Tíminn - 07.12.1940, Side 4
1S8
TÍMWN, langardaglim 7. des, 1940
132, hlað
Einbeitni
Svíssleudínga
(Framh. af 1. síðu)
en stöðugt grunnt á því góðá
milli þeirra og Þjóðverja. Sviss-
lendingar voru jafnan óhlýðnir
Habsborgarættinni, greiddu
ekki skatta o. s. frv. Um 1500
hugðist keisarinn að neyða þá
til hlýðni, en her hans beið
hvern ósigurinn öðrum meiri og
hann neyddist til að semja frið.
Svisslendingar hættu öllum
skattgreiðslum og fengu í raun
og veru fullt sjálfstæði, þótt
þeir gengju ekki formlega úr
þýzka ríkinu fyrr en eftir west-
falska friðinn 1648.
Á þessum öldum bættust stöð-
ugt fleiri og fleiri kantónur í
svissneska ríkjasambandið.
Franska stjórnarbyltngin
hafði mikil áhrif í Sviss. Frjáls-
lyndu flokkarnir ukust að fylgi
á 18. öldinni og eftir að bylt-
ingarmenn höfðu sigrað í
Frakklandi, veittu þeir skoðana-
bræðrum sínum í Sviss hjálp
með vopnavaldi. Notuðu þeir yf-
irráð sín til að gera Sviss að
lýðveldi eftir franskri fyrir-
mynd. Afskipti frönsku bylt-
ingarmannanna af málum
Svisslendinga höfðu þær afleið-
ingar, að árið 1799 var Sviss
vígvöllur franskra, austurrískra
og rússneskra herja. Hið sviss-
neska lýðveldi varð ekki lang-
líft, því að andstæðingar þess
komust til valda um líkt leyti
og Napoleon varð æðsti maður
Frakklands. Alla stjórnartíð
Napoleons var Sviss raunveru-
lega undir yfirráðum Frakka,
en losnaði strax undan þeim,
þegar henni lauk. Síðan hefir
Sviss alltaf verið sjálfstætt og
hlutleysi þess ekki skert af
neinum.
Núverandi stjórnskipulag Sviss
er að talsverðu leyti sniðið eftir
stj órnarháttum Bandaríkj a
Norður-Ameríku. Landið skipt-
ist í 22 fylki (kantónur), sem
hafa allvíðtæka sjálfstjórn, en
lúta þó einni yfirstjórn. Þingið
er í tveimur deildum, í efri mál-
stofunni eru tveir fulltrúar fyrir
hverja kantónu, í neðri mál-
stofunni einn fulltrúi fyrir
hverja 20 þús. íbúa. í kosning-
um til neðri málstofunnar
skiptist landið í 49 kjördæmi.
Kosið er til þriggja ára og hafa
allir kosningarrétt, sem eru 20
ára eða eldri. Þingið kemur
saman til fundar tvisvar á ári.
Þingdeildirnar kjósa i samein-
ingu ríkisstjórnina (þjóðveldið),
sem er skipuð sjö mönnum. Hver
ráðherra er kosinn sérstaklega
og er einn þeirra jafnframt for-
seti ríkisins. Ríkisstj'órnin er
kosin til þriggja ára, forsetinn
þó aðeins til eins árs. Ráðherr-
arnir mega ekki eiga sæti á
þinginu. Æðsti dómstóllinn er
kosinn af þingdeildum til sex
ára og skipa hann 26 menn.
Breytingar á stjórnarskránni
má ekki samþykkja, nema þær
séu staðfestar af þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Síðan 1874 hef-
ir sú regla gilt, að 8 kantónur
eða 30 þús. kjósendur geti kraf-
izt þjóðaratkvæðis (referen-
tÍR BÆIVUW
Framsóknarfélögin
í Reykjayik halda fund um ájálfðtseð-
ismálið í KaUpþingssalnum nsestkom-
andi fimmtudagskvöld. Pramsögumað-
ur verður Jónas Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins. i
Tónlistarfélagið
mun á morgun flytja hið frœga ora-
torium Hándels, „Messías" Hefir verk
þetta verið æft af kappi síðusth mán-
uðina, og munu um 100 söngvarar og
hljóðfæraleikarar taka þátt í þessum
miklu hljómleikum, sem fara fram í
Fríkirkjunni og hefjast kl. 4.
Bazar
heldur Nemendasamband Kvenna-
skólans í Kvennaskólanum á morgun
kl. 3 e. h.
Leiðrétting.
Fallið hefir úr í grein V. G. á 2. síðu
neðst á 4. dálki. Málsgreinin átti að
vera þannig: Og meðan þjóðfélagið er
þannig, að einkaeign er svo miklu
ráðandi eins og nú er, þá er áríðandi
að sem flestir þegnar þess séu vel
sjálfbjarga efnalega.
Skólapíltur hverfur
(Framh. af 1. síðu)
ók á eftir Einari, en varð hans
hvergi var. Sást það seinast til
ferða hans, að hann var kominn
út hjá Eyvindartungu.
Þegar Einar kom ekki fram,
á mánudaginn, var hafin leit að
ho'num. Hefir hans verið leitað
frá Laugarvatni alla daga síðan,
en árangurslaust. í gær leituðu
um 100 manns.
Einar var 24 ára gamall, ró-
lyndur piltur og var í miklum
metum hjá kennurum sínum.
Bjarni skólastjóri gat þess, að
hann vissi að minnsta kosti hver
annar manna þeirra var, er kom
með áfengi í skólann á umrædda
samkomu.
Nýir sigrar Grikkja
(Framh. af 1. síðu)
Ýmsir telja, að Badoglio hafi
sagt af sér, sökum misklíðar við
Mussolini. Badaglio hefir alltaf
verið talinn andvígur þátttöku
ítala í styrjöldinni. Eins þykir
sennilegt, að hann og herstjórn-
in hafi verið á móti Grikk-
landsstyrjöldinni, sökum ónógs
undirbúnings.
Bagoglio er langfrægasti og
vinsælasti hershöfðingi ítala.
Hann er mjög vinsæll meðal
hersins og aðalsins og mikill
vinur konungsfjölskyldunnar.
Stjórn Þjóðverja
(Framh. af 3. síðu)
kveðnasti þjóðernissinni. Hér
verður flokkurinn að sanna
hæfileika sína til þess að
tryggja um aldur og æfi þýzk
yfirráð yfir þessu landi, sem
sigrað var af hinum þýzka her.
Fljótið Vistula er héðan í frá
þýzkt fljót.“
dum) um einstök lög eða meira-
háttar fjárveitingar. Hafa síð-
an farið fram margar þjóðarat-
kvæðagreiðslur og hafa þær
venjulega sýnt, að þjóðin er í-
haldssamari heldur en þingið.
Flestir embættismenn í Sviss,
dómarar, kennarar, prestar o.fl.,
eru kosnir í almennum kosning-
um til sex ára.
Hverju reiddist
Ární frá Múla?
Ég varð mjög undrandi, er ég
sá að Árni frá Múla fann ástæðu
til þess að skrifa leiðara Vísis
þann 29/11. um mig, í sam-
bandi við þátttöku mína í fund-
um S.Í.F.
Við lestur greinarinnar munu
ókunnugir komast að þeirri nið-
urstöðu, að ég hafi lent í hörð-
um deilum við „kallana“, eins
og hann telur einhvern sveit-
unga minn nefna áhrifamestu
menn fundarins, og hafi ég ver-
ið mjög dónalegur í umræðum,
....kastað hnútum til hægri
og vinstri, rausað þindarlaust og
orðið til athlægis . ...“ eins og
Árni orðar það í Vísi. Það er
engu líkara en hann Árni frá
Múla hafi orðið verst úti, enda
mesti „kallinn", en næst á eft-
ir honum koma svo atvinnu-
málaráðherra, Ólafur Thors,
Magnús Sigurðsson, bankastjóri,
og Jón Árnason foxstjóri.
Ég skal játa, að ég hefi stund-
um verið á öndverðri skoðun við
fymefnda 3 merkismenn um
málefni S.Í.F., en ég veit þó
ekki til að þeir hafi kvartað
undan framkomu minni á
fundum Sölusambandsins, og ég
býst við, aö þeir hafi ekki beð-
ið Árna frá Múla að gera það
fyrir sig. En við Árna frá Múla
hefi ég aldrei rætt um málefni
S.Í.F., þar sem hann hefir þar
engin áhugamál, önnur en þau,
að hirða laun sín hjá félaginu.
Árni frá Múla hefir haft há
laun hjá Sölusambandi íslenzkra
fiskframleiðenda, frá því að fé-
lagið var stofnað, án þess þó að
leggja fram vinnu, svo nokkru
nemi, í þágu félagsins. Enda
hafa fiskframlpiðendur almennt
verið mjög óánægðir með að
hafa Árna á launum hjá sér,
ekki sízt eftir að hann tók af-
stöðu gegn einu helzta áhuga-
máli þeirra, gengisbreytingunni,
á Alþingi 1939.
Skömmu eftlr að við Ólafur
Jónsson í Sandgerði vorum
kosnir í stjórn S. í. F. 1939,
komum við að máli við fram-
kvæmdarstjóra félagsins um
það, hvort ekki myndi rétt, að
S.Í.F. hætti að greiða Árna frá
Múla laun, vegna hinnar miklu
óánægju, sem það vekti meðal
félagsmanna. Þeir upplýstu þá,
að Árni væri þá þegar hættur
að vinna hjá félaginu,' og myndi
ekki verða greidd laun fram-
vegis. Við tókum þetta trúan-
legt og gerðum ekki frekari at-
hugasemdir um þetta efni.
En nú þegar reikningar fé-
lagsins fyrir reikningsárið 1.
júlí 1939 til 30. júní 1940, voru
lagðir fram kom í ljós, að Árna
frá Múla höfðu enn vérið greidd
laun fyrir það reikningsár.
Þetta gerði ég því athugasemd
við á síðasta aðalfundi S.Í.F.,
þar sem mér fannst einkenni-
legt, að Árni fengi greiddar kr.
7200,00 í árslaun, án þess að
stjórn S.Í.F. hefði hugmynd um
að hann væri starfsmaður fé-
lagsins, hvað þá heldur að hún
hefði samþykkt hann sem
150 Robert C. Oliver:
— Ég er nú ekki farinn að finna það
svo mikið enn þá, svaraði Bob.
— Nú — svaraði Mody og litaðist um
í herberginu. — Eitthvað er þetta þó
annað en gamla íbúðin þín.
— Hvernig veizt þú það, spurði Bob
brosandi. Þú hefir þó ekki komið þang-
að.
— Ekki það? Mörgum sinnum, svar-
aði Mody. Við gerðum allt, s&m við
gátum til þess að kynnast sem bezt
þínum högum. Við vorum þar jafnvel
einu sinni meðan þú svafst.
— Hvert í þó--------byrjaði Bob.
— Ja-á, — nú ert þú kominn á rétta
hillu. Er nokkuð annars í fréttum?
— Ég fékk mér morgungöngu í morg-
un, og mætti manni, sem ég vil helzt
ekki tala við.
— Hver er það?
— John Taylor frá Yard.
Mody reis upp. — John Taylor! Töl-
uðuð þið saman?
— Nei.
—Það var gott. John Taylor hefir ver-
ið falið að koma upp um okkur — ha
— ha — koma upp um. Þeir mega víst
búa sig undir að afhjúpa minnisvarða
á gröfinni hans áður en langt líður.
Mody varð hugsi.
— Þetta er ekki gott, Hollman. Ég
heíd að við verðum að láta þig ferðast
Æfintýri blaðamannsins 151
fyrr en við gerðum ráð fyrir.
— Hvert, Mody?
— Til eins útibúsins, hugsa ég, —
en það er hlutur, sem ég ákveð ekki.
— Gerir Cabera það?
— Ekki heldur — það er aðeins einn
sem ákveður — eigum við að fá okkur
eitt glas.
— Ég hefi nú víst heldur -lítið að
bjóða gestum, sagði Bob, en Mody
benti á eldhúsdyrnar.
— Frammi í skápnum, sonur — þar
er allt sem þig vantar. Við sjáum fyrir
öllu þegar við byggjum hús. En annars
hefi ég ekki tíma núna. Ég kom til þess
að segja þér, að mæta hjá fornsölunni
— sama stað og þú tókst á móti litla
bögglinum fyrsta kvöldið —. Þú kemur
stundvíslega kl. tíu. Ég sæki þig þang-
að í bíl.
Bob samsinnti.
XII.
Bob kom stundvíslega að fornsölunni.
Hann þurfti ekki lengi að bíða. Mody
ók bíl fast að honum og sagði honum
að koma upp í.
Móti venju sinni var Mody nú mjög
fámáll.
Hann ók í marga staði og Bob
varð alltaf meira og meira hissa. Fyrst
fóru þeir til ljósmyndara, sem tók
Lelkfélag Reykj avíknr
Oldur
eftir
séra Jakob Jónsson
frá Hrauni.
Sýning annað kvöld
kl. 8,30
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 i dag.
. . . . án Sjafnar kerta.
Sjafnar kerti eru nú löngu
orðin landskunn fyrir gæði sín,
enda búin til úr beztu efnum
með fullkomnustu nýtízku
tækjum.
Fást hjá kaupfélögum og
kaupmönnum.
Helldsölubirgðir.
Samband ísl.
samvínnufélaga.
starfsmann með þessum laun-
um.
Ég býst við, að þeir, sem lesið
hafa þessar línur sjái nú, að
„skít-kast“-leiðari Árna frá
29. nóv. er fram kominn af
öðrum ástæðum en hann vill
vera láta.
Ég hefi ekki óskað eftir blaða-
skrifum um það, sem gerizt á
fundum S.Í.F., eða innan stjórn-
ar þess, en þar sem Árni frá
Múla fann ástæðu til þess að
hefja blaðaskrif á þenna hátt,
varð ég tilneyddur til að gefa
þessa skýringu.
Keflavík 30. nóv. 1940.
Finnbogi Guðmundssson
Vetrarvertí ^in
(Framh. af 1. síðu)
ufsa. Kom hann allur í hlut
hásetanna, er við veiðar þessar
fengust. Seldu þeir ufsann góðu
verði og báru því sæmilegan
hlut úr býtum.
Um þessar mundir eru 6—7
Akranesbátar, þeir stærri, við
veiðar vestur á Breiðafirði. Er
afli þar að vísu tregur, en þó
örari en á heimamiðum. Losa
þeir afla sinn ýmist þar vestra,
eða þeir koma heim með hann,
einkum ef línuveiðarinn Ólafur
Bjarnason, sem nú er í förum
milli landa með nýjan fisk, er
þar að kaupa fisk. Stundum
hefir Ólafur Bjarnason einnig
farið vestur og tekið fiskinn úr
bátum þar.
Margir ala þá von í brjósti,
að vertíðin í vetur verði mun
aflasælli en síðastliðið ár. Er
mikill hugur i mönnum í at-
vinnumálum. Þó verða senni-
lega heldur færri bátar gerðir
út frá Akranesi í vetur en áður,
og er orsökin sú, að gamlir bát-
ar hafa verið seldir, bæði í ár
og í fyrra. Allmiklar olíubirgðir,
alls um 320 smálestir, eru nú
til á Akranesi.
Ume það hefir verið rætt, að
einn eða tveir bátar verði smíð-
aðir á Akranesi innan skamms,
en því er ekki enn til lykta ráð-
ið, hvort úr framkvæmdum
verður.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. siðu)
viðskipti Breta og Tyrkja stöð-
ugt verið að aukast, en við-
skipti Tyrkja og Þjóðverja að
minnka.
GAMLA BÍÓ<H—
K ap p aksturs-
hetjan
(Bum’em up O’Connor).
Afar spennandi og
skemmtileg amerísk kvik-
mynd.
Aðalhlutv. leika:
DENNIS O’KEEFE,
CECILIA PARKER
Og
NAT PENDLETON.
Aukamynd með
GÖG ogGOKKE
Sýnd kl. 7 og 9.
—-NÝJA BÍÓ
Uppreisn j
í ríkisfangelsinu j
(SAN QUINTIN)
Óvenju spennandi saka- j
! málamynd, er sýnir við- j
! burði, er urðu valdandi að
j uppreisn meðal fanga í !
Ieinu stærsta betrunarhúsi |
Bandaríkjanna.
Aðalhlutv. leika:
PAT. O’BRIEN,
ANN SHERIDAN og
HUMPHREY BOGART. 1
Aukamynd:
MÁTTUR BRETAVELDIS \
Ensk kvikmynd. — Börn fá j
ekki aðg. Sýning kl. 7 og 9. I
Framsóknarfélögín
í Reykjavík
lialda sameiginlegan fund í Kaupþingssalnum
fimmtudaginn 12. þessa mánaðar.
Umrœðuefni: SJÁLFSTÆÐI ÍSLATSDS.
Frummælandi: JÓNAS JÓNSSON.
Síðan almennar umræður um málið.
Framsóknarmenn! Fjölmennið!
STJÓRMR FÉLAGAMA.
Það er eindregið og alvarlega skorað á alla þá, er hafa
í fórum sínum borðbúnað, mataráhöld allskonar, einnig
kaffiáhöld, bakka og teskeiðar tilheyrandi Hótel Borg, að
tilkynna það í síma 4168 eða á skrifstofu hótelsins, og
munu þá munirnir sóttir samstundis.
HÚSFREYJAN.
Happdrætti
llsiskólu íslandN
í 10. ílokki eru 2000 vinn-
ingar, samtals 44S900 kr.
Ðregið verður 10. desember
Samkvæmt heimild í reglugerð happ
drættisins verða allir vinningarnir
dregnir á einum degi.
LlF OG DAUÐl.
Prófessor Sig. Nordal flutti á síðasta vetri í Ríkisútvarpið sex
erindi, sem vöktu almenna athygli um land allt. Mörgum munu
þessi erindi enn í fersku minni, en flestum mun finnast, að þeir
þurfi að kynnast þeim nánar, því að margt fer fram hjá mönn-
um, þegar hlustað er. í
Nú eru erindi þessi komin út. Aftan við þau hefi'r höfundur-
inn bætt eftirmála, sem er 74 blaðsíður, og mun hann ekki vekja
minni athygli en erindin í fyrra.
Kaupið þessa bók, hún veitir yður umhugsunarefni, sem hver
maðuí hefir gott af að hugleiða.
Bókaverzlun ísafoldar.
Húðir og skinn.
Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar HÚÐIR
og SKINN, sem falla til á heimilum þeirra, ættu þeir
að biðja KAUPFÉLAG sitt að koma þessum vörum
í vcrð. — SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur
NAUTGRIPAHÚÐIR, HROSSHÚÐIR, KÁLFSKINN,
LAMBSKINN og SELSKINN til útlanda OG KAUPIR
ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUNAR. — NAUTGRIPA-
IIÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN er bezt að
salta, en gera verður það strax að lokinni slátrun.
Fláningu verður að vanda sem bezt og þvo óhreinindi
og blóð af skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður
en saltað er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum vörum
sem öðrum, borgar sig. —