Tíminn - 13.08.1940, Síða 2

Tíminn - 13.08.1940, Síða 2
314 TniirVX. liriftjmlaginn 13. ágiist 1940 79. blað Gjaldeyrismálin Eitir Eysteín Jónsson viðskíptamálaráðh ‘gímirtn Þriðjudaginn 13. ágúst S j álf stæðismál íslendinga Samkvæmt samningum milli Danmerkur og íslands frá 1918, gátu báðir aðilar sagt upp því samkomulagi árið 1941. Skyldu þá byrja umræður frá fulltrú- um beggja þjóðanna um það, hvort gera ætti nýjan málefna- samning eða ekki. Fulltrúar allra lýðræðisflokkanna á ís- landi, hafa hvað eftir annað lýst yfir, að þeir myndu ekki endurnýja málefnasamninginn. Hernám Danmerkur hafði þau áhrif, að þjóðin varð að taka öll sín málefni í eigin hendur. Ríkisstjórninni var um stundarsakir falið hið æðsta vald, og ný skipun gerð á utan- ríkismálunum. Hernám íslands hefir ekki að þessu leyti breytt aðstöðu íslands. Öll íslenzk stjórnarvöld starfa að sínum málefnum eins og ekki hefði í skorizt. Ríkisstjórnin hefir í samráði við utanríkisnefnd, sem valin er úr öllum lýðræðisflkokun- um, kvatt Svein Björnsson heim til að vera um stundarsakir ráðunautur stjórnarinnar við nýsköpun utanríkismálanna og starfar hann nú að því. Vil- hjálmur Finsen var fluttur frá Osló til Stokkhólms og gerður að sendifulltrúa fyrir Svíþjóð, Finnland og Noreg, að því leyti sem til vinnst, sakir ófriðarins. Helgi Briem verður á sama hátt sendifulltrúi á Pyreneaskaga og hugsanlegt, að hann geti unnið líka að saltfiskmálum í Suður- Ameríku. Pétur Benediktsson er sendifulltrúi í London, en Jón Krabbe í Kaupmannahöfn. Vil- hjálmur Þór var fyrsti aðal- ræðismaður íslendinga í Vest- urheimi. Nú- kemur hann brátt heim til að taka við starfi sinu í Landsbankanum, en Thor Thors tekur við aðalræðis- mannsstarfinu í New York. Stjórn Svía hefir góðfúslega tekið að sér að gæta málefna íslands í Þýzkalandi og Ítalíu, en þangað varð ekki komið full- trúum, vegna hafnbanns Breta. Jafnhliða þessu er af ríkis- stjórninni unnið að því, að fá ólaunaða ræðismenn í ýmsum borgum erlendis, þar sem ís- lendingar hafa skipti. Óhætt mun að segja, að það sem af er þessum undirbúningi, hafi verkið gengið vel, þegar litið er á hinar erfiðu kringumstæður. Næst er að líta á horfurnar framundan. Við, sem erum minnsta þjóð veraldar, lifum alveg sérstaklega sem blakt- andi strá á þessum tíma, þar sem jafnvel voldug lönd missa sjálfstæði sitt. Framundan geta verið hættulegir tímar fyrir ís- land og íslenzku þjóðina. En það er engu síður skylda hverr- ar kynslóðar að láta ekki hug- fallast, þótt af og til gefi á bát- inn. Svo mun og fara um ís- lendinga að þessu sinni. Alþingi lætur það vafalaust verða eitt af sínum fyrstu verk- um 1941, að segja upp sáttmál- anum frá 1918. En ef hafn- bannið heldur áfram, er ekki unnt að koma við samninga- umleitunum. Kemur þá þrennt til greina: 1. Að freista að halda núver- andi ástandi óbreyttu þar til stríðinu er lokið. 2. Að framlengja bráðabirgð- arástandið með nýrri ályktun Alþingis um að fela hið æðsta vald ríkisstjóra um allt að þriggja ára tímabil, en þó ekki lengur, heldúr en þar til friður er saminn, ef það verður fyrr. 3. Að breyta stjórnarskránni, og gera landið að lýðveldi, þar sem styrjöldin hafi í raun og veru fellt úr gildi allt samband íslands og Danmerkur. Tvær fyrstu leiðirnar má fara án breytinga á stjórnar- skránni, og er það mikill kost- ur á erfiðum tímum. Þriðja leiðin er fær, ef þingflokkarnir standa jafnvel saman um ein- falda lausn hinnar æðstu stjórnar til framtíðar, eins og þeir stóðu að núverandi bráða- birgðalausn 10. apríl. En ef ein- hverjir þingmenn héldu, að tími Töluvert er um það rætt manna á milli, ekki sízt upp á síðkastið, að viðhorfið sé nú breytt í gj aldeyrismálum þjóð- arinnar frá því sem áður var. Eins og í mörgum öðrum lönd- um, hefir það orðið að ráði hér, að birta ekki opinberlega verzl- unarskýrslur eins og gert var á venjulegum tímum, og liggja því ekki fyrir opinberar tölur um verzlunarjöfnuðinn á þessu ári. En almennt er það þó álitið, að niðurstöður verzlunarskýrslanna séu í ár töluvert hagstæðari en verið hefir undanfarið, og hefir það ekki sízt valdið þessu umtali. væri nú til að jafna innan- landsdeilur, t. d. með því að taka upp breytingar á kjör- dæmaskipun landsins, þá má fullyrða, að slíkri sókn yrði illa tekið af öllum almenningi. ís- lenzku þjóðinni þykir nóg um að horfa úr hersettu landi á hinn ógurlega hildarleik stór- veldanna, þó að eymd og van- máttur landsins sé ekki gerður meira áberandi en þörf er á, með því að kveikja með óaf- sakanlegri léttúð heift og hat- ursbál milli manna og stétta í landinu. Allir, sem muna átök- in um kjördæmamálið 1931 og næstu ár á eftir, eða þeir, sem þekktu baráttuna um afnám landsþingsins í Danmörku, munu ekki óska að fá þesshátt- ar glímu hér á landi,meðan ver- ið er að reyna að endurheimta frelsi landsins, undir hinum háskalegustu kringumstæðum, sem gengið hafa yfir heiminn, þó að miðað sé við margar aldir. Og nýtt ófriðarbál um kjör- dæmaskipun landsins myndi ekki verða þjóðinni meira fagnaðarefni, ef sú skyldi verða raunin á, að eldurinn væri kveiktur af fáeinum sérhags- munamönnum, sem hafa án fyrirhafnar og áhættu bætt hag sinn meir en nokkur önn- ur stétt á undanförnum árum, og að tilefni baráttunnar væri það, að geta tekið pólitískt vald úr höndum framleiðenda í landinu og flutt það í hendur ósjálfstæðra meðgjafarmanna í því skyni, að þeir kjósendur geri innflytjendum „kramvöru" enn hægra að hagnast á al- menningi, heldur en verið hefir á undangengnum árum. Það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að at- huga sem fyrst, hvort hún vill bæta á sig innanlandsófriði nú sem stendur sem þætti í frels- isbaráttu sinni. J. J. VIII. Mjög sérkennilegur þáttur í opinberum störfum Vilmundar Jónssonar er hið svokallaða eft- irlit hans með áfengislyfseðlum lækna. Þegar ég var í heilbrigðis- stjórninni, voru suihir af lækn- um landsins stórfelldir dreifend- ur áfengis í landinu. Hjá þeim fengu drykkjuhneigðir menn lyf- seðla í stórum stíl fyrir borgun. Þessi vínsala sumra lækna var ekki einungis lögbrot, heldur smánarblettur á þjóðinni, og þá alveg sérstaklega á þeirri stétt, þar sem vínsölulæknarnir áttu heima. Dugandi mönnum í læknastétt hafði þótt mikið mein að þessari vínsölu, en ekki haft aðstöðu til að bæta úr í þessu efni. Mér þótti einsætt, að al- menningsálitið gæti læknað þetta mein. Það þyrfti ekki ann- að en láta vínsalana standa með sölu sína frammi fyrir þjóðinni. Þá myndi löngun þeirra til á- fengissölu minnka og jafnvel hverfa algerlega. Ég fékk einn hinn þróttmesta bindindismann sem til var í landinu, Björn Þor- láksson, fyrrum prest að Dverga- steini, fyrir mjög hóflega þókn- un frá áfengisverzluninni, til að gera glöggt yfirlit um á- fengisútlát allra lækna í landinu. Þetta hreif. Mikill meiri hluti lækna hafði annað hvort ekki notað vín sem lyf, eða svo lítið, Munu ekki hér birtar skýrslur um þessi mál, en eigi að síður vil ég þó minnast á þau nokkrum orðum. Hagstæðari verzlunarjöfnuður nú í nokkra mánuði en áður hefir tíðkazt, gefur í raun og veru sáralitla hugmynd um hversu horfir um viðskiptin, og er alls ekki nein sönnun fyrir því, að betur horfi en áður. Veld- ur því margt, sem rakið hefir verið all itarlega áður, ekki sízt hér í blaðinu, sem hefir gert sér far um að vinna gegn óeðlilegri bjartsýni og léttúð í þessum málum. Mun ég endurtaka sumt af því hér. Er þá fyrst á það að minnast, að nú eru til í landinu sáralitlar fiskbirgðir, þar sem fiskurinn er seldur ísaður eða frystur jafn- óðum og hann er veiddur. Á þess- um tíma árs undanfarið hafa hins vegar alltaf verið til tugir þúsunda smálesta af saltfiski. Um áramótin lá hér allmikið óselt af íslenzkri framleiðsluvöru frá fyrra ári og kom talsverð verðhækkun á hana, og hefir það áhrif í þá átt, að gera verzlunar- jöfnuðinn hagstæðari á þessu ári en ella. Þessi verðhækkun getur hins vegar með engu móti talizt varanlegur ágóði, þar sem hiklaust má gera ráð fyrir veru- legu tapi, þegar verðfallið eftir stríðið skellur á. Þá hefir innflutningurinn á þessu ári verið enn minni en sjálf innflutningsleyfin gefa tilefni til, enda þótt sparlega sé haldið á um úthlutun þeirra. Válda því örðugleikar um innkaup og inn- flutning í sambandi við hernám nokkurra viðskiptalanda okkar. Ýmislegt fleira kemur og til sem veldur því, að viðskiptaniður- stöður er nú alls eigi auðvelt að bera saman við það sem áður var. Bent hefir verið á það opinber- lega, að bankarnir hafa greitt verulega af skuldum sínum undanfarna mánuði og miklum mun auðveldara sé nú um yfir- færslur en áður var, og af þessu hafa verið dregnar óvarlegar á- lyktanir. Hvort tveggja þetta er að vísu rétt. Bankarnir hafa lækkað skuldir sínar nokkuð og auð- veldara er um yfirfærslur en áður til sumra viðskiptalanda. Hér þarf þó margskonar skýr- inga við áður en ályktanir verða dregnar. Þær verða ekki veittar hér tæmandi, en minna má á tvennt. í fyrsta lagi skuldum við svo miljónum króna skiptir af vöru- úttekt síðasta árs í Þýzkalandi, að það sættri engri gagnrýni. En áfengissalarnir fundu, að þeir stóðu nálega afhjúpaðir frammi fyrir þjóð sinni. Þeim þótti ekki tilvinnandi að selja vín eða á- fengislyfseðla, ef þeir ættu að vera ábyrgir gerða sinna. Á þennan hátt var læknabrenni- vínið upprætt úr landinu. Vilmundur Jónsson hefir í skrifstofu sinni efnilegan og skyldurækinn mann, sem vinnur megnið af þeim verkum, sem gerð eru í þeirri stofnun. Á þenn- an mann leggur landlæknir það, að vera einhvers konar eftirmað- ur Björns á Dvergasteini. En starfið var af tveim ástæðum löngu orðið óþarft, fyrst og fremst af því að læknar höfðu hætt þessum ávana, vegna birt- inganna. Og í öðru lagi hafði af- nám bannlaganna gert alla læknavínsölu að úreltri venju, En atvikið bregður Ijósi yfir vinnubrögð Vilm. Jónssonar. Gamall baráttumaöur úr bann- málinu vinnur af áhuga og trú- mennsku þýðingarmikið umbóta starf, og fær fyrir það litla þókn- un, en læknar gersamlega gamla þjóðarmeinsemd. Vilm. Jónsson heldur kaupinu til skrifstofu sinnar, þó að vinnan væri orðin gersamlega þarflaus. Má glögg- lega sjá að svo er, af því að land- læknir lætur ekki birta neinar skýrslur um áfengisnot til heil- brigðismála. Danmörku og öðrum þeim lönd- um, sem viðskiptabann Breta hvílir á, og sem eigi hefir verið unnt að greiða vegna bannsins. í öðru lagi hafa verið teknir um 600 þús. dollarar, eða tæplega 4 milj. króna að láni í Ameríku síðan ófriðurinn hófst, til þess að greiða með vöruúttekt okkar vestra, enda þótt sú upphæð sé að vísu enn eigi öll upp etin. Hefir þetta verið gert vegna erfiðleikanna á því að fá doll- ara fyrir útflutningsvörur okkar. Er vitanlega óhugsandi að halda áfram slíkum lántökum, og standa yfir samningar um að leysa þann vanda. Þessi dæmi sýna, að það er ekki nægilegt að horfa á skuld- ir bankanna, til þess að fá yf- irlit um gjaldeyrismálin. Ennfremur ættu menn að geta áttað sig á því, af þessum tíðindum, að það er ekki van- þörf að hafa fulla fyrirhyggju um það hvernig sá frjálsi gjald- eyrir er notaður, sem okkur á- skotnast. Hér hafa verið dregin fram nokkur atriði, sem sérstaklega verður að gefa gaum og skylt er að benda á, til þess að vinna gegn almennum misskilningi á þessum málum. Þrátt fyrir það, sem hér hefir verið rakið, mun gjaldeyrisástandið hafa nokkuð lagast síðustu mánuðina, eins og áður er að vikið. Er þá eftir að gera sér grein fyrir því hvaða almennar ályktanir óhætt muni að draga af því. Ýmsum hættir við að líta svo á, að gjaldeyrisástandið eitt sé öruggur mælikvarði á fjárhags- afkomu þjóðarinnar, en því fer auðvitað fjarri sanni að svo sé. Ef mikið fé er lagt í ný mann- virki í landinu, þá getur gjald- eyrisástandið verið erfitt þótt fjárhagur þjóðarinnar fari í rauninni batnandi. Sé hins veg- ar lítið sem ekkert lagt til nýrra framkvæmda, getur sjálft gjaldeyrisástandið farið batn- andi, enda þótt hagur þjóð- arinnar fari versnandi eða standi í stað. Undanfarið hefir gjaldeyris- ástandið hér verið örðugt. Hefir þráfaldlega verið á það bent, að þeir gjaldeyriserfiðleikar hafi ekki verið órækur vottur þess,að efnahag þjóðarinnar hnignaði, heldur hafi þeir stafað af því, að á sama tíma og útflutningserfið- leikar þjóðarinnar fóru vaxandi, var komið hér á fót fjölmörgum nýjum atvinnutækjum, er kost- uðu stórfé, auk þess sem óvana- lega miklir fjármunir voru lagðir í byggingar og hverskonar fram- kvæmdir aðrar. * IX. Vilm. Jónsson hlaut, vegna skrifstofumennsku sinnar, að freista að sýna á Alþingi frum- vörp um einhvers konar heil- brigðismál. Skal nú vikið að af- skiptum hans af nokkrum þess háttar málum. Koma þá til greina löggjöf um próflausa lækna, varnir gegn kynsjúkdóm- um, heimild til að gera mann- eskjur ófrjóar, skipulag fóstur- eyðinga, sjúkratryggingar og að síðustu framvarp hans frá í vet- ur, um varnir gegn smitun frá bjargfuglum. Vilmundur Jónsson fékk sam- þykkt á Alþingi lög, sem fyrir- buðu próflausum mönnum að fást við lækningar. Þetta var mikil nýung og að sumu leyti skaðleg. Frá landnámstíð hafa á öllum öldum verið fjölmargir menn, bæði konur og karlar, sem hafa líknað veiku fólki með sjálflærðri læknislist. Mjög oft hafa þessir sjálflærðu læknar komizt langt í mennt sinni, fyrst og fremst vegna meðfæddra hæfileika, og alloft vegna sjálfs- náms. Hitt er sjálfsagt að játa, að sumir sjálflærðir læknar hafa verið lítt eða ekki til þess hæfir, alveg eiris og það vill ekki ósjald- an til, að menn, sem hafa tekið próf í læknisfræði, hafa verið ó- færir til, sökum gáfnatregðu og vínnautnar, að sinna lækningum á viðunandi hátt. Einn af þeim mönnum, sem nú á dögum hefir sýnt réttmæti þess, að próflausir menn megi stundum fást við lækningar, er Ólafur ísleifsson í Þjórsártúni. Ólafur hafði með- fædda hneigð til að stunda lækn- Sú hætta hefir sífellt verið yf- irvofandi undanfarin ár, að efnahagur þjóðarinnar væri vegna gjaldeyriserfiðleikanna á- litinn stórum verri en hann raunverulega var. Þessi hætta hefir aukizt við það, að stjórnar- andstæðingar í landinu hafa ó- spart reynt að koma í veg fyrir það, að almennur skilningur næðist á því, af hverju gjaldeyr- iserfiðleikarnir raunverulega stöfuðu og hversu fjárhag þjóð- arinnar væri í raun réttri háttað. Á sinn hátt eins og þessi skiln- ingur hefir síðustu árin verið beinlínis þjóðhættulegur, getur það orðið þjóðinni engu síður háskalegt, ef hún telur sér trú um, að efnahagur hennar fari stórbatnandi og óhætt sé að lifa hátt vegna þess að gjaldeyris- ástandið fari nokkuð batnandi í svip frá því sem verið hefir. Til þess að skýra þetta sjónar- mið nánar, sem er afar nauðsyn- legt að menn festi sér vel í huga, er rétt að benda á nokkur atriði, sem máli skipta. Undanfarin 4—5 ár hefir verið flutt inn árlega byggingarefni fyrir 6—8 millj. kr. og sömu ár hafa verið fluttar inn vélar, skip og önnur slík tæki fyrir 3—5 millj. kr. árlega, auk ýmiskonar verkfæra og áhalda, sem menn kaupa á venjulegum tímum. Eins og nú er háttað verðlagi, falla innkaup byggingarefnis hinsvegar að langmestu leyti niður, og eiga að gera það, nema því aðeins, að ástand þetta vari svo lengi að ekki verði með nokkru móti hjá því komizt að byggj a eitthvað. Ennfremur mun mjög lítið vera stofnað af nýjum fyrirtækjum og háskalegt að leggja út á slíka braut, nema fyrirtækin séu þess eðlis, að unnt sé að greiða svo mikið af stofn- kostnaðinum, svo að segja þeg- ar í stað, að þeim sé líft á venjulegum tímum. Jafnframt munu menn spara við sig á- haldakaup eftir föngum og neita sér um margskonar nýungar, er annars gætu horft til framfara. Af því, sem hér hefir verið bent á, virðist það því alveg aug- Ijóst mál, að svo framarlega sem unnt verður að reka framleiðslu okkar nokkurn veginn hindrun- arlaust og afurðirnar seljast sómasamlegu verði ætti gjald- eyrisástandið að geta farið batnandi, þó ekki væri nema vegna þess að svo að segja ekkert er lagt í ný verðmæti í landinu, og þá auðvitað því fremur, ef annar innflutningur er skorinn niður svo sem frekast er fært, Bætt gjaldeyrisástand á þess- um tímum er því eitt út af fyrir sig enginn órækur vottur um þjóðargróða. Affalatriffið í þessu máli er í raun réttri þaff, aff ef þjóðin ekki eignast inneignir f erlend- um gjaldeyri á tímum eins og ingar, kynnti sér slík fræði mik- ið með langri dvöl í Ameríku, og hélt síðan áfram sjálfsnámi í þessum efnum. Frá Þjórsártúni var hann um mjög langt árabil sóttur til fjölda sjúklinga bæði í Rangárvallasýslu og Ámessýslu. í augum fólksins í þessum byggð- um var Ólafur læknir algerlega hliðstæður hinum skóla gengnu læknum báðum megin við Þjórsá. Milli hans og þeirra var góð sam- búð og samstarf. Þar kom að lok- um, að Alþingi veitti Ólafi nokk- ur laun til viðurkenningar fyrir þjóðnýtt lækningastarf, og þótti sú ráðstöfun bæði sanngjörn og viturleg. Vilmundur Jónsson fékk lagt lögbann á starfsemi slíkra manna. í Reykjavík starfaði þá með svipuðum árangri og Ólafur í Þjórsártúni Vestur-íslendingur að nafni Sörensen. Hafði hann stundað læknisfræðinám vestan- hafs, en ekki lokið prófi. Hann virðist hafa haft mikla hneigð til lækninga og auk þess bóklega lærður eigi minna en tíðkast um marga prófaða lækna. Hafði honum heppnazt mjög vel lækn- ingar í Reykjavík. Þennan mann tókst landlækni að hindra alger- lega í því að starfa að barátt- unni við veikindin, og leggja við þungar sektir, ef hann reynir að verða veikum manni að liði. — Enginn vafi er á því, að eins og landshættir eru hér á landi, ætti heilbrigðisstjórnin að hafa leyfi til að banna próflausum mönn- um lækningar, en líka að heimila lækningar mönnum, sem sýni- lega eru vel til þess fallnir. Slíkt þessum effa greiffir niffur skuld- ir, þá er þaff órækur vottur þess, aff þjóffin er aff tapa. Frá mínu sjónarmiði á sú skoðun því ekki rétt á sér, að nokkuð bættur viðskiptajöfnuð- ur, að krónutölu, frá því sem verið hefir og bætt gj aldeyrisástand í bili, sé tilefni til þess að slaka á takmörkun á vöruinnflutningi til landsins og þeim takmörk- unum, sem settar hafa verið um neyzlu erlendra vara í landinu. Ég álít, að þjóðin eigi einmitt nú að leggja nokkuð hart að sér til þess að reyna að bæta fjár- hag sinn, lækka skuldimar og eignast innstæður í erlendum gjaldeyri. Það væri hörmu- legt, ef við notuðum þá fjár- muni, sem við á venjulegum tímum höfum notað til þess að byggja fyrir hús, kaupa vélar og skip og reisa ýmiskonar mannvirki í landinu, til þess að kaupa nú fyrir þá erlen'dan varning, sem vel mætti vera án, eða sem við a. m. k. gætum neitað okkur um, án þess að færa verulegar fórnir, og það þegar allur erlendur varningur er í tvöföldu eða þreföldu verði á við það sem venjulegt er. Hér við bætist svo sú stór- kostlega hætta, sem stafar af verðfalli því, sem hlýtur að koma eftir stríðið, og getum við búizt við að þurfa að eiga stórar fjárhæðir til þess að komast klakklaust yfir erfiðleika ár- anna eftir stríðið. Þegar tækifæri hafa gefizt undanfarin ár, hefi ég reynt að benda á, að ekkert væri íslenzku þjóðinni nauðsynlegra en að reyna að gerbreyta gjaldeyris- ástandinu frá því sem verið hefir undanfarið. Allir kannast við hversu stop- ulir þeir atvinnuvegir eru, sem íslenzka þjóðin byggir á afkomu sína. Þarf ekki lengi að leita í hagskýrslum þjóðarinnar, til þess að sannfærast um þetta. Stundum er 20—30 millj. kr. mismunur á útflutningi lands- manna frá ári til árs. Stafar þetta sumpart af mismunandi framleiðslumagni og sumpart af gífurlegum sveiflum, sem verða á verði varanna, og stundum hafa markaðirnir skyndilega lokazt. Jafnframt er það kunn- ugt, að íslendingar verða að kaupa inn framan af ári mjög mikil hráefni til notkunar við framleiðslu sína, og kaupa yfir- leitt mjög mikið af erlendri vöru til framfærslu þjóðinni. Þegar þessi innkaup eru gerð, vita menn ekkert eða mjög lítið um framleiðslu ársins eða hve miklar vörur þjóðin muni hafa til að greiða með, eða hvað fyr- ir þær fáist. Þegar þetta er athugað, ligg- ur í augum uppi, hversu háska- vald hefði verið vel geymt í höndum vel menntaðs og víðsýns manns eins og Guðm. Björnsson- ar. Hitt er annað mál, að núver- andi landlæknir er tæplega fær um að fara með slíka heimild. En löggjöf þessi var miðuð við nýmóðins sérhag»;munaba.ráttu lækna og skrifstofusýki land- læknis. Fýrir þjóðina í heild var þessi löggjöf eingöngu spor aftur á bak. Verður það starf Alþingis á næstu árum, að vinda ofan af þessum og fleiri illa gerðum hnyklum Vilmundar Jónssonar. X. Hættan af kynsjúkdómum er mest í Reykjavík og mest í sam- bandi við skipakomur frá út- löndum. Auk þess hefir myndazt í höfuðborginni stétt kvenna, er hefir náin kynni af erlendum og innlendum mönnum við höfnina fyrir fé. Eru það konur, sem á ensku eru nefndar „public wo- men“. Báðir kynsjúkdómalækn- arnir í Reykjavík hafa lagt á- herzlu á að loka höfninni með girðingu, svo að slarklýður skipa og bæjar næði ekki hindrunar- laust saman um nætur. Bar ann- ar þessara lækna, sem var full- trúi Sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn, fram tillögu um lokun hafnarinnar, en hún var felld. Ég endurtók tilraun læknisins í vetur í bæjarstjórn og var tillag- an enn felld. Þó varð þá vart við greinilega stóraukinn áhuga fyr- ir málinu hjá ráðsettu fólki í bænum. Kofoed-Hansen lög- reglustjóri lét það verða eitt af sínum fyrstu verkum, að setja menn við höfnina, til að rann- (Framh. á 4. siSu) JÓNAS JÓNSSONi »A publíc gentleman«

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.