Tíminn - 10.10.1940, Page 1
< RITSTJÓRAR:
l GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) '
< ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. )
< /
J FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
( JÓNAS JÓNSSON. \
í ÚTGEFANDI:
) FRAMSÓKNARFLOKKURINN. \
24. árg.
Reykjavlk, fimmtudagmn 10. okt. 1940
97. blað
Lántaka Reykjavíkurbæjar
Bæjarfulltrúí Framsóknarflokksíns fékk
því til leíðar komíð, að stærra láníð verð-
ur affallalaust
Þríveldasamningurinn heiir
ekki náð tilgangi sínum
Bandaríkin hafa aldrei verid ákvednari að
vinna gegn yiirgangi og áróðri einræðisríkj-
anna í Austur-Asíu og Suður-Ameríku
fi. IJ. F.
boðar til 8 funda í Ár-
nes- og Rangárvalla-
sýslum sunnudaginn
20. þ. m.
Samband ungra Framsóknar-
manna gengst fyrir fundahöld-
um víða um Suðurland og við
Faxaflóa tvær síðustu helgarn-
ar í októbermánuði. Er fyrir-
hugað, að 2—3 ungir Framsókn-
armenn mæti á vegum sam-
bandsins á hverjum fundi.
Fundirnir á Suðurlandsundir-
lendinu verða sunnudaginn 20.
október. Eru þeir undirbúnir af
félögum ungra Framsóknar-
manna í sveitunum austan-
fjalls. Verða þeir alls 8, í
Hveragerði, Skeggjastöðum í
Flóa, Minni-Borg í Grímsnesi,
Vatnsleysu í Biskupstungum,
Brautarholti á Skeiðum, Mar-
teinstungu í Holtum, samkomu-
húsinu í Fljótshlíð og á Sauð-
húsvelli undir Eyjafjöllum.
Hefjast þeir allir samtímis,
klukkan 3. Um 20 sendimenn
S. U. F eiga að flytja ræður á
fundum þessum. Að afstöðnum
ræðuhöldum verður á sumum
stöðum efnt til gleðskapar með
dansi og söng.
Um helgina 27. október verð-
ur svo efnt til samskonar fund-
arhalda á Suðurnesjum og í
Borgarfjarðarhéraði, bæði ofan
Skarðsheiðar og sunnan, senni-
lega á álíka mörgum stöðum og
fyrri helgina,
Á fundi þessa eru allir fylgis-
menn Framsóknarflokksins
boðnir og velkomnir, jafnt aldr-
aðir sem ungir, konur og karlar,
og er þess að vænta, að þeir
verði fjölsóttir, ef veður haml-
ar ekki.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
S. U. F. gengst fyrir stórfelldum
fundum meðal almennings.
Undanfarin ár hefir það þó
efnt til eða átt hlut að all-
mörgum fundum víðsvegar um
Suðurland og í Borgarfjarðar-
héraði.
Jökulmælíngfar
í Leirufirði
Skriðjöklar úr Drangajökli
hafa gengið fram á undanförn-
um árum, þótt jöklar hafi yfir-
leitt verið í rénun annars stað-
ar á landinu, að því er Jón Ey-
þórsson hefir skýrt Tímanum
frá. í fyrra gekk jökullinn í
Leirufirði fram um 540 metra.
Hinn 19. sept. siðastl. skrifar
Hallgrímur Jónsson bóndi að
Dynjanda í Jökulfjörðum á
þessa leið, en hann hefir á hendi
jökulmælingar í Leirufirði:
„Ég fór i gær fram að jöklin-
um til að athuga hans athafnir.
En veiztu hvað? Nú var hann
búinn að gleypa frá mér járn-
stöngina með öllu, og guð veit
hvenær hann skilar mér henni
aftur.
Jökullinn heldur á að síga
fram. Hann hefir færzt niður
um 150 metra, síðan ég mældi
í fyrra. Ég held, að hann hafi
alveg haldið kyrru fyrir í vetur
og allt fram í byrjaðan ágúst.
Síðan háfa heyrzt frá honum
feikna dynkir, enda er nú ís-
brúnin hærri en nokkru sinni
fyrr og úr henni klofna feikna
stór björg og hendast áfram
með miklum gauragangi. Ann-
ars sígur jökullinn niður með
mestu hægð og hirðir ekki um
þótt eitthvað standi fyrir. Þeir
eru ekki smásmíði sumir stein-
(Framh. á 4. siðu)
Bæjarstjórn Reykjavíkur
hefir nú samþykkt að taka
tvö skuldabréfalán, annað
að . upphæð ein milljón
króna með 5% ársvöxtum,
affallalaust og endurgreið-
ist það á þremur árum, hitt
að upphæð tvær milljónir
króna með 5 Vz % raunveru-
legum vöxtum og endur-
greiðist það með jöfnum af-
borgunum á 15 árum.
Meirihluti bæjarstjórnarinnar
hreyfði þessu máli fyrst á lokuð-
um fundi fyrir nokkrum vikum
og kvaðst þá gera það sam-
kvæmt ábendingu Landsbank-
ans. Hefði bankinn ráðlagt bæn-
um að taka ca. þriggja milljóna
króna lán, sem endurgreiddist
á 2—3 árum, til þess að greiða
með lausaskuldir bæjarins, aðal-
lega lausaskuldir við Lands-
bankann. Bæjarráð taldi sig þó
vilja gera tilraun með, að bjóða
eitthvað af láninu út til lengri
tíma.
Fulltrúi .Framsóknarflokksins,
Sigurður Jónasson, kvað það
óhyggilegt að bjóða út mikíð af
láninu til svo stutts tíma. Taldi
hann rétt, að bærinn tæki allt
að 5—6 milj. kr. lán með lágum
vöxtum til nokkuð langs tíma
til þess að greiða að fullu allar
lausaskuldir bæjarins og fyrir-
tækja hans.
Málinu var þá fre'stað, en á
næsta fundi var samþykkt eftir
fyrstu umræðu málsins, að
taka einnar milj. kr. lán með
5% vöxtum til þriggja ára og
tveggja milj. kr. lán með 5y2%
raunverulegum vöxtum til 15
ára.
Á bæjarstjórnarfundi 3. þ. m.
var málið til annarar umræðu.
Af hálfu forráðamannanna
hafði þá verið gerð sú breyt-
Eins og frá var skýrt í Timanum
fyrir nokkru, er mjög lítið um rjúpur
í ár, líkt og að undanförnu. Hin síðustu
ár hefir verið heimilt að skjóta rjúpur
um hálfs þriðja mánaðar skeið, frá
miðjum októbermánuði til áramóta, en
aðra tíma árs eru þær alfriðaðar. Ný-
lega hefir ríkisstjórnin auglýst, að í
ár skuli rjúpur einnig friðaðar þessa
seinustu mánuði ársins. Er því allt
rjúpnadráp bannað í haust. Að þessu
ráði er horfið vegna þess, hve rjúpum
hefir mjög fækkað síðasta áratug. Að
undanfömu hafa tvær getgátur verið
uppi um það, hvers vegna rjúpunum
hafi fækkað svo mjög. Hafa sumir
kennt um hóflausu drápi, en aðrir
staðhæft, að rjúpan fljúgi milli landa
og hafi flutt sig til Grænlands í stór-
hópum vegna milds tíðarfars undan-
farin ár. Með þessari ákvörðun hefir
sú skoðun orðið ofan á, að drápi sé
um að kenna, hve rjúpum hefir farið
fækkandi hér á landi hinn síðasta ára-
tug.
i r r
Samkvæmt yfirliti í síðasta hefti
Ægis, hefir hraðfrysting flatfiskjar
aukizt stórlega á þessu ári. Veldur því
að nokkru fjölgun hraðfrystihúsa.
Fiskimálanefnd tjáir, að fyrstu átta
mánuði ársins hafi verið hraðfryst
2063 smálestir flatfiskjar. í fyrra voru
aðeins frystar 1360 smálestir af slíkum
fiski fyrstu átta mánuði ársins.
ing á stærra láninu, að bæjar-
ráð skyldi hafa ótakmarkað
umboð til að taka það með
„ca. 5%% vöxtum“.
Sigurður Jónasson mótmælti
að þannig yrði gengið frá mál-
inu af hálfu bæjarstjórnar-
innar, því að ca. gæfi allt of
vítt svigrúm. Jakob Möller svar-
aði þessum mótmælum hans
með þeim upplýsingum, sem
virtust m. a. koma ýmsum
bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins mjög á óvart, að það
væri tilætlunin að taka lánið
með 51/2% vöxtum og 2% afföll-
um.
Sigurður Jónasson mótmælti
því harðlega, að hinum vænt-
anlegu kaupendum sölubréf-
anna væri með þessum afföll-
um raunverulega gefnar 40
þús. kr. Spurðist hann jafn-
framt fyrir um, hver væri á-
ætlaður kostnaður við sölu bréf-
anna. Kom þá í ljós, að bæjar-
ráðið hafði hugsað sér að greiða
allt að 2% í sölulaun af bréf-
unum, auk affallanna. Taldi
S. J. þetta algerlega. óþarft, —
fyrst og fremst ætti ekki að
þurfa að greiða nein sölulaun,
þar sem sennilegast væri að
skuldheimtumenn bæjarins, m.
a. Landsbankinn, myndu aðal-
lega kaupa bréfin, og auk þess
væri ekki meiri vinna en það
við sölu bréfanna, að skrifstof-
ur bæjarins gætu vel annast
það.
Eftir þessar umræður taldi
meiri hluti bæjarstjórnarinnar
sér ekki fært að afgreiða málið
endanlega og var því 2. umræðu
frestað þangað til á auka-
fundi 8. þ. m. Kom þá í Ijós, að
bæjarráð hafði ekki séð sér
annað fært en að fella orðið
ca. úr lántökuheimildinni og
var hún samþykkt þannig. Til-
lögur frá S. J., sem orðuðu ýms
(Framh. á 4. slðu)
Mæðiveikinefnd greip sem kunnugt
er til þess ráðs í haust að fyrirskipa
niðurskurð alls sauðfjár á bæjum þeim
í Hólahreppi, Viðvíkursveit og Óslands-
hlíð, þar sem gamaveiki hefði orðið
vart í sauðfé. Er nú senn lokið við að
slátra því fé, sem til kaupstaðar verður
rekið af þessum bæjum, en enn er
eftir að lóga því, er lagt verður til
heimilisnota. Alls er það um 2000 full-
orðins fjár, sem fargað verður vegna
ákvörðunarinnar um niðurskurðinn. í
staðinn hafa kaup verið fest á 1850
lömbum úr Eyjafirði, Fnjóskadal,
Höfðahverfi og af Svalbarðsströnd.
Lömb þessi voru flutt á bifreiðum
vestur í Öxnadal og rekin þaðan yfir
Öxnadalsheiði. Em þau nú geymd í
stórum girðingum í grennd við Mikla-
bæ í Skagafirði. Þegar lokið er slátr-
un heimafjárins, verða þau rekin til
hinna væntanlegu heimkynna sinna og
að sjálfsögðu tekin i hús, er þangað
kemur. Tímanum var skýrt svo frá 1
gær, að þrátt fyrir flutning og langan
rekstur og aðra hrakninga, er hin að-
keyptu lömb hefðu óhjákvæmilega orð-
ið fyrir, hefði ekkert lamb drepizt úr
bráðapest eða öðrum kvillum, enda
öll bólusett.
r r r
Ingólfur Davíðsson maglster hefir
tjáð Tímanum eftirfarandi um athug-
anir þær, sem gerðar voru í sumar í
tilraunareitum atvinnudeildar háskól-
ans: — Uppskeru er nýlega lokið i
Síðan þríveldasamningurinn
milli Japans, Þýzkalands og
Ítalíu var undirritaður hafa
málefni Austur-Asíu komizt
mjög á dagskrá og þeir spá-
dómar komizt á kreik, að þaðan
megi vænta örlagaTíkra tiðinda
á næstunni.
Það þykir fullvíst, að aðal-
tilgangur þríveldasamningsins
hafi verið sá, að ógna Banda-
ríkjunum. Hann hafi átt að
sýna þeim, að öll hjálp við
Breta, hvort heldur væri í Ev-
rópu eða Asíu, myndi ekki að-
eins kosta þá fjandskap eins
eða tveggja þessara stórvelda,
heldur sameinaðan fjandskap
þeirra allra.
Það er nú augljóst orðið, að
samningurinn hefir haft öf-
ug áhrif við þennan fyrir-
hugaða tilgang. Samningur-
inn hefir aðeins orðið til þess,
að Bandaríkjamenn hafa gert
sér það ljósara en áður, hvers
þeir eiga von, ef Bretar tapa
styrjöldinni og þeir standa
vinalausir eftir, með landvinn-
ingasjúk herveldi beggja megin
við sig.
Þau svör, sem Bandaríkin
hafa veitt, eru rnjög greinileg.
Kröfur blaðanna um aukna
hjálp við Bretaveldi hafa aldrei
verið kröftugri. Mörg blöðin
krefjast þess, að allur útflutn-
ingur til Japans verði bannað-
ur, en frá. Bandaríkjunum og
brezka heimsveldinu fá Japanir
meira en 50% af öllum inn-
flutningi sínum. Greinilegasta
aðvörunin til Japans er þó sú,
að Bandaríkjastjórn hefir kvatt
heim frá Japan og nálægum
löndum alla ameríska þegna,
sem ekki gegna þar áríðandi
störfum.
Sá samningsaðilinn, sem
áreiðanlega hefir orðið fyrir
mestum vonbrigðum af þessum
árangri þríveldasamningsins, er
Japan. í skjóli þess, að Banda-
ríkin myndu ekki veita Bretum
garði atvinnudeildar háskólans. Var
spretta nær helmingi minni en í fyrra,
enda var þá óvenjulegt góðæri Nú var
sumarið svalt og rakt með næturfrost-
um síðari hluta ágústmánaðar. Góð
kartöfluafbrigði gáfu sem svarar 200
tunnur af hektara, en þau lökustu að-
eins 100 tunnur af hektara Sýnir þetta
glöggt muninn á uppskerumagni af-
brigðanna. Er þetta sumar góð þol-
raun fyrlr þau. Bezt uxu Áskartöflur,
Akurblessun, Alpha og Ben Lamand.
Einnig gáfu Gullauga, Stóri-Skoti,
Rogalandsrauður, Eyvindur og fleiri
tegundir þolanlega upskeru. Munu þær
hæfa betur norðurhluta landsins en
hinar fyrrnefndu, sem eru seinvaxnari.
Rauðu, íslenzku kartöflumar voru
mjög smávaxnar nú eins og oftar og
gáfu litla uppskeru. Virðist ekki ástæða
til að halda £ þær. Sunnan lands eiga
mygluhraustari afbrigði að leysa þær
af hólmi, ásamt Gullauga, sem er þétt
og mjölvismikil kartafla eins og þær,
en gefur meiri uppskeru og er stór-
vaxnari.
r r r
Af rófnaafbrigðum uxu haustnæpur
(Petrowsky og Maalselunæpa) bezt,
mun betur en gulrófur. Haustnæpur
eru bragðbetri en venjulegar sumar-
næpur, seinvaxnari og geymast betur.
Eiga þær skilið að þeim sé gaumur
gefinn. Hör óx mun verr en í fyrra, en
er samt nothæfur. Haustspínat (eða
(Framh. á 4. siðu)
verulega hjálp í Austurálfu,
hafa þeir ekki talið sig þurfa að
taka eins mikið tillit til þeirraog
ella. Síðastliðið sumar varð það
samkomulag milli Breta og Jap-
ana, að Bretar lokuðu Burma-
brautinni fyrir vopnaflutninga
til Kínverja í næstu þrjá mán-
uði. Átti á þessum tíma að
reyna að ná samkomulagi um
ágreiningsmálin, en Japanir
hafa síðan ekki viljað sinna
þessum samningaumleitunum.
Hafa þeir vafalaust talið, að
Bretar þyrðu ekki að leýfa
vopnaflutninga um brautina
aftur, þar sem þeir hefðu ekki
einir bolmagn móti Japönum.
Nú hefir Churchill forsætisráð-
herra tilkynnt, að vopnaflutn-
ingur um brautina muni byrja
aftur, þegar þriggja mánaða
fresturinn er liðinn eða 17. þ. m.
Er talið víst, að Bretar geri
þetta í samráði við Bandaríkin
og muni tilætlun þeirra að
greiða fyrir vopnakaupum Kín-
verja. Kínverjar hafa undan-
farið ekki getað fengið vopn,
nema frá Rússum, því að allar
aðrar samgönguleiðir eru þeim
lokaðar.
Japönsk blöð hafa haft í hót-
unum við Breta seinustu dag-
ana, ef þeir leyfðu Kínverjum
vopnaflutninga um Burma-
brautina. Þykir því trúlegt, að
draga muni til stórtíðinda í
þessum málum á næstunni, því
að vegna vaxandi óánægju í
japanska hernum yfir því,
hversu seint gangi í Kínastyrj-
öldinni, muni stjórnin og hers-
höfðingjarnir fremur grípa til
örþrifaráða en að bíða veru-
legan álitshnekki.
Afstaða Bandaríkjanna til
þríveldasáttmálans markast
ekki eingöngu af því, sem er að
gerast í Austur-Asíu. Það veldur
Bandaríkj amönnum verulegum
áhuggjum, að í Suður-Ameríku
er mikið af Þjóðverjum, ítölum
og Japönum, sem fylgja heima-
þjóðunum að málum. Má telja
víst, að þríveldasamning-
urinn muni skapa aukna sam-
vinnu þessara þjóðarbrota í
Suður-Ameríku og getur sú
samvinna orðið mjög skaðleg
fyrir Bandaríkin. Má geta
þess í þessu sambandi, að
för spánska ráðherrans Suners
til Berlinar og Rómar vakti
mikla athygli í Bandaríkjunum.
Aðalástæðan til þess var ekki sú,
að Bandaríkj amenn óttuðust að
Spánn myndi gerast styrjaldar-
aðili, heldur myndu Þjóðverjar
(Framh. á 4. síðu)
Aðrar fréttir.
í ræðu, sem Churchill for-
sætisráðherra flutti i enska
þinginu á þriðjudaginn, upp-
lýsti hann, að frá styrjaldar-
byrjun til 5. þ. m. hefðu 8500
manns farizt og 13000 særst af
völdum loftárása Þjóðverja á
Bretland. Tjónið í London af
völdum loftárásanna svaraði til
þess, að með sama áframhaldi
þyrftu Þjóðverjar 10 ár til að
leggja helming borgarinnar í
rústir.
Churchill upplýsti í sömu
ræðu, að Þjóðverjar hefðu dreg-
ið saman skipakost, sem gæti
flutt 500 þús. hermenn til Eng-
lands á einni nóttu. Hann var-
aði við þeirri skoðun, að Þjóð-
verjar væru hættir við innrás-
ina, heldur mætti búast við
henni á hverri stundu. Hann
sagði, að í heimavarnarliðinu
væru nú 1.7 millj. manns, en
fasti herinn er þar ekki með-
talinn.
(Frartih. á 4. siðuj
w
A víðavangi
ER ÞETTA
„BÆND AVINÁTTAN" ?
Bóndi, sem kom nýlega á
ritstj ómarskrifstof u Tímans,
spurði á þessa leið: Hvernig er
öessu annars varið með afstöðu
íhaldsblaðanna til dýrtíðarinn-
ar? Þau munu ekki hafa minnst
á hana einu orði fyrr en verðið
hækkaði á vörum bænda. Þó
mætti ritstjórum blaðanna og
öllum öðrum vera ljóst, að sú
hækkun er ekki nema litill
hluti dýrtíðarinnar. Hvers
vegna þögðu blöðin meðan
erlenda varan var að hækka og
kaupmenn fengu auknar tekj-
ur af álagningunni, þar sem
hún reiknaðist af hærra verði
en áður? Hvers vegna þögðu
blöðin meðan flutningsgjöld-
in voru að hækka og sjó-
menn fengu stórauknar tekj-
ur og Eimskipafélag íslands
fékk aðstöðu til að raka saman
of fjár? Þetta hvorttveggja á
þó vissulega sinn stóra þátt í
dýrtíðinni. Hvers vegna nefna
íhaldsblöðin yfirleitt ekki dýr-
tíðina, nema í sambandi við
verðlagið á afurðum bænda?
Birtist hún þannig í verki
bændavináttan og bændaum-
hyggjan, sem Jón á Akri og aðr-
ir sveitariddarar íhaldsins hafa
svo mjög á orði?
HALDIÐ DÝRTÍÐINNI
í SKEFJUM Á KOSTNAÐ
BÆNDANNA!
Annar bóndi sagði við Tím-
ann: Ég sé það, að ihaldsblöðin
skrifa mikið um það þessa dag-
ana, að halda eigi dýrtíðinni í
skefjum. En ég sé þau ekki
minnast á aðra tillögu til úr-
lausnar á þvi máli en að lækka
verðið á afurðum bændanna.
Þetta virðist mér fullkomlega
lýsa þeim hugsunarhætti, að
bændur eigi að vera einskonar
þrælar launastéttarinnar. Þeir
eiga að strita og erfiða til þess
eins að launafólkið í bæjunum
geti fengið ódýrt kjöt og ódýra.
mjólk. Það á hins vegar ekkert
að hugsa um það, hvað bænd-
urnir bera úr býtum. Eftir þessu
burfum við bændur að muna,
þegar stjórnmálamennirnir
koma á biðilsbuxum til okkar
næsta vor.
ER ÞETTA LEIÐIN TIL AÐ
STÖÐVA FÓLKSFLÓTTANN ?
Þriðji bóndinn sagði: í vetur
birtust öðru hvorú hugleið-
ingar um það í ísafold, að
ekki þyrfti aðeins að stöðva
fólksflóttann úr sveitunum,
heldur þyrfti einnig að flytja
fólk úr kaupstöðunum í sveit-
irnar í stórum stíl. Satt að
segja finnst mér Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa nokkuð kyn-
legar hugmyndir um það,
hvernig koma eigi þessu til
leiðar. Hann berst nú harðlega
gegn því, að bændur fái verð-
hækkun á afurðum sínum, sem
er miklu minni en sú kaup-
hækkun, sem framleiðendur við
sjávarsíðuna hafa fengið.
Bændur eiga m. ö. 0. að njóta
miklu minni réttar en aðrir
framleiðendur. Heldur Sjálf-
stæðisflokkurinn, að það hvetji
fólk til að vera í sveitinni —
hvað þá heldur að það hvetji
fólk til að flytja úr bæjunum í
sveitina, — ef bændur eru settir
skör neðar en aðrir framleið-
endur?
FUNDIR Á
NORÐURLANDI
Framsóknarmenn boffa til
flokksfunda á Sauffárkróki
föstudaginn 18. október og
Blönduósi 19. október. Fund-
irnlr hefjast klukkan 4 síff-
degis.
Á fundunum mæta Hermann
Jónasson forsætisráffherra og
þingmenn Skagfirðinga.
Á KHOSSGÖTUM
Rjúpur alfriðaðar. — Hraðfrysting flatfiskjar. — Niðurskurðurinn í Skaga-
firði. — Kartöflutilraunir atvinnúdeildarinnar. — Aðrar tilraunir.