Bjallan - 01.11.1943, Blaðsíða 1

Bjallan - 01.11.1943, Blaðsíða 1
MÁLGAGN SAMVINNUSKÓLANEMA . RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM. HANNES JÓNSSON For§pjall Undanfarin ár hefur blaða- kostur samvinnuskólanema verið fremur rýr. „Huginn“, eina blaðið, sem komið hefur út í skólanum, hefur verið í formi, sem bezt hæfir stílsæfingum, enda hafa nemendur almennt afrækt hann. Þótt í honum hafi birzt heil ósköp af greinum — sumum ágætum —, þá ber þó meiri hluti þeirra keim stíla- bókanna. Efnið er eins og press- að út úr höfundunum, sem og vænta má, þar sem ritstjóri „Hugins“ skipar greinahöfunda fyrir hvert blað, en má ekki láta áhuga- og eljusömustu mennina í þessari grein hafa mest rúm hans. „Bjallan", sem nær nú í fyrsta sinn til augna lesenda sinna, er starfrækt með það fyrir augum, að bæta úr því ófremdarástandi, sem er á blaðamálum skólans. Henni er ætlað að stuðla að því, að líf og gróandi færist í félags- lífið í skólanum. Hún mun leit- ast við að vinna íslenzkri sam- vinnuæsku eins mikið félags- legt gagn og frekast verður á kosið, — en í þeim efnum telur hún sig fyrst og fremst gera gagn með því að láta blaðið standa opið fyrir sérhverjum sem eithvað nýtt hefur að kynna eða berjast fyrir. Blaðinu er ekki ætlað að fara inn á brautir „Hugins,“ né á neinn hátt að standa honum fyrir þrifum, og leggur þar fram gilda tryggingu, sem er rit- stjóri blaðsins, en hann er jafnframt ritstjóri „Hugins". — „Bjöllunni" er þvert á móti ætlað að blása nýju lífi í „Hug- ann,“ með því aukna starfi og þeim félagsáhuga, sem hlýtur að fara í kjölfar þessa blaðs. Útgefendur „Bjöllunnar“ eru þó þeirrar skoðunar, að skemmti- legra væri að hið gamla blað skólans „Huginn", gegndi því hlutverki, sem „Bjallan" gegnir nú. Þeir álíta, að „Huginn" hefði átt að vera færður í þetta form, og allir aðilar að sameinast um að gera frægð hans sem mesta. Þess yegna beittu líka forvígis- menn blaðsins sér fyrir lagfær- ingum á lögum skólafélagsins, varðandi blað þess. Þeir gerðu tilraun til þess, að fá skýr á- kvæði inn í lögin um útlit og starfrækslu „Hugans," þar sem þeir miðuðu við nútímakröfur, sem gerðar eru til slíkra blaða. En umbótatilraunir þeirra náðu ekki fram að ganga, nema að mjög takmörkuðu leyti. Meirihluti félagsmanna hafði að vísu fullan hug á að gefa út prentað blað, en hann þorði ekki að hætta fjárhag félagsins í svo „vafasamt fyrirtæki“. Jafnframt álitu talsmenn hans, að Sam- vinnuskólanemendur væru ekki færir um að gefa út blað, sem stæðist samanburð við önnur prentuð málgögn, hvað efni snerti. Forvígismenn „Bjöllunnar" hafa ekki viðurkennt þesar mót- bárur, sem byggjast á vanmati á íslenzkri samvinnuæsku, og þeir munu ekki gera það. Þeir munu þvert á móti sanna, með starfrækslu þessa blaðs, að sam- vinnuæskan stendur ekki að baki skólaæsku samkeppnisstefnunn- ar, né annarra ungmenna, hvað rithæfni og athafnasemi í blaða- rekstri snertir. Þeim finnst eðli- legt og sjálfsagt að taka á sig fjárhagshættuna, sem fylgir blaðarekstrinum, til þess að sýna félögum sínum að fjár- hagshlið þessa fyrirtækis er ekki svo erfið, sem margur hélt. „S.f. Bjallan“ leikur þannig fyrsta leik í þessu tafli. Það æti- ast til að skólafélagið byggi síð- an á reynslu þeirri, sem fæst með þetta blað í vetur, en leiki eftirleikinn að ári. Ef allt geng- ur vel í vetur, þá liggur beint fyrir aðalfundi skólafélagsins að ákveða í lögum sínum, að skólablaðið skuli koma út prent- að að staðaldri — og væru þá breytingatillögurnar, sem komu fram á síðasta fundi, tilvalin fyrirmynd. Útgáfustjórnin vonar að menn hafi það hugfast í dómum um þetta blað, að það er að öllu leyti skrifað og kostað af lítt reyndum unglingum. Það fer því naumast hjá því, að það verði haldið nokkrum þeim bamasjúk- dómum, sem þjá slík blöð. En í þeirri vissu von, að samvinnu- æskan leggi sig fram með að gera blaðið að fyrirmynd ann- arra skólablaða, þá hefur hún óhikað starf sitt. vVé 1 •') 3 b > BJALLAN 1

x

Bjallan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjallan
https://timarit.is/publication/1843

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.