Tíminn - 18.06.1940, Síða 4
252
TfMITVN, þriðjwdaglim 18. júní 1940
63. MafJ
Tordagar
III. bindið I ritgerðasafni Jónasar Jónssonar, ko:n út í
vetur. Bókina er enn hægt að fá með áskriftarverði, 5
krónur óbundna, en 7,50 í bandi. Pöntun má senda til
Bókaútgáfu S.U.F., pósthólf 1044, Reykjavík, eða hringja
í síma 2353. — Fylgi greiðsla pöntun, verður bókin send
burðargjaldsfrítt, en ella gegn póstkröfu. Hafi einhverjir
af umboðsmönnum bókaútgáfunnar enn eigi sent á-
skriftarlista sína, eru þeir áminnir um að gera það, sem
allra bráðast. — Tilgangslaust er að biðja um Merka
samtíðarmenn, þar eð upplag þeirrar bókar er með öllu
þrotið. — Vordagar verða einnig á þrotum næsta vetur.
tiK BÆNUM
Hátíðahöld íþróttamanna
fóru fram í gær eins og til stóð. Gekk
nær hálft fjórða hundrað íþróttafólks,
karla og kvenna, í íþróttabúningum
fylktu liði gegn um bæinn. Var blóm-
sveigur lagður á leiði Jóns Sigurðsson-
ar Við háskólabygginguna var stað-
næzt og fluttu þar ræður forseti Í.SJ.
Benedikt Waage, og rektor háskólans,
dr. Alexander Jóhannesson. Kl. um 3.30
hófst íþróttakeppni á íþróttaveUinum,
og verður síðar skýrt frá úrslitum þar.
Er leið að lokum íþróttakappleikanna,
flutti Sveinn Björnsson sendiherra
ræðu á íþróttavellinum.
Biskupinn,
herra Sigurgeir Sigurðsson, hefir
haft bústaðaskipti. Er hann nú fluttur
í Vesturhlíð (Öldugötu 14). Viðtals-
tími klukkan 1—3 daglega, sími 5015.
Menntaskólanum
í Reykjavík var slitið árdegis í gær.
Pór skólauppsögnin fram í alþingis-
húsinu, því aö Englendingar tóku
menntaskólabygginguna sjálfa í vor tii
sinna afnota. Að þessu sinni luku 51
stúdentsprófi. Úr máladeUd útskrif-
uðust þessir: Agnar Bogason, X. eink.,
Anna Ólafsdóttir, ágætiseink., Ása S.
Traustadóttir, I. eink., Bodil Sahn
Smith, I. eink., Erla Magnúsdóttir, I.
eink., Finnur Kristjánsson, II. eink.,
Geirþrúður H. Sívertsen, I. eink., Georg
Sigurðsson, II. eink., Guðmunda Stef-
ánsdóttir, II. eink., Guðni Þ. Bjarna-
son, II. eink., Gunnar Gíslason, I. eink.,
Gunnlaug Hannesdóttir, II. eink., HaU-
dór J. Jónsson, I. eink., Kristj ana P.
Helgadóttir, II. eink., Oddný E. Stef-
ánsdóttir., I. eink., Oswald Wathne, I.
eink., Pétur Sigurgeirsson, I. eink.,
Ragna Kristjánsdóttir, II. eink., Sig-
ríður H. Aðalsteins, I. eink., Sigrún
Helgadóttir, I. eink., Skúli Hansen. I.
eink., Stefán G. Svavars, II. eink.,
Þorst. Ólafsson, II. eink., — Utan
skóla: Guðrún Stephensen, I. eink.,
Hannes Pálsson, III. eink., PáU Páls-
son, II. eink. — Úr stærðfræðideUd luku
þessir prófi: Björgvin Sigurðsson, II.
eink., Brynh. Kjartansdóttir, II. eink.,
Egill Sigurðsson, II. eink., Eggert Thor-
arensen, II. eink., Guðjón Ásgrímsson,
II. eink., Guðl. Einarsson, II. eink.,
Gunnar Hjörvar, II. eink., Gunnar
Vagnsson, I. eink., Hulda Sveinsdóttir,
I. eink., Ingi Eiríksson, I. eink., Ingi
G. Ú. Magnússon, I. eink., Ing. Aðal-
bjarnarson, I. eink., Jón S. Ólafsson,
II. eink., Jón Þórarinsson, II. eink., Ól.
Guttormsson, III. eink., Ólafur Páls-
son, I. eink., Sigríður Theodórsdóttir,
Sig. R. Pétursson, I. eink., Sverrir Kr.
Sverrisson, I. eink., Úifar Jónsson, I.
eink., Þórarinn Reykdal, II. eink.,
Þórður Reykdal, II. eink., — Utan
skóla: Jón Bergmann, III. eink., Þorst.
Þorsteinsson, III. eink.
Vorhátíð Framsóknarmanna,
sem fyrirhuguð var að Þjórsártúni
á sunnudaginn, var aflýst sökum ó-
veðurs víða um Suðurland árdegis á
sunnudaginn.
Leikfélag Reykjavíkur
sýndi skopleikinn Stundum og stund-
um ekki síðastliðinn sunnudag fyrir
troðfullu húsi. Næsta sýning verður
annað kvöld og hefst sala aðgöngu-
miða í dag.
Hjálmari á Hofi svarað
„Skagfirðingur" hefir sent
Tímanum eftirfarandi vísur til
andsvars stökum Hjálmars á
Hofi á Kjalarnesi í Morgunblað-
inu 15. þessa mánaðar:
Þó visur Þuru virði á ný,
það vill ei dóm minn hrekja.
En Hjálmars veiku holdi í,
þær heita löngun vekja.
Varla skilja víf né menn,
hvað veldur slíkri hylli.
— Það er eitthvað annað en
ást á kvæðasnilli.
CTtbrelSið TÍMANN
Frá héraðsskólunum
(Framh. af 1. síöu.)
síns, Björns Jakobssonar. Fá
þeir þannig mikla æfingu í
kennslu við vornámskeið þessi,
auk þess sem þeir kenna nem-
endum héraðsskólans að meira
eða minna leyti að vetrinum.
Gistihússtarfsemi verður rek-
in að Laugarvatni í sumar með
svipuðu fyrirkomulagi og vant
er og er hún nýhafin. Þó hefir
verið nokkur gestakoma allt
vorið.
í Reykholtsskóla voru í vetur
110 nemendur og starfaði skól-
inn frá miðjum októbermánuði
til miðs aprílmánaðar. Þar var
fæðiskostnaður pilta kr. 1.71 á
dag, en stúlkna 1.43, og eru þá
meðtaldar hreinlætisvörur, er til
skólans þurfti. Nam dvalar-
kostnaður þvi alls, að meðtöldu
kennslugjaldi og húsaleigu,
rösklega 400 krónum fyrir pilta,
en rösklega 350 krónum f yrir
stúlkur.
Undanfarin ár hafa verið
haldin námskeið í Reykholts-
skóla að vorlaginu, en að þessu
sinni féllu þau niður, sökum
gagngerðra endurbóta, sem verið
er að gera á sundlaug skólans.
Gistihús verður rekið i Reyk-
holti í sumar að venju og er það
að byrja starfsemi sína um þess-
ar mundir.
í Núpsskóla í Dýrafirði voru
48 nemendur síðastliðinn vetur.
Hann starfar frá miðjum októ-
ber til miðs aprílmánaðar. Fæð-
iskostnaður nam kr. 1.50 á dag
fyrir pilta, en 1.30 fyrir stúlkur.
Dvalarkostnaður í heild nam
370 krónum fyrir pilta, en 320
krónum fyrir stúlkur. Greiða
stúlkur lítið eitt lægra kennslu-
og húsnæðisgjald í Núpsskóla
heldur en piltarnir.
Héraðsskólinn i Reykjanesi
starfar um þriggja mánaða
skeið, frá áramótum til apríl-
loka, en aðra tíma vetrar er þar
barnaskóli. Nemendur héraðs-
skólans voru 33 í vetur. Fæðis-
kostnaður á dag var 1.50 fyrir
pilta, en 1.30 fyrir stúlkur, en
skólagjald er þar 3J5 krónur og
dvalarkostnaðurinn því um 170
krónur fyrir pilta, en 150 krónur
fyrir stúlkur. .
Tvö sundnámskeið hafa verið
haldin í Reykjanesi í vor. Sóttu
annað 18 fullnaðarprófsbörn úr
Sléttuhreppi, en hitt um 30 börn
úr ísafj arðarkaupstað.
Ýmsar endurbætur verða
gerðar að Reykjanesi í sumar. Á
þar meðal annars að byggja ný
heimavistarhús í stað þeirra
gömlu, sem mjög eru léleg. Voru
fest kaup á húsum á Langeyri
við Álftafjörð og á að nota við-
inn úr þeim i hina nýju bygg-
ingu, sem síðan verður múrhúð-
uð að utan.
í Reykjaskóla í Hrútafirði
voru í vetur 50 nemendur. Dval-
arkostnaður nam 390 krónum
fyrir pilta, en 345 krónum fyrir
stúlkur, en fæðiskostnaður á dag
1.60 og 1.35. Skólinn starfaði frá
fyrsta vetrardegi til síðasta
vetrardags. Mikil alúð var lögð
við handavinnukennslu og voru
stúlkum kenndar hannyrðir
tvær stundir daglega.
í vor hafa verið haldin nám-
skeið að Reykjum. Voru þar
kenndar íþróttir og sund, auk
verklegs náms, handavinnu,
sauma, smíða og jarðyrkju-
starfa. Nemendur voru alls 80,
en námskeiðin stóðu í þrjár
vikur.
Gistihússrekstur er byrjaður
að Reykjum.
Nemendur alþýðuskólans að
Laugum i Þingeyjarsýslu voru
63 í vetur. Skólinn þar starfar
frá 12. októbermánaðar til 12.
aprílmánaðar. DvalaTkostnaður
pilta var alls 380 krónur, en
stúlkna 335, en dagfæði pilta,
ásamt hreinlætisvörum, 1.57 og
stúlkna 1.27. í smíðadeild Lauga-
skóla voru í vetur 11 nemendur.
íþróttanámskeið var haldið í
vor og sóttu það alls 48 manns,
flest úr nágrenninu. í lok nám-
skeiðsins sýndu 11 piltar, allt
gamlir nemendur úr Laugaskóla,
leikfimi á Akureyri og Húsavík
við stjórn kennara síns, Þorgeirs
Sveinbj arnarsonar.
í Eiðaskóla voru í vetur 53
nemendur og það í flesta lagi.
Starfaði skólinn frá 20. október-
mánaðar til fyrsta sunnudags í
sumri. Nemendur Eiðaskóla
greiða eigi kennslugjald. Fæði
kostaði 1.68 á dag fyrir pilta og
1.58 fyrir stúlkur og varð dval-
arkostnaður pilta sem næst 300
krónur, en stúlkna 280 - krónur.
Að Eiðum er búið að steypa
sundlaug og er fyrirhugað að
hita vatnið með rafmagni. Enn
er eftir að ganga frá hitaleiðsl-
um og vegna erfiðleika um út-
vegun á því, er til þarf, er búizt
við, að hlé verði á framkvæmd-
um í sumar, svo að laugin kemur
ekki að tilætluðum notum að
vetri.
Flestum héraðsskólunum hef-
ir nú þegar á miðju sumri bor-
izt eins mikið af umsóknum um
skólavist og þeir geta sinnt, eða
því sem næst, en sumir geta eigi
tekið á móti öllum þeim æsku-
mönnum, sem þegar hafa óskað
eftir skóladvöl.
Smíða trúlofunarhringa
o. fl. Jón Dalmannsson
Grettisgötu 6, Rvík.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dág og eftir kl. 1 á morgun.
Liður uð stríðslukum?
(Framh. af 1. síðu.)
skálkur frönsku þjóðina og
lýsti yfir því, að bardögum yrði
hætt af hálfu Frakka. Orustur
milli FTakka og Þjóðverja voru
þó enn háðar á öllum vígstöðv-
um í gær og veitti franski her-
inn það viðnám.sem föng voru á.
í gær svaraði Hitler friðarum-
ieitunum frönsku stjórnarinnar
og kvaðst mundu leita hófanna
við Mussolini um væntanlega
friðarkosti, er Frakkar skyldu
sæta. Munu þeir hafa hitzt og
átt viðræður í nótt eða i morgun.
Hinn nýi utanríkismálaráð-
herra Frakka, Baudouin, lýsti
yfir því í ræðu í gær, að Frakk-
ar myndu ekki fallast á smánar-
leg friðarskilyrði.
Brezka stjórnin hefir sífellt
setið á fundum síðan atburðir
þessir dundu yfir. Verður eigi
annað ráöið af þeim fregnum,
sem af þeim fundum eru fengn-
ir, en að Bretar muni halda
styrjöldinni áfram, hversu svo
sem málefnum Frakklands
skipazt. Því er haldið fram, að
Bretar séu þess umkomnir að
brjóta Þjóðverja á bak með her-
veldi sínu á sjónum og hafn-
banninu, sem beitt verði til hins
ítrasta, og geti reist rönd við
kafbátahernaði og loftárásum
Þjóðverja. Þó hefir komið fram,
bæði í þingi og blöðum, vantrú
á hafnbannið og áhrifamátt
þess.
í gær tilkynnti brezka stjórn-
in, að hún hefði sent Frökkum
tilboð um það, að „Bretar og
Frakkar undirrituðu á þessum
alvarlegustu tímum, sem komið
hefðu yfir heiminn á siðaTi ár-
um, hátíðlegan sambandssátt-
mála (solemn act of union)“. í
þessum sáttmála sé ákveðið, að
þessi tvö lönd verði eitt franskt-
brezkt sambandsríki með sam-
eiginlegum ríkisborgararétti,
einu þingi og sameiginlegu
stríðsráðuneyti. Auk þess skuli
utanríkismál, fjármál og at-
vinnu- og viðskiptamál vera
sameiginleg.
Endanlegt svar Frakka við
þessu tilboði er enn ókomið.
Aðrar fréttir.
Ítalía hefir enn komið lítið
við sögu í styrjöldinni. Hefir á
báða bóga aðeins verið um að
ræða loftárásir á borgir og her-
stöðvar. Hafa Englendingar
varpað sprengjum á nokkrar ít-
alskar borgir og herstöðvar í
Libyu og Abessiníu, en ítalir
hafa beint loftárás gegn Malta
og setuliðsstöðvum í grennd við
Suezskurðinn og Rauðahaf.
Rússar hafa síðustu dagana
þjarmað mjög að Eystrasalts-
ríkjunum. Smetana, forseti Lit-
hauens og ríkisstjórnin, eru
flúin úr landi og rússneskt her-
lið hefir tekið sér þar aðsetur,
en ný stjórn verið mynduð, sem
boðið hefir landsmönnum að
hlýðnast Rússum. Jafnframt
hafa Rússar einnig fært sig upp
á skaftið gagnvart Eistlandi og
Lettlandi og samkvæmt seinustu
fregnum hefir rússneskt herlið
hafið innrás í þessi lönd, en
ríkisstjórnir beggja landanna
hafa svo fyrir mælt, að engin
mótspyrna skuli veitt.
Nýtt kvennablað
hefur göngu sína á morgun, 19.
júni. Konur, gerist áskrifendur.
Utanáskrift:
NÝTT KVENNABLAÐ
Pósthólf 613. Reykjavfk.
322 Margaret Pedler:
og sakir standa. Ég get jafnvel ekki
trúað því að þú elskir mig, ef þú neitar
mér um þetta.“ Hún lagði hendurnar
á axlir hans og horfði í augu honum.
Hún lagði alla sína sálarkvöl í augna-
tillitið, og hann stóðst ekki mátið. Það
var ef til vill betra, þegar á allt var litið,
að hún vissi sannleikann heldur en að
hún kveldist í blindni. Það var betra að
hún vissi um ástæðuna, hindrunina, sem
var á milli þeirra og mundi ávalt verða.
„Ef þú endilega vilt, þá verð ég að
segja þér það,“ ságði hann hægt og
dræmt. „Konan, — sem tók hálsmenið
— er Fjóla, — en hún var hálfgert barn
þá.“
„Fjóla. “
„Já. Nú hlýtur þú að sjá, hvað það er
gersamlega ómögulegt að hreinsa mig
í augum föður þíns?“
Elizabet starði á hann þrumu lostin.
„Fjóla,“ endurtók hún ósjálfrátt.
„Fjóla!“
Elizabet stóð hreyfingarlaus, eins og
hún væri haldin martröð. Limir hennar
virtust þungir, óhreyfanlegir, eins og
þeir væru dauðir. En heili hennar var
hræðilega lifandi. Hún var gagntekin
hinu helkalda vonleysi og í hug hennar
ómuðu aftur og aftur orðin: „Það var
Fjóla! Það var Fjóla!“
Fjóla, sem öll hamingja Candys var
Laun þess liðna 323
bundin við! Væri komið upp um Fjólu,
og hún sýnd í sínu rétta ljósi, þá yrði
Candy aftur rændur trúnni á lífið, sem
honum hafði smátt og smátt tekist að
öðlast eftir hið mikla áfall. Og ætti að
þyrma Fjólu áfram, — eins og henni
hafði verið þyrmt með því að Blair tók
á sig afbrot hennar og tók út hegningu
fyrir það, — þá jrrði að fórna hamingju
Elizabetar.
Elizabet var nú sannfærð um, að Blair
myndi aldrei giftast henni,, nema þvi
aðeins að skugginn, sem hvíldi á heiðri
hans, yrði máður burt. Þeim skugga
varð ekki rutt úr vegi, nema með því að
koma honum á konuna, sem hann í
Taun og veru bar. Það var því aðeins um
tvennt að velja, hamingju hennar sjálfr-
ar, eða hamingju Candys. Og hún átti
í raun og veru ekkert val. Hún hafði
ávalt unnað Candy af heilum huga og
skilið til fullnustu hvílíkt skipbrot hann
hafði beðið í sambandi við móður henn-
ar.
Candy hafði öðlast nýja trú á lífið
með Fjólu, og þessi trú hlaut að ganga
fyrir öllu öðru. Elizabet fann, að hún
yrði að láta hamingju sína og Blairs
víkja, fremur en rjúfa þessa trú. Hún
gat ekki orðið þess völd, að líf föður
hennar hryndi aftur í rústir. Hún gat
aldrei notið þeirrar hamingju, sem
- GAMLA BÍÓ—
Leikskólínn
(Dramatic School).
Hrífandi og listavel leikin
amerísk kvikmynd.
Aðalhlutv. leika:
LUISE RAINER,
PAULETTE GODDARD
og
ALAN MARSHALL.
— NÝJA BÍÓ°——
FLÓTTINN
FRÁ SPÁNI
Spennandi og viðburðarík
amerísk kvikmynd frá
FOX.
Aðalhlutv. leika:
LORETTE YOUNG
og
DON AMECHE.
I myndinni spilar hin
heimhfræga munnhörpu-
hljómsveit
„Borrah Minevitch“.
Tímarít Þjóðræknísfélags Islendínga
er vandað og fróðlegt. Árg. kostar kr. 4.50. Kynnist lífi og menn-
ingu Vestur-íslendinga með þvi að kaupa og lesa tímarit þeirra.
TJm leið leggið þér skerf í „brúna yfir hafið.“
Safnið kaupendum og gerist sjálfir áskrifendur. - Umboðsm.
Eg'511 Bjarnason,
Sími 2323. Edduhúsinu, Reykjavík
Sandsteinnínn
(Framh. af 1. siðu.)
láta sprengiefni í rifurnar.
Losnar sandsteinninn þá, án
þess að molna um of.
Nauðsynleg áhöld til að vinna
steininn eru enn eigi til að Hól-
um, en Kristján hefir hug á að
útvega sér sög, hentuga til
slíkrar iðju.
Brottflutningur grjótsins eT
talsverðum erfiðleikum bundinn,
þar sem það er tekið hátt upp i
Hólabyrðu, um 400 metra yfir
sjávarflöt.
Fyrst í stað ætlar Kristján
skólastjóri að nota sandsteininn
til að reisa úr honum útihús eða
aðrar byggingar að Hólum, en
sýni reynslan, að slíkar bygging-
ar gefist vel, er líklegt að svara
muni tilkostnaði að efna til
aukins grjótnáms í fjallinu og
flytj a sandsteininn brott og nota
hann í byggingar víðar í nær-
liggjandi sveitum eða jafnvel á
fjarlægum stöðum.
Aðalftmdur
(Framh. af 1. siOu.)
ast hjúkrun sjúkra á heimilum
í héraðinu. Er það ungfrú Sig-
ríður Sigvaldadóttir frá Brekku-
læk í Miðfirði, sem til þessa
starfs var valin. Þessi starfsemi
er styrkt með dálítlilli fjárveit-
ingu úr sýslusjóði, þannig að
greiddur er hluti af föstu kaupi
hjúkrunarkonunnar.
Þótt aðalfundur Kvennabands-
ins væri svo fjölsóttur, urðu eigi
vandræði um húsnæði, því að
hjónin á Illugastöðum, Guð-
mundur Arason og Jónína Gunn-
laugsdóttir, hafa reist stórt og
vandað steinhús að bæ sínum.
Sýndu þau fundarkonum mikla
gestrisni. Meðal annars voru
þeim sýnd varplönd æðarfugls-
ins, sem þar eru við túnfótinn.
Hafa sumar fundarkonur tjáð
Tímanum, að það hafi verið
Leikfélafi Reyhjavfkur
,Stundum ogstundum
ekkí
Sýning annað kvöld
kl. 8V2.
Aðgöngumiðar frá 1.50 seldir
frá kl. 4 til 7 i dag.
H’H =1:1.1
§úðin
vestur um land í staff Esju miff-
vikudaginn 19. þ. m. k. 9 síffd.
til ísafjarffar, heldur svo áfram
meff viffkomu á venjulegum á-
ætlunarhöfnum til Akureyrar.
Þar snýr skipiff viff og fer beint
til Reykjavíkur meff viffkomu á
ísafirffi.
Flutningi veitt móttaka eftir
þvi sem rúm leyfir til hádegis
báffa dagana, mánudag og
þriffjudag.
Pantaffir farsefflar óskast sótt-
ir fyrir þriffjudagskvöld.
Vinnið ötulleffa fyrir
Tímann.
þeim ógleymanleg skemmti-
ganga að ganga um varplandið,
þar sem sumar æðarkollurnar
voru svo gæfar og spakar, að
það mátti strjúka þeim í hreiðr-
unum.