Tíminn - 14.06.1941, Page 3

Tíminn - 14.06.1941, Page 3
65. hlað TÍMIM, langardagiim 14. júní 1941 259 A N N A L I, Afmæli. 9. júní s. 1. átti Guðmundur Sæmundsson bóndi á Lóma- tjörn í Suður-Þingeyjarsýslu 80 ára afmæli. Hann er fæddur að Gröf í Kaupangssveit 1861. Pluttist þaðan til Grenivíkur og reisti nýbýli að Hlöðum. Stundaði þar B Æ K U R útgerð, jafnframt því sem hann rak búskap. Um aldamótin flutti hann að Lómatjörn, hefir búið þar síðan. Árið 1895 giftist hann Valgerði Jóhannesdótt- ur Jónssonar prests Reykjalíns á Þönglabakka í Þorgeirsfirði, hinni ágætustu konu. Hafa þau eignazt 11 mannvænleg börn, sem öll komust til fullorðins- ára, en eina dóttur misstu þau fyrir nokkrum árum síðan. Þá ólu þau upp fósturbarn, dóttur Sæmundar Sæmundssonar skip- stjóra, sem er bróðir Guðmund- ar. Guðmundur hefir verið mik- ill athafna- og dugnaðarmað- ur, og húsað og ræktað jörð sína svo vel, að nú er Lómatjörn eitthvert mesta myndarheimili í Höfðahverfi. Er hann ennþá hinn ernasti og gengur að verki eins og ungur væri. Á þessum merkilegu tíma- mótum í lífi Guðmundar á Lómatjörnum berast honum vafalaust margar hlýjar afmæl- isóskir, víðsvegar að. Á. Bergsveinn Jakobsson, bóndi á Bálkastöðum, ytri, við Hrúta- fjörð, varð áttræður 14. f. m. Hann er fæddur að Gillastöð- um í Reykhólahreppi í Barða- strandasýslu 14. maí 1861. For- eldrar hans voru Jakob Björns- son, söðlasmiður, og Þórdis Zakaríasdóttir, systir Guðlaug- ar, konu Torfa í Ólafsdal. Bergsveinn kvæntist frænd- konu sinni, Salóme, dóttur Jó- hanns Zakariassonar, bónda á Bálkastöðum. Eru þau hjónin systkinabörn. Þau byrjuðu bú- skap á Bálkastöðum árið 1886 Skinfaxi, aprílhefti. Fyrir alllöngu er út komið aprílhefti Skinfaxa. Hefir það inni að halda ýmsar greinar og kvæði, er vert er að vekja at- hygli á. Er þar fyrst að geta grein séra Eiríks Eiríkssonar að Núpi, sambandsstjóra U. M. F. í.; nefnizt hún Konungdómur íslendinga. í lok greinarinnar segir hann: „Nóttin fyrir Stiklastaðaor- ustu þjóðlífs okkar er ef til vill yfir okkur. Öll barátta er tví- sýn. Eitt er okkur til mikillar uppörvunar. Herópin eru ekki tvenns konar: Fram kóngs- menn, fram búandmenn. Kon- ungdæmi íslenzkunnar og ís- lenzks þjóðernis er jafnvel máttugast í bæ bóndans.og báti fiskimannsins. Orustuhvötin er ein: Fram íslendingar. íslandi allt! “ Ríchard Beck skrifar allítar- lega grein um úrvalsljóð Steph- ans G. Stephanssonar. Daníel Ágústínusson ræðir um arf og átök í bindindismálun- um. Er í grein þessari rætt um bindindisheiti ungmennafélaga, tóbaksbindindisflokka, sem sambandsstjórnin vill vinna að að stofnaðir verði innan ung- mennafélaganna, aðflutnings- bann á áfengi og kröfur til em- bættismanna um bindindi. Aðrar greinar eru eftir Odd- nýju Guðmundsdóttur, Um skáldsagnalestur, Guðmund Markússon, Samvinna um skóg- rækt, og Kristján Sigurðsson á Brúsastöðum, Hvað líður eldin- um, hugleiðingar, er skrifaðar voru þegar Ingimundur gamli, ungmennafélagið í Vatnsdaln- um, átti 15 ára afmæli. Kvæði eru eftir Heiðrek Guð- mundsson, Kolbrúnu og Jón frá Ljárskógum, sem er einn hinn efnilegasti og „lyriskasti“ ungu skálda hér á landi. Þýðing á kvæði er í ritinu eftir Halidór Kristjánsson á Kirkjubóli. Rarlakórmn Geysir, Akureyri Söngstjóri INGIMUNDUR ÁRNASON. Samsöngiir í Gamla Bíó sunnudaginn 15. júní kl. 3 e. h. og þriðjudaginn 17. júní kl. 3 e. h. —Einsöngvarar: Hreinn Pálsson, Jóhann Guð- mundsson, Hermann Stefánsson, Guðmundur Gunnarsson, Krist- inn Þorsteinsson og Henning Kondrup. Undirleikari frú Jórunn Geirsson. Aðgöngumiðar að báðum samsöngvunum verða seldir í Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar og Bókaverzlun ísafoldar. og hafa búið þar alla tíð síðan, eða samfleytt í 55 ár. Börn þeirra eru fjögur, Jóhann bóndi á Bálkastöðum og þrjár dætur. Tvær þeirra, Ágústa og Ragn- heiður, eru heima, en sú þriðja, Jakobína, er nú búsett á Hvammstanga, gift Gústav Halldórssyni. Bergsveinn á Bálkastöðum missti sjónina árið 1930 og hef- ir því verið blindur í 11 ár. En að öðru leyti er hann allvel ern eftir aldri. Salóme, kona hans, verður áttræð 27. des. næst- komandi. Sk. G. Vinnið ötullega fgrir Títsusnn. Tveim skipiim bjargað (Framh. af 2. slöu.) inu á flot án þess að hafa áð- ur komið akkerum út í sjó og strengjum þaðan í skipið. Var nú gerð tilraun að bjarga skip- inu, 27. janúar, eftir forsögu þessara manna. Þegar þrutu strengir þeir, sem héldu skip- inu uppréttu, sló því undir eins flötu og kom sjór í það að nýju. En af því ekki var búið að sleppa landfestunum með öllu tókst Skaftfellingunum að rétta skipið við aftur um leið og það rak í land. Sjómaðurinn úr Reykjavík vildi nú gera aðra til- raun, en Skaftfellingarnir þver- neituðu að halda lengur áfram í það sinn. Var komin nótt og all- brimað. Næsta dag reyndi skip- stjórinn og' björgunarmaður hans úr Reykjavik að ná skip- inu út. Klausturfrændur og Markús ívarsson höfðu ekki trú á aðferðinni og voru nú aðrir menn við björgunina, en henni lauk þannig, að sjórinn kastaði skipinu á hliðina og bar það lengra upp í fjöruna heldur en það var áður komið. Mátti nú heita, að búið væri að gera að engu alla þá miklu undirbún- ingsvinnu, sem búið var að gera, þegar hinn reykvíkski björgun- armaður kom til sögunnar. Auk þess hafði skipið skemmst í þessum hrakningum, svo að skrúfan átti erfitt með að snú- ast með eðlilegum hætti. III. Eftir þessa tilraun með björg- unarmann úr Reykjavík, báðu eigendur skipsins þá Klaustur- frændur og Markús ívarsson að freista að halda áfram björgun- arstarfinu, með aðferð Bjarna Runólfssonar, því að nú þótti einsýnt, að hún ein gæti komið að haldi eins og náttúruskilyrði eru á söndunum í Skaftafells- sýslu. Englendingarnir voru svo sannfærðir um, að engir gætu náð skipinu á flot nema Skaftfellingar og með sinum eigin aðferðum, að þeir sömdu við þá fjórmenningana um að þeir einir hefðu rétt til að rífa vindasamt, því að þrálát út- lögn og innlögn svelja kald- ranalega um nesið. En skilyröi fyrir gróðurhúsaræktun eru þar ágæt, því að jarðhiti er þar ó- tæmandi og ætti að mega, er tímar líða, framleiða þarna gnægð suðrænna aldina, til hollustu og næringa héraðsbú- um. En þarna er líka önnur gróðrarstöð og ekki ómerkari, og á ég þar við héraðsskóla ís- firðinga, sem þarna hefir verið reistur og rekinn um nokkur ár, undir stjórn hins ötula skólastjóra Aðalsteins Eiríks- sonar. Hefir hann farið nokkuð sínar eigin götur í fræðsluað- ferðum og reynt að samræma hinar nýju kennsluaðferðir sem mest við staðhætti byggðarlags- ins og atvinnuháttu. Byggir uppfræðslu skólans sameigin- lega á heimanámi og1 skóla- kennslu og skólinn er jöfnum höndum barna og unglinga- skóli. Eru börnin þarna framan af vetrinum en unglingarnir síðari hlutann. Lesa þá börnin heima undir eftirliti skólans og byggja þar ofan á haustnámið. Þá koma þau aftur að vorinu, þeg- ar unglingaskólinn er úti,og búa sig undir vorprófið. Þykir að- ferð þéssi hafa gefizt mjög vel og nemendur náð undraverðum árangri á ekki lengri tíma. Skólinn er í miklu áliti og uppgangi óg láta héraðsbúar sér mjög annt um veg hans og við- gang. Þarna er ágæt sundlaug og fer þar fram sundkennsla, bæði meðan á skólatímanum stendur og eins á vorum og sumrum á iþróttanámskeiðum, sem þarna eru haldin. Þarna að Reykjanesi mun hin ísfirzka æska sækja hita líkamlegrar og andlegrar menningar um ó- komna framtíð. Þarna í fjöruborðinu á Reykjanesi er hver einn mikill og heitur og fellur í hann sjór um flæði. Er því aðstaða ágæt til að koma þarna upp heitri sjóbaöstöð. Grunar mig, að síð- ar meir,, eftir að vegasambönd þau eru komin, sem ég minntist á fyr, muni margur leita að Reykjanesi um langa vegu til að stunda þarna sjóböð að sum- arlagi til endurnæringar þreyttum taugum. Ég verð að láta máli , mínu lokið, þótt freistandi væri að minnast margs enn, sem fyrir augu og eyru bar á þessum stöðum. Ég hefði gjarnan viljað leggja leið mína fram um Djúp- ið og koma við hjá Grími í Súðavík, hinum mikla bónda og útvegsmanni, og reka inn höf- uðið á stöku stað umhverfis Skutilsfjörðu, t. d. á Kirkjubóli, þótt Tryggvi Pálsson sé farinn þaðan, en þá jörð hóf hann í tölu stórbýla, úr mestu niður- lægingu, o. fl., o. fl. En ein- hversstaöar verður að takmarka sig og hér hefi ég einkum bund- ið mig við hin dreifðu bænda- býli Djúpsins. Ég má biðja ykk- ur, lesendur góðir, afsökunar á þeirri ofdirfsku, að ætla sér að lýsa heilu byggðarlagi í stuttri blaðagrein. Enda eru þetta að- eins nokkrar augnabliksmyndir og ófullkomnar þó. En mig hafði langað til að gefa þeim, sem ekki hafa af eigin raun kynnzt útkjálkahéraði því, sem ég hér hefi reynt að lýsa, tæki- færi til að drepa þar niður fæti á stöku stað og athuga lítillega það sem fyrir augun bæri, ef ske kynni, að þeir, eins og ég, yrðu snortnir af þeim starfs- þrótti, þeirri menningu og þeim gróanda, á öllum sviðum, sem mér fannst þar bera fyrir mig í svo ríkum mæli. Á þessum ferðum mínum og öðrum, um útkjálka landsins, hefi ég stundum verið að hug- leiða þá tillögu ýmsra mætra manna, að flytja þjóðina úr dreifbýlinu, og þjappa henni sem mest saman á gróðursæl- ustu blettum landsins. Það má vel vera, að hægt sé að bera fram einhver töluleg rök fyrir þvi, að rekstur þjóðarbúsins yrði eitthvað minni og hægara yrði að veita fólkinu í landinu þau lífsþægindi, er tækni nú- tímans hefir upp á að bjóða. En ósköp er ég hræddur um að með því væri ekki öll hamingjan höndluð. Og ég er hræddur um að það yrðu ekki vegalengdirnar einar, sem minnkuðu við það — heldur og svipur þjóðarinnar og sál hennar. — Enn er í gildi hið fornkveðna, að þeir munu lýð- ir löndum ráða er útskaga áð- ur of byggðu. — í mörgum þess- ara héraða munu hvað bezt (Framh. á 4. slOu.) skipið ef ekki tækist að bjarga því. Þeir félagar byrjuðu nú í þriðja sinn, en með minni von en áður, því að nú var aðstað- an hin versta. Þeim tókst að ná burtu grind, sem bognað hafði að skrúfunni og að rétta skipið við. Jafnframt tókst að þoka skipinu neðar í fjöruna. En nú leið löng stund, meðan beðið var eftir að sjó lægði. Sjöunda maí lygndi svo, að unnt var að róa með strengina út fyrir allar eyr- ar og sökkva akkeri í sjóinn. Akkerinu var sökkt 1600 metr- um frá skipinu. Viku síðar, kvöldið 14. maí, kl. 19,30, gerðu Skaftfellingarnir lokatilraun með björgunina. Mjög lítið var af kolum í skipinu, svo að þeir félagar símuðu til Vestmanna- eyja eftir bát með kolum, ef skipið kynni að komast á flot. í fyrstu hreyfðist skipið mjög lítið, en um kl. 1,15 var skipið komið út að akkerinu. Var þá mjög flætt að og flaut skipið hindrunarlaust, og sigldi af stað áleiðis til Reykjavíkur. Litlu síðar kom Vestmannaey- ingurinn með kolin og var þá lokið hinni löngu og þrálátu baráttu við að ná þessu skipi út af söndunum. Meðan flestar ár voru óbrú- aðar, voru innlendir og útlendir aðkomumenn fullir aðdáunar yfir því, hversu Skaftfellingum tókst að komast yfir illfær vötn, jafnt á hestum sem bif- reiðum. Var aðkomumönnum ljóst, að Skaftfellingar höfðu til að bera í þessu efni bæði kunnáttu og æfingu, sem bar langt af því, sem öðrum mönn- um var fært að gera á þeim vettvangi. Sama er nú að gerast með björgunarmál á söndum Skaftafellssýslu. Vaskir björg- unarmenn, innlendir og útlend- ir, koma þangað og reyna að- ferðir, sem notaðar eru við gagnólík náttúruskilyrði. En sú leið er ekki fær. Þeir einir, sem fæðst hafa upp við brimið á ströndinni, virðast skilja leynd- ardóma hafnlausu strandar- innar. Bjarni Runólfsson er fræg- astur af öllum hinum mörgu hugvitsmönnum Skaffellinga, og það er nú vitað, að hann er upphafsmaður þeirrar björgun- araðferðar, sem nú hefir verið lýst. En hann var jafn yfirlætis- (Framh. á 4. síOu.) Þrátt fyrir erfiða aðdrættí munum vér enn sem fyrr afla þess, sem fáan- legt er, af heppilegum vörum til búnaðarfram- kvæmda og framleiðslu. Saðvörur - grasfræ og hafrar - eru komnar. Fjaðraherfi Diskaherfi ((Uppseld í bili en væntanleg fyrir haustið). Valtajárn Þúfnaplógar (Til þess að slétta engjaþýfi) Skilviiidur Strokkar Saumavélar Gaddavir væntalegur í júní Handverkfæri margskonar Varahlutir í búvéiar Spyrjið eftir verkfærum, búvélum og öðrum ræktunaráhöldum, í kaupfélögunum og pantið þær með ríflegum fyrirvara. Samband ísl. samvinnufélaga P A L rœstiduft — er fyrir nokkru komið á markaðinn og hefir þegar hlotið hið mesta lofsorð, enda vel til þess vandað á allan hátt. Opal ræstiduft hefir alla þá kosti, er ræstiduft þarf að hafa, — það hreinsar WW án þess að rispa, er mjög Urjúgt, og er nothæft á allar tegundir búsáhalda og eld- húsáhalda. IVotið O P A L rœstiduft GEITASKINN og SAUÐSKINN kaupum við hæsta verði. Einnig notaðar LOÐKÁPUR. MAGIVI h. f. EKreinur léreftstuskur kaupir Prentsmiðjan Edda 72 Victor Hugo: þyrpingar gamalla húsa. Þau voru hrörleg og ormsmogin og sum komin að hruni. Sums staðar var ljós í gluggum. Það var eins og kerlingarnornir stæðu þarna umhverfis torgið og rækju fram hausana og rýndu döprum augum á alla ringulreiðina. Þetta var ný og óþekkt, afskræmd og öfgafull veröld. Gringoire varð æ óttaslegnari. Beiningamennirnir þrír ríghéldu honum og andlit þau, er við honum blöstu í fólksþvögunni, argandi og gargandi, rændu hann öllum mætti. Það kostaði hann mikla andlega á- reynslu, að gera sér grein fyrir því, hvort nú væri laugardagur. Minnið brást og hugsuninni fataðist. Hann spurði sjálfan sig að því, hvort heldur væri, að hann hefði misst vitið eða heimurinn gengið af göflunum. En hann hvorki festi hugann við það, er fyrir hann bar, né tilfiningar sínar. Þá kallaöi einhver úr hópnum, sker- endi röddu: — Við skulum fara með hann til for- ingjans! Við skulum fara með hann til foringjans! — Jesús minn góður, hugsaði Grin- goire. Á slíkum stað væri geithafur bezt til forystunnar fallinn. — Til foringjans, til foringjans, æptu allir. Esmeralda 69 aður. Honum fannst þetta vera hræði- legur draumur. Loks var hann kominn götuna á enda; þar blasti við mjög stórt torg. Ótal ljós lýstu í gegnum næturþokuna. Gringoire hraðaði sér allt hvað af tók í þeirri von, að hann gæti hlaupizt brott frá þessum þrem dularfullu verum, er eltu hann. En flóttinn heppnaðist ekki. — Ondé vas, hombre?*) hrópaði halti maðurinn, henti hækjum sinum og hljóp á eftir honum á þeim traust- ustu fótum, er stigið hafa á steinstéttar Parísarborgar! Hinn krypplingurinn, sem nú rétti úr sér, rak óhreina húfu sína fyrir nefið á Gringoire, og augun í „blinda“ mann- inum skutu gneistum, þegar hann horfði framan í hann. — Hvar er ég? spurði skáldið. Hann var dauðhræddur. — í Kraftaverkagarðinum*), sagði ’) Hvert ertu að fara, maður? *) Á miðöldunum var Kraftaverkagarðurlnn aðsetursstaður alls kyns lausingjalýðs, fólks, sem um daga lézt vera blint, halt eða holdsveikt og baðst beininga og hafði fé aí trúgjömum vegfar- endum. En er leið að nóttu, lagði yýður þessi af sér betlaragervið og aflaði sér fjár sem þjófar ræningjar og skækjur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.