Tíminn - 23.11.1940, Side 1

Tíminn - 23.11.1940, Side 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. í FORMADÚk BLAÐSTJÓRNAR: | JÓNAS JÓNSSON. J ÚTGEFANDI: } FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: . EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hi. Símar 3948 og 3720. 24. árg. Reykjavík, laugardagiim 23. nóv. 1940 116. blað Rannsóknir i þágu bufjar- ræktariunar Vísíndasjóður Athyglisverð tillaga um ráðstöfun öl- tollsins Tilraunaráð búf j árræktar- innar hefir borið fram athyglis- verða tillögu um öflun fjár til búfjárræktarrannsókna og ann- arrar vísindastarfsemi, sem rík- ið annast. Segir svo um þessa tillögu í greinargerð tilrauna- ráðsins: „Féð er afl þeirra hluta er gera skal, og fyrsta skilyrðið til þess að mögulegt sé að leysa þau verkefni, sem hér kalla að og krefjast úrlausnar, er það, að fé fáist til framkvæmdanna. Tilraunaráði búfjárræktar er kunnu'gt um, að á næsta ári muni ríkissjóði áskotnast all- mikil upphæð, eða 300.000— 500.000 kr., sem ekki var gert ráð fyrir, er fjárlög fyrir 1941 voru samin og samþykkt, og því ekki ætlað til ákveðinna fram- kvæmda. Hér er átt við toll af sterku öli, sem nú er farið að framleiða samkvæmt bráða- birgðalögum. Víða annars- staðar, t. d. i Danmörku, er tekjum, sem fást á svipaðan hátt, varið til eflingar visinda og mennin'garmála. Hér á landi eru allar vísindarannsóknir enn í bernsku, okkur til ómetanlegs tjóns, bæði menningarlega og fjárhagslega. Það er því enn meiri þörf fyrir það hér en annars staðar, að verja slíku fé til vísindarannsókna, og reyna með þVÍ að hefja atvinnuveg- ina til meira gengis og skapa þeim traustan starfsgrundvöll. Við viljum því leggja til að öl- tollinum verði öllum varið til vísindarannsókna i þarfir at- vinnuveganna, og er þá þar í falið rannsóknir, er leitt gætu til bættra lifnaðarháttu. Yrði síðar hætt að framleiða sterkt öl í larídinu, þarf Alþingí á annan hátt að afla sjóðnum tekna með lögum. Við teljum, að nauðsyn beri til þess, að sömu menn skipti fénu um margra ára skeið, milli hinna einstöku deilda er hér koma til greina, eins og deilda Atvinnudeildar Háskólans, til- Taunastöðva, bændaskóla og einstakra manna, er kynnu að verða falið að hafa sérstakar rannsóknir og tilraunir með höndum.“ Tilraunaráðið bendir síðan á, hvernig það telur, að nefnd sú, sem ætti að úthluta fénu, yrði bezt skipuð. Ætlast það til, að þar verði m. a. fulltrúi frá rík- isstjórrtt tilraunaráðum, fiski- deild, iðnaðardeild og fleiri að- ilum. Tillögur tilraunarátísins Tilraunaráð búfjárrækt- arinnar hefir komið saman til fundar og gert tillög- ur um rannsóknarverkefni þau, er það telur að búfjár- ræktinni sé brýnust nauð- syn á að innt verði af hönd- um næstu ár. í tilraunaráði þessu eiga sæti Páll Zóphóníasson ráðunautur, Halldór Pálsson ráðunautur, Níels Dungal prófessor, Pétur Gunnarsson búfræðikandidat og Björn Símonarson kennari. Héfir tíðindamáður Tímans fengið þessa frásögn af störfum búfjárræktarráðsins og tillögum hjá formanni þess, Páli Zóphón- íassyni: — Tilraunaráðið leggur til, að rannsóknir í þágu búfjárrækt- arinnar í landinu verði bæði framkvæmdar við búnaðarskól- ana og búnaðardeild atvinnu- deildar háskólans. Af verkefn- um þeim, sem búnaðardeildin leysi af hendi, leggur það til að haldið verði áfram rannsókn búfjársjúkdóma, svo sem garna- veiki, mæðiveiki, lambaláts, kýlapestar, lungnapestar, lungnaorma, bráðdauða í kúm, bráðapestar í sauðfé, lamba- blóðsóttar og ýmissa sjúkdóma í refum, og hafin rannsókn á fjárkláða, Hvanneyrarveiki, riðu, haustblindu í sauðfé, bandormum í hundum og sauð- fé og fjöruskjögri í unglömbum. Ennfremur hafi búnaðardeildin með höndum vítamínrannsókn- ir, framleiði bóluefni og „ser- um“ til varnar bráðapest, lungnapest og lambablóðsótt og framleiði og seljí önnur reynd varnarlyf gegn búfjársjúkdóm- um eða til lækninga á þeim. í öðru lagi hafi búnaðardeild- in með höndum margskonar fóðurtilraunir, er leiði í ljós áhTif fóðurgjafar á vænleika dilka, frjósemi sauðfjár, kjöt- gæði og bráðþroska, þroska kúa og hesta og notagildi ýmissa Fundahöld í Rang- árvallasýslu Framsóknarfélögin í Rangár- vallasýslu halda aðalfund sinrí í samkomuhúsinu í Fljótshlíð 1. desember næstkomandi. Fund- urinn hefst kl. 3 e. h. Á fundinum mætir Eysteinn Jónsson viðskiptamálaráðherra, ásamt fleiri flokksmönnum úr Reykjavlk, og fiytur ráðherrann framsöguræðu á fundinum. Á eftir fundinum verður skemmtisamkoma með ræðu- höldum, söng og dansi. Félag ungra Framsóknar- manna vestan Rangár heldur fund í Þykkvabæ að kvöldi laug- ardagsins 30. þ. m. og verður skemmtun á eftir. í kvöld heldur Félag ungra Framspknarmanna undir Eyja- fjöllum fund. og skemmtun á eftir. fóðurtegunda handa hestum og fé með beit. Ennfremur verði gerðar meltanleikarannsóknir á fóðri, rannsakað hvort ekki muni vanta ýms efni í fóður bú- fjárins, svo að það skili minni afurðum en ella, og leitt í ljós hvernig bezt verði hagnýtt inn- lent fóður handa nytlágum kúm. Jafnfranit vill tilraunaráð láta hefja kynbótatilraunir með all- ar helztu tegundir búfjár, sauð- fjár, nautgripa og hesta, og reyna að samein'a verðmætustu eiginleikana og verði reynt að nota frjódælingu til að út- breiða beztu kynin. Loks verði einnig gerðar tilraunir um hey- verkunaraðferðir. • Tilraunaráðið telur, að starfs- skilyrði búnaðardeildarinnar séu nú með þeim hætti, að fæst- um þessara verkefna sé hægt að sinna. Leggur það til, að rík- ið eignizt tvær jarðir í grennd við Reykjavík, sem það léti bún- aðardeildinni í té. Verði á ann- arri jörðinni komið upp til- raunabúi og þar gerðar ýmsar vísindalegar tilraunir um fóðr- un búpenings og kynbætur. En á hinni verði einkum fjallað um búfjársjúkdómana, aldar upp skepnur til „serum“-fram- leiðslu o. s. frv. Bendir tilraunaráðið á hvaða þýðingu þær rannsóknir hafa haft, sem þegar hafa verið gerð- ar. á búfjársjúkdómum. Til dæmis má geta þess, að þótt iðraormar í sauðfé hafi ekki verið rannsakaðir til neinnar hlítar, þá sé þó fundið við þeim lyf, sem tryggt hafi betri þrif fénaðarins og minni fóður- eyðslu. Óefað á þetta lyf tals- verðan þátt í því, að dilkar þeir, sem slátrað er í landinu gefa af sér 700 smálestir meira af kjöti, heldur en fékkst áður en farið var að nota ormalyf. Til að bera uppi þann kostn- að, sem af þessu hlýzt, leggur tilraunaráðið til, að stofnaður verði vísindasjóður, er í renni (Framh. á 4. síðu) »Ef við aðeins værum lausír við hvern einasta Þjóðverja« Hlutskípti Danmerkur í hinni »nýju Evrópu« Þjóðverja * Eitt fyrsta verk Þjóðverja eftir hernám Danmerkur var að setja dönsku blöðin undir strangt eftirlit, Þau geta því ekki sagt annað en það sem Þjóðverjum er þóknanlegt. Til þess að halda almenningi vakandi og láta hann hafa sannar fregnir af því, sem raun- verulega er að gerast, hefir ver- ið tekinn upp sá siður, að dreifa út vélrituðum smámiðum með slíkum upplýsingum og áskor- unum til fólks um að fylkja sér fast um sjálfstæði og þjóðar- heiður Danmerkur. Miðum þessum er laumað í hendur fólks í strætisvögnum, á götum úti o. s. frv. og-lendi þeir í réttum höndum, halda þeir göngu sinni áfram. Þjóðverjum er vitanlega orðið kunnugt um þessa starf- semi og munu hafa fullan hug á, að uppræta hana. Mun þeim, sem verða uppvísir að dreifingu slíkra miða, reynast þýðingar- laust að biðja um grið. Tíminn hefir átt þess kost, að sjá einn slíkan miða. Var hon- um laumáð i lófa manns í stræt- isvagni í Kaupmannahöfn. Hef- ir Tíminn fengið hann til birt- ingar, þar sem mörgum mun þykja fróðlegt að kynnast efni hans. Byrjar hann á vísum i þeim, sem fara hér á eftir bæði á frummálinu og í lauslegri þýð- ingu: Dejlige Danmark með skovklædte Kyster, blot vi var fri for hver eneste Tysker, borte er Tryghed, og borte er Ro, borte er Freden hvor Tyskerne bo. Dejlige Danmark med Köer og Grise, alt hvad du har, kan Tyskerne spise, nu skal de höste, i hvad vi maatte saa, A. KII?,OSSa-ÖTTT3VÆ Haustmarkaður KRON. — Refasýningar. — Merking refa. — Nýjar vélar hjá Grænmetisverzluninni. — Aðsókn að Sundhöllinni. Tíminn hefir aflað sér upplýsinga um haustmarkað Kron á síðastl. hausti, en það má óhikað telja hann mjög merki- lega nýbreytni í verzlunarmálunum. Haustmarkaðurinn var opnaður 28. september. Þar voru aðeins seldar inn- lendar vörur svo sem hrossakjöt, síld, saltfiskur, riklingur, kál o. fl. Sérstak- ur maður var ráðinn til að salta hrossa- kjötið. Hafði hann fengizt við söltun hrossakjöts mörg undanfarin haust. Þegar markaðurinn hófst var lagður þar fram smápési, þar sem skráðar voru leiðbeiningar um matreiðslu síld- ar og hrossakjöts, og fengu viðskipta- mennirnir pésa þennan ókeypis. Fyrstu daga markaðarins virtust bæjarbúar ekki geta metið hrossakjötið rétt, enda hefir neyzla þess verið sáralítil hér undanfarið, Sunnudaginn 6. október var því öllum bæjarbúum gefinn kost- ur á að bragða á ýmsum réttum, sem búnir voru til úr hrossakjöti, og komu þá um þrjú þúsvmd manns. Þetta hafði þau áhrif, að viðskiptin meira en tvö- földuðust. Þegar markaðurinn hætti laugardaginn 9. nóv. hafði verið selt fyrir rúmlega 100 þús. kr., þar af nam hrossakjötssalan % hlutum. Voru alls seld um 600 hross. Tilgangur markað- arins var sá, að útvega neytendum vörur með sem minnstum milliliða- kostnaði. Náðist ágætur árangur í þeim efnum, eins og sjá má líka á samanburði á verðlagi á markaðinum og annars staðar í bænum. Vegna þess, hve salan varð mikil, varð þó ekki halli á markaðinum. Má óhætt fullyrða, að KRON hafi með haustmarkaðinum unnið merkilegt starf, bæðl fyrir neyt- endur og bændur. Neytendum voru út- vegaðar ódýrari vörur en annars staðar voru fáanlegar og bændum var útveg- aður markaður fyrir vöru, sem áður var lítt seljanleg. f t t í haust verður I minna lagi um refa- sýningar. Verður þó til þeirra efnt á nokkrum stöðum, og þrjár sýningar eru þegar afstaðnar. Var hin fyrsta haldin í Stykkishólml laugardaginn 16. nóv- embermánaðar. Alls voru þar sýnd 69 dýr. Fengu 40 þeirra fyrstu verðlaun, 18 önnur og 9 þrlðju verðlaun, en 2 hlutu enga viðurkenningu. í Borgar- nesi var refasýning 19. nóv. Voru sýnd þar um 50 dýr, en ekki hefir Timlnn enn haft af þvi fregnir, hvemig verð- laun féllu. Á Lundi í Axarfirði var sýn- ing þann 21. mánaðarins. Þrjár eða fjórar refasýningar verða haldnar inn- an skamms. Á morgun verður sýning hér f Reykjavík og fer hún fram í húsa- kynnum Sláturfélags Suðurlands. Hinn 1. desember verður sýning við Ölfus- árbrú óg 4. desember á Hvammstanga. Vera má, að Strandamenn haldi þá litlu siðar refasýningu á Hólmavik, en þó mun þvi ekki til lykta ráðið enn. Á öllum sýningum mun H. J. Hólmjám loðdýraræktarráðunautur dæma um dýrin, nema í Axarfirði. t t t Elns og venja er tll fer merklng refa fram í haust. Er þegar búið að merkja refina allvíða, þótt Loðdýrafélaginu hafi enn litið borizt af skýrslum. Á Austurlandi hafa dýr ekki verlð merkt enn sem komið er. Til þess að koma betra skipulagi á félagsskap loðdýra- eigenda og létta kostnað við refamerk- ingamar var fyrirhugað að stofna fé- lagsdeildir um land allt, þar sem loð- dýrarækt er stunduð á annað borð. Áttu deildir þessar að sjá um refa- merkingarnar i samráði við félags- stjóm. Þessum deildarstofnunum hefir ekki enn verið komið á nærri því al- staðar, en þó hefir því verið komið svo fyrir I ár, að héraðsmenn amiast merk- ingamar. Er það mun kostnaðarminna heldur en að senda sérstaka merkinga- menn langleiðis, jafnvel landshoma á milli. r r t Grænmetisverzlun ríkisins hefír ný- lega fengið frá Ameríku tvær vélar til hreinsunar og stærðarflokkunar á kart- öflum. Sú vélin, sem annast hreinsun- ina, hefir þegar verið tekin til notkunar og gefst vel. Kartöflunum er mokað upp í annan enda vélarlnnar, en í þeim hluta hennar em allmörg gúmmfkefli með gámðu yfirborði. Þegar vélin er i notkun, snúast kefli þessi og núa alla mold og óhrelnindi af kartöflunum. Kartöflurnar færast smám saman fram eftir vélinni, unz þær falla i poka, sem festir em við hinn enda vélarinnar. til Gengæld gav de os Mundkurv paa. Dejlige Danmark nu svinder den Sommer, hvordan skal det gaa i den Vinter, der kommer, Danmark du havde kun Fred i dit Sind. Freden gik ud, da Tysken gik ind. Yndislega Danmörk með skógi þaktar strendur! Ef við aðeins værum lausir við hvern einasta Þjóðverja. Þar sem Þjóðverjar eru, er úti um öryggi, úti um náðir, úti um friðinn. Yndislega Danmörk með kýr og grísi! Allt, sem þú átt, geta Þjóðverjar lagt sér til munns. Nú munu þeir uppskera það, sem við höfum orðið að sá. Þeir múlbinda okkur í staðinn. Yndislega Danmörk! Nú hall- ar sumri. Hvað mun gerast á þeim vetri, er í hönd fer? Dan- mörk! í hug þér ríkti friðurinn einn. Friðnum lauk, þegar Þjóðverjar komu. Eftir vísunum kemur stutt klausa, sem hljóðar þannig 1 lauslegri þýðingu: Scavenius utanríkismála- ráðherra hefir eftir viðræðurn- ar í Berlín lagt til að þingið samþykkti þá skilmála, sem greindir eru hér á eftir. Fyrir atbeina konungs og ríkisstjórn- ar hefir þessi tillaga aldrei komið til umræðu í þinginu. Almenningi þarf að verða þetta kunnugt til þess að geta dæmt réttilega hinn danska utanríkismálaráðherra, en til þess að það geti orðið þarf þetta að ganga í afriti frá manni til manns, og er hér með hvatt til þess, að það sé gert. 1. Samræming dansks og þýzks atvinnu- og viðskiptalífs (Dansk-Tysk Erhvervsfælles- skap). 2. Dansk-þýzkt tollbandalag. Þýzk tollaákvæði. Þýzkaland innheimtir tollana, sem síöan skiptast eftir íbúafjölda. 3. Myntbandalag. Ríkismark- ið verður gjaldmiðill Danmerk- ur. 4. Þýzkir ríkisborgarar fá sama rétt og danskir ríkisborg- arar í Danmörku. 5. í Danmörku verður sett stjórnarskrá, sem byggist á samstarfi atvinnustéttanna undir forystu ríkisins (korp- orativ Forfatning). 6. Þýzkaland annast fyrir Danmörku alla samninga, sem eru stjórnmálalegs- eða við- skiptalegs eðlis, (sendiherrar og ræðismenn). 7. Danmörk ^egir upp öllum verzlunarsamningum sínum. 8. Samningur þessi er óupp- segjanlegur af Dana hálfu. — Meira segir ekki á miða þess um. Margt bendir til þess, að hér muni vera rétt frá skýrt. Hið nýja skipulag, sem Þjóðverjar telja sig vilja grundvalla í Ev- rópu, mun einmitt vera fólgið í því, að Þjóðverjar fái slík völd yfir smáþjóðunum og þeir myndu fá yfir Dönum, ef að þessum skilmálum væri gengið. Aðrar fréttir. Koritza, aðalbækistöð ítala á norðurvigstöðvunum og stærsta borg Albaníu, féll í hendur Grikkjum 1 gær eftir harða bar- daga. Hefir þessi sigur skapað Á Þessari lelð þeirra gefst kostur á að mikinn fögnuð í Grikklandi. ít- (Framh. á 4. stílu) ' (Framh. á 4. siðu) Á viðavangi FJÁRSÖFNUN FYRIR HÚS- MÆÐRASKÓLA f REYKJAVÍK. í tilefni af þvi, að hin veg- lega Matthíasarkirkj a á Akur- eyri er að verulegu leyti byggð fyrrí samskotafé, spurði Akur- eyringur einn þekktan mann hér í bænum, hvort ekki væri hægt að reisa eitthvert stór- hýsi hér með svipuðum hætti. Reykvíkingurinn varð fyrst þögull en svaraði siðan: Hér getur næstum hver einstakur byggt hús fyrir 100 þúsund kr., en við getum ekki í sameiningu byggt hús fyrir svo mikla upp- hæð. — Þessi ummæli eru býsna harður dómur um samvinnu- hæfni og fórnfýsi Reykvíkinga, en því miður að miklu leyti réttur. Hér vantar margar hin- ar nauðsynlegustu sameiginleg- ar byggingar eins og t. d. gagn- fræðaskólahús, iðnskólahús, húsmæðraskólahús svo aðeins séu nefnd nokkur dæmi við- komandi fræðslumálunum. Á næstunni mun fást veigamikil sönnun fyrir því, hvort. Reyk- víkingar telja það ekki sóma sinn að breyta um stefnu í þessujn málum. Ýmsar máls- metandi konur í bænum munu hafa hug á því, að koma hér upp góðum húsmæðraskóla, en stærsta átakið, sem þær geta gert í þessum efnum, er vitan- lega það, að safna fé til fram- kvæmda eins og kynsystur þeirra annarsstaðar á landinu hafa gert. Þegar þær hafa þann- ig undirbúið málið ætti ekki að þurfa að efast um stuðning bæjarins og ríkieins. Þess ber fastlega að vænta, að umræddri málaleitun þessara áhuga- kvenna verði svo vel tekið, að Reykvíkingar þurfi ekki að liggja undir því ámæli, að þeir sýni minni áhuga og fórnfýsi en aðrir landsmenn í þessum efnum. ÉITT OG SAMA TÓBAKIÐ. Kommúnistar hafa verið að halda þing hér í bænum. í ræðu, sem Brynjólfur Bjamason hefir haldið þar og birt er í komm- únistablaðinu, kemur greinilega fram að hann telur það eitt stærsta átakið í áróðursstarfi kommúríista að ginna ýmsa menn til samstarfs við sig um bókaútgáfu, sem að sumu leyti gefi út góðar bækur og að sumu leyti kommúnistisk áróð- u'rsrit. Þannig geti hinn kom- múnistiski áróður náð mestri útbreiðslu. Brynjólfur telur þvi Þjóðviljann, Rétt, Mál og Menn- ingu, Arf íslendinga, Ríki og bylting, sögu Kommúnistaflokks Sovétríkjanna og rit Gunnars Benediktssonar eitt og sama tóbakið. Honum farast orð á þessa leið: „Á menningarsvið- inu höfum við þó nokkru áork- að síðan flokkurinn var stofn- aður. Þar er nátúrlega stærsta afrekið útgáfa Þjóðviljans og blaða okkar, sem hefur kostað svo mikið átak, að það hefur oft tekið upp alla okkar krafta, fjárhagslega og andlega. Rétt- ur er nú að byrja að koma*út aftur reglulega, og vona ég að geti orðið áframhald á því, og að með nýja fyrirkomulaginu höfum við frekar sniðið okkur stakk eftir vexti. Eitt hið allra veigamesta á þessu sviði er báttur sósíalistanna í starfi Máls og menningar og útgáfu Arfs íslendinga, — þýðingu beirra árangra, er þar hafa náðst, má bezt marka af afstöðu Jónasar Jónssonar. — Við höfum getað komið út „Ríki og bylting“ Lenins í íslenzkri þýðingu, gallinn er bara sá, hvað sú sígilda bók er lítið not- uð af félögunum, þar verður að verða breyting á. Nú vonum við að geta komið út „Sögu Komm- únistaflokks Sovétríkjanna“, og verður bráðum byrjað að safna áskrifendum, þá verðum við að duga vel.“ —

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.