Tíminn - 14.06.1941, Side 4
360
TtMIMN, laiigardaginn 14. júiií 1941
65. blað
íhaldsmenn og sosíalistar..
tJR BÆNUM
Prestsvígsla
fer fram í dómkirkjunni ó. morgun.
Vígir biskup þá fjóra guðfræðikandi-
data. Eru það Stefán Snævarr, er ger-
ist prestur að Völlum í Svarfaðardal,
Magnús Már Lárusson, sem vígist að
Breiðabólstað á Skógarströnd, Sigurð-
ur Kristjánsson, sem vígist að Hálsi í
Fnjóskadal og Pétur Ingjaldsson að
Höskuldsstööum í Húnaþingi. Séra Sig-
urbjörn Einarsson lýsir vígslu, dómpró-
fastur þjónar fyrir altari, en Pétur Ing-
jaldsson stígur í stólinn. Vígsluvottar
verða séra Sigurbjörn Einarsson og sr.
Jakob Jónsson, Ásmundur Guðmunds-
son prófessor og séra Ámi Sigurðsson.
Jaróarför
Þorleifs Guðmundssonar fyrrverandi
alþingismanns frá Háeyri, fór fram í
gær, að viðstöddu fjölmenni. Biskupinn,
Sigurgeir Sigurðsson, flutti húskveðju.
Úr heimahúsum báru kistuna embætt-
ismenn úr stúkunni Sóley, en hinn látni
var æöstitemplar hennar. Úti fyrir
stóðu framkvæmdanefndir stórstúku,
umdæmisstúku og þingstúku undir ein-
kennum og fána og gengu síðan fylktu
liði á undan líkfylgdinni tii kirkju. Inn
í kirkju báru embættismenn umdæmis-
stúkunnar kistuna. Séra Árni Sigurðs-
son flutti ræðu. Út úr kirkju báru al-
Þingismenn.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu.)
Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjá-
lands, Suður-Afríku, Belgíu,
Tékkóslóvakíu, Grikklands,
Luxemburg, Hollands, Noregs,
Póllands og Jugóslavíu. Enn-
fremur voru mættir fulltrúar
frá frjálsum Frökkum og Am-
ery Indlandsmálaráðherra
mætti fyrir Indland. Chur-
chill sagði í ræðu, að Hitler
þættist nú vera að endurskipu-
leggja Evrópu, en það myndi
aldrei verða hans verk, því að
Bandamenn myndi aldrei gef-
ast upp fyrr en hvert spor hans
væri afmáð.
Fulltrúar frá stjórnunum í
Rúmeníu, Búlgaríu, Króatíu,
Slóvakíu og Ungverjalandi hafa
undanfarið verið ýmist í Berlín
eða Róm, til að ræða við stjórn-
málamenn þar um þá nýskipu-
lagningu Evrópu, sem Hitler er
sagður hafa á prjónunum.
Þjóðverjar hafa nú óvenju-
lega mikið lið við landamæri
Rússlands. Er talið að Þjóðverj-
ar séu að reyna að hræða Rússa
til aukinna viðskipta.
Tvö brezk herskip, annað
7600 smál., hafa farizt nýlega
við Libyu.
Þann 10. júní s. 1. var búið að
gera 659 loftárásir á Malta frá
því styrjöldin milli ítala og
Breta hófst.
Roosevelt hefir sent Banda-
ríkjaþingi fyrstu skýrsluna um
aðstoð við Breta samkvæmt
láns- og leigulögunum. Sam-
kvæmt skýrslunni hafa 5 fyrstu
mánuði ársins verið sendar 12
sinnum fleiri flugvélar til Bret-
lands en á sama tíma i fyrra,
17 sinnum meira af sprengiefni
og 90 sinnum meira af byssum
og skotfærum. Þá hefir Banda-
ríkjastjórn útvegað Bretum
skip, sem nema samtals 2 milj.
smál. og verða þau afhent bráð-
lega. Ráðstafanir hafa verið
gerðar til stóraukinna skipa-
bygginga. Margt brezkra skipa
hefir fengið viðgerð í Banda-
(Framh. af 1. síðu.)
þess er megnugir, sagði ræðu-
maður, ber að leggja á sig
nokkra byrði til að halda uppi
verðgildi peninganna, en að því
er verið að vinna með þessum
ráðstöfunum. Sá gróði, sem
margir þeirra fá um þessar
mundir, verður að öðrum kosti
verðlítill eða verðlaus í hönd-
um þeirra.
Ef tillaga meirahlutans verð-
ur samþykkt, er stór hluti skatt-
greiðenda undanþeginn því að
leggja á sig byrðar, svo nokkru
nemi, í þessum tilgangi. Þar
er líka einmitt um að ræða
menn, sem hafa hagnazt veru-
lega á því ástandi, sem nú rík-
ir, eins og fram kemur í mót-
mælaskj ali Alþýðusambandsins.
Þar segir, að skatturinn muni
koma mjög þungt niður á með-
limum þess, en það getur þá
ekki stafað af öðru en því, að
þeir hafi verulegar nettótekjur.
Menn verða að gera sér ljóst,
að hér er mikil hætta á ferðum.
Framsóknarflokkurinn getur
ekki tekið þátt í því að rýra
gildi þeirra ráðstafana, sem
ráðgerðar eru í frv., enda er
þar ofskammt gengið að hans
dómi. Það kemur því ekki til
mála, að fallast á tillögu meira-
hlutans, heldur verður þvert á
móti að gera þjóðinni ljóst það
ríkjunum seinustu mánuðina og
nýlega er byrjað að æfa þar
700 brezk flugmannaefni. Út-
gjöld Bandaríkjanna vegna að-
stoðarinnar við lýðræðisþjóð-
irnar, sem heimilað er í láns- og
leigulögunum nema nú 14i/2
milj. sterlingspunda á dag.
í neðri málstofu brezka þings-
ins urðu á þriðjudaginn allmikl
ar umræður um órustuna á Krít.
í umræðunum upplýsti Church-
ill, að manntjón Breta, Ný-Sjá-
lendinga og Ástralíumanna
hefði verið um 15 þús. manns,
og mun meginþorri þess liðs
hafa verið tekinn til fanga.
Hins vegar myndi manntjón
Þjóðverja hafa verið um 17. þús.
manns, þar af hefðu um 5 þús.
drukknað. Þá hefðu Þjóðverjar
misst um 180 sprengjuflugvélar
og 250 herflutningaflugvélar.
Væri það mikið tjón fyrir þá,
þar sem flugvélaframleiðslan
yxi nú hraðar hjá Bandamönn-
um en þeim.
f tilkynningu frá þýzku her-
stjórninni segir, að Þjóðverjar
hafi misst 4000 manns í orust-
unni um Krít, en 5 þús. brezkir
hermenn hafi fallið og 11 þús.
verið teknir til fanga.
Bretar segjast hafa gert
mestu loftárásina, sem þeir hafa
gert á Ruhrhéraðið í Þýzkalandi,
í fyrrinótt. Ruhrhéraðið er
mesta iðnaðarhérað Þýzkalands.
í maímánuði fórust 5394
manns í Bretlandi af völdum
loftárása, en 1181 særðust. Síð-
an í byrjun september síðast-
liðnum hafa 39.678 manns far-
ist í Bretlandi af völdum loft-
árása.
ábyrgðarleysi, sem í þeim fellst.
Um tillögu Jóns Pálmasonar
er það að segja, að hún virðist
stefna að tvennu: í fyrsta lagi,
að afnema afurðasölulögin með
því að taka valdið til verðlags-
ákvörðunar af kjötverðlags-
nefnd og mjólkurverðlagsnefnd.
í öðru lagi að afhenda stéttar-
samtökum bænda, Búnaðarfé-
lagi íslands, þetta vald.
Um fyra atriðið má segja það,
að eins og sakir standa, geta
bændur sennilega komizt af án
afurðasölulaganna. Vegna hinn-
ar auknu peningaveltu í káup-
stöðunum og dýrtíðarupbótar-
innar myndu þeir geta selt af-
urðir sínar háu verði, ef þeim
væri gefin verðlagsákvörðunin
alveg frjáls. En það er ekki víst,
að þetta ástand vari lengi, og
það er eins augljóst og nótt
fylgir degi, að það kemur aftur
mikil kreppa. Þá myndu bænd-
ur reyna, að þeir hefðu gert
rangt, ef þeir hefðu afnumið
núverandi söluskipulag, sökum
augnablikshagnaðar á stríðs-
gróðatímanum.
Um seinna atriðið má segja
það, að það- getur reynzt mjög
varhugavert, að fela stéttar-
samtökum einnar stéttar að
ráða kaupgjaldi hennar. Það
gæti skapað hættulegt fordæmi.
Segjum t. d. að Alþýðusamband
íslands fengi hliðstætt vald til
að ákveða kaupgjald sinna
meðlima. Bændurnir eiga að
halda fast á málum sínum, en
þeir mega ekki láta yfirboðs-
menn og lýðskrumara ginna sig
til að spenna bogann um of.
Haraldur Guðmundsson talaði
næstur og gerði grein fyrir til-
lögu minnahlutans. Lagði hann
einkum áherzlu á, að í stað
hækkunar á tekjuskattinum
kæmi hækkun tolls á áfengi og
tóbaki. Hann sagðist eindregið
fylgjandi því, að verðlags-
nefndir landbúnaðarafurða yrðu
háðar eftirliti, en væri nú fall-
inn frá því í von um aukið sam-
komulag.
Jón Pálmason flutti langa
ræðu. Hann kvaðst flytja tillög-
una um lækkun tekjuskattsins
af þrem ástæðum: í fyrsta lagi
myndi það valda mikilli óá-
nægju á Alþingi, ef ákvæði frv.
’um skattinn væri samþykkt. í
öðru lagi fengjust verulegar
tekjur með hækkun tollsins á
f—•——--------------———-------
Aii vex
rabarliarfnn.
Það er gott að geta spar-
að sykurinn og þó soðið
niður til vetrarins. En það
er hægt með því að nota
uppskriftir úr bók Helgu
Sigurðardóttur: „Græn-
meti og ber allt árið“.
Bókaverzlun
ísafoldarprentsmiðju.
I------—™--------------—
—----------------------
I»ér þurfiSS
að fara sparlega með syk-
urskammtinn. Það er auð-
velt með því að nota upp-
skriftir úr bókinni Græn-
meti og ber allt árið, eftir
Helgu Sigurðardóttur.
Rókaverzlun
ísafoldarprentsmiðju.
—-------------
áfengi og tóbaki. í þriðja lagi
mætti hækka skattana á næsta
þingi, ef tekjurnar yrðu ekki
nægar.
Viðskiptamálaráðberra talaði
næstur. Hann kvað allar hinar
sameiginlegu tillögur fjárhags-
nefndar til bóta, enda væru þær
gerðar í samráði við þá ráð-
herra, sem um þessi mál hefðu
mest fjallað. í sambandi við til-
löguna um tollana vildi hann
geta þess, að ríkisstjórinin
hefði verið búin að ákveða að
æskja eftir slíkri heimild, þótt
hún hefði frestað að leggja þá
tillögu fram.
Hann kvaðst vilja vekja at-
hygli á því, að afnám korn-
tollsins og lækkun sykurtollsins
kæmi á móti hækkun tollsins á
áfengi og tóbaki, og mættu
menn því ekki gera sér ofmikl-
ar vonir um, að hér væri því
um verulegan tekjuauka að
ræða, en það hefði komið fram
í ræðum Haraldar og Jóns
Pálmasonar.
Hann vék þessu næst að á-
greiningsefninu, tekjuskattinn.
Kvað hann það koma sér ein-
kennilega fyrir, að heyra raddir
um, að óviðkunnanlegt væri
að leggja á þennan nýja skatt
eftir að búið væri að afgreiða
skattalögin. í fyrsta lagi mætti
Alþingi aldrei fresta nauðsyn-
leg ráðstöfunum, vegna fyrri
ráðstafana, ef þær reyndust ó-
nógar. í öðru lagi hefði verið
samkomulag um þennan skatt
í ríkisstjórninni, a. m. k. milli
ráðherra Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins, og hin
svokallaða dýrtíðarnefnd, sem
var skipuð fulltrúum allra
stjórnarflokkanna, hefði samið
frv., þar sem gert var ráð fyrir
þessum skatti.
Meirihluti fjárhagsnefndar
hefir nú farið inn á nýja braut.
Virðist það stafa af þeirri óá-
nægju, sem um þetta mál hefir
verið vakin hér í bænum þrátt
fyrir það, sem fulltrúar flokk-
anna höfðu áður sagt.
Það er augljóst mál, að til-
laga meirahlutans rýrir stórlega
þær ráðstafanir, sem fyrirhug-
aðar eru í dýrtíðarmáfunum,
því að þær fara vitanlega að
langmestu leyti eftir tekjuöfl
-uninni. Ég skal nefna tvö dæmi
til að sýna þetta. Einhleypur
maður, sem hefir 8000 kr. netto-
tekjur, greiðir samkvæmt frv.
215 kr., en 31.80 samkvæmt til-
lögum meirahlutans. Einhleypur
maður, sem hefir 20 þús. kr.
nettotekjur, greiðir samkv. frv.
805 kr., en samkv tillögum
meirahlutans 297 kr. Má af
70 Victor Hugo:
fjórða vofan, sem nú var komin til sög-
unnar.
— Hver andskotinn, sagði Gringoire.
Ég sé, að hér sjá blindir og haltir
ganga, en hvar er frelsarinn?
Þeir ráku upp geigvænlegan hlátur.
Vesalings skáldið skimaði allt í kring.
Hann var reyndar kominn inn í Krafta-
verkagarðinn, þar sem aldrei sást heið-
arlegur maður um þetta leyti sólar-
hringsins. Hann var staddur á þeim ó-
heillastað, þar sem lögregluþjónar og
varðmenn hurfu eins og dögg fyrir sólu,
ef þeir voguðu sér þangað. Hann var
í argasta þjófabælinu og viðbjóðsleg-
ustu pestarveitunni í allri Parísarborg,
þessu dýki, sem glæpamenn, beininga-
menn og vesaldarlýður veltur út úr um
allar götur borgarinnar á hverjum
morgni og hverfur aftur í að kvöldi,
þessu ógeðslega völundarhúsi, þar sem
aumustu blóðsugur þjóðfélagsns rjála
við bráð sína á kvöldi hverju, þessum
aðsetursstað manna með tillogna sjúk-
dóma og uppgerð líkamslýti, sem Tat-
arar, brotthlaupnir munkar og skóla-
piltar, misendismenn af öllum þjóð-
flokkum — Spánverjar, ítalir og Þjóð-
verjar — og öllum trúflokkum — Gyð-
ingar, kristnir menn, Múhameðstrúar-
menn og heiðingjar — héldu frá til
beininga að deginum, en ránsferða um
Esmeralda 71
nætur. Hann var staddur, þar sem
leikararnir á hinu mikla sviði Parísar-
borgar skipta um gervi, áður en þeir
fara í leiðangra sína til þjófnaðar,
manndrápa og svalls. Þeim sorgarleik
linnir aldrei í Parísarborg.
Þetta var gríðarlega stórt torg, ó-
reglulegt að lögun og steinlagt, eins og
öll torg í Parísarborg á þeim tímum.
Við bál, sem kynt voru viðsvegar um
torgið, hafði kynlegur fénaður safnazt
saman. Menn komu og fóru, og hvar-
vetna var að heyra sköll og hlátra,
krakkaorg og óp kvenmanna. Það var
bjart hið neðra við bjarmann frá eld-
unum, en dimmt efra, svo að höfuðin
og hendurnar á þessu fólki sýndust
svört. Það var eins og jörðin bifaðist í
flöktandi eldskininu; stundum brá fyrir
skugga af hundi eða- mannveru, er
skauzt fram hjá. Það var ekki auðvelt
að greina á milli hvort heldur var.
Hér varð ætterni og kynferði ekki
greint í sundur. Karlmönnum, konum
og börnum, heilbrigði og sjúkdómum,
var enginn bás markaður, allt var hér
eitt og hið sama. Allt var í uppnámi, og
hver og einn fór því fram, er hann
fýsti.
Þrátt fyrir fátið gat Pétur Gringoire
séð allt torgið við daufa glætuna frá
eldunum. Kringum það voru óhrjálegar
þessu marka, að tillaga meira-
hlutans mun ekki gefa nema
brot af þeim tekjum, sem
myndu fást samkvæmt frv.
Við fyrstu umræðu var það
helzt fundið skattinum til for-
áttu, að hann væri of hár á
lægri tekjum. Úr þessu hefði
mátt bæta með því, að lækka
hann á þeim, en hækka hann
í þess stað á háum tekjum, og
ná þannig svipuöum heildar-
tekjum með skattinum. En inn
á þessa braut hefir ekki verið
farið,
Það viðurkenna allir, að yfir
okkur vofi mikil hætta sökum
hinnar stórauknu peningaveltu.
Það er ekki aðeins að hátekju-
menn hafi fengið auknar tekj-
ur, heldur svo að segja allir.
Þetta gæti verið gott og bless-
að, ef til þessa lægju eðlilegar
orsakir, en svo er ekki. Þess
vegna er stöðvun framleiðsl-
unnar, atvinnuleysi og annar
voði, sem þessu fylgir, framund-
an áður en varir. Það er sannar-
lega hryggilegt, að Alþingi skuli
ekki vilja líta á þessa hættu og
samþykkja þann hóflega skatt,
sem ráðgerður er i frv. Það ber
vissulega ekki vott um að menn
hafi krufið þetta mál til mergj-
ar.
Það virðist svo, að tillaga
meirahluta fjárhagsnefndar
- GAMLA BÍÓ-
IIKPPMR
vmm
(LUCKY PARTNERS).
Amerisk gamanmynd.
Aðalhlutv. leika:
GINGER ROGERS
og
RONALD COLMAN.
Sýnd kl. 7 og 9.
r——------NÝJA BÍÓ——--
PILTUR EÐA
STtJLKA.
(SANDY IS A LADY)
Amerísk skemmtimynd.
Aðalhlutverkin leika
strákarnir:
BABY SANDY,
BUTCH og BUDDY.
Sýnd kl. 7 og 9.
Heíðmörk -- Fríðland Reykvíkínga
Bæklingur Skógræktarfélags íslands, með hinum ágæta upp-
drætti yfir Heiðmörk, fæst í öllum bókaverzlunum og á af-
greiðslu Morgunblaðsins.
Nýkomið fí«lí úrval af
kápu> og dra gtareinum
• ¥crksiniðjnútsalan Gefjun — Iðunn
Aðalstræti.
hafi fylgi meirahluta þing-
manna. Ég harma þá afgreiðslu
málsins. Hún er ekki í sam-
ræmi við þær ráðstafanir, sem
nauðsyn ber til að geröar verði.
Ég álít svo mikils við þurfa, að
hefði ég ráðið, myndi skattur-
inn hafa orðið hærri en hann
er ráðgerður í mínu eigin frv.,
sem flutt var sem samkomulags-
grundvöllur. Ég hefði ekki hikað
við, að taka á mig þær óvin-
sældir, sem því hefðu fylgt fyrst
í stað. —
Rúm blaðsins leyfir ekki, að
rakið sé efni fleiri ræðna, enda
hefir hér verið getið þeirra, sem
aðallega snerust um þær tillög-
ur, sem fyrir lágu. Hinar voru
meira almenns efnis. Margir
þingmenn tóku til máls og stóð
umræðan fram á nótt.
Atkvæðagreiðsla fór fram kl.
11 árdegis í morgun. Allar til-
lögur fjárhagsnefndar voru
samþykktar mótatkvæðalaust,
nema tillaga um hækkun tolls-
ins á áfengi og tóbaki. Greiddu
kommúnistar atkvæði gegn
henni.
Tillaga Jóns Pálmasonar og
Stefáns Stefánssonar var felld
með öllum atkv. gegn 6. Með
henni greiddu atkvæði Bjarni
Ásgeirsson, Jón Pálmason, Pét-
ur Ottesen, Stefán Stefánsson,
Steingrímur Steinþórsson og
Þorsteinn Briem. Gísli Sveins-
son greiddi ekki atkvæði.
Móti útflutningsgjaldinu
greiddu atkvæði kommúnistar,
Finnur Jónsson og Sigurður
Kristjánsson.
Tillaga meirahluta fjárhags-
nefndar um tekjuskattinn var
samþykkt með 19:13 atkv. Móti
henni greiddu atkvæði allir
Framsóknarmenn í deildinni og
Pétur Ottesen. Með henni
greiddu atkvæði allir íhalds-
mennirnir, nema Pétur og
Thor Thors, sem er fjarverandi,
allir jafnaðarmennirnir, komm-
únistarnir tveir, Bændaflokks-
mennirpir tveir og Héðinn
Valdimarsson.
Fjórir þingmenn, kommúnist-
arnir, Garðar Þorsteinsson og
Sigurður Kristjánsson, greiddu
atkv. gegn frv. í heild.
Rúmið leyfir það ekki, að
nánara sé rætt um þessa af-
greiðslu dýrtíðarmálsins að
sinni. Á það skal aðeins bent,
að hér hefir verið stórkostlega
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu.)
anlega sár.t til fylgisleysis flokks
síns og grípur því til hinna kyn-
legustu ráða til að vinna aftur
hið glataða traust. Snemma á
þingi fluttu fulltrúar flokksins
þingsályktun í sameinuðu þingi
um sumarleyfi verkamanna.
Nefnd, sem fékk málið til at-
hugunar, hefir löngu skilað áliti,
en forseti hefir dregið að taka
það á dagskrá. í gær ræðst
blaðið því heiptarlega á Alþingi
fyrir að hafa ekki afgreitt mál-
ið og lýsi þetta miklu skiln-
ingsleysi á kjorum alþýðunnar
hjá þingmönnum, sem séu „að
fara út í sólina og sumrið'. En
blaðið gætir þess ekki, að mað-
urinn, sem ber ábyrgð á þessu,
er Haraldur Guðmundsson, for-
seti sameinaðs þings og aðal-
máttarstólpi Alþýðuflokksins.
Honum hefir verið í lófa lagið
að láta afgreiða málið fyrir
löngu, ef áhuginn hefði verið
nægjanlegur.
í______________________________
Tveim sklpum
bjargað
(Framh. af 3. siðu.)
laus, eins og hann var ráðagóð-
ur, og hafði sagt, glettnislega,
eftir hina fyrstu björgun, að
aðrir mættu gjarnan fá heiður-
inn af því verki. Hann byggist
aldrei við að byrja að stunda
sjómennsku. Nú hefir reynslan
skorið úr til fullnustu. Héðan
af mun hinum vösku mönnum
á hafnlausu ströndinni verða
falið að standa fyrir björgunar-
málum í brimgarðinum, þar
sem verður að beita þeim að-
ferðum, sem Skaftfellingar
hafa uppgötvað, og kunna að
beita öðrum mönnum betur.
J. J.
Leiðrétting.
Myndirnar af Klausturbræðrum á
3. síðu blaðsins, í grein J. J.( Tveim
skipum bjargað, hafa ruglazt, þannig
að Siggeir Lárusson er þar sagður Júl-
íus og Júlíus Siggeir. Blaðið biðst vel-
virðingar á þessum leiðinlegu mistök-
um.
Frá Jökulfjörðum
(Framh. af 3. siðu.)
varðveitast, ekki aðeins mál,
siðir og þjóðareinkenni, heldur
og heilbrigði, þróttur og skap-
festa. Og þótt lífsbaráttan sé
oft hörð, er hún líka oft heill-
andi og ætíð þroskavænleg, ef
karlmannlega er við búið.
Ég vil svo nota tækifærið til
að þakka þeim, sem á ferðum
mínum greiddu götu mína á
einn og annan hátt og gjörðu
rnér - þar ógleymanlegar á-
nægjustundir.
Þakka ég svo þeim, er lesa.
Verið þið sæl.
rýrður öruggasti tekjustofninn
í dýrtíðarfrv. Bæði útflutnings-
gjaldið og framlag ríkissjóðs
geta brugðizt. Þess vegna getur
svo farið, að sáralitlar ráðstaf-
anir verði hægt að gera til að
halda niðri dýrtíðinni og kaup-
gj aldinu.