Tíminn - 27.03.1941, Síða 4
144
TÍMIM, fimmtudagtnn 27. marz 1941
36. blaðS
t
R BÆNUM
Minni baráttuhugnr
Erlendar fréttlr.
lieikfélagReykjavíknr
Skemmtun
hafa BVamsóknarfélögin í Reykjavík
ákveðið að halda 1 Oddfellowhúsinu
nlðri næstkomandi þriðjudag, 1. apríl.
Þar verður spiluð Pramsóknarvist. —
Margt flelra til skemmtunar. Gert er
ráð fyrir að þetta verði seinasta
skemmtun félaganna á vetrinum.
Brottt'Iutningur barna.
Rikisstjómin hefir falið stjómum
Rauða krossins og Barnaverndarráðs
að vinna að brottflutningi bama héðan
úr bænum eins fljótt og verða má.
Þessir aðilar unnu að því í fyrra að
útvega börnum héðan sumardvöl í sveit
og varð mikið ágengt. í fyrra var
dvalartími þeirra í sveit tll jafnaðar
um tveir mánuðir, en nú mun verða
lögð áherzla á að þau verði a. m. k. í
fjóra mánuði og fari úr bænum um
mánaðamótin apríl-maí. Þá ráðgerir
ríkisstjómin að fá heimild Alþingis til
að taka öll skólahús og samkomuhús
i sveitum til sumardvalar fyrir börn
úr kaupstöðum.
Drengjahlaup Ármanns
verður háð íyrsta sunnudag i sumri.
Keppt verður í þriggja manna sveit-
um. Þátttakendur gefi sig fram við
stjóm Ármanns eigi síðar en viku fyrir
hlaupið. Öllum félögum innan í. S. í.
er heimil þátttaka.
Skíðamót
verður haldið í Bláfjöllum á sunnu-
daginn kemur.
Glímufélagið Ármann
hefir tvö undanfarin kvöld haldið
fimleikasýningu í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar. Sýningamar hafa vakið
mikla aðdáun. Bera þær íþróttafólkinu
glæsilegan vitnisburð um áhuga og
ástundun. Sýningin verður endurtekin
í kvöld í seinasta sinn.
Verkfall hárgreiðslustúlkna
hefir nú verið leyst upp, án þess að
félagsskapur þeirra hafi samið við at-
vinnurekendur.
Samvinnuheimilið.
Þeim, sem vilja styrkja heimili
Framsóknarmanna, er um ræðir í
grein V. G. í síðasta blaði, ber að snúa
sér til Ólafs Jóhannessonar í Sambandi
ísl. samvinnufélaga, Reykjavík.
Náttúrulækningafélag íslands
hélt aðalfund 4. marzmánaðar.
Stjórn þess skipa Jónas Kristjánsson
læknir forseti, Björn L. Jónsson veður-
fræðingur varaforseti, Halldór Stefáns-
son forstjóri ritari, Hjörtur Hansson
umboðssali gjaldkeri og Sigurjón Pét-
ursson kaupmaður. Félagið var stofnað
í janúarmbánuði 1939. Forgöngumaður
þess og leiðbeinandi er Jónas Krist-
jánsson. Tilgangi félagsins er svo lýst,
að það skuli veita fólki þekkingu á lög-
málum lífsins og heilsusamlegum lifn-
aðarháttum og stuðla að því, að þeir
sem sjúkir eru orðnir eða veiklaðir,
geti átt kost á lækningum með náttúr-
legum hjálparmeðölum, ljósi, lofti,
vatni, hreyfingu, hvíld, matarhæfi
o. s. frv.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Á útleíð kl. 8 í kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 1 í dag.
Að gefnu tilefni
skai það tekið fram, að frásögnin um
Flóabúið, sem birtist í seinasta blaði,
var ekki höfð eftir Halldóri Eiríkssyni
forstjóra.
Leiðrétting.
í síðasta blaði var skýrt frá nöfnum
skipverjanna á línuveiðaskipinu Pét-
ursey. Þar er talið, að einn hásetinn,
Hrólfur Þorsteinsson frá Hvamms-
tanga, sé ókvæntur. Þetta er ekki rétt.
Hann var kvæntur Þuríði Þórðardóttur
á Hvammstanga.
Vinnið ötullega fgrir
Tímann.
hjá Þjóðverjnm
en Rretum
(Framli. af 1. síöu.J
raun um, að þær séu mjög
vandaðar. Síðan segir hann:
— Rannsóknir á brezku flug-
vélunum, sem hafa verið skotn-
ar niður, leiðir jafnframt ann-
að í ljós. Uppdrættirnir, sem
ensku flugmennirnir hafa fyr-
ir leiðarvísir, eru ótrúlega ná-
kvæmir og eiga auðsjáanlega
ætt sína að rekja til fullkomn-
ustu njósnarstarfsemi. Plug-
mennirnir vita til fullnustu um
legu hverrar einustu gasstöðvar,
rafstöðvar eða verksmiðjubygg-
ingar á þeim stöðum, sem þeir
eru látnir heimsækja. Það sést
líka á annan hátt, að Bretar fá
mjög glöggar upplýsingar frá
Þýzkalandi. Ég hitti af tilviljun
verksmiðjueiganda frá Vestur-
Þýzkalandi. Hann sagði mér, að
fyrir ekki löngu síðan hefði ver-
ið byrjað á byggingu skotfæra-
verksmiðju. Bretar áttu vitan-
lega ekki að fá minnstu vitund
um hana. Hún var dulmáluð á
hinn kænlegasta hátt og ekki
látin hafa neinn reykháf, sem
gæti orðið leiðbeining fyrir
flugmennina. Það var ómögu-
legt að greina hana frá um-
hverfinu úr 3000 m. hæð í hinu
allra heiðskírasta veðri. Þegar
öllum þessum útbúnaði var lok-
ið hóf verksmiðjan framleiðslu
sína. En hún hafði ekki starfað,
nema í nokkrar klukkustundir,
þegar Bretar gerðu fyrstu loft-
árásina!
Griggs er sammála hinum
ameríska fréttaritara um það,
að ekki verði vart við neitt
Bretahatur meðal þýzks al-
mennings. Hins vegar sé oft
farið viðurkenningarorðum um
dugnað Breta og allmiklar sög-
ur gangi um afrek brezkra flug-
manna. í útvarpsræðu , sem
næstæðsti foringi þýzka flug-
hersins flutti fyrir nokkru,
lýsti hann líka aðdáun sinni á
brezka flughernum og sagði, að
þýzka þjóðin yrði að gera sér
ljóst, að hún ætti nú í höggi við
dugmeiri og þolnari andstæð-
ing en t. d. Pólland og Prakk-
land.
(Framh. af 1. síðu.)
Frá Júgóslavíu berast fregnir
um miklar og víðtækar óeirðir
þar, sökum samkomúiags jú-
góslavnesku stjórnarinnar við
öxulríkin. Götufundir hafa ver-
ið haldnir víðsvegar um Serbíu
og Montenegró og hundruð
manna hafa verið hneppt í
fangelsi. Einkum virðist þó óá-
nægjan mögnuð í sveitahér-
uðum Serbíu. Herinn virðist
vera mjög mótfallinn sam-
komulaginu og hafa þegar kom-
ið allmargir júgóslavneskir her-
foringjar og flugmenn til
Grikklands og gerzt sjálfboða-
liðar í gríska hernum. Annars
leitast stjórnendur Júgóslavíu
við að láta sem minnst fréttast
um andúðina gegn samkomu-
laginu og hefir því verið komið
á strangri skeytaskoðun.
Brezk blöð fara hörðum orð-
um um undanlátssemi Júgó-
slavnesku stjórnarinnar við öx-
ulríkin. Telja þau, að stjórnin
hafi raunverulega gefið landið
á vald öxulrikj anna. Þá segja
þau, að júgóslavneska stjórnin
geti ekki átt von á vinfengi
Breta, ef sigurinn fellur þeim í
skaut.
Graziani, sem hefir verið yf-
irstjórnandi Libyuhers ítala,
hefir beðizt lausnar að sögn
Rómaborgarútvarpsins. Eftir-
maður hans nefnist ítalo Gari-
baldi.
Brezkar fregnir herma, að
talsvert þýzkt herlið sé komið
til Libyu. Þetta lið mun aðal-
lega komið þangað til að styrkja
varnir ítala. Það virðist komið
í ljós, að Bretar ætli ekki að
halda áfram frekari sókn í
Libyu fyrst um sinn, heldur bú-
ast fyrir á þeim stöðum, sem
þeir hafa tekið. Mun þetta gert
með tilliti til þess, að þeir geti
flutt sem mest lið til Grikk-
lands, ef þörf krefur.
Brezka herliðið, sem sækir inn
í Abessiniu yfir ítalska Somali-
land, á eftir ófarna um 30 km.
til Harrar, en það er önnur
stærsta borg Abessiniu. Á öðr-
um vígstöðvum í Austur-Afríku
gengur sókn Breta að óskum.
Lánadeild smábýla
(Framh. a) 1. síðu.)
hverfa inn í þéttbýlið vegna
getuleysis um stofnun til bygg-
inga og búskapar, ef hvergi fæst
fé að láni. Geta þó slík smábýli
verið alldrjúg tekjulind, sér í
lagi fyrir fjölskyldumenn, og ó-
líkt hollara fyrir fjölskylduað-
ila að geta fengið þar starf við
sitt hæfi í staðinn fyrir að-
gerðarleysi það, sem oft dæm-
ist á unglinga í þröngbýlisstöð-
unum.
Víða í sveitum gætu verið
skilyrði fyrir iðnaðarmenn til
að setjast að, ef þeir stunda
landbúnað í hjáverkum. Slíkir
menn hafa hvergi aðgang að
lánsfé, og lítur bankanefndin
svo á, að smábýladeildin ætti
að veita lán til slíkra smábýla."
Um útsvör og skatfta
(Fravih. af 3. síðu.)
eða alls ekki gerlegt, að draga
menn þannig í tvo. dilka, og
skipa öðrum i „stríðsgróðahóp-
inn“. Ein og sömu skattalög
með stighækkandi tekju- og
eignaskatti, með frádráttar-
ívilnunum og jöfnunartekjum í
þá átt, sem að framan getur,
eiga að gilda í landinu. Lög-
gjaíann eða ríkissjóð varðar
það engu, hvort og að hvað
miklu leyti auknar tekjur
kunna að stafa af völdum styrj-
aldarinnar, enda í mörgum til-
fellum lítt gerlegt eða alls ó-
kleift að skilgreina, hvort og að
hvað miklu leyti auknar tekj-
ur sumra manna kunna að
stafa af völdum ófriðarins.
Framh.
Á ÚTLEIÐ
Sýiting í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftír kl.
1 í dag.
Hljómsveit undir stjórn Dr. V.
Úrbantschitsch aðstoðar við
sýninguna.
Börn fá ekki aðgang.
Nú er réttí tímínn
til að læra að synda fyrir vorið.
Sundnámskeið hefjast að nýju
í Sundhöllinni mánudaginn 31.
þessa mánaðar.
Kennt verður bringusund og
skriðsund. — Þátttakendur gefi
sig fram sem fyrst. — Upplýs-
ingar í síma 4059. —
ATH. Nú verða sérstakir barna-
og konuflokkar.
Sundhöll Reykjavíkur.
1
m i'rreryra
| ■ | | > JT
I
1
„OIaf6é
hleður á morgun til Önundar-
fjarðar, Súgandafjarðar, Bol-
ungarvíkur og ísafjarðar.
Vörumóttaka í dag.
Á víðavangi.
h
(Framh. af 1. slðu.)
heldur einnig látið ríkið sjálft
safna birgðum og reynt að
tryggja skip til slíkra flutninga.
Sjálfstæðisflokkurinn mun síð-
ur en svo hafa ýtt undir slíkar
ráðstafanir, en vonandi veitir
hann þeim ekki mótspyrnu, ef
til framkvæmda kæmi.
Rylting í Jugoslaviu
(Framh. af 1. síðu.)
neitt af hálfu þýzku stjórnar-
valdanna um þennan atburð, en
því er spáð, að Þjóðverjar muni
hefja innrás í Jugoslaviu.
Jugoslavneski herinn er vafa-
laust undir það búinn að mæta
innrás og aðstaða hans er betri
en t. d. Frakka og Pólverja að
því leyti, að Þjóðverjar geta
ekki komið eins mikið við véla-
hernaði þar og í Frakklandi og
Póllandi.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu.)
febrúar var einvörðungu notuð írosin
síld til beitu, en í þessum mánuði kom
næg loðna í fjörðinn, og er henni nú
310 Robert C. OUver :
sem ég hefi brotið gagnvart mínu þjóð-
félagi. Ef þú getur stöðvað Graben-
horst í glæpastarfi hans og gert hann
skaðlausan, ynnir þú góðverk, sem
myndi vega á móti allri minni synda-
byrði. En geturðu þetta?
Þegar þú lest þetta, er ég horfinn úr
þessum heimi. Með hvaða hætti veit ég
ekki. Ef til vill hefir Grabenhorst þar
hönd í bagga. Það eina sem ég get, er
að óska þér allrar blessunar, og það geri
ég af öllum krafti minnar föðurlegu
ástar til þín.
Þinn faðir.
REGINALD SPENCER.
(Reginald Towner).
Lucy hafði setið hljóð og hlustað á
iesturinn. Þegar Bob lokaði bókinni og
leit á hana, sagði hún aðeins: Vesa-
lings pabbi.
Bob greip hönd hennar og þrýsti
hana.
— Þú hefir óafvitandi starfað sam-
kvæmt ósk föður þíns. Og verði Gra-
benhorst handsamaður, átt þú stóran
þátt 1 því.
— En þú, Bob — án þín ....
Geðshræringin yfirbugaði Lucy. Hún
gat ekki sagt meira. Höfuð hennar hné
að barm Bob. Þannig sátu þau lengi
I djúpri þögn.
Æfintfjri blaöamannsins 311
Skipið bar þau óðfluga í norðurátt,
burt frá hinum afríkanska kvalastað,
þar sem svo margir höfðu kvalizt og
liðið á undan þeim.
XXIII.
John Taylor varð einn eftlr 1 Afríku.
Það var allt of tafsamt fyrir hann að
ferðast með skipi, og svo var margt
eftir enn ógert. Að vlsu voru samtök
„Keðjunnar" rofin, en ýmsir helztu liðir
hennar voru horfnir, þar á meðal Ca-
bera og sjálfur höfuðpaurinn Enoch
Grabenhorst.
Taylor beið eftir flugvél frá Prakk-
landi, sem átti að sækja hann.
Meðan hann beið, var hann í stöðugu
sambandi við félaga sína í Marseille og
Scotland Yard og fékk stöðugt fréttir
um handtöku nýrra og nýrra með-
lima „Keðjunnar". Skipulagning Gra-
benhorsts var að vísu mjög hugvits-
söm og klók, en hafði þó þann galla, að
þegar einn liður brast, hrundi allt sam-
an. Þess vegna reyndist lögreglunni
mjög auðvelt að þreifa sig áfram þegar
sá fyrsti hafði verið tekinn.
Taylor beið óþolinmóður eftir því að
komast í slaginn. Loksins heyrði hann
flugvélardrunur í loftinu og innan
stundar hafði hún lent, og hafið sig
beitt.
r r r
Menningarfélag Austur-Skaftfellinga
var stofnað árið 1926. Tilgangur þess
er að tengja saman íbúa sveitarinnar,
sem eru aðskildir af ám og eyðisönd-
um, og vekja áhuga fólksins fyrir þjóð-
legri menningarframförum. Starfsað-
ferð félagsins hefir verið sú, að halda
á ári hverju sameiginlegt mót, sem
stendur yfir í þrjá daga. Eru þar fluttir
fyrirlestrar eða erindi, hafðir umæðu-
fundir um héraðsmálefni og fleira, og
sungið og dansað síðustu nóttina.
Kaffi er ávallt veitt á fundarstaðnum.
Mót þessi eða „sæluvika" eru höfð að
loknum haustönnum í nóvembermán-
uði, fimmta hvert ár í hverri sveit. —
Vegna legu sinnar geta Öræfi ekki
verið með, en Höfn er samkomusvæði
fyrtr sig, þótt ekki sé sérstakt hrepps-
félag. íbúar þeirrar sveitar, er mótið
hefir, verða að sjá öllum langferða-
mönnum fyrir gistingu í 2—3 nætur,
og er þá oft glatt á hjalla, er 8—12
manna hópur er kominn til náttstað-
ar, og deilumál dqgsins sótt og varin
af þeim, sem aðeins væru áheyrendur
í samkomuhúsinu. Félagið hefir sjö
manna stjóm, er sér um verkefni mót-
anna og undirbýr þau. 120 menn eru
félagar, en samkomur sóttar af öllum,
elns utanfélagsmönnum. Á síðastliðnu
sumri ferðaðist Hjalti Jónsson fram-
kvæmdastjóri (Eldeyjar-Hjalti) um
r———GAMLA BÍÓ—--——
KVÆIVTUR
TVEIMIIR!
(MY PAVORITE WIFE)
Amerísk gamanmynd.
Aðalhlutverkin leika:
IRENE DUNNE off
GARY GRANT.
Aukamynd:
FRÉTTAMYND
Meðal annars brezki her-
inn á íslandi.
Sýnd kl. 7 og 9.
—■——NÝJA BÍÓ-------
ærsladrOsin
FRÁ ARIZONA
(ARIZONA WILDCAT)
Æfintýrarík og bráð-
skemmtileg amerísk kvik-
mynd frá FOX, er geriz ár-
ín eftir frelsisstríð Banda-
ríkjanna.
Aðalhlutverkin leika:
JANE WITHERS og
LEO CARILLO.
Aukamynd:
Minnisverðir viðburðir.
Sýnd kl. 7 og 9.
Júllus Ólafsson,
búfræðingur,
fyrrum bóndi að Miðjanesi 1 Reykhólasveit, andaðist þar
aðfaranótt 25. þ. m.
Vandamenn.
I$vö!
er vinsælasta tímarit landsins. Hundruð
manna eiga Dvöl alla frá upphafi í
vönduðu bandi, og telja. hana meðal
ánægjulegustu bóka sinna.
Til þess að gefa bókhneigðu fólki, sem ekki þekkir Dvöl,
kost á því að kynnast henni, hefir verið ákveðið að selja fáein
eintök af þriðja árgangi ritsins, ásamt nokkrum sýnisheftum,
sumum eldri og sumum nýrri, á 5 — fimm — krónur. Geta
þeir, sem þess æskja, fengið þetta sent í póstkröfu, burðar-
gjaldsfrítt hvert á land sem er.
Tímaritið DVÖL,
Lindargötu 9 A, Reykjavík. Sfmi 2353.
Mesí og bezt
fyrir króniuia
með i»ví :ið nota
— livottacluftltl —
----PERLA--
III
PERLA
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Reykhús. — Frystihús.
Niðursuðuverksmiðja. — Rjúgnagerð.
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niður-
soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls-
konar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir
fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
Egg frá Eggjasölusamlagi Reykjavíkur.
The World’s News Seen Through
THE Christian Science Monitor
An International Daily Newsþaþer
is Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
-------r--------------------- ------------
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $12.00 Yearly, or $1.00 a Month.
Saturday Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
Nama--------------------------------------------
SAMPLB COPY ON REQUEST
sýsluna í boði Menningarfélagsins,
ásamt dóttur sinni. Hann er formaður
Skaftfellingafélagsins í Reykjavík.
Glampandi sólskin var flesta daga
ferðarirmar og vötnin svo litil, að ekið
var á bifreiðum alla leið milli Breiða-
merkursands og Lónsheiðar. Hjalti
færði Menningarfélaginu tvær veglegar
gjafir. Stóran fána úr vönduðu efni
með einkennisstöfum félagsins, M. F.
A. S„ og innsiglishring mikinn úr gulli
með fangamarki félagsins.