Tíminn - 28.11.1940, Side 4
172
TlMITCN, íimintiulagiim 28. nóv - 1940
118. blað
tÍR BÆIVUM
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í Kaupþings-
salnum annað kvöld. Hefst hann kl.
8 Vá. Áríðandi að félagsmenn sæki fund-
inn og mæti stundvíslega.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir leikritið Öldur eftir séra Jakob
Jónsson í kvöld og hefst sala aðgöngu-
miða kl. 1 í dag.
Loftvamaræfing
verður hér í bænum kl. 11 f. h. á
laugardaginn. Sjá nánara um þetta í
auglýsingu frá loftvamanefnd annars
staðar í blaðinu.
Háskólafyrirlestur.
Dr. phil. Þorkell Jóhannesson heldur
fyrirlestur um jámgerö á íslandi i
kvöld kl. 8,15 í háskólanum, 1. kennslu-
stofu. Öllum heimill aðgangur.
í næsta tölublaði
kemur grein eftir Jakob Kristinsson
fræðslumálastjóra um leikritið Öldur.
Örðugleikar Boris
(Framh. af 1. síðu)
ust. En það verður áreiðanlega
miklum erfiðleikum bundið
fyrir hann, að sigla á milli skers
og báru, því að auk vinarorða
eða hótana erlendra valdhafa,
sem mælt eru í eryu hans, reyna
þeir að vinna búlgörsku þjóðina
til fylgis við skoðanir sínar.
Bo'ris konungur mun því full-
komlega þurfa að beita allri
sinni lægni og festu í náinni
íramtíð.
Stjórnmálanámskeið
(Framh. af 2. síðu)
Laugum, Þing.; Kristján Sæ-
valdsson, Sigluvík, Svalbarðs-
strönd; Björgvin Færseth, Siglu-
firði; Jakob Þorsteinsson, Akur-
eyri; Valdimar Halldórsson, Ak.;
Soffía Halldórsdóttir, Ak.; Þór-
halla Þorsteinsdóttir, Ak.; Erl-
ingur Davíðsson, Ak.; Hjörtur
Gíslason, Ak.; Rögnvaldur
Rögnvaldsson, Ak.
Aðrar fréttlr.
(Framh. af 1. síðu)
ítalir reyna eftir megni að
beita flugher sínum, en það
hefir gert aðstöðu þeirra stór-
um verri, að þeir hafa misst
tvo af fimm flugvöllum sínum
í Albaníu, hjá Koritza og Po-
gradec. — Talið er að Musso-
lini hafi sent Badoglio hershöfð-
ingja.frægasta hershöfðingja
ítala og sigurvegara í Abess-
iniustríðinu, og Stotace, einn
helzta foringja fasista, til Al-
baníu og eiga þeir að hjálpa til
að endurskipuleggja herinn. —
Grikkir telja, að þeir hafi fellt
að mestu tvö ítölsk herfylki (um
30 þús. manns) og sundrað 5
herfylkjum (um 70 þús.
manns) svo að erfitt sé að koma
skipulagi á þau aftur. Milli 8—
10 þús. ítalskra hermanna hafa
verið teknir til fanga. — Grikk-
ir segja, að hjálp Breta, eink-
um flughersins, sé mjög mikils-
verð. Hafa brezkar flugsveitir
iðnlega tvístrað herflutningum
ítala. Hersveitir frá Ástraliu og
Nýja Sjálandi eru komnar til
Grikklands.
AðalSundur Sölu-
sambandsics
(Framh. af 1. síðu)
ar, enda leggi S. í. F. fullnaðar-
tillögur um verðjöfnunarkerfi
fyrir fundinn.“
Var tillaga þessi samþykkt
með miklum meirihluta at-
kvæða.
Eftir að þeim fundi lauk varð
samkomulag um að leggja á-
greininginn um verðjöfnunina í
gerð allra dómenda hæstarétt-
ar. Kváðu þeir upp úrskurð í
málinu 27. júní s. 1. Var hann
á þá leið, að stjórn S. í. F. væri
heimilt að verðjafna milli fisk-
tegunda, ef hún ráðstafaði einni
fisktegund- á hagkvæmasta
markaðinn, til þess að tryggja
sem bezt not markaðanna, þar
sem þá bæri að bæta þeim fisk-
eigendum, sem ekki hefðu feng-
ið að njóta markaðsins hlut-
íallslega, það tjón, sem þeir
hefðu af því hlotið.
Á nýafstöðnum aðalfundi
flutti Jón Árnason fram-
kvæmdastjóri svohljóðandi tii-
lögu um málið:
„Aðalfundur Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda lítur
svo á, að samkvæmt gerðardómi
hæstaréttardómaranna, dags.
27. júní þ. á., sé ekki heimild til
verðjöfnunar milli labrador-
fiskjar og pressufiskjar annars
vegar og stórfiskjar hins vegar,
framleiddan árið 1939, þar sem
ekki er sannað, að eigendur
stórfiskjar hafi beðið nokkurt
tjón vegna aðgerða Sölusam-
bandsstjórnar til að vernda
Ítalíumarkaðinn fyrir smáfisk.
Fundurinn samþykkir því að
greiða fullt söluverð að frá-
dregnum venjulegum kostnaði
og sjóðagjöldum fyrir labrador-
fisk og þveginn og pressaðan
fisk framleiddan árið 1939.“
í umræðum um málið, hélt
Jón Árnason því fram, að skil-
yrði þau, er gerðardómurirtn
setur fyrir heimild til verðjöfn-
unar, sé ekki fyrir hendi í þessu
tilfelli, þar sem stjórn S. í. F.
hafi engar óvanalegar ráðstaf-
anir gert til verndar Ítalíu-
markaðs, og sýndi hann fram
á, að hlutfallið var svipað milli
þess fiskmagns, sem selt var til
Ítalíu og annarra landa það ár
og árin 1936, 1937 og 1938. Taldi
hann stjórninni því ekki heim-
ilt að framkvæma verðjöfnun-
ina, enda ákveðið af síðasta að-
alfundi að málið skyldi tekið til
endanlegrar afgreiðslu nú, sbr.
þá tillögu framkvæmdástj., sem
birt er hér að framan.
Máli þessu lauk á fundinum
Kostnaöur við barna -
fræðsluna
(Framh. a) 1. siðuj
hækkunin eftir að fræðslulögin
frá 1936 koma til sögunnar.
Fjöldi skólaskyldra barna
hefir verið á þessu tímabili sem
hér segir:
1930— 1931 .............. 10.456
1931— 1932 .............. 10.977
1932— 1933 .............. 11.044
1933— 1934 .............. 11.875
1934— 1935 .............. 12.493
1935— 1936 .............. 12.703
1936— 1937 .............. 14.904
1937— 1938 .............. 15.377
1938— 1939 .............. 15.688
Langflest þessara barna hafa
stundað nám í heimangöngu-
skólum í bæjum, kauptúnum
eða sveitum. Fer hér á eftir yf-
irlit um fjölda barna í heima-
vistarskólum, farskólum og loks
barna, sem ekki hafa notið
neinnar tilsagnai- í skólum:
Leikfélag Itcykjavíknr
••
Oldur
Sjónleikur í 3 þáttum,
eftir
séra Jakob Jónsson
frá Hrauni.
Sýning í kvöld kl. 8,30
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1/ í dag.
Heimav,- Far- Utan
skólar skólar skóla
1930- -31 194 2657 976
1931- -32 184 2837 982
1932- -33 212 2689 836
1933- -34 280 2879 938
1934- -35 361 2610 1178
1935- -36 389 2499 1141
1936- -37 430 2372 1734
1937- -38 480 2340 1547
1938- -39 455 2345 1415
Skólaárið 1938- -39 störfuðu
alls 470 kennarar við barna-
■ .1 ii IJPT
M.b. Olaf
hleður á morgun til Flateyrar,
S.uðureyrar og ísafjarðar.
Flutningi óskast skilað sem
fyrst.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
árið 1938. Annars er berkladauðinn
meiri þau árín, er farsóttir ganga. —
Berklasjúklingum fer einnig fækkandi,
og á sama hátt sýna berklaprófin, að
berklasmitun rénar ört í landinu. Má
af því ráða, að færri smitandi berkla-
sjúklingar séu utan sjúkrahúsa og hæla
en áður hefir tíðkazt.
ÍTtbreiðið Tímann!
fræðsluna, en 373 skólaárið
1930—31. Skólaárið 1938—39
störfuðu 306 kennarar við
heimavistarskóla, 136 við far-
heimavistarskól, 136 við far-
kennslu og 10 við aukakennslu.
með því, að tillögu Jóns Árna-
sonar var vísað frá með dag-
skrártillögu frá Sveini Bene-
diktssyni og Finnboga Guð-
mundssyni, er var samþykkt
með 106i/2 atkv. gegn 3014.
í sambandi við reikningana
gerði einn fundarmanna, Finn-
bogi Guðmundsson útgerðar-
maður, athugasemd við launa-
greiðslur til Árna frá Múla. Eft-
ir upplýsingum, sem gefnar
hefðu verið um það mál í fyrra,
kvaðst hann hafa búizt við að
sölusambandið væri hætt að
greiða þeim manni laun.'
Fundurinn gerði þær breyt-
ingar á lögum S.Í.F., að heimilt
er að hafa aðeins einn fram-
kvæmdastjóra, og jafnframt
heimilt að fækka stjórnamefnd-
armönnum, ef ráðherra ekki
notar rétt sinn til að skipa
menn í stjórnina.
Jón Árnason framkvstj. bar
fram tillögu um að heimila
stjórn sölusambahdsins að selja
niðursuðuverksmiðju þess, ef
hægt væri að ná hagfelldri sölu
og tryggt væri, að verksmiðjan
yrði rekin áfram. Tillagan var
felld.
Fundurinn kaus sömu menn
og áður í stjórn og til endur-
skoðunarstarfa, en ekki er vitað
hvort atvinnumálaráðherra not-
ar rétt sinn til að skipa tvo
menn í stjórn sölusambandsins.
■GAMLA BÍÓ"
Vesturför Hardy-
fjölskyldunnar
Out West with the Hardys.
Ný Metro-gamanmynd af
ævintýrum HARDY-fjöl-
skyldunnar. Aðalhlutverk-
in leika:
MICKEY ROONEY,
LEWS STONE,
VIRGINIA VEIDLER o.fl.
Sýnd í kvöld kl. 7 off 9.
■NÝJA BÍÓ
Skytidipabbi
UNEXPECTED FATHER.
Amerisk skemmtimynd frá
Universal Film. Aðalhlut-
verkin leika:
Shirley Ross, Dennis
O’Keefe, skopleikarinn
Micha Auer og undra-
barnið BABY SANDY,
sem er ný eftirlætis-
stjarna amerísku kvik-
myndahúsgestanna.
Sýnd klukkan 7 og 9.
ÞAKKARAVARP.
Mínar alúðarfyllstu þakkir til allra þeirra kvenna í
Ása- og Holtahreppi, sem glöddu mig með vinsemd sinni
og gjöfum í haust, þá er ég lét af starfi mínu.
ÞÓRUNN ÞÓRÐARDÓTTIR, ljósmóðir.
134
Robert C. Oliver:
Æfintýri blaðamannsins
135
eiga eitthvað við dyrnar eða veggina
með yðar fallegu, litlu höndum.vil ég
þegar láta yður vita, að það fer illa með
hendurnar og er tilgangslaust. Engin
lifandi sál getur heyrt til yðar hér.
Þér skuluð ekki vera hræddar um að
vera hér lengi. Þér farið bráðum í
ferðalag og lifið fleiri og fjörugr’i æfin-
týri en þér getið séð á nokkurri kvik-
mynd. Góða nótt, systir.
Lucy var orðin ein. Án þess að vita
það, var hún nú í sama klefanum og
Bob hafði verið 1 skömmu áður.
Hún settist á rúmið og fór að hugsa
um sinn hag, sem ekki var sem glæsi-
legastur. Ásetningur hennar hafði
vissulega verið góður. En í stað þess
að lyfta hulunni frá leyndardómnum,’
hafði hún sjálf orðið eitt fórnardýr-
anna.
Hún var fangi í þessum klefa. Dyr og
veggir voru traustir. Uppi í einu horn-
inu var loftauga — eina sambandið
við umheiminn — en hvað stoðaði það.
Þetta auga notaði Cabera fyrir hið ó-
þægilega ljós sitt.
Lucy fann, að hún var ein og hjálp-
arvana. Hún lagði sig afturábak í
rúmið og lokaði augunum.
Nú er líklegast rétti tíminn til þess
að lýsa ofurlítið nákvæmlegar hinni
smánarlegu verzlun, sem Lucy vildi fá
vissar upplýsingar um.
Það er til tvennskonar þrælasala af
þessari tegund. Önnur aðallega rekin
í austanverðri Evrópu, þar sem sam-
vizkulausir foreldrar selja umboðs-
mönnum þrælasalanna dætur sínar.
Hin er hin eiginlega þrælasala, þar
sem þrælasalarnir tæla ungar stúlkur
með loforðum um góðar stöður erlendis,
og gyllingum um æfintýrarík ferðalög
í auði og allsnægtum.
í Marseille, í nánd við gömlu höfnina,
er gistihús með ölknæpu, sem heitir „Bar
Maurice“. Það er hið opinbera nafn.
En annað og þekktara nafn á því er
„Þrælakauphöllin“. Þar hafa margir
svívirðilegir verzlunarsamningar verið
gerðir og þrátt fyrir allar tilraunir til
þess að stöðva þessa verzlun, var hún
lengi í fullum blóma.
Loks varð staðurinn of þekktur —
réttara ságt frægur — og það varð erf-
iðara að ráðgera um þrælaveiðar,
verðlag eða söluferðir til útlanda, en
áður.
En þegar verzlunin var í mestum
blóma, kom þarna maður, sem tók vel
eftir öllu. Hann sá sér hér slag á borði.
Hann vissi hvenær sá rétti tími var
til að hefjast handa og hvenær bezt
var að draga sig í hlé. Óþekktur af öll-
Ræktunarmál kaup-
túnanna
(Framh. af 3. síðu)
asta kauptún á landinu, enda
hafa allar fjölskyldur þar, meiri
og minni ítök í búskap. Þetta
líí hefir vafalaust átt nokkurn
þátt í að setja svipmót sitt á
Eyrbekkinga og gera þá að
kjaTkmiklum, duglegum og bar-
áttufúsum mönnum.
Sem dæmi um dugnað Eyr-
bekkinga og þá gj örbreytingu,
sem orðið hefir á atvinnulífinu
í kauptúninu má nefna, að
garðlönd eru þar nú yfir 100
dagsláttur að stærð eða um það
bil ein dagslátta að meðaltali
á hverja fjölskyldu, sem í kaup-
túninu býr. Árið 1939 mun upp
skeran hafa numið nálægt 5000
tunnum af kartöflum, auk gul-
rófna og kálmetis. Sem áburð
í garða sína nota Eyrbekkingar
því nær eingöngu þara úr fjör-
unni. Svo eru þeir athafnasam-
ir í áburðaraðdráttum sínum,
að þeir jafnvel fara á fætur á
nóttum, þegar svo er háttað
vindi og sjávarföllum, að vænta
má þarareks, og mun eigi
dæmalaust, að smádeilur hafi
út af spunnizt. Frá þessu er sagt
hér Eyrbekkingúm til verðugs
lofs, svo og til uppörfunar og
eftirbreytni þeim fjölmörgu
kauptúnabúum annars staðar á
landinu, sem ár eftir ár horfa á
þarabunkana og annað sjávar-
fang rotna í fjörumálinu, og
hafast ekki að. Mættu þeir vel
fara að dæmi Eyrbekkinga um
hagnýtingu þessai’a verðmæta,
sér og sínum til blessunar.
Ef ekki hefði verið horfið að
því ráði á Eyrarbakka, að snúa
sér að moldinni, þegar aðrar at-
vinnustoðir brustu, er ekkert
sennilegra en að þar væri nú
auðn, eymd og fátækt.
Þegar vandræði ber að hönd-
um, ér það háttur skynsamra
manna, að nema staðar, athuga
vandlega viðhorfin og leita svo
þeirra úrræða, er bezt blasa við.
Eftir þessum einföldu og eðli-
legu reglum, hafa flest vanda-
mál fengið einhverja lausn, ef
ekki hefir brostið karlmennsku
til framkvæmda.
Okkar þjóðfélag hefir hent
það ólán, að um það bil helm-
ingur þjóðarinnar hefir reist sér
heimili við lífsaðstöðu, sem að
jafnaði hefir í för með sér all-
verulegt atvinnuleysi á ári
hverju, og þær afleiðingar, að
öryggi og afkomu þessa fólks er
teflt í fullkominn voða, hvað
lítið sem út af ber. Ástæðan
fyrir þessari . óheillavænlegu
þróun er aðallega sú, að ætlazt
hefir verið til, að þetta fólk gæti
haft allt lifsuppeldi sitt úr öðru
aðalnægtabúri landsins —
fiskimiðunum. Reynslan hefir
sýnt, að hér hefir verið reikn-
að rangt. Þótt sjórinn sé gjöf-
ull, þá er hann einn sér, ekki
fullnægjandi atvinnugrundvöll-
ur. Það sannár og um það vitn-
ar sívaxandi atvinnuleysi og
styrkþegaframfæri í - kaupstöð-
um og kauptúnum landsins.
Þjóðfélagið verður að læra af
þessari dýrkeyptu reynslu. Nýr
kapituli þarf að hefjast í þró
unar- og atvinnusögu kaupstaða
og kauptúna á landinu. Yfir-
skrift þess kapitula á að vera:
Enginn fjölskyldumaður, sem
Framsóknarfélag Reykjavíkur
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn í Kaupþingssalnum annað kvöld (föstu-
daginn 29. nóv.) klukkan 8,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Skúli Guðmundsson hefur framsögu um mikilsvert mál.
Fjölsækið fundinn.
STJÓRNIN.
vörur
höfum við venjulega til sölu:
Frosið kindakjöt af
dilkum — sauðum — ám.
Nýtt og frosið nautakjöt,
Svínakjöt,
tírvals saltkjöt,
Ágætt liangikjöt,
Smjör,
Ostar,
Smjörlíki,
Mör,
Tólg,
Svið,
Lifur,
llarðfisk,
Fjallagrös.
Samband ísl. samvínnufélaga.
Tilkynning:
Þar sem stórum viðtækjasendingum, frá Philipps og Marconi-
phone-verksmiðjunum í Englandi, hefir seinkað, viljum vér tjá
hinum mörgu viðskiptavinum, sem bíða eftir viðtælkjum, að
tækjasendingar þessar geta eigi komið til Reykjavíkur fyr en
um miðjan desembermánuð.
VIÐTÆKJAVERZLUN RÍKISINS.
býr við ótrygga atvinnu, má
vera án aðstöðu til ræktunar,
þar sem nokkur tök eru til þess.
Hæfileg ræktunarlóð fyrir
hverja slíka fjölskyldu, þarf að
verða jafn viðurkennd lífsnauð-
syn, eins og húsnæði, neyzlu-
vatn, ljós og eldsneyti. Það er
siðferðileg, náttúrleg og menn-
ingarleg skylda þjóðfélagsins,
að auðvelda þeim hlutá af þegn-
um sínum, sem hafa óvissasta
atvinnuaðstöðu, aðgang að því
nægtabúri lífsins — moldinni —
sem fremur öllu öðru megnar
að bæta úr atvinnuleysinu. Það
má ekki lengur eiga sér stað, að
kauptún geti þotið upp eins og
gorkúlur á haugi — liggur mér
við að segja — fyrir einhverja
augnabliks útþenslu í atvinnu-
lífinu, á stöðum, sem eru svo
snauðir af frumstæðustu lífs-
möguleikum, að varla er þar
nothæfur staður fyrir manna-
híbýlin að standa á. Hér eftir
verður að gæta þess sem grund-
vallaratriðis, við tilveru nýrra
og vaxandi kauptúna, að völ sé
á nægu landi til Tæktunar.
Jafnframt verður, eftir því sem
unnt kann að reynast,aðtaka til
gagngerðrar endurskoðunar
ræktunaraðstöðu þeirra kaup-
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
stjórnarinnar, því að hann hafi
verið orðinn úrræðalaus í
vandamálum þjóðarinnar. Hann
hafi þess vegna orðið að kalla á
Sjálfstæðisflokkinn, til að fá
hjá honum ,,úrræði“ í atvinnu-
málum og fjármálum, en þar
hafi allt verið að komast í kalda
kol. Væri það ekki réttara fyrir
íhaldsblöðin að benda á hin
nýju „úrræði“ Ólafs Thors í at-
vinnumálum og hin nýju „úr-
ræði“ Jakobs Möllérs í fjármál-
unum, frekar en að varpa fram
órökstuddri fullyrðingu um að
„úrræði“ liafi verið sótt til
Sjálfstæðisflokksins? Eða er það
svo, að erfitt sé að benda á
þessi „úrræði“, því að Ólafi og
Möller hafi þótt hyggilegast að
feta sem vandlegast i spor fyr-
irTennara sinna, þótt þeir hafi
talað á aðra leið meðan þeir
voru í ábyrgðarlausri og ofstæk-
isfullri stjórnarandstöðu?
túna, sem þegar eru mynduð, og
bæta eftir mætti úr ágöllum
þeirrar óheillaþróunar, sem
þar hefir átt sér stað í atvinnu-
og skipulagsmálum á undan-
förnum árum. Framh.