Tíminn - 07.01.1941, Page 4
8
TÍmTVN. þrigjMdaginn 7. janúar 1941
2. blað
Þorsteinn Einarsson
(Framh. af 1. síðu.)
allt í senn: leikfimi, glímu og
frjálsar íþróttir.
Sjálfur er Þorsteinn hinn
fjölhæfasti og glæsilegasti í-
þróttamaður. Hann er glímu-
snillingur mikill og hlaut feg-
urðarverðlaun við Íslandsglímu.
Hann skaraði og fram úr í ýms-
um greinum frjálsra íþrótta, og
loks var hann einn meðal hinna
ágætustu fimleikamanna og var
fánaberi í einni utanför Jóns
Þorsteinssonar íþróttakennara
og fimleikaflokks undir hans
stjórn. Þorsteinn sótti einnig
Olympíuleikana í Berlín, þá sem
íþróttakennari, og kynnti sér
tilhögun íþróttavalla og skipu-
lag íþróttamála erlendis, eink-
um í Þýzkalandi.
Starfssvið íþróttafúlltrúa er
að hafa umsjón með íþrótta-
starfsemi í skólum, vera í-
þróttafélögum til aðstoðar, gera
tillögur um íþróttaframkvæmd-
ir og vinna á annah hátt að
eflingu íþrótta í samráði við í-
þróttanefnd og ríkisstjórn.
Veifting prests-
embættanna í Reykjav.
(Framh. af 1. síðu.)
enginn umsækjenda fær helm-
ing greiddra atkvæða. Hver get-
ur sagt um vilja þeirra 5000
’kjósenda, sem raunverulega
hafa ekki sagt álit sitt um
hvern einstakan af umsækj-
endunum? Það er því ekkert til,
sem heitið getur meirihluta-
vilji kjósendanna í þessu máli,
og þess vegna algerlega óleyfi-
legt, að tala um, að lýðræðis-
reglur hafi verið brotnar.
— Hvernig var með veitinga-
valdið, þegar prestum var fjölg-
að hér í Reykjavík fyrir nokkr-
um árum?
■— Það var bætt við tveimur
prestum hér í bænum sam-
kvæmt sérstakri heimild, en þeir
voru kvaddir til starfa sam-
kvæmt ákvörðun kirkjumála-
ráðherra. í þinginu komu fram
raddir um það, að Reykvíking-
ar vildu fá að neyta kosningar-
réttar síns samkvæmt prests-
kosningalögunum frá 1915. Ég
beitti mér fyrir því, og vil leyfa
mér að segja, að ég hafi átt
stærstan þáttinn í því, að prest-
um var fjölgað hér í Reykja-
vík. Fannst mér einnig eðlilegt
og sjálfsagt, að Reykvíkingar
fengju eins og aðrir að neyta
atkvæðisréttar síns samkvæmt
lögunum frá 1915. Nú hefir
þessi kosning farið fram. En
þrátt fyrir það, að engum er
Eftirftaldar vörur
höfum við venjulega til sölu:
Frosið kindakjöt af
dilkum — sauðum — ám.
Nýtt og frosiðS nautakjöt,
Svínakjöt,
I rvals saltkjöt,
Ág’ætt hangikjöt,
Smjör,
Ostar,
Smjörlíki,
Mör,
Tólg,
Svið,
Lifur,
Egg,
Harðfisk,
Fjallagrös.
Samband ísl. samvinnuiélaga.
auðveldara um kjörsókn en
kaupstaðabúum, hefir kosning-
in orðið ólögmæt, og veitinga-
valdið því komið í hendur
kirkjumálaráðherra. Prests-
kosningin er því þáttur, sem
nú er úr sögunni í þessu máli,
bæði að landslögum og lýðræð-
isreglum.
í Nesprestakalli hefi ég á-
kveðið að veita sr. Jóni Thorar-
ensen embættið. Þótt kosning
hans yrði ekki lögmæt, þá fékk
hann nálega þrisvar sinnum
hærri atkvæðatölu en sá næst-
hæsti og tel ég það sýna vilja
kjósendanna.
í Laugarnessókn var aðeins
einn umsækjandi, sr. Garðar
Svavarsson, og mun honum
verða veitt embættið, þótt
kosning hans yrði ekki lögmæt.
í Hallgrímssókn er vilji kjós-
endanna mjög skiptur. Þeir
fjórir prestar, sem hæsta at-
kvæðatölu hlutu, eru eftir því
sem ég bezt veit, allir dugandi
menn í sinni stétt. Tveir þeirra,
sr. Sigurbjörn Einarsson og sr.
Jakob Jónsson, hafa sýnt það,
að þeir eru ekki aðeins miklir
hæfileikamenn á sviði kirkju-
legra málefna, heldur einnig á
öðrum sviðum. Annar þeirra
hefir um alllangt skeið dvalið
við framhaldsnám í Svíþjóð.
Hinn hefir um mörg ár verið í
þjónustu íslenzku þjóðkirkj-
unnar, og auk þess starfað
lengi í byggðum Vestur-íslend-
inga í Canada. Báðir eru þeir
prýðilega ritfærir og snjallir
ræðumenn. Mér virðist þessir
tveir úmsækjendur líklegastir
til að flytja nýja og holla
strauma inn í kirkju- og trúar-
líf Reykjavíkur, en undanfarið
hefir verið fremur dauft yfir
þVÍ. *
— Hvaða reglum hefir verið
fylgt undanfarið við veitingu
prestsemb ætta?
— Fyrverandi biskup, dr. Jón
Helgason, mun hafa fylgt þeirri
reglu, að mæla með þeim í em-
bættin, er hæsta atkvæðatölu
hlutu við kosningar. Hins veg-
ar mun Þórhallur biskup ekki
ávallt hafa fylgt þeirri venju.
Má sem dæmi nefna, að árið
1913 mun hann og Hannes Haf-
stein hafa veitt presti embætti
þrátt fyrir þaö, að hann fékk
lægsta atkvæðatölu við kosn-
inguna. Þó voru þá í gildi lögin
frá 1907, sem komust svo að
orði, að ráðherrann þyrfti „ekki
beinlínis“ að fara eftir kosn-
ingunni. En eins og áður er tek-
ið fram, var þessum lögum
breytt árið 1915, og tekin af öll
tvimæli um rétt veitingavalds-
ins til þess að velja í embættin,
hvern af umsækjendum, sem
því sýndist. Það er augljóst mál,
að um leið og kjósendurnir
hafa afsalað sér valdi, sem þeim
er heimilað með prestkosninga-
lögunum, eru það ekki lengur
þeir heldur veitingavaldið, sem
ábyrgð ber á veitingunni og á
þá vitanlega að velja í em-
bættin eftir eigin reglum og á
sína ábyrgð. Jafn auðsætt er
það, að Alþingi myndi hafa sett
það í prestkosningalögin, ef til
þess hefði verið ætlazt, að þeir
prestar hlytu embættin, sem
flest atkvæði fengju við kosn-
ingar, þótt ólögmætar væru. Ef
ætlazt er til þess, að sú regla
verði tekin upp, þá er lang ein-
faldast að lögleiða hana, og losa
veitingavaldið við alla ábyrgð
af vali prestanna.
En sannleikurinn er sá, að
þessi lög, sem eru ein af þeim
fáu, er ákveða, að kjósendurn-
ir skuli ráða veitingu embætta,
hafa reynzt þannig, að mikil
misklíð hefir myndazt í sam-
bandi við prestskosningar víð-
ast hvar, og munu margir
fremur vera þeirrar skoðunar,
að prestskosningar bæri heldur
að afnema en að ákveða skil-
yrðislaust, að þeir skuli hljóta
embættin, sem flest fá atkvæð-
in. Það væri að búa til skrípa-
mynd af lýðræðinu, sem lögin
frá 1915 hafa þó reynt að fyrir-
byggja.
— Hafið þér heyrt, aff hér
eigi að stofna fríkirkjusöfnuð?
— Mér er fullljóst, að eftir
kosningar, sem sýna svo óljósan
og skiptan vilja kjósendanna,
verður alltaf einhver óánægja
í sambandi við veitingu em-
bættanna. Ég hefi sannfærzt
um þetta af viðtölum við marga
menn. Sú hætta, að fríkirkju-
söfnuður yrði myndaður, var því
fyrir hendi úr mörgum áttum.
Mér er kunnugt um, að sumir
af yfirmönnum kirkjunnar
telja nokkra hættu á þvi, að
frfkirkjusöfnu,ðir verði mynd-
aðir. Ég sé hins vegar ekkert
hættulegt við þetta. íslenzka
þjóðkirkjan er engin einokun-
arstofnun með trúarbrögð.
Mönnum er frjálst að mynda
fríkirkjur eftir vissum reglum.
Ég myndi aðeins telja það vott
um aukinn trúaráhuga. Fri-
kirkjusöfnuður hefir undanfar-
iö starfað hér í Reykjavík með
góðum árangri og engum deil-
um valdið eða misklíð um trú-
arleg efni.
Leikfélag Reykjavíknr
»H ÁI ÞÓR«
eftir MAXWELL ANDERSON.
Sýninpr annað kvöld
kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag.
ISörn fá ekki aðgang.
Hagkvæm
matarkaup
Reykt
tryppakjöt
Verð:
Síður . . . 2,50 pr. kgr.
Bógur. . . 2,70 — —
Læri. . . . 2,80 — —
Tryppakjöts-
bjúgu . . . 2,25 — --
Laugaveg 39.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. siðu.)
hláku, svo að jörð varð alauð. Hélzt
svo til 20. febrúar. Þá breyttist tíð og
gerði fjögurra sólarhringa dimmviðri.
Eftir það var fremur kalt og veður
óstöðug til sumarmála, en alltaf næg
jörð. 7. apríl gerði dimmviðri, svo að
ekki birti upp. Um sumarmál tók upp
allan snjó og voru þíðviðri til aprilloka.
Eftir það voru kuldar til 20. maí. Þá
brá til sunnanáttar og voru hlýindi og
ágæt tíð fram að sólstöðum. Fjárhöld
voru góð um vorið, fé bæði vel fóðrað
og hraust. — Um veðurfar á Jökuldal
síðara hluta árs segir Bjarni: Síðari
hluti sumarsins var kaldur. Nokkra
sólarhringa seint í ágúst fór aldrei
frost úr jörðu. 7. september var al-
182
Robert C. Oliver:
Æfintýri blaðamannsins
183
mennt farið að gefa kúm. Fé reyndist
— Mody hægði á sér, og leit spyrj-
andi á Taylor.
— Hvers vegna erum við að fara
hingað upp?
— Duval bíður eftir yður.
— Ég verð að biðja um frekari skýr-
ingu. Hér er ekki allt með feldu--.
Mody opnaði munninn til að gefa
skýringu, en i sama bili miðaði Taylor
skammbyssu á hann.
— Mér þykir leitt ef ég hefi yður
fyrir rangri sök — og sé svo, veit ég að
þér bæði skiljið það og afsakið. Upp
með hendurnar!
Mody rétti brosandi upp hendurnar.
— Þér eyðið dýrmætum tíma með
þessu-----Taylor.
Mody hreyfði sig ekki. Hann sá að
hendur Cabera nálguðust fætur Tayl-
ors — nú greip hann um öklana og
kippti í — Taylor missti jafnvægið og
féll — og í sama vetfangi voru báðir
mennirnir ofan á honum.
— Þetta grunaði mig, muldraði Tay-
lor, vonzkulega.
Á örfáum augnablikum komu þeir svo
Taylor á öruggan stað, þar sem alveg
var vonlaust fyrir hann að ná sam-
bandi við hinn löghlýðna umheim.
Cabera og Mody dustuðu af sér rykið
og löguðu hálsbindin áður en þeir gengu
niður í anddyrið, sem bergmálaði af
hávaða og skrafi dansmeyjanna, sem
ekkert vissu um þá atburði, sem verið
höfðu að gerast, þó að þær væru I raun
og veru orsök þeirra.
Allt endurtók sig: Bob skrifaði nöfn
þeirra í gestabókina — fyrir siðasakir.
Nú voru þær komnar á ákvörðunar-
staðinn. — Hlutverki Bobs var lokið og
honum fannst hann vera glæpamaður.
Hann var mjög undrandi yfir því, þeg-
ar hann allt í einu stóð augliti til aug-
litis við Cabera, sem hann hugði vera í
London. Cabera brosti og sló á öxlina á
Bob eins og í viðurkenningarskyni.
Nú var eins og ró og friður færðist
yfir „Hótel Ferdinand." Leikurinn var
unninn, og arðurinn af sigrinum var
tryggður. Cabera mátti, ásamt Mody,
kalla sig heppinn, að hafa losnað við
tvo mótstöðumenn sína, Pierre Duval á
leiðinni og John Taylor, sem hafði flog-
ið beint í net þeirra. Nú voru aðeins
tveir til þrír leikir eftir og taflinu var
lokið í þetta sinn.
Niðri við höfnina lá skip tilbúið að
flytja hinar lifandi vörur yfir Miðjarð-
arhafið. Skipstjórnn beið nú aðeins eft-
ir frekari fyrirskipunum — og hinni
sorglegu, hættulegu bannvöru.
í fréttum útvarpsins þetta kvöld var
getið um mjög dularfullan atburð er
skeð hafði þá um daginn.
ekki eins vænt til írálags og haustið
áður, og munu kuldamlr hafa valdið.
5. október rak niður svo mikinn bleytu-
gadd, að slíkt snjólag hefi ég ekki séð
fyrr svo snemma hausts, þau 17 ár,
sem ég er búinn að vera hér. Heyskap-
ur gekk stirt frá 18. sumarhelgi, þótt
grasvöxtur væri sæmilegur. Frá þeim
tíma til 23. september náði enginn
maður bagga. En þá komu þurrkar, og
náðist allt vel þurrt. Mátti þá telja
heyfeng sæmilegan, og miklar voru
heyfyrningar frá síðastliðnu vori. í
haust var líka keypt óvenju mikið af
síldarmjöli, vog ættu menn að þola
harðan vetur. Slátrun var mikil í
haust. Frá Eiríksstöðum á Jökuldal
var til dæmis rekið 500 fjár og 300 frá
Hvammi. Flest sláturfé frá einum
bónda kom frá Benedikt Gíslasyni í
Hofteigi, 272 kindur. Þetta heimili á
fyrir 10 bömum að sjá, en fjölskyldan
fleytir fram búinu að mestu án að-
keyptrar vinnu.
r t r
Á sunnudaginn hljóp eldur i skúr,
er útlenda setuliðið hefir byggt sér við
gistihúsið Valhöll á Þingvöllum. Magn-
aðist hann skjótlega, en þó tókst að
forða því að gistihúsið brynni. Var það
til hjálpar við slökkvistarfið, að logn
var á. Ella hefði Valhöll að líkindum
brunnið. i
■■11 ■■ Giv MLA BÍÓ°—°—°—
•J iiiires
Söguleg stórmynd frá
Warner Bros, er sýnir
mikilfenglega þætti úr
æfisögu Benito Juarez,
frelsishetj u Mexico.
Aðalhlutverkin leika:
PAUL MUNI
og
BETTE DAVIS
{mmnmtmmtmmtumuwtmttmttmmtuuummtmnmmtmmmmnnttmntt
| GLEÐILEGT NÝÁR: |
IÞökk fyrir viðskiptin á liðna árinu
BiSreiðasftöðin BiSrösft. I
mwtwwtttttttmtttttmttttttmtttttmtwmwwtttttmmmmwwwttmmtttttmtt
Tilkynniné
til biSreiðaeigenda.
Athygli bifreiðaeigenda í Reykjavík skal
vakin á því, að ábyrgðartryggingargjöld fyrir
fyrir tímabilið frá 1. janúar til 1. júlí 1941 eru
fallin í gjalddaga.
Ber bifreiðaeigendum að sýna á lögreglustöð-
inni, Pósthússtræti 3, fyrir 14. þ. m. kvittanir
fyrir greiðslu iðgjaldanna.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 6. janúar 1941.
Agnar Koíoed-Hansen.
Úrsmíðanám.
Reglusamur laghentur piltur 16—18 ára, getur komist i læri
nú þegar á góðu verkstæði. Mynd og meðmæli óskast. Æskilegt
að viðkomandi geti lagt fram smíðisgrip eða annað, er beri vott
um hagleik.
Umsóknir með greinilegu heimilisfangi þurfa að vera komnar
til blaðsins fyrir 1. febrúar merkt „Úrsmíðanám“.
Tílkynning
til ínniiytjenda
irá Gjaldeyris- og ínnílutningsneínd
Hér með vill nefndin vekja athygli innflytjenda
vefnaðarvörux búsáhalda og skófatnaðar á því, að út-
hlutun leyfa fyrir ofangreindum vörum stendur nú yfir
og er því nauðsynlegt að þeir, sem ekki hafa þegar sent
umsóknir sínar til nefndarinnar, geri það nú þegar.
Það skal tekið fram að leyfi fyrir vörum þessum
verða, af gjaldeyrisástæðum, bundin við kaup frá Bret-
landi. Afgreiðsla á leyfum fyrir öðrum vörum frá Bret-
landi fer nú einnig fram og verða umsóknir afgreiddar
jafnótt og þær berast.
Að því er snertir leyfi til vörukaupa frá Ameríku
skal þess getið að slík leyfi verða ekki veitt fyrir lengri
tímabil í senn heldur aðeins fyrir einstökum pöntun-
um eða sérstaklega tilteknum kaupum og verða ákvarð-
anir um slíkar leyfisveitingar teknar að undangenginni
rækilegri athugun. Þurfa umsækjendur því að gera
nefndinni rækilega grein fyrir -öllum umsóknum um
gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir vörum frá Amer-
íku og eru innflytjendur stranglega áminntir um að gera
engar ráðstafanir til vörukaupa þaðan nema að fengnu
leyfi.
Reykjavík, 3. janúar 1941.
Gjaldeyris- og ínnilutníngsnefnd.
§endiiYelnar
geta fengið aftvinnu nú pegar.
Mjólkursamsalan.
Sýnd klukkan 6.30 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
,—<■—°—°. nýja bíó •"'—°~°~
KOMDU,
EF ÞÚ ÞORIR
(STAND UP AND FIGHT)
Amerísk stórmynd, tekin
af Metro Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
WALLACE BEERY
og
ROBERT TAYLOR.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan
14 ára.