Tíminn - 27.09.1940, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
( ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu I D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Slmi 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Slmar 3948 og 3720.
24. árg.
TÍMINN, föstudaginii 27. sept. 1940
92. blað
Landsnefnd allra flokka
fer með töld í Færeyjnm
Kristján X.
sjötugur
Kristján konungur tíundi
átti sjötugsafmæli í gær.
Af tilefni afmælisins voru
skrifstofur þess opinbera lok-
aðar í gær og biskup hélt guðs-
þjónustu i dómkirkjunni, er
var útvarpað. Fánar voru
dregnir að hún um allan bæinn.
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra sendi Kristjáni kon-
ungi heillaóskaskeyti í nafni
íslenzku þjóðarinnar og ríkis-
stjórnarinnar.
HAUSTMARK-
AÐUR KRON
Merkileg nýjung
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis byrjar mjög merkilega
starfsemi í dag með opnun hins
svokallaða haustmarkaðs síns í
húsinu 52 við Hverfisgötu
(gengið inn frá Laugavegi 39).
Á haustmarkaðinum fást
flestar innlendar vörur með
talsvert ódýrara verði en ann-
arsstaðar, og liggur verðmun-
urinn aðallega í því, að megin-
hluti dreifingarkostnaðarins
hverfur, því að neytendur verða
sjálfir að sækja vörurnar og
þurfa jafnframt að kaupa í
nokkru stærri stíl en venjulega.
Forystumenn Kron lýsa til-
gangi sínum með haustmark-
aðinum á þessa leið:
„Frá alda öðli hafa farið fram
milliliðalaus viðskipti milli
þeirra, sem búa við sjávarsíð-
una og sveitamanna. Þetta við-
gengst enn, þótt í smærri stíl
sé en áður var, einkum í hinum
smærri kauptúnum.
í stærri kaupstöðum la-ndsins,
og þá fyrst og fremst í Reykja-
vík, hafa viðskipti með þessum
hætti horfið að mestu. Afleið-
ing þessa hefir orðið sú, að
munurinn á þvi verði, sem
framleiðendur fá fyrir vörur
sínar, og því verði, sem neyt-
endur greiða fyrir þær, er
venjulega ískyggilega mikill.
Hlutverk neytendafélaga er
m. a. að lækka dreifingarkostn-
aðlnn, sem á vörurnar legst,
svo mikið sem unnt er. Það er
því beinlínis stefnuskráratriði
Kaupfélags Reykjavíkur og ná-
grennis, að leita þeirra aðferða,
sem tryggja lágan dreifingar-
kostnað. í beinu framhaldi af
undangenginni starfsemi Kron
í þessu skyni er haustmarkað-
urinn stofnaður.
Eins og áður var drepið á,
hafa hin beinu viðskipti Reyk-
víkinga við framleiðendur
lagst niður að mestu og verða
tæplega enduireist í sama
formi. Á hinn bóginn er þörfin
fyrir að afla innlendrar vöru til
(Framh. á 4. síðu)
Niels Juel Arge stúdent segir Sréttir frá
Færeyjum
Til Reykjavíkur er ný-
kominn færeyskur stúdent,
Niels Juel Arge frá Tórs-
havn. Mun hann stunda
hér háskólanám og hefir
þegar verið innritaður í
heimspekideildina. Er hann
annar Færeyingurinn, sem
leitar hingað til háskóla-
náms.
Níels Juel Arge kom til Vest-
mannaeyja með færeysku fiski-
skipi. Hann hefir einu sinni áð-
ur komið til íslands, í hópi skóla
barna þeirra, sem Rikard Long
kom með árið 1934. Hann skilur
íslenzku vel og getur einnig
talað hana, þótt hann skorti
enn leikni í meðferð málsins.
Tíðindamaður Tímans átti í
gær tal við hann og leitaði hjá
honum fregna um ýmis mál-
efni færeysku þjóðarinnar.
— Hvernig er stjórnarfari nú
háttað í Færeyjum?
— Eftir hernám Danmerkur
tók lögþingið í Tórsþavn sér
fullt löggj af arvald og undir-
ritaði hinn danski amtmaður í
Færeyjum, Hilbert, samþykkt
þingsins. Var síðan skipuð
landsnefnd, einskonar ráðu-
neyti, er fer með málefni þjóð-
arinnar. Landssjóðurinn er í
vörzlu amtmannsins, sem hefir
samvinnu við landsnefndina
um fjárreiðurnar. Hefir amt-
maðurinn heitið þinginu og
fulltrúum þess lipru samstarfi.
— Hvað er að frétta um fána-
baráttuna?
— Tíu dögnm eftir að brezka
herliðið kom til Færeyja
voru kröfugöngur miklar í
Tórshavn dag eftir dag.
Heimtuðu bæjarbúar, að fær-
eyski fáninn yrði löggiltur.
Síðla kvölds hinn þriðja dag,
25. aprílmánaðar, var tilkynnt
í Tórshavn, að færeyskur
siglingafáni hefði verið löggilt-
ur. Var þá kröfugöngunum
breytt í skrúðgöngur, er farnar
voru um bæinn, meðal annars
að bústað brezka ræðismanns-
ins. Síðan voru þjóðdansar
dansaðir á Vaglinum, torgi í
miðbænum, framan við þing-
húsið. Þegar dagur rann hinn
26. apríl, voru fánar dregnir að
hún um allan bæinn og höfn-
ina, út um gluggana í íbúðum
fólks voru lagðar litlar stengur
með blaktandi fánum.
Nú hafa þingmenn Fólka-
flokksins flutt frumvarp þess
efnis, að færeyski fáninn skuli
tekinn í lög sem þjóðfáni, jafnt
á landi sem sjó. En ekki veit ég,
hversu því frumvarpi muni
reiða af.
— Hvaða peningar og frí-
merki eru notuð?
— Enn sem kornið er eru not-
uð dönsk frímerki, en þau
munu senn á þrotum. Danskir
peningar eru einnig notaðir í
viðskiptum. En á alla seðla hef-
ir verið stimplað, að þeir gildi
einungis í Færeyjum.
—1 Hvernig er flokkaskipting
nú í Færeyjum?
— Fyrir tveim árum klofnaði
gamli Sjálfstæðisflokkurinn,
sem Jóannes Patursson kóngs-
bóndi í Kirkjubö veitti for-
ystu. Hefir sá hluti hans, sem
fylgdi Jóannesi Paturssyni,
sameinazt Vinnuiflokknum.
Nefnist nú þessi flokkur Fólka-
flokkurinn. Hefir hann 7 þing-
menn. Hitt Sjálfstæðisflokks-
brotið gekk til samvinnu við
j afnaðarmenn, nú er lögþingið
kom saman 3. septembermán-
aðar. Hefir sú samsteypa níu
þingmönnum á að skipa. Loks
Niels Juel Arge, fœreyski stúdentinn,
sem nú stundar hér háskólanám.
er svo Sambandsflokkurinn,
sem hefir átta þingmenn.
— Hvernig er landsnefndin
skipuð?
— í landsnefndinni eiga sæti
Thorsten Petersen bankastjóri
úr Fólkaflokknum nýja, Peter
Mohr Dam, ritstjóri jafnaðar-
mannablaðsins, Louis Zacha-
riassen verkfræðingur úr þeim
liluta Sjálfstæðisflokksins, er
hneig til samstarfs við jafnað-
armenn, og úr Sambands-
flokknum Andreas Samuelsen
sýslumaður í Fuglafirði og
Kristian Djurhuus sýslumaður
í Suðuroy.
— Hvaða blaðakost hafa þess-
ir flokkar?
— Fólkaflokkurinn gefur út
Dagblaðið; það kemur út þris-
var í viku. Sömuleiðis styður
Tingakrossur, sem er vikublað,
flokkinn. Jafnaðarmenn gefa út
Föroya social demokrat einu
sinni í viku og Sambandsflokk-
urinn Dimmalætting þrisvar í
viku. En heldur er pappírsöflun
örðug vegna stríðsins.
— Hafið þið haft mikið af
hernaðaraðgerðum að segja,
að öðru leyti en því, sem við-
kemur hertöku Danmerkur?
— Brezkt herlið kom fyrst til
Færeyja 13. apríl. Kom það
engum á óvart, því að Churchill
hafði gefið þessa ákvörðun
Breta til kynna tveim dögum
áður.
Sama daginn og Þjóðverjar
(Framh. á 4. síSu)
Verður næsta skre! öxulríkj
anna sóknvið Miðjarðarhaí?
Afslada Spánverja getur ráðíð úrslitum
í ræðu, sem Francisco Franco,
einræðisherra Spánar, flutti 18.
júlí síðastliðinn í tilefni af því,
að fjögur ár voru liðin frá upp-
hafi spönsku borgarastyrj ald-
arinnar, lét hann m. a. um-
mælt á þessa leið:
— Stjórn mín telur það
skyldu sína, að koma í fram-
kvæmd þeirri erfðaskrá ísabellu
Spánardrottningar, að gera
Gibraltar aftur að spönsku
landi, auka veldi Spánverja í
Afríku og skapa sterka þjóðar-
einingu ... Við höfum 2 millj-
ónir hermanna til að berjast
fyrir réttindum Spánar. —
Sama dag voru verkamenn
látnir ganga um götur Madrid
í‘ stórri hópgöngu, sem hafði
fyrir kjörorð: Vér viljum að
Gibraltar verði spánskt land.
Spönsk blöð hafa í sumar
haldið kröfunni um Gibraltar
mjög til streitu.
í amerískum blöðum hefir í
sambandi við þetta verið bent
á það, að það stæði Spánverj-
um ekki að neinu leyti fyrir
þrifum, þótt þeir réðu ekki yfir
Gibraltar. En Mussolini þarfn-
ast Gibraltar til þess að geta
orðið sá drottnari Miðjarðar-
hafsins, sem hann vill verða.
Mussolini vissi.hvað hann gerði,
þegar hann studdi Franco til
valda og gerði hann sér háðan.
Brezka stjórnin gerði sér hins-
vegar ekki ljóst, hvað hún var
að gera, þegar hún vildi ekki
hjálpa spönsku lýðveldisstjórn-
inni.
Amerísku blöðin benda á það,
að ummæli Francos um „tvær
miljónir hérmanna“ séu trauðla
annað en hreystiyrði. Spánn sé
enn flakandi í sárum eftir borg-
arastyrjöldina. Hernaðarstyrk-
ur þjóðarinnar sé nauðalítill.
En fengju þýzkar hersveitiT að
fara allra sinni ferða um Spán,
gegnir þáð öðru máli fyrir
Breta.
Spánski foTsætisráðherrann,
Suner, hefir undanfarið dvalið
í Berlín. Suner er foringi
spánska fasistaflokksins, sem
vill að Spánverjar segi Bretum
stTíð á hendur. Franco hefir
hinsvegar verið tregur til þessa.
En talið er, að Þjóðverjar og
ítalir muni bjóða Spánverjum
riflegan hluta af nýlendum
Frakka í Afríku og ætli með þvl
a. dsrossg-otttim:
Úr Vík í Mýrdal. — Húsnæðisskortur og vatnsekla.
— Kvennaskólinn í Hveragerði.
Einar Erlendsson í Vík í Mýrdal
hefir tjáð Tímanum eftirfarandi tíð-
indi: — Slætti er hér lokið. Heyskap-
artíð var mjög stirð framan af, en brá
til þurrviðris, þegar á leið, og hélzt það
út sláttinn. Heyskapur mun fylliiega í
meðallagi að vöxtum og gæðum. Slátr-
un sauðfjár er nýlega byrjuð í slátur-
húsunum í Vík. Virðist allt benda til
þess, að dilkar muni vera nærri í með-
allagi til frálags. Hjá Sláturfélagi Suð-
urlands í Vik lagði Pétur Jakobsson,
bóndi á Rauðhálsi, inn tvævetlutví-
lembinga með 19 % og 20 kg. falli. Mun
það einsdæmi, að hér hafi komið svo
þungir tvílembingar. í fyrra var sama
ærin, þá veturgömul, einlembd, og var
kroppurinn af lambinu þá einnig lagð-
ur inn hjá Sláturfélaginu í Vík og vóg
21 kg. Ær þessi missti móðurina þegar
hún var unglamb og var gerð að
„heimagangi". Dafnaði hún vel og hefir
síðan gengið í túninu á sumrin með
lömbin, og enda komið við og við heim
að fá sér mjólkursopa. Er þessi kropp-
þungi lambanna ótrúlegur, þegar þess
er gætt, að meðalþungi einlembinga
hér um slóðir mun vera 13—14 kg. —
Upptekningu kartaflna hér er víða
langt komið og sumstaðar þegar lokið.
Reynist uppskera með allra minnsta
móti og víða svo léleg, að ekki hrekkur
nærri til heimilisnota. Sama er að segja
um aðrar matjurtir, nema gulrætur,
sem vlða hafa sprottið sæmilega.
t r t
Sökum þess, hve mjög hið brezka
setulið þrengir að bæjarbúum, er nú
talsverður hörgull á húsnæði í Reykja-
vík. Er það miklum erfiðleikum háð, að
fá hvort heldur er íbúðir eða húsnæði
til iðju eða annars atvlnnurekstrar.
Sömuleiðis hefir það einnig komið I
ljós, að hörgull er á vatni í sumum
hverfum bæjarins. Hefir verið birt á-
skorun til bæjarbúa um að fara spar-
lega með vatn, svo að til alvarlegs
vatnsskorts komi eigi. Samskonar orð-
sendingu mun hafa verið beint til út-
lendu hermannanna, sem að sjálfsögðu
nota mjög mikið vatn.
r r r
Kvennaskóli Árnýjar Fllippusdóttur
í Hveragerði verður settur um miðjan
næsta mánuð. Hafa húsakynni hans
verið aukin og bætt, svo að þar er nú
heimavist fyrir tuttugu stúlkur. Árný
Filippusdóttir hefir nú starfrækt skóla
sinn um fjögurra vetra skeið. Er gert
ráð fyrir eins vetrar námi í skólanum.
að tryggja sér þátttöku þeirra
í styrjöldinni. Suner er enn
ekki farinn heimleiðis.
ítalir hófu sókn inn í Egipta-
land um miðjan þennan mán-
uð. Þeir hafa tekið hafnarbæ-
inn Sidi Barani, sem er um 90
km. frá landamærum Libyu.
Lengra hafa þeir ekki haldið.
Þeir mættu engri mótspyrnu á
þessari leið. Varnarlína Breta
liggur talsvert austur, enda er
það land, sem ítalir hafa tekið,
eyðimörk. Bretar hafa nýlega
sent aukið lið til Egiptalands,
bæði frá Englandi og Ástralíu.
Það virðist einsýnt, að þótt lið
ítala sé fjölmennara, vilji þeir
ekki leggja til úrslitabaráttu
við Breta að svo stöddu.
Ribbentrop utanríkisráðherra
Þjóðverja fór til Rómar í sein-
ustu viku og ræddi við Musso-
lini og Ciano greifa. Engar til-
kynningar hafa verið birtar um
niðurstöður fundarins, en gefið
í skyn, að rætt hafi verið um
nýskipun Afrikumálanna. Lík-
legt þykir, að Þjóðverjar vilji
hraða sókninni í Egiptalandi.
ítalir munu hinsvegar ekki gera
sér vonir um sigur, nema þeir
fái miklu meiri liðsafla. Sökum
herskipa Breta á Miðjarðarhafi,
geta ítalir nú ekki flutt her að
ráði til Libyu. Öðru máli gegndi,
ef Spánverjar kæmu þeim til
hjálpar. Þá væri hægt að flytja
herlið frá Spáni til Marokko og
þaðan yfir nýlendur Frakka til
Libyu. Slíkt lið mætti m. a.
flytja loftleiðina eins og í borg-
arastyrjöldinni. Ef Bretar
misstu Gibraltar myndi það líka
veikja trú Egipta á þeim og
gera þeim örðugra fyrir með
flutninga til Egiptalands, enda
þótt þeir láti yfirleitt ekki
nema herskip sín sigla nú um
vestanvert Miðjarðarhaf.
Þátttaka Spánar í styrjöld-
inni eT þvi vissulega þýðingar-
mikil fyrir öxulríkin.
Afstaða Egipta vekur mikla
athygli. Þeir slitu stjórnmála-
sambandi við ítali, þegar þeir
sögðu Bretum stríð á hendur.
Þeir tilkynntu það líka fyrir
alllöngu, að þeir myndu verja
land sitt, ef á það yrði ráðizt.
Þeir hafa þó enn ekki sagt ítöl-
um stríð á hendur. Nýlega
gengu fjórir ráðherrar úr
stjórninni í mótmælaskyni út
af þessu. Egiptar hafa þó allan
her sinn viðbúinn og þeir hafa
handtekið þúsundir ítala, sem
voru búsettir í Kairo og þóttu
tortryggilegir. Afstaða Egipta
virðist sú, að bíða og sjá hverju
fram vindur. Virðist af því
mega ætla, að þeim þyki úrslit-
in vafasöm, ef öxulríkin fá
Spánverja sér til aðstoðar.
Seinustu fregnir herma, að
Ciano greifi sé kominn til
Þýzkalands og muni hann,
Hitler, Ribbentrop og Suner
setjast á ráðstefnu um helgina.
Er þaðan vænst mikilla tíð-
inda.
Aðrar fréttír.
í Noregi hafa Þjóðverjar ný-
lega gert víðtækar breytingar
á stjórnarfarinu. Mun þeirra at-
burða getið nánar í næsta blaði.
De Gaulle hefir horfið aftur
frá Dakar með herskip þau, sem
hann hafði með sér þangað.
Honum hafði borizt fréttir um,
að Frakkar þar myndu snúast
til liðs við hann, en þegar
reyndin varð önnur og nýlendu-
stjórnin lét hefja skothríð á
skip hans, kaus hann heldur að
hverfa í burtu en að láta Frakka
fara að berjast innbyrðis. Talið
er þó, að atburður þessi hafi
veikt álit de Gaulle.
A viðavangi
„BJARGIÐ FÉNU“.
Nýlega birtist ritstjórnar-
grein í Mbl. undir þessu nafni.
Er þar gert að umtalsefni mjög
kyndugt „plagg“, sem stjórn
svokallaðs Samvinnufélags síld-
veiðiskipa sendi frá sér i sum-
ar og hafði undirritað, ásamt
18 mönnum öðrum. í „plaggi“
þessu er lýst þeirri fyrirætlun
að hefja samskot til byggingar
10 þús. mála síldarverksmiðju
fyrir næsta sumar og er gert
ráð fyrir að hún muni kosta 4
milj. kr. í bréfinu er gert ráð
fyrir að hamra það í gegn hjá
löggjafarvaldinu, að öll fram-
lög til verksmiðjunnar verði
undanþegin tekju- og eignar-
skatti og útsvari. Og svo er sagt:
.Fyrir skipstjóra og aðra þá, er
þessi lántaka því alveg sérstakt
tækifæri til þess að bjarga fénu
frá því að vera uppétið af
skattanefndum og , niðurjöfn-
unarnefndum.“ Af vísdómi sín-
um bætir Mbl. síðan við: „Er
þetta ekki ágæt lýsing af á-
standinu, sem nú ríkir í okkar
skattamálum.“ Já, hugsið ykk-
ur annað eins, vesalings menn-
irnir verða að byggja síldar-
verksmiðju í þeirri von að geta
komið gróða sínum undan
skatti! „Svona er ástandið,“
heldur Mbl. áfram, „en á þetta
svona til að ganga áfram?“
Þarna er stefna Sjálfstæðis-
flokksins í skattamálum ná-
kvæmlega rakin. Undanþágur
og sérréttindi handa þeim, sem
græða mest, en að koma byrð-
unum með auknum tollum á þá,
er sízt megna nokkurs. Þetta
skjal, sem að mörgu öðru leyti
er kátbroslegt, er sýkt af þess-
um hugsunarhætti. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Mbl. aumkast yf-
ir þá menn, sem eru svo dæma-
laust báglega staddir, að þeir
þurfa að reisa verksmiðju til að
koma fé sínu undan lögboðnum
gjöldum. En umfram allt, segir
blað fjármálaráðherrans við þá
tekjuhæstu, bjargið fénu frá
skatta- og niðurjöfnunarnefnd-
um. Svona má það ekki lengur
ganga áfram! Það vantar svo
sem ekki þegnskapinn og rétt-
lætið i skattamálunum!
Er JÓN ÞORLÁKSSON
GLEYMDUR?
Utanbæjarmaður skrifar
Tímanum: „Sú var tíðin, að
naumast kom út blað af ísa-
fold, án þess að þar birtist
grein um Jón Þorláksson, þar
sem hann var lofsunginn fyrir
að hafa látið greiða skuldir
meðan hann var ráðherra. Nú
er Jón yfirleitt aldrei nefndur
á nafn 'í íhaldsblöðunum og
ennþá síður er þar minnst á
skuldagreiðslur. Nú virðist ein-
mitt ágæt aðstaða til að lækka
skuldir þjóðarinnar. En í stað
þess að ræða um það, heimta
íhaldsblöðin, að gjaldeyrisinn-
eignunum erlendis verði varið
til að auka innflutninginn, enda
þótt verðlag sé nú óvenjulega
hátt. Það má vissulega segja
um þetta: Nýir siðir með nýjum
herrum.“
SKRÍTIN ÓÁNÆGJA.
í sama bréfi segir ennfrem-
ur: „Árni frá Múla er stundum
að skrifa í nöldurtón út af því,
að stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins skuli ekki hafa verið fylgt i
hinum og þessum málum. Þetta
finnst áreiðanlega fleirum en
mér skrítin óánægja. Það hefir
alls ekki verið hægt að hafa
neina hugmynd um það í mörg
ár, hver væri hin eiginlega
stefna Sjálfstæðisflokksins. For-
ráðamenn flokksins hafa sagt
sitt á hvað — alveg eftir því
hvort þeir töluðu viö atvinnu-
veitendur eða launþega, fram-
leiðendur eða neytendur o. s.
frv. Mér finnst, að til þess að
geta sannað þessa óánægju
sína, ættu íhaldsblöðin að birta
stefnuskrá Sjálfstæðisflokks-
ins, ef hún er á annað borð til.