Tíminn - 27.05.1941, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARRLOKKURINN.
t-
RITSTJÓRN ARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hj.
Simar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavík, [iriðjudagiim 27. maí 1941
58. blað
Rúmlega 90 fulltrúar sóttu
annað þing S.U.F.
- Störf píngsíns og stjórnarkosníng -
Þegar Bismarck var hleypt af stokkunum í Hamborg um líkt leyti og styrj-
öldin hófst.
Sjóorusta víð ísland
Stærstu herskipum Breta og Þjódverja sökkt
Helztu ályktanir
þíngs S. U. F.
Þjóðræknismál
AnnaÖ sambandsþing ungra
Framsóknarmanna, haldió að
Laugarvatni dagana 24.—25.
maí 1941 telur, að vegna her-
töku landsins og hins óvenju-
lega ástands, sem við hana hefir
myndazt, sé sérstök ástæða fyr-
ir íslenzka æsku að vera vel á
verði um þjóðerni sitt, tungu
og menningu.
í því sambandi vill þingið
benda á eftirfarandi atriði:
1. AÖ aukin áherzla verði lögð
á kennslu móðurmálsins og ís-
lenzkrar sögu í öllum skólum
Iandsins.
2. Að lögð verði meiri áherzla
á söng og flutning íslenzkra
ættjarðarkvæða en að undan-
förnu.
3. Að haldið verði fast við
samþykkt þá, sem gerð var á
skólastjórafundi, sem haldinn
var í Reykjavík síðastliðið
haust, um framkomu skólanem-
anda gagnvart hinu útlenda
setuliði.
4. Að öll útbreiðslutæki þjóð-
arinnar, t. d. blöð, útvarp og
kvikmyndahús, verði notuð í
þágu þjóðernisbaráttunnar.
5. Að lögð verði rækt við
þjóðlegar menjar og sögustaði,
t. d. að komið verði upp á forn-
frægum sögustöðum héraða-
söfnum, er veiti glögga hug-
mynd um sögu og lifnaðarháttu
héraðsins fyrr og nú.
6. Að æskufólk hafi ekki af-
skipti af hinu erlenda setuliði
nema brýn nauðsyn beri til.
7. Að sérstaklega sé hættu-
legt, það sem nú tíðkast, að er-
lendir hermenn venji komur
sínar á íslenzk heimili.
8. Að endingu vill þingið
beina þeirri áskorun til áhrifa-
manna þjóðarinnar, að þeir
gæti þess í umgengni og við-
skiptum sínum við hið erlenda
setulið, að vera öðrum til fyrir-
myndar.
Sjálfstæðismálið
Anað sambandsþing ungra
Framsóknarmanna, haldið að
Laugarvatni dagana 24.—25.
.naí, 1941, leggur áherzlu á
fyrri samþykktir ungra Fram-
sóknarmanna, og vilja þeirra til
þess, að full sambandsslit við
Danmörku fari fram, svo fljótt
sem unnt er, og að stofnað verði
lýðveldi á íslandi.
Jafnframt beinir þingið þeirri
áskorun til þingmanna Fram-
sóknarflokksins, að þeir vinni
ákveðið og markvíst að lausn
þessa máls.
Framleiðslan
Annað þing S. IJ. F. telur það
eitt allra stærsta hagsmunamál
þjóðarinnar, að spornað sé
gegn öllum samdrætti í fram-
leiðslu hennar og þó sér-
staklega í þeim atvinnugrein-
um, sem framleiða lífsnauð-
synjar handa þjóðinni. Þingið
beinir því eindregið þeirri á-
skorun til Alþingis, að það hlut-
ist til um, að landbúnaðinum
verði sköpuð sú aðstaða, að
framleiðsla hans frekar aukist
en dragist saman. Þá vill þing-
ið sérstaklega beina þeirri á-
skorun til ungra manna og
kvenna, að vinna að fram-
leiðslustörfum í sumar eftir því,
sem aðstaða þeirra frekast
leyfir.
Kosningafrestunin
Annað þing S. U. F. harmar
það, að Alþingi skuli hafa talið
sig neytt til að fresta almenn-
um þingkosningum, sem fram
áttu að fara í vor.
Annað þing Sambands
ungra Framsóknarmanna
var haldið að Laugarvatni
dagana 24.—25. þ. m. Mætt-
ir voru 93 fulltrúar og voru
þeir víðsvegar af landinu,
eins og sjá má af nafna-
skránni, sem birt er á öðrum
stað í blaðinu.
Þingið var sett kl. 10 árdegis
á laugardag og voru flestir full-
trúarnir þá mættir. Þingfundir
stóðu til kl. 10 á laugardags-
kvöld og hófust aftur kl. 10 á
sunnudagsmorgun. Þinginu lauk
seint um kvöldið og héldu full-
trúarnir heimleiðis um nóttina.
Fundarstjórar voru: Qrímur
Gíslason, Saurbæ, A.-Hún.,
Haukur Jörundsson, kennari á
Hvanneyri, Sigurður Benedikts-
son, Húsavík og Sigurður J.
Líndal, Lækjamóti, V.-Hún.
Fundarritarar voru Björn Guð-
mundsson, Kópaskeri, Ingvar
Brynjólfsson, Reykjavík og Sig-
urður Jóhannesson, Giljalandi,
Dalasýslu.
Helztu mál þingsins voru fé-
lagsmál ungra Framsóknar-
manna og þjóðræknismál. Voru
samþykktar allmargar ályktan-
ir og eru nokkrar þeirra birtar
á öðrum stað í blaðinu. Þá voru
sett ný lög fyrir S. U. F.
Á fundinum fluttu erindl
Daníel Ágústínusson erindreki,
Eysteinn Jónsson viðskipta-
málaráðherra, Jónas Jónsson
formaður Framsóknarflokks-
ins, Hermann Jónasson forsæt-
isráðherra, Ólafur H. Guð-
mundsson, Hellnatúni og Bjarni
Bjarnason skólastjóri. Voru er-
indin öll hin merkilegustu. í er-
indum sínum skýrðu ráðherr-
arnir ýms helztu dægurmálin
og aðstöðu okkar til styrjaldar-
innar.
Embættlsprófum 1 lögfræði er nú lok-
ið. Þessir kandidatar luku prófi: Axel
Tulinlus, I. eink. 126% stig Priðjón
Sigurðsson, I. einkunn, 129% stig. Jó-
hann Steinasön, II. einkunn betri
99% stig. Sigurjón Sigurðsson I. eink.
128 stig og Ævar Kvaran II. einkunn
betri, 104% stigs. Auk þess hefir lokið
prófi fyrsti kandidatinn samkvæmt
hinu nýja fyrirkomulagi & lagadeild,
þar sem námið er teklð í tveim hlut-
um og bætt við nokkrum munnlegum
og einu skrlflegu fagi. Kandidatinn er
Eiríkur Pálsson, I. einkunn 202% stig.
Það mun reikningslega samsvara 131
stigi, samkvæmt gamla fyrirkomulag-
inu. Embættisprófi í guðfræði hafa
lokið Magnús Már Lárusson með I.
einkunn, 135 stlgum, og Sigurður Krlst-
jánsson, II. einkunn, 104% stigs. PJórir
stúdentar luku og læknaprófl: Priðrik
Kristófersson, I. einkunn, 162% stlgs,
Karl Strand, II. einkunn betri, 133%
stigs, Kristján Jónsson, I. elnkunn,
148% stigs og Ólafur Slgurðsson, I.
einkunn, 163% stigs.
t t t
Hreyfilbátar sóttu sjó frá Siglufirði
í vetur. Voru gæftlr góðar og afli dá-
góður, svo að sjómenn báru ágætan
hlut úr býtum, því að verðlag á fiskin-
um var hátt. Upp á síðkastið hefir
Friðrik Guðjónsson útgerðarmaður
haldlð út tveim vélbátum. Premur hef-
ir verið saltlítið, þvi að mlklð af salt-
birgðmn þelm, sem tll voru í bænum,
voru seldar i vetur.
Kosin var stjórn. í fram-
kvæmdastjórn hlutu kosningu:
Þórarinn Þórarinsson'- ritstjóri,
formaður, Jón Emil Guðjóns-
son kennari, ' ritari, Egill
Bjarpason afgreiðslustjóri,
gjaldkeri, Jón Helgason blaða-
maður, varaformaður, og Sig-
urður Hafstað lögfræðinemi,
meðstjórnandi.
Aðalstjórn skipa, auk fram-
kvæmdastjórnar, einn fulltrúi
fyrir hverja sýslu eða kaupstað,
þar sem samtök Framsóknar-
manna eru starfandi. Eftirtald-
ir menn voru kjörnir sýslu- og
kaupstaðaf ulltrú ar:
Gullbringu- og Kjósarsýslu:
Sighvatur Gíslason, Sólbakka.
Varamaður: Guðm. Danívals-
son, Keflavík.
ílorgarf jarðarsýslu: Haukur
Jörundsson, Hvanneyri. Vara-
maður: Kristinn Júlíusson,
Leirá.
Mýrasýslu: Magnús Kristjáns-
son, Hreðavatni. Varamaður:
Edvald Friðriksson, Borgarnesi.
Snæfellsnessýslu: Gunnar
Guðbjartsson, Hjarðarfelli.
Varamaður: Þorgils Stefánsson,
Ólafsvík.
Dalasýslu: Einar Kristjáns-
son, Leysingj astöðum. Vara-
maður: " Friðgeir Sveinsson,
Sveinsstöðum.
Barðastrandarsýslu: Grlmur
Arnórsson, Tindum. Varamður:
Baldur Guðmundsson, Patreks-
firði.
Vestur-ísafjarðarsýslu: Hjört-
ur Hjartar, Flateyrí. Varamað-
ur: Jón Ólafsson, Þingeyrl.
Norður-ísafjarðarsýslu: Ás-
geir Höskuldsson, Tungu. Var-
maður: Jóhannes Jakobsson,
Reykjarfirði.
Strandasýslu: Þorstelnn Ól-
afsson, Hlaðhamri. Varamaður:
Ingimundur Ingimundarson,
■ Svanshóli. _ (Frh. á 4. síðu)
Brezka herstjórnin lét I gærkvöldi
útvarpa tilkynnlngu um flugvél, er hún
óttast að hlekkzt hafi á. Átti lhún
að fljúga suður yfir öræfin og fór hún
af stað um hádegisbillð í gær. Sást
hún á lofti klukkustund eftir að hún
hófst til flugs, en siðar hefir hennar
hvergi vart orðið og þykir því einsýnt,
að hún hafi hrapað til jarðar eða
nauðlent í óbyggðum.
t r r
í gærkvöldi um áttaleytið sást
ókunnug flugvél á sveimi yfir Hrúta-
firði. Yfir túnið á Prestsbakka flaug
hún mjög lágt, og telja menn tveir, er
staddir voru úti, sig hafa séð haka-
krossmerki á stéli hennar og búk.
Hluti túnsins á Prestsbakka er slétt og
jafnlent og má vera, að flugmennimlr
hafi verið að virða fyrlr sér lendingar-
skllyrði þar, er þair lækkuðu flugið.
r r t
í síðastliðinni vlku var þýzkur mað-
ur, August Lehmann að nafni, er farið
hefir huldu höfðl á landi hér allt síðan
Bretar hertóku landið i maímánuði 1
fyrra, handtekiim á Patreksfirði. Leh-
mann hefir á þessu árs timabili flækzt
víða um land, en þó einkum haldlð sig
á Vestfjöröum upp á síðkastið. Hafðist
við uppi í fjalli, er Bretar tóku hann
höndum. í fyrra var hann i Borgarfirði.
Af 600 krónum, er hann þá hafði handa
á mllli, áttl hann enn eftlr á þriðja
hundrað krónur, er hann var teklnn.
t t t
Sá atburður gerðist snerjima
á laugardagsmorgun, að háð var
hörð sjóorusta milli brezkra og
þýzkra herskipa á hafinu
milli íslands og Grænlands.
Öflug brezk flotadeild hitti
þýzka orustuskiplð „Bismarck“,
ásamt nokkrum minni skipum,
og sló þegar í bardaga. Tókst
sjóliðum á Bismarck að hæfa
skotfærageymslu á Hood,
stærsta herskipi Breta, með
þeim afleiðingum, að það sökk
á fáum mínútum. Þýzku skipin
treystu sér þó ekki til að halda
orustunni áfram og lögðu á
flótta. Brezk herskip og flug-
vélar hafa elt þau og í gær-
kveldi var tilkynnt í London, að
Bismarck hefði verið hitt með
tveimur tundursprengjum og
myndu þær skemmdir, sem af
þeim hlutust, sennilega draga
úr hraða skipsins. í morgun var
tilkynnt í Berlín, að Bismarck
hefði átt „í orustu við brezkt
ofurefli síðan kl. 9 í gærkveldi.“
Tveimur klst. síðar var tilkynnt
í London, að Bismarck hefði
verið sökkt og mun- skipið þá
hafa átt um 100 sjómílur ófarn-
ar til Brest.
Hood var stærsta herskip
heimsins, rúmlega 42 þús. smál.
og hafði um 1300 manna áhöfn.
Mun hún hafa farizt með skip-
inu. Smíði Hoods var lokið 1920
og kostaði skipið fullgert 6 milj.
sterlingspunda. Hraði þess var
32 mílur á klst. Það hafðl 8 fall-
byssur 15 þumlunga og tólf
fallbyssur 5.5 þumlunga.
Þótt Hood væri stærsta her-
skip Breta,- var það ekki bezta
herskip þeirra. Nýju orustu-
skipin af 35 þús. smálestagerð-
inni eru stórum fullkomnari og
sterkbyggðari. George V. er eitt
þeirra og var hann í flotadeild-
inni með Hood. Hefir hann
sennilega unnið á Bismarck.
Bismarck var stærsta orustu-
skip Þjóðverja og var það ekki
fullgert fyrr en í nðvember síð-
astliðnum. Það var 35 þús. smál.,
gat farið 28 sjómilur á klst.,
hafði 8 fallbyssur með 15 þuml.
hlaupvídd og margar smærri.
Þjóðverjar töldu það fullkomn-
asta herskip heimsins, og væru
í því svo mörg vatnsþétt hólf,
að ómögulegt væri að sökkva
því.
Frétzt hefir, að fjarlægðin
milli Bismarcks og Hoods hafi
verið um 17 enskar mílur, þegar
Hood fékk skotið, sem hitti
skotfærageymsluna og sprengdi
skipið í loft upp.
Þjóðverjar segja, að Bismarck
hafi undanfarið rekið sjóhern-
að á Norður-Atlantshafi og
grandað kaupförum, sem nema
samtals 120 þús. smál. Áður var
haldið, að hin eldri orustuskip
Þjóðverja, Gneisenau eða
Scharnhorst, hefðu haldið uppi
þessum hernaði.
Þessi atburður er mjög at-
hyglisverður fyrir íslendinga,
því að hann sýnir enn betur en
áður var ljóst, hversu aðalátök
styrjaldarinnar hafa færzt
Hærri landinu.
Annars vekur það athygli, að
sjóhernaður Þjóðverja á At-
lantshafi virðist hafa borið
minni árangur seinustu vikurn-
ar en í apríl og marz. Kaup-
skipatjón Breta virðist hafa
minnkað á þessum slóðum.
Kafbátatjón Þjóðverja virðist
hafa orðið mikið, og þeir hafa
m. a. misst þrjá frægustu kaf-
bátaforingja sína nýlega. Einn
þeirra, Kreschmre, er stríðs-
fangi hjá Bretum, en hinir,
Prien, sem sökkti „Royal Oak“,
og Sche-pke, hafa farizt með
kafbátum slnum.
Aðrar fréttir.
Stórorusta geisar nú á Krít.
í upphafi viðureignarinnar náðu
Þjóðverjar á vald sitt helztu
flugstöð eyjarinnar, Malemi, og
hafa síðan getað flutt þangað
aukið lið, aðallega loftleiðis.
Eitthvað af liði munu þeir hafa
getað flutt í fiskibátum til eyj-
arinnár. Þjóðverjar sækja nú
frá Malemi til Sudaflóa, þar
sem eru helztu flotastöðvar
Breta. Viðurkenna Bretar, að
Þjóðverjar hafi rofið þar varn-
arlínu þeira á einum stað í gær,
en hersveitir Ný-Sjálendinga
hafi svarað með gagnáhlaupi
og standi sú viðureign nú yfir.
Muni hún geta haft örlagarík-
A víðavangi
ÞING S. U. F.
'Það mun vera langt síðan, að
jafn örðugt hefir verið og nú
að halda fjölmennt mót, þar
sem mættir væru fulltrúar úr
flestum héruðum landsins. í
sveitum er nú óvenjuleg fólks-
ekla, við sjávarsíðuna er venju
fremur mikil atvínna og sam-
göngur á sjó eru mun minni en
á undanförnum árum. Þegar á
þetta er litið, verður það að
teljast mjög glæsilegt, að um
100 ungra manna og kvenna
skyldu sækja þing ungra Fram-
sóknarmanna, sem haldið var
nú um helgina. Það ber áhuga
ungra Framsóknarmanna gott
vitni, því að flestir fulltrúarnir
urðu að leggja á sig verulegan
kostnað, meira og minna erfið
ferðalög og áttu auk þess naum-
ast heimangengt, sökum aðkall-
andi starfa þar. Það má óhætt
fullyrða, að enginn annar
flokkur myndi geta haldið slikt
æskulýðsþing. Þing Samb.
ungra Sjálfstæðismanna, sem
haldið var síðastl. haust, var
stórum fámennara, þótt að-
staðan væri þá betri. Þing S. U.
F. á Laugarvatni um síðastliðnu
helgi, er talandi tákn þess, að
Framsóknarflokkurinn er enn
sem fyrr sá flokkur, er æskan
treystir bezt og veitir því ör-
uggast brautargengi.
STARF S. U. F.
S. U. F. var stofnað fyrir
þremur árum. Á þessum tíma
hefir það verið athafnasamasti
pólitískur æskulýðsfélagsskapur
landsins. Það hefir nú innan
sinna vébanda næstum 40 fé-
lög og ná nokkur þeirra yfir
heil kjördæmi. Víða er þó fé-
lagsstarfsemin enn í bernsku,
en hvarvetna kemur fram á-
hugi fyrir eflingu hennar. Út-
gáfustarfsemi S. U. F. hefir ver-
ið sérstaklega umfangsmikil.
Það hefir gefið út þrjú bindi af
ritgerðasafni Jónasar Jónsson-
ar. Það hefir keypt og gefur út
bókmenntatímaritið Dvöl. Loks
gefur það út æskulýðsblaðið
Ingólf, sem kemur út hálfsmán-
aðarlega. Með þessu útgáfu-
starfi vinnur S. U. F. þýðingar-
mikið stjórnmálalegt og menn-
ingarlegt starf. En til þess að
þetta berL þó fullan árangur,
þurfa ungir Framsóknarmenn
að vinna einhuga að því að út-
breiða bækur, timarit og blað
S. U. F. Margir hafa unnið gott
starf á því sviöi, en fleiri þurfa
þó að bætast í hópinn,
MÁL MÁLANNA.
Þing S. U. F. tók aðeins eitt
mál til sérstakrar meðferðar,
auk félagsmálanna. Það var
þjóðræknismálið. Ályktanir
þingsins í málinu eru birtar á
öðrum stað. Það var skýrt á
binginu og fulltrúarnir virtust
því alveg samþykkir, að öll að-
staða væri nú þannig vaxin, að
’oetta mál hlyti að verða mál
málanna. Það skipti þó ekki
mestu, að gera um það stórar
og hátíðlegar samþykktir, held-
or að hver og einn reyni að
tullnægja þeim kröfum, sem til
oans verður að gera í þessum
ofnum. Ungir Framsóknarmenn
munu láta sig þetta mál mestu
skipta á næstunni. Hjá þeim
mun það verða mál málanna og
blað þeirra, Ingólfur, mun helga
’oví mikið af rúmi sinu.
ar afleiðingar. Ófrétt er enn um
úrslit. Þjóðverjar telja sig hafa
;ökkt svo mikið af brezkum her-
skipum, sem hafa verið á verði
milli Krítar og Grikklands-
strandar, að Miðjarðarhafsfloti
Breta sé orðinn sáralítill. Bret-
ar telja þetta. ýkjur einar.
Margir giska á, að einn tilgang-
urinn með Krítarsókn Þjóð-
verja sé að lokka brezka flot-
ann þangað, en á meðan geti
þeir flutt lið til Libyu.
(Framh. á 4. siOu.)
A KTKiOssa'OTUM:
Embættispróf. — Frá Siglufirði. — Flugvélar saknað.
— Ókunn flugvél nyrðra. — Þýzkur maður handtekinn
í Patreksfirði.