Tíminn - 14.12.1940, Blaðsíða 4
200
TlMlM, laiigardaginn 14. des. 1940
Yfiír landamærín
1. Merkileg samkeppni virðist vera
innan Kommúnistanokksins um að
bregðast hugsjónum. Ritstjórarnir Ein-
ar Olgeirsson og Sigíús Sigurhjartarson
standa þar, svo sem vera ber, í fremstu
röð. Einar þóttist hafa það fyrir stærstu
hugsjón lífsins, að berjast móti stríði
og nazisma. Nú knéfellur hann af að-
dáun yfir árás Rússa á Finna og fyrir
bandamönnum Stalíns í Þýzkalandi.
Sigfús þóttist vera einlægur bindindis-
maður, en nú er hann tekinn að afsaka
drykkjuskap ungmenna. Fróðlegt að
vita, hvort ritstjórar Þjóðviljans eiga
eftir nokkra hugsjón til að bregðast.
2. Ungur kommúnisti í Strandasýslu
heldur því fram með mikilli beiskju,
að jafnaldrar hans sem vinna launuð
störf í Reykjavík hafi selt sál og sann-
færlng. Af allri greinargerð mannsins
er auðséð, að honum hykir sér óvirð-
ing ger með því að enginn hafi boðizt
til að kaupa hann. Loksins hitti hann
þó erindreka Stalins. Þeir fá ríkulega
skammtaða aura frá Rússlandi. Þar
ætti að geta tekizt verzlun, og væri
jafnræði um manndóm beggja.
x+y.
„Þúsund ára gömul
vlnátta“
(Framh. af 1. aiOu)
jörð, sem ég vil bera fram fyrir
yður, herra forsætisráðherra og
ráðhei*rar, ósk, sgm öll norska
þjóðin tekur einnig undir, er
þessi: Heill og hamingja til
tíl handa íslandi."
Af hálfu ráðherranna svaraði
forsætisráðherra, Hermann
Jórmsson, ræðu sendiherra og
mælti á þessa leið:
„Herra sendiherra! Mér er það
mikil ánægja. af hálfu Táðu-
neytis íslands, handhafa kon-
ungsvalds, að taka á móti yður
sem sérlegum sendiherra og
ráðherra með umboði Hans Há-
tignar Noregskonungs, á íslandi,
og þakka um leið kveðju kon-
ungs og norsku stjórnarinnar.
Ég get fullvissað yður um, að
íslenzku þjóðinni er það kært,
að Noregur hefir nú sent hing-
að sérstakan sendiherra, því að
vinátta íslendinga til hinnar
norsku þjóðar er sterk og byggð
á náinni frændsemi og sameig-
inlegum arfi menningar og
sögu.
Ég get mæta vel áréttað þau
orð yðar, herra sendiherra, að
aldrei finnur maður betur til
þessa skyldleika og þess, hve
mikið þjóðirnar eiga sameigin-
legt, en einmitt þegar erfiðlega
gengur og timarnir eru hættu-
legir og örlagaríkir.
Er mér ánægja að geta skýrt
yöur frá því við þetta tækifæri,
að ríkisstjórn íslands hefir á-
kveðið, að sendimaður hennar
í London verði skipaður sendi-
fulltrúi íslands hjá norsku rík-
isstjórninni þar, til þess einnig
á þann hátt að skapa ný skilyrði
fyrir samvinnu að hugsjón
þjóða okkar.
Um leið og ég aftur býð yður
velkominn, get ég fullvissað yð-
ur um, að þér munuð mæta hjá
hinni íslenzku þjóð fullri vin-
áttu og skilningi, og í nafni
hinnar íslenzku þjóðar og ráðu-
neytis íslands, óska ég Noregi
heilla og blessunar.“
Eins og áður hefir verið skýrt
frá hér í blaðinu, var Esmarch
áður sendihena Norðmanna í
Kaupmannahöfn, en hefir auk
þess gegnt mörgum trúnaðar-
störfum í utanríkisþjónustu
Norðmanna.
Orðsendíng Srá sókn-
arneSnd Laugarness-
prestakalls
Sóknarnefndin vill beina at-
hygli sókngrmanna að þvi, að
enda þótt aðeins sé um einn
umsækjanda að ræða, fela
pTestskosningalögin það í sér, að
mjög er nauðsynlegt, að sem
allra flestir neyti kosningar-
réttar síns og sýni vilja sinn, því
að markmiðið er, að prestskosn-
ingin verði lögmæt. Þessi orð-
sending nær til allra atkvæðis-
bærra safnaðarmeðlima þjóð-
kirkjunnar, sem búa austan
Rauðarárstígs og Reykj anes-
bTautar, en þar eru skilin milli
sóknanna.
Við væntum þess fastlega, að
kjósendur sýni áhuga og kosn-
ingin verði prestakallinu til
sóma.
Anglýsið í Tímanum!
tlit BÆXUM
F. U. F. í Reykjavík
heldur kaffikvöld I Oddfellowhúsinu
uppi á þriðjudagskvöldið. Upphaflega
var ráð fyrir gert, að þetta kaffikvöld
yrði á föstudagskvöldið í þessari viku,
en sú breyting varð á, að því var
frestað til þriðjudagskvölds. Ýms
skemmtiatriði verða.
Prestskosningarnar
í Reykjavík fara fram á morgun í
þeim þrem prestaköUum, þar sem kjósa
skal presta. Kjörfundirnir hefjast kl.
10 árdegis. í Nesprestakalli verður kos-
ið í háskólanum, kjallara, gengið inn
um norðurdyr, og í Mýrarhúsaskóla.
Þeir, sem búa á Seltjarnamesi og við
Kaplaskjólsveg, eiga.að sækja kjörfund
í Mýrarhúsaskóla. í Hallgrímspresta-
kall verður kosið í Austurbæjarskólan-
um. í Laugarnesprestakalli verður kos-
ið í barnaskóla Laugarneshverfisins.
Kjósendur í Hallgrímsprestakalli mega
kjósa tvo, en þó er atkvæðaseðill ekki
ógildur, þótt aðeins sé kosinn einn. í
hinum prestaköllunum á aðeins að
kjósa einn prest. Kosningin er fram-
kvæmd með þeim hætti, að kjósandi
dregur kross fyrir framan nafn þess
prests, er hann vill kjósa.
•Bæjarráðið
hefir ákveðið að krefjast þess, að
setuliðið greiði 40 þús. krónur á ári
fyrir notkun vatns úr vatnsveitu
Feykj avíkurbæj ar.
Leikfélag Reykjaviltur
sýnir leikritið Öldur eftir séra Jakob
Jónsson í síðasta sinn annað kvöld, og
hefst sala aðgöngumiða í dag.
Á víðavangi.
(Framli. af 1. siSu)
þeir lánað fé í taprekstur
frá bönkum meðan til næst.
Þegar bankarnir eru að kom-
ast á höfuðið' tekur ríkið lán
handa þeim eflendis, meðan
þjóðin hefir nokkurt traust.
Þetta er gamalkunna leiðin.
Framsóknarmenn mæla ekki
með henni.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu)
Frægasti stjórnmálamaður Jap-
ana, Saionij prins, er látinn
fyrir skömmu. Hann var 91 árs.
Hann tók ekki beinan þátt í
stjórnmálum seinustu árin, en
réði jafnan miklu á bak við
tjöldin.
Jugoslavia og Ungverjaland
hafa gert með sér samning „um
ævarandi vináttu og samvinnu."
Sænsk blöð segja að nýlega
hafi verið gerð tilraun til að
ráða Quisling af dögum, er hann
var á ferð í Fredriksstad. Var
várpað að honum sprengjum.
Slapp hann ómeiddur, en fylgd-
arlið hans særðist.
Brezki flugherinn hefir eyði-
lagt járnbrautina til Addis A-
beba, sem er heízta samgöngu-
leið ítala í Abessiníu.
Japanir hafa viðurkennt kín-
verska leppstjórn í þeim hluta
Kína, sem þeir hafa á valdi sínu.
Heitir sá Vang Ching Weis, sem
veitir henni forstöðu. Það vekur
athygli, að Þjóðverjar viður-
kenna enn stjórn Chiang Kai
Shek.
Á krossgötnm.
(Framh. af 1. síðu)
Togarínn Hafsteinn bjargaði í síðast-
liðinni viku ensku vöruflutningaskipi
við Skotlandsstrendur. Urðu skipverjar
á Hafstein þess varir, er þeir voru á
leið til Englands raeð fiskfarm. Rak
það þá stjómlaust fyrir stormi og
straumi. Veittu íslendingamir hlnni
ensku áhöfn og skipi hennar aðstoð þá,
er þurfti til að komast heilu og höldnu
í höín.
Til auglýsenda!
Tíáiinn ei goflnn út í
flelri eintökum en nokk-
urt annað blað á Islandl.
Gildi almennra auglýs-
inga er 1 hlutfalli við
þann fjölda manna er les
þær. Timinn er ömggasta
boðleiðin til flestra neyt-
endanna í landinu. —
Þeir, sem vilja kynna vör-
ur sinar sem flestum
auglýsa þær þessvegna 1
Timanum
■-------------------------■
Hreinar
léreftstuskur
kaupír
Prentsmiðjan Edda
Llndargötu 1D.
125. blað
Þjóðmálanámskeið
(Framh. af 1. siðu)
ArnþóT Þorsteinsson, sölu-
stjóri: Iðnaðarmál.
Hólmgeir Þorsteinsson, bóndi
á Hrafnagili: Landbúnaðarmál.
Snorri Sigfússon, skólastjóri:
Menntamál.
Einar Árnason, alþingismað-
ur á Eyrarlandi: Störf og skipu-
lag Alþingis. -
Jónas Kristjánsson, mjólkur-
bússtjóri: Áburðarþörf land-
búnaðarins.
Páll Zóphóníasson, alþingis-
maður: Afurðasölulögin.
Jafnan fóru fTam umræður að
erindunum loknum.
Þrjú kvöid voru erindi flutt í
verzlunarmannahúsinu fyrir
flokksmenn almennt.Fluttu þau
dT. Kristinn Guðmundsson,
Þorsteinn M. Jónsson og Daníel
Ágústínusson.
í sambandi við námskeiðið
var haldinn útbreiðslufundur í
bæjarþingsalnum sunnudaginn
24. nóvember. Margir nemend-
anna á þjóömálanámskeiðinu
fluttu ræðúr á þeim fundi, auk
þeirra Hauks Snorrasonar og
Daníels Ágústínussonar. Hjört-
ur Gíslason, varaformaður F. U.
F. á Akureyri, setti þenna fund.
Hinn 25. nóvember var hald-
in skemmtun í Skjaldborg fyrir
námskeiðsfólkið og allmarga
gesti þess. Var þar Framsókn-
arvist, söngur og dans til
skemmtunar.
Átta piltar, sem á námskeið-
inu voru, stofnuðu tvöfaldan
kvartett.
Nemendur skoðuðu meðal
annars allar verksmiðjur S. í.
S. og K. E. A. á Akureyri og
kvikmyndir kaupfélagsins voru
þeim sýndar.
. Framsóknarfélag Akureyrar,
eða einstakir menn úr því, sáu
flestum námskeiðsmönnum fyr-
ir húsnæði og fæði á Akureyri.
Undirbúning námskeiðsins önn-
uðust Guðmundur Guðlaúgsson,
formaður Framsóknarfélags Ak-
ureyrar, og Haukur Snorrason,
ritari þess. Hefir félagið unnið
þýðingarmikið starf í þágu
Framsóknarstefnunnar á Norð-
urlandi með námskeiði þessu.
Námskeiðinu lauk með
skemmtun, er Framsóknarfé-
lag Akureyrar hélt laugardags-
kvöldið 30. nóvember. Þár fluttu
11 námskeiðsmenn stuttar ræð-
ur, og einn þeirra, Þórir Val-
geirsson frá Auðbrekku í Hörg-
árdal, flutti frumsamið kvæði.
Hinn tvöfaldi kvartett nám-
skeiðsmanna söng nokkur lög,
meðal annars söng ungra Fram-
sóknarmanna. Ennfremur fluttu
Daníel Ágústínusson og Guð-;
mundur Guðlaugsson ræður.
Húsfyllir var á skemmtun þess-
ari og fór hún að öllu mjög vel
fram.
Þess unga fólks, sem nám-
skeiðið sótti, bíður mikið og
veglegt starf heima í héruðun-
um. Þar er hvarvetna þörf
djarfmannlegrar baráttu fyrir
málstað Framsóknarflokksins.
Erindreki flokksins sinnir nú
fundahöldum meðal flokksfé-
laganna í Eyjafjaðarsýslu. Mun
hann ferðast um Norðurland
fram eftir þessum mánuði.
ALLIR ÞEIR,
sem annast hafa innheimtu fyr-
ir Tímann, eru beðnir að gera
skil sem fyrst, vegna áramóta-
uppgjörs blaðsins.
Ennþá er tækifæri að
ná í örfá eintök af
þessu stærsta og lang-
merkasta smásagnasafni, sem til er á
íslenzku. Bókamenn og lestrarfélög,
Notið síðasta tækifærið og eígnizt alla
Dvöl frábyrjun.
DVÖL. pósthólf 1044, Reykjavík.
IJtbrelðið Tímauii!
Lelkf élag Reykjavlknr
Öldiir
eftir
séra Jakob Jónssou
frá Hrauni.
Sýníng annað kvöld
kl. 8,30
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag.
Jólamarkað-
ur í KRON
Bðkunarvörur
Hveiti í smápokum
Hveiti 1. fl. 0.60 kg.
Möndlur
Kokosmjöl
Strausykur
Skrautsykur
Sýrop
Marsipanmassi
Yfirtrekks-
súkkulaði
Lyftidiift
Eggjagult
Hjartarsalt
Flórsykur
Sultiir
Svínafeiti
Kúmen
Kardemommur
IVegull
Múskat
Jurtafeiti
Dropar
Kakaó
o. m. fleira
Jólavörur
Jólakerti
Antikkerti
Vindlar
Súkkulaði
Konfekt i öskju og
lausri vikt.
Sælgæti
Spil
öl
Gosdrykkir
. Epli, Sveskjur og
jólatré koma
5% í pöntun
tekjuafgangur eftir
árið
upfelaqió
•““"“GAMLA BÍÓ °
Hver er faðírínn?
(BACHELOR MOTHER)
Fjörug og skemmtileg
amerísk kvikmynd frá
Radio Pietures.
Aðalhlutv. leika:
GINGER ROGERS
og
DAVID NIVEN.
Sýnd kl. 7 og 9.
—NÝJA BÍÓ
Sakleysmginn
úr sveitmni.
(THE KID
FROM KOKOMO).
Hressilega frjörug amerísk
skemmtimynd frá Warner
Bros.
Aðalhlutv. leika:
WAYNE MORRIS,
JANE WYMAN,
PAT O’BRIEN,
JOAN BLONDELL
og gamla konan
MAY ROBSON.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
Viffskipttivinttm ntínunt unt aUt land
óska éfi ifleðiSei/ru jjóla.
Otto H. Amar
útvarpsvirkjameistari, Reykjavík
Tilkrnning
frá ríkisstjórninni.
Þar til öðruvísi verður ákveðið munu hin brezku
varðskip, sem hafa eftirlit með siglingum við Reykja-
vík, halda sig kringum 0,7 sjómilur í 300° stefnu frá
Engeyjarvita.
Reykjavík, 13. desember 1940.
Beztu matarkaupin x
til jólanna
gera þeir sem verzla við búðlr vorar.
Matardeildin
Hafnarstræti 5. — Sfmi 1211.
Matarbúðin
Laugavegi 42. — Sími 3812.
Kjötbúð Austurbæjar
Njálsgötu 87. — Sími 1947.
Kjötbúðin
Skólavörðustíg 22. — Sími 4685.
Kjötbúð Sólvalla
Sólvallagötu 9. — Sími 4879.
Pantið sem fyrst, því að af sumum tegundunum eru
birgðir takmarkaðar.
Slúturfélag Suðurlands.
Muníð hína ágætu
Sjafnar blautsápu
I 1/2 kg. pökkum.
Sápuverksmiðjan Sjöfn.
Heildsölubirgðir hjá:
SAMBANDl fSL. SAMYINNIJFÉLAGA.