Tíminn - 05.10.1940, Page 4
380
TfcMlM, lawgardaginn 5. okt. 1940
95. blað
Tilkynning.
Að öðru leyti en um getur í auglýsingu á öðrum
stað í blaðinu, er öll starfsemi firma vors óbreytt frá
því sem áður var.
Tryggingarskrlfstofa
Carl D. Tuíínius & Co. h.f.
tJR BÆNUM
Fundur í F. U. F.
verður haldinn í næstu viku. Nánar
auglýst í þriðjudagsblaðinu.
Framsóknarskemmtun,
hin fyrsta á haustinu, var haldin í
Oddfellowhúsinu á fimmtudagskvöldið.
Skemmtunin hófst með Framsóknar-
vist. Að loknmn stuttum ræðum var
dansað til klukkan 2.
Áttræffisafmæli
á í dag frú Kristín Ólafsdóttir í Nesi
við Seltjöm. Hún er fædd í Nesi og
hefir þar alið allan sinn aldur. Eftir
lát manns síns, Guðmundar Einars-
sonar útvegsbónda, sem drukknaði ár-
ið 1906, hefir Kristín búið sem ekkja
í Nesi um 34 ára skeið, og setið hið
forna höfuðból með sæmd og prýði. —
Frú Kristín hefir verið sæmd riddara-
krossi Fálkaorðunnar.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ annað kvöld, og hefst
sala aðgöngumiða í dag kl. 4. Á mið-
vikudag í næstu viku verður frumsýn-
ing á sjónleiknum „Loginn helgi“ eftir
W. Sommerset Maugham.
Húsaleigunefnd
biður húsnæðislausar fjölskyldur og
einstaklinga að gefa sig fram á bæjar-
þingstofunni í hegningarhúsinu kl. 5
—7 í dag. Sömuleiðis eru þeir húsráð-
endur, sem hafa í sinni umsjá lausar
íbúðir eða herbergi, áminntir um að
láta nefndina vita.
S. í. B. S.
Samband íslenzkra berklasjúklinga,
efnir til skemmtana í báðum kvik-
myndahúsum bæjarins á morgun. —
Hefst skemmtunin í Nýja Bíó kl. 2,
en í Gamla Bíó kl. 3. Skemmtiatriði
eru auglýst í blöðum bæjarins. Kl. 4
mun lúðrasveitin Svanur leika á Aust-
urvelli. Merki dagsins og blaðið Berkla-
vörn verður selt á götunum.
Á víðavangi.
(Framh. á 4. síðu)
gildir ekki annað úrræði en það
ráð Björns Ólafssonar, að fá
„nýjar aðferðir, nýjar hug-
myndir og nýja menn til að
leysa vandamál Reykjavíkur."
EITT YFIR ALLA!
Árni frá Múla heldur áfram
því rausi sínu, að með verð-
hækkun landbúnaðarafurð-
anna hafi verið brotin sú regla
þjóðstjórnarinnar, að láta eitt
yfir alla ganga. Kjarni í þessu
máli er sá, að með þessari full-
yrðingu er Árni að reyna að
draga athygli hinna óbreyttu
liðsmanna Sjálfstæðisflokksins
hér í bænum frá því, að ekki er
hægt að vinna meira í bága við
þessa reglu en forráðamenn
Sjálfstæðisflokksins gerðu, þeg-
ar þeir hótuðu að ganga úr
þjóðstjórninni, ef stríðsgróðinn
væri ekki látinn skattfrjáls.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
hafa verið afhentar 220 bækur, þar af
6 handa konum. Líklegt er, að þegar
frá líður verði þeir mun færri, sem
áfengisbókanna æskja dag hvern, enda
bezt farið, að þeir verði sem allra
fæstir. Það eru vonir manna, að
margar konur og æskumenn telji það
ekki ómaksins vert að há sér í áfengis-
bók. Það væri æskilegur árangur af
skömmtunarfyrirkomulaginu.
Svið,
Lifur og hjörtu,
Kálfakjöt,
Svínakótelettur,
Buff,
Gullace,
DUkakjöt.
K j ötbiiðiruar.
VEGGFÓÐUR,
Veggrfóðurslím
Málningarvörur
allar tegundir.
Gardinustengur
2 tegundir.
Gardínugormar.
Verzlunín BRYNJA
Sími 4160 og 4128.
SYNGJUM OKKUR SAMAN!
Munum að hafa Vasasöngbók-
ina alltaf með okkur á allar
samkomur og samsæti.
Hvað dvelur Hitler?
(Framh. af 1. síðu)
landi. Hann hefir gefið hernum
loforð um að vinna glæsilegasta
sigurinn í allri styrj aldarsög-
unni. Þjóðin og herinn bíða eft-
ir því, að Hitler efni loforðið.
Óánægjan mun fljótlega gera
vart við sig og það í stórum stíl,
ef ekkert verulegt verður að-
hafst, en hafnbann Breta held-
ur áfram að valda margvísleg-
um skorti hjá þýzku þjóðinni
og brezkum sprengjum rignir
yfir þýzkar borgir á hverri nóttu.
Bretar geta því verið nokk-
urnveginn vissir um, að Hitler
muni koma. Hann mun kann-
ske láta bíða eftir sér nokkuð
enn. En hann kemur. Hitt veit
enginn enn, hvort hamingjan
verður honum þá jafn hliðholl
og hún hefir verið til þessa eða
hvort hans bíða þá svipuð ör-
lög og Ormsins langa forðum.
KAUPI GULL hæsta verði.
Sigurþór, Hafnarstræti 4, Rvík.
Rekstrarfyrirkomu-
lag útgerðarinnar.
(Framh. af 1. síðu)
venja víða enn. Með togaraút-
gerðinni fóru skipverjar að fá
fast kaup, án tillits til afkomu
útgerðarinnar.
Myndazt hafa félög sjómanna
og útgerðarmanna, er háð hafa
hina grimmustu baráttu um
kaupgjald og ráðningarkjör.
Hefir stundum komið til stöðv-
unar á útgerðinni um langan eða
skamman tíma. Og þess eru
dæmi, að deilurnar hafa gengið
svo langt, að Alþingi hefir þurft
að setja lög um gerðardóm, svo
að þjóðarvoða yrði afstýrt.
Framsóknarflokkurinn hefir
hvað eftir annað vakið athygli
á því, að heppilegast myndi að
færa rekstur útgerðarinnar á
grundvöll samvinnustefnunnar.
Með því móti fengizt rétt-
lát skipting verðmætanna hjá
öllum þeim, sem að atvinnu-
veginum starfa. Tekið yrði fyr-
ir hættulegar deilur og fyrir-
byggt, að glæfralegt brask verði
með fjármuni þjóðarinnar.
Á þingi 1934 og á öllum
þingum síðan hafa nokkrir
þingmenn Framsóknarflokks-
ins flutt frumvarp til laga um
útgerðarsamvinnufélög. Jafn-
framt fluttu þeir frumvarp til
laga um aukin fjárframlög til
fiskiveiðasjóðs og heimild til
hans um að lána hlutfallslega
meira út á skip útgerðarsam-
vinnufélaga en annarra fyrir-
tækja, með því að lán til þeirra
væru áhættuminni, þar sem á
skipum slíkra félaga væri stór-
um minni sjóveðshætta en á
öðrum skipum.
Á síðasta þingi var frum-
varpið samþykkt, að vísu nokk-
uð breytt og hét þá frumvarp
til laga um hlutarútgerðarfélög.
Hefir áður verið um það skrif-
að í Tímann. Með þeim er lagð-
ur grundvöllur t'il að reisa á fé-
lagsleg samtök um fiskveiðar
og aðra starfsemi í sambandi
við útgerðina. Nokkur sam-
vinnufélög um útgerð voru áð-
ur stofnuð. Þannig hófu nokkr-
ir Dýrfirðingar samvinnuútgerð
í fyrra undir forustu eins af
duglegustu kaupfélagsstjórum
landsins, Eiríks Þorsteinssonar
á Þingeyri.
Keyptu þeir vélbátinn Sæ-
hrímni frá Siglufirði, sem er
79 smálestir á nálega 100 þús.
krónur. Allir eru skipverj arnir
eigendur bátsins og er Valdimar
Þjóðleikhúsið.
(Framh. af 3. síðu.)
margt síður gagnlegt með
fljótfengnar tekjur, heldur en
að verja þeim til að fullgera
fegurstu byggingu landsins, til
að hafa af henni miklar tekjur
og bæta úr margháttuðum þörf-
um. Frh.
Kristinsson frá Núpi, formaður
hans.
í sumar aflaði Sæhrímnir
13000 smál. og tn. og varð
hásetahlutur 3773 kr.. 39% af
aflanum er skipt í 16 hluti. Þá
er lagt ríflega í varasjóði og
skipið borgað að miklu leyti.
Aftur á móti var aflahæsta
skip síldveiðiflotans í sumar
togarinn Tryggvi gamli, eign
Alliance félagsins, og fékk 27,-
443 smálestir og tn. en háseta-
hlutur er aðeins 2350 kr. eða %
minni en á samvinnubátnum,
er hefir meir en helmingi minni
afla. Þetta eru athyglisverðar
niðurstöður fyrir þá, sem sjáv-
arútveginn stunda.
Togarinn er eign hlutafélags,
er greiðir sjómönnum að mestu
ákveðið kaup og hvernig, sem
allt gengur, er útilokað, að sjó-
mennirnir eignist skipið nokk-
urntíma, eða verði annað en
þjónar félagsins. Sjómennirn-
ir á samvinnubátnum Sæ-
hrímni eru eftir stuttan tíma
orðnir sjálfir skipseigendur,
auk þess að bera hlutfallslega
margfalt meira úr býtum.
Það eru ólík hlutskipti og því
verður ekki trúað, að sjómenn
yfirleitt telji þann kost beztan,
að vera alla æfi þjónar ein-
staklinga eða hlutafélaga. Hitt
mun sönnu nær, að þeir kjósi
að vera sjálfstæðir framleið-
endur og hljóta sannvirði fram-
leiðslu sinnar. Með því eina
móti skapast heilbrigt rekstrar-
fyrirkomulag sjávarútvegsins.
Réttlát arðskipting, starfsfrið-
ur og áhættuminni rekstur. Og
þegar þess er gætt, að safna í
sjóði, þegar vel árar, eins og hjá
samvinnufélögunum,ættu vondu
árin ekki að verða jafn tilfinn-
anleg.
Fæstir einstaklingar eða
hlutafélög hafa skilið það og
hafa töp bankanna vegna út-
gerðarinnar orðið mikil. Má
minna á hrun íslandsbanka og
yfirvofandi gjaldþrot Kveld-
úlfs og Alliance hin síðustu ár,
er stríðsatburðirnir munu nú
vera að leysa fjötrana af. Ræð-
ur þar hending en ekki nein
forsjá. Arðurinn af striti sjó-
manna á góðu árunum, fór til
„villu“-bygginga fárra manna,
aukinna lífsþæginda þeirra og i
framkvæmdir óskyldar sjávar-
útveginum.
42
Róbert C. Oliver:
Æfintýri blaöamannsins
43
GAMLA BtÓ—~
NINOTCHKA
Amerísk úrvals skemmti-
mynd, tekin af Metro
Goldwyn MayeT undir
stjórn kvikmyndasnillngs-
ins
Ernst Lubitsch.
Aðalhlutverkin leika:
GRETA GARBO
MELVYN DOUGLAS.
Sýnd klukkan 7 og 9.
mýja Bló
Eldnr í
Rauðuskógum.
SSpennandi amerísk kvik- !
mynd, gerð eftir hinni víð- I
frægu skáldsögu eftir Jack .
London (Romance of the j
Redwoods). j
Aðalhlutverkin leika:
JEAN PARKER
og
CHARLES BICKFORD.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9.
Börn fá ekki affgang.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
»Stundum og stundum ekki«
Sýning aiinuó kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frú klukkan 4 til 7 í dag.
Knattspyrnnröll
slétta flöt, 200 metra á hvern veg, vantar brezka setuliðið í
Reykjavík sem næst bænum. Aðeins vetrarmánuðina. Tilboð með
leiguskilmálum, stað og stærð vallarins sendist:
Staff Capt. „A“
British Force H. Q.
ÞAKKARÁVARP.
- Hjartans þafckir til frœnda og vina, sem heiðruðu mig
og glöddu á áttrœðisafmœli mínu með skeytum og gjöfum.
KJARTAN ÞORKELSSON, Hagaseli.
Tilkynnmg
írá Húsaleigunefnd
Húsnæffislausar fjölskyldur og einstaklingar eru
beffnir aff gefa sig fram í bæjarþingstofunni í Hegn-
ingarhúsinu í dag (laugardag frá kl. 5—7 síffdegis.
Fjölskyldufeffur eru beffnir aff upplýsa hve margt fólk
þeir hafa í heimili, hve mikils húsnæðis þeir þarfnast
og hve háa Ieigu þeir hafa borgaff.
Þá er skoraff á húseigendur og umráffamenn húsa, er
hafa lausar íbúffir og einstök herbergi, aff gefa sig
fram á sama staff og tíma.
Reykjavík, 4. október 1940.
Húsaleigunefnd.
Tilkynnin
Það tilkynnist hér með, að Carl D. Tulinius & Co.
h/f., hættir störfum þeim, sem félagið hefir haft með
var sá fyrsti, sem nefndi þetta fyrir-
brigði sínu rétta nafni: Hvít þrælasala
— og hann spáði því, að hér .fengi lög-
reglan erfitt hlutverk að vinna — erf-
iðara en hún hefði nokkru sinni kom-
izt í kynni við áður.
En nú missti Bob Hollman um stund
áhugann fyrir þessu — atburðurinn við
dánarbeð Spencer skipaútgerðarmanns
myndi verða aðalatriðið í fregnmið-
anum frá „Sjörnunni" á morgun — í
dag var það flugslysið.
Bob Hollman stökk í flýti upp í litla,
rauða bílinn sinn, án þess að kveðja
ungfrú Spencer — sem hafði stanzað
nokkur augnablik hjá lækninum, setti
bílinn af stað og hvarf. Hálftíma
seinna var hann farinn að hamast að *
skrifa á ritvélina sína, og þegar hann
við og við sló öskuna úr pípunni sinni
og tróð tóbaki í hana á ný, brosti hann
ánægjulega.
Þegar hann var búinn með greinina
og las hana yfir í síðasta sinn, mjög
ánægður, varð hann hugsi.
Skyndilega sá hann fyrir sér grát-
andi stúlkuandlit, fölt en ákveðið og
biðjandi, tvö hlý, brún augu, fljótandi
í tárum — stúlkuna, sem hann hafði
heyrt gráta yfir hinum deyjandi manni
á sjúkrahúsinu.
Vinnan hafði gert Bob Hollman
harðan og tilfinningalausan, hann var
ágætt sýnishorn af glæpafréttaritara
og sjaldan kvaldist hann af efasemd-
um.
Hann bölvaði kröftuglega þegar hann
skyndilega varð þess vís, að hann
kenndi í brjósti um þessa vesalings
stúlku. Og átti hann svo að fara að
dreifa hennar helgustu tilfinningum út
til fréttagráðugra blaðalesenda borgar-
inar. Hann barði úr pípunni sinni og
byrjaði að tölusetja blöðin og útbúa
eftirtektarverðar fyrirsagnir.
Hann stanzaði og krossbölvaði. Nei,
þetta gat hann ekki látið frá sér fara.
Hvernig átti hann að fá frið fyrir sam-
vizku sinni — hvers vgena gat hann
ekki slitið þessi útgrátnu augu úr
huga sér? —
Bob Hollman barði krepptum hnef-
anum í höfuðið á sér — og svo fór hann
að hugsa um hvað hún mundi heita.
Og svo kom það fyrir, sem aldrei hafði
áður skeð síðan hann fór að vinna við
„Stjörnuna".
Reiður og skömmustulegur ýtti hann
ritvélinni frá sér og reif handritið í ó-
tal tætlur. Bob Hollman gat ekki látið
þetta „á þrykk út ganga“. Hann
skammaðist sín eins og skóladrengur,
og hann vissi, að hann myndi aldrei
Ættu lánsstofnanir að hafa
fengið reynslu fyrir þeirri ó-
hæfu, að lána þannig veltufé
þjóðarinnar til örfárra einstakl-
inga, er gera sér ekkert far um
að tryggja sig fyrir vondu ár-
unum. Er nú tækifæri að skapa
tímamót í þeim efnum og beina
lánsfénu inn á aðrar brautir.
Hjálpa sjómönnum af stað með
samvinnuútgerð vélbáta, er
geri þá frjálsa í starfi sínu og
gefi þeim réttlát starfslaun.
Reynslan bendir hvarvetna á,
að vélbátarnir séu heppilegustu
veiðiskipin, en togararnir verði
aðallega notaðir til flutninga
milli landa.
Samvinnufélag Dýrfirðinga
hefir gefið mikilvægt fordæmi,
er verðskuldar athygli allra
þeirra, sem sjávarútveginn
stunda. Koma yfirburðir sam-
vinnunnar þar áþreifanlega í
ljós.
Sex ára barátta Framsóknar-
flokksins fyrir lögunum um
hlutarútgerðarlög, skapa tví-
mælalaust grundvöll til víðtæk-
ari framkvæmda einstakling-
anna í útvegsmálunum.
höndum fyrir líftryggingardeild Sjóvátryggingarfélags
íslands h/f., frá deginum í dag að telja.
Reykjavík, 1. október 1940.
Sjóváfryggingarfélag Islands h.f.
Carl D. Tulínius & Co. h.f.
ATAOJAA.
Nokkra unga menn vantar til tollskoðunar við toll-
stjóraembættið. — Þeir, sem vildu koma til greina sem
væntanlegir starfsmenn til þeirra starfa, sendi eigin-
handar umsóknir til tollstjóraskrifstofunnar í Hafnar-
stræti 5 í síðasta lagi þriðjudaginn 15. þ. m. Umsókn-
unum skulu fylgja fæðingarvottorð, heilbrigðisvottorð,
ljósmynd og meðmæli.
Aðeins þeir, sem eru yngri en 25 ára og hafa fulln-
aðarpróf frá verzlunarskóla eða hafa fengið aðra jafn-
góða menntun, koma til greina.
Daníel Ágústínusson.
TolLstjóriim í Reykjavík, 3. október 1940.