Tíminn - 16.08.1940, Page 4

Tíminn - 16.08.1940, Page 4
320 TÍMIM, fostudagiim 16. ágást 1940 80. bla3S Ylir landamærm 1. í Englandi er það fullyrt, að aldrei sé til svo snauður íri, að hann hafi ekki annan enn snauðari íra í eftirdragi. — Árni Jónsson frá Múla hefir tekið Vil- mund Jónsson landlækni upp á arma sína. 2. í vetur sem leið tókst Vilmundi Jónssyni að gera svo ruddalegt þing- plagg um Pramsóknarflokkinn, að heildsalarnir prentuðu það orðrétt upp í blaði sínu Vísi. Stundum prenta kom- múnistar upp hugvekjur Vilmundar, og segja um leið, að hann sé ekki mjðg fjarri að geta lent á hinum rauðu furðuströndum þeirra. 3. Mbl. sagði nýlega, að Geir vega- málastjóri hefði gert snjólausan veg yfir Holtavörðuheiði. En á þeim vegi gengur snjóbíll á vetrum, en það veit Mbl. ekki um. Þá segir Mbl.,að Geir ætli fyrir hálfa aðra miljón að leggja snjó- lausan veg til Akureyrar. Sá vegur mun verða góður skeiðvöllur fyrir snjóbíl eins og Holtavörðuheiði. « 4. Út frá þessum fullyrðingum um snjóleysið á lögðum og ólögðum fjall- vegiun á Norðurlandi, fullyrðir Mbl., að Geir geti líka lagt snjólausan veg aust- ur yfir fjall um Kolviðarhól. Ritstjórar Mbl. ætla að bera byrðar austanmanna yfir heiðina þá tíma vetrar, þegar vörð- urnar eru í kafi í snjó, og naumast er hægt að halda símþráðum frá að fara í kaf. 5. Magnús Kjaran hefir í blaði sínu látið dylgja um að ríkisstjórn sú, sem leyfði innflutning á karakúlfénu, bæri ábyrgð á mæðiveikinni. Vel þakka heildsalar Reykjavíkur Þorsteini Briem og Ásgeir Ásgeirssyni samvinnu og stuðning á árunum 1932—34. Mbl.menn töldu sig þá hafa gengið af Framsókn- arflokknum dauðum og hugðust full- vissir um ævarandi völd í landinu með stuðningi Þ. Briem. Vel má Akranes- presturinn minnast hinna viturlegu orða, er hann hugsar um þessa gömlu félagsbræður, „að laun heimsins eru vanþakklæti". x+y. Aðalfundur Loðdýra- ræktarfélagsíns (Framh. af 1. síffu) skinnin fékkst til jafnaðar kr. 86,14 og 31,11 fyrir minkaskinn. Alls var búið að selja íslenzk loðskinn fyrir 106 þúsund krón- ur, þegar .aðalfundurinn var haldinn. Af skinnum þessum þarf eng- an toll að greiða, nema af silf- urrefaskinnum í Bandaríkjun- um. Nemur tollur af þeim 37,5 af hundraði, og verð það, sem fyrir þau fékkst, að frádregnum tollinum, því kr. 106,19. Framan af vetri var skinna- verðið lægra í London en nokkru sihni hefir áður verið, en hækkaði um 50—80 af hundaðri í aprílmánuði. Það kom þó innflytjendum ekki til góða vegna gengisfallsins í Englandi. Hingað til hafa verið miklar hömlur á innflutningi grávöru til Vesturheims, en vegna þess, að nú koma engin skinn á markað þar frá Noregi eða Sví- þjóð, er von til að þessar inn- flutningshömlur verði ekki ís- lenzkum skinnaeigendum um sinn til baga. Verður kapp á það lagt, að fá að selja mest af skinnum vestan hafs næsta ár. Hins vegar er eðlilegt, að eftir- spurn eftir vörum sem loð- skinnum, sé minni á stríðstím- um en ella, hvort sem það vegur tJ R BÆNUM Skemmtiferð verður farin á vegum F. U. F. í Reykjavík, að Kleifarvatni og í Krísu- vík um helgina, ef veður leyfir. Lagt verður á stað á laugardagskvöldið. Ferðin verður mjög ódýr. Þátttakendur láti vita í síma 2353 eða 2323 hið fyrsta. íslandskvikmyndin, sem S. í. S, hefir látið gera, verður sýnd í Iðnó næstkomandi mánuda*. Mun myndin síðan verða send út á land til sýningar þar. Nefnd sú, er annazt hefir að koma Reykjavík- urbörnum til sumardvalar í sveitum, hefir tjáð stjórn bæjarins, að hún muni sækja um 30 þúsund króna styrk til að greiða þann kostnað, er í hefir verið laet. Á bæjarstjómarfundi í gær var hins vegar samþykkt að leggja 10 þús. krónur úr bæjarsjóði til þessara þarfa, en það er, eins og frásögn. þessi ber með sér, aðeins þriðjungur þess fjár, er með þarf. Lítill drengur, sex ára gamall, beið bana í fyrradag með þeim hætti, að hann féll niður um lyftuop. Var rafmagnsumbúnaður til- heyrandi lyftunni bilaður, svo að hurð- in að lyfturennunni laukst upp, þótt sjálfur lyftuklefinn væri þar eigi. — Drengur bessi var sonur Marteins Ein- arssonar kaupmanns, og gerðist slysið i húsi hans á Laugavegi 31. Skemmtiför karlakóranna. Fyrir forgöngu Sambands ísl. karla- kóra fara Reykjavíkurkórarnir og „Þrestir" í Hafnarfirði skemmtiför til Þingvalla næstkomandi sunnudag. Kór- arnir munu syngja nokkur lög sameig- inlega í Almannagjá. til fulls á móti minnkandi framboði á skinnum, meðan Norðurlönd hafa ekki aðstöðu til að selja skinnaframleiðslu sína. Samkvæmt upplýsingum fé- lagsstjórnarinnar áttu lands- menn 6800 silfurrefi, eigendur 600, áður en lógun hófst síðast- liðið haust, 1480 blárefi og 230 hvítrefi, eigendur 170, og 4750 minnka, eigendur 96. Stjórn félagsins var falið að vera á verði um öflun refafóð- urs, fé lagt til útrýmingar villi- minka og ákveðið að refasýn- ingar skyldi halda í haust á líkan hátt og áður hefir tíðkazt, svo og refamerkingar. Gagngerðar breytingar voru gerðar á lögum félagsins, í sam- bandi við væntanlega stofnun félagsdeilda víðsvegar um land- ið, en þeim er ætlað m. a. að ráðstafa merkingum og sýning- um á deildarsvæðunum, og er þess vænst, að með því móti geti þessar framkvæmdir orðið ódýrari fyrir loðdýraeigendur, en þó jafn gagnlegar sem áður, enda hafi félagið sjálft og loð- dýraræktarráðunauturinn yfir- stjórn framkvæmdanna eins og verið hefir og landslög mæla fyrir. Einnig voru samþykkt lög fyrir félagsdeildir, til leiðbein- ingar þeim, er fyrir stofnun fé- lagsdeildanna . gangast heima- fyrir. Vílhjálmur Þór (Framh. af 1. siffu) giftudrjúgur í störfum sínum og búið vel í haginn fyrir eftir- mann sinn. Því mun áreiðan- lega fagnað, að hann skuli taka við bankastjórn við Landsbank- Á krossgötmn. (Framh. af 1. siffu) voru síöan hljómleikar. Frú Anna Ing- varsdóttir söng, en Jónas Tómasson söngstjóri lék á orgelið og sonur þeirra tólf ára, Ingvar, er nú stundar nám í Tónlistarskólanum, lék á fiðlu. Helgi Helgason, fyrverandi stórtemplar, las upp sögu. — Þá undu menn sér um stund við að skoða hinn fagra garð, Skrúð. Eftir hlé það, er þá varð, flutti Kristinn Guðlaugsson oddviti ræðu fyr- ir minni íslands, Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld las nokkur frum- samin kvæði og bróðir hans, Halldór Kristjánsson, flutti ræðu. Síðan var dans stiginn til miðnættis. Allfjöl- mennt var og gott veður og fór sam- koma þessi í alla staði vel fram. Erfiðleikar Þjóðverja (Framh. af 1. síffu) egi, Hollandi og Belgíu meðan styrjöldin geisaði þar, og hefir enn ekki nema að litlu leyti verið bætt úr þeim. í öllum her- teknu löndunum, nema Dan- mörku, hafa hernaðaraðgerðir valdið miklu tjóni á ökrum og dregur það stórum úr uppsker- unni, auk hinnar óhagstæðu veðráttu í vetur og vor. í mörgum frönskum borgum er sagður mikill skortur á ýms- um matvælum og öðrum nauð- syn j a vörum. Petainst j ór nin franska hefir nýlega snúið sér til ensku stjórnarinnar og beðið um leyfi til að flytja matvæli til landsins. Enska stjórnin mun hafa svarað á þá leið, að ekki myndi standa á leyfi hennar, ef Þjóðverjar flyttu her sinn burt úr Frakklandi. í Frakklandi virðist nú risið upp deilumál, sem getur valdið misklíð milli Hitlers og Musso- lini. Það hefir verið ákveðið, að Laval skuli vera eftirmaður Petains, en þessu una Þjóðverj- ar illa. Laval er mikill vinur Mussolini og hjálpaði honum dyggilega í Abessiníudeilunni. Hefir verið uppi nokkur orða- sveimur um það, að katólska kirkjan vilji mynda einskonar latínskt bandalag, þar sem ít- alía, Spánn og Frakkland yxðu þátttakendur, og ætti þetta bandalag að hamla fullkomnum yfirráðum nazismans í Evrópu. Þjóðverjar eru taldir óttast þetta og vilja því ekki, að Laval verði eftirmaður Petains. Er talið, að þeir vilji láta Flandin verða eftirmann hans. Flandin, sem er einn helzti áhrifamaður hægri flokkanna og var forsæt- isráðherra Frakklands um skeið, er mikill aðdáandi Hitl- ers og sendi honum heillaóska- skeyti, þegar Sudetahéruðin voru innlimuð í Þýzkaland. Það þykir líklegt, að þessi átök kunni að valda Frökkum miklu tjóni, því að Þjóðverjar muni ekki samningaliprir við frönsku stjórnina meðan þeir hafa ekki tryggt, að eftirmaður Petains verði fyrst og fremst fylgjandi þeirra. ann, sem er tvímælalaust eitt allra vandasamasta og ábyrgð- armesta starfið hér á landi. 386 Margaret Pedler: andann á lofti. Myndi hann nokkurn- tíma framar líta þannig til hennar, þegar hann hefði fengið að heyra allan sannleikann? Allt í einu varð henni Ijóst að hið eina, hreina og óflekkaða í lífi hennar, var ást hennar á Candy, og ást hans á henni var það eina, sem verulegu máli skipti fyrir hana, þegar á reyndi. Var sú ást hans nægilega sterk til að standast þá raun, sem nú beið hennar. Eða átti refsing hennar að verða meiri en hún væri fær um að þola? Hún gekk hægt inn yfir gólfið. Núna elskaði hann hana, — elskaði hana og bar traust til hennar. Áttu næstu mín- útur að nema það burt, — þurrka það út, sem bar hamingju hans uppi, — hamingju þeirra beggja? „Candy, ég þarf að segja þér dálítið," sagði hún. XXX. KAFLI. Eftir öll þessi ár — Blair lagði frá sér bréfið, sem hann var nýbúinn að fá, og starði sem stein- gerfingur beint fram fyrir sig. Innihald þess gerði hann ringlaðan og lamað- an. í öll þessi ár hafði hann borið synd annarrar manneskju, — öll þessi löngu ár —, og nú var hann allt í einu hreinsaður af henni, — sýknaður! Það Laun þess liðna 387 var honum ofviða. Og það sem meira var, sýknunin kom þaðan, sem hann hafði sízt af öllu getað vænzt hennar, — hún kom frá konunni, sem upphaf- lega hafði hengt . myllnusteininn um háls hans. Og bréfið, sem færði honum heim sanninn um þetta, kom frá manni hennar. Candy hafði skrifað bréfið sama dag og Fjóla sagði honum alla söguna. Hann skrifaði blátt áfram, hreint og beint,' dvaldi sem minnst við þá sneypu og þann sársauka, sem þetta hlaut að valda honum sjálfum, — lét í ljós aðdáun sína á þessari „göfugu en gálausu breytni,“ og bað hann fyrirgefningar. Bréfið var glæsilegt, hvert einasta orð bar merki hinnar hreinu, riddaralegu sanngirni. Blair fann til djúprar samúðar með þessum manni. Hugsjónir hans og traust höfðu í einu vetfangi verið troðn- ar í duftið, og því gat hann tekið með slíkri karlmennsku. Lífið hafði smátt og smátt kennt Frayne umburðarlyndi og þolinmæði, án þess að hann gerði sér Ijósa grein fyrir því. En hann þurfti á öllu þessu að halda og öllu sínu hugrekki í þokka- bót, þegar hann fékk að vita um hlut- töku konu sinnar. Fjóla hafði sett alla sína von á ást manns síns, en hún undr- aðist það með sjálfri sér, hvernig hann Ljós MILLERS dynamóar og 1 u k t i r, ljósmiklar, sterkar, fallegar. Ö R N I N N Laugaveg 8 og 20. Dvöl Gerist áskrifendur að þessu vinsæla og sér- staka tímariti. 8. árg. er að byrja að koma út og kostar að- eins 6 krónur. Engin hækkun þótt allt hækki í verði. Áritun: Dvöl, Rvík. „A publlc j*entleman“. (Framh. af 3. siðu) valdi miklu tryggingarbákni á laggirnar. En til hinnar handar var værugirni hansogþrekleysi, að ógleymdu fullkomnu hiröu- leysi hans um útgjöldin við þetta nýja fyrirtæki. Honum var ljóst, að ef hann reyndi að skapa nýtt kerfi í baráttu við þann hluta þjóðarinnar, sem var mótfallinn tryggingunum, þá hlaut sú barátta að mæða á honum. Þá fórn vildi hann ekki leggja á sig. Skrifstofusýki hans var fullnægt með því að koma löggjöfinni á. Eftir það lét hann sér í léttu rúmi liggja hvað yrði um framkvæmdina. Heitustu andstæðingar málsins mættu stjórna því, ef þeir vildu. Og af almannafé ætti að taka þá fjár- muni, sem með þurfti til að her- fangið yrði aðgengilegt fyrir andstæðinga landlæknis, sem leystu hann nú úr öllum vanda með framkvæmd málsins. xvn. Frá löggjafarstarfsemi land- læknis er stutt leið að því, hversu honum hefir tekizt að búa að landsmönnum um mál- efni læknishéraðanna. Sú saga er sorgleg og kemur þar þá mest til greina getu- og hugkvæmd- arleysi landlæknis, fremur en vöntun á vilja að verða fólki í dreifbýlinu að liði. Mesta mein heilbrigðismál- anna hér á landi er tvíþætt. Annarsvegar er hinn mikli fjöldi lækna, sem þjóðin veitir ókeypis kennslu og oft nokkurn náms- styrk í læknadeild háskólans. Að jafnaði eru í læknadeild fleiri nemendur heldur en þarf til að fylla öll læknaembætti í ríkisþjónustu á íslandi. Mikill hluti af þessum læknum fer til annara landa og leitast við að verða sérfræðingar. Mikill hluti þessara manna fær ekki utan- lands aðstöðu til að nema sér- Ereinar, svo að það fullnægi röfum- stærri þjóða. Einstakir læknar setjast að í framandi löndum, en flestir hyggja á að koma heim, setjast að í kaup- stöðum og kauptúnum og lifa á sjúkrasamlögum. Ef stéttarfélag lækna semur um kjörin bæði fyrir mannfélagið og sjálfa sig er leiðin einföld. Allir læknarnir þurfa að lifa, og úr því þeir vilja vera í þéttbýlinu, þá er ekki um annað gera en þyngja álögin,svo að jafnvel minnstu bræðurnir hafi lögmannsframfærslutekjur, sem forkólfar stéttarinnar telja viðunanlegt. Þetta ástand er nú að koma í Reykjavík og hlýtur að stórversna, ef sjúkrasamlag- ið á að sjá öllum læknum far- borða, sem þar vilja setjast að. Sjúkratryggingarnar, eins og þær eru framkvæmdar, hafa stórspillt aðstöðu bændanna að fá lækna, og þarf það sízt að undra. Fólk í mörgum héruðum lifir við sífelld læknaskipti, og stundum verður að fylla í skörð- in með háskalegum viðvaning- um. Einn slíkur maður fékk um stund jafnmikið af lífefnum handa sínu héraði, eins og allir aðrir héraðslæknar til samans. Aðstaða læknahéraðanna er meir og meir að verða óviðun- andi og því verri sem yfirstjórn heilbrigðismálanna hleður meir undir keppinaut byggðanna, sjúkrasamlagið í Reykjavík. Landlæknir hefir ekert gert,sem vitað er til, að bæta úr þessu meini dreifbýlisins.Því meir sem vandinn vex í þessu máli, því fastar vefur hann að sér værð- arvoðum skrifstofumennskunn- ar. Frh. J. J. NÝJA BtÓ GAMLA BÍÓ ÆFINTÝRIÐ A HAWAII (Wakiki Wedding). Bráðskemmtileg og fjör- ug amerísk söng- og gam- anmynd. Aðalhlutverkin leika: BING CROSBY, SHIRLEY ROSS, MARTHA RAYE, BOB BURNS. Aukamyndir: TALMYNDAFRÉTTIR OG SKIPPER SKRÆK. HIN SAMA FÓMFÝSI. Fögur og hrífandi ame- | rísk kvikmynd, samkvæmt ? hinni víðlesnu skáldsögu f „White Banners“, eftir | Lloyd C. Douglas. j Aðalhlutv. leika: j CLAUDE RAINS, * FAY BAINTER, í JACKIE COOPER og BONITA GRANVILLE. Aukamynd: TALMYNDAFRÉTTIR. Mnpsskóli starfar í 2 deildum fyrir pilta og stúlkur, frá miðjum október, í C mánuði. Allar venjulegar námsgreinar kenndar, svo og handa- vinna, sund, leikfimi og skíðaíþróttir. Sérstaklega er óskað að nemendur frá fyrra ári tilkynni um framhaldsnám sitt fyrir ágústlok. Aðrar umsóknir séu komnar til skólastjóra fyrir 15. september. ISjjörn Guðmundsson. Einsóngnr GDNNAR PÁLSSON P£LL ÍSÓLFSSON við hljóðfæriff. í Gamla Bíó í kvöld kl. 7.15 e. hád. Á söngskránni eru ÍSLENZK, ENSK og AMERÍSK lög. Aðgöngumiðar seldir í Bókav. Sigf. Eymundssonar, Hljóð- færahúsinu, Hljóðfæraverzlun Sigr. Helgadóttur og Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar (The English Bookshop). Menn greiiiir á um gildi og tilverurétt einstakra greina hins innlenda iðnaðar. Um eitt hljóta þó allir að vera á einu máli: að sú iðjustarfsemi, sem notar innlend hráefni til framleiðslu sinnar, sé ÞJÓÐÞRIFA FYRIRTÆKI. Verksmídjur vorar á Akureyri Gefjun oj* Iðunn, eru einna stærsta skrefið, sem stigið hefir verið í þá átt, að gera framleiðsluvörur landsmanna nothæfar fyrir almenning. G e S j u n vinnur úr ull fjölmargar tegundir af bandi og dúkum til fata á karla, konur og börn og starfrækir sauma- stofu á Akureyri og í Reykjavík. Idunn er skinnaverksmiðja. Hún framleiðir úr húðum, skinn- um og gærum margskonar leðurvörur, s. s. leður til skógerðar, fataskinn, hanskaskinn, töskuskinn, loð- sútaðar gærur o. m. fl. Starfrækir fjölbreytta skógerð og hanskagerð. í Reykjavík hafa verksmiðjurn- ar verzlun og saumastoSu við Aðalstræti. Samband ísl. samvínnuíélaga. A víðavangf. (Framh. af 1. síffu) sem fellur í hlut þeim gærueig- endum, er ekki seldu gærur til Þýzkalands síðastliðið haust. Eins og skýrt var frá fyrir tæpu ári síðan, tókst ríkis- stjórninni og brezku viðskipta- nefndinni, að fá leyfi Breta til að selja allmikið af gærum til Þýzkalands síðastliðið haust og fékkst þar fyrir þær mun betra verð en annarsstaðar. Var jafn- framt ákveðið að höfð skyldi verðjöfnun, þar sem allir gæru- eigendur gátu ekki notið þýzka markaðarins. Munu það vera milli 700—800 þús. kr., er þann- ig koma til verðjöfnunar. Hefði fyrir löngu síðan verið hægt að ganga endanlega frá reglunum um fyrirkomulag verðjöfnunar- innar, ef 2—3 gærukaupmenn Aðrar frétéir. (Framh. af 1. síffu) . ítölsk blöð eru harðorð í garð Grikkja og Júgoslava um þessar mundir og segja að þeir æsi Al- bani gegn ítölum. Krefjast þau að þessi ríki afhendi ítölum nokkur héruð, þar sem Albanir eru búsettir. Transylvania, 17 þús. smál. brezku beitiskipi, var nýlega sökkt á Atlantshafi með tund- urskeyti. hefðu ekki verið með ósann- gjarnar kröfur og atvinnumála- ráðherra viljað taka tillit til þeirra. Eftir því, sem Mbl. skýr- ir nú frá, hefir loksins tekizt að fá endanlega ákvörðun um tilhögun verðjöfnunarinnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.