Tíminn - 05.10.1940, Blaðsíða 1
( RITSTJÓRAR:
< GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
( ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
(
} FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
; JÓNAS JÓNSSON.
! ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
24. árg.
Reykjavík, laugardagtim 5. ekt. 1940
95. blafl
Rekstraríyrírkomulag útgerðarínnar
Sjómenn þurfa að skapa sér réttlát laun fyrir vínnu sína
T OöARi : 6A íri'AL.
H 'AiE TAMLUTUR : 23 5 0 kR.
\síMlx * :rilr\v...r^.......
H'AS Et*hi.utor:1i« kr.
Kornyrkjan í sumar
Bygg og hafrar hafa proskasl sæmilega
HVAÐ DVELUR HITLER?
Hann getur ekki hætt vlð innrás í England
Tíðindamaður Tímans hefir
átt tal við ýmsa hina helztu
kornræktarmenn hér á landi og
viðað að blaðinu upplýsingum
um kornvöxtinn á þessu kalda
og víða hrakviðrasama sumri.
Klemens Kr. Krstjánsson á
Sámsstöðum skýrði svo frá, að
bygg og hafrar myndi ná full-
um þroska, en hveiti og rúgur
hafa ekki náð að dafna. Alls sáði
hann korni í 8 y2 hektara lands.
Byggið var orðið þroskað nokkru
fyrir mánaðamótin, en hafrarn-
ir voru síðsprottnari, enda not-
ast þeim betur haustveðráttan en
öðrum korntegundum. Þola þeir
tveggja stiga frost, án þess að
þá saki hið minnsta. Klemens
gerir ráð fyrir að fá 5—6 tunnur
korns af hverri dagsláttu, en að
meðaltali hefir hann fengið 7
korntunnur af dagsláttu síðan
hann hóf kornræktina á Sáms-
stöðum. Mest hefir uppskeran,
orðið 11 tunnur af dagsláttu.
Þegar til þess er litið, að þetta
sumar var eitt hið kaldasta það
af er þessari öld, má telja
kornsprettuna dágóða. í ágúst-
mánuði í sumar var meðalhiti
á Sámsstöðum 9,8 stig, en síð-
astliðin tiu sumur hefir meðal-
hiti ágústmánaðar verið þar 11
stig. Við hina köldu tíð bættist
svo það, að oftast var mjög sól-
arlítið.
Það er ljóst, mælti Klemens,
að í sumar hefir kornræktin
hér á Sámsstöðum heppnazt
til muna betur en kartöflurækt.
Hér var sáð 36 tunnum af kar-
töflum, en uppskeran hefir orð-
ið 100 tunnur með öllu smælki
og myri. Var þó sáð í ágætt land
og svo um garðlöndin hirt, sem
bezt gat orðið, enda hefir miklu
lakar tekizt um kartöflurækt-
ina á ýmsum öðrum stöðum.
í samanburði við þetta hefir
kornyrkjan gengið vel.
Frá Birtingaholti í Árnes-
sýslu, austan úr Mýrdal og víð-
ar þaðan sem kornyrkja var
rekin á Suðurlandi í sumar og
fregnir hafa borizt um upp-
skeruhorfur, er svipað er að
frétta. Bygg og hafrar hafa náð
eða munu ná viðunandi þroska,
en korntekjan mim minni
heldur en í fyrra, svo sem að
líkum lætur.
Að Hvanneyri hafa bæði bygg
og hafrar náð fullum þroska.
Var allt korn þar af kyngóðum,
heimaræktuðum stofni. Nokkur
ódrýgindi urðu á korninu sök-
um norðanroks í fyrri hluta
septembermánaðar.
Á Hólum í Hjaltadal var
einnig nokkur kornrækt i ár,
SÆHRIMNIR
Vei-íatur: TR 8«. SM‘AL.
LT
13000 MAL o’o tumhur.
eins og að undanförnU. Urðu
akrarnir þar síðsprottnir, en þó
fæst talsvert af þroskuðu byggi.
Kartöflur náðu þar útsæðis-
stærð í sumar.
Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Ræktunarfélags
Norðurlands, hefir í símtali
tjáð fréttaritara blaðsins, að
í ræktunarstöð sinni hafi bygg
náð þroska. Einnig fékkst nokk-
uð af þroskuðum höfrum, þótt
síðþroskaðri séu.
í Klauf, kornræktarstöð
Kaupfélags Eyfirðinga, mun
kornræktin hafa gengið mjög
svipað; þó mun sprettan hafa
verið tregari þar. Allmargir ey-
firzkir bændur efndu til dá-
lítilla sáðreita og smáakra í vor.
Hefir ræktunin að vonum geng-
ið misjafnlega. Þeir, sem sáðu
nægilega snemma í góða og vel
unirbúna jörð, fengu nokkuð af
sæmilega þroskuðu komi, en
hjá sumum varð lítil sem eng-
in uppskera.
Bæjarstjórn Reykjavikur hefir á
þrem fundum rætt um nýja lántöku
handa Reykjavíkurbæ. Er þó þessu
máli ekki enn til lykta ráðið. Tillögur,
sem forráðamenn bæjarins hafa borið
fram um þessa lántöku, er þeir vilja
leita fyrir sér um, er þess efnis, að
bærinn bjóði út skuldabréf til sölu
innan lands. Á heildarupphæðin að
vera 3 milljónir króna. Þriðjungur
lánsupphæðarinnar sé til þriggja ára
og með 5 af hundraði í ársvexti, en
tv«er milljónir til 15 ára og raunveru-
legir ársvextir nemi 5,5 af hundraði
eða þar um bil. Fé þetta á að nota
til að greiða lausaskuldir bæjarsjóðs-
ins, sem aukizt hafa ákaflega ört hin
síðustu ár og nema nú orðið mörgum
milljónum króna. Lausaskuldir bæjar-
sjóðs við Landsbankann munu hafa
numið svipaðri upphæð um síðastliðin
áramót og nú er ráðgert að taka að
láni.
r r t
Bjarni Jónsson frá Galtafelli og
kona hans, Sesselja Guðmundsdóttir,
áttu fyrir skömmu 30 ára hjúskapar-
afmæli. Nokkru síðar, hinn 3. október-
mánaðar, átti Bjami sextugsafmæli.
í tilefni af þessum afmælum og til
minningar um tvær látnar dætur,
Svövu og Kristjönu Áslaugu, gáfu þau
hjónin Vísindafélagi íslands 10 þús-
und krónur. Fé þessu á að verja til
rannsókna á lækningamætti íslenzkra
heilsulinda. Síðar munu þau hjónin,
ásamt stjóm Vísindafélagsins, sem í
Athyglisverðar tölnr
frá síldveiðmmm í
sumar: Aflahæsta skip-
ið, Tryggvl gamli, eign
lilutafélagsins Allian-
ce, aflaði 27.443 mál
og tn., en hásetahlutur
varð 2350 kr. Vélbát-
iiriiui Sæhrlmnir, eign
Samvinnufélags Dýr-
firðinga, aflaði 13000
mál og tn., en háseta-
hlutur varð 3773 kr.
Þetta sumar hefir fyrir
sjávarútveginn orðið eitt
hið fengsælasta, sem menn
muna. Síldveiðarnar gengu
með afbrigðum vel. Fylgdist
að mikill afli, gott veiði-
veður og hátt verð.
Nokkuð eru þó hlutir manna
misjafnir og fara þeir ekki ein-
att eftir aflamagninu, heldur
rekstrarfyrirkomulagi útgerð-
arinnar. Kemur þar glöggt í
ljós, að sjómönnum er það mik-
ils virði, að sjávarútveginum sé
fundið heppilegt rekstrarfyrir-
komulag, er tryggi þeim réttlát
starfslaun.
Fram til þessa hefir útgerð
hinna stærri skipa hér á landi
að mestu verið rekin af einstök-
um mönnum eða hlutafélögum.
Bæjarútgerð hefir verið rekin
af einum kaupstað, en sá rekst-
ur hefir ekki verið frábrugðinn
einstaklingsrekstri að öðru leyti
en þvi, að bæjarfélagið ber á-
byrgð á fyrirtækinu.
Áður fyrr var sjávarútvegur-
inn rekinn með hlutaskipta-
fyrirkomulagi og á smærri
skipum og bátum helzt sú
(Framh. á 4. síðu)
eru dr. Einar Ólafur Sveinsson, dr.
Þorkell Jóhannesson og Ásmundur
Guðmundsson prófessor, semja starfs-
skrá, er fara skal eftir um meðferð
fjárins.
I I f
Síðastliðinn þriðjudag, litlu eftir há-
degi, bar það til, að sprengikúla frá
fallbyssustöðvum útlenda setuliðsins á
Kjalamesi kom nlður á túninu á
Þaravöllum í Innri-Akraneshreppi.
Var fólk að taka upp kartöflur í garði
skammt þaðan, er sprengikúlan sundr-
aðist, og flugu brot úr henni yfir höfð-
um þess. Munaði minnstu, að sprengi-
kúlan hæfði sjálfan bæinn, þar sem
annað heimilisfólk en það, er að kart-
öfluupptekningunni vann, var inni.
Hreppstjóranum var tilkynntur at-
burður þessi og hefir hann rannsakað
hvað gerðist. Hefir sprengikúlan
myndað djúpan gíg og stóran um-
feðmis í túninu á Þaravöllum og má
sjá, hvemig kúlubrotin hafa tætt upp
jörðina, er þau hafa þeytzt langar
leiðir frá staðnum, þar sem kúlan
sprakk. Má telja mildi mestu, að þetta
ávarkámisskot frá fallbyssustöðvun-
um á Kjalamesi hafði ekki i för með
sér hræðilegt slys. Ríkisstjóminni
hefir verið send skýrsla um atburð
þenna, ásamt kröfum um bætur fyrir
unnið tjón og ti-yggingu þess að slík
spellvirki hendi ekki framar.
r t t
Vegna mikillar húsnæðiseklu í
Reykjavík og ef til vlll víðar, hafa verið
Flestir hafa lesið um þann at-
burð í Noregskonungasögunum,
þegar hið fræga máltæki varð
til: Hvað dvelur Orminn langa?
Nú seinustu vikurnar hafa svo
að segja allir íbúar jarðar haft
aðra svipaða spurningu á vör-
unum: Hvað dvelur Hitler?
Það er liðinn langur tími síð-
an að Þjóðverjar byrjuðu að
ógna Bretum með innrás. Þess-
ar ógnanir hafa verið endur-
teknar stöðugt síðan. í byrjun
septembermánaðar lýsti Hitler
sjálfur ýfir: Við munum koma.
í sumar létu brezku blöðin
svo ummælt, að mesta innrás-
arhættan á þessu ári væri liðin
hjá 21. sept. Eftir þann tíma
færi veðráttan að ókyrrast og
ófært gæti orðið yfir Ermarsund
svo dögum skipti á smáskipum
og fljótabátum, sem yrðu ein
þýðingarmestu flutningatæki
Þjóðverja. Þetta kom líka fram
í ræðu, sem Churchill flutti
11. september. Hann lýsti þá
hinum mikla viðbúnaði Þjóð-
verja í Ermarsundshöfnunum
og sagði, að næsta vika myndi
verða örlagarík í sögu Breta-
veldis.
En sú vika leið og 21. septem-
ber kom, án þess að til stórtíð-
inda drægi. Hvað dvaldi Hitler?
Milne lávarður, sem er einn
hinn þekktasti hershöfðingi
Breta, en gegnir nú ekki hern-
aðarstörfum, sökum 'aldurs,
hefir nýlega ritað grein um
þessi mál. Honum segist í stuttu
máli á þessa leið:
Fyrsta fyrirætlun Hitlers var
sú, að eyðileggja alla flugvelli
i Suður-Englandi. Enski flug-
herinn hefði þá ekki komið að
verulegum notum í orustum
þar, því að orustuflugvélar geta
ekki flogið nema skamman
tíma í einu. Hinar miklu loft-
árásir Þjóðverja í ágústmán-
uði höfðu þetta takmark. En
þær náðu ekki tilgangi sínum,
nema að sáralitlu leyti.
Næsta fyrirætlun Hitlers,
þegar þessi hafði misheppn-
ast, var sú, að brjóta niður
kjark Lundúnabúa. Hugarvíl og
eymd höfuðborgarbúa átti að
opna innrásarhernum leiðina.
gefin út bráðabirgðalög um húsnæði.
Stafar þessi ekla á húsnæði af því, að
brezka setuliðið þrengir mjög að bæj-
arbúum og hefir tekið mikinn fjölda
húsa og íbúða til afnota fyrir sig. Líka
kemur til greina, að á síðasta ári, eftir
að verðlag fór hækkandi á byggingar-
efni, hefir lítið verið reist af nýjum
húsum, og áreiðanlega ekki svo mikið,
að komið hafi til jafns við fólksfjölg-
unina. í hinum nýju húsnæðislögum
er svo kveðið á, að íbúðarherbergi megi
ekki taka til annarrar notkunar en
íbúðar, húsaleigunefnd sé heimilt að
taka í sínar hendur til ráðstöfunar
auðar íbúðir og loks er bann lagt við
því, að rifa íbúðarhús. Talsverð brögð
eru að því, að fólk sé húsnæðislaust
enn, þótt liðin sé nær heil vika af
októbermánuði, og erfitt að fá nokkra
kytru. Einkum mun talsvert af skóla-
fólki, sem kemur utan af landi til vetr-
ardvalar, vanta herbergi. Borið mun
hafa við, að fjölskyldufólk hafi til-
neyðzt að taka sér húsnæði í tveim
húsum.
r t t
Úthlutun áfengisbóka hófst í fyrra-
dag hér í Reykjavík. Má það ein-
kennileg tilviljun heita, að þær eru
afhentar í Bindindishöllinni, en þar
hefir sakadómari aðsetur sitt. Hinn
fyrsta dag, sem afhending áfengisbók-
anna fór fram, munu um 109 manns
hafa keypt sér áfengisbækur. í þeim
hópi voru tvær konur. í gær munu
(Framh. á 4. siðu)
Loftárásirnar í september höfðu
þennan tilgang. En því fer
fjarri, að þetta hafi heppnast.
Kjarkur Lundúnabúa hefir
aldrei verið meiri en nú. Að vísu
hafa orðið talsverðar skemmdir
á húsum og mannvirkjum og
nokkrir menn farizt. En það
tjón er ekki mikið, þegar miðað
er við stærð borgarinnar og
fjölda ibúanna.
Dómur Milne er því sá, að
fyrstu tvær tilraunir Hitlers
hafi misheppnast. í bæði skipt-
in er það brezki flugherinn,
sem hefir stöðvað sókn hans.
Bratt ofursti, sem ritar grein-
ar í sænska blaðið „Dagens Ny-
heter“, um hernaðarmál, segir
að ekki sé rétt að álykta svo, að
Þjóðverjar geti enn ekki reynt
að gera innrás í England í
haust, þótt veður séu farin að
spillast. Hauststormarnir séu að
vísu hættulegir, en dimmviðrin
geti kannske bætt þá upp og
jafnvel meira en það.
Þvi hefir stundum verið spáð,
að Þjóðverjar myndu hefja
innrásina í England um líkt
leyti og ítalir reyndu að ráðast
inn í Egiptaland. Flest virðist
nú benda til, að aðalárás ítala
sé í þann veginn að hefjast.
Annars eru tilgátur hemað-
arfræðinganna, sem um þessi
mál rita, mjög á reiki. En flest-
ir eru þeir þó sammála um það,
að Hitler myndi vera búinn að
hefja innrásina, ef hann hefði
fulltreyst herstyrk og undir-
búning Þjóðverja. Þýzka her-
stjórnin hafi í upphafi reiknað
hernaðarstyrk Breta minni en
reynslan hefir sýnt henni að
hann væri og þess vegna hafi
hún hvað eftir annað dregið
innrásina á langinn til að full-
komna undirbúninginn. Það
verði þó að telja stórt vafamál,
hvort þessi dráttur sé til bóta
fyrir Þjóðverja, því þótt þeir
geti aukið innrásarstyrk sinn,
þá vaxi líka viðbúnaður Breta
hröðum skrefum.
Nokkuð hefir verið rætt um
það, hvort Hitler muni ekki
hætta alveg við innrásina og
reyni að sigra Breta með öðru
móti. Þessi tilgáta þykir þó yf-
irleitt ekki líkleg. Þótt Bretar
töpuðu Egiptalandi myndi það
að vísu vera mikill hnekkir fyr-
ir þá, en langt frá því, að vera
endanlegur ósigur. Það virðist
líka vonlítið, að Þjóðverjar geti
sigrað Bretland með hafnbanni
eða loftárásum. Reynslan virð-
ist vera búin að leiða það í ljós.
Einn hernaðarfræðingurinn
hefir ákveðið spáð því, að úrslit
styrjaldarinnar myndu gerast í
Bretlandi eða Þýzkalandi, ann-
aðhvort sem stórorusta eða
uppreisn. Margt sýnist styðja
það, að þessi tilgáta sé ekki
ólíkleg.
En höfuðástæðan fyrir því, að
Hitler getur ekki hætt við inn-
rásina er sú, að hann hefir æst
hugi þýzku þjóðarinnar gegn
Bretum og hann hefir lofað
henni að sigra þá í þeirra eigin
(Framh. á 4. siðu)
Aðrar fréttir.
Hitler og Mussolini hittust í
gær í Brennerskarði. Þýzk blöð
segja, að þetta hafi verið venju-
legur viðræðufundur til að
tryggja samvinnu ítala og
Þjóðverja. Ensk blöð segja, að
einræðisherrarnir hafi komið
saman til að eggja hvern ann-
an. Hitler hafi eggjað Mussolini
til að ráðast á Egiptaland og
Mussolini hafi kvatt Hitler til
að gera alvöru úr fyrirætlun
sinni um innrás í Bretland.
Árangur fundarins varð lítill,
segja ensku blöðin.
Bandaríkjastjóm hefir sent
125 herskip til æfinga í Norður-
Atlantshafi. Floti Bandaríkj-
anna hefir aldrei haft þar
verulegar æfingar áður.
A víðavangi
UM TVENNT AÐ VELJA.
Blöð Sjálfstæðismanna halda
áfram að gera kröfur um auk-
inn innflutning, þar sem tals-
verðar gj aldeyrisinneignir hafi
safnazt erlendis seinustu mán-
uðina. Hitt gleyma blöðin að
minnast á, að það er ein-
göngu innflutningshöftunum
að þakka, að þessar gjaldeyris-
tekjur eru ekki farnar í súginn.
Hefðu ekki verið innflutnings-
höft undanfarin ár, myndu
hafa safnazt miklar verzlunar-
skuldir og þær hefðu nú etið
upp þann gjaldeyri, sem safn-
azt hefir, og meira til. Nú er
spurningin: Vilja menn láta
lennan gjaldeyrir, sem safnast
hefir seinustu mánuðina, vegna
hyggilegra ráðstafana á undan-
förnum árum, verða þjóðinni
gagnlausa af þeirri ástæðú, að
ekkert verði gert til að tryggja
rétta notkun hans? í seinustu
heimsstyrjöld gat þjóðin safnað
miklum auði, en hún varð þó
fátækari eftir styrjöldina,
vegna þess að hún kunni ekki
með hann að fara. Ráðin til
þess, að láta ekki sama henda
okkur nú, er að greiða skuld-
irnar við útlönd og að safna
gjaldeyrisvarasjóði. Eigum við
að hefjast handa um þessar
framkvæmdir eða að vera and-
varalausir eins og 1914—18?
Um þetta tvennt á þjóðin nú að
velja.
SKATTFRELSIÐ.
Skattfrelsi stríðsgróðamann-
anna og andvaraleysi ríkis-
stjórnarinnar í þeim efnum er
sennilega mesta áhyggju- og óá
nægjuefni alþýðu manna um
þessar mundir. Áreiðanlega á
nú ekki önnur krafa sterkara
fylgi hjá þjóðinni en sú krafa
Tímans, að sett verði bráða-
birgðalög um afnám undanþág-
unnar. í þeim lögum gæti ver-
ið eðlilegt, að taka eitthvert sér-
tillit til fyrirtækja, sem eru að
greiða skuldir sínar. En það á-
stand, sem nú er í þessum efn-
um, er óþolandi. Sumir segja,
að það sé nægilegt að setja lög
um afnám undanþágunnar á
næsta þingi, því að skattar og
útsvör næsta árs leggist á tekj-
ur þessa árs. Til munu þó vera
lögfræðingar, sem draga þetta í
efa, þar sem viðhorf er talsvert
annað í þessum efnum, sökum
undanþágulaganna. Hafi ríkis-
stjórnin ætlað sér að gera ein-
hverjar leiðréttingar á þessum
málum á næsta þingi, ætti hún
þvi aðeins að draga þær breyt-
ingar þangað til, að t. d. lægi
fyrir yfirlýsing hæstaréttar um
að hann líti svo á, að lagasetn-
ing um afnám undanþágunnar
hefði þau áhrif, að hægt væri
að leggja útsvör og skatta á
tekjur þessa árs. Annars verð-
ur ríkisstjórnin að leysa málið
strax með bráðabirgðalögum.
MORGUNBL., MÖLLER
OG SKATTARNIR.
Morgunblaðið er stöðugt að
fárast yfir því, að ekki sé hafin
nein athugun á skattamálun-
um. Blaðið lætur eins og það
muni Framsóknarmönnum að
kenna. Það er eins og Mbl. hafi
enn ekki gert sér ljóst, að Jakob
Möller er fjármálaráðherra og
að þessi mál heyra undir ráðu-
neyti hans. Það er því mest
undir honum komið, hvort
nokkur athugun verður gerð á
þessum málum eða ekki. Ann-
ars er rétt að taka það enn
fram, er sagt var í seinasta
blaði: Útsvörin í Reykjavík em
helmingur allra útsvara og
skatta í landinu eða sex miljónir
af tólf miljónum króna. Þau
eiga að verulegu leyti rætur
sínar að rekja til óstjórnarinn-
ar í fátækramálum bæjarins.
Endurbótin á skattamálum
Reykjavíkur er því fyrst og
fremst bundnar við endurbæt-
ur á fátækramálunum. Og þar
(Framh. af 1. síðu)
A. KZROSSGÖTUM
Ný lántaka handa Reykjavík. — Gjafasjóður. — Óvarkárni setuliðsins. —
Húsnæðisekla í Reykjavík. — Áfengisbækurnar.