klæðskera í Reykjavík fyr- ir saumalaun og tillegg til karl- mannafata 95 kr. fyrir fötin. En þennan dag samþykkti stjórn klæðskerameistara að hækka nefndan taxta upp í 115 kr. Svo einkennilega vildi til, að sam- þykkt þessi var gerð einmitt sama dag eins og firma for- manns klæðskerameistarafé- lagsins átti, fyrir afskipti verð- lagsnefndar, að lækka verð á til- búnum fötum, úr allmörgum efnum, um allt að 20 kr. á fötin. Verðlagsnefnd leit því svo á, að hér væri verið að sniðganga verðlagsákvæðin, og krafðist þess að ^dæðskerarnir lækkuðu taxtann aftur. En þeir neituðu því, og bentu á, að þó að tillegg- ið, sem innifalið væri í taxtan- um.heyrði undir verðlagsákvæð- in, þá væri það ekki nema lítill partur, hitt væru vinnulaun, sem verðlagsnefnd hefði enga heimild til afskipta af. Málið var síðan kært til lögreglustjóra, en hækkun taxtans hefir samt ekki fengizt hnekkt. Síðan hafa klæðskerar á yfirstandandi ári, án samþykkis verðlagsnefndar, hækkað umræddan taxta upp í 130—140 kr. fyrir fötin. Álít ég, að hvergi nærri nægi- legt tilefni hafi verið fyrir þess- um hækkunum, og sýnist það gera þeim, sem vefnaðar- vöruna selja, í meira lagi mis- hátt undir höfði, ef einstökum aðilum, sem þó selja verulegan hluta af vefnaðarvörunni, á að haldast uppi að sniðganga þannig verðlagsákvæðin. Og ég get ekki séð, að blönduð álagn- ing á efni og vinnulaun, eða á vinnulaun út af fyrir sig, eigi nokkuð fremur að vera undan- þegin takmörkunum en álagn- ing á innfluttar vörur. Til samanburðar við það, sem að ofan greinix um taxta klæð- skera í Reykjavík, vil ég geta þess, að tilsvarandi taxti sam- bærilegra klæðskera á Akureyri var allt árið sem leið 65 kr. fyrir fötin, en eftir síðustu áramót sóttu þeir um leyfi verðlags- nefndar að mega, vegna aukins kostnaðar, hækka taxtann upp í 75 kr., og er sá taxti nú í gildi. Vinnulaun hjá klæðskerum á Akureyri eru að vísu miklu lægri en í Reykjavík, en þetta gefur þó hvergi nærri tilefni til þess (Framh. á 3. siðu) Aðalbförg Sigurdardóitir s FÖFiimeun 11 ‘gíminrt Laugardaginn 6. apríl Hefnd Leíkfélagsíns Tveir atburðir hafa gerzt á síðari árum, sem snerta mikið framtíð islenzkrar leikmenning- ar. Hér hefir verið byrjað á þjóð- leikhúsi og svo vel vildi til, að þeim húsameistara, sem stýrt hefir byggingunni, hefir tekizt að gera það fegurst af öllum norrænum leikhúsum, svo að ekki sé meira sagt. En fyrir átta árum greip Al- þingi til þess óyndisúrræðis, að taka af byggingarsjóði leikhúss- ins allar tekjur hans og nota þær til daglegra þarfa ríkisins, en húsið stendur ófullgert hið innra. Leikendur í Reykjavík hafa boðið list sína undir erfið- ustu kringumstæðum, en þó ekki gefizt upp. Þrátt fyrir alla erfið- leika, eru í Leikfélaginu margt dugandi manna, karla og kvenna, en að sjálfsögðu tölu- vert af lélegu liði. Hin ytri að- staða, sem leikstarfsemin hefir átt við að búa, var miklu betur fallin til að brjóta niður kraft og manndóm leikendanna, held- ur en að efla þá í starfinu. Nú varð sú breyting á fyrir fáum dögum, að Alþingi tók vel í að skila aftur hinum illa fengnu tekjum frá leikhús- byggingunni. Helztu leikarar bæjarins og allmargir alþingis- menn voru að hefja nýja sókn til viðreisnar leikmenntinni í landinu. Þá kemur það fyrir, að nokkr- ir af Leikfélagsmönnum, aðal- lega hinir yngri og reynsluminni, tóku að æfa leikrit, sem var svo lélegt að efni og formi, að það myndi ekki í neinu landi hjá menntuðum þjóðum hafa verið nefnt í sambandi við aðalleikhús höfuðborgar. Ekki hefði það Jreldur þótt frambærilegt í einkaleikhúsum, sem gera ráð fyrir að fá sæmilegt fólk sem áheyrendur. En það er hugsan- legt, að leikrit eins og þetta,væri sýnt í allra lélegasta hluta stórra hafnarborga. Þegar haldin skyldi lokaæfing var barnaveTndarnefnd bæjar- ins boðið að sjá leikinn. í henni eiga sæti nokkrir nafnkenndir menn, þar á meðal frú Guðrún Jónasson, Jón Pálsson gjaldkeri, dr. Símon Ágústsson, Maggi Magnúss læknir og ef til vill fleiri. Þeir álitu leikinn svo auð- virðilegan, að ekki kæmi til mála að leyfa börnum aðgang. Frá þeim mun auk þess hafa komið aðvörun til lögreglunnar eða sakadómara um að ástæða væri til athugunar, hvort hæfilegt er að leikfélag, sem stutt er af ríki og höfuðbæ, sýndi slíkan sjón- leik. Lögreglustjóri var að fara út bænum austur að Laugar- vatrii, þar sem hann þjálfar nokkurn hluta lögreglunnar um stund. En þegar hann varð var við, að hér væri athugunarmál á ferðinni, bað hann fulltrúa sinn að biðja barnarverndar- nefnd um skýrslu og banna síð- an leiksýningar þessar, ef á- stæða þætti til. Lögreglufulltrú- inn gerði þetta. Barnaverndar- nefnd fór mjög hörðum orðum um leikritið og taldi það ósam- boðið leikhúsinu og höfuðbæ landsins. Jafnframt fékk full- trúinn eintak af leikritinu, og bar textinn mjög vel sam- an við dóm barnaverndarnefnd- ar. Síðan bannaði fulltrúinn leiksýninguna, en gekk inn á, til samkomulags við Gest Páls- son, formann leikfélagsins, að leikurinn yrði sýndur fáeinum tilkvöddum mönnum og ekki öðrum. Boðnir voru tveir starfs- menn úr stjórnarráðinu, einn úr þinginu, sakadómarinn, fulltrúi lögreglustjóra og einn nefndar- maður úr menntamálaráði. Hér var ekki um neina nefnd að ræða. Ábyrgðin á sýningunni hvíldi eingöngu á lögreglustjóra. Þegar ég kom í leikhúsið, eins og einn af hinum fáu tilkvöddu boðsgestum, sé ég, að húsið er nálega fullt af öðru fólki. Sá hluti leikfélagsins, sem stóð að þessari sýningu, hafði því með fullkominni brigðmælgi við lög- reglufulltrúann, sent boð eftir kunningjum sínum, í því skyni að þeir skyldu klappa fyr- ir afrekum þeirra. Fundur var í þingi og mun hafa Förumenn II, Efra-Ás- ættin, eftir Elinborgu Lárusdóttur. 284 bls. Verð kr. 8.50 ób., 10.00 í bandi. Frú Elínborg Lárusdóttir las upp í útvarpinu nýlega kafla úr hinni nýju bók sinni, öðru hefti „Förumanna“, sem ber nafnið Efra-Ásættin. Kafl- inn sem hún las upp var um Bóthildi frá Efra-Ási, og er hann táknrænn fyrir þetta hefti. — Skuggi Bóthildar, sem er löngu dáin, hvílir enn yfir ættinni, í sögunni um hana koma fram öll einkenni Efra-Áskvennanna, kostir þeirra og hin mikla skap- harka, sem er þó vaxin upp af djúpri réttlætiskennd. Þetta hefti verður því einskonar ætt- arsaga, en þó svo að segja ein- göngu i kvenlegginn. Ég skrifaði nokkur orð um fyrsta bindi Förumanna, sem út kom í haust. Mér þótti það bæði skemmtilegt og fróðlegt og skrifað af hinum næmasta skilningi um þann sérkennilega flokk manna, sem nefndir hafa verið förumenn. Þetta hefti ber þó langt af sem skáldsaga. Sögu- þráðurinn og samhengið er miklu fastara og þó förumenn- irnir séu ennþá mjög áberandi persónur, þá er öllu fremur brugðið upp af þeim myndum, svo að þeir í sambandi við þann aldaranda, sem lýst er, mynda einskonar ramma utan um aðal- persónurnar. Aðalpersónurnar og þunga- miðja þessa heftis eru konur frá Efra-Ási, sem í meðferð höfund- arins verða tákn íslenzkra, vel- ættaðra hefðarkvenna í sveit, frá upphafi íslandsbyggðar og allt fram á vora daga. Frú Elinborg hefir með þessu hefti reist ís- lenzku húsfreyjunni í sveit fagr- an minnisvarða og að mínu á- liti sannan,þegar kringumstæð- urnar leyfðu henni að njóta sín. Ef til vill kann einhverjum að þykja undarlegt, að hinar stór- látu Efri-Ás-heimasætur láta kúga sig til giftingar eftir því, sem foreldrunum býður við að horfa, þar sem þær verða svo ríkilátar húsfreyjur strax eftir giftinguna, og láta þá á engan hátt í minni pokann, hvorki fyr- ir mönnum sínum né tengdafor- eldrum. Þó mun þetta vera rétt. Eftir því, sem mér hefir verið sagt af heimili afa míns og ömmu, finnst mér amma mín hafa verið einskonar drotning á sínu heimili. Hún ákvað þau siðgæðislögmál, sem heimilið laut, og réði eftir því, sem hún vildi yfir börnum sínum og hjú- um. Þó hefi ég heyrt, að hún hafi verið heitin afa mínum, þegar þau voru bæði börn að aldri, og hvorugt þeirra að spurt. Sjálf mun hún líka hafa viljað hafa eitthvað að segja um gift- ingar barna sinna. Frú Elinborg telur siðgæðis- þrótt og réttlætiskennd íslenzku þjóðarinnar fyrst og fremst hafa varðveitzt í gegnum kvenlegginn. Stundum verða þó þessir eigin- leikar að hörku og j afnvel mizk- unnarleysi, því að oft er erfitt að sigla á milli skers og báru. Lesandanum þykir að minnsta kosti nóg um, þegar móðir Bót- hildar í Efra-Ási neitar því, að lík hennar mætti hvíla í vígðri mold, þegar stúlkan fyrirfer sér, til þess að komast hjá sambúð við gamlan, ríkan mann, sem foreldTar hennar hafa valið handa henni. En enginn skal geta sagt, að Efra-Ás-konurnar bregðist skyldu sinni; þær víkja ekki frá því rétta, þótt þeirra eigin börn eigi í hlut. Það eru þó álög á ættinni, að einstöku sinnum fæðast henni konur, sem virðast vera af öðru bergi brotnar. Þær eru svart- hærðar og draumlyndar, en vilja fá að fara sínar eigin götur, án þess að miða allt sitt líf við fornar ættarvenjur. Ættin ótt- ast þessar konur, og á milli hennar og þeirra verða sífelld átök, þar sem einstaklingurinn vitanlega bíður ósigur. Ein þess- ara kvenna er Bóthildur. Henni finnst sjálfri, að líf sitt minni á vængbrotinn lóuunga, sem varð hér eftir, þegar félagar hans flugu suður til sólhlýrra landa. Unginn deyr og Bóthild- ur fylgir honum, hún treystir sér ekki til að taka upp barátt- una við hið harða líf, þar sem hún á ekki heima. Arftaki Bóthildar er Þórgunn- ur frá Bjargi. Hún er lík henni í útliti og skapgerð. En hún tek- ur lífsbaráttuna upp með alvöru og festu Efra-Ásættarinnar, þegar hún er nauðug gift rík- um manni og unnusti hennar hverfur henni til Vesturheims. Það sýnist eiga að verða hlut- verk hennar að sameina í lífi sínu það bezta í þvi gamla og nýja, því augsýnilega er það nýi tíminn, sem hér er á ferð- inni. Hún slær engu af kröfum sínum um ást í hjúskapnum, sem hinu einasta sanna sam- tengingarlið á milli manns og konu, en hún gegnir húsfreyju- skyldum sínum að sið ættar sinnar, sem bezt má verða. Þyk- ir mér ekki ólíklegt, að aðalvið- fangsefni þriðja heftis Fötu- manna fjalli um lausnina á því, hvernig bæði þessi stórmál fái sameinast í lífi Þórgunnar, enda þótt ekki væri giftusamlega til hjúskaparhamingjunnar stofn- að frá hálfu ættarinnar. Eins og hið fyrsta hefti Föru- manna, er þetta hefti hreinasta gullnáma, að því er snertir ís- lenzka þjóðhætti og siði, hjá- trú og þjóðsagnir, sem er nú að „Hétaðamótin* í grein, sem birtist í blaðinu „Tíminn“ laugardaginn 23. marz s.l. undir nafninu „Héraðamót- in“, kemur fram mjög villandi umsögn um héraðamótin yfir- leitt. Umrædd grein er undir- rituð af „Borgfirðingi", sem virðist hafa fundið ástæðu til að gagnrýna samkomu sveit- unga sinna í höfuðstaðnum. En þar sem greinarhöfund virðist skorta hugrekki og skap- festu til beinnar gagnrýni á umræddu móti sveitunga hans, reynir hann (í samúðarskyni við sveitunga sína?) að svipta héraðamót vor (sem hann ekki þekkir!) þeirri almennu viður- kenningu, sem þau hafa hlotið. Hann hagar máli sínu í um- ræddri grein á þá lund, að skilja beri þannig, að héraðamótin séu yfirleitt „skrallsamkomur" með „leirhnoðssöngli og skrípadöns- um“, að það, sem um héruðin sé sagt á þessum mótum, sé „inn- antómt og alvörulaust orða- glamur“, að þar sé jafnvel „boð- ið upp- á ýmislegt það til skemmtunar, sem svívirði ekki eingöngu þá, sem þátt taka í þeim, heldur líka héraðið, sem mótið er kennt við“, að þau sam- anstandi af allskonar fólki (!) o. s. frv. Vegna þessara ómaklegu um- mæla og þess tóns, sem þau eru skrifuð í, viljum vér lýsa því yf- ir, að þau geta ekki átt við mót samsýslunga vorra, því að þau hafa ekki farið fram með þeim hætti, sem greinarhöfundur gef- ur í skyn. Hinsvegar hafa þau, að dómi allra, er til þekkja, orð- ið til þess að auka kynni meðal samsýslunganna hér í höfuð- staðnum, treysta heit þeirra og sambönd við æskustöðvarnar og sum þeirra heita þegar borið sýnilegan árangur. Vér viljum því vísa hinum niðrandi ummælum, að því er okkar héraðamót snertir, til föðurhúsanna með þeim tilmæl- um, að framvegis verði þeim ekki blandað inn í nábúakrit eða persónulegar erjur. Með þökk fyrir birtinguna. Reykjavík, 28. marz 1940. F. h. Árnesingafélagsins, Guðjón Jónsson. F. h. Skaftfellingamótsins, Jóhannes G. Helgason. F. h. Vestfirðingamótsins, Jón Halldórsson. .. F. h. Skagfirðingafélagsins, Pálmi Hannesson. F. h. Fél. Snæf. og Hnappdæla, Ásg. Ásgeirsson frá Fróðá. F. h. Breiðfirðingafélagsins, Guðm. Jóhannesson. F. h. Rangæingafélagsins, B. Óli Pálsson. Ofanritaða grein hefi ég séð á ritstjórnaTskrifstofu Tímans og tel, af tveim ástæðum, rétt að láta fylgja henni fáein orð. Önn- ur ástæðan er, að ég hefi orðið (Framh. á 4. síðu.) miklu leyti gleymt nútímafólki. Unglingarnir á heimili mínu hafa lesið Förumenn og haft af þeim mikla ánægju og fræðslu, lesturinn hefir verið þeim til- efni til þess að leita frekari upplýsinga um lifnaðarhætti og lífsvenjur þeirra kynslóða, sem bókin segir frá. Sýnir það bezt, að frásögnin hefir náð tökum á þeim. Sagan hefir einnig orðið til þess að auka þeim áhuga og ást á sveitinni og því lífi, sem þar er lifað. Tel ég því, að bók þessi geti átt erindi jafnt til eldri sem yngri. Fyrir mitt leyti þykir mér ef til vill mest varið í frásögnina af brúðkaupsveizlunni. Þar er brugðið upp augnabliksmyndum af fjölda fólks, og það er gert á þann hátt, að flest stendur það manni lifandi fyrir hugskots- sjónum. Slíkt útheimtir ekki litla frásagnarlist. Hálfráðnum örlögum bregður fyrir og sjálfur fær maður að botna. Það þykir mér allt af gott, því ég vil helzt ráða rúnirnar sjálf að einhverju leyti. Skáldleg tilþrif eru víða mikil, því að þjóðsagnir, munn- mæli og hjátrú er vafið í blæju skáldlegra líkinga, hljóðandi upp á mannlífið og fær við það mjög aukið gildi. Er eiglnleg saga Bóthildar og prestsins öll í þeim stíl, mitt á milli þess að vera líkingafullt æfintýri og veruleiki. Geri ég ráð fyrir, að margur bíði þriðja bindis með eftirvæntingu. Aðalbjörg Sigurðardóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.