Tíminn - 14.06.1941, Síða 1

Tíminn - 14.06.1941, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. í FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR ; EDDUHÚSI, Llndargötu 9A. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIDSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hS. Símar 3948 og 3720. 25. ár. Reykjavík, langardaginn 14. júní 1941 65. Mað frv. slórkosflega skertur Lítið týón af loftárásum í Englandi Frásögn Jóns Björnssonar, verzlunarmanns Karlakórínn Geysír kominn til R.víkur Ingimundur Árnason söngstjóri Karlakórinn Qeysir frá Ak- ureyri kom til bæjarins með Laxfossi í gærkvöldi. Var hon- um fagnað með söng, og var fjölmenni á hafnarbakkanum, enda hið blíðasta veður. Karlakórinn Geysir ætlar að halda hér samsöngva og verður sá fyrsti á morgun. Aðgöngu- miðar að honum seldust allir á svipstundu. Meðlimir kórsins eru 44. Söng- stjóri er Ingimundur Árnason, skrifstofustjóri hjá K. E. A., og hefir verið í 20 ár, allt frá stofn- un kórsins. Karlakórinn Geysir er talinn einn bezti karlakór landsins, Síðast söng hann hér í Reykjavík árið 1934. Sanmingurinn vid Breta um sölu sjávarafurða Eins og áður hefir verið getið um kom hingað frá Bretlandi í vetur sérstök sendinefnd til að semj.a um kaup á fiskafurðum. Eftir allmiklar viðræður hér fór nefndin heimleiðis og hafði meðferðis ákveðin tilboð frá ís- lendingum. Fyrir nokkru síðan mun hafa borizt svar við þessu tilboði. Eftir því, sem blaðið hefir frétt, mun fást mjög viðunandi verð, einkum fyrir saltfisk og nýjan fisk. Fullkomlega hefir þó ekki verið gengið frá samningum um þessi viðskipti, enda munu ýms atriði vera óljós ennþá. Jafnframt þessu hafa farið fram samningar um sölu á síld- arafurðum. Blaðinu er ekki kunnugt um, hversu langt þeim er komið, en samkvæmt upplýs- ingum, sem það hefir aflað sér, mun bjóðast viðunandi verð fyrir sildaroliu. Hins vegar munu óálitlegar horfur um sölu síldarmjölsins. Samningar við Breta um sölu á landbúnaðarafurðum þessa árs eru ekki hafnir ennþá. Eru horfur um sölu þessarar afurða vírðast mjög tvísýnar. í Sýrlandi hefir ekki orðið veruleg breyting á hernaðarað- stöðunni tvo seinustu daga. Virðast Frakkar hafa getað getað stöðvað framsókn Banda- manna, enda munu þeir þurfa að draga að sér vopn og vistir áður en þeir hefja aðalárásina á Damaskus og Beirut. Önnur umræða um dýr- tíðarfrumvarp viðskipta- málaráðherra hófst í neðri deild síðdegis í gær. Fjár- hagsnefnd neðri deildar hafði haft frv. til athugun- ar og borið fram nokkrar breytingartillögur. Um eitt atriði frumvarpsins, tekju- skattinn, hafði nefndin ekki orðið sammála. Fulltrúar Framsóknarflokksins vildu láta ákvæði frv. um skatt- inn haldast óbreytt, en meirihluti nefndarinnar vildi lækka hann stórkost- lega og bar fram sérstaka breytingartillögu um það. Tillögur þær, sem fjárhags- nefndin hafði orðið ósátt um, voru allar til skýringar á á- kvæðum frv. og því ekki efnis- breytingar, nema tillaga um af- nám tolls á kornvörum, helm- ingslækkun tolls á sykurvör- um og 50% hækkun tolls á á- fengi, tóbaki og innlendum toll- vörutegundum, sbr. lög nr. 60, 30. des 1939. Tillaga meirahluta fjárhags- nefndar (Haraldur Guðmunds- son, Jón Pálmason, Stefán Stefánsson) um breytingu á tekjuskattinum hljóðaði þann- ig: „Ríkisstjórninni er helmilt að innheimta á árinu 1941 viðauka á tekjuskatt og eignarskatt á- lagðan á árinu, og má viðauki þessi nema allt að 10%“. í frv. viðskiptamálaráðherra var gert ráð fyrir, að þessi skatt- ur næmi allt að 5% af nettó- á Völlum, kom til Reykjavíkur í fyrra- dag. Tíðindamaður Tímans hitti hann að máli í gær. Skýrði Pétur svo frá, að austur á Fljótsdalshéraði væri nú sæmilegt útlit um grassprettu, en þó hefði helzt til lítið verið um votviðri. í mörgum sveitum var fé mjög létt á í vetur, til dæmis á Jökuldal. Gekk fé vel undan, og sauðburður gekk prýði- lega. Fólksekla er þar eystra, og verður ákaflega erfitt að fá kaupafólk. Tals- verðu af börnum af fjörðunum hefir verið komið fyrir uppi í sveitirnar. Er til þessa ráðs gripið í öryggisskyni. Að- alfundur Búnaðarsambands Austfjarða var haldinn að Ketilsstöðum á Völlum í fyrradag, og aðalfundur Kaupfélags Héraðsbúa verður háður þar á morgun og mánudaginn. Hin árlega Framsókn- arhátið í Múlasýslum verður haldin í Hallormsstaðaskógi eftir mánaðamótin, liklega sunnudaginn 6. júlí. r t t Eins dags ferðir milli Austurlands og Akureyrar hófust 10. júni. Er það i fyrsta skipti, sem slíkum áætlunarferð- um er haldið uppi á þessari leið. Hefir hingað til jafnan verið gist á leiðinni, venjulega að Grímsstöðum á Fjöllum í austurleið, en í Hndarbrekku í Öxar- firði á vesturleið. Kaupfélag Héraðsbúa og Bifreiðastöð Akureyrar standa að þessum ferðum. Bifreið kaupfélagsins fer frá Reyðarfirði á þriðjudögum. Sé lagt að stað klukkan 7 að morgni, er komið til Akureyrar klukkan 10—11 að kvöldi, enda sé áð á Grímsstöð’um og Húsavík á leiðinni. Frá Akureyri fer tekjum, sem væru yfir 10 þús. kr., en • stiglækkandi á lægri tekj unum. Þá höfðu þeir Jón Pálmason og Stefán Stefánsson flutt til- lögu um, að „að ríkisstjórninni væri heimilt að verja fé sam- kvæmt lögum þessum til að tryggja framleiðendum það verð á kjöti og mjólk og öðrum landbúnaðarvörum, sem nauð- synlegt telst, að dómi Búnaðar- félags íslands, til þess að fram- leiðsla þeirra afurða dragist ekki saman.“ Frá umræðimum. Sveinbjörn Högnason hóf um- ræðurnar og gerði grein fyrir hinum sameiginlegu tillögum fjárhagsnefndar. Kvað hann þær allar, nema tillöguna um tollana, fluttar í því skyni að gera ákvæði frv. skýrari og greinilegri. Tillagan um tollana væri einnig svo augljós, að hún þarfnaðist ekki skýringa. Ræðumaður skýrði þar næst frá því, að ágreiningur hefði orðið í nefndinni um tekju- skattinn, eins og sjá .mætti á tillögum meirihlutans. Ef til- lögur meirahlutans yrði sam- þykktar myndi þessi tekjustofn gefa langtum minni tekjur og það þá vitanlega rýra allar framkvæmdir í þessum málum. Fulltrúar Framsóknarflokksins (Sveinbjörn Högnason og Skúli Guðmundsson) álitu að skatt- urinn ætti að vera mun hærri en ákveðið væri í frv., og þess vegna væri ekki eðlilegt að þeir hefðu getað fallizt á frekari lækkun hans. Öllum landsmönnum, sem (Framh. á 4. sxöu.) dag. Bifreið frá B. S. A. fer og austur á þriðjudögum. Á hún að fara til Seyðisfjarðar, en Fjarðarheiði er enn ófær bifreiðum, og snýr hún því við á Egilsstöðum, vestur um á fimmtudög- um. Vegirnir eru þurrir og góðir, að kalla má, eftir hætti, því að ekkert hefir enn verið við þá gert. En nú er vegavinna að hefjast þar eystra. Á meðal annars að gera endurbætur all- miklar á Lagarfljótsbrú, láta á hana nýjan slitpall og gera fleiri umbætur. t r r Magnús Finnbogason bóndi í Reynis- dal í Mýrdal er á ferð í Reykjavík um þessar mundir. Hann kvað hina beztu tíð hafa verið austur þar í vetur, betri en menn muna dæmi um áður. Fén- aðarhöld voru í bezta lagi. Sauðburður byrjaði að þessu sinni víða með sumar- málum. Er farið að tíðkast að hleypa fyrr til ánna heldur en áður var gert. Lambahöld voru með afbrigðum góð. Víða var þriðjungurinn af ánum tvi- lembdur. Nautgripasýningar eru nýaf- staðnar í Hvamms- og Dyrhólahrepp- um. 2. verðlaun hlutu fjögur naut af fimm, er sýnd voru. Þrettán kýr fengu 1. verðlaun og margar 2. verðlaun. Gott útlit er um gi-assprettu. Fyrsta nýrækt- in var slegin 4. júní í Þórisholti í Hvammshreppi. Gaf blettur, sem var um einn hektari að stærð, af sér fjöru- tíu hestburði af 100 kílógramma hey- bandi. Mun það óvenjulega góð spretta, svo snemma á tíma að vera sem þetta er. — Jón Björnsson, verzlunar- maður hjá Sambandí íslenzkra samvinnufélaga, kom á sunnu- daginn var heim úr þriggja mánaða ferðalagi í Englandi. Hafði skip það er Jón kom með, 22 daga útivist á leið frá Skotlandi til íslands. Ollu því tafir, sem um þetta leyti urðu á skipaferðum í norðurhöfum, sökum hernaðaraðgerða Þjóð- verja þar. Tíðindamaður Tímans átti tal við Jón nú í vikunni. Fer hér á eftir frásögn Jóns: — Þegar tillit er tekið til þess, að nú eru styrj aldartimar, var ferðalag mitt og Englandsdvöl svo viðburðasnautt sem framast gat verið. Enda þótt ég væri þrjá mánuði í Bretlandi og ferðaðist þar víða, og væri meðal annars um mánaðarskeið í Suður-Eng- landi og Mið-Englandi, kynnt- ist ég aldrei loftárás, sem veru- legu tjóni ylli. Kann að vera að þetta hafi verið tilviljun ein. Það bar að vísu við, að þýzkar flugvélar væru á sveimi, og oft kvað við skothríð á nóttunni, en til harðvítugra loftárása kom aldrei, þar sem ég var staddur. Er helzt til frásagnar, að borg á norðausturströnd Skotlands, þar sem ég dvaldi í þrjár vikur, heimsóttu eitt sinn þýzkar flug- vélar fimm nætur í röð, en ekki varð annað tjón að komu þeirra en það, að eina nótt eyðilagði sprengja fáein hús og fjórir eða fimm menn biðu bana. Þegar ég kom til Manchester, var loft- árás á aðra borg þar skammt frá, svo að allmikil skothríð var úr loftvarnabyssum í Man- chester. Eins og oft vill verða undir slíkum kringumstæðum, var ómögulegt að ná í neitt far- artæki heim á hótel það, er ég ætlaði 'að búa á; var ekki um annað að gera en að fara fót- gangandi og skilja farangurinn eftir á járnbrautarstöðinni. Það má fara um ýmsar borg- ir í Bretlandi þverar og endi- langar, án þess að sjá nein merki loftárása, og skemmdir Belgíska skipið Persier, sem strand- aði á Kötlutanga á Mýrdalssandi í fe- brúarmánuði í vetur og tókst að ná á flot aftur og koma til Reykjavíkur, brotnaði í tvennt í fjörunni í Klepps- víkinni nú einn daginn. Hafði skipinu verið lagt þar I vikina. Tók það niðri í báða enda, en ekki um miðbikið. Þoldi skipið þetta ekki og brotnaði. — Skipaútgerð ríkisins, er veitti björgun- inni forstöðu, hafði skilað því af sér áður en þetta vildi til. Eins og kunnugt er, voru i skipi þessu um 100 bifreiðar, þegar það strandaði á Kötlutanga. Að öðru leyti var það hlaðið járngrýti. — Tókst með mikilli atorku að bjarga öllum bifreiðunum á land, Qn járn- grýtinu var hent í sjóinn. Bifreiðarnar voru fluttar út í Hafursey. Þar var sett upp bifreiðaverkstæði og hafa 20 —30 manns unnið þar að því, allt til þessa, að setja bifreiðarnar saman. Síðan er farið með þær til Reykjavíkur, jafnóðum og þær eru ferðafærar. Er búið að fara með um 40 bifreiðar. Að björguninni unnu lengst af 40—50 manns, þar til skipið náðist út. Ekkert slys varð við starfið, sem þó var hættu- legt, en kalt var að búa í tjöldum á sandinum, þegar snjór var yfir öllu og 10—12 stiga frost. Skip þetta var mjög stórt, 8200 smálestir, og því eitt hið stærsta, eða jafnvel það allra stærsta, sem náðst hefir úr strandi hér á landi. Er nú það afrek til litils orðið, hvað skipið sjálft snertir. r t t eru ekki meiri en maður getur gert sér í hugarlund af frásögn útvarps og blaða. Jafnvel í London, sem þó hefir orðið fyr- ir mjög hörðum árásum, oft nótt eftir nótt, ber ekki sérlega mikið á skemmdunum. Að degi til gætir þess yfirleitt lítið, að stríð sé, og þó að stríðsviðbúnaðurinn sé gífur- lega mikill, verður maður lítið var við hann í borgunum. En um nætur eru allar borgir myrkvaðar og þess stranglega gætt, að hvergi sjáist ljós. Það er ógeðfellt fyrst í stað, að heyra skothríðina í loftvarna- byssunum þegar óvinaflugvélar eru á ferðinni, en fljótt venj- ast menn slíku og ganga til hvílu á venjulegum tíma, eins og ekkert sé um að vera. í enskum búðum virðist vera gnægð af vörum. Matvörur eru skammtaðar, en nóg er til af þeim. Einnig er nýkomin á skömmtun á flestum tegundum fatnaðar og skófatnaði. En þessar ráðstafanir eru fremur gerðar til öryggis en að vöru- þurrð sé framundan. Vöruflutn- ingar ganga að vísu tregar inn- anlands en á friðartímum, og i mun það stafa frekar af fólks- fæð, en verulegum skemmdum á járnbrautarkerfum. Fólk í Englandi er mjög gunnr&ift og sannfært um að Englendingar sigri að lokum. Fer fjarri því, að það óttist inn- rás Þjóðverja; sumir jafnvel vona, að Þjóðverjar reyni að ráðast inn í England. Ég var í Edinborg, þegar Hess kom til Skotlands. í marga daga var þetta helzta umræðuefni blaðanna. Fyrst í stað trúði fólk því alls ekki, að þetta væri satt. Eftirlit með útlendingum er ekki nándar nærri eins strangt nú og það var i byrjun stríðs- ins. Þær helztu hömlur, sem nú eru á þá lagðar, er að -tilkynna komu sína og brottför á lög- reglustöðvunum, þegar þeir flytja sig um set, úr einum bæ eða borg í aðra. í London mega þeir ekki vera úti eftir klukk- an 12 á kvöldin, og annars stað- ar í landinu ekki eftir klukkan 10.30. Hafnarkvíar mega út- lendingar heldur ekki skoða, og vitanlega er umferð bönnuð við ýmsa staði, er hafa verulega hernaðarþýðingu. Heimförin gekk mjög séint vegna tafa, sem þá urðu á skipaferðum á þessum slóðum. Var Bismarck, þýzka herskipið, þar á sveimi, svo að skip það, sem ég var með, neyddist til þess að snúa aftur. En ann- ars bar fátt til verulegra tið- inda á sjónum, annað en það, að þýzk flugvél varpaði eitt sinn sjö sprengjum á skipalestina. Varð þó ekkert tjón að. Sú sprengja, er næst kom marki, féll um 200 metra aftan við skip það, er við vorum á. Hefi ég þær upplýsingar frá skips- mönnum á skipinu, sem ég kom með. Aðrar fréttir. Fulltrúar fimmtán ríkja, sem eiga í stríði við Þjóðverja og ít- ali, komu saman á fund í Lon- don í fyrradag. Var samþykkt að halda stríðinu áfram, unz sigur væri fenginn og að enginn varanlegur friður geti hafizt fyrr en hinar undirokuðu þjóð- ir hafa endurheimt frelsi sitt. Þá segir í ályktuninni, að var- anlegur friður verði að byggj- ast á frjálsri samvinnu, þar sem yfirgangur sé útilokaður. Chur- chill forsætisráðherra stjórnaði fundinum. Mættir voru fulltrú- ar frá ríkisstjórnum Stóra- Bretlands og Norður-írlands, (Framh. á 4. siöu). A víðavangi „ÞEIR VERÐA SEINT SMEYKIR." „Þeir verffa seint smeykir viff að leggja skatta á þjóffina, bless- affir Framsókn,armennirnir,“ segir í Morgunblaðinu í morgun í sambandi við dýrtíðarfrv. Þessi ummæli sýna bezt, hvers vegna ráðherrar Sjálfstæðis^ flokksins og fleiri áhrifamenn hafa heykzt á því að fylgja fram upphaflegum tekjuskatts- ákvæðum dýrtíðarfrv., sem þeir höfðu lýst sig fylgjandi. Þeir hafa orðið smeykir, þegar þeir urðu varir við óánægju þá, sem petta mál hefir vakið í bili. Þess vegna hafa þeir horfið að því að gera minni dýrtíðarráð- stafanir en þeir töldu nauðsyn- legar. Þjóðin mun á sínum tíma fella dóm um það, hvorir hafi staðið sig betur, þeir, sem þorðu að fylgja fram tillögum um náuðsynlegar skattahækkanir, eða hinir, sem urðu smeykir og gáfust því upp. Framsóknar- menn óttast ekki þann dóm, þótt það kunni að takast í bili að gera tillögur þeira óvinsælar hjá þeim, sem horfa eingöngu á eigin hag. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN OG FJÁRLÖGIN. Morgunblaðið birtir í gær rit- stj órnargrein um fjárlögin, þar sem reynt er að sýkna fjár- málaráðherrann af tekjuhalla fjárlaganna. Helzta skýring blaðsins á hinni óverjandi af- greiðslu fjárlaganna virðist sú, að „þrír stærstu þingflokkarn- ir stanai að ríkisstjórninni" og hafi hver um sig reynt að ota fram sínum tota. í sambandi við þetta þykir rétt að vekja at- hygli Mbl. á því, að áður stóðu tveir flokkar að ríkisstjórninni og voru fjárlögin þá jafnan af- greidd tekjuhallalaus. Nú hefir þriðji flokkurinn, Sjálfstæðis- flokkurinn, bæzt i hópinn. Verð- ur ekki annað séð af ályktun- um Mbl. en að hann hafi haft svo slæm áhrif á hina flokk- ana, að þeir hafi stórspillzt frá því sem áður var, og hefði þó mátt vænta annars, ef dæmt væri eftir sparnaðarlátum Sjálf- stæðisflokksins á undanförnum árum. Er athyglisvert fyrir þá Sjálfstæðismenn, sem þá lögðu trúnað á sparnaðarskraf íhaldsforsprakkanna, að fá nú þennan vitnisburð Mbl. Annars mun afgreiðsla fjárlaganna verða tekin til nánari athugun- ar hér í blaðinu innan skamms og þá vikið að orsökum hinnar gálauslegu fjármálastjórnar. VINDHÖGG ALÞÝÐUBL AÐSIN S. Alþýðublaðið finnur auðsjá- (Framh. á 4. siðu). Ríkisstjórmn kosinn 17. júní Sigurður Jónasson gefur ríkínu Bessa- staðí Forsætiferáðherra skýrffi frá því á fundi í efri deild eftir há- degiff í dag, í sambandi viff umræffur um ríkisstjórafrum- varpiff, að í ráffi væri aff kjósa ríkisstjórann. á. þriðjudaginn kemur, 17. júni, á afmælisdegi Jóns Sigurffssonar. ‘Yrffi hinn nýi ríkisstjóri þá þegar settur í embætti sitt, en hann sliti síff- an þinginu, og yrffi þaff fyrsta embættisverk hans. Jafnframt las forsætisráff- herra bréf, sem ríkisstjórninni hafffi borizt frá Sigurffi Jónas- syni forstjóra, þar sem hann gefur ríkinu jörffina Bessastaffi til ríkisstjórabústaffar, gegn því, aff ríkið endurgreiffi honum þaff fé, er hann hefir lagt í framkvæmdir á Bessastöðum síffan hann keypti jörffina. A KROSSGÖTUM Af Fljótsdalshéraði. — Bifreiðasamgöngurnar milli Akureyrar og Austurlands. — Úr Mýrdal. — Persier. Pétur Jónsson, bóndi að Egilsstöðum bifreiðin síðan austur um á fimmtu-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.