Tíminn - 06.04.1940, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.04.1940, Blaðsíða 3
38. blað TÍMIM, langardaglnn 6. apríl 1940 151 Annáll Prestshjónin á Valþjóísstað Frú Ragnhildur Jónsdóttir frá Valþjófsstað andaðist á Land- spítalanum á unnudag, 17. marz sl. og verður lögð við hlið manns síns, séra Þórarins Þórarinsson- ar, í kirkjugarðinum á Valþjófs- stað nú einhvern næstu daga. Skammt varð milli hjónanna. Séra Þórarinn varð bráðkvaddur 3. júlí f. á. Frú Ragnheiður var fædd á Mosfelli í Grímsnesi 3. júní 1867. Voru íoreldrar hennar hjónin Þuríður Kj artansdóttir og séra Jón Jónsson, prestur þar, síðar prestur á Hofi í Vopnafirði og prófastur í Norður-Múlapró- fastsdæmi. Hún ólst upp með foreldrum sínum á Mosfelli og Hofi. Árið 1891 giftist hún séra Þórarni, sem þá var nývígður prestur til Mýrdalsþinga, en fluttist með honum að Valþjófs- stað vorið 1895. Bjuggu þau þar í 44 ár, eða til siðasta vors að séra Þórarinn lét af prestsskap, fullkomlega hálfáttræður að aldri. Ekki er að undra, þótt svo langur dvalartími, á sama stað, skilji eftir endurminningar. Þau hjón voru svo samrýmd og samvalin, aö mér verður eðli- legast að hugsa um þau saman. Fá eða engin hjón hefi ég séð gjörvulegri. Hann hánorræn kempa. Allra manna mestur á velli og höfðinglegastur, svo að athygli vakti,hvar sem hann fór. Hreinskilinn og einarður í máli, raungóður og tryggur. Athugull var hann um fjárhagi sína, en hinn mesti höfðingi heim að sækja. Framúrskarandi gleði- maður, bæði á heimili sínu og utan þess. Hún var hin fríðasta kona og drengilegasta, þíð í lund og prúð í framkomu, nærgætin og umhyggjusöm húsmóðir og ástrík móðir. Þau hjón voru ást- sæl af sóknarbörnum. Til prests- ins var auðvitað leitað, þar sem sorgin hafði kvatt dyra. Þótti návist þeirra hjóna þá löngum hinn mesti raunaléttir. En þau þóttu einnig ómissandi á öllum gleðimótum. Yrðu menn ekki glaðir í þeirra návist, gátu menn ekki orðið það. Þá er séra Þórarinn varð sjö- tugur og átti lögum samkvæmt að láta af embætti, óskuðu sókn- arbörn hans þess einum rómi, að hann þjónaði embætti sínu áfram. Má af því nokkuð marka hug þeirra. Valþjófsstaðarheimilið var í tíð þeirra hjóna héraðsfrægt, ef ekki landfrægt fyrir gestrisni, glaðværð og háttprýði. Óvíða mun vera til á íslandi fegurra og þekkilegra bæjarstæði en á Valþjófsstað. Þó mátti stundum svo að orði kveða, að gesturinn gleymdi jafnvel um hásumarið að líta út í dýrð náttúrunnar. Svo fullkomlega var hann á valdi áhrifanna innan veggja. Engan mun geri ég þeirra hjóna i þessu efni. Átta. börn þeirra meira eða minna uppkomin, og öll með eitthvað af sameinuðum kostum beggja foreldranna, prýddu heimilið um skeið. Gest- kvæmt var þá á Valþjófsstað og þótti þar öllum gott að koma. Séra Þórarinn og frú Ragnheið- ur eignuðust níu börn. Eitt þeirra dó ungt. Hin öll náðu full- orðinsaldri og giftust. Þrjú þeirra eru nú látin: Þuríður, Unnur og Stefán. Á lífi eru: Sig- ríður, gift Ara Jónssyni, lækni á Brekku í Fljótsdal, Þórhalla, gift Birni Björnssyni frá Lauf- ási, bankafulltrúa í Reykjavík, Bryndís, gift Árna Sigurðssyni, fríkirkjupresti í Reykjavík, Jón, bóndi á Skörðum í Reykjahverfi og Þórarinn, skólastjóri á Eið- um. Auk þess ólu þau upp dótt- urson sinn. Mikið þarf til að ala upp, mennta og manna vel svo stóran barnahóp, og halda auk þess uppi þjóðkunnri rausn. Enda urðu þau hjón aldrei auð- ug. Ég kom síðast að Valþjófs- stað á björtum og brennheitum júlídegi. Aldrei sá ég Valþjófs- stað fegurri. Þar var þá saman- komið mikið fjölmenni. Menn voru að kveðj a Þórarin og fylgj a honum til hinztu hvílu. Mátti þar sjá þess glögg merki, að vin- áttan við Valþjófsstaðarhjón var ekki uppgerð. Börn þeirra, er þá voru á lífi, voru þar öll, svo og tengdasynir. Viðmót og við- tökur allar voru með sama blæ sem fyrr. Séra Þórarinn hafði beðið bana svo sem honum sæmdi vel, og hann lagðist til hinztu hvílu, þar sem honum var kærast, í angandi jurtailm og blikandi sumardýrð Valþjófs- staðar, umkringdur vinahóp. Aðeins eitt fannst mér að. Ekkj - an bar harm sinn vel. En hún sat þó hnípin eftir. Vafalaust var frú Ragnheiði heimil dvöl hjá hverju bama sinna, er hún kaus. Myndi þeim öllum jafn kært að hafa hana hjá sér, njóta samvistanna við hana og endurgjalda henni eitt- hvað af þeirri skuld, sem góð börn vita jafnan að þau standa í við góða móður. Á sl. hausti settist hún að hjá Þórarni syni sínum á Eiðum. Þar fór vel um hana á allan hátt. Og hollt hefði það verið ungmennahópnum þar, að umgangast slíka konu, ef notið hefði heilsu. Frú Ragnheiður hefði óefað tekið ást og umönnun barna sinna með þökkum og unað þar hag sínum vel. Það var henni líkt. En þó held ég, að alltaf hefði hún á vissan hátt átt heima á Valþjófsstað. Svo sam- gróin var hún þeim stað og fólk inu í því umhverfi. Valþjófs- staðarhjón verðskulduðu að þurfa ekki að skilja til lengdar. Nú finnst mér ekkert að. Nú er húsfreyjan komin aftur heim að Valþjófsstað, alkomin. Páll Hermannsson. Endurbætur á verðlagslögunum (Framh. af 2. síðu.) mismunar, sem á taxtanum er, Taxtar klæðskera í öðrum kaup- stöðum landsins eru líka allS' staðar miklu lægri en í Reykja^ vík. Ég hefi nefnt hér eitt dæmi, sem sýnir, að full þörf er á að auka valdsvið verðlagsnefndar til eftirlits og afskipta af verð- lagi, ef starf nefndarinnar á að geta tekið til hinna almennustu nauðsynja. Fleiri hliðstæð dæmi mætti nefna, þar sem virðist geta skort á um vald til nefnd- arinnar, samkvæmt núgildandi lögum, þótt ástæða kynni að þykja til afskipta. Má t. d. nefna skóviðgerðir, sem eru tilfinn- anlegur útgj aldaliður fyrir mörg heimili. Og loks skal á það bent, að ef lögin væru ekki aukin og end- urbætt, þá gæti hugsast, að bók staflega öll iðnaðarfyrirtæki í landinu gætu smeygt sér undan verðlagsákvæðum með því að láta það heita svo, að þau seldu vínnuna við framleiðsluna sér staklega. Framh. Góð NokkuS margir kaup- endur Tímans munu bókakaupf'í samtals 58 hefti og í þeim m. a. yfir 100 stuttar skáldsögur. Þeir sem senda 10 kr. til afgr. fá 2. og 3. árg. burðar- gjaldsfrítt til baka. Líka sendir ef ósk. að er gegn póstkr. Adr.: Dvöl, Rvík. Hefnd Leikfélagsíns enga konu í friði í forhöll gisti- hússins og var albúinn að beita valdi, ef ekki hefði jafnan vilj- að svo til, að hinir óleyfilegu ástmenn giftu kvennanna komu ieim til hjálpar. Hástig leiksins í þessum iætti er það, að veitingastj ór- inn hleypir hinum ástleitna ferðamanni að vestan inn i her- bergi til kvenfrelsiskonu, sem er iar ein. Húsráðandi lokar síðan að utan og lætur gestina eiga sig. Þegar leikritið var sýnt vegna barnaverndarráðs heyrð- ist út úr þessum klefa óp og angistarhljóð konunnar fram um allt áheyrendasvæðið, og iegar vörðurinn opnaði að lok- um, kom konan æðandi út með föt sín öll sundurtætt undan á- tökum karlmannsins. Á fimmtu- daginn heyrðist ekki hljóð til konunnar, henni hafði tek- izt að gefa karlmanninum glóð- arauga, og rífa af honum fötin. Að loknum þessum vikuloka- fagnaði safnast starfsfólk stjórnarráðsins heim á skrifstofu sína. Ekki þó til að vinna, held- ur til að tryggja yfirhylmingu gerða sinna. Undirmaður sá, sem þóttist hjásettur um embættis- veitingar, hafði yfirmenn sína í hendi sér. Þeir keyptu hann til að senda ekki skýrslu um fram- ferði þeirra með því að gera hann að fulltrúa fyrir eina yfir- hylmingu og skrifstofustjóra fyrir aðra. Þó er rétt að geta þess, að kona þessa manns hafði aðstoðað við forfrömun manns- ins í annað skiptið, með því að vera ástmey eins af yfirmönn- um hans. Nú víkur að mesta veraldar- manni þessa æfintýris, og það er hinn óheppni, ógifti maður, sem kom rifinn og með glóðar- auga úr viðureigninni við kven- mann á skemmtistaðnum. Hann er skyndilega orðinn siðfexðis- málaráðherra, og úr þeirri stjórnardeild, sem hann átti að stýra, var sama fólkið, sem hafði leikið lífsferil hinna skipulagsminni húsdýra í sam- býli við hann á skemmtistaðn- um. Þegar nýi ráðherrann er að taka við embættinu er einhver fyrsti gesturinn, sem heimsækir hann á skrifstofunni, kona sú, sem hann hafði flogið á, þegar veitingamaðurinn var búinn að loka hann inni í herbergi henn- ar. Hún kom í góðri trú að finna ráðherrann og sá þá þennan mann. Leikurinn endar með því, að viðvaningur sá, sem bjó leik- inn til, er búinn að leiða sín rök að því, að hjónabandið sé gagn- kvæmur hórdómur. Lögreglan siðspillt og vesöl svo sem mest má vera. Æðsta stofnun ríkis- ins sé vinnulaus, og áhugamál starfsmanna í heilli deild að flýta sér þangað, sem leikrit- ið kallar saurlífishús. Embætta- forfrömunin gerist á þann hátt, að hver sigur er keyptur með yfirhylmingu vegna yfirboðar- anna. Menn munu nú spyrja: Hvers- vegna getur nokkur hluti af leikfélaginu lagt sig svo lágt, að hafa gaman af að sýna á leik- sviði svo lágan og auðvirðilegan samsetning? Því er fljótsvarað. Þetta er hefnd leikfélagsins á þjóðfélaginu. í átta ár hefir ver- ið tekið með fullum rangindum framlög þjóðarinnar til að koma sér upp glæsilegri byggingu yfir sanna list á leiksviði. Ef slíkt hús væri nú fullgert, myndi Reykjavík nú þegar vera á því þroskastigi, að enginn maður væri í leikflokki þess húss svo lítill fyrir sér, að honum kæmi til hugar að bera á borð fyrir landa sína dreggjar þeirrar sið- spillingar, sem stórþjóðirnar eiga í neðstu undirdjúpum skril- mennskunnar. J. J. „Já, þetta er hinn rétti kaffiilnmr", sagðí Gunna, þegar Maja opnaði „FRE YJU“-kaffibætispakkann 5?1 ,Ég skal scgja þér það, að nú fáum við gott kaffi, því að nú höfiun við „Freyju“-kaffibætinn. Ég er nú búin að reyna all- ar hinar tegundirnar og hefi sannfærzt um, að úr „Freyju44- kaffihæti fæst langbezta kaffið.44 Takið eftir, hvað stúlkurnar segja, að mcð því að nota „Freyju44-kaffibæti fáið þið bezta kaffið. — Kaupið því „Freyju44-kaffi- bæti. Hann fæst hjá öllum kaupfélögum og mörgum kaupmönnum á landinu. — ■ Iyjí,, ■ vkijbÁ' Það mnn ágreiningslaust að skyrið sé einhver sú allra ódýrasta fæðutegund, sem hér er völ á. Og öllum ber saman um að pað sé nú alveg sérstak- lega gott. ÚTBREIÐIÐ TÍMANN 224 Margaret Pedler: Laun þess liðna 221 Kaupendur Tímans Tilkynnið afgr. blaffsins tafar- Iaust ef vanskil verffa á blaffinu. Mun hún gera allt, sem í hennar valdi stendur til þess aff bæta úr því. Blöð, sem skilvísa kaup- endur vantar, munu verffa send tafarlaust, séu þau ekki upp- Hreinar léreftstnskur kaupir Prentsmiðjan Edda Lindargötu 1D. hingað alltaf, þegar þér dettur í hug. Þú mátt vita, að hér verður enginn gestur velkomnari.“ Elizabet virti fyrir sér framhlið hins gamla húss, sem var hlýlegt og vinalegt, jafnvel þennan skuggalega vetrardag. Víðiþaktir veggirnir og rautt tígulsteins- þakið voru veðurbitin og ellileg, en minntu samt á fáséð, fíngert blóm. „En það verður aldrei eins og að búa hérna,“ sagði hún angurvær. Nei, það vreður ekki alveg eins,“ sagði Colin stuttaralega. Svo steig Elizabet inn i bifreiðina til Maitlands, sem ætlaði að aka með hana til Frayne Abbey, — og barst hratt til síns óþekkta framtíðarheimilis. Nú var Blair jafnvel farinn og Eliza- bet var alveg ein, nema hvað frú Dave gekk ýmist út eða inn um anddyrið, iðandi af eftirvæntingu af þvi að hún átti að fá að sjá húsbóndann aftur. Hún var í fallegasta kjólnum sínum og grátt hárið gægðist fram undan nýrri húfu, sem hún hafði sett upp aðeins vegna þessa sérstaka tækifæris. „Það er langur tími, fimmtán ár,“ sagði hún einu sinni við Elizabet er hún nam staðar við hlið hennar úti á dyra- þrepunum. „Húsbóndinn var ungur maður, þegar ég sá hann síðast.“ Röddin tiraði lítið eitt. fyrr en seinasta daginn, hvað henni þótti í raun og veru mikið fyrir því að fara frá Brownleaves. Hún hafði kunnað þar svo vel við sig, aðstaðurinn hafði orð- ið hennar annað heiuili. Mánuðina, sem hún hafði dvalið þar, hafði hún eignazt mikla nýja vináttu og margar yndis- stundir, — og síðast en ekki sízt, þar hafði hún kynnzt Blair. Það var þessvegna ekkert undarlegt þó hún væri döpur í bragði þegar hún kom á fætur, morguninn, sem hún ætl- aði alfarin til Frayne Abbey. Hún varð heldur ekki fyrir neinum hressandi áhrifum frá hinu fólkinu. Jane og Colin voru bæði sýnilega hrygg yfir að missa hana, og Söru var jafnvel svo brugðið, að hún gat ekki dulið það. Hún var stöð- ugt að snippa og snýta sér, og öðru hvoru lét hún skap sitt bitna á hinni vinnustúlkunni. Hún kom upp, stað- næmdist við opnar dyrnar á svefnher- bergi Elizabetar og horfði á hana láta ýmislegt niður í tösku. Hún var rauð- eyg og nefið var rautt og gljáandi af sífelldum snýtum. „Mér datt aldrei í hug, að mér myndi þykja svona mikið fyrir, að þér færuð, ungfrú,“ sagði hún hreinskilnislega.. „Ég sagði svona við Jane, þegar von var á yður, að ung stúlka, sem kæmi utan úr heimi, yrði áreiðanlega til mikils erf-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.