Tíminn - 23.11.1940, Síða 4
164
TfMPnV, langardagiim 23. móv. 1940
116. blað
tR BÆIVUM
Akureyrarför forsætisráðherra.
Forsætisráðherra flaug til Akureyrar
síðastliðinn sunnudag til að vera við-
staddur vlgslu Matthíasarkirkju, sem
fór fram síðar um daginn. Var lagt af
stað héðan i slæmu veðurútliti, en ferð-
in gekk samt að óskum. Um kvöldið sat
forsætisráðherra samsæti, sem haldið
var í tilefni af kirkjuvigslunni og flutti
hann þar ræðu. Forsætisráðherra
dvaldi tvo næstu dagana á Akureyri og
heimsóttí hann m. a. menntaskólann,
en þar hefir hann verið nemandi. Auk
þess fiutti hann erindi á fundi fram-
sóknarfélaganna og setti þjóðmálanám-
skeið, sem þau halda. Á miðvlkudaginn
fór hann með annari flugvélinni áleiðis
tii Reykjavíkur. Var veðurútlit þá
ískyggilegt, enda lenti flugvélin í kaf-
aldi og varð að lenda á Borðeyri. Kom
forsætisráðherra hingað til bæjarins
með flugvélinni næsta dag.
Skagfirðingafélagið í Reykjavík
hélt nýlega aðalfund sinn í Odd-
fellowhöllinni. Á fundinum skýrði for-
maður frá starfsemi félagsins á hinu
liðna starfsári. Hafði félagið stutt tvö
þýðingarmikil menningarmál heima i
héraðinu, hina myndarlegu sundlaugar-
byggingu í Varmahlíð og skógrækt i
Skagafirði. Á fundinum fóru fram
stjórnarkosningar. í stjóm voru kosn-
ir: Páll Briem bankamaður, Ólafur Jó-
hannesson lögfræðlngur og dr. Broddi
Jóhannesson. Fyrir voru í stjóminni
Magnús Jónsson prófessor og Pétur
Jónsson bókari. Stjómin hefir skipt
verkum þannig, að Magnús Jónsson er
formaður, Pétur Jónsson gjaldkeri og
Ólafur Jóhannesson ritari. Félagið mun
í vetur, eins og að undanförnu, halda
uppi kynningarstarfsemi meðal Skag-
firðinga, sem dvelja hér í bænum. Ráð-
gert er að skemmtifundur verði hald-
inn í byrjun næsta mánaðar.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síöu)
alska herstjórnin viðurkennir
ósigurinn og segir að tveimur
herfylkjum (30—40 þús. her-
mönnum) hafi verið skipað að
hörfa frá Koritza til nýrra
varnarstöðva. Jafnframt hóta
ítalir ógurlegri hefnd.en Grikkir
sækja fram undir kjörorðinu:
Við fleygjum þeim í sjóinn.
Grikkir hafa einnig sótt fram á
suðurvígstöðvunum og eru þar
komnir 1 Albaníu. Er nú hvar-
vetna barizt á albanskri grund.
Öldur
Leikfélag Reykjavíkur sýndi í
gærkvöldi leikritið Öldur eftir
séra Jakob Jónsson. Er það í
fyrsta sinn, sem það er leikið
hér á landi. í Canada hefir það
verið leikið og fengið þar ágæt-
ar viðtökur.
Ef dæma má af viðtökunum
í gærkvöldi, þá verða þær einn-
ig góðar hér. Að leikslokum ætl-
aði lófatakinu seint að linna,
og var höfundurinn kallaður
fram hvað eftir annað og hyllt-
ur með blómagjöfum og al-
mennum fögnuði leikhúsgesta.
Um leikritið og meðferð leik-
endanna á hinum ýmsu hlut-
verkum mun verða skrifað nán-
ar í Tímann seinna. En óhætt
er að fullyrða, að leikhússgestir
urðu ekki fyrir vonbrigðum. En
einna bezt þóttu mér Gunn-
þórunn og Brynjólfur leika.
Gunnþórunn skildi auðsjáan-
lega vel hlutverk sitt og klæddi
það lífi og sál, þótt hún hefði
mátt kunna nokkru betur text-
ann í byrjuninni. Og Brynjólf-
ur lék af sinni alkunnu snilld,
en hefði þó þurft að ráða öllu
betur við æskufjör sitt undir
kufli hins aldna sjómanns, Ég
erviss um að fólk skemmtir sér
vel við að horfa á „Öldur“ og
má þá ekki sízt ráða sjómönn-
unum til þess að fara í leikhús-
ið, þegar þær eru sýndar. Gam-
an og alvara hversdagslífsins
eru ofin saman í viðfelldinn bún
ing og göfgandi undirstraumur
eykur á gildi leiksins. Og þó að
það sé skemmtilegt að sjá góða
leiki erlendra höfunda, þá er
þó eins og eitthvað sé við-
kvæmara og nálægara okkur ís-
lendingum sjálfum, þegar efnið
er tekið mitt á meðal vor.
Og fögnuðurinn verður jafn-
vel ennþá einlægari fyrir það,
að „öldurnar" hafa nú borið
höfundinn aftur heim að ætt-
jarðarströnd, eftir margra ára
starf meðal frænda vorra í
Vesturheimi. V. G.
Anthony Eden, Leopold Am-
ery og fleiri brezkir ráðherrar
hafa flutt ræður seinustu dag-
ana, þar sem þeir hafa látið svo
mmælt, að það sé engan veg-
ínn útilokað, að Þjóðverjar
reyni að gera innrás í Bretland
í skammdeginu. Þjóðverjar hafi
stöðugt mikinn herafla í inn-
rásarbækistöðvunum svoköll-
uðu og draga þangað aukinn
skipakost. Amerísk blöð segja,
að það sé ekki ólíklegt, að Þjóð-
verjar reyni að gera innrásina í
vetur og liggi til þess þrjár á-
stæður: Andúðin í hernumdu
löndunum magnist stöðugt og
muni halda áfram að aukast
meðan Bretar séu ósigraðir,
þýzka þjóðin sjálf sé farin að
ókyrrast og loks óttist foringjar
Þýzkalands, að ef styrjöldin
dragist til vorsins, muni Banda-
ríkin skerast í leikinn.
stjórnarinnar við þeim orðrómi,
að Japanir séu að hugsa um að
bjóða hagfelldari friðarskilmála
en þeir hafa boðið áður.
Antonescu forsætisráðherra
Rúmena er nú staddur í Berlín
og hefir hann látið Rúmena
gerast aðila að þriveldasamn-
ingnum, líkt og Ungverjar hafa
áður gera. Forsætisráðherrum
Slóvakíu og Búlgaríu hefir ver-
ið boðið til Berlínar og munu
Þjóðverjar ætla sér að fá þessi
ríki til að gerast einnig aðilar að
þríveldasamningnum. Þessi
undirskrift smáríkjanna á þrí-
veldasamningnum þýðir raun-
ar ekki annað en að þau viður-
kenni ákvæði samningsins um
að forysta Evrópumálanna sé í
höndum Þjóðverja og ítala.
Ratmsóknir í þágu
búfjárræktarinnar
(Framh. af 1. síöu)
nokkuð af tekjum þeim, sem
ríkissjóðl áskotnast nú með
tolli af sterkú öli, sem nýlega er
byrjað að framleiða.
Jarðnæði það, þar sem lagt er
til að gerðar verði kynbóta- og
fóðrunartilraunir, þarf að vera
stórt með fjölbreyttu beitilandi
og góðum ræktunarskilyrðum.og
mætti því jafnframt gera þar
ýmsar j arðræktartilraunir, sem
ekki varða búfjárræktarráðið.
Tilraunir þær, sem ráðið legg-
ur til að gerðar verði við bún-
aðarskólana, lúti að fóðrun og
kynbótum sauðfjár og naut-
gripa. Á Hólum í Hjaltadal
verða í vetur 200 lömb. Leggur
tilraunaráðið til að þar verði
gerðar samanbuTðartilaunir með
gimbrar, sem ekki eru látnar
fá, og gimbrar, sem fá, og at-
hugað, hvort ekki sé hægt að
ná upp þeim afturkipp, sem er
afleiðing þess að þær ganga með
lamb. Jafnframt séu gerðar til-
raunir um misjafna fóðrun
þeirra og gjöf sérstakra fóður-
efna, svo sem síldarmjöls, og
reynt að fá lömbin til að safna
vöðvum og þyngjast, jafnframt
því sem þau stækka, svo að úr
því fáist skorið, hvort þau á
þann hátt verði það bráðþrosk-
aðri og 'afurðameiri ær, að slíkt
fóður borgi sig.
Á Hvanneyri verði gerðar
fóðurtilraunir með mjólkurbýr,
sem skeri úr því, hvort það
borgi sig að gefa þeim'fóður-
bæti eftir burðinn, ef þær
mjólka meira en þær fá efni
til í heygjöfinni. Einnig verði
þar gerðar tilraunir um kyn-
blöndun skozks holdafjár og ís-
lenzks fjár til þess að komast
að raun um, hvort kynblend-
ingar reynast ónæmari fyrir
mæðiveiki en alíslenzkt fé og
vita, hversu afurðagóðar kind-
ur kynblendingarnir verða. Loks
verði þar gerðar tilraunir um að
dæla sæði úr nautum í kýr og
hrútum í ær. Slíkur sæðisflutn-
ingur getur haft hina mestu
þýðingu fyrir búfjárkynbætur í
landinu, en lítil sem engin
reynd fengin um það hér á
landi; hvernig slík frjóvgunar-
aðferð kann að takast.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. slöu)
taka burtu særðar og skemmdar kart-
öflur. Kartöflumar eru orðnar hreinar
og fallegar, þegar þær koma úr vélinni.
Til þess að vinna við vélina, þarf 3—4
menn og má þá hreinsa um 30 poka á
klst. Flokkunarvélin hefir enn ekki
verið tekin til notkunar, en ætlast er
til að hún taki við kartöflunum, þegar
hreinsun þeirra er lokið. Báðar vélamar
eru knúðar af rafmagni.
f t t
Fyrstu p mánuði þessa árs hafa alls
komið 172.946 baðgestir í sundhöllina
Kínverska stjórnin hefir lýst
yfir því, að hún muni ekki
semja frið við Japani fyr en
allir japanskir hermenn séu
farnir úr Kina. Er þetta svar
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
eða sem svarar 657 á dag. Á sama tíma
í fyrra komu 148.426 baðgestir í sund-
höllina. Hefir aðsókn að sundhöllinni
því aukizt mikið og stafar það senni-
lega mest af veru setuliðsins hér.
126 Robert C. Oliver:
*
Lucy fannst hún undarlega niður-
dregin — en þó örugg. Hún vonaði, að
hann mundi nú segja henni eitthvað,
þegar þau voru orðin ein. Hún hafði
það einhvernveginn á tilfinningunni, að
nú væri hún á leiðinni að finna sporið,
sem leiða myndi allan sannleikann í
ljós. En Bob þagði. Hann þorði ekki að
tala. Jafnvel göturnar gátu haft eyru.
Að lokum stöðu þau fyrir framan
húsið með auglýsingaspjaldinu, sem
bauð alla velkomna.
— Hér er það, sagði Bob. Við skulum
koma inn, og ef við syngjum sálmana,
fáum við te á eftir. Hann ýtti henni
gætilega á undan sér inn um dyrnar
og eftir augnablik sátu þau aftarlega
í salnum, sem var, eins og daginn áð-
ur, fullur af syngjandi fólki, með hjá-
róma röddum.
í ræðustólnum stóð trúboðinn og
horfði rannsakandi yfir bekkjaraðim-
ar. Lucy fannst augu hans horfa dá-
lítið lengur á hana en aðra — ef til
vill var það ímyndun.
Meðan næsti .sálmur var sunginn,
fór trúboðinn niður úr stólnum og
gekk um meðal fólksins.
Þegar hann kom þangað, sem Bob
og Lucy sátu, hætti hann að syngja.
— Ég mætti ef til vill biðja ung-
frúna að hjálpa okkur ofurlítið frammi
Æfintýri blaöamannsins 127
i eldhúsinu? spurði hann brosandi.
Lucy leit á Bob, sem flýtti sér að
kinka kolli. Lucy stóð upp og gekk fram
í eldhúsið. Trúboðinn hélt áfram að
syngja fullum hálsi og organleikarinn
tróð orgelið af öllum kröftum.
Bob horfði hryggum augum á eftir
Lucy þangað tíl hún hvarf inn um eld-
húsdyrnar. Þá beit hann á jaxlinn og
grúfði sig" niður í sálmabókina. Hann
hafði unnið sitt verk. Hann gaf trú-
boðanum hornauga, en hann hélt áfram
eins og þetta kæmi honum ekkert við.
Þegar Lucy kom inn i þetta litla eld-
hús, sem veitt hafði svo mörgum glöt-
uðum einstaklingum saðning í te og
brauði, stóð þar aðeins feit og gild
kona og var að bisa við heljarmikinn
ketil.
— Ó, ungfrú — það var fallega gert
af yður að koma og hjálpa mér, sagði
hún. Hér er meira en nóg að gera fyrir
eina manneskju — ég held að Mary,
sem er vön að hjálpa mér hér, hafi orð-
ið veik, — viljið þér ná i tepokann.
Hann er þarna inni í skápnum.
Lucy lagði töskuna sína, hattinn og
hanzkana frá sér og gekk að skáp-
hurðinni, en um leið og hún opnaði
hann, féll eitthvað, sem líktist hettu,
yfir höfuðið á henni og hún var gripin
Kantaður
saumur
1”, IV2”, 2”, 21/2”,
3”, 4”
Pappasaumur
galvaniseraður og
ógal vaniser að ur.
Hóifjaðrir.
Hveriisgptu 52.
Sími 5345.
Hrelnar
léreftstnsknr
kaupir
Prentsmlðjan Edda
Lindargötu 1 D.
Bráðabirgðalög
vegna ölæðis
(Framh. af 3. síðu)
þeir standi í þeim efnum á
glötunarbarminum. Og það er
því miður óhætt að fullyrða, að
íslendingar eru tiltölulega við-
námsveikari í baráttunni við á-
fengið. Þetta böl nær til allra
stétta, og allra flokka í mann-
félaginu, að eins misjafnlega
mikið, en þó svo, að enginn
mannhópur á íslandi getur bar-
ið sér á brjóst með sjálfsgleði
Fariseans og fullyrt, að hans
stétt sé laus við böl áfengis-
nautnarinnar. Af öllum stórum
stéttum mun mega fullyrða, að
bændafólkið misnotar áfengi
tiltölulega minnst. Þó hefir það
komið fyrir 1 tveim myndarleg-
um og vel menntum héruðum,
að hætt hefir verið störfum í
skilaréttum að hausti til, og
vinnu frestað um einn dag
vegna almenns drykkjuskapar.
Auk þess hefir brugg verið
stundað á allmörgum stöðum í
sveit* í bæjunum er drykkju-
skapur til muna almennari.
Margt kvenfólk í bæjunum, sem
lítið sinnir alvarlegri vinnu,
hefir borðvín í óhófi og gerist
drykkfellt. Á almennum hátíðis-
degi í Reykjavik fóru um 4000
manns um eina helgi til Þing-
valla. Talið er að helmingur
þess gestahóps hafi verið stór-
lega ölvaður og mörg hundruð
urðu ósjálfbjarga, mest undir
beru lofti. í nánd við suma af
helztu, kaupstöðum landsins
má á sumrin um helgar sjá ung-
ar stúlkur í skógarferðum tekn-
ar eins og dauða hluti og kast-
að upp í bifreiðar og ekið í því-
líku ástandi heim í foreldrahús-
in. í veizlulífi íslendinga, þar
sem vín er haft um hönd, kem-
ur ekki ósjaldan fyrir að þriðji
hver maður er ölvaður til lýta
og leiðinda. Jafnhliða því að
máttleysið vex, byrjar grobbið.
Drukkinn íslendingur raupar
mest af kröftum sínum. Aðrir
reyna að hrækja á þá, sem
næstir eru og á það að vera
einskonar hreystimerki. Að því
leyti, sem drukknir íslendingar
missa ekki málið, nota þeir það
til að bera fram sem þyngstar
ásakanir og sárar móðganir.
Þannig mun hafa verið fram-
koma hins ölóða stórkaupmanns
í töðugjaldaveizlu golfleikar-
anna.
Það mega teljast tíðindi, og
er vissulega eftirtektarvert, að
ríkisstjórnin hefir orðið að gefa
út bráðabigðalög sökum ölæðis
og skemmdarframkomu eins is-
lenzks, dauðadrukkins manns.
Framferði hans þennan dag og
á þessum stað var að vísu óhaf-
andi, en ekki verra en gerizt
hjá leiknautum og jafningjum
hans svo að segja hvem dag.
íslendingar verða sér oft til
stórfelldrar minnkunar erlendis
fyrir ölæði. Hver slik synd er
>o~,-,-~-GAMLA BÍÓ°—
Verið þér sælír,
herra Chíps
Heimsfræg Metro Gold-
wyn Mayer stórmynd, gerð
eftir skáldsögu James Hil-
ton.
Aðalhlutv. leika:
ROBERT DONAT
og
GREER GARSON.
Sýnd klukkan 7 og 9.
-o—“NÝJA BÍÓ
Gæfastjarnan
(MY LUCKY STAR.)
Amerísk skemmtimynd,
fyndin og fjörúg frá byrj-
un til enda.
Aðalhlutverkið leikur
skautadrottningin heims-
fræga
SONJA HENIE
og kvennagullið
RICHARD GREEN.
Aukamynd:
Fiskveiðar á ófriðartímum
Sýnd kl. 7 og 9.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Reykjavíkur verður hald-
inn í Kauppingssalnum nk. föstudag 29. nóv.
kl. 8,30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Fegurð lífsins
lieitir næsta bók, sem kcmur út af ritgerða-
safni Jónasar Jónssonar, Komandi ár. Áskrif-
endur fá hana á kr. 5.00 ób. og kr. 7.50 í bandi.
Bókin er 354 bls. og er hér því um sérstaklega
ódýr bókakaup að ræða.
t þessu hefti eru eftirtaldar greinar: Ein-
ar Benediktsson, Einar 'Tfónsson myndhöggv-
ari, Guðmuudur Friðjónsson, Indriði Þorkels-
son frá Fjalli, Saga Þjóðleikhússins, Indriði
Einarsson, Gunnar Gunnarsson, Jóhannes
Kjarval, Bíkarður Jónsson, Svartar fjaðrir,
Landakotskirkja, Borgin við lindina, Stofnnn
Jóns Sigurðssonar, Ásgrímur Jónsson, Guðjón
Samúelsson, Vilhjálmur Stefánsson, Þjóðsöng-
ur íslenzkra byggða, Mattliías Jochumsson.
Gerist áskrifendur sem fyrst, þvl gera má
ráð fyrir mikilli sölu og upplagið er takmark-
að. Allir þeir, sem hafa fengið áskriftalista,
eru beðnir að hraða áskrifendasöfnun og
senda listana sem fyrst til bókaútgáfunnar.
Bókaútgáfa S. 1). F.
pósthólf 1044
Reykjavík
The World’s News Seen Through
The Christian Science Monitor
An lnternational Daily Newsþaþer
it Truthful—Constructíve—Unbiased—Free from Sensatíonal-
ism — Editorials Are Timely and Instructíve and Ita Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspapcr for the Home.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price J 12.00 Yearly, or £1.00 a Month.
Saturday Issue, including Magazine Section, £2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 2? Cents.
Name------------------------------------------—
Addrest
SAMPLB COPY ON REQUEST
raunverulega rituð á synda-
reikning þjóðarinnar allrar, þó
að hver einstakur þegn verði
ekki var við það í bili. Hér stóð
íslenzkur drykkjumaður and-
spænis erlendri þjóð, og sam-
eiginlegu virðingartákni henn-
ar. Þessvegna varð áreksturinn
svo áberandi og eftirminnileg-
ur. Þegar hinum unga, illa
mennta Reykvíking eru boðnir
tveir kostir: Margra ára útlegð,
eða að biðja tvær þjóðir opin-
berlega afsökunar, þá kemur í
ljós, hve lágt drykkjumanns-
framkoman er metin á mæli-
kvarða þjóða, sem hafa gamla
menningu og lengi hafa notið
frelsis.
Mér sýnist einsætt, að ís-
lenzka þjóðin eigi að láta þetta
sérstaka atvik verða til þess, að
drykkjuhneigð, drykkjuskapur
og drykkjuafglöp þjóðarinnar
verði tekin til opinberrar og al-
mennrar meðferðar. íslenzka
þjóðin er í hættu í sambandi
við áfengisnautn. En þó er ekki
þörf að örvænta. Ekkert er
gleðilegra tákn í þessu máli
heldur en samtök æskunnar i
mörgum af helztu skólum lands-
ins. Einmitt þessa dagana halda
bindindisfélög skólanna árs-
fund sinn hér í Reykjavik. Sú
starfsemi á skilið eindreginn
stuðning hinna eldri manna. Ég
mun að öllu forfallalausu, inn-
an skamms, benda hér í blaðinu
á nokkrar úriausnir í áfengis-
málinu, sem mér þykja líklegar
til árangurs. J. J.