Tíminn - 12.10.1940, Side 4
392
TfMITCN, langardaginn 12» okt. 1940
98. blað
Faðir minn
Rósinkrans A. Rósinkransson
andaðist að heimili sonar síns í Stykkishólmi, aðfaranótt
11. þ. m.
F. h. mína og annara aðstandenda.
GUÐLAUGUR RÓSINKRANZ.
Kvenlögregluþ j ónar
Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar-
innar verða tveir kvenmenn ráðnir í
lögreglnliðið í Reykjavík. Umsóknir
ásamt meðmælum og öðrum upplýs-
ingum skulu sendar lögreglustjóran-
uin í Reykjavík fyrir 1. nóv. n. k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 11. október 1940.
AGIVAR KOFOED-llANSEN.
The World’s News Seen Through
the Christian Science Monitor
An International Daily Newsþaþer
is Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $12.00 Yearly, or $1.00 a Month.
Saturday Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
Address-
SAMPLE COPY ON REQUEST
tlR BÆNUM
Æskulýðsfundur í Gamla Bíó.
Helztu seskulýðsfélögin í Reykjavík
boða til almenns æskulýðsfundar f
Gamla Bíó á morgun. Hefst fundur
þessi kl. 2,30. Pélög þau, sem að fund-
inum standa, eru Glimufélagið Ár-
mann, Farfugladeild Reykjavíkur,
Knattspymufélagið Pram, Félag ungra
Framsóknarmanna, Heimdallur, í-
þróttafélag kvenna, íþróttafélag
Reykjavikur, Félag ungra jafnaðar-
manna, Kvenskátafélag Reykjavíkur,
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, Skáta-
félag Reykjavíkur, Knattspyrnufélagið
Valur og Ungmennafélagið Velvakandi.
Fundurinn hefst með því, að leikin
verða íslenzk þjóðlög, en síðan flytja
ræður Guðjón Baldvinsson, Þórunn
Magnúsdóttir, Jóhann Hafstein, Jón
Emil Guðjónsson og Erlendur Péturs-
son. Að loknum ræðum verða ályktan-
ir bomar fram til afgreiðslu. Með fundi
þessum á að marka sameiginlega af-
stöðu æskulýðsins í Reykjavík til hins
útlenda herliðs hér.
Samsæti.
Stefán Jóh. Stefánsson utanríkis-
málaráðherra hélt Vilhjálmi Þór og frú
samsæti í gærkveldi í viðurkenningar-
skyni fyrir störf hans sem fyrsta ræð-
ismanns íslands I Bandaríkjunum.
Esja.
Samkvæmt tilkynningu frá utanrík-
ismálaráðuneytinu er Esja nú komin
frá Petsamo til enski-ar eftirlitshafnar.
Óvíst er hversu lengi hún verður þar.
Afmæli.
Jóhanna Sigríður Guðmimdsdóttir,
Traðarkotssundi 3, veröúr 70 ára á
sunnudaginn. Jóhanna hefir verið
dugnaðarkona hin mesta, lífsglöð og
bjartsýn, þótt efnin hafi aldrei verið
mikil, og notið vinsælda allra, sem
henni hafa kynnst. Munu henni áreið-
anlega berast margar hugheilar árn-
aðaróskir á afmælisdag.nn. Þ.
Kvenlögregluþjónar.
Ríkisstjómin hefir ákveðið og lög-
reglustjórinn í Reykjavík auglýst, að
taka skuli tvo kvenlögregluþjóna í lög-
reglulið Reykjavikur.
Séra Ragnar Benediktsson
messar í fríkirkjunni á morgun kl. 5.
Sakadómarinn
í Reykjavík hefir óskað þess getið,
að upplýszt hafi við réttarrannsókn út
af nauðgun, sem talið var að brezkur
hermaður hefði ætlað að fremja á
stúlku einni á gatnamótum Njarðar-
götu og Hringbrautar aðfaranótt 19.
sept., að um slíkt eða tilraun til slíks
hafi ekki verið að ræða.
Leikfélag' Reykjavíkur
sýnir leikritið Loginn helgi, eftir W.
Somerset Maugham annað kvöld. —
Frumsýning var síðastliðinn miðviku-
dag fyrir fullu húsi, og fékk leikurinn
hinar beztu viðtökur.
Leiðrétting.
í grein G. J., Nýbreytni í verzlunar-
háttum, í síðasta þriðjudagsblaði, féllu
niður í prentun nokkur orð úr setn-
ingu. Málsgreinin leiðrétt er þannig:
Og gefur þar að líta helztu afurðir inn-
lendar til sjávar og sveita, þær sem bezt
eru fallnar til vetrargeymslu, svo sem
saltfisk allskonar, harðfisk, garðmeti,
kjöt og slátur.
Hreinar
léreftstnsknr
kaupir
Prentsmiðjan Edda
Lindargötu 1 D.
SYNGJUM OKKUR SAMAN!
Munum að hafa Vasasöngbók-
ina alltaf með okkur á allar-
Aukin harðstjórn
(Framh. af 1. siöu)
stúdentafélagið í Oslo hefir ver-
ið bannað og eignir þess gerðar
upptækar, enda þótt svo sé fyr-
irmælt í lögum félagsins, að
eignir þess skuli renna tihhá-
skólans, ef það hættir störfum.
Nokkuð er farið að bera á
Gyðingaofsóknum na2;ista og
hafa þeir fest upp viðvörunar-
spjöld á sumar verzlanir Gyð-
inga. Árangurinn hefir orðið
öfugur, því að þessar verzlanir
hafa síðan fengið stórum auk-
in viðskipti. Hefir almenningur
þannig mótmælt ofsóknum
nazista á greinilegan hátt. Hins-
vegar hafa verzlanir og aðrar
stofnanir, sem nazistar ráða
yfir, orðið fyrir margvíslegum
óþægindum. Viðskipti við þær
hafa minnkað, rúður verið
brotnar, skrifaðar á þær
skammir um nazista o. s. frv.
Nazistar hafa gert upptækar
eignir allra helztu stjórnmála-
manna Noregs eins og t. d. allra
ráðherra í Nygaardsvoldsstjórn-
inni, Hambros stórþingsforseta
og Mowinckels formanns vinstri
flokksins.
Þá er stjórn nazista byrjuð á
því, að „hreinsa til“ meðal em-
bættismannanna. Þeir, sem ekki
játa fyllstu undirgefni, eru
ýmist sviftir embætti eða gettir
í lægri embætti.
í Svíþjóð hefir það vakið
mikla gremju, að Thörnell, yf-
irhershöfðingi sænska hersi'ns,
irhershöfðingi sænska hersins
hefir þegið heiðursmerki frá
þýzku stjórninni. Göteborgs
Sjöfarts- och Handelstidning
hefir verið bannað um stundar-
sakir fyrir skrif sín um þetta
mál. Annað Gautaborgarblað
kemst svo að orði um þennan
atburð: Hvað eigum við að
hugsa um þann yfirhershöfð-
ingja, sem þiggur heiðursmerki
frá þjóð, sem hefir ráðizt með
her inn í Noreg og Danmörku?
Bræðrabönd okkar og þessara
landa eru svo sterk, að það, sem
gert er á hlut þeirra, er einnig
gert á hlut okkar.
Aðrar frétÉir.
(Framh. af 1. síðu)
sendir þangað aftur. Er þetta
talið svar við þriveldasamn-
ingnum. Bandaríkin hafa eng-
an sendiherra haft í Berlín síð-
an haustið 1938, er hann var
kvaddur heim til að mótmæla
Gyðingaofsóknunum, og engan
sendiherra í Róm frá þeim tíma,
er ítalir fóru í styrjöldina.
Sjálfstæðisdagur kínverska
lýðveldisins var haldinn hátíð-
legur síðastliðinn fimmtudag.
Chiang Kai Shek flutti ræðu,
þar sem hann lýsti yfir áfram-
haldandi baráttu Kínverja, unz
Japanir væru flæmdir úr landi.
Roosevelt forseti sendi Chiang
Kai Shek heillaóskaskeyti í til-
efni af sj álfstæðisafmælinu og
árnaði kínverska lýðveldinu
allra heilla. — í Kína og Ind-
landi hefir opnum Burmabraut-
sæti Chamberlains i brezku
stríðsstjórninni. Jafnframt hafa
Bevin verkamálaráðherra og
Kingsley Wood fjármálaráð-
herra fengið sæti í stríðsstjórn-
inni. Er hún nú skipuð fimm
íhaldsmönnum (Churchill, Hali-
fax, Beaverbrook, Anderson,
Wood) og þremur jafnaðar-
mönnum, (Attlee, Greenwood,
Bevin). John Anderson hefir
tekið við starfi Chamberlains
sem formaður leyndarráðs kon-
ungs, og hefir Herbert Morrison
verið tilnefndur innanríkis- og
öryggismálaráðherra i stað
Andersons. Samhliða Chamber-
lain hverfur Caldecote lávarð-
ur (hét áður Thomas Inskip) af
sviði stjórnmálanna og verður
Cranborne lávarður samveldis-
ráðherra í stað hans. Caldecote
verður hæstaréttardómari.
Cranborne var aðstoðarutan-
ríkismálaráöherra i tíð Edens og
var harður andstæðingur Cham-
berlainsstefnunnar í utanríkis-
málum. Fleiri þýðingarminni
breytingar hafa orðið á stjórn-
inni.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir i LANDSSMIÐJUNNI.
Á víSEavangi.
(Framh. af 1. síðu)
dagana kváðu vera svipuð þessu.
Páll hefir ekið þessa leið um
langan tíma og hlotið vinsældir
okkar, sem þurfum að ferðast
þarna á milli. Síðari ár annað-
ist hann leiðina einn og fannst
okkur það hin mesta hagsýni,
því að flesta dagana voru far-
þegarnir aðeins í einn bíl, en
annar bill við hendina, ef með
þurfti. En mér er sagt, að þetta
hafi breytzt með ráðherradómi
Ólafs Thors. Eruip. við þess
vegna að velta því fyrir okkur,
hvort þetta sé ein af sparnað-
araðferðum Ólafs Thors, eða
undanlátssemi við yfirgangs-
saman flokksbróður. En fólkið,
sem ferðast, hefir þarna fellt
sinn dóm og mun áreiðanlega
halda áfram að gera það.“
ALÞÝÐUBLAÐIÐ OG
TEKJUR SJÓMANNA.
Alþýðublaðið fékk nýlega geð-
vonzkukast, þegar á það var
bent með glöggum rökum, hve
hagur þeirra sjómanna, sem
störfuðu við samvinnuútgerð
eða höfðu hlutaskiptafyrir-
komulag, varð langbeztur á síld-
veiðunum í sumar. Alþýðublaðið
virðist ekki sjá önnur framtíð-
arúrræði fyrir sjómenn en vera
þjónar atvinnurekenda og þurfa
að standa í stöðugum kaup-
samningum og verkfallsbaáttu.
En þrátt fyrir þær fortölur eru
meiri líkur til þess, að sjómenn
kjósi að fá allt, sem þeir afla,
heldur en að gjalda fáum at-
vinnurekendum hluta af því,
hvort sem þeir heita Sjálf-
stæðis- eða Alþýðuflokksmenn.
Þeir vilja heldur vera sjálfstæð-
ir framleiðendur en þjónar.
Eymd Alþýðufl. er líka bezta
sönnun þess, að verkfallsstefn-
an er ekki eilíft úrræði. En þar
sem blaðið telur sig vera mál-
svara „sjávarbúa“, verður það
ekki skilið á annan hátt, en átt
sé við þær lífverur, sem í sjón-
um búa, t. d. þorska, hákarla,
grásleppna o. s. frv. Væntan-
lega eiga þessir „sjávarbúar"
ekkert skylt við Alþýðuflokkinn,
svo að hann af þeim ástæðum
þurfi að gerast málsvari þeirra.
Mnnið
að tilkynna afgreiðslunni flutn-
inga, til þess að komizt verði
hjá vanskilum á blaðnu.
Afgreiðsla TÍMATVS
Auglýsið í Tímaunm!
samkomur og samsæti.
arinnar vakið úiikla ánægju.
John Anderson hefir tekið
54
Robert C. Oliver:
Æfintýri blaðamannsins
55
Nú kom Bob, og bar Lucy í fanginu.
Hún var algjörlega máttlaus í faðmi
hans. Andlitið var náfölt — en hvað
hún er þó fögur — hugsaði hann mitt
í óttanum og reiðinni, sem sauð í hon-
um. — Ég legg hana á legubekkinn inni
í stofunni, sagði hann við lögxeglu-
þjóninn. Hún er svæfð með klóro-
formi eða einhverju þessháttar! Hlaup-
ið eftir lækni! Þér getið fundið hann
í vasabókinni yðar! Sá okkar, sem nær
fyrr í síma, hringir til Scotland Yard!
Bob náfölnaði og beit á vörina.
Skrínið! Það lá í netinu í bílnum hans,
rétt fyrir augunum á föntunum.
Líkurnar voru litlar til þess, að þeir
sæju það ekki — — tæplega einn á
móti þúsund.
Bob lagði stúlkuna varlega í legu-
bekkinn. Svo hljóp hann af stað, eftir
að hafa litið enn einu sinni á fölt og
hreyfingarlaust andlit hennar. Lög-
regluþjónninn kom á eftir honum eins
og hlýðið barn.
Tæplega tíu mínútum seinna var
bæði læknir og menn frá Scotland Yard
komnir á staðinn. Læknirinn fór strax
að athuga Lucy. Bob náði í bil og aðrir
fóru af stað í ýmsar áttir að leita að
hinum litla rauða bíl Bob Hollman’s.
Skömmu seinna, þegar Bob var sjálf-
ur kominn aftur úr leiðangri sínum,
fékk hann að vita, að Lucy hefði smátt
og smátt fengið meðvitund og verið
flutt í sjúkrabíl í sjúkrahús. Svo kom
fregn um það, að bíll Bob væri fundinn
í skurði nokkrar mílur frá London.
Bob fékk samstundis annan bíl og
ók þangað. Það fyrsta, sem hann
gáði að, var skrínið. En það var, eins
og hann hafði búizt við, allt á bak og
burt.
Bob Hollman hafði tapað þessum
leik. Skrínið var áreiðanlega í höndum
þjófanna — sem „urðu að ná í það hvað
sem það kostaði." Mundi Lucy nokkurn-
tíma fá það aftur------? Líkurnar voru
ákaflega litlar — — og Bob Hollman
bölvaði hátt og í hljóði yfir. því, að
hann skyldi hafa verið svo ógætinn
að skilja það eftir í bílnum.
Það var vegna Lucy------en þó einn-
ig af öðrum ástæðum, sem enginn ann-
ar en hann hafði hugmynd um. Hann
grunaði nefnilega, að skrínið hefði
inni að halda miklu þýðingarmeiri
hluti en jafnvel Lucy vissi um.
VI.
Þegar Lucy vaknaði til fullrar með-
vitundar í sjúkrahúsinu, sat Bob Holl-
man við hliðina á rúminu hennar.
Með sjálfum sér fannst honum hann
hafa fullan rétt til þess --og starfs-
■*°*GAMLA BÍÓ~*
IRENE
Amerísk söngva- og gam-
anmynd, gerð eftir sam-
nefndum söngleik eftir
Tierney & McCarthy.
Aðalhlutv. leika:
ANNA NEOGLE.
RAY MILLAND,
ROLAND YOUNG,
Og
BILLIE BURKE.
Sýnd kl. 7 og 9.
NÝJA BtÓ°—
Þegarregníðkom
Amerísk stórmynd, gerð
eftir hinni heimsfrægu
samnefndu skáldsögu eftir
Louis Bromfield.
Aðalhlutv. leika:
MYRNA LOY,
TYRONE POWER,
GEORGE BRENT.
Sýnd kZ. 7 og 9.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
,,Lojíiini helgi“
sjónleikur í þrem þáttum, eftir
W. SOMERSET MAUGHAM.
Sýning í kvöld kl. 8.
Affgöngumiffar seldir eftir klukkan 1. — Börn fá ekki affgang.
Tilkynning
til bifreiðaeigenda.
Samkvæmt 3. gr. reglugerffar frá 24. júní 1937 um
gerff og notkun bifreiffa,. er hérmeff lagt fyrir alla bif-
reiffaeigendur í Rykjavík, sem enn hafa ekki sett lög-
boffin umdæmistölumerki á bifreiðar sínar, aff gera þaff
strax. Umdæmistölumerkin eru afhent hjá bifreiffa-
eftirliti ríkisins.
Brot gegn þessu varða sektum frá 10—500 krónum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. október 1940.
AGIVAR KOFOED-HANSEIV.
Útsölur
vefnaðarvöruverzlana
Aff gefnu tilefni er athygli vakin á auglýsingu frá atvinnu-
og samgöngumálaráðuneytinu frá 20. desember 1933 um útsölur
verzlana.
Samkvæmt auglýsingunni er affeins heimilt aff halda út-
sölu (skyndisölu) á vefnaffarvöru og öffrum þeim vörum, er vefn-
affarvöruverzlanir hafa á boffstólum, á tímabilinu frá 10. janúar
til 10. marz og frá 20. júlí til 5. september ár hvert. Útsölu má
verzlun halda annaðhvort tvisvar á ári og standi hún þá yfir í
mesta lagi einn mánuff í einu, effa einu sinni á ári og standi þá
eigi lengur en tvo mánuffi.
Brot gegn þessu varffa sektum, allt aff 1000 krónum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík 11. október 1940.
AGIVAR KOFOED-HANSEIV.
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekkl til eigin þarfa allar ETÚÐIR
og SKINN, sem falla til á heimilum þeirra, ættu þeir
að biffja KAUPFÉLAG sitt að koma þessum vörum
f vcrff. — SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur
N AUTGRIPAHÚÐIR, HROSSIIÚÐIR, KÁLFSKINN,
LAMBSKINN og SELSKINN tU útlanda OG KAUPIR
ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUNAR. — NAUTGRIPA-
HÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN er bezt aff
salta, en gera verffur þaff strax aff lokinni slátrun.
Fláningu verffur aff vanda sem bezt og þvo óhreinindi
og bióff af skinnunum, bæffi úr holdrosa og hári, áður
en saltað er, Góff og hreinleg meffferð, á þessum vörum
sem öðrum, borgar sig. —
TU brúðargjafa
1. flokks handslípaður KRISTALL
og ekta KUNST-KERAMIK
K. Einarsson & Björnsson.