Tíminn - 18.01.1941, Qupperneq 4

Tíminn - 18.01.1941, Qupperneq 4
28 TÍMINIV, langardagiim 18. jjanáar 1941 7. blað ÚR BÆIVUM í næsta blaði birtist grein eftir Sigurð Baldvinsson póstmeistara um ráðstafanir póststof- unnar í sambandi við skipaferðir til Vestmannaeyja í byrjun mánaðarins. Árshátíð Samvinnuskólans. Nemendur samvinnuskólans halda árshátíð í Oddfellowhúsinu annað kvöld. Til skemmtunar verða ræður, gamansöngvar og dans. Aðgöngumiðar fást í Samvinnuskólanum til klukkan 4 í dag og í Oddfellowhúsinu eftir klukk- an 5 á morgun. Kosning fulltrúa á flokksþing. Framsóknarfélög í Reykjavík hafa bæði kosið fulltrúa sína á flokksþingið. Félag ungra Framsóknarmanna hélt fund sinn á fimmtudagskvöldið. Af þess hálfu voru kosnir: Þórarinn Þór- arinsson, Ólafur Jóhannesson, Jón Emil Guðjónsson, Jón Helgason, Egill Bjarnason, Guðmundur V. Hjálmars- son og Jóhannes G. Helgason. — Fram- sóknarfélag Reykjavíkur hélt fund í gærkvöldi. Kosnir voru þessir fulltrúar: Kristjón Kristjónsson, Jens Hólmgeirs- son, Jón Eyþórsson, Hilmar Stefáns- son, Þórir Baldvinsson, Rannveig Þor- steinsdóttir, Guðlaugur Rosinkranz, Guðjón Teitsson, Jakobína Ásgeirs- dóttir, Magnús Björnsson, Sigurður Baldvinsson, Sigurður Jónasson, Sig- urður Thorlacius, Eiríkur Hjartarson og Helgi Lárusson. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Rvík heldur fund í Edduhúsi á þriðjudagskvöld. Bréfahvarfið. Magnús Torfason biður þess getið, að bréfið, sem horfið hafi og kæra hans átti við, hafi komið fram milli hátiða, Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Baldvinssyni póstmeistara fannst bréf- ið hjá Agli Thorarensen. Geta Rrctax* uimið? . . (Framh. aj 1. síðu.) leið frá landamærum Spánar til nyrztu tanga Noregs. Varn- arlína þessi fer mjög eftir staðháttum. Þýzk blöð telja hana engu ótraustari en Sig- friedlinuna. Þetta sýnir, að Þjóðverjar telja það ekki ó- hugsanlegt, að þeir þurfi að verjast brezkri innrás. í brezkum blöðum er furðu hljótt um þetta mál. Ýmsir málsmetandi menn Breta, eins og t. d. Churchill, gefa líka í skyn, að aðalsókn Breta muni ekki byrja fyr en 1942 eða 1943, jafnvel ekki fyr en 1944. Það sé fullkomið leyndarmál, hvern- ig henni verði hagað, enda verður þá margt orðið breytt frá því, sem nú 'er. En það er þó kúnnugt, að brezki herinn er öllu meira æfður til þess að geta verið í sókn en vörn, eink- um hefir sú tilhögun verið tek- in upp eftir ósigurinn i Frakk- landi. Þær framfarir, sem hafa síðan orðið í brezka landhern- um, eru taldar einstæðar. Af umræðum um þessi mál virðist helzt mega ráða, að Bretar byggi sigurvonir sínar að einhverju leyti eða að mestu leyti á uppgjöf þýzku þjóðar- innar. Hún muni bogna löngu á und'an hernurr»og hann muni ekki geta haldið uppi sigur- sælli baráttu á þeim vígstöðv- um, þótt gripið yrði til enn meira harðræðis en nú tíðkast. Það þykir glæða þessar vonir, að Berlínarfréttaritarar ýmsra erlendra blaða, sem eru hlyntir nazistum, telja sig orðið sjá nokkur þreytumerki á þjóðinni. Meðal annars hefir sænska Aftonbladet, sem ermjöghlynnt Þjóðverjum, birt fyrir nokkru grein eftir fréttaritara sinn í Berlín, þar sem sagt ^r að sig- urgleði þjóðarinnar sé ekki jafnheit og áður og þreytan geri orðið vart við sig á mörg- um stöðum. Þessu veldur margt: Styrjaldarerfiðið, marg- víslegar takmarkanir á lífs- þægindum, vaxandi loftárásir og vonbrigði út af vanefndum loforðum um skjótan sigur. Bretar segja, að þótt Þjóðverj- ar séu hraust og dugandi þjóð, geti þeir ekki keppt við þá í út- haldi og þrautseigju. í áðurnefndri grein í Afton- bladet er vikið að því, að marg- ir Þjóðverjar séu þeirrar skoð- unar, að Bretar verði ekki sigr- aðir með loftárásum á borgir eða kafbátahernaði gegn kaup- förum. Innrás sé það eina, sem geti ráðið úrslitum. Það virðist eins og kafbáta- hernaður Þjóðverja sé farinn út um þúfur a. m. k. í bili. Seinustu þrjár vikur síðastlið- ins árs varð kaupskipatjón Breta langt fyrir neðan viku- meðaltal ársins, og fyrstu vik-. ur ársins 1941 varð það minna en það hafði verið áður í nokk- urri einni viku seinustu átta mánuði. Þetta þykir stórum merkilegra sökum þess, að Þjóðverjar tilkynntu fyrir nokkru, að þeir hefðu sent 100 nýja kafbáta til árása á kaup- för Breta. Þjóðarútgáfan (Framh. af 3. síðu) Úrval íslenzkra bókmennta tryggir verndun málsins og ljóðagáfunnar. Úrval erlendra skáldsagna verður mælikvarði um gildi innlendra nútíma bók- mennta. Saga mannkynsins og speki mannfélagsfræðinnar efl- ir borgaralegan þroska, á tím- um, þegar nýjar, framandi stefnur vilja rífa þjóðfélagið til grunna. Bækur um meginiat- riði náttúrufræðinnar er leið- beining áleiðis inn í forhöll náttúruvísindanna. En á þeim er byggð tækni og verkfram- kvæmd nútímans. Ferðasögur um framandi lönd næra ímynd- unarafl og æfintýraþrá. Fræði- greinar um nútímamál þjóðar- innar og um skáldskap hennar og list eiga erindi til allra hugsandi manna. Þessi skipulagða útgáfa á að vera kjölfestan í sjálfmenntun þjóðarinnar. Hún á að bjarga frá eyðileggingu lestrarþrá al- mennings, valdi æskunnar yfir móðurmálinu, rímgáfunni og skáldskaparhneigðinni. En ut- an við þennan innsta hring koma útvirki. í skjóli við skipu- lag og tækni þjóðarútgáfunnar má leysa þýðingarmikil vanda- mál, sem lengi hafa beðið úr- lausnar. Eg á þar við útgáfu Sögu íslendinga í Vesturheimi, íslandssögu í 10 bindum og dreifingu fornritanna til al- mennings. Frh. J. J. NÝ BÓK: SVÍÞJÓÐ Á VORUM DÖGUM eftir GUÐLAUG BÓSIÁKRMZ yfirkennara. Ljós og falleg lýsing á fallegu landi og frjálslegu fólki, prýdd miklum fjölda fagurra mynda. — Sá, sem les bókina, hefir þegar ferðast um Svíþjóð, þótt hann hafi þar aldrei komið. Hinir mæta vini og kunningja á hverri síðu. Bókin er um 200 blaðsíður í stóru broti og kostar þó aðeins 10 kr. — Fæst I bókaverzlunum. — Bækur (Framh. af 3. siSu) fróðleg grein og vel skrifuð, eins og annað það, sem Oddný ritar. Meðal annars efnis er smá- grein eftir Guðbjörgu Jóns- dóttur i Broddanesi, í rökkr- inu, Við spyrjum, um bannið gegn því að börn selji blöð á götum bæjarins, eftir Maríu J. Knudsen, tvö kvæði eftir Huldu, kvæði eftir Ólínu And- résdóttur og örstuttur greinar- stúfur um Guðrúnu Indriða- dóttur leikkonu. J. Leikfélag Reykjjavíknr »H Á I Þ Ó R« eftir MAXWELL ANDERSON. Sýníng annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag. 1-------GAMLA BÍÓ-~—- Barátta lífs og clauða (Disputed Passage) Amerísk kvikmynd, gerð eftir skáldsögu læknisins og rithöfundarins Lloyd C. Douglas. Aðalhlutv. leika: DOROTHY LAMOUR, AKIM TAMIROFF og JOHN HOWARD. Sýnd kl. 7 og 9. -----^—NÝJA BÍÓ —------ Það fljúga fleiri en englar. (Only Angels Have Wings) Amerísk sfórmynd frá Columbia Film. Aðalhlutv. leika: GARY GRANT, JEAN ARTHUR, RITA HAYWORTH og RICH. BARTHELMESS. Aukamynd: Fox Movitone News. (Stríðsfréttamynd). Sýnd kl. 7 og 9. J|ö rðin Iimsti-Vogur í Innri-Akraneshreppi er laus til ábúðar nii þegar eða 14. maí n. k. Ennfremur getur væntanlegur ábúandi fengið keypta alla þá áhöfn, sem nú er á jörðinni, sérstaklega ef samningar um ábúðina takast sem fyrst. tJtbreiðið Tímann! Börn fá ekki aðgang. Allar nánari upplýsingar gefur oddviti Ytri-Akraneshrepps. Happdrætti Háskóla íslands Tilkvnning til viðskiftavina um land alt. Vegna breytíngfar á verdlagi hefír ríkisstjórnín með bráða- birgðalögum í dag ákveðíð, að verd happdrættísmiða breytist úr 60 kr. heilmiði á ári í 80 kr. og par af leiðandi hálfmidi úr 30 kr. í 40 kr. og fjórðungsmiði úr 15. kr. í 20. krónur, en um leíð hækka allir vinningar að sama skapi. Aukníng vinninga verður með pessu móti 350000 kr. á ári. og vinníngar samtals 1 milljón ©g 400 þns. krónnr í stað 1 mílljón og 50 þúsund krónur áður Verða á mánuði sem hér segír: fjórðungsmiði Kr. 2,00 hálfmiði — 4,00 heílmíði — 8,00 Reykjavík, 16. janúar 1941. \ Stjórn Happdrættis Háskóla íslands Magnús Jónsson Alexander Jóhannesson Bjarni Benediktsson 202 Robert C. Olivers Þetta voru nýjar upplýsingar fyrir Taylor, sem til þessa hafði álitið, að Cabera væri hin óþekkta tala í dæm- inu. En hann lét sem ekkert væri. Cabera stóð nokkra stund og naut áhrifa orða sinna. Hann var upp með sér yfir þvl að vera hinn sterki á þessu augnabliki, og sló öskuna fyrirmann- lega úr vindlinum. — Þér hafið orð fyrir að vera gáfað- ur maður, John Taylor, hélt hann á- frarft. Það mun koma í ijós hvort svo er. Ef að þér eruð eins gáfaðir og orð er á gert, ættuð þér að vera undr- andi yfir, að við skulum ekki fyrir löngu vera búnir að hengja yður upp i sigluna og haft yfir fyrir skotmark, — yður mun gruna, að ég hefi aðrar ráðagerðir með yður. Það má vera, að þér fáið að bíða nokkra ánægjulega daga, ef þér veigrið yður við að tala. — Þér vitið sjálfsagt að við — við, sem erum í þjónustu skipseigandans — við vitum mætavel um allt, sem fram fer innan Scotland Yard — nei, ég mis- talaði mig — yið vitum ekki allt, að- eins sumt — og við viljum launa vel fyrir að fá fullkomnari upplýsingar um þetta „sumt“, sem trúverðugur maður, eins og þér, væruð fær til að láta okk- ur í té. Hefi ég talað nógu greinilega? — Ég er ekki svo skilningssljór, að ég Æfintýri blaðamannsins 203 hafi ekki skilið tilboð yðar, svaraði John. — Viljið þér ekki taka því. Ég skal endurtaka það ofurlítið gr.einilegar, til þess að sökin sé ekki hjá mér. Við erum enn ekki orðnir það gamlir, að við leggjum árar í bát. Þegar þessari ferð er lokið, byrjum við á nýjan leik, en við viljum vera öruggir. Við höfum allt- af haft þá reglu í hávegum, að ganga tryggilega frá öllum hnútum, áður en við tökum okkur eitthvað nýtt fyrir hendur. Þér, sem vitið svo margt við- víkjandi Scotland Yard, gætuð áreiðan- lega gefið okkur margar upplýsingar og sparað okkur mörg óþægindi. Og *þér eruð áreiðanlega ekki svo heimskir, að láta þetta tækifæri ganga yður úr greipum. Ef þér hagið yður skynsamlega spar- ið þér áhöfninni óþarfa fyrirhöfn — en um leið missum við af þeirri skemmtun að sjá hákarlana stökkva upp úr sjónum, til þess að reyna að ná í mann, sem hangir rétt fyrir ofan vatnsborðið. Þér megið trúa því, að við erum uppfyndingasamir þegar við þurfum að fá þráan mann til að tala. Hingað til hefir okkur tekizt að liðka á þeim málbeinið. Það var einu sinni einn náungi, sem ekki var hægt að toga orð út úr. En þegar sá grái var jVotknn móviiuijsluvél- anna í sumar (Framh. af 3. síðu) það af hinu óhagstæða tíðar- fari í sumar og slæmum þurk- völlum víðast hvar. Lánstofn- anir þær, sem hafa lánað fé til þessarar starfsemi hafa ekki haft fullnægjandi eftirlit með því, að hún væri rétt rekin og jafnvel ýtt undir aðgæzluleysið. Þannig var t. d. lánuð ákveðin upphæð fyrir tiltekið magn af blautum mó og hugsuðu því sumir meira • um að ná sem mestum mó upp á grafarbakk- ann en um þurklandið. Slíkt þarf að varast með bættu eftir- liti í framtíðinni. Fleiri ágallar gera vitanlega vart við sig í byrjuninni og ætti því að mega búast við betra árangri, þegar hægt verður að byggja meira á reynslu. Á krossgötnm. (Framh. af 1. síðu.) hækkun hafi verið óhjákvæmileg til þess, að standa í skilum um vexti og afborganir af lánum þeim, er tekin hafa verið til háskólabyggingarinnar, og standast kostnað við að ljúka því, sem enn er ógert. Óðinn tekur bát í landhelgi Varðbáturinn Óðinn er kom- inn til hafnar með skip, sem tók að botnvörpuveiðum í landhelgi út af Kirkjuvogi á Suöurnesjum. Veiðiskip þetta er frá Siglufirði. Hinn 14.—15 janúar dróg Óð- inn bát með bilaða vél til Reykjavíkur, er hann fann út af Selvogi. Þessi bátur var Bár- an frá Akureyri. Til anglýsenda! Tíminn ei geflnn út 1 flelri elntökum en nokk- urt annað þlaö á íslandl. Glldl almennra auglýs- Inga er í hlutfalll við þann fjölda manna er les þær. Tíminn er öruggasta boðleiðin til flestra neyt- endanna i landinu. — Þelr, sem vilja kynna vör- ur sínar sem flestum auglýsa þær þessvegna i Tímanum Kaupendur Tímans Tilkynnið afgr. blaðsins tafar- laust ef vanskil verða á blaðinu. Mun hún gera allt, sem í hennar valdi stendur til þess að bæta úr því. Blöð, sem skilvísa kaup- endur vantar, munu verða send tafarlaust, séu þau ekki upp- seld. Vinnið ötullegu fgrir Tínuinn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.