Tíminn - 01.05.1941, Qupperneq 4
192
TÍMIM, fimmtndaglnn 1. maí 1941
48. blað
ÚR BÆNUM
Leiðbeiningar um skógrækt
heitir handhæg bók, sem Hákon
Bjarnason, skógræktarstjóri hefir
skrifað. Skógrækt fer nú í vöxt. Þau
islenzk heimlli í sveit og við sjó, sem
eiga blett við íbúð sina, keppast nú
við að planta þar trjám og blómum.
Því mlður er þar víða mikið starf unnið
tll einskis, vegna þess, að leiðbeiningar
hefir vantað. Með þessari ágætu bók,
sem hvert einasta heimili þarf að
eignast, og unglingar ættu líka að lesa,
sér til fróðleiks og ánægju, er algerlega
bætt úr þessu. Bókin kostar kr. 3,50.
Fáein eintök á rauðan pappír og í
skrautbandi kosta 7,50.
Jón Sigurjónsson,
prentari í Eddu, ó 40 ára prentara-
afmæli í dag. Jón er ættaður af Aust-
urlandi og hóf prentnám í Seyðisfjarð-
arprentsmiðju laust eftir aldamótin.
Lauk hann þar prentnámi og fluttist
síðan til Reykjavíkur tll starfs í ísa-
foldarprentsmiðju. Vann hann þar um
margra ára skeið, en fluttist síðan i
prentsmiðjuna Acta, er síðar var breytt
í prentsmiðjuna Eddu.
M j ólkur samsalan
hefir tilkynnt viðskiptavinum sinum
í Reykjavík, að frá næstu mánaða-
mótum verði eigi unnt að senda mjólk
heim til fólks. Veldur þessu, að óger-
legt er að fá sendisveina. Fást engir
drengir orðið til þess að stunda slík
störf, þar sem mun meira kaup er í
boði við aðra vinnu.
Bifreiðarstuldur.
Á mánudaginn var bifrelð stolið við
bifreiðastöð Steindórs Einarssonar,
meðan bifreiðarstjórinn skrapp inn á
stöðina. Var bifreiðarinnar leitað, en
hvergi fréttist til hennar um sinn.
Sama dag kom bifreið frá Steindórs-
stöð austan yfir Mosfellsheiði. Hjá
Grafarholti í Mosfellssveit tók bifreið-
arstjórinn gangandi mann af veginum
upp í bífreið sína. Þegar hann kom til
bæjarins, frétti hann um stuldinn og
fékk þegar illan bifur á manninum, er
hann hitti hjá Grafarholti, enda
mundi hann eftir moldarbletti á föt-
um hans. Var bifreiðarinnar nú leitað
uppi í Mosfellssveit og fannst hún við
Lambhagaárbrúna. Þar hafði henni
verið ekið út af veginum. Lýsti bif-
reiðarstjórinn hinum grunsama manni
og var hann handsamaður að tilvísun
hans og reyndist vera sá seki. Hann er
18 ára gamall, Guðmann Alfred Jóns-
son að nafni, til heimilis á Bræðra-
borgarstíg 49.
Amælismót
Sundfélagsins Ægis var háð í sund-
höllinni í gærkvöldi. Þátttakendur voru
frá Glímufélaginu Ármann, íþrótta-
félagi Reykjavíkur, Knattspyrnufélagi
Reykjavikur og Sundfélaginu Ægi. í
200 m. sundi, frjálsrar aðferðar, sigraði
Stefán Jónsson (Á.) á 2 min. 35,5 sek.
Annar varð Logi Einarsson (Æ.) á 2
mín. 36 sek. í 50 m. sundi stúlkna,
frjálsrar aðferðar, varð fyrst Hjördís
Sigurðardóttir (Æ.) á 39,5 sek. Önnur
Þórunn Ingimarsdóttir (Æ.) 39,8 sek.
25 m. sund drengja innan 13 ára ald-
urs, frjáls aðferð, vann Guðmundur
Ingólfsson (í. R.) á 19,7 sek. Annar
Bjarki Magnússon (Æ.) á 22.1 sek. 50
metra sund drengja yngri en 15 ára,
frjáis aðferð, vann Karl Karlsson (í.
R.) á 34 sek. Annar Einar Sigurvinsson
(K. R.) 37,5 sek. 100 metra bringusund
drengja yngri en 15 ára, vann Geir
Þórðarson (K.R.) á 46,2 sek. Annar
Hannes Sigurðsson (Æ.) á 49,2 sek.
50 m. bringusund stúlkna yngri en 15
ára, vann Sigríður Jónsdóttir (K. R.)
á 46,8 sek. Önnur Halldóra Einarsdóttir
(Æ.) á 46,8 sek. í 4x50 m. bringuboð-
sundi var sveit Ægis 2 min. 28,3 sek.,
en sveitir Ármanns og K. R. voru
dæmdar úr leik vegna ólögmæts við-
bragðs. 50 m. sund kvenna, frjáls að-
íerð, vann Ragnhildur Steingrímsdótt-
ir (Æ.) á 38,8 sek. Önnur Sigríður Ein-
arsdóttir (Æ.) á 39,7. í boðsundi 8x50,
frjáls aðferð, sigraði sveit Ægis á 4
mín. 01,8 sek. Önnur varð sveit Ár-
manns á 4 mln. 04,7 sek.
Auglýsið í Tímanum!
Þegnskylduvinna
(Framh,- af 1. síðu.)
styrk, og skal þá ráðherra til-
kynna svo fljótt sem auðið er
um í'járhæð væntanlegs styrks.
Nú kemur þegnskyldur mað-
ur ekki til vinnu eftir fyrirlagi
þegnskylduvinnunefndar, og
sætir hann þá sektum, er nema
tvöföldu dagkaupi við sams
konar störf fyrir þau dagsverk,
er tapast. Sektir renna í hrepps-
sjóð.
í greinargerð frv. segir m.a.:
Á síðasta Alþingi var gerð á-
lyktun um að skora á ríkis-
stjórnina að undirbúa frumvarp
um þegnskylduvinnu, sem síð-
ar yrði borið undir þjóðarat-
kvæði. Landbúnaðarnefnd hefir
borizt frá forsætisráðherra frv.
um heimild fyrir kaupstaði,
kauptún, sjávar- og sveitar-
þorp til þess að láta vinna að
jarðrækt í almenningsþágu með
þegnskylduvinnu. Þótti land-
búnaðarnefnd fullskammt
gengið í þessu frumvarpi, þar
sem aðeins er miðað við jarð-
rækt, og þá eingöngu í kaup-
stöðum- og þorpum. Hefir
nefndin því gert nýtt frv., sem
felur í sér aðalatriði þess frv.,
sem sent var nefndinní, en er
þó víðtækara, svo sem um verk-
efni við þegnskylduvinnu, og
nær auk þess til sveitarfélaga.
Fer frv. nefndarinnar um ýmsa
hluti nær því, sem áður hefir
verið hugsað um þegnskyldu-
vinnu, og er þó ekki gert ráð
fyrir neinni þvingun við
hrepps- eða bæjarfélög. Telur
nefndin líklegast, að þegn-
skylduvinna geti vaxið upp
með þessum hætti neðan að, ef
svo má segja, og er þá líklegt,
að hún færist víðar um landið,
ef vel gefst hjá brautryðjend-
um, þar til unnt væri að gera
hana að föstum lið í uppeldis-
kerfi allrar þjóðarinnar.
Síeilbris'ðismál
(Framh. af 1. siðu.)
læknishéruð með ríkislaunuð-
um yfirlæknum. Síðan er þess-
um landsfjórðungum skipt í
minni umdæmi og launa
byggðarlögin lækna í þeim, en
yfirlæknirinn er jafnframt
byggðarlæknir í því byggðar-
lagi, er hann á heima í. Æðsti
maður heilbrigðismálanna í
Færeyjum er amtslæknirinn í
Tórshavn og svarar embætti'
hans mjög til landlæknisstarf-
ans hér. Nú er Dahl, yfirlæknir
við sjúkrahúsið í Tórshavn,
amtslæknir. Hann er tengda,-
sonur Jóannesar Paturssonar
kóngsbónda í Kirkjubö.
Útbúnaður færeyskra lækna
er prýðilegur og sjúkrahúsið í
Tórshavn er ágætlega búið að
sjúkragögnum og lækningaá-
höldum. Sjúkrahús eru einnig í
Trongisvági og Klakksvík. Til
íerðalaga eru læknabátar.
í Tórshavn ?r nýtízku berkla-
hæli. Hefir Færeyink„_n tekizt
með ágætum að bægja frá sér
berklaveikinni og eru vel á veg
komnir að útrýma henni með
öllu úr landinu. Heil byggðarlög
Hjartanlega þakka ég öllum fjœr og nœr er glöddu
mig á áttrœðisafmœli mlnu, með heimsóknum, gjöfum,
kveðjum og skeytum.
ANDRÍANA S. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Ökrum, Mýrasýslu.
eru í Færeyjum, þar sem nú
eru alls engir berklasjúklingar.
Veitir það aðstöðu til mjög
merkilegra rannsókna á sýk-
ingarháttum. Meðan ég dvaldi í
Færeyjum kom veikur maður til
læknis og reyndist hann vera
sýktur af berklum. Þótti lækn-
inum það kynlegt, því að eng-
inn berklasjúklingur var til í
hans byggðarlagi, svo að sýk-
ing yrði til hans rakin. En þeg-
ar sjúklingurinn skýrði frá því,
að hann hefði fyrir nokkru
verið á brezkri hermannasam-
komu, þótti lækninum gátan
leyst. Hann gerði herlæknin-
um orð og fór þess á leit, að
hann berklaskoðaði setuliðið í
byggðarlagi sjúklingsins. Var
það gert, og kom þá í ljós, að í
hernum var einn maður með
opið berklasár. Hann hafði sýkt
Færeyinginn.
Þessi saga sýnir og, hversu vel
færeyskir læknar fylgjast með
heilsufari fólks í umdæmum
sínum.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síöu.)
áfram og segja brezkar
fregnir, að hann gangi vonum
framar, þar sem aðstaða sé
miklu örðugri en við Dunkirk.
Notuð eru skip af öllum stærð-
um og er sumt af liðinu aðeins
flutt til Krítar. í þingræðu, sem
Churchill hélt í gær, sagði hann
að alls hefðu 60 þús. hermenn
verið fluttir til Grikklands, en
búið væri að flytja 45 þús í
burtu. í seinustu fréttum Þjóð-
verja segir, að þeir séu búnir
að taka fimm þúsund brezka
hermenn til fanga í Grikklandi.
Bússneska stjórnin hefir
bannað alla flutninga á her-
gögnum og hernaðarvörum um
Rússland. Telja Bretar þetta
styrkja hafnbann sitt. Athygli
vekur það einnig, að rússneska
útvarpið hefir ' látið svo um-
mælt, að varnir Breta við aust-
anvert Miðjarðarhaf væri
traustari en margir héldu.
Churchill hefir tilkynnt, að
í næstu viku myndi hann leggja
fyrir neðri málstofuna tillögu,
þar sem þingið lýsti sig sam-
þykkt herflutningnum til
Grikklands og treysti stjórn-
inni til að halda baráttunni á-
fram. Churchill sagðist vera
viðbúinn löngum umræðum.
Hann kvað ekki hægt að hafa
þessar umræður fyrr, sökum
hernaðaraðgerða, sem ekki væri
hægt að ræða um fyrr en þeim
væri lokið.
Jollakoglu, sem stjórnaði
norðurher Grikkja, hefir mynd-
að stjórn í Grikklahdi, að því
er virðist með stuðningi Þjóð-
verja. í ávarpi til þjóðarinnar
neitar hann að viðurkenna
Smíða trúlofunarhringa
o. fl. Jón Dalmannsson
Grettisgötu 6. Rvík.
VinniS ötullega fgrir
Timann.
-GAMLA BÍÓ-
Ljósið
sem hvarf
Ronald Colman
in RUDYARD KIPLNGS
„TIIE LIGHT
THAT FA1LED“
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-NÝJA BÍÓ-
Spellvipkjjarnir
(Spoilers of the Range)
Spennandi og æfintýrarík
„Wild West“ kvikmynd frá
Columbia Pictures.
Aðalhlutverkið leikur kon-
ungur allra „Cowboy-
kappa“
CHARLES STARRETT.
Börn innan 16 ára fá ekkl
aðgang.
Sýnd kl. 7 og 9.
Leiðbeínmgar um trjárækt
með 26 myndnrn
eftlr
iiAkox
BJARNASON
skógræktarstjóra.
Verð kr. 3.50.
Þetta er ómlssandi handbók á hverju heimili, bók, sem hvert mannsbarn þarf að lesa og læra.
Það er ekki nema klukkustundarverk að lesa þessa bók, en eftir þann lestur vitið þér það,
sem yður er nauðsynlegt að vita um trjárækt. Allir unglingar verða að eiga þessa bók og læra
hana. — Búnaðarfélög, ungmennafélög, kaupfélög og kaupmenn út um land ættu að hafa þessa
bók á boðstólum. — Geta pantað hana beint frá
Vikiiigsútgáfan
Hverfisgötu 4. — Sími 2864.
Victor Hugo:
Esmeralda
konungdóm Georgs konungs,
sem hafi sýnt þann heigulshátt
að flýja, og skorar hann á þjóð-
ina að veita ekki Þjóðverjum
frekara viðnám.
í Libyustyrjöldinni hafa eng-
ar breytingar orðið seinustu
dagana.
Ellilaun og
örorkubætur
(Framh. af 3. slðu.)
í Reykjavík .... kr. 1170,00
- öðrum kaupst. .. — 1100,00
- kauptúnum .... — 940,00
- sveitum ....... — 780,00
Þetta er 30% hækkun og
verður hún að teljast eðlileg.
Áðurnefnd hreppsnefnd tek-
ur nú þenna viðauka með
þannig, að hún lætur öll elli-
laun í hreppnum hækka um 30
af hundraði.
NÝKOMIÐ FJÖLBREYTT ÚRVAL AF
Dragta- og
kápnefnnm
ENNFREMUR: Hvítur, mórauður og blágrár
LOPI
VERKSMIÐJUÚTSALAN
GeSjun — Iðunn
XI. látið gera höggmynd af sér, þar
sem hann lá á knjánum framan við
mynd hinnar heilögu meyjar. Þangað
hafði hann einnig iátið flytja líkneski
af Karli XII. og Lúðviki helga. Hann
var þeirrar trúar, að þessir tveir dýr-
lingar nytu mikilla valda á himnum,
þar eð þeir höfðu verið konungar
Frakklands.
-.Yfir anddyri salarins var pallur, sem
gullofið fortjald var dregið fyrir. Þar
var flæmsku sendimönnunum og öðr-
um tignum gestum ætluð sæti. — Leik-
sýningin átti fram að fara á marm-
araborðinu mikla. Allan morguninn
hafði verið unnið að því að breyta því
1 leiksvið. Við hvert hinna fjögurra
horna borðsins hélt lögregluhermaður
vörð.
Leiksýningin skyldi byrja þegar
ráðhússklukkan slægi tólf. Fyrr mátti
hún ekki hefjast, svo að flæmsku
sendimennirnir neyddust eigi til þess
að rísa óþægilega árla úr rekkjum.
Mannfjöldinn hafði eigi að síður
safnazt saman framan við anddyri
ráðhússins strax í dögun. Sumir höfðu
jafnvel dvalizt þar yfir nóttina, til
þess að tryggja sér beztu sætin. Þrengsl-
in ukust sífellt. Óþolinmæði og óánægja
fólksins óx einnig að sama skapi. Ávít-
unarorð og formælingar hrutu af vörum
þess. En skólapiltar og þjónar, er stóðu
utan hópsins, skemmtu sér hið bezta.
Gerðust þeir harla djarfir í hrekkja-
brögðum og brigslyrðum við vanstilltan
og örlyndan mannfjöldann. Foringi
þeirra var ungur stúdent, Jóhann Trollo
du Moulin að nafni. Hann og félagar
hans gerðust sífellt mikilvirkari í ólát-
um sínum. Þó náðu þau hámarki sínu,
þegar kennaralið háskólans, með for-
manninn í broddi fylkingar, hélt yfir
torgið til móts við flæmsku sendi-
mennina. Hæðnishróp kváðu við hvað-
an æva. Þeim var einkum beint til for-
stöðumannsins.
Loksins»sló klukkan tólf. Háreystið
hætti um stund. En eigi leið á löngu,
unz fótastapp og bölbænir mátti heyra
að nýju. Allir kepptust um beztu sætin.
— Loks komst þó þögn á. Menn biðu
fullir eftirvæntingar Allir horfðu í átt-
ina til marmaraborðsins. En þar var
alls enga hreyfingu að sjá. Lögregluher-
mennirnir stóðu enn á verði, hreyf-
ingarlausir eins og líkneski. — Sjónir
allra beindust að pallinum, þar sem
flæmsku sendimennirnir skyldu hljóta
sæti. Þar var heldur engan að sjá.
En nú var þolinmæði mannfjöldans
þrotin. Stundarfjórðungur leið, og allt
sat við hið sama. Pallurinn var mann-
laus og leiksviðið einnig. Óþolinmæðin
Fyrir því varð heildarupp-
hæðin til 2. fl. kr. 6500,00 næsta
ár.
Nú þurfti ekki heldur að
ganga í neinar grafgötur með
að áætla framlag Lífeyrissjóðs-
ins, eins og verið hafði. Bráða-
birgðalögin ákváðu það 30%.
Hlutur L. í. af þessu var því kr.
1950,00,, en hreppsins krónur
4550,00.
Með samanburði má sjá, að
greiðslujöfnuður á dýrtíðar-
aukningunni einni saman, kr.
1500,00 annars vegar, og öllu
framlagi L. í. til 2. fl. fyrir ár-
ið 1941, kr. 1950,00 hins vegar,
er hreppnum að eins hagstæður
um kr. 450,00. En það táknar
hið sama og, að hreppinn skorti
50 krónur á að ná árið 1941 10%
úr Lífeyrissjóði íslands, miðað
við óbreytt heildarframlag
hreppsins frá því árinu á und-
an.
Þetta eru þá kjarabæturnar,
að um leið og Lífeyrissjóður ís-
lands er efldur með þátttöku
rlkissjóðs, er stuðningurinn
minnkaður um 20% við hrepp-
ana.
Framhald.
Skípsferð
verður á morgun til Akureyrar
og Húsavíkur og sömu leið til
baka. — Vörumóttaka til hádeg-
is sama dag.
Hreinar
léreftstnskur
kaupir
Prentsmiðjan Edda
Lindargötu 9A.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
ttbreiðið Tfimannl
Íslcnzkír litir
Bréfspjald — ný útgáfa af fán-
anum. — Fæst hjá útgefandan-
um,
Saimíel Eggertssyni,
Grettisgötu 6, Reykjavik.
Verð 50 aura stykkið. Sent gegn
póstkröfu með 40% afslætti,
minst 50 st.