Tíminn - 13.03.1941, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
PRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
25. ár,
Reykjavík, flmmtudaglim 13. marz 1941
30. blað
Kafbátur ræðst á línuv. Fróða
Tveir brezkir sjómenn, sem taka þátt í „orrustunni um Atlantshafiö". Á
myndinni sjást þeir í viöureign við þýzka sprengjuflugvél.
»Styrjöldín um Atlantshaíið«
Alþlugi:
Frá umræðum um
nokkur þingmál
Prestsenibættiu.
Magnús Jónsson prófessor
flytur í efri deild frv. um breyt-
ingar á prestskosningalögunum.
Samkvæmt því getur söfnuður
kallað sér prest, án kosningar,
en til þess að köllunin sé gild
þurfa % fundarmanna á sam-
eiginlegum fundi sóknarnefnd-
armanna í prestakallinu og
meirihluti fundarmanna á al-
mennum fundum í öllum sókn-
um prestakallsins að hafa sam-
þykkt hana. Ef ekki næst lög-
mæt köllun, fer fram kosning
og er sá umsækjandinn, er fær
flest atkvæði, löglega kosinn.
Þetta frv. var til 1. umr. síð-
astliðinn mánudag. Flutnings-
maður lýsti sig mótfallinn
kosningu embættismanna.
Prestskosningalögin hefðu
reynzt illa og kosningafyrir-
komulagið skapaði iðulega úlf-
úð og ósamlyndi. Hins vegar
myndu kjósendurnir ekki vilja
missa þennan rétt. Frv. þetta
miðaði að því, að hægt yrði að
komast hjá kosningu.
Forsætisráðherra sagðist við-
urkenna hinn góða tilgang
flutningsmanns. Hins vegar
kvaðst hann óttast, að það
myndi aðeins skapa meiri hita
og ofurkapp í þessum málum,
ef ræða ætti þau á almennum
fundum áður en kosning færi
fram, en telja mætti víst, að til
kosningar kæmi 1 flestum til-
fellum. Þessi breyting væri því
ekki til bóta, þótt ýmislegt mætti
að núverandi fyrirkomulagi
finna.
Ef menn vilja hverfa frá nú-
gildandi tilhögun, sagði ráð-
herrann, er ekki nema um
tvennt að velja: Afnema prests-
kosningar og skipa presta eftir
svipuðum reglum og aðra em-
bættismenn, ellegar að gera
kosningafyrirkomulagið enn
víðtækara og láta það ná til
allra opinberra embættismanna.
Ég hygg, að það síðara sé ekki
heppilegt. Það má að vísu tala
fagurlega um lýðræði í þessu
sambandi, en ég held, að lýð-
ræðið þarfnist nú annarra um-
bóta en að færa það yfir á ný
svið, þar s%m það fær ekki not-
ið sín, heldur leiðir til sundur-
lyndis og aukins flokkadráttar.
G j aldcy r ismálln.
Ríkisstjórnin flytur frv. um
breytingu á gjaldeyrislögunum.
Aðalbreytingin er sú, að ríkis-
stjórninni er heimilt að skipa
mönnum að láta allan gjaldeyri,
er þeir eignast, renna til banka,
sem hafa einkarétt til að verzla
með hann, en áður náði skila-
skyldan einungis til andvirðis
útflutningsvara.
Þetta mál var til 1. umræðu í
neðri deild síðastliðinn mánu-
dag. í umræðunum upplýsti
viðskiptamálaráðherra, að
milliþinganefndin, sem var
skipuð samkvæmt fyrirmælum
þingsins 1934 til að athuga
gjaldeyrismálin, hefði lokið
störfum og myndi álit hennar
birtast bráðlega. Þetta frv. væri
m. a. undirbúið af nefndinni.
Ráðherrann gat þess, að nefnd-
in myndi ekki leggja til að
höftin yrðu afnumin eins og
sakir stæðu.
í nefnd þessari eiga sæti:
Eysteinn Jónsson af hálfu
Framsóknarflokksins, Björn Ól-
afsson af hálfu Sjálfstæðis-
flokksins, og Gylfi Þ. Gíslason
af hálfu Alþýðuflokksins.
Fiskveiðasjóður.
Pétur Ottesen flytur frum-
(Framh. á 4. síðu.)
Fimm metm bíðu
bana, en eínn
særðist
Síðastliðna þriðjudags-
nótt réðist kafbátur á línu-
veiðaskipið Fróða 180 sjó-
mílur suðaustur af Vest-
mannaeyjum. Var skipið þá
á leið til Englands, hlaðið
fiski.
Fórust fimm menn í þessari
árás, en hinn sjötti særðist.
Kafbátsmenn munu hafa
skotið þrívegis af fallbyssum
sinum á skipið. Hæfðu kúlurnar
stjórnpall skipsins og sundruðu
því að kalla ofan þilja. Einnig
var skotið á skipið af hríð-
skotabyssum.
Kafbáturinn mun fyrst hafa
skotið viðvörunarskotum og lét
skipstjóri þá stöðva skipið og
ætlaði að láta skipverja fara í
bátana. En áður en skipverjar
höfðu fengið ráðrúm til þess,
hófst skothríðin á skipfð. Þeir,
sem ekki féllu eða særðust í
upphafi skothríðarinnar, gátu
forðað sér í hlé. Skothríðin stóð
alllengi og virðist kafbáturinn
hafa farið í kringum Fróða og
skotið á hann frá öllum hliðum.
Skipverjar á Skaftfellingi sáu
Fróða fyrstir manna eftir árás-
ina og sendu þeir skeyti til
Eyja og báðu um hjálp. Fór
brezkur togari á vettvang. Gátu
þó þeir fjórir menn, er heilir
voru á Fróða, siglt skipinu til
Eyja. Kom það þangað í gær-
morgun.
Menn þeir, er fórust í árás-
inn voru:
Gunnar Árhason, skipstjóri,
frá Brekku í Þingeyrarhreppi,
fæddur 4. júlí 1907, búsettur í
Reykjavík, kvæntur, barnlaus.
Sigurður Jörundsson, stýri-
maður, úr Hrísey, fæddur 30.
marz 1917, ókvæntur.
Steinþór Árnason, háseti,
bróðir skipstjóra, fæddur 22.
ág. 1902, búsettur á Þingeyri,
kvæntur og átti tvö ung börn.
Kona hans er systir Guðmund-
ar Stefánssonar háseta.
Gísli Guðmundsson, háseti frá
Brekku í Dýrafirði, fæddur 7.
Anton Tómasson á Hofsósi er meðal
gesta í bœnum. Hann skýrSi Tímanum
svo frá atvinnuháttum á Hofsósi: —
Árið 1939 var byrrjað að reisa hrað-
frystihús í þorpinu. Tók það til starfa
vorið 1940. Þetta var hin mesta umbót
fyrir þorpið og happ mikið, að henni
var komið á áður en stríðsástandið var
komið í algleyming. í sumar var
allur fiskur, sem á land kom
í Hofsósi, látinn í hraðfrystihúsið.
í haust hefir talsvert selst í ísfisk-
flutningaskip. Hefir afbragðsgott verð
fengizt fyrir það af aflanum, sem
selt hefir verið í skip. Fiskróðrum var
haldið áfram fram í janúarmánuð.
Fiskiróðrar hefjast aftur að nýju í
apríl eða mai.
r t t
„Búfrœðingurinn" ársrit nemenda-
sambanda bændaskólanna, kemur út í
þessum mánuði. Annast Hólamenn um
útgáfu ritsins í ár. Sú nýbreytni hefir
verið hafin að gefa út kafla af jarð-
ræktarfræði í „Búfræðingnum". Að
þessu sinni kemur út í honum grein,
sem heitir Vatnsmiðlun, eftir Pálma
Einarsson ráðunaut. Er þetta ítarleg
ritgerð um vatnsþörf jurtanna, fram-
ræslu lands og áveitur, alls um 6 ark-
ir að stærð. Á næsta ári mun koma út
í „Búfræðingnum“ ritgerð um búfjár-
áburð eftir Guðmund Jónsson kennara
á Hvanneyri. Er ætlunin að halda
þannig áfram, að gefa út kafla af jarð-
Tekjur og eignir
landsmanna
í seinustu Hagtíðindum eru
skýrslur um álagningu tekju-
og eignarskatts árið 1940. Er
þar ýmsan fróðleik að finna.
Nettótekjur skattskyldra ein-
staklinga og félaga árið 1939,
en skatturinn 1940 var lagður á
tekjur þess árs, námu 89.6 milj.
kr. eða 10 milj. kr. meira en ár-
ið áður. Skattskyldar tekjur
voru 47.5 milj. kr. eða 5.4 milj.
kr. hærri en árið áður. Tekju-
skatturinn 1940 nam 2.165 þús.
kr., en var 1930 1.619 þús. kr.
Eftir umdæmum skiptust
nettótekjur skattgjaldenda
þannig 1939: Reykjavík 48.7
milj. kr., aðrir kaupstaðir 15.4
milj. kr., sýslur 25.5 milj. kr.
Frá því árið áður höfðu tekj-
urnar hækkað mest í sýslunum.
í ársbyrjun 1940 voru skuld-
lausar eignir landsmanna 147.3
milj. kr. eða 12.2 milj. kr. hærri
en árið áður. Eignarskatturinn
1940 nam 402 þús. kr., en nam
1939 331 þús. kr.
Eftir umdæmum skiptust
eignirnar þannig í ársbyrjun
1940: Reykjavík 64.2 milj. kr.,
aðrir kaupstaðir 26.4 milj. kr.,
sýslur 56.7 milj. kr.
apríl 1906, búsettur á Þingeyri,
ókvæntur.
Guðmundur Stefánsson, há-
seti, frá Hólum í Dýrafirði,
fæddur 2. maí 1917, búsettur á
Þingeyri, ókvæntur.
Særði maðurinn, Sveinbjörn
Davíðsson, vélstjóri, var flutt-
ur á sjúkrahús í Vestmanna-
eyjum. Hefir hann skotsár á
báðum handleggjum.
Sigurður, Gísli og Guðmund-
ur féllu strax í upphafi árásar-
innar, en Gunnar og Steinþór
létust nokkru síðar af sárum.
Gunnar hafði áður en hann dó,
falið eina hásetanum, sem eftir
var, skipstjórn og sagt fyrir um
stefnu skipsins.
Þeir, sem sluppu ómeiddir,
voru Guðm. Guðmundsson há-
seti, Jón Guðmundsson 2. vél-
stjóri, Sverrir Torfason mat-
sveinn, Jón Guðmundsson
kyndari og Benedikt Hallvarðs-
son kyndari.
ræktarfræði í ritinu unz hún er öll
komin út. Þörf é jarðræktarfræði hef-
ir verið mjög mikil. Bæði sem kennslu-
bók við bændaskólana, handbók fyrir
héraðsréðunauta og aðra leiðbeinendur
bænda, auk þess, sem þetta verður
nauðsynleg bók fyrir alla, sem jarð- 1
rækt stunda. Vegna útgáfu á þessum
fymnefnda kafla af jarðræktarfræði
verður lesmál „Búfræðingsins" aukið
um allt að því % frá því sem var. Þrátt
fyrir þessa miklu stækkun ritsins mun
kaupverð þess aðeins hækka frá 3,50
kr. í 4,50 kr. Sérprentanir verða teknar
af þessum jarðræktarfræðiköflum og
verða þær eign Búnaðarfélags íslands,
en það styrkir þessa útgáfu að nokkru.
í „Búfræðingnum" birtast, auk fyrr-
nedndrar greinar, ritgerðir um ali-
fuglarækt, hirðingu sauðfjár, áburð,
líkamsbyggingu búfjár o. fl. Ennfrem-
ur fréttir frá bændaskólanum á Hólum
og skólaskýrsla.
t t t
Togarinn Baldur bjargaði 52 skip-
brotsmönnum, af tveim skipum, ensku
og hollenzku, í síðustu Englandsferð
sinni. Skipbrotsmenn þessir voru mjög
þrekaðir, enda höfðu sumir þeirra ver-
ið fjóra sólarhringa í björgimarbát-
unum, en hinir hálfan þriðja. Baldur
fór með þá til Fleetwood.
t t t
Kvennadeild Slysavarnafélags ís-
lands hélt aðalfimd sinn á mánudag-
í vikunni, sem endaði 3. þ. m.,
nam skipatjón Breta og Banda-
manna þeirra samkvæmt
brezkum heimildum, 148 þús.
smál. Er það þriðja mesta
skipatjónið, sem Bretar hafa
orðið fyrir á einni viku síðan
styrjöldin hófst.
Þetta sýnir glögglega, að það
hefir verið full alvara hjá Þjóð-
verjum, þegar þeir hafa verið
að lýsa yfir því, að þeir myndu
herða sjóhernaðinn með vorinu.
Þjóðverjar herða nú ekki að-
eins kafbátahernaðinn, heldur
einnig flugárásir á kaupskipa-
lestir. Yfirráð þeirra yfir At-
lantshafshöfnum Frakklands og
flugvöllum þar hefir stórbætt
aðstöðu þeirra til beggja þessara
árásaaðferða. í seinni tíð nota
þeir orðið mun meira en áður
langfleygar flugvélar til árása á
brezk kaupskip langt á hafi úti.
Aðstaða Breta til að verja
kaupför sín, er hins vegar mun
lakari en í heimsstyrjöldinni.
Seinasta heimsstyrjaldarárið
nutu þeir aðstoðar flota Frakk-
lands og Bandaríkj anna til að
verja siglingar sínar. Nú verða
þeir að treysta eingöngu á sinn
eigin flota.
Þegar þetta er athugað, hin
bætta aðstaða Þjóðverja og hin
inn. Þar var ákveSiS aS gefa 10 þúsund
krónur til þess að reisa skýli fyrir
strandmenn á söndunum í Skaftafells-
sýslu. Áður hefir kvennadeild lagt fram
stórfé til slysavarna, meðal annars er
björgunarskútan Sæbjörg var smiðuS.
t r t
Kristján Eggertsson frá Grímsey
hefir sagt Tímanum þessi tíðindi úr
eynni: Veturinn hefir, það sem af er,
verið snjóléttur, en vindasamur mjög,
og því erfitt til sjósóknar. Fiskreyting-
ur er oftast við eyna, á hvaða tíma
árs sem er, og stundum góður afli. En
veðráttan skapar það mjög, hve mikið
berst á land, og veldur þar meiru um,
en víðast er annars staðar. Á vetrum er
sjór sóttur á árabátum og handfærið
notað nær eingöngu. Síðastliðin sumur
hafa nokkrir trillubátar verið gerðir
þar út, og einn vélbátur. Að líkind-
um færist útgerðin fremur í aukana á
komandi sumri. Fiskurinn er að mestu
hertur á veturna, en saltaður á sumr-
in. Skip, sem flytja út ísaðan fisk, hafa
ekki enn fengizt til að taka þar farm.
Grímseyingar hafa því farið á mis við
•hlunnindi þau, er flestum öðrum ver-
stöðvum hefir orðið drýgsta tekjulind-
in undanfarið. Spretta á túnum varð
ágæt síðastliðið sumar, og nýting heyja
mjög sæmileg. Fé reyndist rýrt í haust
og uppskera úr görðum einnig, en þó
mun hún ekki hafa verið rýrari en
norðan lands yfirleitt,
lakari aðstaða Breta frá því í
seinustu styrjöld, þarf engan að
undra skipatjón Breta nú. Það
ætti heldur ekki að þurfa að
koma á óvart, þótt skipatjón
Breta ykist á næstunni.
Hitt er svo annað mál, hvort
þessi „styrjöld um Atlantshaf-
ið“, eins og sjóhernaðurinn er
venjulega nefndur, getur haft
úrslitaþýðingu í styrjöldinni.
Til þess þyrfti skipatjón Breta
að margfaldast frá því, sem nú
er.
Það skiptir miklu hversu
ræðst með franska flotann.
Þjóðverjar reyna nú á kæn-
legan hátt að fá hann til að
snúast gegn Bretum. Bretar
hafa ekki viljað veita Frökkum
neina undanþágu frá hafn-
banninu, nema það væri tryggt,
að vöruflutningur til Frakk-
lands yrði ekki til hagsbóta fyr-
ir Þjóðverja. Þessum skilyrðum
hafa Frakkar enn ekki getað
fullnægt. Bretar hafa því stöðv-
að frönsk skip, sem hafi reynt
að komast frá Ameríku. Nú hef-
ir Darlan flotamálaráðherra til-
(Framh. á 4. síðu.)
Erlendar fréttir
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti síðastliðinn þriðju-
dag láns- og leigufrumvarp
Roosevelts. Lögin voru undir-
rituð af forsetanum samdæg-
urs. Roosevelt hefir beðið þing-
ið um 7 milljarða dollara fjár-
veitingu til að framkvæma
stefnu frv. Meira en fjórðungur
þeirrár upphæðar á að fara til
flugvélaframleiðslu.
í Júgóslavíu eru stöðug fund-
arhöld stjórnmálamanna. Talið
er að Þjóðverjar hafi boðið
JúgósJövum allmikinn hluta
Albaníu og sneið af Grikklandi,
sem myndi veita Júgóslövum
aðgang að Grikklandshafi, ef
þeir vildu fallast á kröfur öxul-
ríkjanna. Kröfur þessar eru
taldar þess efnis, að þær þýði
sama og Júgóslavía verði lepp-
ríki öxulríkj anna.
Loftárásir Þjóðverja á Bret-
land aukast nú óðum, einkum
virðast þeir beina árásum sín-
um gegn höfnum og flugvöllum.
Bretar halda uppi stöðugum
loftárásum á innrásarhafnirn-
ar svokölluðu.
ítölsku beitiskipi, 5000 smál.,
og ítölsku herflutningaskipi, 10
þús. smál., hefir nýlega verið
sökkt á Miðjarðarhafi.
Archibald Sinclair flugmála-
ráðherra upplýsti í ræðu síðast-
liðinn þriðjudag, að siðustu
10 mánuðina hefðu Bretar skot-
ið niður 4250 þýzkar flugvélar
og 1100 ítalskar, en sjálfir hefðu
þeir misst um 1800.
A víðavangi
FJÁRVEITINGARVALD AL-
ÞINGIS OG RÍKISSTJÓRNAR.
í nefndaráliti, sem nýlega er
komið fram á Alþingi, er skýrt
frá því, að háskólabyggingin
hafi þegar kostað 1.950 þús. kr.
Af þeirri upphæð á háskólinn
ógreiddar 1.155 þús. kr. Menn
munu yfirleitt vera sammála
um, að rétt hafi verið að reisa
vandaða og veglega háskóla-
byggingu. Hins er þó ekki að
dyljast, að þegar háskólinn
fékk happdrættisleyfið, var gert
ráð fyrir, að kostnaðurinn
yrði miklu minni. Hlýtijr það
að vekja menn til alvarlegrar
umhugsunar, að háskólinn skuli
hafa getað látið kostnaðinn
fara langt fram úr hinni upp-
haflegu áætlún, án þess að
stjórn og þing væri spurt ráða
og samþykkti fjárveitingu í því
skyni. Að vísu má finna ýms
slík dæmi í hinni opinberu
starfrækslu, að stofnunum eða
embættismönnum leyfist að
eyða stórfé, án samþykkis ríkis-
stjórnar eða Alþingis. En það
eru engar málsbætur. Það sýnir
aðeins, að óhæfilegur losara-
bragur og skipulagsleysi er
ríkjandi í þessum málum, og af-
leiðing þess verður fjársukk og
ábyrgðarleysi. Það er óhjá-
kvæmileg nauðsyn, að auka
vald og ábyrgð ríkisstjórnar og
Alþingis í þessum málum. Sú
skipan verður að komast á, að
embættismönnum, opinberum
stofnunum eða stofnunum, sem
njóta sérstakra opinberra
hlunninda, sé ekki leyfilegt að
gera ráðstafanir, sem leiða til
aukinna opinberra útgjalda,
án fyrirfram samþykkis ríkis-
stjórnar eða Alþingis.
J ARÐRÆKT ARSTYRKURINN.
Forystugrein Morgunbl. á
sunnudaginn var, er um jarð-
ræktarstyrkinn og þá lækkun
hans, sem fjármálaráðherrann
áætlaði í fyrra, þegar hann
lagði fram fjárlagafrumvarpið.
Hér í blaðinu var það talið
rangt, að áætla styrkinn miklu
lægra en fyrirsjáanlegt var, að
hann myndi verða, að óbreytt-
um jarðræktarlögunum. Frá
sjónarmiði bændanna var þetta
þó ekki aðalatriði málsins, held-
ur hitt, að Jakob Möller fjár-
málaráðherra fór fram á að fá
heimild þingsins til að lækka
styrkinn frá því sem lögákveðið
er, ef hann teldi þess þörf, um
35%, eða fullan þriðjung. (Al-
þingist. 1940 A, þingskj. 269).
Á þetta vildi Framsóknarflokk-
urinn ekki fallast, og kom hann
í veg fyrir að þingið veitti heim-
ildina. Morgunblaðið ,sneiðir
vandlega hjá þessu aðalatriði
málsins.
K J ÖRDÆMASKIPUNIN.
Árni frá Múla er nú farin að
hamra á þeirri tillögu, að kom-
ið verði á hlutfallskosningu í
tvímenningskjördæmum. Slík
breyting bætir þó ekki neitt úr
þeim ágöllum, sem sjálfstæðis-
menn hafa hingað til talið
mesta á kjördæmaskipuninni,
að lítið kjördæmi t. d. Seyðis-
fjörður, hafi margfalt meiri
rétt en stærri kjördæmi t. d.
Reykj avík. Einu röksemdir
Árna eru líka þær, að þessi
breyting muni bæta aðstöðu
Sjálfstæðisflokksins, eins og
fylgi flokkanna er nú háttað.
Eftir stuttan tíma gæti þessi
breyting orðið óheppileg fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og þá verð-
ur líklega að breyta til aftur,
ef að fylgja á þeirri reglu, að
hafa kjördæma-skipunina eins
og Sjálfstæðisflokknum kemur
bezt á hverjum tíma! Annars
hlýtur það að liggja í augum
uppi, að naumast væri hægt að
hugsa sér meiri glundroða, en
ef fara ætti nú eða síðar að
miða kjördæmaskipunina við
flokkaskiptinguna.
A KROSSGÖTUM
Frá Hofsósi. — Búfræðingurinn. — Skipbrotsmönnum bjargað. — Gjöf til
skála á söndunum eystra. — Úr Grímsey.