Tíminn - 30.01.1941, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMADUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRN ARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavík, flmmÉudaginii 30. janúar 1941
12. blað
Reykjavíkurbær tekur skíp
á leigu til útgerðar
Ríkísstjórnín lœtur bæinn Sá Þór iyrir miklu
lægrí leigu en ríkið hefir Sengiö Syrir hann. -
Tilgangurinn með bæjarútgerðinni er að lækka
Siskverðið í bænum
Blöð Sjálfstæðisflokksins
hafa skýrt frá því, að
Reykjavíkurbær hafi farið
þess á leit við ríkisstjórnina
að fá varðskipið Þór leigt í
þeim tilgangi að lækka fisk-
verðið í bænum. í frásögn
eins blaðsins er gefið í skyn,
að forsætisráðherra hafi
verið tregur. til að fallast á
þessa beiðni, en varðskipin
heyra undir ráðuneyti hans.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Tíminn hefir aflað sér, er þetta
byggt á fullkomnum misskiln-
ingi, því að forsætisráðherra —
og reyndar ríkisstjórnin öll —
hefir verið þess mjög hvetjandi,
að bærinn fengi skipið til leigu.
Eins og kunnugt er, hefir Þór
ekki verið notaður til strand-
gæzlu síðan stríðið hófst, þar
sem erlend veiðiskip eru nú
miklu minna hér við land. Hef-
ir Þór því verið leigður til fisk-
flutninga.
Rétt fyrir nýárið barst ríkis-
stjórninni bréf frá borgarstjóra,
dagsett 23. desember, þar sem
skýrt er frá tillögu, er komið
hafi fram á bæj arstj órnar-
fundi, um að bærinn fái Þór
leigðan. Jafnframt er það tek-
ið fram, að bæjarráð og bæjar-
stjórn hafi enga afstöðu tekið
til þessarar tillögu, og að málið
sé enn ekki komið á það stig,
að tímabært sé að óska eftir
leigu á skipinu. Að lokum er svo
látin uppi ósk um það, að ríkið
og bærinn hafi sameiginlega
útgerð á skipinu.
Þegar ríkisstjórninni barst
þetta bréf, var skipið í Englandi
og kom ekki heim fyr en eftir
að verkfallið var hafið. Sér því
hver heilvita maður, að ekki var
hægt að leigja bænum skipið
fyrir áramót, — en því er hald-
ið fram í einu blaðinu, — þar
sem máli þessu er ekki hreyft
fyr við ríkisstjórnina og þá ekki
einu sinni látin uppi ákveðin
ósk um að fá skipið leigt.
Eftir að haldinn hafði verið
fundur í ríkisstjórninni um
málið, ritaði forsætisráðherra
borgarstjóra bréf, dagsett 18. þ.
m., þar sem bænum er boðið
skipið til leigu, en tekið fram,
að ríkið vilji ekki vera aðili í
útgerðinni. f bréfinu er lögð á-
herzla á, að svar fáist sem
fyrst, því að annars muni verða
gerðar ráðstafanir um næstu
ferð skipsins.
Um líkt leyti og þetta bréf
var sent, var þeim, sem höfðu
leigt skipið, sögð upp leigan, til
þess að bærinn gæti fengið það
tafarlaust.
í svarbréfi borgarstjóra, dags.
22. þ. m., segir, að ef ríkið sé
ófáanlegt til að taka þátt í út-
gerð skipsins með bænum, vilji
bæjarráð mæla með því, að
bærinn geri skipið út, enda ráði
þá bæjarstjórn með hvaða móti
skipið verður notað til að lækka
fiskverðið. Jafnframt fer bæj-
arráðið þess á leit, að fá skipið
leigt fyrir kostnaðarverð.
Forsætisráðherra svaraði
þessum tilmælum í samráði við
ríkisstjórnina i bréfi dagsettu
27. þ. m., þar sem frá því er
skýrt, að bærinn geti fengið Þór
leigðan fyrir kostnaðarverð til
fiskveiða.
Sama dag barst ríkisstjórn-
inni annað bréf frá borgar-
stjóra, dagsett 25. þ. m., þar
sem þess er farið á leit, að fá
Þór leigðan til fiskveiða eða
fiskflutninga, eftir vali bæjar-
stjórnar. Jafnframt er boðið að
greiða 10 þús. kr. í mánaðar-
leigu, en í bréfinu segir, að
leigutakar Þórs hafi fengið
skipið leigt fyrir þá upphæð.
Það er þó alrangt, því að leigan
eftir Þór mun a. m. k. hafa
verið helmingi hærri.
í bréfi þessu er óskað eftir
skjótu svari, svo hægt verði að
leggja málið fyrir bæjarstjórn-
arfund, sem haldinn yrði næst-
komandi fimmtudag (þ. e. í
dag).
Vegna þess ,að skipið var að-
gerðalaust síðastliðinn mánu-
dag og ekki var þá séð, hvernig
þessu máli myndi lykta, var
ákveðið þá, eftir að rætt hafði
verið við borgarstjóra, að kaupa
fisk í skipið fyrir reikning
Skipaútgerðarinnar, en nokkrir
bátar biðu þá eftir því, að geta
selt fisk í skip til útflutnings.
(Framh. á 4. síðu.)
f enskum blöðum er nú mikið um það rœtt, að Þjóðverjar muni bráðlega hefja innrás í Bretland. Þekktur am-
eriskur hershöfðingi, Marshall, sem á sœti í herforingjaráði Bandarikjanna, hefir látið i Ijós þá skoðun, að Þjóð-
verjar muni gera innrásina í marzmánuði. Bretar búa sig kappsamlega undir það, að mœta árásinni m. a. með
því að fjölga stöðugt fallbyssuvirkjum með fram ströndum landsins. Skipta þau nú orðið þúsundum. Hér á
myndinni sést eitt slíkt virki. Þannig er gengið frá þeim, að erfitt er að sjá þau úr lofti, en búast má við,
að Þjóðverjar láti það vera fyrsta þátt árásarinnar að gera loftárásir á slík virki á þeim slóðum, sem þeir œtla
sér að setja her á land.
<JR BÆIVUM
F. U. F. í Reykjavík
heldur fund í Sambandshúsinu ann-
að kvöld. Þar verður rætt um skóla-
mál og menningarmál. Fundurinn
hefst klukkan 8,30.
Mannfjöldi í Reykjavík.
Samkvæmt allsherjarmanntal því,
sem fram fór í byrjun desembermán-
aöar í haust, reyndist mannfjöldi í
Reykjavík 39.124. Árið 1939 var mann-
fjöldi í Reykjavík 38.219 manns, að
talið var.
Prestarnir
í Hallgrímssókn, séra Jakob Jónsson
og séra Sigurbjörn Einarsson, byrja
fermingarundirbúning í næstu viku.
Presturinn í Nessókn, séra Jón Thor-
arensen, byrjar einnig fermingarundir-
búning i næstu viku. Fresturinn í
Laugamessókn, séra Garðar Svavars-
son, biður fermingarböm í sókn sinni
að koma til viðtals í Laugarnesskóla á
morgun klukkan 5.
Ltbia Italiana
Libya (Libia Italiana) er meira en sjö sinnum stœrri en Ítalía að flatarmáli,
en íbúarnir eru innan við eina milljón. íbúarnir eru aðallega Arabar og
Berbar. Um fjórðungur þeirra eru hirðingjar. — Libya er eitt fátœkasta
og hrjóstrugasta land í lieimi. Meginhluti landsins er eyðimörk. Gróðursœlir
blettir eru aðallega meðfram ströndinni, einkum við Tripoli, Benghasi og
Derna. — Fram til 1935 var Libyu skipt í tvö fylki, Cirenaica með Benghasi
fyrir höfuðborg og Tripolitania með Tripoli fyrir höfuðborg. Þegar Bretar
hafa náð Benghasi, hafa þeir náð Cirenaica á vald sitt. í Cirenaica er þriðjung-
ur af íbúum Libyu. Stœrstu borgirnar eru Benghasi (40 þús. ibúar) og Derna
(10 þús. íbúar). Strandlengjan frá Derna til Benghasi er auðugasti hluti Libyu.
Strandlengjan frá landamœrum Egiptalandf til Dema er mjög ófrjó og eyðileg.
í Tobruk eru innan við 1000 búar. — Þótt Bretar nái Cirenaica á vald sitt
eiga þeir enn langt ófarið áður en þeir hafa alveg lagt Libyu undir sig. Leiðin
frá Benghasi til Tripoli, er hins vegar allgreiðfœr, en sennilega eru vamir ftala
styrkastar í Tripoli. Tripoli er stœrsta borg Libyu, íbúarnir eru milli 60—70
þúsund. Þaðan er styzt siglingaleið til Ítalíu. — Árið 1935 nam innflutningur
til Libyu 400 millj. líra, en útflutningur þaðan 60 millj. líra. Landbúnaður
er aðalatvinnuvegurinn. Námuvinnsla er engin. ítalir iiafa varið offjár til
byggingar hernaðarstöðva og samgangría í Libyu. Seinustu árin liafa allmargir
ftaXir verið látnir gerast landnemar í Libyu, einkum við Tripoli. Draumur
Mussolinis hefir verið að skapa stórt ítalskt nýlenduveldi, en hann virðist ?vm
vera fjarri því að rœtast og fleira benda til þess, að allt erfiði ftala í þeim
efnum verði unnið fyrir gýg.
A. KI?,OSSC3-ÖTTJIsÆ
Skipsstrand við Gróttu. — Fjársöfnun til drykkjumannahælis. — Flóð
Laxá í Þingeyjarsýslu. — Ofbeldismenn dæmdir.
---------- Nefndarskipun. —
Mjólkurverð hækkar. —
í gærkvöldi, um áttaleytið, strand-
aði togarinn Baldur á Gróttutanga,
rétt við vitann, sem nú er myrkvaður
að fyrirskipan setuliðsins. Baldur var
að koma af veiðum og var ætlunin að
taka hér fisk til viðbótar afla, sem
skipið hafði fengið í veiðiför sinni,
og sigla síðan til Englands. Útfallið
va rað byrja, er Baldur strandaði og
var því ekkert hægt að aðhafast um
sinn til þess að losa skipið. Dráttar-
báturinn Magni kom þegar á strand-
staðinn og beið þar í nótt ^þess, að
félli að að nýju. Tókst um háflæður
í morgun að ná skipinu af gmnni.
Mun það lítt laskað eða ekki. Logn
var í nótt og ládeyða, svo að ekki
varð á betra veður kosið; ella hefði
að öllum lkindum meira tjón hlotizt
af óhappi þessu. Orsök þess, að skip-
ið strandaði á þessum stað er meðal
annars sú, að þegar hreinviðri og
stillur ganga sem nú, er mikill og
þykkur mökkur yfir bænum og legg-
ur reykslóðann út til hafsins, en
meginorsökin mun þó vera, að slökkt
hefir verið á Gróttuvitanum. Er ein-
sætt, að gera verður ráðstafanir til
þess að taka vitann í notkun að nýju,
áður en fleiri skipsströnd hljótast af
hér við hafnarmynnið svo til. Eins og
kunnugt er, hafa tvö stórskip önnur
strandað á þessum slóðum undan-
farna sólarhringa af sömu orsökum
og Baldur, en fjórða skipið, vélbátur,
tók þar niðri í byrjun þessarar viku,
vegna þess að hann viltlst af réttri
siglingaleið.
t t t
Stórstúka íslands gengst fyrir því,
að 1. febrúar, næstkomandi laugardag,
fer fram fjársöfnun til drykkjumanna-
hælis. Verður fé til þessa safnað, hvar-
vetna þar sem stúkan á ítök. Er
málum svo komið, að heityrði munu
hafa verið gefin um framlag úr ríkis-
sjóði, ef aðrir aðilar legðu til fé til
jafns við ríkissjóðsframlagið. Þegar er
til í landinu sjóður, sem ætlaður til
drykkjumannahælis, gefinn af Jóni
Pálssyni, fyrverandi bankagjaldkera,
og konu hans, svo sem marga mun
reka minni til. Er mál þetta, stofnun
minni til. Er mál þetta, stofnun
drykkjumannahælis fyrir þá menn, er
kalla má sjúklinga af völdum skefja-
lausrar áfengisnautnar, komið í all-
vænlegra horf, ef nú tekst að afla veru-
legra fjárupphæða. Má þá vænta, að
ekki líði langt um, þar til tímabært
er að ráðast í framkvæmdir.
f t t
Samkvæmt fréttum, er Tímanum
hafa borizt úr Þingeyjarsýslu, hefir
flóð komið í Laxá í Þingeyjarsýslu.
Orsök flóðsins var krap- og jaka-
stífla, sem hlóðst í ána austan við
Aðaldalshraun. Myndaðist þar lón, er
sfellt fór stækkandi, þar til áin tók
að flæða vestur yfir hraunið. Rann
hún vestur yfir þjóðveginn, sem frá
Húsavík liggur, upp Aðaldal, og
greinist hjá Einarsstöðum í tvær
brautir vestur yfir Fljótsheiði og upp
í Reykjadal og Mývatnssveit. Skemmd-
ir munu ekki hafa orðið, svo teljandi
sé, af flóði þessu. Geir G. Zoega, vega-
málastjóri, hefir skýrt Tímanum frá,
að slík flóð í Laxá séu ekki eins
dæmi, þegar frost og krap hleðst
ána eða jakaburður er.
• r r
Á gamlárskvöld siðastliðið réðust
drukknir menn á lögregluþjóna á
skemmtun í Grindavík og leiddu all-
varleg meiðsli af ryskingum þeim, sem
þetta tiltæki olli. Hefir mál þetta verið
til rannsóknar undanfarnar vikur, og
er nú nýfallinn dómur í því. Voru fjór-
ir menn, sem mestan hlut áttu að
þessari árás á lögregluþjónana, dæmdir
til þungra refsinga fyrir ofbeldi það, er
þeir höfðu í frammi. Var einn dæmdur
í sex mánaða fangelsisvist, en þrír í
fjögurra mánaða fangelsisvist. Auk
þess skulu þeir greiða 600 króna skaða-
bætur til lögregluþjónanna.
t t t
Mjólkurverðlagsnefndin hefir ákveð-
ið að hækka verð á mjólk um fimm
aura lítra nú um mánaðamótin. Jafn-
framt hækka ýmsar mjólkurvörur of-
urlítið. Framvegis verður því mjólk
á heilflöskum seld á 65 aiu-a, smjör á
6,35 hvert kílógramm, rjómi á 4,20
hvert kílógramm og skyr á 1,15 hvert
kíiógramm.
t t t
Sauðfjáruppeldí í
mæðíveíkihéruðum
Halldór Pálsson, sauðfjár-
ræktarráðunautur, er nýkom-
inn til bæjarins úr ferð um
Miðfjörð og Reykholtsdal. Var
hann þar i þeim erindagerðum
að kynna sér hversu gangi um
uppeldi sauðfjár í þessum sveit-
um, þar sem mæðiveikin hefir
geisað hvað lengst í sauðfénu
og valdið einna mestu tjóni.
í viðtali skýrði Halldór svo
frá ferð sinni og því, er hann
varð vísari:
— í Miðfirði gengur uppeldi
sauðfjár þolanlega, að segja
má. Samt sem áður eru van-
höld í unga fénu af völdum
mæðiveikinnar alltilfinnanleg,
svo sem marka má af því, að 54
kindur drápust frá því í apríl-
mánuði síðastliðnum fram í
janúar í ár, af 616 lömbum, er
sett voru á í sveitinni haustið
1938. Hafa 8,8 af hundraði drep
izt á tæpu ári. Af 1050 kindum,
fæddum 1939, voru 43, eða 3,7
af hundraði, dauðar úr mæði-
veiki, Við þetta bætist svo það
sem ferst af öðrum orsökum og
ávallt er nokkuð.
Þrátt fyrir þessi vanhöld,
hefir tekizt að fjölga nokkuð
fénu í Miðfirði, enda hafa
flestallar gimbrar verið settar á
undanfarin tvö ár.
í Reykholtsdal hafa van
höldin orðið miklu meiri heldur
en í Miðfirði. Þó var pestin þar
nokkuð vægari í ár heldur en
hið næsta á undan. Af lömbum
þeim, sem sett voru á 1939, alls
553, voru 24 dauð, eða 4,3 af
hundraði hverju.
Þegar fjárdauðinn nú er bor
inn saman við það, er var fyrstu
árin, sem pestin geisaði, er þess
að gæta, að meiri hluti þess
fjár, sem hún verður að fjör-
tjóni, verður til allmikilla
nytja, þar eð hún er ekki eins
bráðdrepandi í þeim héruðum
þar sem hún hefir verið í mörg
ár, sem í þeim byggðarlögum;
er hún er nýkomin í. Þar fer
hún miklu geistara yfir. Þess
vegna verður tjónið af mæði
veikinni minna í hinum gömlu
mæðiveikisveitum, þótt það sé
engu að síður mjög tilfinnan
legt.
Metaxas látinn
Metaxas forsætisráðherra
Grikklands lézt eftir uppskurð
við hálsmeini síðastl. þriðjudag
Hann var rúmlega sjötugur
Seinustu árin var hann ein
valdur Grikklands og þótti
mjög dugandi stjórnandi. Hann
var hershöfðingi að menntun
Sigur Grikkja undanfarið eru
að verulegu leyti þakkaður
leiðsögn hans. Milli hans og
Georgs konungs var góð sam-
Á víðavangi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
OG KIRKJAN.
Forsprakkar Sjálfstæðis-
flokksins hafa jafnan stært sig
af því, að þeir væru mjög
hlynntir kirkjunni. Það hefir þó
sýnt sig, að þeir hika ekki við
að draga hana inn í pólitískar
æsingar, ef þeir telja sér hag í
því. Nokkrir þeirra hafa nú
rokið til ug stofnað sérstakan
fríkirkjusöfnuð í þeirri fávís-
legu von, að það geti hnekkt
kirkjumálaráðherra. Morgun-
blaðið hefir birt mörg viðtöl
við forsprakkana til að ýta
undir menn að segja sig úr þjóð-
kirkjunni. Vitanlega sakar
ietta ekki kirkjumálaráðherr-
ann neitt. Eini árangur þessar-
ar viðleitni til safnaðarmynd-
unar er sá, að það verður ljós-
ara hér eftir en hingað til, að
hinn yfirlýsti áhugi ýmsra for-
sprakka Sjálfstæðisflokksins
fyrir málefnum kirkjunnar.ær
yfirskyn eitt. Verkin sýna nú
eins skýrt og verða má, að
lessir menn hika ekki við að
kljúfa þjóðkirkjuna, ef þeir
halda, að það sé flokki þeirra
til ávinnings í hinni pólitísku
baráttu.
VINNUBRÖGÐ KOMMÚNISTA
OG SETULIÐIÐ.
Ensk blöð skýrðu nýlega frá
því, að foringi danskra nazista,
Clausen að nafni, hefði fengið
fyrirmæli frá Þjóðverjum um
að stofna til götufunda og hóp-
gangha. Tilgangurinn með þessu
er sá að koma af stað óeirðum,
er veiti þýzka setuliðinu tæki-
færi til að skerast í leikinn og
auka afskipti sín af málum
Dana. Kommúnistar hér hafa
valið sér þetta til fyrirmyndar.
Dreifibréfið fræga var tilraun
til að auka afskipti setuliðsins
hér af íslenzkum málum. Kom-
múnistar telja, að með áfram-
haldi slíkrar starfsemi myndi
afskipti setuliðsins aukast
stöðugt, unz stjórn flestra eða
allra málefna þjóðarinnar væri
komin í hendur þess. Sú upp-
lausn og öngþveiti, sem af því
hlytist, væri heppilegur jarð-
vegur fyrir kommúnismann.
Kommúnistar sýna hér sem
oftar svikræði sitt við frelsi og
sjálfstæði þjóðarinnar. Dreifi-
bréfamálið á vissulega eftir að
endurtakast í ýmsum útgáfum,
ef ekki verða settar nægilegar
skorður við þessari starfsemi
kommúnista og tekið nógu
harðlega á öllum slíkum af-
brotum, sem þeir eða aðrir
kunna að fremja.
SEYÐISFJARÐARFÖR ÆGIS.
Mbl. ræðst í morgun á for-
sætisráðherra og forstjóra
Skipaútgerðarinnar fyrir að
senda Ægi til Norðfjarðar með
Jónas Guðmundsson. Sannleik-
urinn er sá, að för Ægis er
heitið til Seyðisfjarðar. Sækir
hann þangað pólskt skip, sem
er með bilaða vél. Skip þetta
er með 700 smálestir af salti,
sem á að fara til Vestmanna-
eyja, og 200—300 smál. af vör-
um, sem eiga að fara hingað.
Hafa Vestmannaeyingar gengið
ríkt eftir því, að Ægir dragi
skipið til Vestmannaeyja. Vá-
tryggingarfélagið, sem skipið er
trygt hjá, greiðir ríflega fyrir
kostnaðinn við. ferð Ægis.
Nokkrir farþegar til Seyðis-
fjarðar og Norðfjarðar, þar á
meðal Jónas Guðmundsson,
fengu að fara með Ægi, því að
mikil þrengsli voru orðin á
Súðinni, sem einnig fer austur
um land. Hér hefir enn einu
sinni fengizt gott dæmi um
það, hversu langt Mbl. gengur
í því að reyna að finna tilefni
til árása á forsætisráðherra.
vinna, enda átti Metaxas mest-
an þátt í því, að Georg var
kvaddur heim úr útlegðinni.
Fráfall Metaxas hefir vakið
þjóðarsorg í Grikklandi.