BSRB fréttir - 01.03.1986, Blaðsíða 1
1. TBL. MARS 1986
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
MIÐUÐ VIÐ VINNUSTAÐI
Fyrirkomulag allsherjaratkvæðagreiðslu ríkisstarfsmanna
verður hið sama og síðast er kosið var. Hver félagsmaður
fær kjörgögn sem merkt eru honum persónulega. Hann setur
atkvæðaseðilinn í lokað umslag, en það er síðan sent yfir-
kjörstjórn í öðru umslagi þar sem nafn sendanda kemur fram.
A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU sjá aðildarfélög BSRB um framkvæmd
kosningarinnar og fer kosningin fram FIMMTUDAGINN 13. og
FÖSTUDAGINN 14. MARZ n.k.
UTAN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS fá félagsmennirnir í BSRB send
kjörgögn í pósti á VINNUSTAÐINN.
Félagsmenn eru hvattir til að KJÖSA STRAX og þeim berast kjörgögn og
koma þeim sem fyrst í póst. ATKVÆÐI SEM PÖSTLÖGÐ VERÐA EFTIR FÖSTll -
DAGINN 14. M4RZ TELJAST ÖGILD. Hafi félagsmenn ekki fengið send kjör-
gögn firrmtudaginn 13. marz þá geta þeir fengið kjörgögn á næstu póst-
stöð.
UTANKJÖRSTAÐAATKVÆÐAGREIÐSLA fer fram á skrifstofu BSRB
frá og með mánudegi 10. marz til og með föstudegi 14.
marz á venjulegu skrifstofutíma.
ÚTGEFANDI: BSRB - UMSJÓN: HELGI MÁR ARTHURSSON